Lögberg - 28.06.1945, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. JÚNÍ, 1945
3
ugu þjóðernislegu afii eins og
búðirnar á Þingvöllum til forna,
en um hitt er eg sannfærður að
þreyttum vegfarendum sem not-
ið hafa hvíldar og svölunar í
skuggum espitrjánna við ís-
lenzku sumarbúðirnar á strönd
Winnipeg vatns, mún koma sam-
an um að sjaldan hafi þarfara
verk verið unnið á meðal vor
né heldur óeigingjarnari þjóð-
rækni í ljós komið heldur en hjá
konunum og fólkinu, sem reistu
sumarbúðirnar vestrænu.”
Sumarbúðir Lúterskra íslend-
inga í Vesturheimi munu sóma
sér vel á hinum friðarríka stað
þar sem íslendingar fyrst námu
landa á þessu svæði. Við skul-
um öll taka höndum saman til
að gera þær veglegar og fagrar.
Ingibjörg J. Ólafsson.
forseti B.L.K.
Ferð til Vancouver
Business and Professional Oards
Brezkir stórskotaliðar í Burma.
Frh.
Nóttina, sem eg var í Blaine,
gisti eg hjá gömlum vini mín-
um að austan, Sigurjóni Bjarna-
syni, hann var fyr á tíð í Win-
nipeg, og einn yngsti landnáms-
maður í Hólabygðinni, norðaust-
ur frá Glenboro, og bjó hann
þar í mörg ár, mun hafa farið
þaðan um 1926. Honum farnað-
ist vel, var góður bóndi og allra
manna vinsælastur. Jóna kona
hans er Vestfirsk, systir Hinriks
Jónssonar, er. lengi bjó nálægt
Ebor Manitoba, nú orðinn há-
aldraður. Jóna er mesta myndar-
kona, sem staðið hefur sem hetja
í stormum og stríði lífsins, en
hún er nú við aldur og gigtin er
farin að heimsækja hana og þjá.
Þau hafa búið í Blaine nú í nokk
ur ár, og sitja þar í helgum
stein, og líður vel. Var eg í
yfirlæti hjá þeim um nóttina,
og var margt, sem bar á góma
og margs. að minnast frá gamalli
tíð. Sigurjón er Austfirðingur og
mesta prúðmenni, einn besti
drengur, sem eg hefi þekt.
Um kvöldið náði eg séra Al-
bert Kristjánsson í síma, átti
eg við hann lítilsháttar erindi,
var eg honum og persónulega
kunnugur að austan, brá hann
við strax og sótti mig í bíl, dvaldi
eg hjá honum góða stund. Séra
Albert er alþektur meðal íslend-
inga, sem ágætur ræðumaður og
endurbótamaður, var þingmað-
ur um tíma í Manitoba og gat
sér góðan orðstír, hann stundar
enn prestskap að nokkru, en
hefir nú að undanförnu emnig
unnið við smíðar, sagði hann mér
að heilsa sín væri mun betri
síðan hann fór að vinna með
höndunum, kona hans, frú Anna,
gaf okkur ágætis kaffi, eg er
viss um að séra Albert fer vel
með konuna, því en heldur hún
vel sínum æskufríðleik, eg man
vel eftir henni, þegar hún var á
æskuskeiði, og okkur þótti hún
með fríðustu stúlkum og henni
hefur sannarlega lítið farið aft-
ur, vona eg nú á hennar aldri,
stigi þetta henni ekki til höfuðs.
Börn þeirra eru uppkomin og
komin burtu, var mér sagt að
þeirra eini sonur hefði ótilkvadd
ur gengið í Bandaríkjaherinn,
og væri nú í herþjónustu. Um
morguninn keyrði Sigurjón mig
til Andrésar Danielssonar, hafði
eg kvöldið áður reynt að ná
honum í síma, en þau hjónin
voru þá ekki heima, Daníelsson
þekti eg í æsku, var hann um
3 ár í minni æskubygð, Hóla-
bygðinni fyrir norðan Glenboro,
og bjó þar búi sínu. Við unnum
saman í þreskingu haustið 1901,
og síðan hafði eg ekki séð hann,
hann fór þá um áramótin al-
farin til Blaine og þar hefur
hann verið síðan. Ekki fanst mér
að honum hefði neitt farið aft
ur, það er sennilega svona gott
að vera á ströndinni að fólki fer
ekki aftur yfirleitt. Mr. DaníeL
son hefur verið mikill athafna
maður, var um mörg ár þing-
maður í ríkisþinginu, var lengi
fyrrum safnaðarforseti, og hef-
ur tekið virkan þátt í almenn-
um félagsmálum, hefur verið ís-
lenzkum félagsskap og Blaine-
bæ mjög þarfur maður. Hann
bauð mér heim fyrir miðdegis-
verð; og átti eg þar mjög ánægju-
lega stund, kona hans er mjög
skýr kona, líkaði mér vel við
hana, gæti eg trúað að í félags-
starfsemi væri hún mjög vel-
viljuð og réttsýn, marg buðu
þau mér að koma aftur en eg
gat ekki komið því við.
All-miklum Skugga sló það á
komu mína til Blaine, að minn
gamli góði vinur, Magnús Jóns-
son frá Fjalli, var nú burtu af
sjónarsviði lífsins. En með sjálf-
um mér var eg ofurlítið hróð-
ugur í huga að þarna höfðu verið
tveir menn úr minni æskubygð,
sem framarlega hafa staðið með
það að gjöra, garðinn frægann í
Blaine. Þeir Magnús Jónsson og
Andrés Daníelson, og mikið á
Daníelson eftir ógjört en, ef hann
nær aldri Magnúsar.
Þann góðvilja sýndu þeir mér
feðgarnir Stefán Árnason og Hall
dór sonur hans í Bellingham að
skreppa norður til Blaine til
móts við mig því eg átti við þá
erindi, en var of latur að fara
suður til Bellingham. Þótti mér
gaman að mæta þeim, Stefán
þekti eg þegar hann var bóndi
í Argyle, endur fyrir löngu.
Kona hans var Kristjana Hall-
dórsdóttir Magnússonar frá
Argyle, bæði fríð kona og væn
eins og hún átti kyn til, hún er
dáin fyrir skömmu. Stefán held-
ur sér ágætlega vel, þrátt fyrir
háan aldur.
Þá gerði eg átroðning hjá Mr.
og Mrs. Jóni Péturson, hún er
systir Mrs. S. D. B. Stephan-
son, kom kona mín suður til
Blaine um daginn í heimsókn til
hennar því þær voru kunningj
ar frá fyrri tíð, áttum við þar
ágætum viðtökum að fagna. Jón
Peturson er upprunalega frá
Hensel, N.-Dak., en var lengi í
Elfros, Sask., áður en þau fluttu
vestur á strönd, þá heimsóttum
við Mrs. Margreti J. Benedict-
son, kvennréttindahetjuna nafn-
kunnu og rithöfundinn, var eg
hissa að sjá hvað hún heldur
sér ennþá vel, lítur út fyrir að
elli gamla eigi undir högg að
sækja, að fást við hana, ber ekki
neitt á því að hún sé neitt farin
að sljógvast andlega, frá því er
eg þekti hana fyrrum, er nú
langt orðið síðan. Hún skipar
ætíð sérstætt sæti í sögu Vestur-
íslendinga og menningar baráttu
unni. Hún er en vel máli farin og
getur bitið frá sér ef þörf kref-
ur. Eg hefði getað hlustað á hana
mikið lengur ef tíminn hefði
leyft. Þar rakst eg á gamlan
kunningja að austan, Þórð Breið-
fjörð frá Upham, N.-Dak., var
hann glaður og gunnreifur að
vanda.
Þá heimsótti eg rétt snöggvast
Mrs. Sigríði Johnson, ekkju Jóns
Magnússonar Jónssonar frá
Fjalli, hún var dóttir Sigurðar
Sigurðssonar, sem lengi bjó í
Hólabygðinni, þekti eg hana vel
á fyrri tíð, hún er nú orðin
nokkurskonar einstæðingur, en
henni líður vel og lítur vel út,
hún er hógvær kona og hefur
æfinlega tekið því sem að hönd-
um ber með stillingu. Jón bróðir
hennar er á þessum slóðum en
hann gat eg ekki séð. Rétt áður
en eg fór frá Blaine, mætti eg
fyrir hendingu Magnúsi Thord-
arsyni, sem áður fyr var í Bald-
ur, átti eg tal við hann, skýr
maður og drengilegur í viðmóti
með all-mikla lífsreynslu.
Undir kvöld héldum við til
baka til Mr. og Mrs. Stephan-
son og settumst við þar mpp
fyrir kvöldverð. Keyrði hann
okkur seinna um kvöldið til
White Rock, og biðum við þar
eftir lestinni, sem var á eftir
áætlun fram um miðnætti. Við
vorum í mikilli þakkarskuld við
Stephansons hjónin fyrir góðar
viðtökur, og við hann og Mr.
Péturson fyrir að keyra okkur
fram og aftur, sem þeir voru
boðnir og búnir til að gjöra þrátt
fyrir harðæri með benzín. í
White Rock þótti okkur fallegt
aðal verslunarstrætið er með
ströndinni mót opnu hafi, en
upp um hliðina sem rís hátt fyr-
ir qfan ströndina og sem er
skógi vaxin eru íbúðir fólks og
vex bærinn óðum og er nú þegar
orðinn all-fjölmennur. Við vor-
um ekki rétt sem heppnust með
veðrið í þessum túr, en engin
ástæða til að kvarta um það.
því verðið er æfinlega nógu gott,
þessa nótt var all-mikil rigning
og níðamyrkur, en járnbrautar-
vagnarnir láku ekki, og lestin
þræddi sinn veg hindrunarlaust,
og við komum til Vancouver um
kl. 2 um morguninn.
Að kvöldi þess dags var afmæil
safnaðarins, fórum við þangað
náttúrlega, þar var allt með
miklum myndarskap, líf og andi
í öllu, og ótal lífs og þroska-
merki, og vonrík hugsun hjá
fólkinu um bjarta framtíð, og
enginn þarf að efast um bjarta
og fagra framtíð safnaðarins og
íslenzks félagslífs í Vancouver ef a
einstaklingarnir eru vakandi fyr-
ir skyldu sinni, og hver og einn
er köllun sinni trúr. Eg skrifa
ekki um samkomuna því það
hefur þegar verið gjört, og bet-
ur en eg gæti gjört. Á þessari
samkomu mætti eg hjónum, sem
eg ekki hafði áður þekt, Mr. og
Mrs. Barrett, er konan íslenzk,
og er systir Dr. Pálson í Borden,
Sask., er áður var í Elfors, sá
hinn sami er skrifaði “Hnausa-
förina” o. fl. Mr. Barrett er hér-
lendur maður, var áður fyr í
Winnipeg, og stundaði landbún-
að um tíma í Geysisbygðinni.
Þau eiga tvo sonu, sem báðir
hafa gengið mentaveginn, er
annar læknir en hinn prestur
þar í fylkinu, eg átti all-langt
tal við þau hjón. Þar mætti eg
Mr. Anderson frá Winnipeg, Mr.
G. Guðmundson frá Wynyard og
Winnipeg, Mr. Finnbogason frá
Vatnabygðunum og Mrs. Eyjólf
son frá Langruth o. fl.
Þann 9. marz, mætti eg þeim
Mr. og Mrs. W. J. Arnason, sem
áður voru í Argyle, þar sem Mrs.
Árnason er fædd og uppalin,
dóttir Mr. og Mrs. Hannes Sig-
urðsson, sem þar bjuggu langa
tíð rausnarbúi, nú bæði dáin. Mr.
Árnason mun vera ættaður frá
Lundar, sonur Péturs Árnasonar
er þar . bjó lengi, þessi hjón
bjuggu um tíma í Argyle eftir
að þau giftust, þar til hann gekk
í herinn, hefur hann verið leyst-
ur 'frá herþjónustu, vegna heilsu
bilunar. Eg átti mjög skemtilega
stund með þeim hjónum þenn-
an dag. Mr. Árnason var boð-
inn og búinn að keyra mig hvert I
á land sem var í borginni og|
hagnýtti eg mér það, og er eg
honum mjög þakklátur fyrir, og
óska að honum og þeim líði ætíð |
vel.
Frh.
Friðarins minst um
allan heim
DR. A. BLONDAL
Physician & Surpeon
«0S MEDICAL ARTS BLDQ.
Sími 93 996
Heimili: 108 Chataway
Sími 61 028
N.
DR. A. V. JOHNSON
Dentiat
«06 SOMERSET BLDQ.
Thelephone 97 932
Home Telephone 202 398
Frá
vini
DR. ROBERT BLACK
SérCræðingur I Augna, Eyrna, nef
og hálssjúkdémum
416 Medlcal Arts Bulldlng,
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslníl 93 851
Heimasími 42 154
Ræða Hákonar Noregskonungs.\
Hákon 7. Noregskonungur
flutti ræðu í tilefni af því, að I
Noregur var aftur orðinn frjálst
ríki. Hann hóf mál sitt með því
að bera öllum íbúum Noregs,
körlum jafnt og konum, kveðjur
sínar og ríkisstjórnarinnar. Því
næst hvatti hann alla Norðmenn
að snúa sér undir eins að upp-1
byggingarstarfinu, því Noregur
þyrfti nú á öllum kröftum þjóð-1
arinnar að halda við endurreisn
ina. Konungurinn lauk máli sínu
með því að hvetja samlanda
sína til þess að sleppa ekki tök-
um af neinu því, sem hefði treyst
samvinnu þeirra og samheldni á
liðnum erfiðleikaárum. Minnistl
fallinna. Noregi allt.
Ávarp Ólafs ríkisarfa.
Landar: Þýzki herinn í Norefi
hefir gefist upp. Við minnumst
nú orða þeirra, sem Ruge yfir-
hershöfðingi mælti í tilkynningu |
sinni 9. maí 1940. Hann sagði þá:
“Fyrsta þætti stríðsins er lokið, |
en stríðinu verður aldið áfram
öðrum vígstöðvum og Norð-1
menn munu berjast þar.”
Já, stríðinu hefir verið haldið |
áfram, bæði erlendis og heima í
Noregi og nú hefir það verið leitt
til lykta. Það er mér mikil gleði,
að geta sent kveðjur til allra
landa minna, sem hafa með af-
rekum sínum og framkomu lagt |
svo mikið af mörkum í barátt-
unni.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til þéss að afvopna þýzku her-
mennina í Noregi. Her okkar frá
Noregi og lögregla okkar, sem
kemur frá Svíþjóð, mun taki
þátt í því, ásamt skipulögðum]
flokkum norska heimahersins.
Nýjum her verður boðið út I
eins fljótt og hægt er. Norski
heimaherinn er beðinn að hafa
nánar gætur á því, að Þjóðverj-
um takizt ekki að koma sér hjá|
því að upfylla uppgjafarskilmál-
ana.
Norskir hermenn heima og er-
lendis hafa háð einhuga baráttu.
Fáni vor er óflekkaður og und-
ir honum skulum við kappkosta
að vera samhent og samhuga í
framtíðinni, til blessunar fyrir|
alla.
Guð varðveiti konunginn og|
föðurlandið.
—Vísir 9. maí. ■
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N.D.
tslenekur lyfsaH
ITðlk getur pantaC tneBul oi
annaC meB pöstl.
Fljöt afgrelCsla.
A. S. BARDAL
848 SHERBROOK ST.
Selur Ukklstur og annast um flt-
farlr. Allur ötbúnaCur sft bestl.
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnlsvarOa og legstelna
Skrifstofu talslmi 27 324
Heiiyiills talslmi 26 444
HALDOR HALDORSON
bvopfngamelstari
23 Music and Art Building
Broadway and Hargrave
Winnipeg, Canada
Phone 93 055
INSURE your property wlth
HOME SECURITIES LTD.
468 MAIN ST.
Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr.
Phones Bus. 23 377 Res. 39 433
TELEPHONE íí 010
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
WINNIPEG, CANADA
Phone 49 409
Radio Service Speciallsts
ELECTRONIC
LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST, WINNIPEO
G. F. Jonasson, Pres.4iMan.Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
404 Scott Block Slmi 95 227
Wholesale Dlstributors of
TREBH AND FROZEN FIBH
Argue Brothers Ltd.
Real Estate — Financial —
and Insurance
Lombard Building, Winnipeg
J. DAVIDSON, Rep.
Phone 97 291
Dr. S. J. Johanne»*on
215 RUBY STREET
(Beint suCur af Bannlng)
Talslmi 80 877
VlCtalstlml 8—1 e. h.
Dr. E. JOHNSON
304 Evellne St. Selkirk
Office hrs. 2.30—6 P.M.
#
Phone office 26. Res. 230
Office Phone Res. Phon*
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
116 MEDICAL ARTS BLDG.
Offioe Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment
DRS. H. R. and H. W,
TWEED
Tannlceknar
•
408 TORONTO GEN. TRC8TS
BUILDING
Cor Portage Ave. og Smtth ih
PHONE 96 9 52 WINNIPEG
1llei/ets
r01
otre Dame-
ÍHONE
06 647
Legsteinar
■em skara framúr
Úrvals bl&grýti
og Manitoba marmari
BkrifiB eftir verBskrd
GILLIS QUARRIES. LTD.
1400 Spruce St. Simi 28 898
Wlnnipeg, Man.
J. J. SWANSON A. CO.
LIMITED
108 AVENÚE BLDO, WPO
e
Fasteignasalar. Leigja hös. Ct-
vgga peningalán og eldsftbyrgS.
bvreiOaftbyrgC, o. s. frv.
Phone 97 538
ANDREWS, ANDREW8
THORVALDSON AND
EGGERTSON
LBgfrœBinoar
209 Bank of Nova Scotla
Portage og Garry St.
Slmi 98 291
Blóm stundvíslega afgTeldd
m ROSERY
LTD.
StofnaC 1908
427 Portage Ave. Slml 97 466
Wlnnipeg.
GUNDRY & PYMQRE LTD.
Brltleh Quality — Flsh Nettlng
60 VICTORIA STREET
Phone 98 211
Wlnnlpeg
Hanaoer, T. R. THORTADDMOM
Tour patronage wlU be
%ppreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
, H. Page, Managing Diractor
Wholesale Dlstrlbutor* ot
Fresh and Frozen Tl«h.
311 Chambers St.
Office Phone 26 328
Ree Phone 78 917.
MANITOBA FISHERIES
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.sti.
Verzla I heildtólu meC nýjan o*
frosinn flsk.
108 OWENA ST.
Skrifstofuslmi 26 666
Helmasiml 65 468
— LOANS —
At Rates Authorized by
Small Loans Act, 1939.
PEOPLES
FINANCE CORP. I/TD.
Licensed Lend,rs
Established 1929
403 Time Bldg. Phone 21 48*