Lögberg - 15.05.1941, Page 1

Lögberg - 15.05.1941, Page 1
PHONE 86 311 Seven Lines S0tand^>^" Cot- ^ PÍIONE 86 311 J Seven Lines A V^>* «*Ao1t^a d>') For Better Cot- \\0- Dry Cleaning and Laundry 5A argangur LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAl, 1941 NÚMER 20 Brezka þingið lýsir því Qœr einróma trausti n Mr. Churchill Eftir tveggja daga umræður stríðssóknina og viðhorf ^tríðsins, hlaut Churchill-stjórn- In traustsyfirlýsingu með 447 atkvæðum gegn 3. Sá, er veitt- lst þyngst að stjórninni, var tyrruin forsætisráðherra, David H°yd George, er bar henni á 5rýn óviturlegar ráðstafanir í Sambandi við gríska leiðangur- lnn; krafðist hann þess að skip- a® yrði nýtt stríðsráðuneyti. Mr. Oiurehill kvað ákúrur þessar *°nia úr hörðustu átt, þar sem v*tað væri að Mr. Lloyd George hefði i upphafi talið það sið- ^rðislega skyldu, að brezka Þjóðin kæmi til liðs við Grikki. ^r- Lloyd George greiddi ekki atkvæði um traustsyfirlýsing- nna. Rudolf Hess, trúnaðarvinur Hitlers, og þriðji mestur valdamaður Nazistaflokk- sins þýzka, hverfur með furðulegum hœtti úr föðurlandi sínu, og bjargast með fallhlíf úr loftfari sínu í grend við Glasgow ^ýzkar sprengjur stór- skemma Westminster Abbey og þinghús neðri málstofunnar Á aðfaranótt síðastliðins ^ánudags, veittist sægur mikill frýzkra orustuflugvéla að London °§ stórskemdu í árásinni West- 'oinster Abbey og þinghús neðri ^álstofunnar; báðar eru bygg- lngar þessar harla gamlar og sógufrægar. Neðri málstofan ‘^kk sér þegar annað húsrými ^1' fundarhalda. Aukin þörf liðsafla Á sunnudagskveldið var flutti ^ermálaráðh. sambandsstjórnar, C°l. Ralston ræðu, þar sem hann 5rýndi það fyrir þjóðinni, að ltlnan tveggja mánaða þyrfti ^erinn að fá 32 þúsundir ungra ^nna í þjónustu sína. Þau einstæðu og undraverðu tíðindi gerðust síðastliðinn laug- ardag að Rudolf Hess, trúnaðar- vinur Adolf Hitlers, og þriðji æðsti valdamaður Þýzkalands hvarf með skyndilegum hætti úr föðurlandi sínu, og bjargaðist með fallhlíf úr flugvél á landar- eign hertogans af Hamilton í grend við borgina Glasgow á Skotlandi. Þjóðverjar segja að Hess hafi tekið flugvélina í leyf- isleysi, og létu það fylgja sögu, að hann væri allmjög bilaður á geðsmunum; verkamann nokk- urn bar þar að, er Hess lenti, og tók hann þegar fastan; ekki lét Hess, að því er sagan segir, sitt rétta nafn uppi í fyrstu en er lögreglu- og hervöld komu á vettvang, kom hið sanna í ljós um inanninn, því í fórum sínum hafði hann ljósmyndir af sjálf- um sér á ýmsum stigum æfinn- ar; eitthvað hafði hann snúist um öklann á öðrum fæti, er til jarðar kom með fallhlífinni, og var hann því samstundis fluttur á sjúkrahús. Fréttin um hina furðulegu komu Rudolfs Hess til Skotlands var formlega gefin út frá hinum opinbera bústað hrezka forsætisráðherrans, 10 Downing Street á mánudags- kveldið og vakti þegar slíka al- þjóða undrun, að til einsdæma má telja. Brezkir sérfræðingar í geð- sjúkdómum, er skoðuðu Hess, gengu þegar úr skugga um það, að við geðsmuni hans væri eklt- ert að athuga; maðurinn í alla staði fyllilega andlega fullveðja. Sumri fagnað Flutt á sumarmálasamkomu að Mountain og Islendingafélagsfímdi í Ghicago, Sólskinsfánann hátt við hún hefja bjartir sumardagar; yzt frá strönd að efstu brún angað kætir geislarún; grænka lundir, gróa tún, gróðri fegrast bleikir hagar. Sólskinsfánann hátt við hún hefja bjartir sumardagar. Sumarradda söngvaval sætt úr öllum runnum hljómar; blómahvísl og blævarhjal berast létt um hæð og dal; sléttan við, er fönnin fal, fagurprúð af gleði ómar. Sumarradda söngvaval sætt úr öllum runnum hljómar. Hjarta manns, er klakaklóm, kreysti vetur, greiðast bætur, blessar sumars sól og blóm, sigursterkum lyftir róm himni mót, sem helgidóm hæstra vona opnast lætur. Hjarta manns, er klakaklóm kreysti vetur, greiðast bætur. Bræddu, sumar, sálarís, sviftu hulu af augum blindum; glæddu sólarsýn, er ris, sigurtrúuð áttavis, horfir djarft til himins nýs háum ofar sannleikstindum. Bræddu, sumar, sálaris, sviftu hulu af augum blindum. Richard Beck. Svo margar og mismunandi skoðanir hafa af skiljanlegum ástæðum komið fram uin þetta Hess-mál, að engan veginn er auðvelt, að komast að ákveðinni niðurstöðu; en sú tilgátan þykir sennilegust, að Hess hafi flúið land vegna þess að hann hafi verið fallinn í ónáð hjá þeim Hitler og Goering, og eigi þótt hult um líf sitt heima fyrir. Mr. Churchill hefir tilkynt, að hann muni á næstunni gefa út opinbera yfirlýsingu i sambandi við þetta dularfulla Hess-mál. Skipatjón Breta, banda- manna þeirra og hlutlausra þjóða Flotamálaráðuneytið brezka gerði heyrinkunnugt þann 10. þ. m., að skipatjón Breta, banda- manna þeirra og hlutlausra þjóða á fyrsta stríðsárinu, nam 4,734,407 smálestum. I apríl- mánuði síðastliðnum hljóp skipa- tjónið upp á 488,134 smálestir; þetta tjón er að visu ískyggilega mikið, en engan veginn jafn ægilegt og tjónið af völdum þýzkra kafbáta í aprílmánuði 1917 er nam 840,000 smálestum. Heiðurssamsœti fyrir Kristleif á Stóra Kroppi Síðastl. laugardag héldu Borg- firðingar fræðaþulnum og bændaöldungnum Kristleifi Þor- steinsyni á Stóra Kroppi og konu hans Snjáfríði Pétursdóttur veg- legt samsæti í tilefni af áttræð- isafmæli hans. Samsæti þetta sátu nolckuð á þriðja hundrað manns víðsvegar að úr héraðinu. Nokkrir menn úr Reykjavík voru og í sam- sætinu. Fóru þeir upp í Borg- arnes með Laxfoss, en hann fór þangað aukaferð í þessum er- indum. Á laugardagsmorguninn flaug örnin upp að Stóra Kroppi með nokkra vini Kristleifs, er völdu sér loftleiðina til þess að árna bændaöldungnum heilla. Flaug örnin með Kristleif yfir héraðið. Þótti honum tilkomu- mikið að renna augum yfir bygð- arlagið úr háloftinu. Veðrið var hið fegursta, heiðskír himinn og glaða sólskin. Var þetta í fyrsta sinn, er Kristleifur steig upp í flugvél. Kl. 3 hófst guðsþjónusta i Reykholtskirkju. Sóknarprest- urinn séra Einar Guðnason, steig í stólinn, en séra Björn Magnús- son á Borg þjónaði fyrir altari. Að lokinni guðsþjónustu hófst samsætið í fimleikasal skólans. Hafði hann áður verið skreyttur fagurlega. — Bauð Jóhann Frí- mann skólastj. gesti velkomna. Ræður fluttu þeir alþingismenn Pétur Ottesen og Bjarni Ásgeirs- son fyrir minni afmælisgestsins, en Páll Zophoníasson fyrir minni konu hans. Sjálfur hélt Krist- leifur snjalla ræðu, þar sem hann mintist uppvaxtarára sinna og nokkurra þátta í lífi sínu. Halldór Helgason skáld á Ás- bjarnarstöðum flutti Kristleifi kvæði, ennfremur voru honum flutt kvæði eftir Guðlaug Jó- hannesson á Signýjarstöðuin, Jórunni Guðmundsdóttur skáld- konu i Arnþórsholti og Þorstein Jónsson á úlfsstöðum. Undir borðum var mikið sungið og ennfremur skemti karlakórinn “Bræðurnir” með söng, Magnús Ágústsson héraðslæknir með ein- söng og Guðm. Frímann kennari með upplestri. Heillaskeyti og gjafir bárust Kristleifi unnvörp- um, en aðalgjöfin, sem héraðs- búar færðu honum sameiginlega, var skrifborð og tveir hæginda stólar, sinn handa hvoru þeirra hjóna. Voru gripir þessir hinir vönduðustu, smiðaðir úr kjör- Ibúatala íslands íbúatala alls landsins reyndist við allsherjarmanntalið 2. des- ember s.l. vera 121,348 sam- m kvæmt bráðabirgðatalningu Hag- stofunnar. Þessar bráðabirgðatölur birtast í síðustu Hagtíðindum, en Hag- stofan tekur það fram, að töl- urnar kunni að breytast síðar við endurskoðun manntals- skýrslnanna. Það, sem hér fer á eftir, er tekið úr bráðabirgðayfirliti Hag- stofunnar um manntalið. Samkvæmt þessu bráðabirgða- yfirliti hefir allur viðstaddur mannfjöldi, sem fyrirfanst hér á landi 2. des. 1940 verið 120,- 725. Af þessum mannfjölda eru 7,495 taldir staddir um stundar- sakir á þeim stað, þar sem þeir voru 2ó dcs. Aftur á móti voru 8,118 manns taldir fjarverandi frá heimili sínu en þar er ekki átt við lögheimili því að við manntalið voru menn taldir til heimilis þar, sem þeir voru til langdvalar (meir en hálft ár), nema það væri til lækninga eða til að stunda atvinnu fyrir heim- ilið. Þegar frá tölu viðstaddra er dregin tala staddra um stund- arsakir, en bætt við tölu fjarver- andi manna þá kemur fram heimilismannfjöldinn,- er sam- kvæmt yfirlitinu hefir verið 121,- 348,—(Mbl. 8. april). Brezki flugherinn sœkir fast að þýzkum iðnaðar- og hafnarborgum Fimm daga í röð í vikunni sem leið, gerði brezki flugherinn eina árásina annari meiri á borgirnar Mannheim og Ham- burg án þess að verða fyrir neinu flugvélatapi; er mælt að heil verksmiðjuhverfi ha‘fi stað- ið í björtu báli, er flugmenn- irnir héldu heimleiðis. Stalin \ samur við sig Meðal fyrstu afreksverka Josephs Stalin eftir að hann tók við forsætisráðherra embætti á Rússlandi, má telja það, að hann tilkynti sendisveitum Noregs, Belgíu og Jugóslavíu í Mosltva, að þeim yrði hollara að hypja sig hið fyrsta heim; þær ætti hvort sem er ekkert erindi þarna lengur, með því að þjóðir þeirra hefði glatað að fullu sjálfstæði sínu. Með þessu tiltæki hefir Stalin í framkvæmd, viðurkent hernám Hitlers á þessum þrem þjóðum. Þá hefir Stalin einnig veitt form- lega viðurkenningu hinni þýzk- sinnuðu stjórn, sem fyrir nokkru hrifsaði undir sig völd í Iraq. Allir canadiskir hermenn farnir frá Islandi Hermálaráðuneytið í Ottawa lýsti yfir því á föstudaginn var, að nú væri allir canadiskir her- menn famir frá íslandi en í þeirra stað kominn þangað lið- styrkur frá öðrum hlutuin brezka veldisins. Bandaríkjastjórn leggur hald á skip erlendra þjóða Þjóðþingið í Washington hef- ir veitt Roosevelt forseta heim- ild til þess að leggja hald á skip þeirra þjóða, sem liggja í ame- rískum höfnum, en eru eign þeirra þjóða, er nú eiga í striði við Bretland; er það nú á valdi forseta með hverjum hætti skip þessi skuli tekin í notkun. Flugvélatap Þjóðverja færist í aukana Fyrstu 11 dagana i yfirstand- andi maímánuði, mistu Þjóðverj- ar 167 orustuflugvélar í árásum sínum á brezku eyjarnar; er þetta hámark frá því í síðastliðn- um septeinber. viði og var á þeim hið fegursta handbragð. Um náttmálaleytið voru borð rudd og hófst þá dans og annar gleðskapur fram eftir kvöldi. Var samsæti þetta hið til- komumesta og fjölmennasta sem sögur fara af í Borgarfjarðar- héraði.—(Mbl. 9. marz). Bretar kaupa 120 miljónir mæla af canadisku hveiti Verzlunarráðherra sambands- stjórnar Mr. MacRinnon, lýsti yfir því í sambandsþinginu á þriðjudaginn, að brezka stjórn- in hefði fest kaup i 120 miljón- um mæla af canadisku hveiti; er þetta sú mesta hveitisala, sem nokkru sinni hefir gerð verið i einu lagi hér í landi. Bretar byrja að veita hveiti þessu við- töku þann 1. ágúst næstkom- andi. Ekki er vitað um verðið, sem hveiti þetta seldist fyrir. Frœkileg björgun Húsavík fimtud. 13. marz. f fyrradag bjargaði Friðjón Jónasson bóndi að Sílalæk þriggja ára dreng frá druknun á mjög hættulegan og hreysti- legan hátt. Á bænum Sílalæk í Aðaldal voru tveir drengir að leika sér við bæjarlækinn, en hann var íslagður og féll þá annar dreng- urinn, sonur bóndans, Jónasar Andréssonar, niður um vök, scm höfð var á isnum til að ná vatni handa kindum. Móðir drengsins horfði á þenna atburð og sagði það strax mönnum, sem þar voru við. Hljóp þá Friðjón, sem býr á bænum út og stakk sér niður um vök, sem var á isnum nokkru neðar, kafaði og þuklaði sig á- fram upp eftir læknum, móti straum og náði í drenginn undir isnum 20 til 25 metrum ofar en hann stakk sér. Sneri hann nú við og hugði að ná sama gatinu og hann stakk sér niður um og hepnaðist það. Drengurinn var meðvitundar- lítill og Friðjón mjög þjakaður eftir þessa þrekraun og mikla hreystiverk. — Hrestust þeir brátt og líður nú ágætlega. Þess má geta að kona Frið- jóns bjargaði á síðastlinu sumri þessum sama dreng frá drukn- un úr sama bæjarlæknum. —(Mbl. 14. marz). Á mijnd þessari sézt hin veglega og sögufræga Sankti Páls dómkirkja í London; til þess að vernda þetta glæsilega musteri fynr sprengjuá-rásum þýzkra loftvarga, hafa 6000 verzlunar og iðnfyrirtæki i borginni tekið að sér eldvörzlu fyrir kirkjunnar hönd. Á myndinni sjást menn að verki með pumpur til þess að vera ávalt til taks, ef eld- sprengjuregni ýrði stefnt að kirkjunni.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.