Lögberg


Lögberg - 09.11.1944, Qupperneq 4

Lögberg - 09.11.1944, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. NÓVEMBER, 1944 *—---------lögfaerg--------------------► GeflS út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS. LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “L/ög,berg,M is prinfeed and publisheá by The Columbia Press, Lámited, 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitooa PHONE 86 327 ---------—.— --------------—-— ------* Hvað var það, sem landneminn hvíslaði barni sínu í eyra? Samkomuhugleiðing eftir Einar P. Jónsson Norrænir menn hafa skapað margar biblíur, og eiga vafalaust eftir að skapa fleiri enn; í einni þeirra, sem okkur íslendingum er næsta nákomin, er sagt frá tveimur Guðum, þeim Óðni og Baldri, og þess jafnframt getið, að Óðinn hafi hvíslað einhverju í eyra hins hvíta Áss, sem enginn enn veit hvað verið hafi, þrátt fyrir heilabrot hinna vitrustu manna um það efni, öld fram af öld; að það hafi verið eitthvað ósegjanlega fagurt, hafa flestir látið sig dreyma um. Hver veit nema það hafi einmitt verið um tign norrænnár tungu, og að það ætti fyrir henni henni að liggja, að vernda svip sinn og sérkenni úti á íslandi, eftir að hinar Norðurlandaþjóð- irnar myndu sætta sig við kokhljóð og allskonar hrognamál? Að ætla sér slíkt, virðist að minsta kosti engin fjarstæða. íslenzk málsmenning og íslenzk afkomumenn- ing hafa að jafnaði haldist í hendur; í kjölfar málshnignunarinnar sigldi efnahagslegt auðnu- leysi; en með aukinni málsfegrun og vaxandi virðingu fyrir menningargildi íslenzkrar tungu, kom jafnframt fjörkippur í þjóðlífið á sviði hinn ar efnahagslegu afkomu; þá óx þjóðinni í öllum skilningi ásmegin, og hún hristi af sér einn ör- birgðarfjöturinn eftir annan; þá fann hún “hit- ann í sjálfri sér”, eins og Hannes Hafstein sagði, en við slíka meðvitund skapaðist eldmóður til stórvirkja og knýandi framtaks. Menn leiða enn getur um það, hvað það í rauninni hafi verið, sem Óðinn hvíslaði í eyra Baldri, en þrátt fyrir öll heilabrotin, ber þó jafnan að einum og sama brunni um lausn þeirrar gátu; þar verður hver að svara fyrir sig. I Nú verða senn liðin sjötíu ár frá þeim tíma, er íslenzka landnámið við Winnipegvatn náði varanlegri fótfestu; fyrsta Birkibeinahópinn af Fróni bar að landi þar, sem nú stendur Gimli- bær, eða skammt undan Víðinestanga; var sum- ar þá í þann veginn að syngja sitt síðasta vers, eins og sjá má af ummælum í 2. bindi af sögu Vestur-Islendinga eftir Þ. Þ. Þorsteinsson: “Um kvöldið gengu menn fram og aftur um sandrifið til að rétta úr sér, og voru hinir ánægðustu yfir því, að loks var þessi langferð á enda. Um nóttina létu þeir fyrirberast á langskipum sínum. íslendingar voru lentir með heilu og höldnu á eyðiströnd síns nýja lands. En fyrsti vetrar- dagur var að morgni.” Hér verður engin tilraun til þess gerð, að rekja sögu íslenzka landnámsins við Winnipeg- vatn; hún er h’vorttveggja í senn saga hinna bitrustu mannrauna og gagnmerkra sigurvinn- inga; þar sem bjálkakofarnir gömlu gtóðu, blasa nú við auga reisuleg nýtízku heimili um kringd fögrum og frjósömum ökrum; fræknir fiskimenn ausa upp úr Winnipegvatni geisi- legri auðlegð allan ársins hring, og nota við iðju sína hin fullkomnustu veiðitæki; alt er breytt frá því, sem áður var, og margt af því vitaskuld til batnaðar. En hefir þá líka ekki á hinn bóginn eitthvað tapast; eitthvað, sem í raun og veru mátti ekki undir neinum kring- umstæðum missa sig? Þrenna erfðakosti skilst mér einkum að ís- lenzkir frumherjar hafi flutt með sér til síns nýja lands: norræna aðalslund, óðalsrækt og eilífa ást til íslenzkrar tungu; þessar dyggðir voru þeim heilagar, og það voru, að eg hygg, þessar dyggðir, sem þeir þráðu heitast að verða mætti grundvöllurinn að framtíð afkomenda sinna; í mörgum tilfellum lánaðist þetta, en í öðr um ekki; og þó eg ekki viti fyrir víst hvað það var, er þreyttur og deyjandi frumherjinn hvísl- aði síðast sonum sínum og dætrum í eyra, þá hefi eg það ríkt á vitund, að mestu áherzluna hafi þeir þó lagt á þrjár áminstar dyggðir, eða sér- kenni í eðlisfari þeirra sjálfra, er þeim þótti mest um vert. Þeir, sem leggja rækt við óðöl feðra sinna og mæðra, verða að jafnaði menn með mönnum hvar, sem þeir eru í sveit settir; þeim vegnar vel, og þeir verða langlífir í. landinu; en hinir, sem afrækja slíkar dyggðir, eiga það á hættu, að hrapa fyrir björg. Þótt vitað sé, að allmargir afkomendur ís- lenzkra landnámsmanna í þessari álfu leggi góða rækt við óðöl feðra sinna og sitji þau með sæmd, dylst það þó eigi, að hið gagnstæða á sér í ýmsum tilfellum stað; jafnvel sögufræg býli, sem borið hafa nafn vorra ágætustu land- námsmanna, eru komin úr eigu Islendinga og í hendur þeim, sem lítil eða engin skil kunna á verðmætum íslenzkrar menningar; í ein- stökum tilfellum má ef til vill réttlæta slík af- söl, þó önnur verði ekki auðveldlega afsökuð, végna auðsæilegrar vöntunar í heilbrigðum ættarmetnaði; skyldleikinn milli manns og moldar er það náinn, að hætt er við alvarleg- um veilum í skapgerð þeirra manna og kvenna, sem afrækja blettinn þar, sem þau voru borin og barnfædd. Óðalsrækt og aðalslund haldast jafn- an í hendur. I ræktarsemi viij óðalið felst hin fegursta þjóðrækni; einkum og sér í lagi þæ-, er-u fyrir hendi þau skilyrði, sem nauðsynleg eru til verndar menningarerfðum vorum; upp úr þeim • jarðvegi hafa sprottið þeir kvistir, sem vaxið hafa upp í laufþrungin tré, sem skýlt hafa nýgróðrinum og vísað honum veg til hollrar þróunar; í sveitum Islands átti tunga vor jafn- an vígðan vermireit, og í sveita menningunni hér vestra, ætti hún einnig að eiga griðland um langt skeið enn, ef hugur fylgi máli um viðhald hennar, sem í rauninni ætti ekki að þurfa að draga í efa. Með því að ferðast um nýbygðir ísjendinga vestan hafs, sannfærist maður skjótt um það að þar, sem virðingin fyrir landnámsóðalinu stendur í mestum blóma, skipar íslenzkan hinn glæsilegasta heiðurssess; í slíku sambýli skapast djörf aðalslund, sem ógjarna lætur segja sér fyr- ir verkum. Það sýnist því nær óhugsandi, að menn og konur af íslenzkum stofni, sem þetta fagra land byggja, sem nú er vort fósturland, sætti sig við vesæla andlega og efnalega húsmennsku í stað þeirrar heitu og djarfmannlegu óðalsástar, sem einkendi hetjustarfsemi forfeðra vorra og for- mæður; þar þótti það mest um vert, að vera maður með mönnum og brynjast til átaks, er mest reyndi á þolrifin. Þótt nú hafi í fáum dráttum verið vikið að ís- lenzkum óðulum með hliðsjón af varðveitzlu ís- lenzkra menningarerfða í þessu landi, þá leysir það vitaskuld að engu leyti það íslenzkt fólk, sem býr í borgum og bæjum undan ábyrgð gagnvart viðhaldi vorrar tignu tungu; sú ábyrgð verður jafnan hin sama hvar, sem Islendingar eru í sveit settir, og á henni verðúr hver og einn að standa full reikningsskil. Og komi til þess, að vér, í þjóðræknislegum skilningi, göngum með lítilli sæmd fyrir ættarstapa, sem vonandi verð- ur ekki, verður þá hinum ömurlegustu lífssvik- um um að kenna, eða drengskaparbroti við hið mikla boðorð: Heiðra skaltu fóður þinn og móður. Drottinhollusta þótti jafnan ein hin fegursta dyggð, þó hún í rauninni væri einungis sjálf- sögð drengskaparskylda; dáðríkt æfistarf ís- lenzkra frumherja í þessu landi, krefst þess að vér auðsýnum málstað þeirra óskipta hollustu, málstað íslenzkunnar og málstað þess alls, sem þeim var helgast í hjarta og sál. Naumast kæmi það að sök, þótt vér Islend- ingar í þessu landi, er oss sleppur verk úr hendi, minnumst öðru hvoru eftirgreinds erindis úr meistaraljóði Einars Benediktssonar: “Og feðratungan tignarfríð, hver taug mín vill því máli unna, þess vængur hefst um hvolfin víð. þess hljómtak snertir neðstu grunna; það orktu guðir lífs við lag, eg lifi í því minn ævidag og dey við auðs þess djúpu brimna.” Rækt og ræktarsemi, eru greinar á þeim stofni, er skapar trúnað við óðalið og djarfa aðalslund; óræktin og óræktarsemin spretta upp af fjarskyldum meið; annar stofninn á framundan sér takmarkalausa þróun, en hinn hrörnun og fúa. íslenzki landnámslýðurinn í þessu landi, bað engrar afsökunar á tilveru sinni, og hann þurfti þess ekki heldur með; þetta fólk unni .vitaskuld íslandi hugástum, en það festi líka fljótt traustar rætur hér og vildi veg Canada í öllu; því var það ljóst, að þetta land átti að verða framtíðarland niðja þeirra frá kyni til kyns, og þess vegna var alt fyrir það í sölurnar leggjandí. Frumherjarnir íslenzku, sem festu hér byggðir og bú, voru hin eina kynslóð af þjóðstofni vor- um í þessari álfu, er réttilega máttu kallast “New Canadians”. Það er óþarft, og jafnvel ekki með öllu holt, að heimfæra slíkan titil upp á núverandi kynslóð, sem ætt sína rekur til íslands; slíkt fólk er fullgilt canadiskt fólk, sða fullgilt Bandaríkjafólk; og að það leggi fylstu rækt við menningarerfðir stofnþjóðar sinnar, uppruna og ætt, verður því sjálfu fyrir beztu og eykur á manngildi þess. Fyrir mörgum árum dvaldi með oss Vestur- íslendingum merkisprestur heiman af ættjörð- inni, séra Kjartan Helgason frá Hruna í Árnes- þingi, víðsýnn og djúpmenntur gáfumaður;flutti hann hér fjölda íturhugsaðra erinda um íslenzka tungu, eðliskosti íslenzku þjóðarinnar og bók- menntir hennar; það var gott að hlusta á séra Kjartan, eins og raunar þá aðra menn, er þannig flytja mál, að um einlægni þeirra verður eigi efast; vitaskuld er eg búinn að gleyma mörgu af því, sem hann sagði okkur frá, en eim* gleymi eg aldrei; í því fólst ósegjan- lega fögur þjóðrækni. “Mig hefir verið að dreyma um það”, sagði séra Kjartan, “að sá dag- ur hljóti að renna upp, er ís- lendingur og sannur maður táknar eitt og hið sama”. Hugsaði ekki íslenzki land- neminn, brautryðjandinn mikli í þessu fagra landi, eitthvað svipað, um það leyti er hann lagði upp í langferðina hinztu, og hvíslaði barni sínu í eyra síð- asta heilræðinu á þessari jörð? Sumarbúðir Um nokkur undanfarin ár hef- ir Bandalag lúterskra kvenna verið að leitast við að opna hugi fólks vors fyrir þörfinni á að reisa sumarbúðir, sem notaðar yrðu sem hvíldarstaður, sem veitti andlega uppvakning, sem gæti orðið miðstöð fyrir kristi- lega fræðslu fyrir æskulýð vorn. Var þessu máli fyrst hreyft af forseta félagsins á framkvæmd- arnefndarfundi haustið 1937. I fljótu bragði virðist ein- kennilegt að eftir sjö ár skuli þetta enn vera aðeins hugsjón, en til þess eru ýmsar ástæður: Hugmyndin var ný, fólk vort hafði ekki haft tækifæri til að kynna sér hana, þeim sem hlut áttu að máli var því umhugað um að gefa fólki fult tækifæri til að kynnast þess háttar starfi hjá öðrum kirkjudeildum. Var því byrjað með því að leigja pláss yfir stutt tímabil fyrir nám- skeið í kristilegri fræðslu. I fjögur sumur var það starfrækt með góðum árangri. Fyrir þrem- ur árum var það ákvæði gert að stofna sjóð er notaður skyldi til að byggja sumarbúðir til- heyrandi Bandalagi lúterskra kvenna. Hefir sá sjóður aukist að nokkru síðan. Ýmsir hafa spurt: Eru líkindi til að þetta hafi þýðingu fyrir kristindómsstarfið? Hvernig fyr- irkomulag verður haft? Verður þetta ekki of umfangsmikið og. of kostbært starf fyrir þennan félagsskap? Hvaða byggingar hafið þið hugsað ykkur að reisa? Hvernig verður þeim hagað? Var það viturlegt að neita samvinnu við hin þýzk-lútersku félög er gáfu kost á slíkri samvinnu síð- astliðið sumar?— Með fáum orðum vildi eg leitast við að svara, eins og þetta horfir við frá mínu sjónar miði. Sem svar við hinni fyrstu spurn- nigu .vildi eg geta þess, að um alt þetta meginland eru flest allar kirkjudeildir að hefjast handa með þannig lagað sumar- starf; landspildur á ýmsum stöð- um af ýmsri stærð eru keyptar, munu flestar þeirra vera frá tíu til þrjátíu ekrur að stærð, sum- ar ef til vill nokkuð stærri eða minni. Þar eru svo reistar sum- arbúðir af ýmsri gerð og stærð. Þangað safnar kirkjan svo æsku- lýð sínum til hvíldar, hressing- ar og fræðslu — verður þetta sem heimili ár frá ári — hugir hinna ungu stefna þangað. — Þar finna þeir að er gott að dvelja um hríð 1 súmarleyfi sínu. Alt starfið er í umsjón hæfra leiðtoga. Af þessu starfi vænta hinar ýmsu kirkjudeildir hins mesta árangurs um komandi tíð. Viðvíkjandi því hvacia fyrir- komulag á starfi verði haft vildi eg setja hér starfskrá, sem okk- ur hefir dreymt um að geta fylgt, ef ekki strax og starf verður hafið, þá síðar meir: 15. —25. júní—mæður með lítil börn (mothers’ camp) 26.—29. júní—Sunnudagaskóla kennara mót (Sunday school teachers’ rally) 3.—14. júlí—Námskeið í kristi- legri fræðslu (Leadership Train- ing course) 16. —27. júlí—Sumardvöl fyrir börn (children’s camp) 28.—31. júlí—Prestamót (Min- isters’ Retreat) 2:—16. ágúst—Sumardvöl fyr- ir börn (Ohildren’s Camp) 17.—30. ágúst—Opnar búðir fyr ir hvern sem vildi njóta hress- ingar og hvíldar. 31. ág.—7. sept.—Mót fyrir meðlimi Bandalagsins (Mem- bers’ retreat) 8. sept.—Búðum lokað. — Þetta er hugsjón okkar; hvað mikið af því verður að virkilegleika f.ærir tíminn í ljós. Það hefir komið í huga allra, sem um þetta hafa að einhverju leyti hugsað, að þetta yrði ofur- efli fyrir þennan félagsskap, en efítir að hafa velt þessu fyrir mér og horft á það frá öllum hliðum, hefi eg komist að þeirri niðurstöðu, að svo þurfi ekki að vera. Bandalagið á ítök í flest- um íslenzkum bygðum, það er alls ekki einsamalt að verki; á bak við það stendur hið Ev. lút. kirkjufélag, og þá um leið allir íslenzkir lúterstrúar menn og konur á þeim svæðum, sem þetta starf gæti náð til. Blessunarósk- ir, hlýhugur og gjafir hafa okkur borist frá fólki á fjarlægum stöð- um. Eg trúi því, ef áhugi og ein- ing ríkir, verði þetta ekkert of- urefli. Það er líka vert að muna það, að sé þetta fyrirhugaða starf Guði þóknanlegt og verði að því unnið samkvæmt hans vilja munu leiðir opnast og eng- in ástæða til kvíða, Hvað því viðvíkur, hvað marg- ar byggingar yrðu reistar — þá höfum við í huga svipað fyrir- komulag og á sér stað í Cana- dian Sunday School Mission Camp. Hvort allar þær bygg- ingar yrðu reistar strax í byrjun, er auðvitað óráðið. — Þar þurfa að vera svefnskálar — einn fyrir pilta, annar fyrir stúlkur, borð- stofa og eldhús, kenslusalur, sjúkrahús og íbúð (ein eða tvær) fyrir starfsfólk. Æskilegt væri að allar yrðu þessar íbúðir af sömu gerð þó mismunandi að stærð, allar málaðar sama lit. I öllum yrði notað hið ódýrasta efni — allir veggir einfaldir og nokkur hluti sumra þeirra mundi verða úr “screen”, yrðu þar strigatjöld, sem draga mætti fyrir. Þá er spurningin um hvort það hafi verið viturlegt að neita samvinnu. — Því máli var vísað til hinna tuttugu félaga, sem Bandalagið mynda; aðeins þrjú greiddu atkvæði með, svo eng- um blöðum var um það að fletta hver var vilji meirihlutans. Við vorum ekki reiðubúnar að láta þetta starf í hendur annara, og höfðum enga trú á að þessi sam- vinna mundi verða fyrirtækinu til heilla. Við þráðum að sá vís- ir, sem hafði verið gróðursett- ur til þessa starfs mætti þrosk- ast þannig að starfið yrði ekki bundið við eina, tvær eða þrjár vikur aðeins hvert sumar, heldur mætti það ná yfir alt sumarið. Við treystum á gjafmildi og höfðingskap þeirra Islendinga, sem elska lúterska kristni og elska æskuna. Við sáum í anda heimili fyrir íslenzka æsku; búð- ir, sem ef til vill yrðu reistar sem minnismerki um þá, sem brautina ruddu og okkur til- heyra einum. Hva ætti til dæmis betur við en að þar væri reistur skáli í minningu um landnáms- konur einhverrar bygðar — kon- urnar, sem heima vöktu, sem lögðu alt í sölur til þess að af- komendur þeirra gætu notið nýrra tækifæra í nýju landi. Sú bygging yrði þá gefin af fólki þeirrar sérstöku bygðar, sem þannig hugsaði sér að heiðra minningu þeirra. — Eða ef kenslu stofan yrði bygð í minningu um okkar látnu leiðtoga 1 kenni- mannastétt — nöfn þeirra þarf eg hér ekki að nefna, þau eru okkur kunn. — Ekki væri úr vegi heldur að þannig væri einn- ig minst hins fagra og þögula flokks æskumanna af íslenzku bergi brotnir, sem líf sitt hafa látið í hinum tveimur heims- stríðum. Þetta, og margt fleira, tilheyrir okkur einum og þó ekk- ert sé fjær mér en að vera með nokkurn þjóðræknis umslátt í sambandi við þetta þá veit eg mér er óhætt að segja að það var eitthvað í okkar íslenzka upp lagi, sem gerði okkur ómögu- legt að samþykkja áminsta sam- vinnu. — Verði þessar sumar- búðir nokkurntíma reistar þá þráum við að þær verði helgað- ar Islendingum og að okkar ís- lenzka, lúterska kirkja megi safna þangað sínum æskulýð, að þar mættu þreyttir njóta augna bliks hvíldar, að þaðar. mætti blessun streyma um ókomin ár, Ingibjörg J. Bjarnason, forseti Bandalagsins. Sameiningin. Laugar Diocletians Meðan Rómverjar voru á mesta blómaskeiði sinnar gullaldar, þótti þeim engin skemtun betri en sækja baðstaðina, sem yfir* völdin sáu almenningi fyrir. Af þeim sex frægu baðístöðum í Róm, sem bygðir voAi á keis- aratímunum, voru laugar Dio- cletians langfrægastar . Gátu 2000 manns laugað þar samtím- is. Vatnið streymdi án afláts um steinflúraðar laugarnar; var það le'itt ofan úr hæðunum fyrir austan Róm í þröngum vatns- rennum, sem voru hin mestu mannvirki, en gegnum borgina í pípum, sem skeyttar voru sam- an með silfri og bronsi. Það var hitað í leiðslunum, sem lágu gegn um ofna og allir gátu fengið svo heita eða kalda laug, sem þeim líkaði. Þarna voru og gufuböð og steypuböð. Gestir komu ýmist gangandi eða í burðarstólum og dvöldu margir hverjir daglangt í laug- unum, því að þær voru einskonar skemtistaður jafnframt. Þegar imj var komið tók við stór sal- ur með dýrindis málverkum und- ir hárri hvelfingu, sem borin var uppi af marmarasúlum. Milli niðandi gosbrunnanna í þessum sal heilsuðu menn kunn- ingjunum, hlustuðu á nýjustu fréttir eða lásu Acta Diurna dag- blað borgarinnar. Þegar menn höfðu fengið baðið, sem þeir óskuðu, reikuðu þeir um unaðslega garða, undir kliptum linditrjám og meðfram limgirðingum, um kýprusviðar- göng og kringum fögur marm- aralíkneski. Þeir sem nenntu fóru inn á fimleikasvæðið og tóku þátt í leikjum og líkams- æfingum. Síðan snæddu menn góða máltíð og á eftir var farið í bókasafnið, á hljómleika eða * leikhús. Bláhellír á Capri Eitt af því skrítna um hinn fræga Bláhelli á Capri, rúmlega 30 km. vestur af Napoli, er að íbúar hinnar fornu Rómaborgar þektu helli þennan en svo týnd- ist hann aftur og vissi enginn um tilveru hans fyrr en snemma á nítjándu öldinni. Og þó er skiljanlegt að hann skyldi týn- ast, því að opið á þessum töfra- hetlli er aðeins tæplega þriggja feta hátt og hefir það verið mikil skapraun öllum málurum, sem heimsótt hafa þennan fræga stað. Það er sjórinn sem holað hefir þennan helli inn í bergið, eins og svo marga aðra á eyjunni, en hún er sumpart úr meirum kalksteini, samskonar og er í Apenriínafjöllum. Þegar komið var inn í hellirinn (og það er því aðeins kleift að sjór sé dauð- ur), er maður kominn inn í blátt æfintýraland. Þarna er alt blátt, frá ljósbláu í dimmblátt og blandast þetta saman í und- ursamlegustu myndir, vegna geislabrots ljóssins í vatninu. Báran á vatninu .veldur því, að bláu mislitirnir eru á sífeldri hreyfingu, eins og geislar frá risavöxnu litaorgeli. — Á Capri eru einnig Grænihellir og Hvíti- hellir, sem eru þess verðir að þeir séu skoðaðir, þó að fegurð þeirra komist ekki í hálfkvist við Bláhellis.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.