Lögberg - 08.10.1942, Blaðsíða 4

Lögberg - 08.10.1942, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. OKTÓBER, 1942 ----------lögöerg---------------------- Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg^ Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lö&berg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue ^ Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Aukin útgjöld auknum átökum samfara 1 hinu tröllaukna ljóði sínu, “Fróðárundrin hin nýju,” kemst Einar Benediktsson þannig að orði: “Og fólkið var étið á fæti.”— I þessari átajcanlgeu ljóðlínu felst ófögur lýsing á öfugstreymi liðinna tíma, er svo hag- aði til, að ráns- og gripdeildahugurinn virtist öllum öðrum öflum yfirsterkari; þá var fólkið í vissum skilningi beinlínis étið á fæti, og nú í samtíð vorri, eru tug-þúsundir manna og kvenna í áþjánarlöndum Nazismans, daglega étnar á fæti, þar sem þær verða að þræla við ömurleg sultarkjör að tilskipan þeirra ægi- legustu illræðisafla, er sögui* fara af; þetta er “skipulagið nýja,” sem Adolf Hitler hefir ein- sett sér að koma á fót um gervalla Norður- álfuna, og svo vitanlega með tíð og tíma til endimarka heims, gæfist þess nokkur kostur; slíkt má aldrei henda, og getur heldur ekki hent, stan<fi lýðræðisfylkingarnar saman sem einn maður, sem ein sál! Atburðir þeir, sem nú eru daglega að ger- ast í hernumdu löndunum, eru þyngri en tár- um taki; merkilegar menningarþjóðir, er á einskis manns hluta, og engrar þjóðar hluta höfðu gert, en undu glaðar við sitt, hafa verið sviptar frelsi; þar, sem áður logaði skærast á vitum mannréttinda, hvílir nú myrkur yfir djúpinu; myrkur hallæris, myrkur hvers konar áþjánar og villimensku. En þrátt fyrir þessi kyngimögnuðustu Fróðárundur allra alda leyn- ist þó með hinum undirokuðu þjóðum neisti úr glóð, er á sínum tíma verður að ómótstæðilegu báli, er brennir af fjötra, og hefur þær til frjáls- mannlegs öndvegis á ný, og þá “verður dýrð- legur dagur,” eins og góðskáld vort eitt komst svo fagurlega að orði; þá munu hugsjónir rætast, og “þá mun aftur morgna.”— Þegar ráðist var á Pearl Harbor, vöknuðu ýmsir þeir, er notið höfðu værðar í Paradís flónskunnar upp við vondan draum, og þeim fór þá fyrst að skiljast, að ekki væri alt með öllu trygt um hag vesturhvels jarðar; hlið- stæðra draumrofa varð vart, er það varð lýð- um ljóst, að óvinakafbátar' væri teknir að sokkva canadiskum skipum í St. Lawrence fljótinu. Forn raunspeki, og ekki ósennilega ný líka, staðhæfir að enginn skilji sorgina fyr en hún drepi á dyr hjá honum sjálfum; hliðstætt lögmál gildir um hættuna; það þarf ekki að kynna neinum þeim eðlislög hennar, er horfist í augu við hana sjálfur. Hættan, sem yfir Vesturálfunni hvílir af völdum Möndulveld- anna, er nú orðin það auðsæ og áþreifanleg, að nú hljóta hugir þeirra allra, er álfuna byggja, að beinast að einu og sama markmiði, sem sé því, að tryggja lýðræðisþjóðunum fullnaðar- sigur, og það sem allra fyrst; í kostnað má ckki horfa, hverrar tegundar, sem er. Það liggur í augum uppi, að aukin átök á vettvangi stríðssóknarinnar, hafi í för með sér stórkostlega aukin útgjöld. En hvað eru hinar svonfendu fémunafórnir borið saman við hfsfórnina sjálfa? Við slíkri spurningu er ekki vandfundið svar. Fjármálaráðherra sambandsstjórnar, Mr. Ilsley, er nú í þann veginn að bjóða út hið þriðja sigurlán canadisku þjóðarinnar síðan að núverandi alheimsstyrjöld hóf göngu sína; koma sigurlánsveðbréfin á markað þann 19. yfirstandandi mánaðar, eri upphæðin, sem stjórnin fer fram á nemur 750 miljónum dala; ef til vill hrýs einhverjum hugur við þessari fjárhæð, og vantreystir því, að markinu verði náð; slíkt er með öllu ástæðulaust; síðasta sigur- lánið fór langt fram úr hinutllætlaða markmiði, og síðan hefir hagur þjóðarinnar batnað að stór- um mun sakir hagstæðs ársferðis svo að segja á öllum sviðum athafnalífsins; það er þess- vegna gild ástæða til þess að ætla, að sigur- lánsútboði því, sem nú er í vændum, verði á skemmri tíma en áður viðgekst um hliðstæð lán, greiddur vegur að settu marki; málstaður sá, er canadiska þjóðin berst fyrir, krefst þess að svo verði í nafni þess friðarríkis, sem koma á, að loknum yfirstandandi hildarleik. Hið mikla hlutverk vort í landnámi Ingólfs Arnarsonar, er engan veginn “hult um heimamann,” eins og Stephan C. Stephansson sagði í einu af hinum mörgu eftirminnilegu ljóða sinna; yfir geigfegurð þess svipmikla landnáms hvílir dularfull blika, sem vonandi er, að fram úr ráðist á betri veg, þó óneitanlega sé í þjóðernismálunum heima fyrir allra veðra von; þetta er forustumönnum heimaþjóðarinnar hið mesta áhyggjuefni; þjóðin býr við tvíbýli, þar sem svo má segja, að naumast sé hársbreidd að tölu milli innfæddra manna og gesta, og sannast þar í veruleik hið fornkveðna, “að fáir lofa einbýlið, sem vert er”; með hliðsjón af þessu viðhorfi, liggur það í augum uppi, hve miklis það er um vert, að vér, synir eða barnabörn íslands, sýnum í verki fullan trúnað við eðli vort og ætt, og látum einskis þess átaks ófreistað, er vernda megi íslenzka tungu í þessu landi, því tungan og þjóðernið er í raun og veru eitt og hið sama. Boðorðið mikla, “Heiðra skaltu föður þinn og móður,” stendur óhaggað að sannleiksgildi enn þann dag í dag; hið mikla hlutverk vor Vestmanna, er fólgið í því, að tryggja íslenzkri tungu langlífi í þessu landi, stofnþjóð vorri og kjörþjóð vorri til nytsemdar og sæmdar, í stað þess að verða upplitaðir og lítilþægir meðal- menn; það er of seint, að iðrast eftir dauðann, og þessvegna er það heilög skylda, að berjast fyrir verðmætum lífsins, eins og bezt sæmir afkomendum hins norræna kynstofns. í mark- vissri ritgerð, sem birt er í nýkomnu hefti Eimreiðarinnar eftir Ólaf Lárusson, prófessor í lögum við háskóla íslands, er rætt um mál, sem á brýnt erindi til vor Vestmanna; það fjall- ar um verndun ísíenzks þjóðernis, og því lýkur á þennan veg: “Þjóðernismálin eru eilífðarmál þjóðanna. Sú þjóð, sem glatar þjóðerni sínu, heimtir það aldrei aftur. Þar er engin upprisuvon. Þess vegna hafa miljónir manna fyr og síðar lagt lífið sjálft í sölurnar fyrir þjóðerni sitt. Þess vegna er verndun þjóðernisins mesta málið, sem nokkur þjóð á. Eilífðin tekur yfir alt, fortíð, nútíð og framtíð. Sá, sem bregzt þjóð- erni sínu, Kvort sem hann gerir það viljandi eða hann vanrækir í hirðuleysi og hugsunar- leysi þær skyldur, sem það bindur honum, hann bregzt fortíðinni, svíkur fjöldann undir mold og meið, sém á undan honum gekk, sem skapaði þjóðerni hans og verndaði og fékk honum það með þeirri kvöð, að hann skilaði því í hendur næstu kynslóð. Hann bregzt framtíðinni, hinum ófæddu, sem áttu að taka við arfleifðinni, sem hann fékk og glataði. Hann bregzt samtíð sinni, svíkur þá, sem hann átti að standa við hliðina á, og hann svíkur sjálfan sig. Þjóðerni manns er ekkert leikfang, sem hann má brjóta og týna að vild, getur íleygt frá sér, þegar honum sýnist. Þjóðernið er sál hans sjálfs. Sá, sem spillir þjóðerni sínu eða glatar, bíður tjón á sálu sinni.” Tjón af völdum eldsvoða Nú stendur yfir sú árstíð, er stjórnir þessa lands, allar í sameiningu, brýna fyrir almenn- ingi að fara varlega með eld, og fyrirbyggja þann háska, sem af gáleysi getur stafað í þessu efni; árið sem leið, létu 323 manneskjur 1 þessu landi líf sitt í eldsvoða, þar á meðal 117 börn; eignatjónið nam 28 miljónum dala. Á síðast- liðnum tíu árum nam tala dauðsfalla áf þess- um völdum, 2,785, en eignatap hljóp upp á 269 miljónir dala; þetta hvorttveggja er afar í^kyggilegt, og liggur það þessvegna í augum uppi, að alvarlegar ráðstafanir þurfi að taka með það fyrir augum, að fyrirbyggja eins og framast má auðið verða, hliðstæð slys í fram- tíðinni; margir fara gálauslega með vindlinga, og henda frá sér hálfbrunnum stúfum hér og þar; þetta hefir oft og einatt valdið skógar- eidum og líftjóni í heimahúsum. Brent barn forðast eldinn, segir gamalt máltæki; stundum sýnist fullorðna fólkið eiga erfitt með að átta sig á hliðstæðum staðreynd- um. Þakkarhátíð Þann 12. þessa mánaðar halda íbúar þessa mikla meginlands þakkarhátíð. Fyrsta þakk- arhátíðin, sem sögur fara af í þessari álfu, var haldin árið 1588, og voru það sægarpar nokkr- ir, er eftir harða útivist lentu við strendur Newfoundlands, sem að henni stóðu; þökkuðu þeir forsjóninni í sameiginlegri, heitri bæn fyrir það, að hafa náð heilir til hafnar eftir baráttu við brimsjó og annað ferðavolk. Jafn-' vel frummaðurinn, sem örðugt átti með að láta í ljós tilfinningar sínar, fagnaði, eða hélt þakkarhátíð á sína vísu yfir því, að hafa lifað af fellibylji, flóð, landskjálfta og drepsóttir; það er andlega heilbrigðum manni í blóð borið, að þakka það, sem þakkarvert er; yfirborðsiðir í þessu sambandi, eru því í rauninni ekki nema svipur hjá sjón borið saman við það, sem hið innra með manninum býr; það er þakklæti hiartalagsins eitt, er gefur þakkarhátíðinni var- anlegt gildi. Milli mála Eftir Guðmund Friðjónsson. Það er margt, sem fer milli mála, til dæmis það, hvað skáld- um sé fyrir beztu. Jónas Jónsson lét í veðri vaka í ræðu þeirri, sem hann helgaði mér — í útvarpi — á sjötugs- afmæli mínu, að sú aðstaða, sem mér hlotnaðist, æfilöng í heima- högunum, muni hafa staðið mér lítt eða ekki fyrir andlegum þrifum. Sigurður Nordal kemst að samskonar niðurstöðu um St. G. St. í formála að úrvali kvæða skáldsins, sem flúði til andvök- unnar til ljóðagerðar. Eg ætla í þessu greinar-kríli að láta St. G. svara fyrir okkur báða, og er eigi svo að skilja, að í þessu tiltæki felist mann- jöfnuður okkar í milli. St. G. gat þess eitt sinn í bréfi til mín, að hann hefði orðið að rækja ljóðagerð sína með fjós- verkunum, á næturþeli, og þeg- ar illviðri bönnuðu honum akur- yrkju. Slík tækifæri eru svo óskáldleg sem mest má verða. Það þori eg að fullyrða. Mentun sína þurfti St. G. að sækja undir það högg, sem hann túlkar í þessari vísu: Eg gat hrifsað henni af hratið, sem hún vék mér, meðan lúinn makrátt svaf, meðan kátur lék sér. Um Kolbein, sem kvaðst á við óvin mannanna, segir St. G. og er sú umsögn undir niðri um hann sjálfan, andvöku-Bragann: . . Hann kunni þá list, sem er fáum hent, að lepja upp mola af lífsins stig, en láta ekki baslið smækka. Fáum tekst að verða, sem dæmdir eru til að “nurla” á landi, höfðingjar, og því síður stórhöfðingjar. Lúi er eigi heldur til þess fallinn, að gera stórskáld úr sessunaut sínum. “Giktin — og syndin — hefti gangtól” Bólu- Hjálmars, að sjálfs hans sögn, eftir að hann “sneið úr veggjum þarfleg þök, þrýsti veggjum saman.” Lúi og þreyta úthýsa anda- gift, miklu oftar en hitt, að þau sýni henni gestrisni. Þetta má sanna, þegar um St. G. er að ræða. Ártölin við kvæði hans í andvökum sýna það, að hann kveður fá kvæði og eigi mark- verð, frá því að hann kemur til Vesturheims 1874 og til 1890. Orsökin er augljós: Á þeim ár- um ryður hann sér til rúms þrem sinnum á nýju og óbygðu landi. Flest skáld eru bezt fall- in til afreka frá tvítugsaldri til fimtugs. Nærri má geta um svo hugumírjóvan mann, sem St. G. reyndist þangað til hann var sjötíu ára, að þögn hans milli tvítugs og fertugs, stafar af lúa og tómstundaskorti. Þrándur í götu getur eigi leik- ið á tveim tungum. Tölurnar sanna, að skáldgáfa St. G. fær eigi það undanbragð að geta .orðið andvaka. Eigandi gáf- unnar er svo miklum önnum kafinn frá því að hann er tví- tugur og þangað til hann er fer- tugur, að honum verður ekki ljóð á tungu. Þegar þessa er gætt, verður það eigi torskilið, að St. G. er eigi háttslyngur að sama skapi sem hann er djúpúðigur. Hann yrkir flest öll kvæði sín á þeim aldri, sem fjörspor æskumanns- ins eru að baki hans. “Lítið til fuglanna í loftinu” og gaumgæfið þeirra vinnubrögð. Hvenær syngja þeir fegurst? Á vorin, þegar vel viðrar og þeir eru hugfangnir af ástúð. Þar er náttúran sjálf “með í spil- inu.” Sumir fuglar syngja með vængjunum, til dæmis hrossa- gaukur — á vorin, ekki á haust- in. Skáldin þyrftu að sæta þeim kjörum, að þau gætu verið í vorhug, svo að þeim væri “létt um vik.” Lúi og andvaka geta gert skáld að spekingi, en varla munu þau geta skapað léttvígan listamann. Vinnuþrælar dugðu ekki til íþrótta á víkingaöldinni. En þeir menn gátu drýgt fimleika, sem áttu þess kost að hlífa sér við vinnubrögðum. Gáfaðir menn, t. d. Jónas Jónsson og Sigurður Nordal, geta fært líkur að því, að lúinn bóndi mundi eigi hafa betur kveðið né orðið fjölskrúðugri, þó að hann hefði verið með höfð- ingjum og átt þess völ, að leika sér útiáum lönd. Tungumjúkur maður getur á einni og sömu eykt “sannað,” að Guð sé til og að hann geti ekki verið til. Sig- urður Fáfnisbani var langtalað- ur á þingum — segir sagan og svo orðfær, “at þat eina þótti rétt, er hann mælti.” Þessa, í rauninni hálfkveðnu vísu, má botna þannig, að þeir, sem hlýddu og horfðu á Fáfnisban- ann, voru svo hugfangnir - af honum, að hann gat vafið þeim um fingur sér. Þegar svo geng- ur, er leiðtoginn orðinn að á- trúnaðargoði mannfjöldans, sem þá og þar er um að tefla. Það er sagt, að hver mús haldi, “að verst sé í sinni holu.” Sá fiskur liggur undir steini þarna, að hver maður sá óá- nægður með sitt hlutskifti.— Eg mætti eitt sinn Einari Benediktssyni við Austurvöll, vorum báðir á leið til steinsins. þar sem Alþingi var háð. Einar spurði mig tíðinda utan af Leir- unni minni og eg bað hann að segja mér fréttir sunnan úr löndum. Báðir vörðust allra frétta. Þá varð mér þetta að orði: “Mikið öfunda eg þig, Einar, af þínu hlutskifti, að vera tím- um saman suður í löndum, sjá þá víðu veröld, og kynnast margs konar mönnum, grípa þar á lofti skáldskaparefni, sem ekki eru hér á neinu strái.” Einar leit þá á mig og svaraði í lægri tón en hann var vanur að beita: “Eg er eigi viss um, Guð- mundur, að þú hafir ástæðu til að öfunda mig, þegar öllu er á botninn hvolft. Fár veit, hverju fagna skal.” Að svo mæltu hvessti hann röddina og fór þá út í aðra sálma. Einar var orðinn roskinn mað- ur, þegar við áttum þessi orða- skifti, og farinn að hneigjast til þeirrar trúar, eða skoðunar, að mennirnir gætu lifað svo hundruðum ára næmi, ef þeir á- stunduðu alla æfi heilagt líferni. Manninum er ásköpuð löngun til langrar æfi og hann segir við sjálfan sig — eða upphátt, þeg- ar sér í tvo heimana, það sem maðurinn mælti á Sturlungaöld, sá sem var leiddur undir öxar- munn: “Gott væri að lifa leng- ur.” Lífið er fagurt, þegar vel gengur klyfjabandið. Og sum- um mönnum þykir máli skifta, að bæta ráð sitt, þ. e. a. s. gera betur á morgun en í gær. “Drengir eru vaskir menn og batnandi,” segir Snorri Sturlu- son. Þetta er svo að skilja, að þeir menn séu drengskapar- menn, sem vaxa og batna með aldrinum. St. G. St. byrjar sitt ljóðræn- asta kvæði með þeim hætti, að hann varpar af sér fargi lúans og brýnir aðra menn, sem þreyttir eru, til þess að brjóta af sér fjötur þann, sem þreyta og lúi skapa, og okið, sem þau leggja á undirsáta sína. Röddin er óvenjulega hljómfögur: Hver er alt of uppgefinn eina nótt að kveða og vaka, láta óma einleikinn auðveldasta strenginn sinn, leggja frá sér lúðurinn, langspilið af hillu taka! Hver er alt of uppgefinn eina nótt að kveða og vaka? Það kemur í ljós síðar í þessu kvæði, að íslenzk vornótt yngir St. G. — ást hennar, svo að hann leikur á als oddi. Og í þeirri andrá kallar hann á frónskan lækjarnið til fullting- is rödd sinni. “Þar hafa þeir hitann úr,” sagði álfkona, ef eg man rétt. Þó að St. G. gæti orðið svo söngvinn — undir guðvefjar- skikkjublaði vordísar í “nótt- lausri voraldar veröld,” sem þetta kvæði sýnir, má með sanni segja, að hann fer eigi á þessháttar kostum að jafnaði. Þegar andvakan byrjar í húsi hans, “og jörðin vor hefir sjálfa sig frá sól inn í skuggana elt,” hefir hann þá sögu að segja, að þreytan liggur á honum eins og mara, milli náttmála og dag- mála: Og lífsönnin dottandi í dyrnar er sezt, sem daglengis vörður minn er, og stygði upp léttfleygu ljóðin mín öll, svo liðu þau sönglaus frá mér, og vængbraut þá hugsun, er hóf sig flugs og himinninn ætlaði sér. Þessi skriftamál verða eigi vé- fengd. St. G. veit og viðurkenn- ir, að hann er bandingi vinnu- lúans og að ljóðagerð hans dreg- ur dám af þeim sessunaut. Hann gerir hana þunglamalega, held- ur henni niðri — hamlar henni frá háfleygi, rænir hana létt- leik. Þess vegna verða mörg kvæði hans “milli lesmáls og ljóða,” “blaðagreinar í rími,” að sjálfs hans sögn. Þetta er eigi mælt til þess að varpa skugga á skáldið, heldur til hins, að gefa mönnum á- minning, sem láta í veðri vaka, að einyrkjabúsýsla sé til þess fallin að skapa afreksmenn á sviði bókmenta. Það munu þeir skilja í gröfum sínum, Sturla og Snorri, Hómer og Dante, Goethe og Shake- speare, og önnur afburða skáld, sem lifðu við allsnægtir og sluppu við að vera “kerra, plóg- ur, hestur.”—(Dvöl). Ráðast Borgfirðingar í virkjun Andakílsár- fossa? árfossa og leiðslur úr þeim til Akraness og Borgarness og bæja- kerfi á báðum stöðunum, mun heildarkostnaðurinn nema um 5 milj. króna. En virkjun Anda- Samkvæmt kostnaðaráætlun er Árni Pálsson verkÍEæðingur hefir gert um virkjun Andakíls- kílsárfossa er um þessar mund- ir mjög á döfinni í Borgarfjarð- ar- og Mýrasýslum og hafa raf- orkunefndir sýslnanna og Akra- neskaupstaður setið á rökstólum hér í Reykjavík fyrir skemstu, þar sem kostnaðaráætluanir Árna Pálssonar, ásamt nákvæm- um rekstursáætlunum, sem hann hafði gert, voru lagðar til grund- vallar. Fundur raforkumálanefndanna var ekki til þess að taka ákvarð- anir í málinu, heldur til að at- huga kostnaðarhliðina og yfir- leitt möguleikana fyrir virkjun- inni. En nú um helgina mun bæjarstjórn Akraneskaupstaðar taka ákvörðun um hvað hún fyrir sitt leyti vill gera, en skömmu síðar munu sýslunefnd- ir Borgarfjarðar--og Mýrasýslna koma saman á aukafundi til að ræða þetta velferðarmál, sem um áratugi hefir verið eitt- stærsta áhugamál héraðsbúa. Strax og allsherjarvirkjun fyrir Borgarfjarðarhérað kom til umræðu, urðu menn sammála um Andakílsárfossa, sem heppi- legasta vatnsfallið til virkjunar, enda liggja þeir vel við, vatns- fallið er mikið og auðvelt að fá algerðan renslisjöfnuð úr Skorra dalsvatni. Nokkru eftir að Árni Pálsson verkfræðingur hafði lokið áætl- unum að Laxárvirkjuninni, var honum falið að gera kostnaðar- áætlun um virkjun Andakílsár- fossa og lauk hann þeirri áætlun árið 1939. Þá nam áætlaður kostnaður 1650 þús. kr., en við

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.