Lögberg - 09.11.1944, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. NÓVEMBER, 1944
3
Pólland fram-
tíðarinnar
Grein þessi, sem er eftir
pólska jafnaðarmanna foringj-
ann Adam Ciolkosz og þýdd
er úr ameríska vikublaðinu
The New Leader, fjallar um
samfylkingu hinna fjögurra
pólsku stjórnmálaflokka, er
styðja pólsku stjórnina í Lund-
únum og telja sig bera ábyrgð
á stefnu hennar og starfi. Jafn-
framt gerir greinarhöfundur
grein fyrir því, hver séu fram-
tíðaráform pólska Alþýðu-
flokksins, og hvað Pólverjum
beri að gera til þess að geta
vænzt mikillar og farsællar
framtiðar.
HINN 15. dag ágústmánaðar ár-
ið 1943, gerðist næsta mikil-
vægur atburður í Póllandi. Fjór-
ir stjórnmálaflokkar, sem til
samans mynda pólska þingið, er
starfar með leynd, gerðu þá með
sér samning um stjórnmálalegt
og fjárhagslegt samstarf, unz
hægt væri að efna til frjálsra
kosninga í landinu. Flokkar þess
ir munu alls njóta fylgis átta af
hverjum tíu kjósendum í Pól-
landi. Þessir fjórir stjórnmála-
flokkar styðja eigi aðeins pólsku
stjórnina í Lundúnum — eins og
þeir hafa gert frá öndverðu —
heldur bera þeir ábyrgð á stefnu
hennar og starfi.
Hver er þáttur pólska Alþýðu-
flokksins og verkalýðssamtak-
anna í þessu samstarfi? Eintök
af leyniblöðunum pólsku hafa
borizt til Lundúna eigi alls fyr
ir löngu, og þar er um þetta
rætt. Samstarfsflokkar þessir
eru Alþýðuflokkurinn, Bænda-
flokkurinn, Kristilegi verkalýðs-
flokkurinn og Þjóðernisflokk-
urinn. Allir voru flokkar þessir
í andstöðu við ríkisstjórn þá,
sem sat að völdum á Póllandi
fyrir stríð. En utan við samband
þetta standa “Sanacajarnir”
sem voru stuðningsmenn ríkis
stjórnarinnar, er var við völd
á Póllandi á árunum 1926—
1930, og Frjálslyndi Þjóðernis
sinnaflokkurinn, sem hefir num
ið starfsaðferðir sínar og mál
flutning af nazistum. — Eitt af
leyniblöðum pólskra jafnaðar-
manna kemst þannig að orði um
samfylkingu þessa og viðhorf
þau, sem hér um ræðir:
“Seynsla sú, sem stjórnmála-
viðburðir liðinna tíma hafa fært
oss að höndum, svo og skilning-
ur á viðhorfum framtíðarinnar,
hefir valdið því, að stjórnmála-
flokkar þessir hafa efnt til sam-
fylkingar þeirrar, er hér um
ræðir. Framtíðin mun færa oss
sigur lýðræðisins. Þeir stjórn-
málaflokkar einir munu eiga
sér framtíð, sem starfa á lýð-
ræðisgrundvelli og vinna að
því, að Pólland verði voldugt
lýðræðisríki.”
En því fer fjarri, að jafnaðar-
mennirnir pólsku telji sig hafa
með þessu náð markmiði því, er
þeir hafa sett sér. Þeir hvika
hvergi frá fyrri stefnumálum
sínum, þótt þeir hafi gerzt aðil-
ar að þessari samfylkingu hinna
umbótasinnuðu stjórnmála-
flokka Póllands. Málgagn þeirra
Wolnose (Frelsi), sem kemur út
mánaðarlega, kemst að orði á
þessa lund:
“Pólski Alþýðuflokkurinn var
fús til þess að gerast aðili a<)
þessari samfylkingu og fallast á
málefnasamning þann, er stjórn
málaflokkarnir gerðu með sér.
Hann stefnir að því, að Pólland
megi verða frjálst og sjálfstætt
og efnt verði til félagslegrar
nýskipunar með hinni pólsku
þjóð, sem byggð sé á grundvelli
lýðræðisstefnunnar. Þetta eru
tvö markmið, sem eru þó vissu-
lega nátengd hvort öðru. Pólski
Alþýðuflokkurinn og verkalýðs-
hreyfingin getur því aðeins starf-
að, að Pólland verði frjálst og
sjálfstætt í framtíðinni. Hins
vegar getur Pólland því aðeins
orðið voldugt ríki í Evrópu
framtíðarinnar, að það verði
sterkt lýðræðisríki. Alþýðuflokk-
urinn pólski gerir sér þess glögga
grein, að viðreisn á Póllandi
eftir stríðið getur engan veginn
reynst farsæl og auðnurík, ef
hún á aðeins að vera endurreisn
þjóðskipulags kapitalismans.
Þegar innrásarherinn hefir verið
hrakinn brott af pólskri grund,
verður ekki hjá því komist, að
mörgu því verði gerbreytt, sem
var fyrir 1939, er styrjöldin
hófst.”
Það, sem aðallega vakti fyrir
Alþýðuflokknum, er hann gerð-
ist aðili að samfylkingu þessari
og féllst á málefnasamning
stjórnmálaflokkanna, var það
að fá það staðfest, að þjóðskipu-
lag kapitalismans skyldi ekki
stutt til valda að nýju, svo og
að einkarekstur stórfyrirtækja
og stórfeldar jarðeignir ein-
stakra manna þekkist þar ekki.
Verksmiðjur þær, sem Þjóðverj-
ar ráða nú yfir, skulu þjóðnýtt-
ara eftir að landið hefir endur-
heimt sjálfstæði sitt. En til þess
að unnt verði að koma þessari
breytingu á, verða verkalýðs-
samtökin að sjálfsögðu að verða
mjög máttug og vel skipulögð.
Þjóðin sjálf mun kveða upp úr-
slitadóm um það, hvaða stefna
skuli tekin 1 stjórnmálum og
fjármálum, þegar unnt verður
að efna til almennra kosninga
í Póllandi á nýjan leik. Það er
hin eina afgreiðsla þessa máls,
sem er í samræmi við stefnu lýð-
ræðisins. — Hver sú nýskipun,
sem til verður efnt, verður að
styðjast við öruggan meirhluta
kjósenda í landinu. Allt annað
væri einræði og brot á sjálfsögð-
um mannréttindakröfum.
“Að samfylkingu þessari
standa fjórir stjórnmálaflokkar,
sem ná til allra þjóðfélagsstétta.
Þeir eru skipaðir verkamönn-
um, bændum, menntamönnum,
iðnaðarmönnum ög millistétta-
mönnum. Vér vitum, að þessa
flokka greinir á um margt, og
oss kemur ekki til hugar að loka
augunum fyrir þeirri staðreynd.
Og enda þótt málefnasamning-
ur sá, sem náðst hefir með flokk-
um þessum, sé þannig, að þar
sé mest áherzla lögð á þau atriði
sem flokkarnir eru allir sam-
mála um, er hann þó hinn merki
legasti hvað varðar stefnu og
starf Alþýðuflokksins í framtíð-
inni. Hann er sem sé líklégur til
þess að verða grundvöllur að
aukinni samvinnu verkamanna
og bænda. En það er augljóst
mál, að til þess að unnt verði að
koma þeim þjóðfélagslegu um-
bótum á, sem nauðsynlegar eru
og hér heffr verið á minnzt, hlýt-
ur samvinna bænda og verka-
manna til að koma. Og Alþýðu-
flokkurinn er þess fullviss, að
samfylking þessi muni orka
miklu til aukins skilnings á nauð-
syn samvinnu þessara tveggja
meginstétta Póllands.”
“Fyrir tuttugu árum var Pól-
land bitbein þriggja stórvelda
og 'pólska þjóðin bjó við hin
kröppustu kjör. í dag er pólska
þjóðin hins vegar sjálfstæð og
stríðandi þjóð, þrátt fyrir her-
námið. Pólverjum hefir að sjálf-
sögðu orðið margt á á liðnum
árum og öldum. En síðast liðin
tuttugu ár hefir hún sýnt og
sannað, að hún er þjóð, sem má
sín mikils og verðskuldar að
teljast til frjálsra og fullvalda
ríkja. Pólverjar eru sú þjóð,
sem Hitler réðist fyrst á, en
jafnframt urðu þeir fyrstir allra
þjóða til þess að veita herskör-
um hans viðnám í stað þess að
verða við kröfum hans eins og
tíðkast hafði til ársins 1939. Og
Pólverjar eiga sér þá ósk æðsta
að verða máttug þjóð, er fái
notið öryggis og farsældar í kom-
andi framtíð.
En til þess að svo megi verða,
er nauðsynlegt að breytt verði
um þjóðskipulag á Póllandi. Það
skipulag, sem ríkti fyrir stríð,
ma ekki hverfa aftur að
því að það myndi valda því, að
pólska þjóðin mætti sín lítils
og sæi ekki hina langþráðu
drauma sína rætast. Það er því
skoðun vor og trú, að örlög Pól-
lands séu samslungin örlögum
hinnar miklu félagsbyltingar,
er hlýtur að raska viðhorfunum
frá því fyrir stríð og valda þátta-
skiptum í sögu þjóðarinnar.
Verkamenn og bændur hljóta að
efna til náinnar og markvissrar
samvinnu og taka völdin í sínar
hendur í stað þess að una forsjá
þeirra manna, sem styðj-
ast við skrifstofubákn og blek-
iðju annars vegar og herinn
hins vegar. Þetta er sá vegur, er
pólska þjóðin hugðist velja sér
fyrir aldarfjórðungi. Vér telj-
um oss túlka þessa afstöðu vora
og skoðun bezt með því að end-
urtaka ávarp þjóðstjórnarinnar
frá því hinn 7. nóvember árið
1918:
“Pólska þjóð, lát það verða
hlutverk hinna styrku og vinnu
hrjúfu handa þinna að frelsa
land þitt og fá kynslóðum fram-
tíðarinnar í hendur máttugt og
frjálst föðurland.”
Slík var rödd þess Póllands,
sem reis úr eldi og ógn heims-
styrjaldarinnar fyrri. Og hún er
og rödd Póllands framfíðarinn-
ar.
Alþbl.
I!!l«
imnn
Borgið LOGBERG
!!!!!£
Carcassone
Fullkomnasta sýnishornið, sem
til er af hinum frægu víggritu
riddaraborgum frá miðöldunum,
er háborgin eða Cité í hinum
gamla bæ Carcassone við ána
Aude í Suður-Frakklandi. Er
þarna æfagamalt bæjarstæði,
því að þarna var bær þegar
Cæsar var að herja á Gall,u. En
gamli bærinn sem nú sést á
hæðinni, innan tvöfaldra múra
um sjö kílómetra langra og með
50 virkisturnum, eins og úr
gömlu æfintýri, er frá elleftu og
tólftu öld.
“NýUbærinn, sem borgarbúar
kalla svo, er frá þrettándu öld,
en þá varð bylting í gamla bæn-
um og þsir, sem flýja urðu bæ-
inn, reistu annan nýjan á ár-
bakkanum beint á móti.
Það væri efni í heila bók ef
rekja ætti hina æfintýralegu sögu
Carcassone, hvernig borgin gekk
Rómverjum úr greipum og í hend
ur Vestgota og síðan Araba og
til Pípíns stutta og varð loks
eign greifanna af Carcassone,
sem ríktu þar óháðir þangað til
Simon de Montefort hélt kross-
mannaliði sínu til borgarhliðs-
ins og neyddi Raymond Rogers
greifa til þess að gefast upp. Ár-
ið 1356 atóðst kastalinn árásir
“Svarta prinsnis enska.” en loks
var borgin innlimuð í Frakk-
land, árið 1659. .
Fjöldi skemtiferðafólks heim-
sækir þetta vígi 11. og 12. aldar
og “nýi bærinn” þykir merkileg-
ur líka, þó að hann sé “aðeins”
frá 13. öld.
Business and Professional Cards
Kirkjuritið.
Lýðveldishátíðin
Kirkjusálmur.
Island frjálst, sem fyrr á dögum,
er feður vorir stýrðu lögum
á Alþingi við Öxará.
ísland frjálst frá yztu miðum
og inn að hæstu jökulskriðum,
svo skugga ber þar engan á.
Ó, fagra frelsis tíð.
Að fullu er unnið stríð.
Dýrð sé Drottni!
Hans eilíf náð
vort efldi ráð.
— Þér heill, vort frjálsa fósturláð!
Þúsundradda þakkarhljómum
frá þjóðarinnar helgidómum
skal hylla þá, sem börðust bezt.
Saga er minnug sinna manna.
Á silfurspjöldum minninganna
hvert nafn er römmum rúnum fest.
Frá fjalli að fjarðarál
nú flutt skal þakkarmál.
Dýrð sé Drottni!
Hann gaf oss menn,
og gefur enn,
sem hefja vörn og sókn í senn.
Sjá þú arf þinn, æskulýður.
Þín alfrjáls landið góða bíður
og kallar þig að drýgja dáð.
Bregzt því ei, þótt blási í móti
1 byljssömu þjóðlífsróti.
Ver trúr, — og Guð þér gefur náð.
Hann blómgast lætur byggð.
Ó, bind við land hans tryggð.
Dýrð sé Drottni.
Þú æsku sveit
slreng heilög heit:
Gjör Island sannan unaðsreit.
Burt með sérhvert haft og helsi,
sem hindfar mannlegt þroska-frelsi
og líf, sem hæfir hefðarþjóð.
Hver sá hlýtur gróna gremi,
sem gleymir tryggð og ræktarsemi
við áa sinna ættarslóð.
Vér þráum þjóðarvor
með þroska og frægðar spor.
Drottinn, Drottinn.
Þú, Guð vors lands, —
þú, Guð hvers lands, —
þú styður veldi vorhugans.
Drottinn Guð, vér krjúpum — köllum
og klökk á þínar skarir föllum.
Ó, heyr, Guð Drottinn, hjartans mál:
Far um hjörtun helgum eldi,
sem helgi íslenzkt þjóðarveldi
og ljómi skært um Atlanzál.
Gef farsæld, frið og náð.
Gef frægð og nýja dáð.
Drottinn, Drottinn.
Þú, líknin trú
sért lofuð nú.
— Lýðveldið ísland blessa þú!
Vaíd. V. Snævarr.
DR. A. BLONDAL
Physician & Surgeon
602 MEDICAL ARTS BLDO.
Slmi Í2 296
Heimili: 108'Chataway
Sími 61 023
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMERSET BLDG.
Telephone 88 12 4
Home Telephone 202 398
Frá vini
DR. ROBERT BLACK
Sérfræðingur í Augna, Eyrna, nef
og hálssjúkdómum
416 Medical Arts Building,
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 22 251
Heimasími' 42 154
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N.D.
tslenzkur lyfsali
Eðlk getur pantaO meöul
annaB me6 pðsti.
Fljðt afgreiBsla.
og
A. S. BARDAL
848 SHERBROOK ST.
Selur llkkistur og annast um ðt-
farir. Allur útbúnaður sá beztL
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsíml 86 607
Heimilis taláíml 26 444
HALDOR HALDORSON
byggingamcistari
23 Music and Art Building
Broadway and Hargrave
Winnipeg, Canada
Phone 21 455
INSURE your property with
HOME SECURITIES LTD.
Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr.
Phones Bus. 23 377 Res. 39 433
TELEPHONE 96 010
H. J. PALMASON & CO.
Chartered. Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
WINNIPEG, CANADA
Phone 49 469
Radio Service Speclalists
ELECTRONIC
LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEG
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
S. M. Backman, Sec.
Keystone Fisheries
Limited
, 404 Scott Block
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISB
MANITOBA FISHERIES
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.stj.
Verzla I heildsölu meB nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA ST.
Skrifstofuslmi 25 356
Heimaslmi 55 463
Dr. S. J. Johannesson
215 RUBT STREET
(Beint suBur af Banning)
Talslmi 30 877
ViBtalstimi 3—5 e. h.
Dr. E. JOHNSON
304 Eveline St. Selkirk
Office hrs. 2.30—6 P.M.
Phone office 26. Res. 230
Office Fhone
88 033
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
166 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
•
406 TORONTO GEN. TRCSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Sniith St.
PHONE 26 545 WINNIPEÖ
0Uei/ep
Studios ,-&d.
jStrgui Mwtogcaduc OwvuiatwnTh Canmdi
)S
Otfa
(otre Dame
Phone ^ 96 647 u
Legsieinar gem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmarl
SkrifitS eftir vertfskrd
GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man.
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
30 8 AVENUE BLDG, WPG.
•
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgÍS,
bifreiðaábyrgð, o. s. frv.
Phone 26 821
ANDREWS, ANDREWS
THORVALDSON AND
EGGERTSON
högjrœtlingar
209 Bank of Nova Scotla Bldg
Portage og Garry St.
Slmi 98 291
Blóm slundvíslega afgreidd
THt ROSERY ltd.
Stofnað 1905
427 Portage Ave.
Winnipeg.
GUNDRY & PYMORE LTD.
British Quality — Fish Netting
60 VICTORIA STREET
Phone 98 211
Vlnnipeg
Manager, T. R. THORVALDBON
Tour patronage will be
tppreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fish.
311 Chambers St.
Office Phone 86 681.
Res Phone 73 917.