Lögberg - 05.09.1940, Blaðsíða 3
LÖGBEBG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER, 1940
3
Mér finst eg býsna rétthár, því í .rauninni eg er
Sem regísteruð undirtylla kvenfélagsins hér.
En náttúrlega þegar voða og vanda’ að hönduin ber;
Eg veit þær treysta guði bezt, en þar næst kannske mér.
Svo drjúpi yfir “Munda” og ‘.Steinu” þeirra börn og bú
öll blessun þessa kvenfélags í ást og von og trú,
Og þótt mér hafi mislukkast að tala í kvennatón,
Eg tel mér sæmd að vera stundum þeirra “gramofón.”
Lúðvík Kristjánsson.
* * *
Við lékum saman, litlir ungir drengir,
en leikurinn varð stundum nokkuð grár.
í “Munda” voru sterkir ofnir strengir,
stóðst hann enginn, þó hann væri knár.
Eg held ’ann sé nú hættur við að glíma,
hefja stökk á “pole” og hlaupa til.
Enginn sér ’ann iðjulausan heirna,
hann öllum gjörir verkum sínum skil.
Honum sendi heilla og ásta dísin
. hýra meyju vestur yfir sæ.
Fjalla-liljur þola eld og ísinn,
og ekki fölna í hverjum mótgangsblæ.
Á Fögruvöllum fögur blómin gróa,
finst þar alt, sem þrífst í Bifröstsveit,
má þar líta engjar, akra og skóga,
einnig sauði, naut, og hross á beit.
Nú lifir “Mundi” i hárri og glæstri höllu,
sem hæfa mætti kóngi Breta-lands.
Eg veit þau hafa unnið fyrir öllu,
og enginn þarf að borga skatt til hans.
Hér heilan aldarfjórðung liðinn
þið öllu hafið sýnt hin beztu skil.
Því vil eg að þið hljótið frernd og friðinn
og finnið glögt í minningunum yl.
Þegar æfin ykkar verður búin
og engin framar mæðir sorg né raun,
er mín hjartans óskin bæði og trúin.
þið öðlast munið dýrust sigurlaun.
F. P. Sigurðsson.
Nú vakna aftur æskustöðva heitin,
Nú endurskapast mörg hin fyrri Ijóð,
Nú brosir enn við okkur sama sveitin
Og sumardagsins stund í morgunglóð.
Nú kallar lífið enn á ungdóni landsins,
Sem okkur fyr, að renna göfugt skeið.
Og enn er treyst á helgi hjónabandsins,
því himins dögg er oft á þeirri leið.
Nú vakna aftur allar gamlar sögur
Og æfintýri mörg er birtust þar;
Þá var bygðin alt eins frjáls og fögur,
En “Framnesbúið” langt af öðrum bar.
Sigvaldi með sælubros á vörum
Sjónum rendi drengjahópinn á,
En Margrét átti kjark í öllum kjörum
Og kunni vel að herða og brýna þá.
Þá gerðist þetta æfintýra undur
Og ólst þar upp við mánaskin og nótt.
Vitni gætu borið laut og lundur,
Þá líður sælustundin heldur fljótt.
Og “Mundi” fann það þá og alt í einu
Hve ástin smýgur gegnum taugar manns;
Hann fann: það líf er allslaust utan “Steinu’
Og ekkert þvílíkt blóm á vegi hans.
Hún sagði “já”, þau urðu síðan saman,
Og saman reistu bú á nýjum stað.
Og þessi stund er góðra vina gaman,
Því gleðin hefir rent í þeirra hlað.
Hvergi er bygðin fegri en “Fögruvellir”,
Fegurð landsins skín á búandann,
Þegar Guð úr himinlindum hellir
Og heimsins börnum færir sáttmálann.
Það er okkar ósk og allra hinna,
Að andi Drottins b lessi þeirra rann,
Að ávöxt beri barna þeirra vinna
Á bústað þeim, sem faðir þeirra ann.
Gleði lífs og heill sé þessum hjónum,
Sem hlýddu þannig röddu sannleikans.
Við skynjum þennan óm úr æðri tónum,
Því ástin tendrar ljós á vegi manns.
G. O. Einarsson.
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjl
TNE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
Suðurskautslöndin
/?. BYRD, AÐMÍRÁLL, TELUR
AÐ ÞA-U HAFl ÁÐUR VERIÐ
t HITABELTINU.
Byrd aðmíráll dvaldi ekki
sjálfur með öðrum leiðangurs-
mönnum í Litlu-Ameríku í vet.
ur, en leiðangur, sem hann und-
irbjó og stjórnar úr fjarlægð,
hefir dvalið þar syðra síðan í
desember síðastl. Leiðangurinn
tók sér vetursetu á tveim stöð-
um, og þegar biiið var að koma
öllum mönnum og tækjum upp
á ísröndina, fór Byrd tíl Chile.
Blöð þar áttu tal við hann, og
fer hér á eftir grein, sem eitt
þeirra birti.
•
“Þegar eg fór fyrstu för mina
til Suðurskautslandanna,” sagði
Byrd, “varð mér ljóst, að þar
stóð yfir ísöld, sem var að líða.
Á hverju ári hörfar ísinn undan.
íshettan á pólnum bráðnar hægt
og sígandi, þótt hún sé ennþá um
5000 fet á þykt á pólnum, en um
eitt til fjögur þúsund fet á þykt
með ströndum fram.
Við fundum sannanir fyrir
því, að á liðnum ölduin hafa ísa-
lögin verið ennþá meiri og það
er ekki , óhugsandi, að Suður-
skautið geti, er frain líða stundir,
orðið byggilegt aftur, ef engin
ný ísöld kemur. En auðvitað
myndi það taka miljnir ára. Eg
held einnig, að veðurfarið í Chile
og Argentínu sé heldur að hlýna.
Fjárhirðar í Suður-Chile hafa
látið svo um mælt við mig, að
ís og snjór sé nú minni í fjöll-
unum, en fyrir mannsaldri. Eftir
því sem ísinn hörfar undan við
Suðurskautið, hækkar meðalhit-
inn smám sainan, og Huinboldt-
straumurinn verður e. t. v.
hlýrri. (Humboldt-straumurinn
temprar veðurfarið i hitabeltis-
héruðum Chile og Peru).
f Palmerslandi, sem brezkir
jarðfræðingar kalla altaf Gra-
hamsland, enda þtt Palmer hafi
fundið það fyrst, fundum við
botnfrosið stöðuvatn, sem okkur
reiknaðist til að hefði frosið fyr-
ir 10—20,000 árum. Vísinda-
mennirnir okkar athuguðu ís-
mola úr vatninu og fundu í
honum frosnar smá-lífverur.
Þegar ísinn var bræddur vökn-
uðu þær til lífs og voru hinar
sprækustu.
Það er svo kalt í Suðurskauts-
löndunum, að það er erfitt að
gefa mönnum hugmynd um þvi-
líkan reginkulda. í einum af
leiðangrum mínum var alt að
-^64° C. í veðurathuganaskúrn-
um mínum. Bakteríur geta
ekki lifað í þeim kulda. Með-
limir leiðangursins fengu aldrei
kvef eða inflúensu, nema þegar
skip leiðangursins komu og
höfðu þá lifandi bakteríur innan-
borðs. Að mínu áliti sannar
þetta, að kvef orsakast af
bakteríu. Einn leiðangursmann-
anna hafði þjáðst mjög af
asthma og hafði lézt svo, að
hann vóg aðeins 125 pund. f
Suðurskautslöndunum þyngdist
hann um 45 pund og læknaðist.
Síðan hefir hann dvalið sex ár i
Bandaríkjunum og aldrei kent
hins gamla ineins.
Andardráttur manns frýs á
auðabragði og hávaðinn er eins
og skip hleypi út gufu. Það er
miklu kaldara en á Norðurskaut-
inu. Meðan eg var þar, bjó eg
einu sinni i Eskimóaþorpi, sem
var ekki 1100 km. frá pólnum.
Jafnvel að vetrarlagi sjást mosk-
usuxar, sem eru Norðurskauts-
dýr, mjög norðarlega. Á sumr-
iu. þegar hitinn er að jafnaði
nokkur stig fyrir ofan frostmark,
vex gras og blóm nvrst á Græn-
landi. Þar eru líka refir, úlfar,
hérar og allfjölskrúðugt fugla-
líf.
Á hinn bóginn sézt hvergi
stingandi strá innan 1600 km.
frá Suðurskautinu og einu dýr-
in, sem þar dvelja að staðaldri,
eru mörgæsirnar, sem verpa og
unga út eggjum sínum um nótt-
ina — sex mánaða langa — með
því að láta þau liggja á fótum
sínum. Á sumrin koma þarna
hvalir, sæljón og selir. Fiskur
er í sjónum, en þótt vtð höfum
fundið hann í maga mörgæsanna,
hefir reynst ómögulegt að veiða
hann á færi.
Það er reginkuldinn á Suður-
skautinu, sem orsakar tempraða
loftslagið í S.-Argentínu, Chile
og Peru. Hann gerir Patagoniu
og hafið umhverfis Hornið að
einhverjum hráslagalegustu stöð-
um á hnettinum, í samanburði
við þau svæði á norðurhveli
jarðar, sem eru á sömu breidd-
argráðum, t. d. Noreg og Alaska.
En ef sjórinn hlýjaði ekki lofts-
lagið, myndi það vera enn kald-
ara.
Það, sem sannar að Suður-
skautslöndin voru einu sinni i
hitabelti, er að við fundum í
fyrri leiðangri steinrunnin tré,
þótt enn sé ekki að fullu rann-
sakað, hvaða tré er um að ræða.
Auk þess fundum við steinrunn-
in trjáblöð. Það er mögulegt,
að hægt sé að finna dýraleifar
í jörðinni undir ísnum, ef hægt
væri að eyða tima og fé í að
grafa niður úr íslaginu. Við
sprengdum með dynamiti á
nokkurum stöðum og urðum
varir við kol. Þau fundust m. a.
á yfirborðinu á fjallatindunum,
en gæðin voru litil. Eins og nú
standa sakir hafa kolin enga við-
skiftaþýðingu, vegna þess. hve
erfitt er að vinna þau og langt
þarf að flytja þau, en þau koma
kannske í góðar þarfir, þegar
aðrar birgðir verða uppétnar,
enda þótt víst megi telja, að þá
verði komið eitthvað nýtt elds-
neyti á markaðinn.
í fjalllendunum fundum við
einnig kopar, silfur og blý. Þar
uppi er mosinn eini gróðurinn.
Meðal þeirra 22ja vísinda-
greina, sem eiga fulltrúa í leið-
angrinuin er einn frá þeirri deild
Carnegie-stofnunarinnar, sem
rannsakar segulmagn. Á beztu
landabréfum er syðra segul-
skautið á fjórum mismunandi
stöðum. Við fundum það á
fimta staðnum. Það er ómögu-
legt að segja, hvort segulskautið
snýst um landfræðilega skautið,
eða hefir einhverja óreglulega
braut. Er það af því, að rann-
sóknir fara fram með of miklu
millibili, til þess að hægt sé að
draga neinar öruggar ályktanir
af þeim.
Leiðangurinn hefir safnað
ýmsum merkilegum gögnum fyr-
ir veðurfræði. Suðurskautið er
eitt vindasamasta svæði á
hnettinum, en þó er Margaret-
flóinn í Litlu-Ameriku (þar sem
leiðangurinn hafði aðalbækistöð
sína) tiltölulega skjólgóður.
Sir Douglas Mawson, hinn
frægi ástralski vísindamaður,
hefir rannsakað vindhraðann í
samtals tvö ár og hann var að
jafnaði 80. km. á klst. — en
komst upp í 320 km. á klst. f
Margaret-flóa komst hann aldrei
yfir 160 kin. á klst.!
Mig hefir lengi langað til að
komast að hinu sanna um þá
kenningu’ að Andes.fjöllin haldi
áfram neðansjávar suður af
Tierra del Fuego. Dýptarmæl-
ingar virðast benda á þetta, en
eg get ekki sannað það vísinda-
lega. Nýja-Sjálandsfjöllin halda
ef til vill áfram í Suðurskauts
löndunum hjá Colbeckhöfða.
í þessu sambandi má geta
þess, að Norðurskautið er blett-
ur á ísbreiðu, sem þekur 10 þús.
feta djúpt haf, en Suðurheims-
skautið er á fjalli, sem er 9000
fet á hæð yfir sjávarmál.”
—.Sunnudagsbl. Vísis.
Tilviljanir verða oft til merk-
ustu uppgötvana, og tilviljun
varð til þess, að nýlega hafa ver.
ið gerðar tilraunir með kvika-
silfuf og áhrif þess á manns-
líkamann. Þær hafa leitt í ljós,
að i kvikasilfri er mikið eitur,
sem getur valdið sjúkdómum i
líkama manns, ef það kemst í
hann. í flestri ef ekki allri fæðu
sem neytt er, finst kvikasilfur,
það er einnig í tóbaksreyk, en
hættulegast er það í tannfyll-
ingum. Það eru tannfyllingar,
— silfurplombur — sem oftast
valda kvikasilfurseitrun, enda
þótt hún geti á annan hátt kom-
ist í likamann.
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for BULOVA Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers and Jetoellers
699 SARGENT AVE., WPG.
Pistill af Ströndinni
Blaine 12.-8., ’40
Kæri E. P. Jónsson,
Það hafa verið æði oft haldn-
ar Lofræður um íslendinga; sér-
staklega hefir þeim verið hrósað
fyrir skilvísi, en ekki get eg tal-
ist þar með. Eg fór að líta á
litla miðann, sem er límdur á
“Lögberg” og sá eg þar að eg
tilheyri hinum óskihisu, svo eg
legg hér með þrjá dollara, ef ske
kynni að eg yrði búinn að borga
það áður en þið sendið mér
skuldakröfu. Eg þakka þér kær-
lega fyrir blaðið, það er ætíð
velkomið til min; við hér fáum
það á sunnudaginn á pósthúsið
og dreg eg ekki að sækja það.
í fréttum verður fátt í þess-
um miða, og sizt nokkuð, sein
markvert er. Tíðin hefir verið
góð í sumar, hitar æði miklir og
helzt til þurt. Yfirleitt líður
okkur vel, löndunum, allir hafa
eitthvað að gera hér um slóðir,
sem vilja bjarga sér, og eru
vinnufærir, en hinir, sem komnir
eru yfir 65 ár, fá eftirlaun, ef
þeir óska, hjá stjórninni.
Laxveiðin stendur nú sem
hæzt og gengur vel; heyrt hefi
eg að sumir hafi fiskað ágætlega
en aðrir minna, eins og vanalegt
er með þá atvinnugrein.
Nú er dálítið farið að hitna
í kosningapottinum og nógir í
vali, og allir telja sér sigurinn
visan; enginn þorir að segja
annað en beran sannleikann i
kosningahríðinni. Nú sækir um
þingmensku atorku- og fjármála-
maðurinn víðþekti Andrés Dan-
ielsson undir merkjum Re-
publicana, þar sem hann hefir
ætíð staðið sem klettur og ekki
látið bifast hvernig sem áhorfð-
ist. Vinir hans vona að hann
komist sigri hrósandi úr þeim
hildarleik. Eg gef þér leyfi að
setja þetta í blaðið, ef þú álítur
það þess virði, en þá bið eg þig
að laga það, svo það verði ekki
mér til skammar.
Vertu svo blessaður og sæll, og
eg óska þér alls þess bezta.
Þinn einl. J. V.
BORGIÐ
LÖGBERG
PRinTmq
IN THE
BUSITIESS TUORLD
^ O OTHER AID to the World of
^ equals that of the Printing Press.
Business
Every business enterprise calls to its service one
or other of the many forms of printing.
$
We have been serving Western Business for over
fifty years.
We solicit a larger patronage with modesty and
confidence.
/
Why not contact our Winnipeg office and learn
what service we can render you.
Columbia Press Limited
COR. SARGENT AND TORONTO
Phones 86 327-8 WINNIPEG