Lögberg - 01.03.1945, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. MARZ, 1945
Úr borg og bygð
“The Junior Ladies’ Aid of the
First Lutheran Church will hold
a regular meeting in the church
parlor Tuesday afternoon, March
6th at 2.30 P.M.
•
Þakklœti.
Gefið í byggingarsjóð Banda-
lags lúterskra kvenna, frá Dorcas
félaginu, Víðir, Man., $10.00.
Kærar þakkir.
H. D.
•
Meðlimir Þjóðræknisdeildar-
innar “Báran”, að Mountain, N,-
Dak., eru vinsamlega ámintir um
að vitja hins nýútkomna Tímarits
Þjóðræknisfélagsins annaðhvort
til Hjartar T. Hjaltalíns eða
Jóhannesar Anderson að Mount-
ain.
/ •
Mrs. S. W. Sigurgeirsson frá
Riverton hefir dvalið í borginni
nokkra undanfarna daga.
•
Mrs. Valgerður Erlendsson,
hnigin all-mjög að aldri, merk
kona og mikilhæf, lézt á sjúkra-
húsi hér í borginni þann 20. þ.
m. Hún hafði lengi búið rausnar
og fyrirmyndarbúi í Reykjavíkur
byggðinni við Manitobavatn, og
þar var hún jarðsungin af séra
Philip M. Péturssyni; þessarar
ágætu konu, sem lætur eftir sig
mannvænleg börn, verður vafa-
laust nánar minnst, áður en langt
um líður.
•
Dr. Haraldur Sigmar frá
Mountain, N.-D., forseti hins
evangeliska lúterska kirkjufélags
íslendinga í Vesturheimi, sem
flutti ágæta útvarpsprédikun í
Fyrstu lútersku kirkju síðastlið-
ið sunnudagskvöld, lagði af stað
suður til Columbus, Ohio, á
þriðjudaginn í erindum kirkju-
félagsins; þaðan ráðgerði hann
að fara til Pennsylvaníu, og svo
til New York borgar, þar sem
hann flytur guðsþjónustu hjá ís-
lendingum á sunnudaginn kfcm-
ur.
•
Gifting.
Gefin voru saman í hjónaband
s. 1. fimtudagskvöld að heimili
Mr. og Mrs. S. B. Stefánsson, 740
Banning st., þau Stefán Árnason
og Lára Áshildur Björnsson að
nokkrum vinum viðstöddum. —
Séra Philip M. Pétursson fram-
kvæmdi athöfnina. Brúðguminn
er sonur þeirra hjóna Mr. og
Mrs. Jón Árnason í Sturgeon
Creek, en brúðurin er dóttir
þeirra hjóna Mr. og Mrs. Björn
Björnsson frá Laufási á Lundar.
Faðir brúðarinnar var svaramað-
ur hennar. Brúðhjónin voru að-
stoðuð af John H. Árnason og
Sigrúnu Björnsson. Veizluhald
fór fram á eftir athöfninni, og
var glatt á hjalla fram eftir
kvöldinu.
•
Jón Sigurðsson Chapter I.O.D.
E., heldur sinn næsta fund að
heimili Mrs. E. A. ísfeld, 668
Alverstone St. á þriðjudagskvöld
ið 6. marz kl. 8.
•
Félagið Viking Club héldur
veizlu og dans á Marlborough
hótelinu hér í borginni þann 16.
þ. m. Verður þar mikið um dýrð-
ir; fylkisstjórinn verður þar við-
staddur ásamt frú sinni. Rev.
Dr. O. B. Hoffsten verður aðal-
ræðumaður; Mrs. Alma Gíslason
skemtir með einsöng, en séra
Philip M. Ptursson flytur borð-
bæn. Aðgöngumiðar að borðhald
inu kosta $1.50 á mann, en 50
cent að dansinum; meðal þeirra,
er að undirbúningi skemmti-
skrárinnar vinna, eru J. P.
Kristjánsson og J. Th. Jónason.
•
Tií C. Tomassonar, Hecla.
Eg óska þess um áramót,
ei þín gæfa linni,
það er meira gull en grjót
greypt í sálu þinni.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Heima 776 Victor St.
Sími 29 017.
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 11 f. h. á ensku.
Kl. 12.15 sunnudagaskóli.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Söngæfingar:
Yngri söngflokkurinn á fimtu-
dögum kl. 8.
Eldri söngflokkurinn á föstu-
dögum kl. 8.
•
Prestakall Norður Nýja íslands.
4. marz—Árborg, íslenzk messa
kl. 2 e. h.
B. A. Bjarnason.
Afmælishátíð íslenzka lút.
safnaðarins í Vancouver, B.C.
íslenzk guðsþjónusta með altaris
göngu, kl. 7.30 e. h. sunnudaginn
4. marz. Afmælismót kl. 8 e. h.
fimtudaginn 8. marz, hvort-
tveggja þetta í dönsku kirkjunni
á E. 19th Ave. og Burns St.
Fjölmennið.
R. Marteinsson.
Frá Vancouver, B.C.
Fyrir rúmlega ári síðan var
því hreift á meðal íslendinga í
Vancouver að nauðsynlegt væri
að stofna hér íslenzkt elliheimih
Mikið hefir verið um þetta mál
rætt, hafa verið haldnir almenn-
ir fundir, og nefndir hafa starf-
að málefninu til framfæris. Nú
er svo komið að fimmtán manna
nefnd, sem kosin var á almenn-
um fundi 24. janúar, er farin að
stofna félagsskap, sem hrinda á
þessu málefni í framkvæmd. Ai-
mennt álit er að þörfin sé mikil
fyrir Elliheimili hér á ströndinni.
Nú er íslendingum óðum að
fjölga, hefir meira en tvöfald-
ast íslendingahópurinn hér á
síðastliðnum fjórum árum. Varla
væri hægt að hugsa sér skemti-
legra pláss og aðgengilegra fyrir
gamla fólkið heldur en einhver-
staðar í Vancouver borg. Nefndin
veit fyllilega að hún verður að
leita á náðir góðviljaðra íslend-
inga, því mikla peninga þarf til
að koma þessu fyrirtæki í fram-
kvæmd. Það er því einlæg ósk
nefndarinnar að þeir, sem geta
fundið hjá sér hvöt til að styrkja
þetta fyrirtæki láti til sín heyra,
annaðhvort munnlega eða bréf-
lega, sem allra fyrst.
Meðlimagjald í félaginu hefir
verið ákveðið að verði tveir dalir
á ári, en þeir sem gefa stærri
upphæðir, tuttugu og fimm dali
eða meira verða skrifaðir inn
sem lífstíðar meðlimir. Peningar
skulu sendast til Mr. Stefán
Eymundson, 1070 W. Pender St.,
Vancouver, sem er féhirðir félags
ins.
Nefndarmenn eru Thorður
Helgason, Bjarni Kolbeins, Miss
Gerða Christopherson, Mrs. H.
S. LeMessurier, Halldór Frið-
leifsson, Mrs. J. S. Christopher-
son, Dr. J. C. Grímson, L. H.
Thorlákson, Dr. E. J. Friðleifson
og Rev. R. Marteinson. Fram-
kvæmdarnefndin er: Carl Fred-
erickson, 1936 W. 8 Ave., Van-
couver, forseti. G. F. Gíslason,
vara-forseti, Magnús Elíason,
skrifari. H. J. Halldórson, vara-
skrifari og Stefán Eymundson,
féhirðir.
Nefndin.
Wartime Prices and
Trade Board
Sykurskamturinn minkaöur.
Það hefir verið ákveðið að
minka sykurskamtinn um tvö
pund á mann fyrir árið. Hingað
til hafa sykur seðlar öðlast gildi
tveir og tveir í einu á fjögurra
vikna fresti, eða, þrettán sinn-
um ári. Nú hefir þessu verið
breytt þannig, að seðlar ganga
í gildi einu sinni á hverjum
mánuði, eða, ekki nema tóif
sinnum á ári. Þessi sparnaður
nemur tuttugu og fjórum miljón
pundum árlega.
Bændur, pantið áburð nú þegar!
W. P. T. B. áminnir bændur
um að panta áburð nú þegar, og
taka við pöntunum sem allra
fyrst. Ekki fyrir þá ástæðu að
það sé skortur á þessu efni, held-
ur vegna flutningserfiðleika.
Járnbrautirnar verða að láta
hernaðarkröfur sitja í fyrirrúmi
og það er skortur á flutnings-
vögnum.
Spurningar og svör.
Spurt. Eg lét gera talsverðar
breytingar á húsi sem eg á, og
bað um leyfi til að hækka leig-
una, en leigunefndin samþykti
ekki nema helming af því sem
eg bað um. Hvert get eg farið
með umkvörtun?
Svar. Þú getur fyllt út skjal
sem nefnist “Notice of Appeal”
innan fimtán daga frá því að
leigan var ákveðin af leigunefnd-
inni, og lagt það fyrir “Court
of Rentals Appeals”.
Spurt. Eg hefi tvö herbergi
sem eg er fús til að leigja út
fyrir kostnaði á hitun ljósi og
vatni. Er þetta leyfilegt?
Svar. Ekki nema með því að fá
samþykki frá W. P. T. B. leigu-
nefndinni.
Spurt. Er ekkert búið til af
skautum og skautaskóm handa
börnum og unglingum. Eg hefi
verið að reyna í allan vetur að
fá skauta handa syni mínum.
Svar. Vegna þess að það skortir
■bæði skó og menn til vinnu, hefir
sama sem ekkert verið smíðað af
skautum handa börnum þetta ár.
Alt sem búið er til af þessu tagi
fer til hermannanna.
Spurt. Á matsöluhúsinu þar
sem eg borða fást nú ekki nema
í mesta lagi tveir molar með
kaffinu, áður fengust þrír, hefir
þeirra skamti verið breytt?
Svar. Já. Þeirra skamtur var
minkaður fyrir skömmu, og því
mjög líklegt að þeir sjái sér ekki
fært að skamta eins ríflega og
áður.
Spurningum svarað á íslenzku
af Mrs. Albert Wathne, 700
Banning St., Winnipeg.
Rœða
(Frh. af bls. 5)
Gísli Jónsson prentsmiðjustjóri
annast sem áður ritstjórnina.
Frú P. S. Pálsson hefir, eins og
síðastliðið ár, haft söfnun aug-
lýsinga með höndum og rækt það
starf með frábærlega góðum ár-
angri. Upplag ritsins verður einn
ig með stærsta móti, og skal þess
jafnframt þakklátlega getið, að
Þjóðræknisfélagið á íslandi hefir
aftur í ár pantað 750 eintök af
ritinu og útbýtir þeim til félags-
manna sinna.
Önnur mál.
Eftirfarandi milliþinganefndir
leggja væntanlega fram skýrslur
á þinginu: samvinnumálanefnd
við ísland, en vara-forseti er for-
maður hennar; minjasafnsnefnd,
formaður Bergþór E. Johnson, og
nefnd sú, er safna skal þjóðleg-
um fræðum, en formaður hennar
er séra Sigurður Ólafsson, ritari
félagsins. Lagðar verða einnig
fram prentaðar skýrslur féhirð-
is, fjármálaritara og skjalavarð-
ar, Ólafs Pétursson, og vísast til
þeirra um fjármál flagsins.
Lokaorð.
Framangreint yfirlit yfir starf-
semi Þjóðræknisfélagsins á liðnu
ári ber því vitni, að hún hefir
sem áður verið harla víðtæk, og
í fullu samræmi við hina þrí-
þættu stefnuskrá félagsins, sem
skipar, eins og vera ber, í önd-
vegi hollustunni við þau löndin,
sem vér eigum þegnskuld að
greiða, en leggjum jafnframt á-
herzlu á það, að þeir, sem kunna
skil á fortíð sinni og menningar-
verðmætum, ^séu líklegastir til
að reynast sem nýtastir borgarar
í sínu nýja landi og leggja mest
á borð með sér menningarlega.
Margt hefði þó vafalaust mátt
betur fara í starfinu og ýmislegt
verið látið óunnið, sem gert
skyldi. Ber því að taka fegins-
hendi bendingum, sem til bóta
stefna og framfara, enda er oss
þörf heilbrigðrar gagnrýni í þjóð
ræknismálum, rétt eins og í lífi
voru og starfi, og allt betra held-
ur en logn aðgerðaleysisins og
áhugaleysisins, sem leiðir til kyrr
stöðu og dauða í félagsmálum.
En heilbrigð er sú gagnrýni, sem
borin er fram af áhuga fyrir
málefninu og flutt af einlægni og
drengskap. Hitt skyldi þó jafn-
hliða haft hugfast, að aðfinnslu-
semin tóm, hin neikvæða afstaða
ein sér, flytur ekkert málefni
fram til sigurs. Til þess þarf um
annað fram áhuga, góðvilja og
fúsleika til að leggja eitthvað í
sölurnar fyrir málstaðinn.
“Oft týnist gullin hugsjón í
hversdagslegu þrasi”, segir eitt
hinna yngri skálda á íslandi í
einu kvæða sinna. Það skyldum
vér eigi láta oss henda. Oss bíða
svo mörg verkefni *í þjóðræknis-
málum vorum, sem krefjast sam-
eiginlegra átaka. Ónumin lönd í
ýmsum byggðum vorum, öflugri
og víðtækari íslenzkufræðsla,
framhaldandi og aukin samvinna
við yngri kynslóð vora, sem
halda skal á lofti merkinu í fram
tíðinni, og auð skörð, sem fylla
þarf, því að'maður verður að
koma í manns stað, eftir því sem
frekast er unnt. Víst er um það,
að margir traustir stofnar hafa
fallið í fylkingu vorri, en marga
eigum vér sem betur fer mæta
og áhugasama samherja ofar
moldu, karla og konur, og skul-
um vér því sækja fram í anda
orða Arnar skálds Arnarsonar:
“Þó að hetja hnigi í valinn,
hefjum merkið. Fram skal
stefna!”
Að svo mæltu þakka eg stjórn-
arnefndinni fyrir ágæta sam-
vinnu á árinu, félagsfólki góð-
hug og traust, býð yður öll vel-
komin og óska þess, að þing-
störf vor verði þannig unnin, að
samvistirnar og samstarfið verði
oss til gleði, gagns og sæmdar.
“CELLOTONE” CLEANING
SPECIALS
SuiTS - - - 59c
(Mens 2 or 3 piece)
DRESSES - - 69c
(Plain 1 piece)
CASH AND CARRY
Other Cleaning Reduced
PHONE 37 261
PERTH’S
The Swan Manufacturmg Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-BTRIF
Winnipeg.
Halldór Methusalems Swan
Eigandi
281 James Street Phone 22 841
Ambassador Beauty Salon
Nýtíxku snyrtistofa
Allar tegundir af Permanents.
íslenzka töluð á, staðnum.
257 KENNEDY STREET,
fyrir sunnan Portage
Sími 92 716
S. H. Johnson, eigandi.
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
LÁN
íyrir personulegar þarfir
Þegar yður liggur á reiðufé er bankalán ef til
vill haganlegasta úrlausnin.
Lán, til þess að borga skatta, samansafn skulda,
sjúkrahúss- og læknis-reikninga og annað þessu líkt,
er oft veitt af þessum banka ábyrgðum mönnum og
konum, sem hafa getu til að endurgreiða lánið. Láns-
vextir eru sanngjarnir og endurgreiðsla í hentugum
afborgunum, ef þér æskið þess.
Framkvæmdarstjóri Royal Bank og Canada í ná-
grenni yðar mun með ánægju ræða um persónulegt
lán við þig hvenær sem er og útskýra hin einföldu
skilyrði fyrir veitingum slíkra lána.
THE
ROYAL BANK
OF CANADA
NÝ BÓK
U
Björninn úr Bjarmalandi”
EFTIR ÞORSTEIN Þ. ÞORSTEINSSON
Útgefendur: J. Th. Beck, Ásg. Guðjohnsen
Yfirlit yfir þroskasögu Rússlands og helstu heimsviðburði
í síðastliðin 25 ár.
Verð: saumuð í góðri kápu $2.50 — í bandi $3.25.
Burðargjald 10 cent
Pantanir sendist til
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVE.
WINNIPEG
MANITOBA
\/ erum samtaka um stuðning við allar liknarstofnanir
hverju nafni, sem þær nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
DREWRYS
LIMITEO
HOUSEHOLDERS
-- ATTENTION —
We have mosi of íhe popular brands of coal in
stock aí preseni, bui we cannoi guaraniee ihai
we will have ihem for ihe whole season.
We would advise ihai you order your fuel ai
once, giving us as long a lime as possible for
delivery. This will enable us io serve you beiier.
MCPURDY CUPPLY
V/BUILDERS'O SUPPLIES
c°
. LTD.
and COAL
Phone 23 811—23 812
1034 Arlinglon St.
G. J. A.