Lögberg - 15.05.1941, Side 8

Lögberg - 15.05.1941, Side 8
8 ___-v Úr borg og bygð MA TREIÐSLUBÓK Kvenfélaga Fyrsta lúterska safn- aðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld- sted, 525 Dominion St. Verð: $1.00. Burðargjald 5c. ♦ ♦ ♦ Gefin saman í hjónaband á prestsheimilinu á Gimli þ. 10. maí voru þau Herbert Ingersol! Johnson og Sigurbjörg Lilja Sól- mundson, dóttir Mr. og Mrs. Guðmundur E. Sólmundson, Gimli. Séra Bjarni A. Bjarna- son gifti. ♦ ♦ ♦ We can arrange, at very rea- sonai)le rates, the financing of automol)iIes being purchased. Consult us for particulars. J. .1. SWANSON & CO. 308 Avenue Bldg. Phone 26 821 ♦ ♦ ♦ Þau Gurt Leonard Osland, námumaður frá gullnámunum í Favorable Lake, Ont., og Fjóla Guðrún Goodman, dóttir Mr. og Mrs. J. Goodman, 519 Toronto Street, voru gefin saman af presti Fyrsta lúterska safnaðar, að 776 Victor Street, laugardag- inn 10. maí. + + + Safnaðarfundur Fyrstu lút- ersku kirkjunnar í Winnipeg verður haldinn sunnudagskvöld- ið 1. júní, 1941, að aflokinni messu. Kosning erindreka til að mæta fyrir safnaðarins hönd á kirkjuþingi Hins ev. lúterska kirkjufélags, sem haldið verður 20. til 24. júní n.k. i Winni- peg, verður aðalefni fundarins. G. L. Johannson, skrifari. + + ♦ Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar, deildir No. 3 og 4, efnir til sölu á beimalibúnum mat í fundarsal kirkjunnar á föstu- daginn þann 16. þ. m. frá kl. 2—6 e. h. Auk margs annars góðgætis, verður þar á boðstól- um skyr og rjómi, kaffi og kryddbrauð, o. fl. ♦ ♦ -f Á þriðjudaginn var (6. maí) lézt að heimili sínu á Lundar, Jón Brandson, áður bóndi við Siglues P.O. Hann var fæddur að Markhóli í Gullbringusýslu árið 1866, en kom til Ganada 1^04. Hann lætur eftir sig ekkju sina Þorgerði Árnadóttur frá Hofi í öræfum, þrjá sonu: Jó- hann bónda við Otto, Man., Sig- urð heima og Valgeir, fiskimann við Winnipegvatn. Eina dóttur höfðu þau átt, en hún er dáin fyrir mörgum árum. Jarðarförin fór fram frá Lútersku kirkjunni á Lundar, mánudaginn 12. maí. Séra Valdimar J. Eylands jarð- söng. ♦ ♦ ♦ JUNIOR ICELANDIC LEAGUE NEWS A general meeting of the Junior Icelandic League will be held in the Antique Tea Rooms, 210 Enderton Bldg., on Sunday evening May 18th, commencing at 8.30 p.m. A variety programme has been arranged, which should prove very entertaining. Anyone interested in becoming a member, is cordially invited to attend. G. Reykdal. Til þess að tryggja, yður skjóta afgreiðslu Skuluð þér ávalt kalla upp SARGENT TAXI AND TRANSFER FRED BUCKLE, Manager • PHONE 34 555 - 34 557 SAROENT and AGNES Jóhann Lamers, 606 Mountain Ave., Winnipeg, og Amelia Ben- der, 884 Mountain Ave., voru gefin saman að heimili brúð- gumans á laugardaginn 10. maí af séra Valdimar J. Eylands. Móðir brúðgumans er islenzk, var þekt undir nafninu Bertha Goodman áður en hún giftist; faðirinn er hollenzkur. ♦ ♦ ♦ FR ÓNSFUND U R FIMTUDAGINN 15. MAÍ Næsti fundur þjóðræknisdeild- arinnar “Frón” verður i efri sal Góðteinplarahússins fimtudaginn 15. maí kl. 8.15. Ræðumenn verða fyrv. forseti “Fróns” Mr. Sofonías Thorkelsson og Dr. Eggert Steinþórsson. Með söng skemtir Mrs. R. Gíslason. Það er vonandi að fólk fjölmenni, því þetta verður hin vandaðasta samkoma. Á fundinum verða til sölu aðgöngumiðar að “Barna- hljómleikum” “Fróns” og eru mieðlimir deildarinnar beðnir að kaupa þá og hlynna að sölu þeirra eftir mætti. . Allir vel- komnir. Aðgangur ekki seldur og engin samskot tekin. —Nefndin. ♦ ♦ ♦ Þann 30. apríl s.l. andaðist að Deaconess Hospital, Grand Forks, N. Dak., ekkjan Thora (Dora) Freeman, frá Upham, N. Dak. Foreldrar hennar voru þau Mr. og Mrs. Andrew John- son. Móðir hennar, sem var ís- lenzk, hét Anna Josephsdóttir og var ættuð úr norðanverðri Snæ- fellsnessýslu á fslandi, en kom til þessa lands, þ. e. Bandaríkj- anna, og þá til Elk Rapids, árið 1874. Mrs. Freeman var fædd 22. desember 1876 í Elk Rapids, Mich., og átti æsku sína og upp- vaxtarár i Milwaukeeborg í Wisconsin. Þar tók hún ríkan þátt í starfi æskulýðs og í starfi sunnudagaskóla og annars krist- ins starfs. Var þannig líf henn- ar snemma mótað kristnum á- hrifum og reyndi hún ætíð síðan að samrýma við heimilisstörf sín og móðurskyldur það sem hún vissi gleðiríkast og sannast til gæfu, fyrir kristið heimili og uppvaxandi börn. Árið 1903, þann * *18. febrúar giftist hún Gísla A. Freeman frá Akra, N. Dak. Gísli var sonur Sigríðar ekkju Jóns Jónssonar frá Köldu- kinn í Dalasýslu, og seinni manns hennar Lárusar Free- man, þjóðahagasmiðs. Komu þau bæði vestur um haf og dóu i Mouse River nýlendunni, ná- lægt Upham, N. Dak. Hin ungu Freemans hjón, Gísli og Thora, fluttust til Upham 1907. Reistu þau þar ágætt beimili, var Gísli þar framúrskarandi vinsaíll kaupmaður og lagði einnig gjörfa hönd á alt, því hann var listhneigður, en kona hans eign- aðist ótal vini bæði meðal yngri og eldri í sveitinni, vegna sam- úðar sinnar í sorg ög gleði hvers sem hún náði til. Hefi eg aldrei þekt neina persónu, sem svo var minnug á hamingjudaga og afmælisdaga vina sinna og kunningja, eins og hún var; og ætið skyldi hún láta mann finna þetta með annaðhvort gjöf eða ham(ingjuósk. Hjarta hennar var stórt og gjafmilt, og margir munu þeir sem blessa minningu hennar vegna alls þess, sem hún var þeim meðan kraftar leyfðu. Mann sinn misti hún 1. sept. 1937. Dvaldi þó eftir það á heimili sínu í Upham þar til í haust að hún flutti til Gísla son- ar síns að Larimore, N. Dak. Þar fór að bera á veikindum þeim, sem leiddu hana til dauða eftir tveggja mánaða spítalavist. Þrjú böm syrgja ástríka móður: Anna, skólakennari, Glendive, Montana; Andrew, electrical engineer, Grand Forks, N. Dak.; Gísli, skóggræðslufræðingur. Larimore, N. Dak. Jarðarför hennar fór fram frá ísl. kirkj- unni í Upham, 3. maí, að við- stöddu miklu fjölmenni. Hún hvílir við hlið manns síns í grafreit Rugby bæjar. Sr. E. H. Fáfnis jarðsöng. Ungfrú Ragnhildur Þorsteins- son frá Reykjavík, stúdent við Manitobaháskólann, lagði af stað á miðvikudagsmorguninn í mán- aðarskemtiferð suður um Banda- ríki. ♦ ♦ ♦ Mr. G. F. Jónasson eigandi og framkvæmdarstjóri Keystone Fisheries, Ltd., lagði af stað síð- astliðinn sunnudag suður til New York í erindum fyrir firma sitt; hann gerði ráð fyrir að verða að heiman i tveggja til þriggja vikna tíma. ♦ ♦ ♦ Um fjörutíu vinir Mr. Thor- bergs Halldórssonar héldu hon- um samsæti i samkomusal Brookland hótelsins hér í borg á mánudagskveldið var í tilefni af í hönd farandi giftingu hans; var samsætið hið ánægjulegasta. Thorbergur er sonur þeirra Mr. og Mrs. Jón Halldórsson,' er um langt skeið áttu heima í River- ton. ♦ ♦ ♦ Að öllu forfallalausu heldur Karlakór íslendinga í Winnipeg samsöng í Lundar Community Hall á föstudagskveldið þann 23. þ. m. Auglýsingar verða festar upp í Lundarbæ og grend. Búist er við miklu fjölmenni. ♦ ♦ ♦ ÁGÆTT TÆKIFÆRI fyrir íslenzka miðaldra konu, sem venjuleg innanhússtörf vill vinna, stendur til boða nú þegar, á islenzku heimili í Baldur, Man. Þetta yrði yfir alt sumarið. Á heimilinu eru aðeins hjónin, en engin börn og maðurinn vinnur út alla daga. Allar frekari upp- lýsingar um kaup eða annað fást með því að skrifa. Bergur Johnson, Baldur, Man. Richard L. Vopni látinn Þessi ungi efnilegi maður lézt á Kjing Edward spitalanum hér í bænum á þriðjudaginn var 6 maí, eftir langvarandi veikindi. Hann var sonur þeirra velþektu hjóna Jóns J. Vopna prent- smiðjustjóra og Sigurborgar konu hans. Hann var fæddur 4. febrúar 1913 og hafði alið allan aldur sinn, sem var aðeins rúm- lega 28 ár, í Winnipeg. Árið 1933 giftist hann Mar- grétu, dóttur Eyjólfs Eyjólfsson- ar að Selkirk og Þórunnar konu hans sem að Eyjólfi látnum gift- ist Jakob Jakobssyni á Gimli. Þau Richard og Margrét eignuð- ust tvö börn, Carol og Wilfred Leon, sem bæði eru lcornung. Auk eiginkonu foreldra og barna, lætur hann eftir sig fjórar syst- ur, Aurora, Mrs. H. E. Ross, Mel- ville, Sask., Margaret, Mrs. S. R. Lloyd, og Ágústa, Mrs. J. Clark, báðar til heimilis í Calgary, og Helen, Mrs. E. Munday í Winni- peg, og fimm bræður, Edward, Herman og Magnus í Winnipeg, Jón í Davidson, Sask., og Wil- fred sem heima á i Carberrv, Man. Richard var einkar efnilegur maður, og hvers manns hugljúfi. Hann var prentari að iðn. Hann átti drjúgan þátt í að koma af stað skátahreyfingunni innan Fyrsta lúterska safnaðar, átti lengi sæti í djáknanefnd, og stundaði sunnudagaskólakenslu um hrið. Útför hans fór fram i kirkjunni á laugardaginn var, þann 10. maí, að viðstöddu fjöl- menni. Ekkjan vill með línum þessum votta söngflokkum safn- aðarins innilegt þakklæti fyrir þátttöku þeirra í kveðjuathöfn- inni, og einnig djáknanefnd safaðaris fyrir samúð þeirra og hjálpsemi á hini löngu reynslu- tíð fjölskyldunnar. V. J. E. Brjálað fólk getur stundum unnið fulla vinnu, þó að það sé talið ólæknandi, einkum ef það er góðum gáfum gætt. Prófessor einn í London var t. d. talinn hættulega sinnisveikur um þrjá- tíu ára skeið, en á þeim tíma skrifaði hann alt að 6000 greinar i fræga alfræðiorðabók. 35 hús bygð í Reykjavík Byggingarfulltrúi Reykjavík- urbæjar, Sigurður Pétursson, hefir samið skýrslu um bygg- ingar hér i bænum s.l. ár. Sam- kvæmt skýrslunni hafa verið bygð 35 ný hús og þar af eru 25 nýjar íbúðir. f skýrslunni segir: 35 hús hafa verið bygð. Þar af 5 íbúðarhús, 14 vinnustofu- og verksmiðjuhús, 1 gripahús og 15 geymsluhús og bifreiðaskúrar.— Aukningar á eldri húsum sam- tals 24 eru ekki lagðar við tölu húsa, en rúmmál þeirra og flat- armál er tekið í þeim flokki er þau tilheyra. Alls hafa 25 íbúðir bæst við á árinu, þar með taldar íbúðir, sem vitað er að gerðar hafa verið í kjöllurUm húsa, án samþykkis byggingarnefndar. Á árinu hafa .verið bygðir 1788.84 ferm. af timburhúsum og 2609.11 ferm. af steinhúsum, eða samtals 4397.95 ferm. og 5954 rúmmetrar af timburhús- um og 18090 rúmmetrar af stein- húsum, eða samtals 24044 rúm- metrar. Hefir því verið bygt fyrir 1.27 milj. krónur. óvenju miklar breytingar hafa verið gerðar á eldri húsúm, sem ekki hafa þó haft í för með sér neina rúmmálsaukningu, en þær, svo og girðingar um lóðir o. þ. h.. hafa ekki verið teknar með í yfirliti þessu, þareð ókleift er að fylgjast með þeim kostnaði, sem í slíkt hefir verið varið. Á árinu hefir Teiknistofa land- búnaðarins látið gera tilraun með byggingu íbúðarhúss úr “moldsteypu,” en þeiri tilraun er ekki lokið. —(Mbl. 14. marz). Með morgunkaffinu Bob Bleecher, 11 ára gamall skóladrengur í Wilmington, U. S.A., sýndi allmikið verzlunar- vit einu sinni, er hann fékk mislinga og auðvitað um leið frí úr skólanum. Hann tók að sér að smitta félaga sína, svo að þeir fengju líka fri, og tók fimtíu aura fyrir hvern. Hann var kominn upp í fjórar krónur, þegar foreldrar hans komust að þessu og skárust í leikinn. ★ ★ ★ -—Slær maðurinn þinn þér nokkurntíma gullhamra? spurði vinkonan. —Já, svaraði frúin. Hann sagði síðast í gær: “Þú ert lag- leg manneskja!” * ★ * Lúðvík II. konungur í Bayern, sem var uppi 1864—1886, var ekki með öllum mjalla. Aldrei mælti hann orð við nokkra m&nn- eskju, ef hann komst hjá því, og þegar hann var í Munchen, var það hans mesta ánægja, að kaupa upp alla miða í hirð- og ríkisleikhúsunum, til þess að njóta sýninganna einn í ró og næði. Heima í höll sinni hafði hann látið búa út lítið vatn á þriðju hæð og þar reri hann i bát sínum, er enginn gat séð hann. * * * Bóndi einn í Sviss hafði í 40 ár átt í málaferlum út af jörð, sem faðir hans hafði átt, og var orðinn langþreyttur á því að greiða lögfræðingi sínum fyrir málaflutninginn. 72 ára gam- all tók hann sig til og fór að lesa lög, lauk embættisrófi, flutti sjálfur mál sitt fyrir rétt- inum og vann það! * ★ * Á vesturhveli jarðar er talan 7 álitin heillatala, af þvi að i biblíunni er talað um 7 erki- engla, 7 dygðir, 7 dauðasyndir o. s. frv. í Kína er talan 5 happatala. Kínverjar tala um 5 fastastjörnur, 5 liti, 5 dygðir, 5 dauðasyndir — og fimm áttir — norður, suður, austur, vestur og miðbik jarðar. —(Morgunbl.) Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Séra Valdimar J. Eylands Heimili: 776 Victor Street. Sími 29 017. Sunnudaginn 18. mai:— Ensk messa að morgninum kl. 11; sunnudagsskóli kl. 12.15 e. h.; íslenzk messa að kvöldinu ld. 7. ♦ ♦ ♦ Sunnudaginn 18. maí messar séra H. Sigmar í Vídalínskirkju kl. 11 f. h. í Péturskirkju kl. 2.30 og i Hallson kl. 8 að kveldi. Messurnar í Vídalíns og Péturs kirkju á islenzku. Almenn altar- isganga í báðum seinni kirkjun- um. Messan í Hallson á ensku. Allir velkomnir! ♦ ♦ ♦ LÚTERSKA KIRKJAN i SELKIRK Sunnudaginn 18. maí, 5. sd. e. páska: — Sunnudagaskóli kl. 11 árd.; ensk messa kl. 7 siðd. S. ólafsson. ♦ ♦ ♦ GIMIA PRESTAKALL Sunnudaginn 18. maí:— Betel, morgunmessa; Víðines, messa kl. 2 e. h.; Gimli, íslenzk messa kl. 7 e. h.; sunnudagsskóli Gimli safnaðar kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason. ♦ ♦ ♦ LÚTERSIÍA PRESTAKALLIÐ í VATNABYGÐUM Sunnudaginn 18. maí:— Kandahar, kl. 11 f. h. (mæðra) Wynyard kl. 3 e. h. (mæðra) Leslie kl. 7 e. h. Guðsþjónustan að Wynyard verður á íslenzku. Allir eru boðnir og velkomnir! Vinsamlegast, Carl J. Olson. Wynyard, Sask. Talsími 27. Fyrsta járnbrautin, sem bygð var í Kína, árið 1876, vakti svo mikla andúð hinna afturhalds- sömu Kínverja að stjórnin varð að láta rífa upp teinana og fleygja vögnunum í fljótið. ★ ★ * 783 þúsund þýzkir og enskir hestar voru drepnir í síðustu heimsstyrjöld. En eftir stríðið voru minnismerki reist þeim til heiðurs, eitt í London og annað í Hannover. ★ ★ ★ Eitrið, sem Tetanus-sóttkveikj- an framleiðir, er álitið mjög ban- vænt. Þó er all-misjafnt, hver áhrif þaðhefir á dýr. Skamtur- inn, sem drepur eina hænu, næg- ir til að drepa 500 hesta. Minniát BETEL í erfðaskrám yðar The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watche* Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers and Jewellers 699 SARGENT AVE., WPG. H. BJARNASON TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem að flutningum lýtur, smflum eða stðrum Hvergi sanngjarnara verB. Heimili: 591 SHERBURN ST. Slmi 35 909 BÆNDUR, KAUPMENN FLUTNINGSBÍLASTJÓRAR Muskrat, Badger og Beaver óskasl Verð hráskinna og annara tegunda, sem við verzlum með, hafa allmjög hækkað í verði; yður mun undra hve hátt vér greiðum. Sendið oss hráskinn í dag. Nákvæm vigt, og peningaávísun send um hæl. American Hide&FurCo.Ltd. 157-159 RUPERT AVENUE, WINNIPEG, MAN. SENDIÐ FATNAÐ YÐAR TIL ÞURHREINSUNAR TIL PERTH’S pér sparið tíma og peninga. Alt vort verk ábyrgst að vera hið bezta I borginni. Símið 37 261 eftir ökumanni vorum í einkennisbúningi. Pnflá Cleaners - Dyers - Launderers HAMBLEY UNGAR úr Rafofni Skjðt afgreiðsla. púsundum ungað út á hverri viku, og sendir nú þegar af flestum tegundum. SKRIFIÐ, SENDID SKEYTI, SÍMIÐ eða KOMID Úrvals ungar, stjðrnarviðurkenning, seldir með samkepnis verði. MANITOBA VERÐ 100 50 25 W. Leghorns ...$10;25 $ 5.50 $2.90 W. L. Tullets 22.00 11.50 0.00 W. L. Cockerels .... 3.00 1.75 1.00 Barred Rocks 11.75 0.25 3.25 B. R. Pullets B. R. and N. H. 17.00 9.00 4.75 Cockerels 10.09 5.25 2.76 New Hampshires 11.75 6.25 3.25 N. Hamp. Pull .... 17.00 9.00 4.75 100% I.ive Arrival Guaranteed. Pullets 98% accurate HAMBLEY R.O.P. Sired Chicks. Our Portage and Brandon Hat- cheries will produce only R.O.P. Sired Chicks for 1941. Effective Mixed Sex Cullets May 10 100 50 100 50 W. Legs......$13.25 $0.50 $25.00 $12.1» B. Rocks .... 13.75 7.25 21.00 10.78 R. I. Reds ...14.50 7.75 23.00 12.00 B.R. Cockls.. 11.00 5.75 Pullets 98% W.L. Cockls..... 4.00 2.25 Accurate J. J. HAMBLEY HATCHERIES WinnipeR, Brandon, I'ortajfe, Dauphin Notice of Annual Meeting Riverton, Man., May lOth, 1941. Dear Sir and Madam: Tihe annual 'meeting of the shareholders of the Riverton Co-operative Creamery Association Limited will be held in the Riverton Community Hall, Tuesday, May 20th, 1941, at 2 o’clock p.m. Mr. John W. Ward will be present at this meeting and it is to be hoped that as many shareholders as possible will attend. Yours very truly, A. Lárusson (Sec’y. Treas.) * Refreshments served after meeting. D.A.—For Convenience and Economy An EATON DEPOSIT ACCOUNT has these notable ad- vantages:— 1. Special values advertised “No. C.O.D. Phone Orders” may be ordered by phone or mail. 2. D.A. parcels go out paid — no waiting at home to pay for a C.O.D. parcel. 3. Each month you get a D.A. statement show- ing exactly what you bought—exactly how much you still have on deposit. And the cash balanoe in your D.A. earns interest. For further information consult the D.A. Office, Third Floor ^T. EATON C°„™ WINNIPEG CANADA

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.