Lögberg - 01.03.1945, Síða 7

Lögberg - 01.03.1945, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. MARZ, 1945 7 Geysir Stúlkur og drengir: I síðasta kafla sagði eg ykkur frá eldfjöllunum og eldgosunum a íslandi og hvernig hin heita grjótleðja brýst upp úr jörðinni, vellur yfir landið í kring og verð- ur hraun. Hraun eru mörg og stór á landinu, einkum í óbygð- Um' Mest þeirra er Ódáðahraun norðan við Vatnajökul. Finnið t>að á kortinu. Ódáðahraun er stærsti hraunfláki sem til er á jörðinni. Nú eru eldgos á íslandi miklu fátíðari en áður var. Þau smáu eldgos, sem komið hafa í seinni f!ð hafa verið langt frá manna kyggðum. Þessir jarðeldar á íslandi, sem °ft á umliðnum öldum, hafa or- sakað svo mikið böl, færa þjóð- inni einnig blessunarríkar gjafir. Jarðeldarnir hita vatnið niðri 1 jörðinni, þetta heita vatn sprettur upp úr jörðinni víðs- Vegar um landið. Þegar vatnið sýður er uppsprettan kölluð hver; ef það er volgt, þá er það nefnt laug. Sumir hverir gjósa vatni og gufu hátt í loft upp. Frægastur þeirra hvera, sem gjósa er hinn mikli Geysir. Allir aðrir gos-hverir í heiminum hafa verið nefndir eftir Geysi. Á frið- artímum koma margir ferða- ^renn til Islands til þess að sjá Þetta náttúru undur. Finnið Geysir á kortinu. Þegar þið ferðist til Geysis, ^unið þið sjá stóra skál fulla af sjóðandi vatni. Alt í einu heyrið þiö dunur og dynki langt niðri 1 Jörðinni; jörðin skelfur, vatnið sýður út af skálar börmunum. Svu kemur gosið. Sjóðandi vatns- strókar þeytast beint í loft upp Uln 150 til 200 fet. Eftir svo sem ffu mínútur fellur vatnið alt í einu niður í skálina; hún verður tóm og þá sést pípa niður úr henni. Brátt fyllist skálin aftur svo er kyrð þar til næsta gos kem ur. Stundum er hægt að flýta gosinu með því að gefa Geysir sápu. Þótt það sé gaman og hrífandi að horfa á goshverina, þá eru þeir til lítils gagns, en það er hægt að nota vaínið í hinum hverunum sem ekki gjósa. í næsta kafla mun eg segja ykkur frá því hvernig íslending- ar beizla heitu uppspretturnar og notfæra sér þær á margvíslegan hátt. Orðasafn. grjótleðja — molten rock óbyggðir — uninhabited land hraunfláki — lava-field fátíðari — uncommon, rare jarðeldar — subterranean fires umliðnum — past orsakað — caused blessunarríkar — beneficial gjafir — gifts sýður — boils uppspretta — water spring hver — hot spring volgt — warm laug — warm spring gjósa — errupt gufa — steam friðar tímar — peace time ferðamenn — tourists náttúru-undur — wonder of nature skál — basin dunur og dynkir — deep rumblings skelfur — trembles skálar^barmur — basin rim vatnsstrókur — water columns tóm — empty kyrð — rest, quietness flýta — hasten the progress of beizla — harness notfæra — utilize Huldukona. Nýársávarp Forseta íslands: ^ýr þáttur 1 sögu íslenzku þjóðarinnar íslendingar! Þótt hver dagur- lnu sé öðrum líkur nú í skamm- ^eginu hefir friðarhátíð jólanna aÖ venju varpað birtu sinni í ug og hjarta okkar allra. Og ýrsta dag ársins veljum við til ,ess að horfa um öxl til liðna ursins og beina huganum fram a við, fyrst og fremst til árs- lns> sehi nú er að byrja. Flestum °kkar er það hugarhressing að vita það, ag nú eru iiðnir hjá unmustu dagar vetrarins, að úr Pessu birtir með hverjum deg- lnum, sem líður. Það er e-tt at óhagganlegum ógmálum lífsins, að ljós og a uggi skiptast á, hife ytra sem ið innra. Ef við lítum til ársins Sern leið verða fyrir okkur bjart- lr öagar, óvenjulega bjartir. En einnig dimmir dagar, sumir ó- Veujulega dimmir. Hver einn 0 kar hefir átt sína björtu daga n§ sína dimmu daga. En , við n um öll, Islendingar, einnig a t sameiginlega slíka daga. Goðafossdagurinn”, 10. nóv- ember, var einn af sameiginleg- j*0} dimmum dögum íslenzku PJoðarinnar. Þann dag, og n°kkra daga aðra, hafa mér °mið í hug tvær óbrotnar ljóð- uiur eftir norska skáldið og etjuna Nordahl Grieg, sem argir íslendingar eiga ljúfar fn^urminningar um, Þær eru vseðinu “17. maí”, sem var innblásið og kveðið á myrkum dögum norsku þjóðarinnar. “Vi er saa faa her i landet hver falder er bror og ven”. Á íslenzku: “Svo fámenn er þjóð vor, að hver sá sem fellur er bróðir og vinur.” Skáldið á við sína eigin þjóð, Norðmenn, sem þó er margfalt fjölmennari en við íslendingar. Hversu miklu fremur getur þetta átt, við okkar fámennu þjóð. Öll slík manntjón hljóta því að snerta viðkvæma strengi í brjóstum okkar allra. Við minnumst með lotningu þeirra systkina og vina, sem fallið hafa á árinu. En, við látum ekki þar við sitja. Við hljótum að beina hug- anum fram á við. Og þá leitum við uppi björtu dagana og reyn- um að finna styrk og hvatn- ingu í birtunni, sem frá þeim stafar. Og árið, sem leið, hefir fært okkur marga bjarta daga. Þjóð- aratkvæðagreiðslan í maí, lýð- veldisstofnunin í júní, óvenju lega sólríkt og gott sumar. Þessir björtu dagar ættu að verða okk- ur meira en stundarnautn. Þeir ættu að verða okkur aflgjafi á þessu ári, og lengra fram í tím- ann. Þjóðaratkvæðagreiðslan í maí færði okkur heim sanninn um, að enn getur íslenzka þjóðin staðið'svo að segja sem einn mað ur, ef mikið liggur við. Það hlýtur að auka traustið á sjálfum okkur, um leið og það eykur okkur virðingu út á við, meðal annara þjóða'. 17. júní á Þingvöllum verður sá dagurinn, sem hæst gnæfir í endurminningunni. En því má ekki gleyma að án þess að þjóð in hefði áður sýnt einhuga sinn, við atkvæðagreiðsluna í maí, á svo eftirminnilegan hátt, hefði ekki orðið svo bjart yfir þess- um degi, sem varð. Á þessum óvenjubjarta degi féll tjaldið fyrir fortíðina, og var dregið upp aftur fyrir nýj- um þætti í sögu íslenzku þjóð- arinnar. Efni þess þáttar var að vísu óskrifað þá. En um það efni þóttumst við vita og þykj- umst enn vita sumt, sem ekki er fram komið. Við vitum, að það verður áframhaldandi sjálf- stæðisbarátta. Við vitum, að okk- ur er öllum ætlað hlutverk í þeirri baráttu, öllum án und- antekningar. Við ætlum einnig að gera okkur sem ljósast, hve mikið veltur á því um framtíð íslenzku þjóðarinnar, að allir, hver og einn, láti sér annt um að leysa sitt hlutverk sem bezt af hendi, þótt við verðum að leggja mikið að okkur. Síðastliðið sumar fór eg víða um land, þótt mér tækist ekki að koma eins víða og eg óskaði. Mér fannst eins og eg verða var við hugarfar því líkt, sem eg hefi drepið á, hvar sem eg kom. Mér var hvarvetna tekið með hlýju og ástúð. Eg nota þetta kærkomna tækifæri til þess að færa öllum þeim, sem þar áttu hlut að máli, innilegar þakkir mínar. Eg fékk einnig tækifæri til þess að finna sama hlýhuginn hjá Vestur-lslendingum og öðr- um íslendingum vestan hafs. Það verður mér ógleymanlegt hvern hug Vestur-íslendingar bera til lands og þjóðar: hvern- ig þeir fylgjast með málum okk- ar, hvernig þeir hafa áhuga fyr- ir þeim málum og hvern hlý- hug þeir bera til okkar systkin- anna austan hafs. * “Yngsta lýðveldi heimsins” hefir ísland verið kallað í ræðu og riti síðan 17. júní, hér á landi og í öðrum löndum. Margur unglingur mun hafa orðið fyrir spurningu sem þess- ari: “Hvað ætlarðu þér að verða?” Það er misjafnt, hvern ig unga fólkið er við því búið að svara slíkri spurningu. En margir munu geta svarað að þeir hafi einsett sér að láta ekki sitt eftir liggja til þess að verða nýtir og góðir borgarar í þjóð- félaginu og láta gott af sér leiða fyrir aðra, hvern sess, sem þeim sé ætlað að skipa. Eg vil óska þess. að segja mætti um íslenzku þjóðina, nú á morgni hins nýja þjóðskipu- lags, að hún hafi slíkan ásetn- ing. Og, að hún vilji setja mark ið svo hátt, að von sé um að Is- land megi í framtíðinni skipa virðulegan sess meðal þjóðanna. Síðustu árin hafa fært okkur heim sanninn um að sá tími er liðinn er við vorum “Einbúi í Atlantshafinu”. Hér eftir hljót- um við að taka virkan þátt í samstarfi með öðrum þjóðum, virkari en nokkr*u sinni áður. með þeim þjóðum sem við helzt óskum að starfa með. En, verður okkar þáttur í því samstarfi ekki alltaf lítils met- inn, svo fámennir og smáir, sem við erum? Svo kunna ýmsir að spyrja, bæði utan lands og innan. Við skulum festa hugann augnablik við nokkrar athyglis- verðar staðreyndir í þessu sam- bandi. Fyrir rúmum 1000 árum komu íslendingar á hjá sér rétt- arþjóðskipulagi, sem var nær þjóðskipulagi lýðfrjálsra þjóða seinni alda en þá þekktist hjá margfalt stærri og fjölmennari þjóðum. Ákvæði í elztu lög- bók okkar um gagnkvæmar tryggingar og samábyrgð þegn- anna hafa vakið athygli margra á seinni árum. Á blómatíma þjóðveldisins voru skráð hér á landi rit á okkar eigin tungu, sem eru sígild enn í dag og fremri bókmenntum margra fjöl- mennari þjóða. íslendingar voru þá miklir landkönnuðir og manna djarfastir í glímunni við Ægi. Fræðsluhneigðin, bók- menntaáhuginn og sókndirfskan á hafinu hefir aldrei horfið meðal íslendinga hversu mikið sem á móti hefir blásið á erfiðum tímum fyrir land og þjóð. Og heldur ekki þolið og þrautseigj- an við að glíma við náttúruöflin á landi. Við erum í hópi Norðurlanda þjóðanna. Hinar Norðurlanda- þjóðirnar eru allar smáþjóðir að höfðatölu, samanborðið við margar aðrar .þjóðir; þó eru þess ar þjóðir ekki taldar eftirbátar annarra þjóða á ýmsum menn- ingarsviðum. Eg þekki ekki neinn hóp annarra þjóða, sem segja megi um með sanni að þær muni aldrei bera vopn hver á aðra, heldur ávallt jafna það, sem á milli ber, með friðsam- legum hætti. Þessa höfum við íslendingar notið og munum njóta með hinum frændþjóðun- um. Merkur, brezkur stjórnmála- maður sagði'einu sinnf við mig, að jafnan mætti treysta því að Norðurlöndin héldu gerða samn- inga. Vísindi, listir, félagsmála- menning og ýms tæknimenn- ing, þetta eru allt svið sem þessi smáríki þola fullkomlega saman- burð við stærri ríkin. Þau eru þeim í sumum efnum fremri. Og svo mætti lengi telja. Meðal annars vegna þessara staðreynda um fyrri sögu okkar eigin þjóðar og annarra smá- þjóða af sama kynstofni virðist mér það ekki öfgakennd hugs- un að við getum, ef við stönd- um vel saman og leggjum okk- ur alla fram, skapað menningu með þjóð okkar, sem geti orðið einnig öðrum til einhvers góðs, og máske á einhverjum sviðum til fyrirmyndar. Fámenni okk- ar og fábreytni ætti að auðvelda betri yfirsýn og gera hægara að koma við þeim átökum, sem við eiga, en hjá stærri þjóðun- um, þar sem hjólin í þjóðfélags vélinni eru orðin svo mörg og margbrotin, að bæði öll yfir- sýn og úrgreiðsla vandamála hlýtur að verða mun erfiðari og flóknari. Mér er kunnugt um að þetta er hugmynd, sem ekki er taliln fjarstæða af sumum merkustu mönnum meðal stærri þjóða. Með stoð í fortíðinni- og í þeim staðreyndum sem eg hefi nefnt, finnst mér full ástæða fyr- ir okkur að setja markið hátt í áframhaldi sj álfstæðisbarátt- unnar. En orðin ein um að ætla sér eitthvað hrökkva skammt. Okk- ur er ekki heimilt að ætlast til þess að okkur miði nokkuð verulega í áttina að marki því, sem við setjum okkur, nema með því að leggja mikið að okkur. Margir menntamenn, fræðimenn, bændur, sjómenn og annað vinnandi fólk á ís- landi gætu sagt sögu af því, að þeir hafi lagt hart að sér, beitt allri orku sinni og neitað sér um margt til þess að ná drengilegu marki, sem þeir hafa ungir sett sér. Þar með hafa þeir orðið hæfir og nýtir borgarar í þjóð- félaginu, leitt gott af sér fyrir aðra og orðið landi sínu og þjóð til sæmdar. Flestir munu viður- kenna, að eina haldgóða leiðin til þroska er að taka erfið við- fangsemni fangbrögðum, þótt leggja verði að sér allt, sem kraftar og hæfileikar orka. En því verður ekki neitað, að þrátt fyrir óvenjumiklar framfarir á síðustu áratugum, stöndum við enn að baki öðr- um þjóðum í ýmsum greinum. Eg nefni sem dæmi hagnýta þekkingu, fjármálahæfni og félagsmálaþroska. Úr þessu Hafið hugfaát Pakkar handa stríðsföngum, blóðgjafir fyrir særða her- menn, og líkn handa þeim þjóðum, sem sárast eru leiknar af völdum stríðsins, eru aðeins nokkrar þeirra mannúðar- ráðstafana, sem Rauði Krossinn beitir sér fyrir, og eftir því sem stríðssóknin harðnar verða kröfurnar meiri. Eigi þessi starfsemi að ná tilgangi sínum, þarf nú að safna $10,000,000 í frjálsum samskotum; og er þér gefið í sjóðinn, skúluð þér minnast þeirra mörgu, sem ver eru staddir en þér, og þarfnast aðstoðar Rauða Krossins. Gefið örlátlega. Þörf fyrir peninga yðar er meiri en nokkru sinni fyr! CITY HYDRO verður ekki bætt nema með því að leggja aukna áherzlu á bætta þekkingu á þessum svið- um. Sú þekking fæst að vísu ekki á skömmum tíma, en það má ekki draga úr áhuga okkar. Margar þjóðir hafa undanfar- ið orðið að leggja hart að sér og þola miklar raunir og hörmung- ar til þess að varðveita fjör sitt og frelsi. Við eigum eftir að leggja talsvert mikið að okkur, til þess að láta það sannazt, sem við öll trúum, að hér í landi megi lifa góðu menningarlífi, sambærilegu við önnur lönd, ef þjóðin sem byggir landið nýt-/ ur frelsisins og finnur til þeirr- ar ábyrgðar, sem öllu frelsi fylg- ir. Þessa trú verðum við að halda við og reyna að efla hana og auka. Merkur maður erlendis hefir sagt eitthvað á þessa leið: “Það nægir ekki að elska land sitt og þjóð. Sönn ættjarðarást krefst þess að menn einnig trúi á land sitt og þjóð.” Hvað sem fram undan er, vona eg að við missum aldrei þessa trú. Með þeirri ósk, að svo megi verða, óska eg ykkur öllum sem heyrið mál mitt gleðilegs nýárs. Alþbl. 3. jan. Á ný leitar Rauði Krossinn hjálpar yðar til þess að græða sundurflakandi heim GEFIÐ! • Hvar, sem tortíming hernaðar .er að verki, sigla þjáningar I kjölfar hennar. Ungir menn á vtgvelli og í sjúkrahúsum, þjást af síirum. Smábörn, mæður, og gamalmenni eru húsvilt, eru hungruð og án skýlis. Miljónir þjást af hverskonar sjúk- dómum og skorti. Rauði krossinn heldur áfram að líkna; stofnun þessi verður að hjúkra þeim sjúku og særðu; hún verður að senda matvæli, fatnað og hjúkrunaráhöld til fjar- lægra landa. Rauði krossinn canadiski vill fullnægja þessum kröfum, og canadiski Rauði krossinn, ert þú sjálfur, vinir þínir, nágrannar, og alt fólkið í þessu fagra landi. Pér viljið hjálpa, já, lifinu sjálfu I hinum þjökuðu löndum; þér veitið Rauða krossinum alla yðar aðstoð og — GEFIÐ! CANADIAN " REDCP.0SS S<;.s Fjórða hæð Free Press Bldg. Sími 98 806

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.