Lögberg


Lögberg - 08.05.1941, Qupperneq 4

Lögberg - 08.05.1941, Qupperneq 4
4 \ LÓGKBRG. FIMTUDAGINN 8. MAl, 1941 -----------Högberg------------------------ GefiB út hvem fimtudag aí TtLfc. COlA.MItlA l'KICtoS, lilMITKl> «»5 Sargent Ave., Wiunipeg, Manitoha Ulanúskrift ritstjórans: fcjDITOK LOGBEKG, 695 Sargent Ave., VVinnipeg. Man. Editor: EINAR P. JÖNSSON Verö $3.0« uin árið — tíorgist fyrirfrain The "Lögberg" is printed j-nd pub.ished by The Columbia Press, Uimited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Viðsjár miklar í Iraq Svo að segja í lok fyrri viku gerðust þau tíSindi, aS ófriSur brausf út í smáríkinu Iraq, er fram í lok síSasta lieimsstríSs laut yfirráSum Tyrkja, en öSlaSist í lok þess fullkomin ríkisréttindi; landiÖ er afarauSugt af olíunámum, og liggja þaðan olíupípur til Landsins helga; þessar olíunámur eiga Bret- ar, er höfSu meS samþykki Iraq-stjómar nokkurn herstyrk í landinu. Eins og sakir standa situr þar aS völdum stjórn, sem auÖ- sjáanlega er hliÖholl ÞjóSverjum; formaSur hennar er Kashid Ali A1 Gailanif er meS undirferli, og ekki ósennilega aS undirlagi Hitlers, kollvarpaSi stjórn þeirri, er Adul Illah prins veitti forustu, og hrifsaÖi undir sig völd; sú stjórn var vinveitt Bretum, og hafSi þaS aS markmiÖi, aS halda dyggilega alla sáttmála viS erlend ríki. Bretar höfSn fariS ]>ess á leit vegna hins ískyggilega viS- horfs á vettvangi stríSsins, aS fá aÖ auka herstyrk sinn í landinu; þessu mótmælti hinn þýzksinnaÖi forsætisráSherra, og krafSist þess í viSbót, aS Bretar kveddi þegar heim ])ann her, er fyrir var; aS gengiS yrSi aS slíkum afarkostum, var vitanlega ekki nokk- urt viSlit eins og mikiS var í húfi fyrir brezk stjórnarvöld; er hér var komiS sögu, hóf Iraq-herinn árás á meginflugstöö Breta í landinu, og bútaSi í sundur, aS því er sagt er, áminstar olíupípur til Landsins Helga. Tyrkir buSust til aÖ miSla málum, en viÖ því kváÖust Bretar eigi geta orÖiÖ fyr en Iraq- búar legi niður vopn. Stjórn Egyptalands ibauðst einnig til þess að beita sér fyrir um sáttatilraunir, en eins og málum var skipað, sáu Bretar sér ekki fært að sinna slíku heldur; í þess stað sendu þeir aukinn her- afla inn í landið, þó einkum fluglið, sem mælt er að veitt hafi þegar Iraq-búum það þungar búsifjar, að loftfloti þeirra megi teljast úr sögunni; þó hafa þeir enn við lýði talsvert stórskotalið, sem auðveldlega getur gert 'þó nokkum usla. 1 sömu andránni og Iraq-ófriðurinn hófst, sendi Gailani forsætisráSherra sím- skejdi til Hitlers og baS haim ásjár; af þessu má ljóslega ráða hvernig í pottinn hefir verið búið, og hvaða öfl hafa að verki verið í landinu áður en til ófriðar kom; fingraför Hitlers dyljast hvorki í Iraq fremur en annarsstaðar; sama fláræÖið, sama ólyfjan- in og skotið hefir rótum í öllum þeim ríkj- um öðrum, er hann hefir snortið fingurgómi sínum. Ekki myrk í máli Miss Dorothy Thompson, víðfræg fyrir blaðamensku og orðkjmgi í ræðuformi, flutti í Toronto þann 3. þ. m., ræðu um núverandi heimsstyrjöld, sem svo var þrungin af hugs- anaþrótti og stílsnild, að naumast verður lengra komist. Miss Thompson fór ekki dult með þá skoðun sína, að blóÖferill Hitlers yrði dæmdur til ósigurs. “Vér, sem meginland Norður-Ameríku byggjum, teljum 150- miljónir djarfhugsandi manna og kvenna. Séum vér einhuga, og einbeitt í áformum vorum til sjálfsvarnar, án tillits til þjóðernislegrar, trúarbragða- legrar og efnahagslegrar aðgreiningar, er ekkert það til á þessari jörð, er komið geti öss á kné. Vér höfum innan vébanda vorra afl þeirra hluta, sem gera, auðinn og hina hagkvæmu þekkingu; vér erum arfþegar hinnar glæsilegustu sögu og hinnar glæsileg- ustu menningar; hugsjónir vorar grundvall- ast á persónufrelsi, og slíkar hugsjónir hljóta að koma mannkúgunarstefnu Hitlers fyr en síðar á kné.,r Mannvit og manndómur Eftir prnfessor Richard Beck. (Brot úr erindi um “Lífsspeki norrænna manna”). Eigi leikur það á tveim tungum, að ein- hver allra merkasta heimild um lífshorf for- feðra vorra, og norrænna manna í heild sinni, eru “Hávamál,” eitt hið víðfrægasta og aðdáunarverðasta allra Eddukvæðanna. En í þeirri mynd, sem þau eru til vor komin, eru “Hávamál” talin að vera frá 10. öld; rætur þeirra liggja þó vafalaust lengra aftur í forneskju; og margar þær skoðanir á lífinu, sem þar koma fram, eru mjög gamlar. Þar er safnað í hlöðu árangrinum af reynslu margra kynslóða. Og eflaust hefir mörg sú vizkuperlan, sem þar glitrar svo fagurle^a, verið dýru verði keypt, því að sönn reynd- ust í löngu liðinni tíð sem í samtíSinni orð skáldspekingsins: Á sorgarhafs botni sannleiksperlan skín; þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín. Fprfeðrum vorum skildist, að yizkan og þekkíngin reynast löngum haldbezta vega- nestið á lífsleiðinni; í þeirra augum var hún hið bjarta leiðarljós hverjum vegfaranda. Höfundur “Hóvamála” syngur vizkunni — mannvitinu — örlátt lof í þessum frægu orðum: Byrði betri berrat maðr brautu at, an sé manvit mikit; auði betra þykkir þat í ókunnum stað, slíkt er válaðs vera. Með öðrum orðum: Mikið mannvit er bezti förunautur hverjum ferðalang, dýrmæt- ara gullinu sjálfu, athvarf hins volaða, hins vinafáá og snauða. Annarsstaðar segir svo í hinu forna kvæði, að tryggari vin sé ekki unnt að finna heldur en mikið mannvit. For- feður vorir hafa sannarlega sett mikið traust á vitið — þekkinguna. En hér gægist einnig fram einstaklingshyggja þeirra. Þeim var annt um það, að menn væru færir um að standa á eigin fótum andlega, skoðanalega, eigi síður en stjórnarfarslega, að vizku engu síður en að hreysti. Og þegar maður rif jar upp fyrir sér ást forfeðra vorra á mannvit- inu, koma manni í hug ljóðlínurnar hans Jónasar Hallgrímssonar: Vísindin efla alla dáð, orkuna styrkja, viljann hvessa, vonina glæða, hugann hressa, farsældum vefja líf og láð; tífaldar þakkir því ber færa þeim sem að guðdómseldinn skæra, vakið og glætt og verndað fá vizkunnar helga fjalli á. Nú kann einhver að segja, og ekki að ástæðulausu, að eigi hafi öll afrek vísind- anna orðið oss til blessunar. En því mun þá ekki sízt til að svara, að vér skammsýn og grunnsýn mannanna börn eigum sjálfum oss einum um að kenna, að þau hin miklu gögn og gæði, sem vísindin — aukin hagnýt þekking — hafa fengið oss í hendur, hafa eigi orðið oss til þeirrar blessunar, sem vamta mætti og vera bæri. Hvað sem því líður, þá verður seint með rökum neitað, að “mént er máttur. ’r Hinsvegar ber þess að gæta, að mannvitið eitt, þó dýrmætt sé, er ekki einhlýtt til fullrar farsældar. Hvað það snertir má minna á spakleg orð Einars Bene- diktssonar: Sjálft hugvitið, þekkingin, hjaðnar sem blekking, sé hjartað ei með, sem undir slær. Þeir hafa löngum reynst þjóðunum mest- ir velgerðarmenn, sem átt hafa hvorutveggja í senn gnægð mannvits og mannástar. Sam- vinna heila og hjarta er undirstaða hinnar hollustu lífsskoðunar og menningar, en það rýrir á engan hátt lofsöng “Hávamála” um mannvitið. Að dómi höfundar þeirra fornu speki- mála er mikið mannvit hinn tryggasti vinur. en á hinn bóginn telur skáldið auðinn vera valtastan vina, minst á að treysta, og hefir margur fengið að kenna á beiskju þess sann- leika á vorri tíð, þegar bankar og aðrar f jár- sýnlu-stofnanir hafa hrunið sem spilaborgir víða um lönd. Réttilega hefir dr. Guðmund- ur Finnbogason bent á það í hinni ágætu riþ gerð sinni um “Hávamál,” að það sé mjög merkilegt atriði, hve smáum augum höfund- urinn lítur á auðinn, og segir ennfremur, að það sé bein afleiðing af því, “að hann metur mann eingöngu eftir því, hvað hann er, en ekki eftir hinu, hvað hann á.” Höfundur “Hávamála” leggur sama mælikvarða á mennina eins og Robert Burns, þjóSskáldiS skozka: Því skal ei bera höfuS hátt í heiðursfátækt, þrátt fyrir alt! Svei vílsins þræl, — þú voga mátt að vera snauður, þrátt fyrir alt, þrátt fyrir alt og þrátt fyrir alt, þreytu, slit og baslið alt; alt hefðarstand er mótuð mynt, en maðurinn gullið, þrátt fyrir alt. Hinsvegar þarf engum að koma á óvart, þó höfundur “Hávamála” syngi lof mann- dómi og mannréttindum. Það er einnig í fullu samræmi við einstaklingshyggju og ríka sjálfsstæðistilfinningu forfeðra vorra, sem hvarvetna blasir oss við sjónum í Is- lendingasögum. Togararnir búaát til saltfiskveiða Samtal við Kjartan Thors framkvæmdarst jóra. Togararnir safnast nú hver af öðrum í höfn og er enn alt í ó- vissu um, hvernig úthaldi þeirra verður hagað í nájnni framtíð. En vegna þess að togaraútgerð- in snertir svo mjög hag og af- komu fjölda einstaklinga, bæjar- félaga og þjóðfélagsins í heild, fór tíðindamaður Morgunblaðs- ins í gær á fund Kjartans Thors framkvæmdarstjóra, en hann er formaður Félags ísl. botnvörpu- skipaeigenda, og spurði hann, hvað nú yrði gert með togarana. Honum sagðist þannig frá: —Strax og fréttist um hina hryililegu árás á “Fróða” greip ótti og skelfing útgerðarmenn, sjómenn og alla landsmenn. Sýnilegt var, að hér var komin ný, alvarleg hætta fyrir sigling- ar okkar til Englands. Hvað átti nú að gera? var fyn>ta spurningin, sem vaknaði hjá okkur útgerðarmönnum, hélt Kjartan Thors áfram. Útgerðar- menn komu strax saman á fund. Á þeim fundi var óskað viðtals við atvinnumálaráðherra, til þess að ráðgast við hann um, hvaða möguleikar væru á því, að gera siglingarnar öruggari og tryggari. Var m. a. rætt við ráðherrann um möguleika á, að sigla í samflota undir vernd her- skipa, og ýmislegt fleira bar á góma í þeim viðræðum. Atvinnumálaráðherra brást vel við og lofaði að athuga, hvaðia leið tiltækilegast væri að fara. Kvaðst hann mundu ræða þetta við yfirstjórn brezka setuliðsins hér og sendiherra Breta. Nokkru síðar skrifuðu stjórn- ir sjómannafélaganna ríkis- stjórninni og óskuðu þess, að atvinnumálaráðherra boðaði á sinn fund fulltrúa allra stéttar- félaga sjómanna og útgerðar- menn, til þess að ræða sameig- inlega þetta nýja viðhorf. At- vinnumálaráðherra varð strax við þessum tilmælum. Síðan hafa verið haldnir marg- ir fundir með þessum aðiljum og er þeim ekki lokið enn. Ráð- herrann hefir einnig oft» rætt málið við brezku herstjórnina hér og sendiherra Breta. Skipin í höfn. En hvað varð um skipin? spurðum vér Kjartan Thors. — Strax og þessi málaleitan hófst, héldu útgerðarmenn skip- um sínum í höfn, svarar Kjart- an. Með hverjum degi fjölgaði skipunum í höfnunum, sum full- fermd, reiðubúin að sigla. Þessi skip biðu með farminn nokkra daga En þar sem þessar mála- leitanir hafa enn engan árangur borið, hafa útgerðarmenn ekki séð sér annað fært en að taka fiskinn upp úr skipunum og verður hann nú ýmist saltaður eða seldur við skipshlið. Ein- staka útgerðarmenn hafa haft möguleika til að frvsta fiskinn í landi. —Eru það margir togarar, sem þurft hefir að losa hér þannig? —Hér í Reykjavík eru það sex heilir farmar og einn hálfur. kunnig nokkur skip í Hafnar- firði. — En hvað varð um skipin, sem voru ytra? — Þegar hingað bárust hin hryllilegu tíðindi af “Fróða” og síðar af Reykjaborginni, voru allmörg skip ýmist á útleið eða stödd í enskri höfn. Eftir á- kvörðun þá, sem tekin var á fundinum með atvinnumálaráð- herra, símaði hver einstakur út- gerðarmaður til síns umboðs- manns ytra og gaf fyrirskipun um, að fresta burtför skipanna unz frekari ákvörðun yrði tekin. En áður voru nokkur skip lögð af stað heim og eru þau nú öll komin, heilu og höldnu. Þessi skip höfðu haft fregnir af árás- inni á “Fróða” og einnig óljóst hugboð um Reykjaborgina. Þau tóku því það ráð, að sigla í sam- flota heim. Enn eru þó ytra 6 togarar, auk nokkurra smærri skipa, sein bíða þar, unz þau fá nánari fyrirskipan. Á saltfiskveiðar. -—En hvað verður nú um tog- arana? —. Yfirleitt munu útgerðar- menn helzt kjósa, þar til úr raknar, að senda skipin á, salt- fiskveiðar. Er og þegar ákveðið, að allmargir togarar hefji þessar veiðar. En eins og sakir standa er, því miður, ekki útlit fyrir lang- varandi úthald skipanna á salt- fisksveiðar. Er margt sem því veldur. Fyrst og fremst saltleysi, þar sem menn höfðu ekki gert ráð fyrir, að til þess kæmi, að saltfiskveiðar yrðu stundaðar á þessari vertíð. Svo er, a. m. k. að því er Reykjavík snertir, mjög erfitt með að fá pláss fyrir af- greiðslu skipa í höfninni. Má því búast við stórvandræðum, ef allir togarar færu að fiska í salt. Loks er svo það, að flest fisk- húsin í bænum eru nú í hönd- um brezka setuliðsins, en ekki er við því að búast, að það geti rýmt þau í skyndi. En útgerðarmenn eru að vona, heldur Kjartan Thors áfram, að þegar skipin hafa farið 2—:3 túra á saltfiskveiðar, verði ástandið það breytt, eða ný úrræði fund- in, að siglingar til Englands verði taldar færar á ný. Annars er nú svo ástatt um okkar togaraflota, segir Kjartan að lokum, að um 20 skip þurfa að ganga undir allsherjar skoð- un (klössun) á þessu ári. Er ekki sýnt, að þær viðgerðir, sem af því leiða, geti orðið fram- kvæmdar hér á landi, með þeim vinnuskilyrðum og því vinnu- afli sérfræðinga, sem þarf til þessa verks. útgerðarmenn höfðu þessvegna, fyrir tilstilli umsjóntarmanns flotans, Gisla Jónssonar vélfræðings, fengið því til leiðar komið, að ákveðin stór skipasmíðastöð í írlandi tæki að sér það af þessari við- gerð, sem ekki væri unt að fram- kvæma hér heima. En eins og nú er komið getur þannig farið, að ekki verði unt að nota sér af þessu og þá horfir til stórra vandræða. —Morgunbl. 26. marz. Þegar brezki kafbáturinn átöðvaði íslenzka togarann Skipstjórinn, sem var með ís- lenzka togarann er brezki kaf- háturinn stöðvaði, kom á skrif- stofu blaðsins í gær og ópkaði eftir því, að nánar væri sagt frá atburðinum#en gert var í blaðinu í gær. Frásögn hans var á þessa leið: 4Jað var kl. 4.40 þann dag, að kallað var á mig og mér sagt, að kafbátur væri nálægt okkur. Rauk eg á fætur og sá, að kaf- bátur kom á móti okkur á hægri ferð. Sendi eg strax menn “aftur í” til þess að sjá um, að allir væru viðbúnir því, sem kynni að koma. Þegarx kafbáturinn kemur á móts við okkur — hann var talsvert til hliðar við okkur — sá eg að hann hafði fána uppi. En fáninn hékk niður, vegna þess hye lygnt var, og undir sól að sjá, svo eg gat ekki greint hverrar þjóðar hann var. Kaf- báturinn hélt áfram framhjá okkur. En þegar hann er kom- inn nál. 3. smómílur fram hjá okkur, sneri hann alt í einu við og hélt nú í áttina til okkar. Allan þenna tíma héldum við áfram ferð okkar. Er hann var nál. % sjómílu frá okkur, fór hann að “morsa” til okkar með ljósmerkjum, og stöðva eg þá skipið. En “morse”- merkin gátum við ekki greint til að skilja þau, vegna sólarglampa. Kafbáturinn kemur nú nær okk- ur, og er kallað til okkar, og spurt á hvaða ferð við séum. Er við svörum því, þá var okkur skipað að fara í bátana og skipa eg svo fyrir tafarlaust. Því þá hafði eg dregið upp merkiflögg. sem áttu að duga til þess að segja til um það, hvaða skip væri hér á ferð. Eg skildi ekki í þessum að- förum. Hélt helzt að hér væri þýzkur kafbátur á ferð undir fölsku flaggi, og bjóst við að þá og þegar myndi skothríðin hefj- ast á togarann. Við vorum komnir skamt frá togaranum þegar okkur var gef- ið merki um að róa að kafbátn- um. Ætlaði eg að fara kringum kafbátinn og komst sem fyrst úr skotlínunni milli hans og togar- ans. En nú fór eg beint til kaf- bátsins. Var okkur gefin bend- ing um að róa að stefni hans, því þar var þægilegast að leggjast að honum. Þrír menn komu nú fram á stefni hans. En aðrir skipverj- ar voru við fallbyssu bátsins og skipshöfnin sýnilega vigbúin, og viðbúin ef hættu bæri að hönd- um. Fyrirliði þeirra er fram á stefnið komu spyr okkur nú að því hvort við séum íslenzkir. Eg segi svo vera. —Við héldum, sagði hann þá, að þið kynnuð að vera þýzkir. —Okkur var farið að detta hið sama í hug um ykkur, sagði eg þá. Síðan segir hann okkur af hin- um þýzka togara, sem hafði ver- ið þarna á sömu slóðum daginn áður, með íslenzku þjóðernis- merkin, en reyndist mjög vopn- aður. Sagði þessi brezki liðs- foringi að þýzki togarinn með islenzku merkjunum hefði haft 2 tundurskeyta-“rör,” 2 fallbyss- ur, 2 vélbyssur og útbúnað til þess að leggja tundurduflum. Liðsforingi þessi kemur svo með okkur til þess að líta á skipsskjölin. Hann bað okkur síðan afsökunar á þessu ónæði, sem hann hefði gert, og spurði hvort það væri nokkuð, sem okkur vanhagaði um, eða nokk- uð sem hann gæti gert fyrir okkur. Sagði eg að við hefðum nóg af öllu, vistum og öðru. Skildum við við kafbátsmenn með virktum og héldum okkar leið. — (Morgunbl. 21. inarz). Með morgunkaffinu Einn allra sjaldgæfasti sjúk- dómur, sem sögur fara af, er sá, að menn missi hæfileikann til þess að verða þyrstir. f sögu læknavísindanna er aðeins vitað um fjögur tilfelli þessa sjúk- dóms. ★ ★ ★ Um 5% af ibúum jarðar hafa svokallaða “lita-heyrn.” Þegar þetta fólk heyrir vissa tóna, sér það fyrir sér vissa liti, eða öfugt. * * * Til þess að sanna það, að karlmennirnir i bæ einum frönskum væru hégómagjarnari en kvenfólkið, setti blaðamaður upp spegil á uinferðamikilli götu og lét gefa gætur þeim, sem fram hjá gengu. Á einum klukku- tíma námu 19 menn staðar þarna og spegluðu sig, en aðeins 18- konur. * ★ ★ —Hefi eg nokkurntíma sagi þér hvernig hann ólafur bað mín? —Bað hann þín? ★ * ★ Hefirðu samið erfðaskrá? Sjúklingurinn á banabeði:— Já, eg hefi ánafnað aleigu mína lækninum, sem bjargar líl1 mínu. ★ ★ ★ Gamall læknir hitti einn af fyrverandi sjúklingum sínum og spurði, hvernig honum liði. —Ef þér takið það ekki illa upp, læknir góður, þá líður mér eiginlega ljómandi vel núna, svaraði gamla konan. k i

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.