Lögberg - 28.12.1944, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. DESEMBER, 1944
3
PENICILLIN
NÝJASTA UNDRALYF LÆKNISFRÆÐINNAR
EFTIR DR. C. M. FLETCHER
Ein mikilverðasta framför,
sem orðið hefir í læknavísind-
unum á síðustu tíu árum er
uppgötvun lyfjaflokks eins, sem
gengur undir nafninu sulfon-
amid, eða sulfalyf. Þessi lyf eru
gædd þeim undramætti, að þau
fyrirbyggja fjölgun skaðlegra
sýkla, sem komist hafa í manns-
líkamann og valda þar oft ban-
vænum sjúkdómum. Þau manns
líf, sem þessi sulfalyf hafa bjarg-
að, skifta mörgum tugum þús-
unda. En einn ókostur hefir þó
á þeim verið. Þó að þau séu
margfalt skaðvænlegri sýklun-
um, sem sjúkdóminum valda,
en manninum, sem fyrir sjúk-
dóminum varð, geta þau vald-
ið sjúklingnum mikilla óþæg-
indum og jafnvel stofnað hon-
um í lífshættu, ef stórir skamt-
ar eru gefnir af lyfinu.
Síðustu þrjú árin hafa brezk-
ir vísindamenn verið að starfa
að framleiðslu nýs lyfs, sem er
stórum áhrifameira en sulfalyf-
in, en algerlega meinlaus sjúkl-
ingnum. Uppgötvun þessa lyfs er
að þakka glöggri athugun brezks
sýklafræðings, Alexanders Flem
ing prófessors, árið 1929. Hann
var að rækta á rannsóknarstofu
sinni sýkla þá, sem valda graftar-
kýlum. Hafði hann sett sýkil-
inn í einskonar soðhlaup á grunn
um diski, og ætlast til að sýkla-
gróðurinn þrifist þar í friði, en
eins og flestar húsmæður vita
er það enginn hægðarleikur að
verjast myglu í hlaupi, því að
hún er þrásækin þangað, sem
hún má síst koma. Og nú mynd
aðist mygluskán á þessum til-
raunajafningi Flemings prófes-
sors.
Tilraunir hans með sýklagróð-
urinn mistókst og ekkert var
líklegra en hann hellti öllu sull-
inu í þvottavaskinn; en nú tók
hann eftir dáltilu, sem honum
þótti einkennilegt. Sýklarnir
höfðu aukist og margfaldast og
breiðst út um yfirborð jafnings
ins, nema þar sem mygluskánin
var og næst henni. Það var eins
og myglan hefði afstýrt fjölgun
sýklanna — eitrað fyrir þá.
Fleming tók ofurlítið af mygl-
unná, set|i hana í “fóður” á
kjötseyði og lét hana dafna þar
í nokkra daga. Þá rannsakaði
hann kjötseyðið og varð nú þess
vísari að sýklarnir gátu ekki
þrifist í því.
Af þessu réði Flemming að
úr myglunni hefðu komist í
kjötseyðið einhvert efni, sem
gæti stöðvað sýklagróðurinn og
þrif sýklanna. Þetta efni skýrði
hann penicillin, eftir myglu-
tegundinni, sem hafði myndast
í hlaupinu, en hún heitir Penic-
illium Notatum. Fleming skildist
þegar, að þetta efni mundi vera
hægt að nota til þess að hefta
fjölgun sýkla, sem valda sjúk-
dómum í mannslíkamanum, en
eigi tókst honum — þrátt fyrir
margvíslegar tilraunir — að ná
hreinu penicillin úr kjötseyðinu,
og penicillin-seyðið reyndist
banvænt tilraunadýrum þeim,
sem hann dældi því í.
Nú leið og beið og ekkert
gerðist í málinu fyrr en árið 1940.
Þá var það að flokkur ungra
vísindamanna í Oxford, undir
forustu H. W. Florey prófessors
hóf á ný tilraunir í þá átt að ná
hreinu penicillin úr mygluseyð-
inu. Þetta reyndist mjög erfitt,
en smám saman tókst þó að
einangra hreinna penicillin en
áður. Þetta efni var gult duft,
sem auðvelt er að leysa upp
vatni. Það var reynt á skaðvæn-
um sýklum, sem ræktaðir voru
á hannsóknarstofunum °S við
þær tilraunir kom í ljós, að þetta
efni var sýklunum að minsta
kosti þúsund sinnum banvænna
en sterkustu súlfa-lyf. Og þegar
það var gefið músum, sem höfðu
fengið banvænan skamt af sýkl
um, þá læknuðust þær fljótlega,
án þess að lyfið gerði þeim nokk-
urt mein.
Nú var næsta skrefið það að
reyna nýja lyfið á manninum.
Til þeirra tilrauna þurfti vitan-
lega margfalt stærri skamt, og
nú urðu nýir örðugleikar á vegi.
Þó að auðvelt væri að rækta
eins mikla myglu og hver vildi
hafa, þá var það stundum svo,
að myglan framleiddi ekki neitt
penicillin. Það kom á daginn áð
þetta stafaði af því að í stóru
ilátin, sem notuð voru til myglu-
ræktunarinnar vildu komast aðr-
ar myglutegundir og sömuleiðis
sýklagróður, en sumt af þessum
aðskotaverum eyðilagði eða
eyddi penicillinínu jafnóðum og
það myndaðist. Loks tókst að sjá
við þ'essum misfellum og loks
kom að því, að nægilegt var
fyrir af nýj’a lyfinu til þess að
gera tilraunir á sjúklingi.
Fyrsta tilraunin á manni var
gerð árið 1941. Til þessara til-
rauna voru valdir menn, sem
áður hafði án árangurs verið
reynt að lækna með súlfa-lyf-
um. Var dælt í þá pencillin með
stuttu millibili dag og nótt. Tveir
sjúklingarnir fengu bata um
stundarsakir en ekki varanleg-
an. Hinir þrír fengu fullan bata.
Var talið að þeir fyrnefndu hefðu
ekki fengið nægilega stóran
skamt.
Tilraunirnar á þessum fimm
sjúklingum vöktu góðar vonir
læknanna, en þó voru enn ó-
gerðar margskonar tilraunir
uns ágæti hins nýja lyfs væri
viðurkennt af læknum. Til þess-
ara tilrauna þurfti miklu meira
af lyfinu en hægt var að fram-
leiða á rannsóknarstofunum
Oxford. Og um þessar mundir
voru loftárásir á England með
svæsnasta móti og engin stofn-
un vildi taka að sér að fram-
leiða penicillin í stórum stíl.
Þessvegna fór Florey prófessor
með starfsmenn sína til Banda-
ríkjanna og hafði með sér all-
mikið af myglugróðri þangað.
Flugu þeir vestur um haf og
nú var farið að framleiða lyf-
ið á nokkrum stöðum í Banda-
ríkjunum. Á næsta' ári (1942)
hafði tekist að safna talsverð-
um birgðum af penicillin. Og
nú færðust tilraunirnar í auk-
ana. Þær staðfestu það, sem
áður var vonað um ágæti lyfs
ins. Þó að því væri dælt í sjúkl
inga í mjög stórum skömtum
pá sakaði það þá eigi. Og lyfið
læknaði ýmiskonar eitrunar-
sjúkdóma, er súlfa-lyfin höfðu
eigi unnið bug á, og þó að
graftarígerðir væru í sárum þá
dugði penicillin -eigi að síður,
en þessu var öðruvísi varið með
súlfa-lyfin. Penicillin var því
stórum betra en súlfa-lyf, þegar
um var að ræða graftarígerðir í
sárum, og kýli.
En þó var einn galli á þessu
nýja lyfi. Það þoldi ekki sýr-
ur, svo að ekki þýddi að gefa
það inn eins og flest lyf, því
að þá eyddist það af sýrum
maganum. Þessvegna varð að
dæla því inn í líkamann.
Einnig var annar hængur og
alvarlegri á almennri notkun
penicillins. — Enn hefir ekki
reynst kleift að framleiða það
nema með vandasamri og sein-
færri aðferð, þ. e. a. s. það er
enn seinlegt að vinna efnið
úr myglusoðinu. Enn sem kom-
ið er er framleiðslan á þessu
merkilega lyfi því lítil, og hefir
til skams tíma aðallega gengið
til tilrauna vísindamannanna
Þó hefir nokkuð orðið afgangs
og hefir það fram að þessu allt
verið sent til vígstöðvanna.
Notkun þess þar hefir leitt
ljós, að penicillin er óviðjafn-
anlegt meðal við blóðeitrun
lungnabólgu, heilahimnubólgu
lekanda, blóðkýlasótt og fjölda
annara sjúkdóma. í hernaði
hefir það reynst sérstaklega
gott til þess að verjast spillingu
í sárum og bruna, en slík sáx'
margfölduðu legudagafjölda
tugþúsunda hermanna í síðustu
styrjöld og urðu mörgum ban-
væn.
Nú sitja efnafræðingar með
sveittan skallann við að finna
efnasamsetningu penicillins, og
takist það þá er líklegt að hægt
verði að framleiða það með
efnablöndum og á auðveldan
og ódýran hátt. Enn sem kom-
ið er hefir lítill árangur orðið
að þessum tilraunum en þó
hefir dálítið þokað í áttina. En
þegar fullur árangur verður af
þessum tilraunum má gera ráð
fyrir, að penicillin verði til
taks í hverri lyfjabúð um allan
heim og að mannkynið í heild
njóti góðs af því.
Öldum saman hefir myglu-
sveppurinn Penicillium Notat-
um verið að framlaiða peni-
cillin, en eigi eru nema rúm
þrjú ár síðan breskir vísinda-
menn uppgötvuðu nytsemi þess-
arar framleiðslu fyrir lækna-
vísindin. — Þegar lærst hefir
hvernig myglan framleiðir þetta
undraefni, og vísindamönnum
tekst að framleiða lyfið með
efnablöndun á rannsóknarstof-
um, munu læknarnir hafa í
fullu té við marga banvænustu
sjúkdóma, sem nú þjá mann-
kynið.
Fálkinn.
MINNINGARORÐ
Mrs. Kristín Björnsson, kona
Stefáns trésmiðs Björnssonar
Selkirk, andaðist á Almenna
sjúkrahúsinu þar, þann 20. nóv.
síðdegis. Hún var fædd 21. des.
1862, að Meiðastöðum í Garði í
Gullbringusýslu, dóttir heiðurs-
hjónanna Árna Þorvaldssonar,
1 hreppstjóra þar, en síðar hrepp-
stjóra að Innra-Hólmi, í sömu
stöðu allri, sem löngum hefir
verið talið mikilsvert sérkenni
íslenzks fólks, einkendi hugar-
stefnu Kristínar og Stefáns
manns hennar. og heimili þeirra,
bæði inn á við og út á við. Undir
þunga áföllum lífsins — við lát
elskaðs sonar þeirra — í veik-
indum hennar, kvörtuðu þau
aldrei við neinn, en báru jafn-
an höfuð hátt hvort sem með
gekk eða móti. Vinátta þeirra
var trúföst og djúptæk. Á 60
ára samfylgd með manni sínum
naut Kristín ástar hans og virð-
ingar, og umöpnunar hans og
sona þeirra, eftir því sem þeim
var framast auðið í té að láta.
Lausn dauðans, sem var lang-
þráð af hennar hálfu, lauk heið-
arlegum æfiferli merkrar ís-
lenzkrar konu.
Útförin fór fram 23. nóvember
frá útfararstofu Mr. Langrills,
og frá kirkju Selkirk safnaðar.
Blaðið Vísir í Jleykjavík er
vinsamlega beðið að birta þessa
dánarfregn.
S. Ólafsson.
lífsmarks með því. Það höfðu
menn fyrir satt, að hvorki hefði
hesturinn dottið eða hrasað,
heldur mundi ómegin hafa
svifið á prófast, og hann svo
liðið niður af hestinum. Nokkr-
ir ætla, að hnakkurinn hafi ver-
ið lausgirtur og aftarlega á
lagður, og fyrir því hafi hann
snarazt svo auðveldlega.
Business and Professional Cards
Forspá
sýslu og fyrri konu hans Solveig-
ar Þórðardóttir; voru foreldrar
Kristínar þróttmikið og dugandi
fólk af góðum ættum komið.
Ung að aldri giftist Kristín
Stefáni Björnssyni Guðmunds-
sonar frá Kjartansstöðum og
Sigríðar Bjarnadóttur konu hans.
Ætt hans er hin merka og marg-
menna Sjávarborgar ætt í Skaga
firði. Stefán fóstraðist upp á Ing-
veldarstöðum á Reykjaströnd, og
rar bjuggu þau Kristín og Stefán
um hríð, áður en þau fluttu vest-
ur um haf árið 1886. Rúm þrjú
ár bjuggu þau í grend við Ár-
nes, í Nýja-íslandi, en fluttu þá
til Selkirk, árið 1890, og bjuggu
Dar þaðan af — full 54 ár. —
Þeim varð fjögra barna auð-
ið, elztur er Árni,í smðiur í
Selkirk, býr með föður sínum.
Stefán, læknir, kvæntist Önnu
Eugene Emery, látinn 21. sept.
1934, þau áttu tvo sonu, annar
þeirra, Norman, er læknir,
Bjarni, smiður, heima með föð-
ur sínum og bróður.
Sólveig Anna, gift Thos. H.
Hawken, Miami, Man. Systur-
dóttir hinnar látnu er Mrs. Ragna
Björnsson, Víðis-bygð, Man.
Mörg skyldmenni eru á lífi á
íslandi, munu flest búsett í
Reykjavík og um Suðurland.
Kristín var kona þrekmikil og
sjálfstæð að upplagi til. Lengst
æfinnar var hún heilsuhraust og
leysti annir og skyldustörf sín
afburðavel af hendi. Fyrir nokkr
um árum fékk hún áfall, svo
þaðan af mátti hún ekki í fæt-
ur stíga, var rúmliggjandi þaðan
af og leið oft miklar þjáningar.
Liðu siðustu æviárin hjá með
seinagangi þeim, sem elli og sjúk
leika eru tíðum samfara. Þá,
sem á undangenginni æfi, sýndi
hún þróttlund trúarinnar á
Guð, er jafnan hafði verði henni
styrk stoð.
Kristín var ein af stofnend-
um Kvenfélags Selkirk safnaðar,
mikilsmetin og áhrifarík í þeirra
hópi, áratugum saman; bæði
voru þau Björnssons hjónin
meðal frumherja Selkirk safn-
aðar.
Sjálfstæði í skoðunum og af-
DR. A. BLONDAL
Physician & Suryeon
«02 MEDICAL ARTS BLDG
gfmi 22 296
Heimiii: 108 Chataway
Slmi 61 023
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
9
606 SOMERSET BLDG.
Telephone 88 124
Home Telephone 202 398
Frá
a vini
Það er í almæli, að Þorlákur
prestur Þórarinsson, skáldið
(1711—73), hafi löngu áður en
það kom fram, sagt fyrir að
hann mundi tína lífi í Hörgá, og
að hann hafi enda tilgreint vað-
ið á ánni, þar sem slíkt mundi
að bera.
Eitt sinn, er hann hafði lokið
embættisgjörð í kirkjunni á
Möðruvöllum um sumar, er
margt utansóknarfólk var við
kirkju, gekk hann eftir bæjar-
hlaðinu, og í kringum marga
hesta, er stóðu bundnir við
stjaka, litaðist þegjandi eftir
hestunum, en eigi var sú venja
hans. Menn stóðu nærri og sáu
að hann gekk að rauðum fall-
egum fola, klappaði á brjóst
honum og mælti: “Hérna kom-
ur þú.” Eigi vissu þeir, er nærri
voru, hvort hann piælti svo til
folans eða ekki. Prófastur vék
sér svo til þeirra og spyr, hver
eigi folann. Þeir gátu eigi frætt
hann á því. Bað hann þá hafa
upp á eigandanum, og biðja
hann að koma til tals við sig.
Þeir gerðu svo. En er eigandinn,
sem var úr annari sókn og langt
að, kom, bað prófastur hann
að selja sér folann. Hann gerði
kost á því, og hafði prófastur
folann heim með sér og hafði
hann fyrir reiðhest sinn. Af
þessum sama hesti drukkp»*»
hann í Hörgá.
Frá þeim atburði er svo sagt:
Þá er prófastur fór af stað
heiman frá sér frá Ósi, kvaddi
hann vandlegar en venja hans
var til, konu sína og dóttur og
allt heimilisfólkið. Fylgdar-
mann hafði hann með sér, en
reið á undan honum í Möðru-
vallanes allt að ánni. Eigi er
þess getið, að hann mælti neitt
við manninn á leiðinni. En er
að ánni kom bað hann að
staldra við, og lagðist niður á
bakkann og gjörði þar bæn sína
stutta stund. Síðan stóð hann
upp, þerraði tár af augum sér
og sagði síðan við fylgdarmann
inn, að nú skyldu þeir ríða á
ána. Nokkrir segja að hann hafi
fleira mælt við hann, beðið
hann að skila kveðju til ýmsra
manna, ef hann skyldi tínast
ánni, og segja djáknanum
Möðruvöllum fyrstum lát sitt;
en að líkindum er það ofhermt,
því maðurinn hefði ekki rið-
ið ána á undan eins athuga-
laust og hann gjörði.
Áin var ekki mikil, vart í kvið
á hestunum. En er maðurinn
var kominn nær því úr ánni
varð honum litið aftur. Stóð þá
Rauður í miðri ánni með hnakk-
inn undir kviði, en þrófastur
flaut á ánni. Nokkrir segja að
fótur hans væri fastur í ístað
inu, og því bæri straumurinn
hann eigi frá hestinum. Maður
inn sneri aftur og náði líki pró-
fasts úr ánni, og kenndi einskis
DR. ROBERT BLACK
SérfræSingur I Augna, Eyrna, nef
og hálssjúkdómum
416 Medical Arts Building,
Graham and Kennedy St.
Skrlfstofusimi 22 251
Heimaslmi 42 154
EYOLFSON’S DRI3G
PARK RIVER, N.D.
tslenzkur. lufsali
Fólk getur pantaó meðul og
annaC meC pðsti.
. Fljót afgreiósla.
A. S. BARDAL
848 SHERBROOK ST.
Selur llkkistur og annast um öt-
farir. Allur útbúnaCur sá beitl.
Ennfremur seiur hann allskonar
minnisvarCa og legsteina.
Skrifstofu talslmi 86 607
Heimilis talsími 26 444
HALDOR HALDORSON
hygginga meistari
23 Music and Art Building
Broadway and Hargrave
Winnipeg, Canada
Phone 21 455
INSURE your property with
HOME SECURITIES LTD.
468 MAIN ST.
Leo E. Johnson A. I. I. A. tylgr.
Phones Bus. 23 377 Res. 39 433
TELEPHONE 96 010
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
WINNIPEG, CANADA
Phone 49 469
Radio Service Specialists
ELECTRONIC
LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEG
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr.
S. M. Baekman, Sec.
Keystone Fisheries
Limited
404 Scott Block
Whotesale Dlstributors of
FRE8B AND FROZEN • FI8H
MANITOBA FISHERIES
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.st).
Verzla I he’.ldsölu meC nýjan og
frosinn flsk.
308 OWENA ST.
Skrlfstofustmi 25 355
Helmaslmi 55 463
Dr. S. J. Johannesson
215 RUBY STREET
(Belnt suCur af Banning)
Talslml 30 877
. ViCtalstlmi 3—6 e. h.
Dr. E. JOHNSON
304 Eveline St. Selkirk
Office hrs. 2.30—6 P.M.
Phone offiee 26. Res. 230
Office Phone
88 033
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
166 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m,—6 p.m.
and by appolntment
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
9
406 TORONTO GEN. TRC8TS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith SL
PHONE 26 645 WINNIPEO
Ttlei/e/s
^fiu&ítojct^totaitljbSnBiCwtmk
224 Notre Dame-
#>HONE
96 647
Legsieln&r
eem skara framúr
Úrvals blágrýti
og Manitoba marmari
BkrifiO eftir verOskrd
GILLIS QUARRIES, LTD.
1400 SPRUCE ST.
Winnipeg, Man.
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG., WPG.
e
Fasteignasalar. Lelgja hús. Út-
vega peningalán og eldsábyrgC.
bffreiCaábyrgó, o. s. frv.
Phone 26 821
ANDREWS, ANDREWS
THORVALDSON AND
EGGERTSON
LögfrceOingar
209 Bank of Nova Sootia Bld*.
Portage og Garry St.
Simi 98 291
Blóm slundvíslega afgTeidd
™ROSERY
StofnaÓ 1905
427 Portage Ave.
Winnipeg.
LT0,
GUNDRY & PYMORE LTD.
British Quality — Fish Netting
60 VICTORIA STREKT
Phone 98 211
Wlnnlpeg
Manager. T. R. THORVALDBOV
íour patronage will be
ippreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Ffsh.
311 Chambers St.
Office Phone 8® 6Bl.
Res Phone 73 917.