Lögberg - 23.11.1944, Side 3

Lögberg - 23.11.1944, Side 3
3 Einkenni ofreynslunnar Þýtt og frumsamið af A. S. BARDAL í samanburði við þau ósköp, sem dunið hafa yfir Evrópu og Asíu síðast liðin fimm ár, hefir lífið í Canada verið tiltölulega rólegt. Það mundi verða erfitt að láta fólk í Evrópu, t. d. á Eng- landi, Frakklandi og Rússlandi trúa því að við hefðum átt við nokkrar þrautir eða raunir að stríða. Samt sem áður er sann- leikurinn sá að kvíði og hræðsla hafa legið þungt á hugum fólks- ins eins og lamandi byrði, og ef til vill aldrei þyngri en einmitt nú. Fjöldinn er sokkinn niður í djúpar hugsanir um ýmislegt annað en 'aðaltakmarkið, sem fyrir liggur og verður að fram- kvæmast. Þetta kemur fram alls- staðar og undir öllum kringum- stæðum, á götunum, í búðunum, í strætisvögnunum, já, allsstaðar þar, sem fólk mætist hér í Can- ada. Við starfrækjum færri bíla nú en við höfum gert á undanförn- um árum, en samt fjölgar slys- um; við gleymum fleiri böglum í strætisvögnunum og járnbraut- arlestunum og týnum fleiri böglL um þar að auki á annan hátt. Við hlustum á útvörpin en heyrum aðeins nokkurn hluta af því, sem sagt er. Við gleymum mörgu af því, sem við ættum og ætlum að gera — mörgu, sem við hefðum ekki gleymt ef alt hefði verið með feldu. Venjulega stjórnar aðeins einn maður strætisvögnum vorum; aðeins þegar m§st á liggur eru tveir sendir með þá. Til þess þarf glögga eftirtekt að sjá mis- muninn. Við gatnamót, þar sem vagninn stöðvást fer fólkið inn að framan en ekki að aftan þeg- ar einn maður stjórnar. Verða þá oft margir eftir þegar vagn- inn fer af stað og þeir, sem eftir verða, hrópa og kalla. Á götunum gengur fólk eins og í svefni, án þess að athuga hvar það fer. Það anar út á göturnar hér og þár, og hugsar ekkert um hætturnar, sem á vegi kunna að vera — hætturnar, bæði fyrir sjálft það og aðra. Sama er að segja um þá, sem ýmist stjórna hestum eða bílum; þeir fara beint í gegnum mannþröngina svo all- ir eru í stórhættu. Þetta fer alt- af vaxandi. Já, hugar ofreynsla á sér sann- arlega stað í Canada. Fjölda margir bera áhyggjur í sambandi við drengina sína og stúlkurnar sínar, sem eru að berjast fyrir frelsi þjóðanna í fjarlægum lönd- um. Það eru áhyggjur, þó ein- kennilegt sé, þar sem engin sprenging hefir átt sér stað, eins og í þeim löndum þar sem stríðið stendur yfir. Við þurfum ekki að hlaupa út á nóttu eða degi til þess að komast í óhultan stað undan sprengingunum; eða til þess að slökkva þá elda eða gæta þeirra sprengivéla, sem koma 1 loftinu. Þetta veldur þeim sem þátt taka í því, þá tilfinning að þeir séu beint og blátt áfram þátttakendur r stríðinu sjálfu. En í Canada á engin þesskonar til- finning sér stað. Við getum ekk- ert gert annað en bíða og kvíða, agndofa og órólegir. Sumir hrökkva upp úr fasta svefni á miðri nóttu með ógn og andfæl- um. Drengirnir þjóta eftir götunum á hjólum sínum fram og aftur, það vekur kvíða hjá flestum. Erindi hjólasveinanna getur snert hvern sem er. Enginn veit hverjum þeir flytja fréttir eða skeyti. Eru þeir á leiðinni heim til þín eða mín? Eða til einhvers nágranna okkar? Hvaða tíðindi flytja þeir? Ef til vill það að ein- hver drengjanna sé að koma heim ómeiddur? Eða kannské einhver voðafrétt frá Ottawa, til foreldra, systkina eða vina. Fréttirnar í blöðum og útvarþ- inu færa manni hijom skothríð- anna bæði úr lofti og á landi. Þúsundir Canada manna fóru yfir höfin, margir tugir loftvéla fórust. Var Jón, Mangi, eða Viili í þeim og þeim bardaganum? Ætli hann hafi komist af? \ Þegar síminn hringir, flýgur hugur heimilisfólksins til þess vinar, sem er svo og svo langt í burtu. “Canadaherinn hefur tekið þátt í voða bardaga,” segir fréttin. Já, Canadahérinn. En á þúsund um heimila vorra er meiri eða minni mótstæða. Það er ekki Canadaherinn, það er Jón, Mangi eða Villi. Hann er ef til vill á herstöðvunum að hlaða flutn- ingsbíl eða kannske að skemta sér í frítíma? En þegar fréttin kemur um bardagann, vaknar í huga fjölskyldunnar mynd dreng drengs, sem hún elskar um fram alt, var hann kannske í miðjum bardaganum? í mestu hættunni? Já, við erum niðursokkin í djúpar áhyggjur. Byrðin er þung og afleiðingarnar sjást víða. Bið- in finst vera eilíf og mörgum nálega óbærileg, og óvissan sem lamar hjarta og taugar. Sú á- reynsla er mjög átakandi fyrir einstaklinginn. Sú áreynsla er þess eðlis að þeir, sem á stríðs- vellinum eru skilja hana ekki. Þegar drengirnir koma heim munu þeir verða varir við áhrif þessarar áreynslu eða ofraunar. En ástæðan verður þeim hulin, þegar þeir verða boðnir velkomn- ir heim. Frá Vancouver, B.C. 3. nóvember, 1944. Herra ritstjóri Lögbergs: Þó að komið sé svona langt fram á haustið, þá er hér altaf sama sumarblíðviðrið. mjög lítið regn, en óvanalega mikið um þokur, helst á næturnar og fyrst á morgnana, þangað til sólin hækkar á lofti, þá verður þokan að fara í felur, en læðist altaf lymskulega fram aftur, strax eftir sólsetur á kvöldin. Þessar þokur hamla talsvert um- ferðum um lög og láð. Nokkrir skipskaðar hafa orðið af því, og mikið af vörum af ýmsu tagi farið í sjóinn, en altaf hefur tek- ist að bjarga öllu fólki sem hef- ur lent í því. Nýlega viltist drátt- arbátur, sem dró á eftir sér pramma hlaðinn með prent papp ír, af réttri leið, pramminn náði niðri á grynningum og brotnaði, svo allur farmurinn fór í sjó- inn, en togarinn komst af klakk- laust. Þarna fórust 450 tonn af pappír, er það mikið tjón, þar sem mikil ekla er á prentpappír. I annað skifti rakst fólksflutn- inga skipið, sem gengur á næt- urnar á milli Cancouver og Vict- oria, á vöruskip, og braut á það stórt gat, svo það sökk eftir nokkrar mínútur. Þarna skall hurð nærri hælum. því þetta vöruskip hafði um borð, þrjú þúsund pund af sprengiefni (dynamite) svo ef áreksturinn hefði lent þar sem sprengiefnið var fyrir, þá hefðu bæði skipin farist með öllu sem á þeim var. Skipshöfnin á vöruskipínu komst af áður en það sökk. Þokan er einnig voða gestur fyrir loftför- in. Þó þau geti flogið fyrir ofan alla þoku, og farið allra sinna ferðaf þá geta þeir ekki séð til að lenda þegar þokan er sem mest. Það hefur komið fyrir að loftför, sem hafa átt að lenda í Vancouver, hafa orðið að fara til Victoria til að geta lent. Á Van- couver eyjunni eru miklu minni þokur en á meginlandinu. Félagslífið er nú að lifna við aftur með haustinu á meðal okk- ar landanna. Félagið “ísafold” hélt ársfund sinn 16. október. Var kosin stjórnarnefnd fyrir næsta ár. Þessir hlutu kosningu: M. Elíasson var endurkosinn for- LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. NÓVEMBER, 1944 seti, B. Kolbeins vara-forseti, endurkosin, Miss Helga Anderson skrifari, séra R. Marteinson vara- skrifari og Mrs. O. W. Johnson gjaldkeri, endurkosin. Fjárhagur félagsins stendur vel, á annað hundrað dollarra í sjóði félagsins. Ákvarðað er að félagið haldi skemtisamkomu mánaðarlega i vetur. Þann 25. október hafði fslenzki lút. söfnuðurinn samsæti í dönsku kirkjunni þar sem ís- lenzku guðsþjónusturnar eru haldnar. Stóð safnaðarnefndin fyrir því, og var öllu safnaðar- fólki boðið þangað og líka öll- um þeim, sem eru því málefni hlyntir. Kom þar margt fólk saman svo kirkjan var troðfull. Samsætinu stýrði forsetinn H. L. Thorlaksson. Til skemtunar var bæði ræður og söngur á ensku og íslenzku. Skemtiskráin ’ end- aði með því að allir stofnendur (Charter Members) safnaðarins, sem voru þar viðstaddir voru ljósmyndaðir í einum hópi. Hef- ur þessi mynd sögulegt gildi í framtíðinni, þegar saga safnaðar- ins verður rituð. Næst var öllum boðið í veislusal kirkjunnar. Þeg- ar þangað kom blasti við manni borð eftir endilöngum salnum, sökkhlaðið af alslags sælgæti, sem yrði of oltof langt mál, ef farið væri að skrásetja það hér. Svo var öllum veitt kaffi og af sælgæti því, sem var á borðinu eins og hvern lysti. Stóð kven- félag safnaðarins fyrir veitingun um og fórst þeim það alt mjög myndarlega, og sýndu þær sér- staklega íslenzka gestrisni, þar sem engin fékk að borga neitt fyrir sig, alt var ókeypis, og gestunum þakkað fyrir komuna eftir íslenzkum siðvenjum. Þetta samsæti var hið ánægjulegasta og skemtilegasta, menningarbrag ur á því öllu. Við þurfum að sýna það í verkinu að við kunn- um að skemta okkur með öðru en spilamensku og dansi, þó það sé gott og blessað annað slagið. Þann 30. október var almenn- ur fundur haldinn til að f-æða um Islendingadags hald næsta sumar. Fundarstjóri var kosinn M. Elíasson og skrifari Mrs. Carl Fredrickson. Nefndin frá síðast- liðnu ári skýrði frá starfsemi sinni. Talsverðar umræður voru um þetta Islendingadags málefni. Allir virtust vera sammála um, að því sé haldið áfram. Var þriggja manna nefnd kosin til að sjá um íslendingadags hald næsta sumar, og hafa á hendi allar framkvæmdir því viðvíkjandi. I nefnd þessa voru kosnir: Magnús Elíasson, B. Kolbeins og Carl Fredrickson. Varamenn, Einar Haralds, O. W. Johnson og Mrs. A. C. Orr. Fundur verður hald- inn í Blaine U.S.A. 26. nóvember þar sem þessi nefnd mætir nefnd Blaine-búa, til að skipuleggja fyr irkomulag viðvíkjandi þessum hátíðisdegi okkar næsta sumar. Það er búist við því að há- tíðin verði haldin í Blaine, eins og undanfarið næsta sumar, margir Vancouver Islendingar vilja að það fyrirkomulag geti komist á, að íslendingadagurinn verði haldinn annað árið í Blaine og hitt árið í Vancouver. Mundi því fyrirkomulagi verða vel tek- ið yfirleitt. Kvenfélagið “Sólskin”, er að efna til skemtisamkomu þann 15. nóv., sem á að vera í Sænska sam- komusalnum að 1320 East Hast- ings Street. Ætla konurnar að hafa þar á boðstólum íslenzkan mat. Þetta félag hefir um mörg ár, haft eina slíka samkomu á ári, og hefur því æfinlega verið vel tekið, og verið vel sótt. Mat- skráin hefur ekki verið auglýst, en þar mun kenna margra grasa. Eg hef ekki fengið neinar upp- lýsingar um það, hvað verði á skemtiskránni, nema að dansað verður á eftir sem allir geta tek- ið þátt í. Það er farinn að koma póli- tískur glímuskjálfti í marga um þessar mundir, því bæjar kosn- ingar fara fram í byrjun næsta mánaðar. Einn landi hefur verið 1 útnefndur til að sækja um kosn- ingu í bæjarráðið undir merkj- um C.C.F. Það er Magnús Elías-- son. Hann kannast allir við, því hann kemur mikið við sögu ís- lendinga hér á vesturströndinni. Það vita allir að hann er hæfi- leikamaður, mælskur vel. og hef- ur kjark til að halda sínum skoð- unum fram, hvar sem'er, og við hvern sem hann á. Hann er eng- inn “Yes” maður, svo ef hann nær kosningu þá mega allir reiða sig á það, að hann veiti óskipt fylgi sitt, öllum þeim mál- um, sem varða almennings heill. Eg þekki hér engan Islending, sem hefur lagt eins mikla rækt við að kynna sér allar pólitískar stefnur, eins og Mr. Elíasson Hann er þar vel heima á öllum þeim sviðum. Sjálfur er hann á- kveðinn jafnaðar- og umbótamað ur, sem ætti að mæla með hon- um við alla þá, sem “neita síns brauðs, í sveita síns andlitis”, — bændur og verkalýð. Eg hefi aldrei fallist á þá skoð- un, að það sé sjálfsagt að íslend- ingar greiði ætíð atkvæði sín með löndum sínum, þar sem þeir eru í vali. Fyrir sjálfan mig hef eg haft þá reglu, að hvar sem landinn hefur verið að mínu á- liti, jafn snjall, eða snjallari en sá, sem sækir á móti honum, þá hef eg ætíð látið landannn njóta atkvæðis míns. Annars ekki. Þess væri óskandi að íslendingar muni eftir Magnúsi þegar þeir eru að merkja kjörseðla sína. Okkur ætti að vera það nokkuð metn- aðarmál, að geta komið íslending í bæjarstjórnina. S. Guðmundson. “Þess ber að geta sem gjört er” Eg get ekki látið undir höfuð leggjast, að senda þakklæti mitt, þótt í veikleika verði, hinum mörgu, sem sýndu mér vinarþel sitt við fyllingu míns áttunda áratugar. Að áliðnum degi, miðvikudag- inn 8. nóvember, fékk eg heim- sókn af frænda mínum séra Sig- urði Ólafssyni í Selkirk. Stakk hann upp á því að eg kæmi með honum heim á hans heimili, og eyddi þar þessu afmæliskvöldi. Þegar þangað kom, var fyrir til- stilli og forgöngu þeirra heiðurs- hjóna, séra Sigurðar og hans góðu konu, þar saman komið um 30 manns frá Selkirk og Win- nipeg, karlar og konur, vinir mínir og samferðafólk um lengri eða skemra skeið af farinni lífs- leið, og höfðu fleiri ætlað að vera viðstaddir ef kringumstæð- ur hefðú leift. Þarf ekki að orðlengja það, að upp var slegið gleðimóti mér til ánægju og virðingar. Rausnarlegar veitingar voru frámreiddar að íslenzkum sið, og undir borðum voru mér fluttar ástúðlegar vinakveðjur og hug- heilar heillaóskir fyrir framtíð- ina, af þeim Ólafs^ons hjónum báðum, og ýmsum fleiri konum og körlum, og að síðustu voru mér afhentar dýrmætar gjafir bæði frá hópnum sem heild, og einstökum vinum. Vinir! Mig bresta orð til þess að láta í ljósi gleði mína og þakk- læti, fyrir ykkar hlýja vinarþel og rausn. — En þetta eitt get eg sagt: Hjartans þökk til ykkar allra, fyrir vinarþelið og hlýhug- ann. Hjartans þökk, fyrir öll góðu orðin og óskirnar, sem gjöra mér stundina ógleymanlega. Hjartans þökk fyrir allar veitingarnar og tækifærið til þess að fá að vera í hópi ykkar svo margra góð- vina, og svo fyrir allar gjafirnar. En einnar þeirrar verð eg sér- staklega að minnast, því hún er mér dýrmætust, og ógleyman- leg, en það er, hve ótvírætt þið sýnduð, að þær þrjár lyndiseink- unnir: rausn, vinfesta og höfð- ingslund — sem verið hafa kyn- fylgjur íslendinga frá öndverðu, hafa ekki breytt atferli sínu þótt flutt hafi í nýtt umhverfi úr heimahögum. Góður Guð launi ykkur vinir mínir, og blessi ykkur í bráð og lengd. Þorbjörn Magnússon. Gimli, Man., í nóvember, 1944. Business and Professional Cards DR. A. BLONDAL Physician & Siitpeon 602 MEDICAL ARTS BLDQ Sími 22 296 Heimili: 108 Chataway Sími 61 023 DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 202 398 Dr. S. J. Johannesson 215 RTJBY STREET (Belnt suöur af Bannlncr) Talsíml 30 877 • ViÖtalstíml 3—5 e. h. Dr. E. JOHNSON 304 Eveline St. Selkirk Office hrs. 2.30—6 P.M. Phone office 26. Res. 230 Office Phone Res. Phone 88 033 72 409 » Fiá vini Dr. L. A. Sigurdson 166 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p m. and by appointment DR. ROBERT BLACK Sérfræílingur t Augna, Eyrna, nef og hálssjúkdðmum 416 Medical Arts Building, Graham and Kennedy St. Skrifstofustmi 22 251 Heimaslmi 42 154 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar • 406 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Srnith St. PHONE 26 545 WINNIPEÖ EYOLFSON’S DRUG PARIC RIVER, N.D. tslenzkur lyfsalí Fólk getur pantaS meSul og annaS meS pðsti. Fljðt afgreiðsla. A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaBur sft beztl. Ennfremur selur hann allskonar mlnnisvarBa og legsteina. Skrifstofu talsiml 86 607 Heimilis talslmi 26 444 mei/ecs Sitidios jGW. fiirgeH MtefngcanfucOuKmaaliSnlh CtuttdM V-J* Mone ^ 96 647 m Legsteinar sem skara framúr Orvals blágrýti og Manitoba marmarl SkriflO eftir verOskrd GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. HALDOR HALDORSON hygpingameistari 23 Music and Art Building Broadw'ay and Hargrave Winnipeg, Canada Phone 21 455 J.-J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPG. • Fasteignasalar. Leigja hús. Ut- vega peningalán og eldsfthyrgB. blfreiðaábyrgB, o. s. frv. Phone 26 821 INSURE your property with HOME SECURITIES LTD. 468 MAIN ST. Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Fhones Bus. 23 377 Res. 39 433 ANDREWS, ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON LögfræOingar 209 Bank of Nova Scotla Bldg. Portage og Garry St. Slmi 98 291 TELEPHONE 96 010 Blóm siundvíslega afgreidd H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDING WINNIPEG, CANADA Tffi ROSERY lto StofnaB 1905 427 Portage Ave. Wlnnipeg. Phone 49 469 Radio Service Specialists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST.. WINNIPEG GUNDRY & PYMORE LTD. British Quality — Fish Netting 60 VICTORIA STREET Phone 98 211 Vinnipeg Manager, T. R. THORT.ALDSON 'four patronage will be ippreciated G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. S. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Wholesaie Distributors of FBESH AND FROZEN FISH CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. /. H. Page, Manaping Director Wholeeale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St. Office P’hone 86 661. Res Phone 73 917. MANITOBA FISHERIES WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla I heildsölu meB nýjan og frosinn fisk. » 303 OWENA ST. Skrifstofusími 25 355 Heimasími 55 463

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.