Lögberg - 02.11.1944, Blaðsíða 1
PHONES 88 311
Seven Lines
Cor-
PIIONES 86 311
Seven Lines
LÍOt^
\;o"Vve
<SS "”4
cot-1
Service
and
Satisfaetíon
57. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. NÓVEMBER, 1944 NÚHER
Bregðist ekki þegn # iskyldu yðar við Canada með vanrækslu við Sigurlánið
Þing Sameinuðu Lútersku Kirkjunnar (U.L.C.A.)
í Ameríku
Haldið í Minneapolis, Minn., dagana 11.—17. október.
Eftir séra Harold Sigmar, D.D.
Þriðjudaginn 10. október lögð-
um við fjórir erindrekar hins
Ev. Lút. Kirkjufélags íslendinga
í Vesturheimi af stað á þing U.
L.C.A., sem átti að byrja næsta
dag í Minneapolis. Minn. Þeir
séra Sigurður Ólafsson frá Sel-
kirk, Man. og S. O. Bjerring,
féhirðir kirkjufélags okkar frá
Winnipeg, fóru það kveld frá
Winnipeg, en W. G. Hillman og
höfundur þessar greinar frá
Mountain. Næsta morgun náðum
við saman í Minneapolis.
Mr. Bjerring var boðaður á
nefndarfund þenna morgun, kl.
9, 'en við hinir fengum ráðrúm
til þess strax að búa um okkur
á gistihúsunum þar sem okkur
var ætlað að búa meðan þing
stóð yfir.
Kl. 2 e. h. þenna dag fórum
við allir á fund “Board of Ame-
rican Missions”. Það mátti kalla
það fjölmenni, sem þann fund
sótti. Starfsmenn þeirrar nefnd-
ar, sem beitir sér fyrir öllum
framkvæmdum á trúboðssvæð-
inu í hinum ýmsu kirkjufélög-
um sambandsins, lögðu fram í
stuttum ræðum skýrslur um
starfið á síðustu tveim árum.
Var það stórkostlegt starf og
mjög yfirgripsmikið, eins og geta
má nærri, þegar maður minnist
þess að það er rekið frá hafi til
hafs og frá nyrstu ströndum
Canada til syðstu stranda Banda
ríkjanna. Einn aðalþátturinn í
þessari kynningar- og vakning-
arsamkomu, var þó frábærilega
hrífandi erindi er Dr. F. C. Fry,
frá Akron, Ohio, flutti. Hann
talaði um horfur í nútíð, bæði
hér í landi og heiminum öllum
Manni virtist erindið spámann-
legt, í afstöðu sinni gagnvart því
er nú bæri að framkvæma fyrir
og með ungdómi þjóðarinnar og
þjóðanna allra.
Þetta sama kveld, kl. 7,30
hófst þingið sjálft með viðhafnar
mikilli hámessu og altarisgöngu,
í Central Lutheran Church, og
þar fór alt _þingið fram. Þessi
kirkja er eign safnaðar, sem til-
heyrir norsku lútersku kirkjunni
í Ameríku. Var hún bygð undir
umsjón hins mikilhæfa kenni-
manns þeirra, Dr. Jacob Stubb.
Og var hann þar lengi mikils-
virtur prestur, en er nú nýlega
látinn. Var hann sonur hins
mikilsvirta kenniföður í Norsku
kirkjunni í Ameríku, Dr. H. G.
Stubb. Hann var mágur séra H.
B. Thorgrímsen sál. og þektu
hann margir íslendingar.
Þessi afarstóra og fagra kirkja,
sem rúmar víst nálega 3000
manns, var leigð fyrir þetta
mikla þing.
Dr. F. H. Knubel, forseti U.L.
C. A. stýrði þessari guðsþjónustu
og þjónaði fyrir altari við upp-
haf hennar. En Dr. Henry Bagg-
er frá Lancaster Pa., fremur
ungur og bráð skýr prestur, flutti
mehkilega prédikun út af orðun-
um í Postulasögunni. sem standa
rituð í 5. kap. 34, 35, 38 og 39
versi.
Óvanalegt var það fyrir okkur
að sjá yfir 500 karlmenn ganga
til altaris þar á þeim eina stað,
FRAMTAKSSAMUR
IÐJUHÖLDUR
og auk þess nokkrar konur. Hlaut
það að vera hrífandi viðburður
og eftirminnilegur. Þó fanst mér
að ailtölulega fjölmenn altaris-
ganga yngri og eldri fermdra
meðlima í sveitasöfnuði hefði
stundum hrifið mig engu minna.
Fimtudagsmorguninn 12. okt.,
komum við aftur í kirkjuna sömu
til þingfundar kl. 8.45 f. h. En
áður en þing væri formlega sett
fór fram fögur og hrífandi
morgunguðsþjónusta. Stýrði
henni Dr. J. Henry Harms. mjög
vingjarnlegur, aldraður prestur,
sem þjónar einni af hinum stóru
og mikilsmetnu kirkjum í Phila-
delphia. Var hann þingprestur
(Chaplain). Tvennu veitti eg sér
staka eftirtekt bæði þá og við
aðrar guðsþjónustustundir þings-
ins: 1. Hvað allir viðstaddir tóku
ákveðinn og lifandi þátt í messu-
svörum, og 2. Hve vel viðeigandi
og gullfagrar voru hugvekjur
þær, sem þingpresturinn flutti
' við þau tækifæri. Fyrsta morgun
inn talaði hann út af Matteus
5:16. “Þér eruð ljós heimsins”.
Og ávalt var textavalið sérlega
aðlaðandi, og altaf voru þó hug-
vekjurnar stuttar, tóku að mér
virtist ekki nema 5—10 mínút-
ur.
Þegar búið var að setja þing
um morguninn, kom að skýrslu
forseta. Var hún prentuð, og í
höndum allra. Er hún hafði verið
lögð fram, var forsetakosning
næst á dagskrá. Það tók næsta
lengi, því fjórum sinnum var
atkvæði greitt á seðlum. En
meðan verið var að telja at-
kvæðin var hægt að koma ýmsu
öðru að. Eitt, sem þá kom fram
var það að Governor Thye, ríkis-
stjóri í Minnesota, (kom fram
með kveðjur til þingsins frá ríki
sínu, og bauð þinggesti velkomna
í nafni ríkisins. Er ríkisstjórinn
mjög álitlegur og myndarlegur
maður. Og flutti hann hið skemti
legasta erindi. Til að svara þessu
ávarpi ríkisstjórans, kallaði Dr.
Knubel fram Dr. Stoughton for-
seta Wagner College í New
York, skóla þess er í vetur
sæmdi biskup íslands nafnbót-
ir(ni, Doctor of Divinity. Dr
Stoughton er leikmaður. Var
ræða hans fyndin, fjörug og
skemtileg.
Er greitt hafði verið fjórða at-
kvæðið í forsetakosningunni, var
Dr. Franklin C. Fry prestur frá
Akron, Ohio, kjörinn forseti
félagsins. Hefir hann þjónað
stórri kinkju þar, við mikinn orð-
stír. Næstur honum var Dr. F.
H. Knubel. Tók Dr. Knubel
kosningaúrslitunum með þeirri
ljúfmensku, sem yfirleitt auð-
kennir framkomu hans Hann
virðist vera mikill andans maðu''
og göfugt ljúfmenni. En nú er
hann tekinn að eldast nokkuð,
og það virtist vera að verða
honum ofraun að stjórna þessu
afar stóra félagi og stýra þessum
stóru þingum. Hann var nú bú-
inn að vera forseti félagsins við
mikinn orðstír og góðan, síðan
það var stofnað fyrir 26 árum,
og hafði að því er eg bezt veit
stjórnað öllum þess fjórtán þing-
um á því tímabili.
Dr. Fry er aðeins 44 ára að
aldri, fríður sýnum og karlmann-
Frh. á 8. bls.
Kristinn Guðnason
Frá því var skýrt í síðasta blaði,
að dvalið hefði nýverið daglangt
hér í borginni Kristinn Guðna-
son verksmiðjueigandi frá Oak-
land, California, ásamt frú sinni;
voru þau hiónin á leið til New
York.
Ritstjóri Lögbergs mætti þeim
Krdstni og frú á járnbrautar-
stöðinni í Winnipeg, og átti við
þau nokkurt viðtal á Fort Garry
hótelinu, og með því að Kristinn
hefir næsta sérstæða sögu að
baki, má víst telja, að lesendum
blaðsins leiki hugur á að vita á
honum nokkur deili og kvnnast
hinum sérstæða æviferli hans.
frá Chicago og eiga þau þrjú
börn, tvo sonu og eina dóttur,
er öll vinna við verksmiðjufyrir-
tæki föður síns.
Kristinn Guðnason er maður
spriklandi af fjöri; hann er fynd-
inn í orði og hinn ástúðlegasti í
viðmóti; hann hefir lítil kynm
haft af íslendingum síðan hann
kom hingað til lands, fyr en nú í
allra síðustu tíð, að hann hefir
meðal annars kynst allmörgum
stúdentum að heiman, sem nú
dvelja við nám við hinar ýmsu
menntastofnanir Californíu ríkis;
hann talar enn hreina og hreim-
fagra íslenzku.
Það er meira en lítið ánægju-
efni, er menn af þjóðstofni vor-
um ryðja sér í þessu landi slíka
braut til frama, sem Kristinn
Guðnason hefir gert.
MERK HJÓN
EIGA GULLBRÚÐKAUP
Þann 21. september s. 1., áttu
þau merkishjónin Hjörtur Berg-
steinsson og frú Þórunn Guð-
laug Bergsteinsson, gullbrúð-
kaupsafmæli, og bárust þeim í
tilefni af atburðinum, marghátt-
aðar árnaðaróskir víðsvegar að;
þessi mætu hjón bjuggu í 40
ár glæsilegu fyrirmyndarbúi í
Alameda-byggðinni í Suður-
Saskatchewan;. var því jafnan
viðbrugðið, hve heimili þeirra
var svipmikið, og hve umgengni
, öll, utan húss sem innan, vitn
Kristinn Guðnason stendur a aði fagurlega um eindrægni hús-
sextugu; hann er fæddur að Þor-
lákskoti í Hraungerðishrepp í
Árnessýslu, og voru foreldrar
hans þau Guðni Felixson og
Þuríður Hannesdóttir; misti
Kristinn þau bæði, er hann var
barn að aldri og ólst upp hjá
vandalausum, eða réttara sagt á
sveitinni, eins og honum sjálfum
sagðist frá.
Kristinn var sextán ára, er
þann fór af íslandi; réði hann
sig á hvalfangara, sem átti að
fara til Önundarfjarðar, kom skip
ið þó eigi þangað, en sigldi í þess
stað til Noregs. í Noregi og Dan-
mörku dvaldi Kristinn í fimm
ár, og hafði ofan af fyrir sér
með bókasölu; kom sú æfing er
hann þá fékk á sviði verzlunar-
innar, honum að goðu haldi síð-
ar; um síðastliðin aldamót fór
Kristinn til Vesturheims, og sett-
ist að í Bandaríkjunum, og ruddi
sér þar á sviði kaupsýslu og við-
skipta slíka braut, að æfintýri
gengur næst.
Eftir allmargra ára verzlunar-
störf í Portland Oregon, leggur
Kristinn leið sína til Oakland í
Californiu, og lagði þar fyrir
sig kvenkjólagerð; færði verk-
smiðjufyrirtæki hans jafnt og
þétt út kvíar unz svo kom, að
verksmiðjufyrirtæki það var
orðið eitt hið risafengnasta slíkr-
ar tegundar í Bandaríkjunum,
vestan Chicago borgar; nú hefir
hann í þjónustu sinni 350 manns,
en stundum nam tala verkafólks
hans freklega fjórum hundruð-
um. Kristinn nam fyrst enska
tungu með því að bera saman
íslenzku biblíuþýðinguna við þá
ensku; hann er heitur trúmaður
og hefir gefið sig allmikið við
leikmanns prédikunarstarfi.
Kristinn stendur framarlega í
Gideon biblíufélaginu, sem gefur
sig einkum að því, að koma Bibl-
íunni á hvert einasta og eitt
hótelherbergi í Bandaríkjunum
og Canada.
Kristinn Guðnason kvæntist ár
ið 1911, ungfrú Frances Griffin
ráðenda^og há markmið. Þau
Hjörtur Bergsteinsson og frú,
eyða nú hinum efri dögum æv-
innar í bænum Frobisher í Sask.,
við ást og aðdáun allra, sem
komist hafa í kynni við þau; var
margmennt á heimili þeirra á-
minstan dag, og skorti þar hvorki
gleði né góðan fagnað.
Þau Hjörtur Bergsteinsson og
frú eignuðust tólf börn, og eru
níu þeirra á lífi; eftirgreint sifja-
lið var viðstatt gullbrúðkaups-
fagnaðinn: Mr. og Mrs. Leifur
Bergsteinssonar og John sonur
þeirra frá Saskatoon; Mrs. C. E
Kennedy, Craik; S. O. Margaret
Bergsteinsson, R.C.A.F. (W.D.)
Montreal; Miss Mabel Bergsteins
son, Ottawa og Mr.ogMrs. Arnold
Jensen, Alameda. Kveðjur bár
ust frá eftirgreindum meðlimum
fjölskyldunnar, er ekki áttu þess
kost, að vera viðstaddir: Mr. og
Mrs. Baldur Bergsteins og börn
Regina; Mr. og Mrs. Ingólfur
Bergsteinsson og börn, Torrance
California; Mr. og Mrs. Hallur
Bergsteinsson og börn, Keewatin
Ont., og WREN Iðunn Bergsteins
son, W.R.C.N.S., Cornwallis
Nova Scotia. Barnabörn þeirra
Hjartar og frú Þórunnar eru
15 að tölu og eitt barnabarna
barn.
Meðal heillaskeyta, er þeim
Hirti og frú bárust á gullbrúð
kaupsdaginn, ber að nefna fag-
uryrt ávarp frá Dr. Thorbergi
Thorvaldssyni prófessor við há-
skólann í Saskatchewan, og John
G. Rayner, forstjóra við Extens
ion deild sömu menntastofnun
ar.
Hin mannvænlegu börn þeirra
Hjartar Bergsteinssonar og frú
Þórunnar, hafa flest orðið æðri
menntunar aðnjótandi og lokið
háskólaprófi; foreldrar þeirra
hafa afkastað glæsilegu dags-
verki, sem aukið hefir á veg
tveggja þjóða, Islendinga og
canadisku þjóðarinnar; vel sé
þeim fyrir hið giftudrjúga dags-
verk.
FYRIRHUGUÐ LÆKNINGA-
MIÐSTÖÐ í WINNIPEG
Fyrir atbeina forustumanna
innan vébanda læknastéttarinn-
ar og áhugamanna í borgarastétt,
hefir verið stofnað til samtaka
hér um slóðir, er ganga undir
nafninu Medical Centre, eða
lækningamiðstöð, er það megin
markmið hafa, að koma á fót
umhverfis Almenna sjúkrahúsið
í Winnipeg og vitanlega að þvi
meðtöldu, fyrirmyndar lækninga
miðstöð, eigi aðeins til afnota
fyrir borgina, heldur og Mani-
toba fylki í heild; gert er ráð
fyrir að þetta fyrirhugaða spítala
hverfi verði eins vel húsað og
framast er kostur á, og að þar
verði jafnan til taks öll full-
komnustu nýtízku áhöld á sviði
læknavísinda, auk þjónustu
þeirra allra hæfustu sérfræð-
inga úr læknastétt, sem völ er
á; gert er meðal annars ráð
fyrir því, að komið verði upp
nýjum barnaspítala í þessu fyrir-
hugaða spítalahverfi; kostnaður-
inn við þessar nýju stofnanir, er
áætlaður eitthvað um hálfa aðra
miljón dollara, sem verður að
nást með samstiltum átökum af
hálfu alls almennings í félagi við
bæjarstjórn og önnur stjórnar-
völd.
Formaður áminstra samtaka er
hinn víðfrægi skurðlæknir og
áhugamaður á vettvangi mann-
félagsmálanna, Dr. P. H. T. Thor-
lakson; hann flutti í síðastliðn
um aprílmánuði á fundi við
skiptaráðsins í Winnipeg. ítur-
hugsaða ræðu um þetta mikla
menningar- og mannúðarmál, og
lagði það jafnframt nýlega fram
fyrir bæjarstjórn Winnipeg borg
ar; hefir málinu verið hvar-
vetna vel tekið, og er þess að
vænta, að almenningur ljái því
einhuga og óskipt lið.
BÝÐUR SIG FRAM TIL
BÆJARSTJÓRNAR í
2. KJÖRDEILD
ÓVÍST UM SKJÓT
STRÍÐSLOK
Churchill forsætisráðherra
flutti þingræðu s. 1. þriðjudag um
viðhorf stríðsins; tjáðist hann
engu vilja um það spá nær því
lyki; að minsta kosti væru dauf-
ar horfur á stríðslokum í Norður
álfunni fyrir næstu áramót; þetta
stríð gæti staðið yfir fram til
páska, eða jafnvel fram á næsta
sumar; lyki því fyr, myndi eng-
inn fagna því frekar en hann.
Mr. Churchill sagði, að eins og
sakir enn stæðu, væri ekki mikið
ætlandi á að bylting á Þýzka-
landi kæmist greiðlega í fram-
kvæmd meðan Gestapo lögregl-
an enn hefði í höndum sér bæði
töglin og halgdirnar.
YFIRFORINGI
KVADDUR HEIM
Þau tíðindi hafa nýverið gerst,
að Joseph W. Stilwell, yfirfor-
ingi Bandaríkjanna á vígstöðv-
unum í Burma og Kína, hefir ver
ið kvaddur heim, og veitt lausn
frá starfi sínu austur þar, að
því er fregndr frá Washington
herma; hann var aðal hernaðar
ráðunautur Chiang Kai-shek,
forustumanns kínverzka lýð-
veldisins; mælt er að Gen. Stil-
well muni skjótt takast á hendur
þjónustu á öðrum vettvangi
stríðssóknarinnar, þó enn hvíli
að mestu myrkur yfir þeirri
bráðu breytingu, sem varð á
högum hans.
Roy Shefley
Á undirbúningsfundi fyrir
næstu bæjarstjórnarkosningar,
er haldinn var föstudaginn 29.
september í Norman Bethune
Hall, var Mr. Roy Shefley út-
nefndur sem bæjarfulltrúi í ann-
ari kjördeild.
Mr. Shefley er fæddur i
Winnipeg árið 1909 og hefir átt
heimili hér í borginni alla tíð.
Mentun sína hlaut hann á Green-
way skólanum.
Hann vann hjá þjóðbrauta-
kerfinu C.N.R. árum saman, sem
hraðskeytaþjónn, en sagði því
starfi lausu árið 1941, til þess
að takast á hendur umsjón hjá
“The Forest Products Co-opera-
tive”. Sem stendur er hann skipu
lagsstjóri fyrir Labour Progress-
ive samtökin í Winnipeg.
Mr. Shefley bauð sig fram til
herþjónustu, en var synjað um
viðtöku af heilsufarslegum ástæð
um. Hann er kvongaðar og á
tvær dætur. Sheila 8 ára og
Marlene 7.
Móðir Mr. Shefley kom frá Is-
landi fyrir rúmum 60 árum.
Samtímis Mr. Shefley, var Mrs.
Margaret Chunn utnefnd til að
sækja um kosningu til skóla-
ráðs í sömu kjördeild, hún hefir
boðið sig fram til þess starfs tvö
síðastliðin ár.
Mr. Shefley hefir verði áhuga-
samur íþróttamaður og var ár-
um saman meðlimur Fálka
íþróttaklúbbsins.
GULLBRÚÐKAUP
Þann 4. þ. m. eiga þau sæmd-
arhjónin Mr. og Mrs. Snorri
Kristjánsson, 2113 East 12. St.,
National City, California, gull-
brúðkaup, og er þá svo til ætl-
ast, að þann dag verði öllum,
sem eiga þess kost, gert kleift
að samfagna gullbrúðkaupshjón-
unum á heimili Stanley sonar
þeirra. Þau Mr. og Mrs. Krist-
jánsson voru gefin saman í hjóna
band af séra Friðrik J. Berg-
mann, 4. nóvember 1894. Fyrir
giftingu sína var Mrs. Kristjáns-
son, Elín Sigurðson Laxdal. Þessi
mætu hjón eiga sjö sonu á lífi,
Stanley og Neil í National City,
Wilfred í San Diego, Jack í San
| Jose, Oliver í San Francisco,
Siggi, einhversstaðar á ítalíu og
Walter, sem nú er á Havaiian
eyjum; þau Mr. og Mrs. Krist-
jánsson eiga níu barnabörn og
tvö barnabarnabörn.
Þessi gullbrúðkaupshjón hafa
átt heima í National City síðan
1920, en voru áður búsett í
Mozart, Sask.