Lögberg


Lögberg - 07.09.1944, Qupperneq 5

Lögberg - 07.09.1944, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. SEPTEMBER, 1944 5 nokkrum vikum síðan, hefur fengið stöðuga vinnu hjá fiski- kaupafélagi í Campbell River. Hefur hann leigt hús S. Guð- mundssonar fyrir veturinn Kona hans og barn koma hingað fyrir næstu mánaðarmót. Það hefur verið auglýst að séra Rúnólfur Marteinsson og frú hans, komi hingað norður, og ætlar hann að messa þann 27. ágúst á heimili þeirra Mr. og Mrs. Albert Árnason. Séra Rúnólfur er eini íslenzki prest- urinn, sem hefur komið hingað og messað og gjört önnur prest verk. Mrs. Kristín Veitch frá Prince Rupert, B. C., er hér að heim- sækja móðir sína, Mrs. Stein- unni Loftson og systur sína, Mrs. E. Gunnarson. Hún verður hér um tíma hjá skyldfólki sínu. Árni Sigurðson, sem hefur unn ið um hálft þriðja ár norður á Queen Charlotte eyju, var gjört aðvart um að bróðir hans Stefán Sigurðson, væri hættulega veik- ur, kom heim fyrir nokkrum dögum, og verður hér þar til um mánaðarmótin. Á þessari eyju er það mest Sitka Spruce sem þar fæst, og er mestmegnis brúkað nú á dögum til að byggja flugvélar bæði í Canada og Bandaríkjunum, er það álitið eitt af því bezta efni af þeirri tegund sem hægt sé að fá í flug- vélar. Árni er vélamaður, sem vinnur með eina af þeim stóru dráttarvélum sem draga loggana út úr skóginum og ofan til strand arinnar, þar sem flekarnir eru byggðir, og síðan dregnir af dráttarbátum til millanna a meginlandinu. Þarna er tröllsleg ur skógur, mörg tré yfir 200 fet á hæð. Sumir loggarnir sem það án koma, eru frá 8 til 12 fet að þvermáli. Stærsti loggur sem komið hefur til Vancouver var þaðan, var hann 14 fet þver- máls í digrari endann. Eg sá þennan logg sjálfur og á mynd sem tekin var af honum. Ekki var þessi loggur sagaður í borð- við, heldur í stutta búta, sem seldir voru í allar áttir, og eru hafðir til sýnis. Þann 20. ágúst lézt að heimili foreldra sinna, Stefán Sigurðson 43 ára. Hann var búinn að vera veikur um nokkurn undanfarin tíma. Jarðarförin fór fram frá heimilinu, og voru þar við staddir allir íslendingar í bygð- inni, sem mögulega gátu komið því við að vera þar viðstaddir. Var kistan þakin blómum, sem allir landarnir áttu einhvern þátt í, því Stefán sál. var vel látinn af öllum sem kyntust hon- um. Hann var jarðaður í graf- reitnum við Campbell River. Er hann þriðji íslendingurinn sem nú hvílir þar. Verður hans nán- ar getið síðar. Rev. Mathew prestur ensku kirkjunnar í Campbell River, þjónaði við jarðarförina. Mrs. E. E. Einarson frá Gimli, Man., er hér um þessar mundir að heimsækja son sinn E. J. Einarson, sem kom hingað síð- astliðið vor. Systir hennar, Mrs. Kristín Johnson frá Blaine, Wash., var í för með henni. Tími þeirra var svo stuttur hér að þær gátu ekki heimsótt nema fáa af þeim löndum, sem hér eru búsettir. Þeim leyst báðum vel á sig hér, og sögðust hafa skemt sér vel á ferðalaginu. Sá, sem þessar línur ritar, er nú á förum héðan um tíma. Fer eg fyrst til Seattle að heimsækja Konráð son minn og norsku kon- una hans, sem þar búa. Líka á eg þar marga kunningja mína frá æskuárunum í N. Dak., sem eg mun leita uppi á meðan eg dvel þar. Frá Seattle fer pg til Vancouver þar sem eg verð í vetur, en með vorinu fer eg aftur með farfuglunum til Campbell River, ef ekki kemur nein snurða á forlagaþráðinn í millitíðinni, sem hamli því. í Campbell River kann eg ætíð bezt við mig. S. Guðmundsson. Mannalát í Nýja íslandi Undanfarna mánuði hefir dauð inn verið nokkuð tíður gestur í mannfélagi Nýja íslands, og hefir tekið með sér á braut menn og konur og börn. Hér fylgja á eftir æfisöguþættir nokkurra þeirra, sem fram að þessu hefir ekki verið minst í fréttablöðun- um íslenzku. Undirritaður sókn- arprestur lútersku safnaðanna í norðurhluta Nýja Islands veitti hina síðustu þjónustu. og talaði yfir moldum hinna látnu. JÓN JOHNSON, bóndi að Hvammi í grend við Riverton, andaðist á heimili sínu eftir langvarandi heilsuleysi 10. febr. s. 1. Hann var sextugur að aldri. Jón var fæddur að Gilsbakka í Húnavatnssýslu á íslandi 7. jan. 1884, sonur hjónanna Jóns Jónssonar og Helgu Guðmunds- dóttir. Af systkinum hans eru á lífi: Kristín, ekkja Ingólfs Magnússonar, búsett í Selkirk; og Sigurlaug, gift hérlendum manni, Montgomery að nafni, til heimilis í Fort William, Ont. Til þessa lands kom Jón með foreldrum sínum, er hann Var tveggja ára, og bjó fyrst við Hnausa, en síðar í Selkirk. Til Riverton kom hann árið 1913, og var þar búsettur til æfiloka. Jón sál. var tvígiftur. Fyrri kona hans var Snjólaug Jóns- dóttir Björnssonar frá Grund. Hún dó í des. 1910, eftir sjö mán- uða hjónaband. Fimm árum seinna, 3. maí 1915, gekk Jón að eiga eftirlifandi konu sína, Thór- unni Guðfinnu Johnson. Níu börn þeirra hjóna eru á lífi, og eru hér nafngreind: Óskar Helgi, í herþjónustu utanlands; Jón, heima; Gunnlaugur, í herþjón- ustu, var í Kiska leiðangrinum; Aurora Kristín, starfar í Winni- peg; Sigurbjörg, Mrs. Paterson McCurdy, Winnipeg; Fjóla, Ólafía, Ruth Ingibjörg, og Denise Thorunn, allar heima hjá móður sinni. Jón í Hvammi hafði verið mjög heilsuveill mörg undanfarin ár; en mikill og dugandi starfsmað- ur var hann fyr á árum, þegar hann hafði heilsu og krafta ólam- aða. Þrátt fyrir aðþrengjandi lífs kjör, var hann yfirleitt glaðlynd- ur og kátur maður. Mun til þess hafa hjálpað þrekmikill dugnað- ur ágætrar eiginkonu og mann- vænlegra barna. Lagði hann þó einnig í té óspart lamaða krafta, og lifir í þakklátri minningu ástvina sinna og vina sem góður heimilisfaðir. Jarðarförin var haldin 15. febr. s. 1. frá heimilinu og kirkju Bræðrasafnaðar í Riverton. Auk sóknarprestsins, þjónaði séra Sigurður Ólafsson einnig við út- förina. SIGNÝ RÓSBJÖRG STUART, húsfreyja, sem heima átti við Hnausa, Man., dó 2. marz s. 1.. í Winnipeg General Hospital úr sjaldgæfri en ólæknandi veiki. Hafði hún legið sjúk um hálft annað ár er hún að lokum fékk hina hentugu lausn dauðans. Hin látna kona var fædd 5. júlí 1895 að Nýhaga í austan- verðri Geysisbygð. Faðir hennar er Sigurjón Thordarson, ættað- ur frá Flöguseli í Hörgárdal og talinn mjög skildur W. H. Paul- son fyrrum þingmanni í Sask. Sigurjón er nú orðinn aldraður, og seztur í helgan stein hjá syni sínum og tengdadóttur sem tek- ið hafa við bústjórn í Nýhaga. Kona Sigurjóns, Anna Jónsdótt- ir frá Þverá í Skíðdal, er dáin fyrir tólf árum. Signý Rósbjörg átti eina systir, að nafni Guðrún Anna; hún er dáin fyrir nokkrum ár- um. Á M'fi eru tveir bræður, Ólaf- ur og Jóhannes Victor. Hinn fyrnefndi stundar að miklu leyti fiskiveiðar á Winnipegvatni, en sá síðarnefndi stjórnar búi í Nýhaga. Ólafur er ókvæntur, en kona Jóhannesar er Þuríður Jónína Daníelsdóttir Daníelson frá Hnausa. Signý Rósbjörg Thordarson giftist 2. sept. 1915 manni að nafni Harry James Stuart. Eftir nokkra dvöl í Winnipeg, fluttu þau hjónin vestur á strönd og voru búlsett í Vancouver um hríð. Aftur að vestan komu þau 1928 og settust að við Hnausa, á næstu grösum við íslendinga- garðinn Iðavellj. Þar var hún ánægð mjög, því hún var þá skamt frá föðurhúsum í Nýhaga, sem hún skoðaði ætíð sem sitt eiginlega heimili. Frá Nýhaga ’var hin látna kvödd hinztu kveðju 8. marz. Frá kirkju Geysissafnaðar var útborið lík hennar til hvíldar lagt í Geysir grafreit. JÓNAS BJÖRNSON, andaðist að Reynistað í Mikley 2. marz s. 1. Hann var ættaður frá Hlíð í Kollafirði, fæddur þar 24. júní 1868, sonur hjónanna Björns Jónssonar og Þórdísar Guðmundsdóttir, sem þar bjuggu. Fósturforeldrar Jónasar voru Björn Árnason og Ingveld- ur Magnúsdóttir; var hann hjá þeim frá þriðja æfiári. Af sextán systkinum, komu sjö til Vesturheims, og mun Jónas hafa verið þeirra yngstur. Systkini þessi eru: Guðbjörg, ekkja eftir Guðmund Thorleifs- son, búsett í Alberta; Ásgeir Byron, Mountain, N. D.; Björn, dáinn, átti heima í Markerville, Alta.; Anna, kona Kristjáns Samúelsonar að Garðar, N. D., dó 1943; Guðmundur, fyrrum bóndi við Markerville, Alta; og Júlíus, búsettur í nánd við Hall- son, N. D. Þegar Jónas kom frá Islandi árið 1887, þá 19 ára, fór hann til systur sinnar, Önnu Samúelson, að Garðar, og var þar um tutt- ugu ára skeið. Síðan fór hann norður í Manitoba, stundaði fiski veiðar á Winnipegvatni, og var til heimilis í Poplar Park um sjö ár. Milli vertíða var hann oft við byggingavinnu í Winnipeg. Til Mikleyjar flutti Jónas ár- ið 1914, og bjó þar til æfi- loka. Lengi var hann vinnumað ur hjá bræðrunum Kristjáni og Gunnari Tómasson, sem lengi ráku sameiginlega fiskiútgerð og verzlun. Árið 1930 var hann starfandi í sögunarmillu Hecla Lumber Co., og slasaðist er hann varð fyrir söginni og misti meiri- partinn af vinstri hendinni. Mörg síðari æfiárin var hann eftirlitsmaður • barnaskólans og samkomuhússins í Mikley. Einn- ig var hann í nokkur ár skrifari skólanefndar. Jónas Björnson var glaðlynd- ur, starfsamur og greiðvikinn maður. Hann var áhugasamur meðlimur lúterska safnaðarins í Mikley. Með honum er genginn grafarveg trúr og trúverðugur þjónn Drottins síns og með- bræðra. Jarðarförin fór fram 14. marz frá Reynistað og lútersku kirkj- unni í Mikley. GtSLI SIGURBJARTUR JOHNSON, vélaformaður í þjónustu Ber- ens River námufélagsins í Favourable Lake, Ont., slasaðist til ólífis við vinnu sína 19. apríl s. 1. ' Gísli var fæddur í Pembina, N. D., 7. apríl 1898, og var því 46 ára er hann lézt. Foreldrar hans voru Guðmundur Guð- mundson og Anna Guðmunds- dóttir. Þó var hann frá blautu barnsbeini til fósturs hjá Metú- salem Jónssyni og Ásu Einars- dóttur, sem rétt eftir aldamótin tóku sig upp úr Dakotabygðum og fluttu til Árdalsbygðar í Nýja Islandi, þar sem þau bjuggu eftirleiðis. Ein alsystir Gísla, Ingibjörg, mun vera á lífi. Uppeldis systkini hans, börn Metúsalems og Ásu John- son, eru: Jón, bóndi í Víðirbygð; Kristveig, kona Valda Jóhannes- sonar bónda í Víðir; Einar, dá- inn; og Thorbjörg, kona séra Sigurðar S. Christopherson, dáin árið 1920. Gísli giftist árið 1930 ekkjunni Björgu Johnson, dóttir Halla og Guðrúnar Björnson á Vindheim- um við Riverton. Auk hennar, lætur hann eftir sig þrjú börn og tvö stjúpbörn. Gísli gekk í 223. herdeildina vorið 1916, og var í herþjónustu næstkomandi þrjú ár. Eftir það stundaði hann búskap við Ár- borg, en síðar fiskiveiðar út frá Riverton, þar til hann gerðist starfsmaður námufélagsins við Favourable Lake. Ber það vott um dugnað hans, trúmensku og hæfileika til starfs, að hann var skipaður í formannsstöðu hjá námufélaginu eftir aðeins örfá ár í þjónustu þess og enga fyrri reynslu í slíkum verkahring. Hinn látni var hár maður og myndarlegur, vinhollur og dag- farsprúður. Hann var jarðsung- inn frá kirkju Bræðrasafnaðar í Riverton 25. apríl og lagður til hinztu hvíldar í Riverton graf- reit. SIGURÐUR KRISTINNSON, bóndi í Geysisbygðinni í Nýja Islandi, lézt á heimili sínu 4. maí s. 1. eftir þriggja ára sjúk- dómsstríð. Hann var fæddur að Hrafnstöðum í Hjaltadal í Skaga fjarðarsýslu á íslandi 8. júní 1884. Faðir hans hét Kristinn Tómasson. Móðir hans, María Kristín Friðfinnsdóttir, er á lífi í hárri elli. Hún er kona Jóns Sigurðsonar, fyrrum bónda á Reykhólsstöðum í Geysisbygð; þau hjónin eru nú sezt í helgan stein á Helgavatni í sömu bygð. Albróðir Sigurðar er Kristinn Ármann Kristinnson, bóndi í Geysirbygð. Hálfsystkini þeirra eru: Sigurdís Una, kona Jóns Thorsteinssonar trésmiðs og bónda á Helgavatni; Heigi, býr á Gunnarsstöðum í Hnausabygð; Friðfinnur, smiður í Winnipeg; Sigurður, málari og vélaviðgerð- armaður í Árborg; og Vigdís, kennari, hjá foreldrum sínum á Helgavatni. Kona Sigurðar er Indiana, dótt ir Sigfúsar Jónssonar og Bjarg- ar Jónsdóttir, frumbyggja að Blómsturvöllum í Geysisbygð. Sigurður og Indiana giftust 1917, og tóku land nokkru seinna í norðanverðri Geysirbygð, þar sem þau bjuggu eftirleiðis. Börn þeirra eru: Páll Björgvin Páls- son, stjúpsonur Sigurðar; Sigfús Jóhann; Gestur Eythor; og Sol- veig. Eru þau öll heima hjá móð- ur sinni, nema Sigfús Jóhann sem er í herþjónustu. Sigurður var vinnuvíkingur. Hann ruddi skóga og hreinsaði land sitt til akuryrkju; en land- búnaðurinn féll á síðari árum að mestu leyti í hendur drengj- anna, því Sigurður var þá oftast nær önnum kafinn í járnsmiðju, sem hann hafði komið upp á landi sínp. Enda leituðu margir til hans með járnsmíðar og við- gerðir, því hann var lagvirkur og hinn greiðviknasti. Ekki varð hann þó ríkur af vinnu þessari. því oftast vildi hann lítið sem ekkert þiggja fyrir vikið. Sigurður var jarðsunginn frá heimili sínu og Geysir lútersku kirkju 6. maí s. 1. ÓLAFUR HELGASON, varð bráðkvaddur á heimili sínu í Mikley að kvöldi dags þ. 14. júlí s. 1. Hann virtist vera hress og ’glaður er hann kom heim úr vinnu sinni við sögun- armillu Hecla Lumber félags- ins; en kl. 11 e. h. var hann liðið lík. Hinn látni var fæddur 30. marz 1886 að Brekknakoti í Þistilfirði í Norður-Þingeyjarsýslu á ís- landi. Foreldrar hans voru Helgi Ásbjörnsson og Mar-grét Stefáns- dóttir. Ársgamall kom Ólafur með foreldrum sínum frá íslandi til Mikleyjar. Þar var Helgi Ás- björnsson áhugamikill leiðtogi og frömuður í kristilegum upp- fræðslumálum til daganna enda, og er talinn með allra nýtustu mönnum er uppi hafa verið í Mikley. Ólafur sál. var elstur af börn- um Helga og Margrétar Ás- björnsson. Af systkinum hans eru nú á lífi þessi: Guðrún Vil- helmina, kona Thorleifs Daníel- sonar að Skógarnesi í Mikley; Járnbrá Júlíana, Mrs. Ingólfur E. Jóhannson, í Riverton, Man.; og Stefán, búsettur í Mikley og giftur Stefaníu Þorláksdóttur. Þrjú systkini dóu á unga aldri. Ólafur giftist 28. ágúst 1908. Kona hans er Kristín Guðmunds dóttir Guðmundssonar frá Snæ- fellsjökli, landnámsmanns að Skjaldartröð í Mikley. Börn Ól- afs og Kristínar eru: Kristleif Vilmundina Ásta (Mrs. Lárus Jónasson), hjúkrunarkona í Mikley; og Helen Margrét Fjóla, gift Póli Hjaltalín Paulson á Melstað í Mikley. Lengst af stundaði Ólafur fiski veiðar, þann atvinnuveg sem langflestir Mikleyingar hafa treyst á frá fyrstu tíð og þeim blessast vel. En fyrir sextán ár- um síðan varð hann vegna heilsubilunar að hverfa algerlega frá starfi um nokkur ár, en sinti síðán eftir því sem heilsufar hans framast leyfði þeirri vinnu sem reyndist honum hæfilegri. Hans mesta áhugamál voru vinn an og vellíðan fjölskyldu sinnar. Tók hann því oft nærri sér sitt lasburða ástand, gerðist dulur í skapi og fáskiftinn í félagsmál- um. Þó v^r hann góður vinur vina sinna, og studdi kirkju og kristindóm. Jarðarför Ólafs sál. Helgason- ar fór fram frá heimilinu og kirkju Mikleyjarsanaðar 19. júlí s. 1. Með hjartans söknuði kveðja eftirlifandi vinir þá sem burt eru kallaðir. En með góðskáld- inu Matthíasi Jochumssyni get- um vér sagt: “Vér sjáum hvar sumar rennur með sól yfir dauðans haf, og lyftir í eilífan aldingarð því öllu, sem Drottinn gaf.” B. A. Bjarnason. “HANDMJOLKUN ER £\^\G að leggjast NIÐUr Hinar nýtízku mjólkurvélar eru í uppáhaldi hjá kúabændum Fullkomnun hinna nýju mjólkur- véla hefir losaS þúsundir bænda við hina tímafreku, þreyiandi og leiðin- legu handmjólkun. Mjólkurvélin sparar tíma og vinnu, gerir auðveldara og fljótlegra þetta verk, sem lengi hefir þótt svo leiðinlegl. Á þessum tímum þegar svo erfiit hefir verið að fá vinnu- hjálp. hefir mjólkurvélin gert bænd- um mögulegt að draga sína venju- egu, mánaðarlegu mjólkurávísun, og færa sér í nyt hina miklu eftirspurn eftir mjólkur afurðum. Þeim bændum, sem nota mjólk- urvélar finst handmjólkun tilheyra fortíðinni. Handmjólkun finst þeim eins gamaldags og að sá korni með höndum eða að slá með orfi og ljá. • Massey-Harris umboðsmaður yðar mun gefa yður upplýsingar um hina nýju Rite-Way mjólk- urvél, sem mjólkar á eðlilegan hátt. MASSEY-HARRIS COMPANY LIMITED BUILDERS OF GOOD FARM IMPLEMENTS SINCE 1847

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.