Lögberg - 09.11.1944, Síða 8
8
LÖGBERG.. FIMTUDAGINN 9. NÓVEMBER, 1944
Úr borg og bygð
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund á miðvikudagskvöld-
ið 15. nóv., að heimili Mrs. P. J.
Sivertson, 497 Telfer St.
Fundurinn byrjar kl. 8.
•
Hr. Gunnar Norland. sem
stundað hefir undanfarin ár, nám
í enskri tungu og enskum bók-
menntum við Manitobaháskól-
ann; lagði af stað s. 1. föstudag,
suður til Cambrigde, Mass., þar
sem hann ætlar að stunda fram-
haldsnám í fræðigreinum sínum
við Harvard háskóia. Gunnar er
prýðisvel gefinn maður, og aflaði
sér fjölda vina þann tíma, sem
hann dvaldi hér á meðal vor.
Ritstjóri Lögbergs þakkar Gunn-
ari ánægjulega viðkynningu og
árnar honum góðs brautargengis.
•
Mr. Páll Magnússon frá Leslie,
Sask., sem legið hefir á sjúkra-
húsi hér í borginni, vegna upp-
skurðar á auga, er nú kominn
aftur á vettvang með von um
ágæta heilsubót. Dr. Roberí
Black gerði uppskorðinn. Páll er
enn hinn ernasti, þótt nokkuð sé
við aldur; er hinum mörgu vin-
um hans það mikið fagnaðarefni,
að hitta hann nú daglega á ný
spriklandi af fjöri.
•
Fundarboð.
Ársfundur Fyrsta lúterska
safnaðar verður haldinn þriðju-
daginn 28. nóv. kl. 8 e. h., í kirkju
safnaðarins. Skýrslur embættis-
manna og deilda safnaðarins
verða lagðar fram, einnig fer
fram kosning embættismanna í
stað þeirra, sem eru búnir að
útenda kjörtímabil sitt.
Fyrir hönd safnaðarfulltrúanna,
G. L. Jóhannson, skrifari.
•
Icelandic Canadian Clúb News.
The next meeting of the Ice-
landic Canadian Club will be
held in the Antique Tea Rooms,
Enderton Bldg., Portage and
Hargrave, Sunday, Nóv. 12, at
8.30 P.M.
An interesting program has
been arranged. Mrs. V. J. Eylands
will give a paper entitled: A
Pioneer Postman In Iceland.
Mrs. T. Adlam will give
readings.
Refreshments served.
Everybody Welcome.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands,
Heimili: 776 Victor St. Sími
29 017.
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 11 f. h. á ensku.
Kl. 12.15 sunnudagaskóli.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Söngæfingar:
Yngri söngflokkurinn á fimtu-
dögum kl. 8.
Eldri söngflokkurinn á föstu-
dögum kl. 8.
•
Prestakáll Norður Nýja-íslands
12. nóv.—Víðir, messa kl. 2 e. h.
19. nóv.—Geysir, messa kl. 2
e. h.
Riverton, ensk messa kl. 8
e. h.
B. A. Bjarnason.
9
Lúterska kirkjan í Selkirk.
Sunnudaginn 12. nóv.
Sunnudagaskóli kl. 11 árdegis
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir velkomnir.
• S. Ólafsson.
9
Sunnudaginn 12. nóv. messar
séra H. Sigmar í Mountain kl.
11 f. h. og í Eyford kl. 2.30 e. h.
Allir velkomnir.
•
Islenzk guðsþjónusta í Vancouver
með altarisgöngu, sunnudaginn
12. nóv., kl. 7,30 að kvöldinu, í
dönsku kirkjunni á E. 19th Ave.
og Búrns St.
Allir velkomnir.
R. Marteinsson.
9
Ensk altarisgöngu guðsþjón-
usta í Vancouver, sunnudaginn
19. nóv. kl. 7,30 að kvöldinu, í
dönsku kirkjunni á E. 19th. Ave.
og Burns St.
Allir velkomnir.
R. Marteinsson.
9
Útvarp á íslenzku fer fram frá
Fyrstu lútersku kirkju kl. 11
f. h. 26. nóvember.
Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar
(eldra), heldur sinn vanalega
haust bazar, fimtudaginn 16. nóv.
í samkomusal kirkjunnar, eftir
miðdag og um kvöldið. Forstöðu-
konur fyrir söluborðin eru: Mrs.
J. Nordal, Mrs. J. W. Thorgeir-
son, Mrs. J. S. Gillies og Mrs.
F. Stephenson. Fyrir home
Cooking: Mrs. J. Thorvardson og
Mrs. J. J. Swanson. Rúllupylsa,
lifrarpylsa, blóðmör o. s. frv. er
undir umsjón Mrs. Gunnl. Jó-
hannson. Kaffi verður veitt
hvenær sem er og er forstöðu-
kona kaffi sölunnar Mrs J. A.
Blondal. Kvenfélags konur von-
ast eftir góðri aðsókn þennan
tiltekna dag, fimtudaginn 16.
nóv. Forseti félagsins, Mrs. A. S.
Bardal tekur á móti gestum.
•
Þakklæti.
Við þökkum innilega öllum,
sem tóku þátt í eða studdu að
hinu veglega samsæti, sem okkur
var haldið í tilefni af 25 ára
giftingarafmæli okkar. Sérstak-
lega viljum við þakka Mr. og
Mrs. Gunnar S. Einarson, sem
stóðu fyrir því að mestu eða
öllu leyti. Einnig viljum við
þakka Mr. og Mi*s. Harry Page
fyrir lán á húsi sínu. Við þökk-
um fyrir allar gjafirnar, sem
okkur voru gefnar, og öllum
sem skemtu þar með ræðum og
söng. Þessi gleðistund ,mun lifa
í minni okkar í mörg ókomin
ár.
Við þökkum ykkur öllum.
Mr. og Mrs. Andrés Guðbjartson,
Riverton, Man.
Gjafir til Betel í október 1944.
Mr. Soffanías Thorkelsson;'
Winnipeg, fyrsta og annað hefti
“Ferðaminningar”. Mr. J. B.
Johnson, Gimli, Man., 120 pound
White Fish and Piekerel. Mr.
Gunnbjörn Stefánsson, R.R. 3.,
Salmon Arm. B.C., 15 Boxes of
Apples. Mr. Sigurþór Sigurdson,
594 Alverstone, Wpg. $10.00. Mr.
Guðmundur Thorsteinsson, Port-
land, Oregon, $22.00. Ladies Aid
Frelsis Söfn. Grund, in memory
of Jón Goodman $52.00. Frá vinu
í Elfros, Sask. “Eg óska hælinu
alls hins bezta á komandi vetri
og æfinlega og bið Guð að blessa
starfið.” $3.00. Elfros kvenfélag
“I minningu um okkar kæru
félagssystir Mrs. Ingibjörgu Jack
son” $5.00. Mrs. Jim Guðmund-
son “í minningu um Mrs. Ingi-
björgu Jackson” $1.00.
Kærar þakkir,
J. J. Swanson, féhirðir
308 Avenue Bldg., Wpg.
20 námsmeyjar
Frh. af bls. 7.
“Þú sonur kappakyns.
Lít ei svo með löngun yfir sæinn,
lút ei svo við gamla, fallna
bæinn.
Byggðu nýjan, bjartan hlýjan,
brjóttu tóftir hins.”
Kristín Þorvaldsdóttir,
Öxnalæk, Ölfusi, Árn.
Minni Reykjaskóla.
Síðan Reykjaskóli tók til
starfa, hef eg átt heima hér í
Hveragerði og oft skemmt mér
í hópi hinna ungu nemenda hans;
er mér ljúft að mæla fyrir minni
skólans. Garðyrkjan er sú starfs-
grein, sem þarf að taka hugi
landsmanna. Enn höfum við
sinnt henni of lítið, og senni-
lega verður þess en nokkur bið,
að við skiljum til fulls, hve mik-
ill búbætir hún er. En þar við
bætist svo hollusta vinnunnar og
hollusta jurtanna, sem hún gef-
ur af sér. Ættum við, unga fólkið,
að herða sókn í þessum efnum.
Ekki er nóg að syngja “ástkæra
fósturmold”, og ekki reynast orð
Jónasar Hallgrímssonar, “bóndi
er bústólpi og bú er landsstólpi”,
sönn, nema vel sé á haldið. Út
frá garðyrkjuskólanum á Reykj-
um eiga að streyma hin hollu
áhrif til framfara í þessum efn-
um. — Heill fylgi skólanum —
skólastjóra, kennurum og nem-
endum öllum, er þar starfa til
að auka veg lands og þjóðar.
Sjálfsagt mun kvennaskólinn á
Hverabökkum löngum bera hlýj-
anhug til garðyrkjuskólans á
Reykjum. — Hann lengi lifi!
(Ferfalt húrra.)
Steinunn Jóhannesdóttir,
Ásum, Hveragerði.
Einingin.
Wartime Prices
and Trade Board
Þeir sem kvarta undan því að
passa eina skömtunarbók ættu
að búa í Svíþjóð, þar hafa menn
fimtíu skömtunarspjöld til að
líta eftir. Við skulum ásetja
okkur að fara vel með skömtun-
arbók númer fimm, hún verður
að endast okkur í næstum því
heilt ár.
Spurningar og svör.
Spurt. Um daginn varð eg að
afhenda sætmetis seðil fyrir glas
af molasses, sem eg kevpti. Er
molasses skamtað?
Svar. Já. Betri tegundin er
skömtuð. Það fæst einn pottur
eða fjörutíu mældar únzur með
einum seðli. En það er til lélegri
tegund, sem kallast “blackstrap”
og er vanalega seld í gallón
dúnkum. Þessi tegund er ekki
skömtuð.
Spurt. Má skifta aykur seðlum
fyrir sætmetisseðla?
Svar. Já, ef barn innan tveggja
ára á í hlut. Þá má fá tvo sæt-
metisseðla fyrir hvern sykur
seðil hjá Local Ration Board.
Spurt. Eg keypti notaðan bíl
í vor, en nú langar mig til að
skifta honum fyrir annan nýrri
bíl. Hvenær verður mér leyft
þetta?
Svar. Ekki fyr en í janúar
1945.
Spurt. Er matsöluhúsum leyft
að setja 10 cent fyrir hvern bolla
þegar beðið er um annan bolla
af kaffi á eftir máltíð?
Svar. verðið á kaffi-bolla var
tíu cent á hámarkstímabilinu, þá
er ekki hægt að banna þeim að
setja sama verð nú, en hver sem
vill má lækka verðið eða láta
seinni bollan fyrir ekki neitt ef
honum sýnist.
Spurt. Eg hefi herbergi og fæði
í prívat heimili. Húsmóðirin vill
nú fá herbergið handa syni sín-.
um, sem er á heimleið frá Evr-
Utflutningsbann á
Nautgripum og kálfum
Union-gripakvíarnar í St. Boniface og sláturhúsin, eru
troðfull af léttum og mögrum sláturgripum og “off type”
búpeningi. Eigin hagsmuna vegna ættu bændur ekki að
senda gripi til markaðar. Það er mikil eftirspurn eftir
vel fóðruðum uxum og kvígum, en vegna hins mikla sægs
lakari gripategunda í gripa kvíunum, hafa þeir, sem þar
hafa umráð, lagt bann við útsendingu nautgripa.
Jafnskjótt og ástæður leyfa, verður slíku banni vafalaust
létt af.
Ef þér hafið nautgripi til sölu, er ráðlegast að setja sig .
í samband við þá, sem kunnir eru markaðshorfum, áður
en slíkir gripir eru sendir af búgarðinum.
HON. D. L. CAMPBELL,
Landbúnaðar- og innflutningsmála ráðherra.
Winnipeg, \
1. nóvember, 1944.
^ !---- r- — ■ Æ. TT—- ... ■ - ... .
ROY SHEFLEY
-- FOR WARD 2 ALDERMAN -
MARK YOUR BALLOT THUS:
SHEFLEY
ROY
1
Decent Homes for the Needy
Cheaper Tram and Bus Rates
VOTE THUS:
CHUNN 1
Child Health Survey
Full Kindergarten Provisions
FOR WARD 2 TRUSTEE
MARGARET CHUNN
ópu. Hvaða flutningsfrest get eg
heimtað?
Svar. Þeir sem hafa herbergi
og fæði eru ekki verndaðir af
leigulögunum. Þú verður að
leita þér upplýsinga hjá lög-
manni.
Spurt. Mér skilst að epla upp-
skeran hafi verið óvenjulega góð
í haust. Má ekki búast við að
verðið lækki dálítið?
Svar. Vegna skorts á umbúð-
um og eplakössum verður mikið
flutt á markað af lausum epl-
um. Ávextirnir merjast þegar
svona er farið með þá og ættu
því ekki að seljast með eins
háu verði og þeir sem pakkaðir
eru og seldir í kössum
Smjörseðlar 84 og 85 ganga í
gildi 9. návember.
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
Spurningum svarað á íslenzku
af Mrs. Albert Wathne, 700
Banning St., Wpg.
The Swan Manufacturing Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
Winnipeg.
Halldór Methusalems Swan
Eigandi
281 James Street Phone 22 641
FARIÐ EKKI Á MIS VIÐ
HIN UNDURSAMLEGU
KAUP Á LOÐFÖTUM
HJA
Perth’s
1945 TÍZKA
Ú RV ALSEFNI
ÓVIÐJAFNANLEG GÆÐl
Heimsœkið PERTH’S
MASTER FURRIERS
484 PORTAGE AVE.
Just west of the Mall
TOMBÓLA og DANS
Mánudagskvöldið 13. nóvember.
Goodtemplara stúkan Hekla, heldur sína árlegu tombólu
til arðs fyrir sjúkrasjóðinn. Margir ágætis drættir á
boðstólum, svo sem hveiti pakki (23. lbs.) og $5.00 War
Saving Certificate o. fl. Allir drættir nýir.
Frank Oliver spilar fyrir dansinum.
Byrjar kl. 7,30 e. h.
Inngangur og einn dráttur 25c.
— WANTED —
1000 — 2 year subscribers to our new synodical paper
“OUR PARISH MESSENGER”
Your dollar NOW vrill give this
venture the start it needs
and bring back to you News and Views from our
many parishes. — Be Interested.
Address: Mr. S. O. Bjerring, 550 Banning St., Winnipeg
Verum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir
hverju nafni, sem þœr nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
DREWRYS
LIMITED
Samkeppni nútímans
krefst sérmentunar
Æskulýður þessa lands, engu síður en annara þjóða.
krefst sérmenntunar, eigi hann að geta staðist próf
hinnar ströngu samkeppni á vettvangi viðskiptalífsins,
og af þessari ástæðu, er verzlunarskólamenntun í raun-
inni óumflýjanleg.
Vér höfum nú til sölu nokkur námskeið við fullkomn-
ustu verzlunarskóla Vesturlandsins, sem væntanlegir
nemendur ættu að færa sér sem allra fyrst í nyt; þeir,
sem slíkt hafa í hyggju, ættu að snúa sér tafarlaust til
skrifstofu LÖGBERGS
695 Sargent Avenue, Winnipeg
og leita þar nauðsynlegra upplýsinga; það borgar sig!