Lögberg


Lögberg - 08.10.1942, Qupperneq 1

Lögberg - 08.10.1942, Qupperneq 1
i 1 -"'I J!L HELZTU FRÉTTIR daginn áður hefði þýzk orustu- Skipaður dómsforseti HON. J. T. THORSON Svo hefir skipast til, að Hon. J. T. Thorson, National War Services ráðherra, hefir sagt af sér því embætti, en var samstundis skipaður dómsforseti Exchequer réttarins í Canada; ráðstöfun þessa gerði King forsætisráðherra heyrinkunna á þriðjudaginn, ásamt öðrum víðtækum breyt- ingum á samsetning ráðuneytisins; meðal annars þeim, að í ráðuneytinu taka sæti þrír nýir ráðherrar frá Quebec. Um það verður ekki vilst, að margir sakni Mr. Thorsons af vettvangi virkra athafna í stjórnmálalífi hinnar cana- disku þjóðar, því svo hefir hann verið róttækur umbóta- maður; á hinn bóginn árna vinir hans honum einlæglega heilla í hinum nýja og virðulega verkahring; hann hefir enn varpað hækkandi bjarma á íslendingsnafnið í þessu landi, og verður það að sjálfsögðu metið að makleikum. • Íslenzka lúterska kirkjan í Seattle FRAMLEIÐIR 250 SMÁLESTIR Á DAG Hon' J. S. McDiarmid, nátt- úrufríðinda ráðgjafi fylkisstjórn- arinnar í Manitoba hefir lýst yfir því, að pappírsgerðarverk- smiðjan við Pine Falls starfi nú hér eftir fullan vinnutíma á dag; í fyrra starfaði verksmiðja þessi aðeins hálfan vinnutíma; framleiðslumagn hennar á dag nemur 250 smálestum af prent- pappír, og verður meginið af birgðunum selt til Bandaríkj- ann. • KÍNVERJAR í FJÁRÞRÖNG Blaðið Manchester Guardian birti nýverið greinarkorn um það, hve fjárhagur Kínverja væri alvarlega þröngur um þess- ar mundir, og hve áríðandi það væri, að sameinuðu þjóðirnar hlypi undir bagga með þeim áð- ur en það yrði um seinan; nokk- urs stuðnings njóta Kínverjar frá láns- og leigulögum Banda- ríkjanna, þótt eigi þyki • slíkt fullnægjandi. • VOLDUG STUTTBYLGJU- STÖÐ Hon. J. T. Thorson, National War Services ráðherra, hefir ný- lega lýst yfir því, að reist verði hér i landi, eins fljótt og því framast verði við komið, voldug stuttbylgjustöð, er kosta muni um 800 þúsundir dala. Yfirum- sjón með verkinu hefir Dr. Augustin Frigon, aðstoðar for- stjóri canadiska útvarpsins. • LÁTA GREIPAR SÓPA UM FRAMLEIÐSLU GRIKKJA Að því er símfregnir frá New York herma að þann 2. þ. m. hafa hernámsvöldin þýzku tekið í sínar hendur meginið af allri þessa árs uppskeru Grikkja til afnota fyrir þýzka herinn, svo að nú horfist gríska þjóðin í augu við hungur og hallæri. • CANADISKI FLOTINN HEFIR SÖKT FJÓRUM ÓVINA- KAFBÁTUM Samkvæmt yfirlýsingu flota- málaráðh., Mr. Macdonalds, hef- ir canadiski flotinn sökt að minsta kosti f jórum, ef ekki sex óvinakafbátum. Hinn konunglegi, canadiski sjófloti telur um þessar mundir því nær 500 skip, en mannafli hans nemur 48 þúsundum, að því er Mr. Macdonald segist frá. • AUKAKOSNING TIL SAMBANDSÞINGS í WINNIPEG Nú hefir það formlega verið tilkynt frá Ottawa, að auka- kosning til Sambandsþings í Mið-Winnipeg kjördæminu hinu nyrðra, fari fram þann 30. nóv- ember næstkomandi. AUKIN SYKURFRAMLEIÐSLA Áætlað er, að sykurrófna framleiðslan í Manitoba muni í ár, nema frá 124,000 til 130,000 smálestum, og að framleiðsla Manitoba Sugar Co., Ltd., nemi ekki undir 30 miljónum punda sykurs; þessi iðnaður í Manitoba má kallast afar ungur; en hann hefir á þessum stutta tíma tekið það risavöxnum framförum, að mikils má af honum vænta í framtíðinni. • RÁÐIST Á ÍSLENZKT SKIP Hernaðarvöld Bandaríkjanna á íslandi, lýstu yfir því þann 30. september síðastliðinn, að flugvél gert aðsúg að íslenzku skipi skamt undan austurströnd Islands; á skipinu urðu lítils- háttar skemdir, en manntjón ekkert. • ÞÝZKAR KAFBÁTASTÖÐVAR VIÐ FLENSBURG FÁ SÍNA VÖRU SELDA Á aðfaranótt síðastliðins föstu- dags, veittust brezkir og cana- diskir flugmenn að Flensburg, sem er eitt af kafbátahreiðrum Þjóðverja, og ollu þar víðtæk- um skemdum. Flensburg ligg- ur nálægt landamærum Dan- merkur og Þýzkalands, og hafa Þjóðverjar rekið þar kafbáta- smíðar í stórum stíl. Gizkað er á, að í atrennu þessari hafi tekið þátt af hálfu sameinuðu þjóð- anna milli 300—400 loftför. Seytján af þeim, er mælt að hafi verið skotin niður. • BUNDNN ENDI Á FRAM- LEIÐSLU STERKRA DRYKKJA Sambandsstjórn hefir nú skor- ist þannig í leikinn, að bundinn verði endi á framleiðslu sterkra drykkja í Canada meðan á Yiú- verandi styrjöld stendur; verk- smiðjur þær, er framleitt hafa brennivín, verða allar teknar í þjónustu stjórnarinnar til fram- leiðslu ýmsra efnafræðilegra samsetninga, er nauðsynlegar teljast verða stríðssóknar þjóð- arinnar. Talið er, að á yfir- satndandi ári, muni áfengis- neyzlan í landinu hlaupa upp á 250 miljónir dala. Þessi áminsta fyrirskipun sambandsstjórnar, nær ekki til öls eða léttra víntegunda. DR. E. CORA HIND LÁTIN Á þriðjudaginn lézt hér í borginni Dr. E. Cora Hind, 81 árs að aldri, ein af merkustu og víðkunnustu konum þessarar þjóðar; hún starfaði í þjónustu Winnipeg Free Press, sem akur- yrkjuritstjóri yfir 40 ár, samdi tvær merkar bækur á efri árum, og hélt óskertum burðum svo að segja til hinztu stundar; hún var fyrir nokkrum árum sæmd heiðursdoktorsnafnbót af Mani- tobaháskólanum. • TIM BUCK LEYSTUR ÚR GÆZLU Dómsmálaráðherra sambands- stjórnar lýsti yfir því síðastlið- inn þriðjudag, að hann hefði skipað svo fyrir, að ritari kommúnistaflokksins 1 Canada, Tim Buck, yrði samstundis leystur úr gæzlu; ráðstöfun þessi nær einnig til 16 annara komm- únistaleiðtoga; lausn þessara manna, er skilyrðum bundin, er enn hafa ekki verið látin í ljós. STALINGRAD Rússar halda enn uppi fræki- legri vörn um Stalingrad, og hafa orsakað gífurlegt mannfall af hálfu hinna þýzku innrásar- sveita; norðvestur af borginni hafa herskarar Rússa þröngvað mjög að Þjóðverjum og rekið þá til baka frá ýmsum mikilvæg- um varnarvirkjum. Yfirhers- höfðingi Rússa í Stalingrad lét svo ummælt á miðvikudags- morguninn: “Eg er sannfærður um það, að þrátt fyrir örðuga aðstöðu eins og stendur, mun okkur lánast að verja Stalingrad og hrekja þaðan hvern einasta og einn óvin áður en langt um líður; þennan ásetning okkar megna engin illræðisöfl að yfirbuga.” Nýtt stórhýsi fyrir póst og síma á Akureyri Að því er Vísir hefir fregnað frá Akureyri hefir póst- og síma- málastjórnin keypt löðina nr. 102 við Hafnarstræti á Akureyri og mun ætla að reisa þar stór- hýsi, sem yrði sameiginlegt fyrir póst og síma. Hafa húsakynni þau, sem póstur og sími að undanförnu hafa haft til afnota, verið að- skilin og ófullnægjandi á allan hátt. Bæði eru þar þrengsli og húsaskipun svarar heldur ekki nútímakröfum. Hin nýja bygging verður alt að fjögra hæða há. Húsameist- ari ríkisins mun Nnnast upp- drættina og ef tök verða á, verður ráðist í framkvæmdir í haust.—(Vísir 1. sept.). VAXANDI ÓÁNÆGJA í NOREGI OG DANMÖRKU Alveg nýverið hafa tíu föður- landsvinir, norskir, verið teknir af lífi í Þrándheimi fyrir það, að neita að kyssa á Fascista- vöndinn þýzka. Þá hefir óá- nægja Dana við þýzk hernáms- völd magnast svo undanfarið, að líklegt þykir að Þjóðverjar gleypi dönsku þjóðina með húð og hári. FLOKKSÞING ÍHALDSMANNA Nú hefir það verið tilkynt, að flokksþing íhaldsmanna verði háð í Winnipeg og standi yfir í þrjá daga frá 9. til 11. desember, að báðum dögum meðtöldum; þar verður gert út um það, hvort Arthur Meighen verði á- fram leiðtogi flokksins eða ekki. íslenzkir kjósendur í Mið-Winnipeg kjör- dœminu hinu nyrðru! Rækið þjóðræknisskyldur yðar með því að fjölmenna á fram- boðsfundinn á Marlborough hó- telinu næstk. föstudagskvöld þann 9. þ. m., kl. 7. Það er hvqrki meira né minna en hrein og bein þjóðræknisskylda, að stuðla að því að Konnie Jó- hannesson nái þar útnefningu, sem þingmannsefni Liberal flokksins fyrir auka-kosningu þá til sambandsþings, sem fram fer í Mið-Winnipeg kjördæminu nyrðra þann 30. nóvember næst- komandi; þetta er opinn fram- boðsfundur, sem allir kjósendur kjördæmisins, konur sem karl- ar, hafa jafnan aðgang að. Kjós- endur eru ámintir um að sækja fundinn stundvíslega, og tryggja sér með því þátt í atkvæða- greiðslunni. Til þess að útiloka það, að aðrir en kjósendur áminsts kjör- dæmis sæki fundinn og greiði atkvæði, ber kjósendum að framvísa við innganginn skrá- setningarspjaldi sínu (Registra- tion Card). Það hlýtur að vera Islending- um metnaðarmál að tryggja Konnie Johannesson útnefningu, og vinna síðan kappsamlega að kosningu hans. Konnie er slík- ur athafna og kostamaður, að hann mundi mjög auka á sæmd íslendinga, er á þing kæmi. JOSEF STALIN hefir mint Breta og Bandaríkin á, að uppfylla hjálparskyldur þeirra við Rússa á réttum tíma og á réttum stað; vill hann að hafin verði þegar innrás á meg- inlandið. Hún er nú útborguð í nafm Hallgrímssafnaðar, eftir 16 ára starfsemi. Fyrir þessa bygging mun hafa verið borgað alt að 12 þúsund dollarar, eru þá taldar rentur og rentu-rentur. Söfnuðurinn sjálfur er að vísu nokkuð eldri, var endurreistut 1917. Þá voru liðin nokkur ár frá því hann fyrst var stofnaður. Þær nýjungar gerðust á s.l. sumri, að hið stóra kirkjufélag, sem þekktist undir bókstöfunum U.L.C.A. sendi hingað hr. Harold S. Sigmar guðfræðinema til þess að rannsaka hvort hægt væri að lífga safnaðarstarfsemi -á meðal Islendinga, svo að viðun- anlegt væri. Hann kom svo hingað, beint frá kirkjuþingi og kona hans með honum. Prestsefnið byrj- aði strax á húsvitjun og varð fljótt nokkuð ágengt í safnaðar- málum. Fólk tók sig til og sótti vel messur hans. Fyrir hans áeggjan lögðu safnaðarmenn fram 400 dali, sem varið vgr til viðgerðar á kirkjunni. Harold vann sjálfur að ræsting og málning og gat sér þá gott lofs- orð, kona hans fylgdi honum til verka; var þetta ærin hvöt öðru fólki. Hækkar í tign Sigurbjörn Sigurðsson, fyrr- um kaupmaður í Riverton, sá, er fyrir tveimur árum tókst á hendur skrifstofustjórastarf við þá deild náttúrufríðindaráðu- neytis Manitobafylkis, er um umsjón fiskiveiðanna annast, var síðastliðinn mánudag skip- aður af fylkisstjórninni aðstoð- ar Director of Game and Fisheries. Sigurbjörn er gáfu- maður mikill, og auðugur aÁ framsóknarhug; hann er fæddur í þessu landi, en hefir lagt frá- bæra rækt við íslenzka máls- menning, og íslenzka menning- ararfleifð. “Svona eiga sýslu- menn að vera,” segir hið forn- kveðna, og hefir það í raunveru sannast á þessum mæta niðja Is- lands. Ríkisstjórn Islands kaupir strandferðaskip Kaupverð er 200,000 dollarar, en ennþá ekki endanlega gengið frá kaupunum. Ríkisstjórnin hefir ákveðið að festa kaup á 430 smálesta skipi frá Suður-Ameríku til strand- ferða kringum ísland, ef skipið, sem samningar hafa staðið um reynist nothæft og uppfyllir þau skilyrði, sem krafist verður. —(Vísir 31. ág.) BÆRINN WYNYARD í SASKATCHEWAN Wynyard, fagur og veglegur bær vafinn er laufgrænum skógi, frjósamar ekrur fjær og nær flattar und slóðum og plógi. Veðrasæld býr í viðarrunn, vorsins og sumarsins friður kunn, háspennu dýrð í dagvitund —dynjandi söngfugla kliður. M. I. En er sæmilegar umbætur höfðu verið gerðar á kirkjunni, þá var hr. Harald S. Sigmar lög- lega kallaður til að þjóna Hall- grímssöfnuði, með þeim skilyrð- um, að hann komi vígður prest- ur 1. júlí 1943. Er þetta fréttist, þá innrituð- ust 27 manns í söfnuðinn. Telj- ast þar nú um 125 manns,, en þá eru ófermd börn ekki talin með. Fyrir atorku Harolds var svo settur sunnudagaskóli kirkjunn- ar, með auknum meðlimum; veitir þar forstöðu hr. Jónatan Björnsson, hinn góðkunni for- söngvari safnaðarins. Nú er Harold farinn á prestaskólann. Fylgja honum héðan hlýjar óskir, því hann var hvers manns hugljúfi og kona hans honum mjög samvalin. Ekki er því að leyna, að ís- lenzku messurnar féllu bezt í geð hfns fullorðna fólks. Er þetta mjög eftirtektarvert þar sem Harold er afkomandi Is- lendinga í Vesturheimi, hinn þriðji liður. I vetur verða ungu hjónin bú- sett í Philadelphia, en í fjarveru þeirra munu ýmsir prestar ann- ast hér um messu'gerðir. —Safnaðarmaður. Gengur í þjónustu J. J. Swanson & Co. Mundi Einarsson Mundi Einarsson, sem starfað hefir undanfarið fyrir Nash bíla- félagið, hefir nú gengið í þjón- ustu J. J. Swanson & Co., og mun gefa sig mestmegnis að húsasölu, einkum í suðurhluta borgarinnar. Mundi er ötull sölugarpur, sem víst má telja, að brátt ryðji sér braut í hinum nýja verkahring. Hálfníræður - T Fyrir skömmu átti landnáms- maður af Austurlandi, Magnús Snowfield, 85 ára aldursafmæli, og var þess atburðar minst með veglegu vinamóti á heimili dótt- ur hans og tengdasonar, Mr. og Mrs. F. M. Einarson í grend við Mountain. Voru þar saman komin hin mannvænlegu börn þeirra Snowfield hjóna og venzlafólk. Magnús er fróður maður um margt, lífsglaður og ern sem ungur væri. Lögberg flytur honum hugheilar árnað- aróskir í tilefni af afmælisfagn- aðinum.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.