Lögberg - 28.12.1944, Síða 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. DESEMBER, 1944
Úr borg og bygð
Nýlátin er hér í borginni frú
Goðmunda Þorsteinsson, kona
Þ. Þ. Þorsteinssonar rithöfundar
og skálds; hún var 59 ára að
aldri. Frú Goðmunda var ættuð
úr Skagafirði, prýðis vel gefin og
trygglunduð. Kveðjuathöfnin fer
fram í Sambandskirkjunni kl. 2
e. h. á föstudaginn kemur. Þess
er óskað, að engar blómagjafir
sendist til útfararinnar.
Lögberg vottar Þorsteini
skáldi innilega hluttekningu í
hans djúpu sorg.
•
Laugardagsskólinn tekur á ný
til starfa á venjulegum stað og
tíma á laugardaginn þann 6. jan.
er þess þá vænzt, að börnin komi
stundvíslega og færi sér kennsl-
una sem allra bezt í nyt.
Ókeypis aðgöngumiðum að
Rose Theatre verður útbýtt með-
al nemenda.
•
Ungur flugnemi frá íslandi,
Hreiðar Haraldsson, kom hingað
til borgarinnar á 2. jóladag til
náms við hinn víðkunna flug-
skóla Konnie’s Jóhannessonar;
þessi ungi gestur að heiman, er
norðlenskur að ætterni, en upp-
alinn í Reykjavík.
•
Miss Ruth Benson kom austan
frá Ottawa rétt fyrir jólin í
heimsókn til móður sinnar, Mrs.
B. S. Benson, 757 Home St.
•
Miss Vera Johannson kom frá
Ottawa um jólaleytið í heimsókn
til foreldra sinna, þeirra Mr. og
Mrs. Jóhann G. Jóhannson, 586
Arlington St.
•
Á fimtudaginn 21. des. voru
þau Oswald Wathne og Jóhanna
Brynjólfsdóttir, bæði frá Reykja-
vík á Islandi, gefin saman í hjóna
band að heimili, Dr. og Mrs.
Richard Beck í Grand Forks;
voru þau hjónin svaramenn brúð
hjónanna og héldu þeim veizlu
að lokinni hjónavígslunni. Mælti
Dr. Beck þá fagurlega fyrir minni
ungu hjónanna. Séra Valdimar J.
Eylands, sem framkvæmdi gift-
inguna mælti einnig nokkur orð,
um leið og hann afhenti gjafir frá
vinum í Winnipeg.
Mr. Wathne stundar nám við
ríkisháskóla N. D. í Grand Forks,
en hin unga brúður hans var til
skamms tíma við listanám í
Winnipeg og mun hún halda þvi
áfram syðra, eftir hátíðirnar.
Brúðguminn er bróðursonur
Mr. Albert Wathne, sem starfar
við skattamáladeild Winnipeg-
borgar.
Við giftinguna var viðstödd
foðursystir brúðarinnar, Mrs.
Gunnlaugur Jóhannsson frá
Winnipeg.
Lögberg flytur ungu hjónun-
um innilegar hamingjuóskir.
•
Eins og áður hefir verið getið
um í “Parish Measager”, fór
fram merkileg og fátíð athöfn í
Vídalíns kirkju 'að Mountain, N.
D., fimtudaginn 30. nóv. Þá voru
þar þrenn hjón gift á sama tíma.
Hjónin voru: Emily Sigurrós
Kristjánsson og Kristinn Finn-
bogi Guðmundsson, bæði til
heimilis á Mountain, N. D. Ingi-
björg Thóra Hallgrímson til
heimilis á Mountain og Steve
Kristjánsson til heimilis í Eyford
bygðinni. Nora Christine Krist-
jánsson til heimilis í Eyford bygð
og Harley B. Nelson til heimilis
í Osnabrock, N. D. Setjast hjónin
er fyrst eru hér nefnd að á
IVfountain, og reka þra verzlun.
Önnur hjónin, sem nefnd eru
setjast að í Eyford bvggðinni og
stunda búskap, og síðastnefndu
hjónin setjast að í Osnabrock,
N. D., og stunda þar líka búskap.
Vegleg veizla var haldin að
giftingunni afstaðinni, í sam-
komuhúsinu á Mountain. Voru
margir viðstaddir, og nutu þar
hinnar beztu skemtunar og á-
gætra veifinga.
Þriðjudaginn 5. des. voru þaui
William Jóhann Stevens og Miss'
Soffia Margaret Thorsteinson
gefin saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að 1095 N.
14th Ave., Vancouver, B.C. Brúð-
guminn er Petty Officer í sjóliði
Canada, og er sonur Mr. og Mrs.
J. H. Stevens að Gimli, Man., en
brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.
Hrólfur Thorsteinson, í Steves-
ton, B.C. Þau voru aðstoðuð af
Mrs. Marino Thorsteinson og Mr.
Mindy James Thorsteinson.
•
Miss Snjólaug Sigurðson will
be heard in a piano recital over
CBC on Des. 29th at 3:45 p.m.
Ther program will consist of
works by Bach, Chopin and
Shumann.
•
Jon Sigurdson Chapter IODE,
heldur sinn næfta fund að heim-
ili Mrs. H. A. Bergman 221
Ethelbert St., kl. 8 e. h. á þriðju-
daginn 2. jan. 1945.
•
Samskot í útvarpssjóð Fyrstu
lút. kirkju, í tilefni af útvarpi,
26. nóv., 1944.
Frh. frá því síðast var auglýst:
Mr. og Mrs. H. Björnson,
Lundar, Man $2.00. Mrs. Guðlaug
Halldórsson, Gerald, Sask. $1.00.
Mr. og Mrs. Hinrik Johnson,
784 Bannatyne, Wpg. $1.00. Mr.
og Mrs. Jón Eyjólfson, Lundar,
Man. $1.00. Mr. og Mrs. John
Líndal, Lundar, Man. $1.00. Mr.
og Mrs. D. J. Líndal, Lundar,
Man. $2.00. Mr. og Mrs. G. J.
Oleson, Glenboro, Man. $1.00.
Mrs. Guðrún Sveinson, Víðir,
Man. $2.00. Mr. og Mrs. Victor
Sturlaugson, Langdon. N. D.
$1.00. Mrs. J. S. Thordarson,
Akra, N. D. $1.00. Mrs. A. Stur-
laugson, Langdon, N.D. $2.00.
Mr. og Mrs. O. J. Oleson, Steep
Rock, Man. $3.00. Mrs. Ingvar
Gíslason, Steep Rock, Man. $1.00.
Mr. og Mrs. Einar Johnson, Steep
Rock, Man. $2.00. Mr. og Mrs.
Adolph Scheski, Grahamdale,
Man. $1.00. Mr. og Mrs. Guðm
Thorsteinson, Gimli, Man. $2.00.
Mr. og Mrs. Sig/Sigurbjörnsson,
Leslie, Sask. $1.00. Mrs. Steina
Hillman, Bantry, N.D. $2.00.
Torfason bræður, Lundar, Man.
$2.00. Kristín Fjelsted, Lundar,
Man. $1.00. Kristjana Fjelsted,
Lundar, Man. $1.00. Mr. og Mrs.
Th. Olafson, Antler, Sask. $1.00.
Mr. og Mrs. Kristján Guðmund-
son, Árborg, Man. $1.00. Ingi-
björg Gíslason, Árborg, Man.
$1.00. Mr. og Mrs. O. N. Kárdal,
Gimli, Man. $2.00. Mrs. Þuríður
Johnson, Upham, N.D. $1.00.
Kærar þakkir
V. J. E.
Umsögn um hið glæsilega jóla-
hald í Fyrstu lútersku kirkju,
birtist í næsta blaði.
The Swan Manufacturmg Co.
Manufacturers of
8WAN WEATHER-8TRIP
Winnipeg.
Halldór Methusalems Swan
Eigandi
281 James Street Phone 22 641
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
FARIÐ EKKI Á MIS VIÐ
HIN UNDURSAMLEGU
KAUP Á LCÆ)FÖTUM
HJÁ.
Perth’s
1945 TÍZKA
ÚRVALSEFNI *
ÓVIÐJAFNANLEG GÆÐI
Heimsækið PERTH’S
MASTER FURRIERS
484 PORTAGE AVE.
Just west of the Mall
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands,
Heimili: 776 Victor St. Sími
29 017. %
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 11 f. h. á ensku.
Kl. 12.15 sunnudagaskóli.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Söngæfingar:
Yngri söngflokkurinn á fimtu-
dögum kl. 8.
Eldri söngflokkurinn á föstu-
dögum kl. 8.
Áramóta guðsþjónustur
í Fyrstu lút. kirkju.
31. des. kl. 11 á ensku.
31. des. kl. 7 á íslenzku.
Allir velkomnir.
•
íslenzk guðsþjónusta í
Vancouver.
Kl. 7,30 e. h., sunnudaginn 7.
jan., í dönsku kirkjunni á E 19th
Ave. og Burns St.
Allir velkomnir.
R. Marteinsson.
•
Prestakall Norður Nýja íslands.
31. des.—Hnausa, messa kl. 2
e. h.
1. jan.—Árborg, ensk messa kl.
2 e. h. (“Dedication of Honor
Roll, containing names of memb-
ers and adherents in the armed
services”).
B. A. Bjarnason.
Um hátíðirnar kom eftirgreint
fólk í heimsókn til foreldra og
vina: Mr. og Mrs. Morten Parker;
er Mrs. Parker dóttir þeirra Mr.
og Mrs. S. O. Bjerring; Beatrice
Hanneson, frá Langruth; L. A.
C. Harold Sigurðson, sonur Mr.
og Mrs. Sigurbjörn Sigurðson;
Lieut. Ronald S. Hafliðason,
Bissett; Flt. Sarg. Lárus Melsted,
sonur Mr. og Mrs. S. W. Mel-
sted.
•
Hið eldra Kvenfqlag Fyrsta
lúterska safnaðar, heldur fund á
venjulegum stað og tíma þann
4. janúar n. k. Prestur safnaðar-
ins, séra V. J. Eylands, flytur
erindi á fundinum, og er þess
vænst, að sem allra flestar félags
konur sæki fundinn.
Smjörseðlar númer 86, 87, 88
og 89 falla úr gildi 31. desember,
einnig allir sykur, sætmetis, D
(sætmetis) og F (niðursuðu
sykur) í bókum númer þrjú og
fjögur. Eina skömtunarbókin í
gildi eftir fyrsta janúar verður
bók númer fimm.
Þegar Daniel Webster var í
barnaskóla, var hann mjög trassa
fenginn með útlit sitt. Eitt sinn
sem oftar kom hann mjög ó-
hreinn um hendurnar í tíma.
Kenslukonan hótaði honum þá,
að ef hann nokkurntíma oftar
kæmi svo óhreinn í skólann,
myndi hún refsa honum. Þrátt
fyrir þessa hótun braut hann
nokkrum dögum seinna af sér
í þessum efnum.
“Daniel”, sagði kenslukonan,
“sýndu mér hendina”.
Hann svitnaði, núði höndunum
við buxur sínar og sætið, stóð
síðan upp og rétti út hægri hönd-
ina.
“Daniel”, sagði kenslukonan,
“ef þú getur fundið nokkra hendi
hér í kenslustofunni, jafn óhreina
þessari, þá muntu sleppa.”
Daniel var ekki seinn á sér að
rétta fram vinstri hendina.
Borgið LÖGBERG
Falleg Music—Fimm einsÖDgslög
Eftir Sigurð Þórðarson, stjórnanda Karlakórs Reykjavíkur
Hér er um lög að ræða, sem allir söngelskir menn og konur
ættu að eignast, jafnt enskumælandi fólk, sem íslenzkt,
því texti hvers lags er bæði á ensku og íslenzku. Lögin
eru hvert öðru fegurra og samin við erindi, sem allir
kunna og muna.
LÖGIN ERU ÞESSI.
1. Sjá dagar koma ár og aldir líða. Úr hátíðarljoðum
Davíðs Stefánssonar.
2. Mamma. Eftir Stefán frá Hvítadal.
3. Vögguvísa. Eftir Valdimar V. Snævar.
4. Sáuð þið hana systur mína. Eftir Jónas Hall-
grímsson.
5. Harmljóð. Eftir Stefán frá Hvítadal.
Forsíða þessa söngheftis er með afbrigðum frumleg og
fögur. Heftið kostar aðeins $1.50 og sendist póstfrítt út
um land.
BJÖRNSSON’S BOOK STORE
702 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN.
Að árið sem í hönd fer megi verða farsælt og friðsamt
öllum viðskiptavinum vorum og öllu fólki og megi
traust og velvild sú, sem við höfum notið á árinu
liðna hjá tslendingum, aukast og eflast á komandi ári.
ÞESS ÓSKAR
STARFSFÓLK OG STJÓRNENDUR
Shop-Easy
Búðanna
Munið eftir að
Verzlunarstöð númer 3 er að 611 Sargent Ave.
Verzlunarstöð númer 4 er að 894 Sargent Ave.
Ömissandi bók
Matreiðslubók kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í
Winnipeg hefur selst ágætlega. Er nú ekki nema lítið
eftir af annari prentun. Og sýnir það hvað afarmiklum
vinsældum bókin hefur náð, eins og hún á skilið, því
hún má heita ómissandi hverri húsmóðir sem við mat-
reiðslu fæst, Þar sem nú er lítið eftir af upplaginu,
ætti það fólk, sem bókina vill fá, að gjöra það sem
fyrst. Hún selst áreiðanlega öll áður en langt um líður.
Bókin kostar $1.00, póstgjald 5c. Hún fæst hjá þeim
konum er hér segir:
Mrs. A. S. Bardal, Suite 2, 841 Sherbrook St.; Mrs. B.
J. Brandson, 214 Waverley St.; Mrs. J. Bilsland, 960
Sherburn St.; Mrs. Ben Baldwin, 11 Asa Court; Mrs.
G. M. Bjarnason, 448 Greenwood Place; Mrs. T. J.
Blondal, 907 Winnipeg Ave.; N. W. Dalman, Suite 4,
Elford Apt.; Mrs. H. H. Eager, 151 Ferndale Ave.; Mrs.
E. S. Felsted, 525 Dominion St; Mrs. J. S. Gillies, 680
Banning St.; Mrs. H. Gray, 1125 Valour Road; Mrs.
Finnur Johnson, Suite 14, Thelmo Mansions; Mrs. A.
C. Johnson, 113 Bryce St.; Mrs. G. F. Jonasson, 195
Ash St.; Mrs. C. Olafson, Suite 1, Ruth Apts.; Mrs. O.
B. Olsen, 907 Ingersoll St.; Mrs. W. R. Pottruff, 216
Sherburn St.; Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw St.; Mrs.
O. Stephensen, Suite 2, 909 Grosvenor Ave.; Mrs. F.
Thordarson, 996 Dominion St.
Agnes Sigurdson
PIANIST
In Recital
CONCERT HALL, AUDITORIUM
Wednesday, January lOth
8:30 o’clock
Admission 50c and 75c
Tickets on sale at Björnsson’s Book Store,
and at Music Stores.
Veturinn nœðir oft napur á sléttum Manitoba.
Eldsneytis spursmálið er því stór spursmál allra,
sem þar búa. Hvaða tegundir kola menn eigi að
kaupa, sem séu drýgst og hiti mest. Það er spurs-
málið. Reynið Foothill (Fjallahœða kolin) frá
WINDATT COAL C0MPANY LIMITED
Einu elsta og ábyggilegasta kolasölufélagi Winnipegborgar
Aðalskrifstofa 307 Smith Street, Winnipeg
Umboðsmaður Mr. Jón Ólafsson
Heimasími 37 340 Skrifstöfusími 27 347
\/erum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir
hverju nafni, sem þœr nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
DREWRYS
LIMITED
HOUSEHOLDERS
--- ATTENTION --
We have most of ihe popular brands of coal in
stock at present, but we cannot guarantee that
we will have them for the whole season.
We would advise that you order your fuel at
once, giving us as long a iime as possible for
delivery. This will enable us to serve you better.
MCpURDY CUPPLY fO. LTD
V^BUILDERS'KJ SUPPLIES \y and COAL
Phone 23 811—23 812
COAL
1034 Arlington St.