Lögberg - 21.12.1944, Síða 4
20
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER 1944
Dr. Walter Reed
(Frh. a/ bls. 17)
geisað einhversstaðar, á einu ári
er sagt að 1/10 af fólkinu í
Philadelphia hafi dáið úr þess-
um sjúkdómi; í sumum héruð-
um Vestur India eyjanna hrundi
niður á einu ári nær helmingur
íbúanna. 1 Brazilíu hrundu menn
niður í tuga þúsunda tali, og
skipin fúnuðu á höfninni í Rio
Janerio og öðrum höfnum, því
skipverjar flestir dóu og engir
fengust til að fylla skarðið, og
árið 1812—13 drap gula veikin
150 þúsund manns í Constanti-
nople. Hinn frægi franski verk-
fræðingur Ferdinand de Lesseps,
sem bygði Sues skurðjnn, og
síðar færðist í fang að grafa
Panama skurðinn, varð að gef-
ast upp við það verk og dó alls-
laus og hjartabrotinn, og ástæð-
an var óefað gula veikin; með
glæsilegum orðstýr tókst honum
að grafa Sues skurðinn, eitt
heimsins mesta mannvirki, og
hann byrjaði að grafa sundur
Panama eiðið með 50 þúsund
manns og feykna fjárupphæð, en
gula veikin gjörði þann usla í
liði hans að ekkert var við ráð-
ið, þúsundir manna hrundu nið-
ur, og læknarnir stóðu hjálpar-
vana, fyrirtækið fór eins og
allif Vltá. Svæðið umhvéffiá
skurðinn er hinn írjósamasti
reitur fyrir þessa drepsótt, og
mjög er það sennilegt að George
Washington Gothal hefði aldrei
lánast að vihna það mikla mann-
virki, að grafa skurðinn, hefði
ekki verið búið að einangra og
sigra gulu veikina.
Það var í stríðinu milli Spánar
og Bandaríkjanna, út af Cuba
málunum, rétt fyrir aldamótin
er gula veikin braust út í her-
liði Bandaríkjanna, að stjórnin
sendi nefnd manna til Havana,
til að rannsaka veikina og ráða
bót á þeim usla er hún gjörði,
og formaður þeirrar nefndar var
Dr. Walter C. Reed, hinn ágæt-
asti maður, þá kominn nálægt
fimtugu. Hann var fæddur í
Virginia 1851. Hann var yngsti
læknaskólanemi, sem nokkru
sinni hafði tekið burtfararpróf
frá skólanum í Charlottesville.
Hann stundaði lækningar í
nokkur ár í fátækrahverfi einu
í New York, naut hann snemma
mikils álits^því kornungur varð
hann sáralæknir hjá hermála-
stjórninni, og orðstýr hans flaug
víða, en hámarki frægðar sinnar
náði hann er honum tókst að
uppgötva orsakir gulu veikinnar.
Er hann kom til Cuba, byrjaði
hann strax á rannsóknum sínum,
og brátt komst hann að þeirri
niðurstöðu með sjálfum sér, að
orsök útbreiðslu þessarar veiki
væri fluga ein, sem nefnd er
“stegomyia sascriata”. Læknir
einn þar í borginni, Dr. Carlos
Finlay, hafði komið með þessa
hugmynd 20 árum áður, og ann-
ar læknir á Indlandi, Dr. Donald
Ross að nafni, hafði haft svip-
aða hugmynd, en ekkert var
gjört til að reyna að sanna eða
afsanna hugmyndina, sem var í
því fólgin að flugutegund þessi
væri miðillinn, sem flytti sótt-
kveikjuna frá þeim sjúka til
þess heilbrigða. Er hún stingur
sjúklinginn, sýgur hún úr blóði
hans gerilinn og þegar hún aft-
ur stingur heilbrigðann mann,
spýtir hún gerlinum í líkama
hans, sem orsakar veikina.
Aðalmenn nefndarinnar voru
Dr. Walter C. Reed, James Car-
roll, Jesse W. Lazear og Aristide
Agremonte, en aðstoðarmann
hafði hann marga, aðallega menn
úr herliði Bandaríkjanna, sem
þá hafði aðsetur í Havana. Eng-
inn vissi um útbreiðslu orsök
sýkinnar þegar nefndin byrjaði
starf sitt. Fyrsta tilraunin var
að hreinsa borgina, en þrátt fyr-
ir alla viðleitni í þessu tilliti
varð enginn árangur því sýkin
var vís að brjótast út, kannske
með mestum krafti þar sem
mestum hreinlætisreglum var
beitt og nefndin varð engu vís-
ari um upptök og útbreiðslu
sýkinnar, svo nú voru ekki önn-
ur ráð en að rannsaka hugmynd
þá, sem áður er um getið, með
fluguna. Engar skepnur taka
veiki þessa, svo það var úr vöndu
að ráða, menn varð að nota við
tilraunirnar, sem ekki höfðu
tekið veikina. Nefndinni fanst
að hér væri svo mikið í húfi fyrir
velferð riiannanna, að komast í
allan sannleikann, að hún ákvað
að gjöra tilraun, en henni kom
saman um aðeins að nota sjálf-
boðaliða og þá aðeins þá, sem
fyllilega hefðu gjört sér grein
fyrir hættunni, en fyrst og
fremst var ákveðið að nefndar-
mennirnir sjálfir gjörðu fyrstu
tilraunirnar.
Dr. Reed varð nú í bili að
bregða sér heim til Bandaríkj-
anna, svo Dr. Lazear byrjaði á
tilraunum, lét hann nokkrar
flugur, sem han« hafði aliö i til-
raunastofu sinni, stinga gulu-
veikis sjúklinga, og sneri þeim
síðan á sig sjálfann og nokkra
aðra, en í bráð varð enginn ár-
angur.
Næst reið Dr. Carroll á vaðið,
stungu hann nokkrar flugur, sem
álitið var að hefðu stungið sjúkl-
inga, og eftir nokkra daga sló
veikin hann niðuír, var hann
fluttur á einangrunarstöð nefnd-
arinnar, og var hann þar við
dauðans dyr um tíma, en komst
þó til heilsu aftur. Dr. Lazear
gjörði nú aðra tilraun á sjálfum
sér, og varð hann brátt altekinn
af veikinni, og fluttur á einangr-
unarstöðina, gaf hann nú Dr.
Carroll allar sínar heimildir og
skýrslur í sambandi við rann-
sóknirnar, þrjá daga barðist
hann hraustlega mót veikinni, en
þá versnaði honum snögglega,
og hann dó eftir fjóra daga. Hann
lét eftir sig ekkju og 2 börn ung,
annað hafði hann aldrei séð.
Hann var aðeins 34 ára er hann
með sjálfsfórnaranda gaf líf sitt
fyrir háa hugsjón. Á plötu í John
Hopkins háskólanum í Baltimore
sem er þar til minningar um
hann eru þessi orð skráð: “Með
jafnvel meira hugrekki og fórn-
færslu en hermaðurinn hætti
hann lífi sínu til þess að sanna
hvernig ægileg drepsótt út-
breiðist, og hvernig er hægt að
uppræta hana.”
Nú var sannað að flugan út-
breiðir sýkina. Kom læknunum
nú saman um að ganga úr skugga
um það hvort hún gæti útbreiðst
á annan hátt. Var stofnuð rann-
sóknarstöð og nefnd eftir Dr.
Lazear, eina mílu frá Quemados
í Cuba. Voru tjöld reist og tveir
skálar voru bygðir, var annar
þeirra hólfaður í tvent með fín-
um netum, flugur voru settar í
annað hólfið, en engar í hinn
endann. í hinum skálanum var
rúmfatnaður og klæði gulu sjúkl-
inga, nú átti að ganga úr skugga
um það, hvort veikin gæti bor-
ist á annan hátt en með flugu-
bitinu. Voru nú sjálfboðar kall-
aðir, og buðu sig strax fram 2
menn, John Kissinger og John
Moran, báðir frá Ohio, báðir
r
tc««%tcv«««te!ctc!e(ct«tctctcictcic!cic!etc<«tc!ctc!«tc!cictc!ctctctcteic«
|
Glegileg jól gott og farsælt nýár,
|
i
8
á
1
&
■
8
8
8
|
I
»MH«kStS)lt»»a)»»i%3l>>St»lSt3)St>t»3)3tS)9»»»iat3)3t3l3)Sta»»)StItat»3t3t»»t3)3«3)»Sie
? R0LLY WALKER AND C0MPANY
MILITARY TAILORS AND CLOTHIERS
473% PORTAGE AVENUE, WINNIPEG
Við hliðina á Mall Hóielinu
SÍMI 72 030
buðust til að fara inn í flugna-
skálann í þarfir mannúðar og
vísindanna. Dr. Reed sagði þeim
að þeim væri ætluð góð laun
fyrir þetta sjálfsfórnarstarf, en
báðir afsögðu nokkur laun, og
afsögðu að takast þetta á hendur
ef nokkur laun væru ákveðin,
Dr. Reed tók ofan fyrir þeim og
mælti: “Eg lýt yður herrar mín-
ir”.
Nú fóru mennirnir inn í
skálann, þeir sem fóru í flugna-
skálann veiktust allir, en þeir
sem voru hinu megin við vír-
netið sluppu allir, ein meiri
sönnun fyrir því, að flugurnar
einar útbreiddu sýkina. Þá var
rannsókn hafin í hinum skálan-
um, Dr. Robert F. Cooke og tveir
óbreyttir liðsmenn buðu sig þar
fram. Var sá skáli fullur af alls-
kyns pestarfötum, sem gulu
sjúklingar höfðu notað. Þarna
breiddu þeir úr öllu daglega og
sváfu í rúmi, sem sjúklingar
höfðu sofið í; þarna voru þeir í 20
nætur og daga, í loftillum skála
í 90 gráðu hita og varð engum
meint af, og var þar með sann-
að, að sjúkdóms gerillinn berst
ekki með klæðnaði sjúklinga og
á engann hátt nema með stungu
þessarar illræmdu flugu.
Þetta drengilega rannsóknar-
starf í þarfir mannúðar og vís-
inda hélt lengi áfram og var
margt fórnar starf þar unnið, sem
hér verður ekki getið. Margir
stofnuðu lífi sínu í voða, og
nokkrir mistu það, og alt þetta
var unnið til að leiða sannleik-
ann í ljós mannkyninu til bless-
unar.
Að lokinni rannsókninni var
það öllum heimi ljóst frá hverju
hættan stafaði í sambandi við
drepsótt þessa, og var nú hafið
stríð á hendur flugunni, og öll
nútíðartækni notuð til að upp-
ræta hana. Hefir sýkinnar orðið
vart í smáum stíl, en hún hefur
aldrei náð sér niðri svipað því
sem áður var, og full ástæða er
að ætla að heimurinn ^urfi ekki
að óttast hana í framtiðinni.
Um starf Dr. Reed og rannsókn
arnefndarinnar ferst hinum
Jftetctctctcteteteteteteicicietetctetetctcieteteicteieteteieieieieteieietcieteteteteicicieietcietetctcte®
*
1
i
X
JEWEL STORES
Slarfsfólk og framkvæmdarstjórn JEWEL búðanna
árnar íslenzkum viðskipfavinum sínum gleðilegra jóla
og gifiuríks nýárs.
S
I
8
»»»»»st»»»»»»»»»»»»»»S)»»»»»»»»»»at»»»»»»»»»%»»»»»S)»»»»^
gtctcteteictetetetetetetcteteteteteteteteteteteteteteteteieteieieteteteteteteteteteteteteteicietetetete®
Innilegar jóla- og nýársóskir iil allra
íslenzkra viðskipiavina vorra.
WESTON’S
BREAD and CAKE (Canada) LTD.
I
I
á)Sðt»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»@
jteteteKtetetetetcieteteteteteteteieteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteietetete®
S «
l HÁTiÐAKVEÐJUR \
MACD0NALD SH0E ST0RE LTD.
i
492—4 MAIN STREET
"You Are As Young As Your Feet"
1
I
8
1
8
»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»«9
Innilegar Jólakveðjur
til vina vorra og viðskipiavina
Gundry - Pymore
Limited
60 Vicioria Sireei, Winnipeg
Sími 98 211
T. R. Thorvaldson, Manager
merka enska blaðamanni, Arth-.
ur Mee orð á þessa leið:
líÞað hefur hvergi verið sýnd
meiri manndáð og hugrekki í
neinu ævintýri, en það, er fram
kom í sambandi við uppgötv-
un þá er gjörð var um orsök og
útbreiðslu gulu veikinnar, jafn-
vel þó enginn árangur hefði orð-
ið hvað frelsi snertir. Jafnvel þó
Spánar stríðið hefði engann ár-
angur haft, frá sjónarmiði frelsis
hugsjóna, þá er sigurinn yfir
gulu veikinni meira virði en
stríðið hundrað sinnum.
Leonard Wood hershöfðingi
sagði: “Eg þekki engann mann
sem hefur gjört eins mikið fyrir
mannkynið og Dr. Reed. Upp-
götvun hans bjargaði fleiri
mannslífum árlega, en allir þeir
sem mistu lífði í stríðinu, og
fjárhagslegur hagnaður fyrir
herinn árlega er meiri en allur
kostnaður við Spánar stríðið.
Hann gaf mönnunum vald yfir
hinni hræðilegu pest, gulu veik-
inni”.
Skömmu áður en Dr. Reed dó
skrifaði hann konu sinni eitt-
hvað á þessa leið: “Sú bæn sem
eg hefi alið í brjósti 1 20 ár, að
eg mætti bera gæfu til þess á
einhvern hátt að létta mannlegí
böl, hefur nú ræst og verið svar-
að.
Hann dó á besta aldri skömmu
eftir að hann vann sitt mikla
afreksverk.
G. J. Oleson.
gteKKKKWKKKKKKKKKKKKKKKteKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKiS
| S
I 8
INNILEGAR HÁTÍÐAKVEÐJUR!
| |
I Notíð HAPPY I
I GIRL 1
HVEITI 1
‘ 1
í alla yðar bökun
l
&
I SOO LINE MILLS LIMITED
HIGGINS OG SUTHERLAND, WINNIPEG
|
i
is»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»i
iKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKV
BEZTU JÓLA OG NÝÁRSKVEÐJUR
MEGI ÁRIÐ KOMANDl FÆRA VARANLEGAN FRIÐ.
NORTH AMERICAN LUMBER AND SUPPLY
COMPANY LIMITfD
át»»»»»»»»»»»»»»»»at»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»cí
Ef þú þarft að ná
LANGLÍNU
SAMBANDI
4
þá gjörðu svo vel að gjöra það fyrir klukkan
sex að kvöldinu.
)
Með því
gefsi hermönnum Canada, sem í fjarlægð
dvelja, kostur á að nota símalínurnar á kvöldin
til þess að ná viðtali við heimilisfólk sitt og
fjölskyldur um hátíðirnar.
Manitoba Telephone System