Lögberg - 07.09.1944, Blaðsíða 1
PHONES 86 311
Seven Lines
Í'V*
CO1-
For Betier
Dry Cleaning
and Laundry
m.
PHONES 86 311
Seven Lines
W'*sé®* 4
v€<s*f. **4
C°«- ^
A Y>^V
and
ívVVe'
1)ry Cl<£*
Service
and
Saiisfaciion
57. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. SEPTEMBER, 1944
NÚMER 35
Einn af mörgum
í herþjónustu
Oddgeir Bjarnason
Þessi glæsilegi ungi maður, er
sonur þeirra Mr. og Mrs. Skúli
Bjarnason, sem vinmörg eru hér
um slóðir, en nú búsett að Glen-
dale, California.
Oddgeir er fæddur í Winni-
peg 21. okt. 1917, en fluttist til
Los Angeles með foreldrum sín-
um, er hann var tólf ára að aldri;
hann er útskrifaður af Glendale
High School, og stundaði síðan
um hríð nám við lærðan skóla.
Oddgeir innritaðist í Bandaríkja
herinn í apríl-mánuði 1942, og
fór til Bretlandseyja í september
þá um haustið; hann tók þátt
í innrásunum, bæði í Afríku og
eins á Sikiley, og á hinum síðar-
nefnda stað varð hann fyrir því
slysi að fótbrotna, og hefir legið
á sjúkrahúsum í meira en ár;
nú er hann á sjúkrahúsi í Cali-
forniu og líður vel undir kring-
umstæðunum.
Oddgeir var með 19. Engineers
herdeildinni, og er almennt þekt-
ur undir nafninu Barneson.
KVALASTAÐIR
Á þeim stöðum, sem Nazistar
hafa orðið að hörfa svö fljótt
undan að þeir hafa ekki haft
tækifæri til þess að afmá öll
ummerki um glæpi sína, hafa
fundust hryllilegir pyndingastað
ir og morðtæki. Einn slíkur stað-
ur er Lublin í Póllandi. Fundust
þar stórir ofnar til líkbrenslu
og grafir þar sem þúsundir
manna höfðu verið grafnir. Einn
af umsjónarmönnum þessa stað-
ar skýrði frá morðaðferðum
þeirra og sagði að þeir hefðu
verið í mestu vandræðum með
það að koma frá sér líkunum.
Aðrir staðir þessum líkir, hafa
fundist á Frakklandi.
Fregnir af vettvangi stríðssóknarinnar
Herskarar Nazista fara eina hrakförina
annari meiri, og senn kemur sprenging-
in mikla. Rúmenía og Finnland gefast
upp. Rússar segja Búlgörum stríð á
hendur.
J ARÐSKJ ALFTI
Vart var við jarðskjálita í
Austur-Canada á þriðjudaginn
5. sept. Orsökuðu þeir miklar
skemdir í borginni Cornwall við
St. Lawrence fljótið. Er talið að
skaðinn nemi um $750.000.
ROTTERDAM
Síðustu fréttir herma að
Bandamenn séu komnir til út-
jaðra Rotterdam borgar á Hol-
landi.
Nú er svo komið, að leiftur-
stríð Hitlers hefir snúist upp í
einn þann allra einstæðasta
flótta, sem hernaðarsagan getur
um; á hverju einasta bardaga-
svæði, eru riðlaðar fylkingar
þeirra á slíku handahlaupi of-
boðs og undanhalds, að til firna
mun jafnan talið verða. Nú eru
það saiheinuðu þjóðirnar, er
með hraða eldingarinnar fara
blóði og brandi yfir hin her-
numdu lönd Nazista, og leysa
þau eitt af öðru úr ánauð, og
nú er kollhríðin auðsjáanlega í
aðsigi.
Rúmenía hefir nú lagt árar í
bát, og með uppgjöf hennar hef-
ir Hitler mist tvo þriðju af því
olíumagni, sem honum var
nauðsynlegt til þess að geta hald
ið hinum hernaðarlegu véla-
virkjum sínum í gangi. Finnland,
þessi smáþjóð, sem lét Hitler
hafa sig að ginningafífli, hefir
nú komist að raun um, hve bar-
átta þjóðarinnar í faðmlaginu við
Nazista var frá öndveðu von-
laus, og hefir nú samið um vopna
hlé við Rússa. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa nú náð höfuðborg
Belgíu að fullu á vald sitt, og
mun þess ekki langt að bíða unz
fáni frelsisins blakti yfir land-
inu á ný; þá eru og herskarar
frelsisins komnir langt inn í
Holland, og verður ánauðar-
hlekkjum þess brátt splundrað
til agna; sömu söguna hefir
Júgóslavía að segja, auk þess
sem litla hertogadæmið Luxen-
burg, sem Hitler tróð undi hæl,
er í þann veginn að endurheimta
sjálfstæði sitt, og’ senn kemur
vitaskuld röðin að Norðurlanda-
þjóðunum, Noregi og Danmörku.
Bæði á Frakklandi og eins á
ítalíu fara Nazistar í felur og
eiga fótum sínum einum fjör að
launa, þar sem * slíku á annað
borð verður viðkomið, því nú
er karlmenskuhugurinn harði í
skapgerð þeirra farinn að digna.
Búlgarar eru nú önnum kafn-
ir við tilraunir um vopnahlés-
samninga við Breta og Banda-
ríkjamenn, og standa samnings
umleitanir í þessa átt yfir í
Cairo, höfuðborg Egyptalands;
stjórnarskipti hafa orðið í Búlg-
aríu, en tortryggilegum augum
líta Rússar á hið nýja ráðuneyti.
Rússar hafa sagt búlgörsku þjóð-
inni formlega stríð á hendur, og
saka hana um undirferli og leyni
samband við Hitler.
Af stríðinu milli Bandaríkj-
anna og Japan, er það nýjast
að frétta, að í nýlegri viðureign
á Bonin og Volcano eyjunum,
mistu Japanir 42 skip af ýmiss-
um stærðum, og fórst með þeim
fjöldi japanskra hermanna; á-
minstar eyjar liggja um 650 míl-
ur í suður frá Tokyo.
DIEPPE
Fyrir tveimur árum gerðu
Canadamenn árás á Dieppe, en
urðu að hörfa til baka og skilja
marga sína menn eftir þar. Á
laugardaginn komu þeir aftur
til Dieppe. í þetta skifti horfði
öðruvísi við. Óvinirnir voru á
hröðum flótta. Canadamenn fóru
sigurgöngu gegnum Dieppe. íbú
arnir tóku þeim með ofsafögn-
uði.
GRIÐNIÐINGUR í NOREGl
ÁÐ VERKI
Um hvítasunnuleytið voru
margir menn handteknir á
Fosenskaga við Þrándheims-
fjörð. Það var þýzk lögregla,
sem hér var að verki. Hún hafði
með sér pólskan herfanga, sem
gaf upplýsingar um 44 Norð-
menn, sem voru teknir hönd-
um.
Pólverji þessi hafði verið dul-
búinn sem rússneskur herfangi
qg hafði motið hjálpar Norð-
manna, sem höfðu gefið honum
mat, lofað honum að hlusta á
óleyfilegt útvarp, o. s. frv. Hann
þakkaði hjálpina með þessu
móti.
FLÚINN ÚR LANDI
Hraðfrétt frá Madrid síðastlið-
inn miðvikudagsmorgun lætur
þess getið, að Franz von Papen,
fyrrum sendiherra Þjóðverja á
Tyrklandi og Dr. Walther Funk,
forseti þýzka þjóðbankans, séu
komnir til Lisbon í Portugal,
sem flóttamenn. Frétt þessi hefir
enn eigi verið staðfest.
CANADAMENN NÁLGAST
RIMINI
Á ítalíu, sem öðrum vígstöðv-
um, veitist bandamönnum bet-
ur. Eru nú Canadamenn að nálg-
ast Rimini, en sú borg er við
austurenda brautarinnar sem
liggur gegnum Po-dalinn.
STÚLKA HVERFUR
í HAFNARFIRÐI
Stúlka, rúmlega tvítug að aldri
hvarf úr Hafnarfirði í fyrradag
og hefur síðan ekkert til hennar
spurzt.
Islandsstef
Vort ættland skiptir átt og veðri —
oft á skammri stund,
svo ísland það á eingöngu
við íslendinga lund,
því sumt, sem hugþekkt okkur er,
býr ókunnugum hroll.
En ótilneydd vor ættjörð fer
ei umheimsins í soll,
er svöl í bragði og einlynd ögn, en eigin börnum holl.
Og nú, er fer þú, fóstran mæta,
að feta nýjan stig,
þá láttu ei ’tímans hlym né hraða
heimska og villa þig;
lát veittan oss að vísu byr
og viðunanleg kjör,
en vertu eins og oftast fyr
' á eyðslusilfrið spör;
oss hentar naumast hófleysan í hamingjunnar för.
En gef oss auðnugullið dýra
og gleði þeirrar ym,
er störfin vekja, en stöðva hvorki
storm þinn eða brim,
oss betra að hitna í barningi enn
en blása þurfi í kaun,
því stórviðrin þau stæla menn
að standast lífsins raun,
og ísland geldur atorkunni einni fyllstu laun.
En fram skal nú með stálin stíga
og stríðið frjóva háð —
að sækja fram gegn steini og storku
stórhug með og dáð.
Þú fagnar, gripin ungdóms yl,
hin aldna fróða drótt.
Vor fortíð leggur leiðsögn til
og ljær oss reynsluþrótt.
Og dormum ei, en dugum nú, því dagað hefir skjótt.
Og vit það, ísland, — aldir líða,
en yngjast samt þú skalt,
þú fríkkar, glaðnar, fær þinn blóma
og faldaskartið allt;
oss ber að sauma búning þann
og baldýra ’ann af snilld,
sjá, allt, sem grær, skal greypa í hann
og glita af hlýrri vild. —
Eins séð skal um, að sannfróð verði Saga í þinni fylgd.
Já, bezt vér munum einatt una
á andstæðnanna fold,
með stóru lyndi vasta og vinda,
unz værðir býr oss mold. —
Hér jafnar margt hvað myrkt og hart
hin milda sumarnótt,
þá allt á storð er ungt og bjart,
í einu glatt og hljótt.
f heiði og kyrð, — í ólgu og eld er íslands skaphöfn sótt.
%
Jakob Thorarensen
Tíminn
Stúlka þessi heitir Sigríður
Jónsdóttir, og er 21 árs gömul.
Fór hún heiman að frá sér kl.
6—7 á þriðjudagsmorguninn,
en þegar hún kom ekki heim til
sín um kvöldið var leitað að-
stoðar lögreglunnar og m. a.
hefir verið auglýst eftir henni í
útvarpinu. En öll leit að stúlk-
unni og eftirgrenslan hefir til
þessa verið árangurslaus.
Vísir, 29. júní.
LJÓSMÓÐIR t 20 ÁR
— 1205 BÖRN
/
Siglfirzkar konur hafa heiðr-
að Guðbjörgu Kristinsdóttir ljós
móður fyrir 20 ára störf þar í
bænum.
Fyrstu^ fjögur árin var Guð-
björg praktiserandi ljósmóðir en
skipuð síðustu 16 árin. Á þessum
tíma hefir hún tekið á móti 1205
börnum.
Formaður kvenfélagsins Von-
arinnar hafði orð fyrir konum,
sem heimsóttu Guðbjörgu. —
Færðu þær henni peninga að
gjöf og auk þess ágrafið gullúr,
stokkabelti og skrautritað á-
varp, þar sem henni eru þökkuð
vel unnin störf.
Vísir, 30. júní.
RIGNINGARNAR
Svo segja fróðir menn, að sum-
ar það, sem nú er í raun og veru
um garð gengið, sé það votviðra-
samasta, sem runnið hafi upp
yfir Canada í síðastliðin 35 ár.
0r borg og bygð
Dr. Haraldur Sigmar frá
Mountain, N. Dak., forseti lút.
kirkjufélagsins, sem staddur var
á Gimli síðastliðinn sunnudag,
og setti þar inn í embætti séra
Skúla Sigurgeirsson, sem prest
Gimli prestakalls, lagði af stað
heimleiðis á miðvikudaginn.
•
Mrs. D. C Curry frá Coronado,
California, er nýkomin til borg-
arinnar og mun dvelja hér um
slóðir nálægt þriggja vikna
tíma.
•
Gefin saman í hjónaband í
Lútersku kirkjunni í Selkirk að
mannfjölda viðstöddum, Pilot
Officer Arthur Mitchell Johns-
ton, Selkirk, Man., og Thorey
Johnson, hjúkrunarkona, sama
staðar.
Fjölmenn veizla var setin að
heimili Mr. og Mrs. Jóhann
Péturson, McLean Ave., að gift-
ingunni afstaðinni.
•
Þann 2. sept., vígði séra Sig-
urður Ólafsson saman í hjóna-
band á prestsheimilinu í Selkirk,
þau Gísla Herold Jónasson, 629
Young St., Winnipeg, og Sigur-
laugu Iris Eiríkson, Árnes, Man.
Heimili ungu hjónanna verður í
Winnipeg.
•
Silver Tea og Home Cooking
undir umsjón kvenfélags Sam-
bandssafnaðar verður haldið
næstkomandi laugardag, 9. þ. m.
í The T. Eaton Assembly Hall
kl. 2,30 til 5,30. Þar verður á
borðum íslenzkur matur og kaffi
brauð undir umsjón Mrs. F. J.
Kristjánsson, Mrs. B. E. Johnson
og Miss Elin Hall.
Kaffi skenkja: Mrs. J. B.
Skaptason, Mrs. P. Reykdal, Mrs.
S. Einarsson, Mrs. R. Haugen,
Mrs. J. Straumfjörð og Mrs. A.
N. Sommerville.
Á móti gestum taka: Mrs. R.
Pétursson, Mrs. G. Árnason, Mrs.
H. E. Johnson, Mrs. Jón Ásgeirs-
son, Mrs. P. S. Pálsson.
Hér verður tækifæri að heils-
ast eftir sumarfríið og njóta góðr
ar ánægjustundar. — Konurnar
vonast til að sem flestir heim-
sæki þær þennan dag.
•
Sigurður Bjarnason, 623 Simcoe
St., lézt að heimili sínu á laug-
ardaginn var, eftir langa van-
heilsu. Hann var Borgfirðingur
að ætt, en kom vestur um haf
um aldamótin. Hann lætur eftir
sig konu, son, Bjarna, sem á
heima í Yardley, Penn., og syst-
kini, Mrs. Salome Backman í
Winnipeg og Ásgeir í Selkirk.
Jarðarförin fór fram frá heim-
ilinu á miðvikudaginn, undir
umsjón Bardals. Séra Valdimar
J. Eylands jarðsöng.
•
Frú María Straumfjörð, kona
Jóhanns gullsmiðs Straumfjörð í
Seattle, Wash., kom til borgar-
innar á miðvikudaginn í fyrri
viku, “'ög dvelur hér um hríð;
hún er systir þeirra Gísla Jóns-
sonar ritstjóra Tímarits Þjóð-
ræknisfélagsins og Einars P.
Jónssonar ritstjóra Lögbergs.
Frú María fór norður til Lundar
síðastliðið sunnudagskvöld og
kom hingað aftur á þriðjudaginn,
hún átti um hríð heima í Winni-
peg, en frá þeim tíma, sem hún
dvaldi hér, eru liðin rúmlega
tuttugu ár.
•
Sunnudaginn 3. sept., var há-
tíðleg guðsþjónusta í Gimli
kirkju kl^ 3 e. h., þá er séra H.
Sigmar forseti kirkjufélagsins
setti séra Skúla Sigurgeirsson í
embætti sitt hjá Gimli presta-
kalli. Guðsþjónustan fór fram í
kirkju Gimli safnaðar og var
furðanlega vel sótt, þrátt fyrir
rigninguna sem þá var og illfæra
vegi vegna undangenginna rign-
inga. Prestarnir í heimatrúboðs
nefnd kirkjufélagsins aðstoðuðu
forseta við athöfnina. Séra E. H.
Fófnis ávarpaði prestinn og séra
V. J. Eylands ávarpaði söfnuð-
inn, en séra Bjarni þjónaði fynr
altari. Söngur var ágætur bæði
sóló, kónsöngur og sálmar, og
guðsþjónustan öll hátíðleg.
Safnaðarnefnd Gimli safnaðar
veitti aðkomugestum af mikilli
rausn, eftir messu, á hinu fagra
heimili þeirra Mr. og Mrs. Chris
Paulson, Gimli.
•
Ferðafélagarnir fimm frá
Winnipeg, þeir Hannes Péturs-
son, séra V. J. Eylands, Grettir
L. Jóhannson, Stefán Einarsson
og Einar P. Jónsson, er voru
gestir íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar í New York við heimsókn
forseta íslenzka lýðveldisins, hr.
Sveins Björnssonar til þeirrar
miklu borgar, eru nú allir komn-
ir heim með ljúfar endurminn-
ingar um ógleymanlegar við-
tökur.
•
í næstu viku flytur Lögberg
ýtarlegt heildaryfirlit yfir hina
glæsilegu móttöku hr. Sveins
Björnssonar forseta til New
York borgar, eftir hinn ágæta
blaðamann, hr. Bjarna Guð-
mundsson, blaðafulltrúa utan-
ríkisráðuneytis Islands, sem blað
ið er honum einkar þakklátt fyr-
ir.
•
The Junior Ladies Aid of the
First Lutheran Church will
hold their first meeting of the
season on Tuesday, Sept. 12th
in the church parlors. APot Luck
luncheon will be served at 1.30
and all members are asked to
attend.