Lögberg


Lögberg - 01.06.1944, Qupperneq 2

Lögberg - 01.06.1944, Qupperneq 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. JÍNt 1944 Reykjavíkurblöðin eiga viðtal við Dr. Sigurgeir Sigurðsson, biskup, nýkom- inn heim ur ferðalagi um Vesturheim Ræðismanni íslands í Winnipæg, hr. Gretti L. Jóhannssyni, bárust seinni part fyrri viku viðtöl þau, er herra biskupinn átti við Reykjavíkurblöðin, nýkominn heim úr sigurför sinni um Vesturheim. Dr. Edward Thorlákson, starfsmaður við War Information skrifstofu Bandaríkjanna, sendi Gretti ræðismanni urklippur úr blöðunum með viðtölum við biskup, og er Lögberg báðum þessum mönnum þakklátt fyrir að fá innlegg þessi til birtingar. MORGUNBLAÐIÐ 9. MAÍ. "Vestur-íslendingar eru mér sér- staklega kærir," segir biskupinn. Biskup íslands, Dr. Sigurgeir Sigurðsson, er nú kominn heim úr för sinni til Vesturheims. En hann var, sem kunnugt er, full- trúi íslenzku ríkisstjórnarinnar á 25 ára afmælishátíð Þjóðrækn- isfélags Vestur-Islendinga, sem háð var í febrúar s. 1. Biskupinn fór vestur í febrúar byrjun og hefir því dvalið þar í þrjá mánuði. Eftir að hafa setið á Þjóðræknisþinginu ferðaðist hann um Islendingabygðirnar í Canada og Bandaríkjunum og til fjölda annara staða, eins og skýrt hefir verið frá í fréttum blað- -anna. Á ferð sinni flutti biskup alls 50 ræður og fyrirlestra á meðal íslendinga og Ameríku- manna. 1 gær höfðu blaðamenn tal af biskupi á heimili hans. Biskupinn lét mjög vel yfir ferð sinni. “Viðtökurnar voru ógleymanlegar,” sagði hann, “fólkið bar mig á höndum sér, ekki persónuna, heldur landið, sem eg var fulltrúi fyrir, og kirkjuna. Eg mun aldrei gleyma þeim hlýhug, sem allstaðar var að finna til íslands og íslenzku þjóðarinnar.” Þjóðræknisþingið og V esiur-í slendingar. Þjóðræknisþingið, sem haldið var 21.—23. febrúar, var mjög fjölsótt og komu margir langa vegu að til þess að vera þar. Þingið var hátíðlegt og ríkti þar sérstaklega sterkur íslenzkur þjóðlegur blær frá upphafi til enda. Landarnir vestan hafs ræddu um ísland og íslenzku þjóðina af mikilli virðingu og vináttu. Var ekki hægt að kom- ast hjá því að veita eftirtekt þeirri tilfinningu, þeirri heitu ti'lfinningu, sem landnemaírnir og niðjar þeirra bera til ætt- jarðarinnar. Vestur-íslendingar eru mjög þakklátir fyrir allan vináttuvott, sem heimaþjóðin sýnir þeim, fyr ir hvert smáatriði, sem fyrir þá er gert. Það er mjög virðingar- vert, hvað Vestur-íslendingar tala vel málið. En það er mikl- um erfiðleikum bundið fyrir þá að halda því við, því að ensk- una verða þeir fyrst og fremts að leggja stund á, þar sem þeir þurfa að nota það mál í dagleg- um viðskiftum. — Mig langaði til þess að segja margt um Vestur-íslendinga, sagði Biskup íslands. ennfremur, eftrA þessa ferð eru þeir mér sérstaklega kærir. Þeirra heit- asta ósk er að halda, sem nánustu sambandi við okkur heima. Á- huginn á íslandi þverr ekki, þótt þeim fari fækkandi, sem litið hafa “gamla landið” augum. Þjóðræknisdeildunum fjölgar. Eitt af sameiginlegu áhuga- málum margra Vestur-íslend- inga, er að “skreppa heim” að styrjöldinni lokinni. Þeir vilja kynnast landinu og þjóðinni, sem þeir hafa svo miklar mætur á, nánar. Biðja að heilsa heim. Þegar biskup var á samkom- um með íslendingum, heilsaði hann upp á hvern einstakan á eftir. Flestir landarnir vestra, þó einkum þeir eldri, áttu kunn- ingja eða frændur heima á Is- ’.apdi, sem þeir þurftu að tala um, spyrja frétta af og svo síð- ast en ekki síst skila kveðju til. Þannig urðu þær nokkuð marg- ar kveðjurnar, sem biskupinn var beðinn að flytja hingað heim. “Mér þykir afar vænt um að geta skilað þessum kveðjum, sem eg mun gera munnlega eða bréflega. Fólkið var svo einstak- lega vingjarnlegt og þakklátt. Á hverri járnbrautarstöð, sem eg kom á, voru altaf einhverjir ís- lendingar, sem tóku á móti mér.” íslenzkir síúdentar veslra. “Alstaðar þar sem eg kom og talaði við háskólakennara við skóla, þar sem íslenzkir stúdent- ar stunda nám, kom það fram, hvað íslenzku stúdentarnir væru duglegir. í Berkeley talaði eg m. a. við 20 prófessora. Yfirleitt var viðkvæðið, að íslenzku stú- dentarnir bæru af”. — Biskup- inn hitti flesta íslenzku stúdent- ana, sem nú dvelja vestra. Var hann t. d. heila kvöldstund með íslenzku stúdentunum í Berkeley sem eru 27. “Undantekningarlít- ið held eg að íslenzku stúdent- arnir stundi nám sitt af kost- gæfni, enda er kenslukerfið þannig að ekki er gott að slá slöku við.” Landið sjálft það merkilegasta. Biskupinn var spurður að því, hvað hefði verið það merkileg- asta, sem hann hefði séð. “Land- ið sjálft var það merkilegasta, sem eg sá, hin mikla fjölbreytni í landslagi, loftslagi og gróðri og möguleikarnir, sem búa í land- inu. Skipulagið vakti og sérstak- lega eftirtekt mína.” Þjóðin ber hlýhug til íslands. “Mér féll ameríska þjóðin ákaflega vel,” sagði biskup enn- fremur, “ástæðan er sennilega mikið sú, hve hlýjan hug hún ber yfirleitt til Islands. Það er talað vel um Island og her- mennirnir, sem dvalið hafa hér á landi bera landinu yfirleitt góða sögu. Það kom einnig í ljós að þjóðin er ekki upp úr því vaxin að viðurkenna, að hún þarf á stuðningi og velvilja minstu lýðræðisþjóðarinnar að halda.” — Það fyrsta, sem amerísku blaðamennirnir spurðu um, var venjulega, hvernig sambandið væri milli setuliðsins og lands- manna. — Biskupinn kom þeim í skilning um að skyndileg koma mikils herliðs, jafnvel þó það væri vinveitt, hlyti að valda mikilli truflun, en yfirleitt gætti 'gagnkvæms skilnings í sambúð- inni. Biskup kynti sér eftir föngum kirkjulíf vestra. Veitti hann því sérstaka eftirtekt hinu sífelda, látlausa starfi leikmanna, sem mikið bæri á. Áður en biskupinn fór úr New York flutti hann kveðju orð í útvarp til bræðraþjóðanna á Norðurlöndum og var viðstaddur vígslu biskupsins af Washington, Dr. Dun. Biskupinn kvaðst hafa ástæðu til þess að þakka mörgum, í sam bandi við þessa för. sem hefir orðið honum og þjóðinni allri til sóma, svo sem ríkisstjórninni, Þjóðræknisfélaginu, hernaðar- yfirvöldunum, upplýsingadeild Bandaríkjanna og fleirum fyrir utan heilan hóp af einstakling- um. Að lokum sagði biskupinn: “Aldrei hefi eg þreifað meira á handleiðslu Guðs en í þessu ferðalagi, og mest þegar mest þurfti á að halda. Trú mín hefir fengið nýjan styrk.” ÞJÓÐVILJINN 9. MAÍ. Herra biskupinn yfir Islandi, Sigurgeir Sigurðsson, kom heim úr Ameríkuför sinni í fyrradag. I gær ræddi hann á heimili sínu við blaðamenn um þetta ferðalag sitt. Hafði hann verið 3 mánuði á ferðalagi, heimsótt fjölda Íslendingabyggða og kirkj unnar menn, komið í 12 stórborg- ir, flutt 50 erindi, prédikað í fjölda kirkna og flogið 9000 mílur, auk þess ferðast allmikið með járnbrautum. Lét hann hið bezta yfir fertialaginu og rómaði mjög viðtökurnar. Þjóðræknisfélagið og Vesiur-íslendingar. Biskup fór vestur sem fulltrúi ríkisstjórnarinnar til þess að sitja þing Þjóðræknisfélags Vestur-ís- lendinga, sem haldið var í Winni- peg dagana 21.—23. febr. s. 1. Var þingið mjög fjölsótt, fór há- tíðlega fram og með sterkum þjóðlegum blæ. Var þar mikið rætt um Island og íslenzku þjóð- ina. — íslendingar tóku á móti mér og báru mig á höndum sér, þeir tóku fyrst og fremst á móti mér sem fulltrúa íslenzku þjóð- arinnar. Þjóðræknisfélögum Is- lendinga fjölgar stöðugt í Ame- ríku. Tilfinningin til islenzku þjóðarinngr er heit hjá Vestur- Islendingum. Það er virðingar- vert hve Vestur-íslendingar tala vel málið, menn, sem alla æfina ha(fa dvalið í ejnskum heimi, mælti biskup. Biskup dvaldi um hálfan mán- uð í Winnipeg og ferðaðist um íslendingabyggðir bæði í Cana- da og Bandaríkjunum. Flutti hann fjölda erinda í allskonar félögum. Biskup taldi að 30—40 þús. íslendingar og menn af ís- lenzkum ættum dvelji nú í Ame- ríku, þar af um 18 þús. í Cana- da — í Winnipegborg einni 6 þús. — og 12—14 þús. í Banda- ríkjunum. — Ákaflega margir íslendingar töluðu um að koma heim eftir stríðið, og eg verð fram eftir öllu að skila kveðjum, sem eg var beðinn fyrir heim, sagði biskup. Biskupinn prédikaði fyrir ís- lendinga í fjölda kirkna, auk þess skírði hann, fermdi og gifti. Veslur að KyrrahafL Biskup lagði m. a. leið sína vestur að Kyrrahafi. Skoðaði hann skipasmíðastöðvar Kaisers í San Francisco og kvikmynda- tökuborgina Hollywood. Á ferða laginu heimsótti hann 12 stórar borgir, m. a. Minneapolis, Seattle San Francisco, Los Angeles, Chicago og Washington. Lýðveldisstofnuninni fagnað í Ameríku. Biskup sagði, að alstaðar hefði verið minnzt á lýðveldisstofnun- ina og hefðu Ameríkumenn sam- fagnað Islendingum yfir að vera nú að endurheimta lýðveldi sitt. Kvaðst hann alstaðar hafa mætt velvilja og hlýhug í garð ísl. þjóðarinnar. Biskup kvað Ame- ríku ákaflega merkilegt land hvað snerti fjölbreytni í gróðri og loftslagi, undraverðar verk- legar framkvæmdir og framtíð- armöguleika. Kirkjan. Alstaðar þar sem biskup kom átti hann samfundi við presta og kvað hann það hafa orðið sér til mikillar ánægju, ásamt því að sjá hve mikinn þátt leikmenn tóku í trúarlegu starfi. Frjáls- lyndi kirkjunnar taldi hann vera upp og niður. M. a. var hann viðstaddur vígslu Duns biskups af Washington, en þar var margý stórmenni samankomið, alls 2500' manns. íslendingar og herinn. Alstaðar þar sem biskup fór var hann umkringdur af ame- rískum blaðamönnum og eld- glæringum ljósmyndara. Fyrsta spurning blaðamannanna var alt- af um sambúð Islendíinga og hers Bandaríkjamanna hér. Myndi það hafa verið mjög al- mennt álit þar vestra, að Islend- ingar hafi verið mjög kaldir við hermennina. Biskup kvaðst hafa spurt blaðamennina að því, hvernig þeim hefði litist á það ef jafn fjölmennur her og íbú- arnir hefðu setzt að í heimkynn- um þeirra, og hefðu þeir þá venjulega litið öðrum augum á málið. Hann kvað ameríska her- menn, sem hér hafa dvalið, bera landi og þjóð vel söguna í bréf- um sínum og þegar þeir koma heim. Njóla góðs álits. Biskup heimsótti fjölda ís- lenzkra stúdenta í Ameríku og ræddi við kennara þeirra. Kvað hann það alstaðar hafa komið fr^m hve góðs álits þeir nytu sem góðir námsmenn. Ánægjuleg en erfið ferð. Biskup hóf ferð sína með því að fljúga héðan. til Bandaríkj- anna á 14 klst. Var hann síðan svo að segja á látlausu ferðalagi í 3 mánuði, flaug 9000 mílur, ferðaðist einnig með járnbraut- um, prédikaði í fjölda kirkna og flutti fjölda erinda, stundum daglega, talaði oft í útvarp, m. a. flutti hann einu sinni ávarp í útvarp til skandinavisku þjóð- anna, þar sem hann m. a. kvaðst vona að samvinna þeirra mætti eflast á ný að stríðinu loknu. Biskup kvað þessa ferð hafa verið ánægjulega — en erfiða. — Eg hef aldrei þreifað meira á forsjón og handleiðslu guðs en í þessu ferðalagi. Mér fannst eg þráfaldlega þreifa á handleiðslu guðs og nærveru, sérstaklega þegar eg þurfti á að halda. Trú mín hefur öðlast nýjan styrk við ferð mína, mælti biskup. Þjóðræknisfélag Vestur-Islend inga og O.W.I. (upplýsingaskrif- stofa Bandaríkjastjórnar) skipu- lögðu ferð biskupsins og bað hann blöðin að færa þeim, ís- lenzku ríkisstjórninni, herstjórn- inni, konsúlum og öllum þeim, sem greiddu för hans, hinar beztu þakkir. VÍSIR 9. MAÍ “Eg hefi aldrei fundið nær- veru guðdómsins eins glögglega og á því 15,000 mílna ferðalagi, sem eg hefi ferðast á síðastl. þrem mánuðum,” sagði biskup- inn, herra Sigurgeir Sigurðsson við blaðamenn í gær. Hann er nýlega kominn heim frá Ame- ríku, en þangað ferðaðist hann Dorit Let This Happen Here! H OW would you íeel if, tomorrow you woke up to find that, by law, you would be told what to produce, how many hours you had to work, how much you were to produce, where to ship it and what form of payment you would receive for your labours? QUOTATION FR0M THE C.C.F. HANDB00K F0R SPEAKERS Read the copy in the panel as one example, which is taken from the C.C.F. Handbook for Speakers (page 16)—Under such policies of con- trolled production, such a state of affairs could quite easily happen here for the very simple reason that you cannot control production unless you dictate to, and control the producer. This is too serious a time to experi- ment with a Party with a different Policy for every Province and who cannot agree among themselves as to exactly what kind oi Socialism they’d give us at the start. Q.—“What method would you adopt in dealing with land when a certain amount of agricultural land is socialized and a certain amount is not?" A. — 'The essential thing ahout farming is not the land itself but the production. You want to prevent the possibility of one man obtaining control of production and profit out of his neighbour. You set up a State Marketing Board. Every farmer is treated the same whether he holds the land under a lease or not. He produces for use and not for profit " On the other hand, Liberalism is more than a political party. thinking and stands for all the better things in life. It is a way of The Liberal Party under the able leadership of Hon. W. I. Patterson has given this Province honest, sound, progressive Government for the people. No one can deny this. Why then, change it for a lot of untried theories—theories which, if put into practice, would gradually regiment us all and finally, do away with the freedom we now enjoy. Think! Act! ★ VOTE LIBERAL ★ KEEP SOCIALISM OUT 0F SASKATCHEWAN! Jttued bv the Saskatchewan LiberaJ Association

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.