Lögberg - 05.07.1945, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTIJDAGINN, 5. JÚLÍ, 1945
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave., Mrs. E. S.
Felsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
•
Miss Anna Bjarnason hjúkr-
unarkona frá New York, leit inn
á skrifstofu Lögbegs á miðviku-
daginn í vikunni sem leið; hún
hafði dvalið um hríð í David-
son, Sask., í heimsókn til föður
síns, Halldórs Bjarnasonar og
systur sinnar og tengdabróður,
Mr. og Mrs. J. A. Vopni. Miss
Bjarnason lagði af stað heim-
leiðis samdægurs og hún kom
að vestan.
•
Gefið til að stofna íslenzkt
elliheimili í Vancouver, B.C.
Mr. A. Loptson, Yorkton, Sask.
$25.00. Mr. og Mrs. G. S. Fridrik-
son, Selkirk, Man. $4.00. Mrs.
F. Atchison $2.00. Mr. og Mrs.
G. Gíslason $4.00. Mrs. G. Er-
lendson $2.00. Mrs. Don Oliver
$2.00. Mr. E. V. Johnson $15.00.
Mr. O. W. Bjarnason $2.00. Mr.
Ludwik Eirickson $2.00. Mr. B.
Thorwardson $4.00. Mr. F. H.
Jonason $2.00. Mr. og Mrs. N.
C. Eyford $2.00. Mr. og Mrs. S.
Eyford $5.00. Miss E. Eyford
$5.00. Mr. og Mrs. Th. Johann-
son $2.00. Mr. Donald Hjálmar-
son $5.00.
íslendingar í þessu landi eru
beðnir að styðja þessa gullfall-
egu hugmynd af öllum mætti.
Með innilegu þakklæti.
S. Eymundsson.
•
Settir voru í embætti í stúk-
unni Skuld I. O. G. T., eftirfar-
andi félagar og umboðsmenn
stúkunnar.
G. M. Bjarnason.
F. Æ.T. — A. S. Bardal.
Æ.T. — John Halldorson.
V.T. — Margrét Johnson.
Kap. — Regina Sigurdson.
Rit. — Árný Magnússon.
A.R. — R. jQhannson.
G. — Steinlaug ísfeld.
V. — Magnús Johnson.
D. — Margrét Sigurdson.
A.D. — Margrét Goodman.
Spilari — Margrét Olson.
•
Gjafir í minningarsjóð
Bandalags lúterskra kvenna.
Úr Árdísarsjóð $200.00. Úr
aðalsjóð Bandalagsins $100.00.
Mrs. J. Sigurður, Selkirk $25.00,
í minningu um son hennar Sgt.
Magnús Stephanson, dáinn 15.
jan. 1941. Rev. og Mrs. S. Ólafs-
son og fjölskylda $15.00, í minn-
ingu um P.O. Sigurjón Einars-
son, Gimli. Mr. og Mrs. Finnur
Jónsson, Winnipeg $25.00, í minn
ingu um son þeirra Ásgeir John-
son fallinn í hinu fyrra heims-
stríði. Mrs. J. Nordal, Winnipeg
$10.00, í minningu um systurson
Herippn Jonasson, Baldur. Mr.
og Mrs. Ó. Ólafsson, Selkirk
$5.00. Mrs. H. S. Erlendsson, Ár-
borg $5.00. Mr. Guðmundui
Pétursson, Gimli $10.00. Mrs. Al-
dís Pétursson, Árborg $5.00. Mrs.
K. Christopherson, Baldur $5.00.
Mrs. Thordís Jónsson, Winnipeg
$5.00. Mrs. B. Bjarnason, Lang-
ruth $10.00, í minningu um bróð-
ir hennar, Archibald J. Polson,
er féll í hinu fyrra heimsstríði.
Mrs. B. S. Benson, Winnipeg
$2.00. Mrs. Margrét Johnson,
Selkirk $5.00. Mrs. S. Simundson,
Selkirk $2.00. Mrs. Guðrún Thor-
steinsson, Árborg $2.00, í minn-
ingu um Ingva Eiríkson og Bald-
ur Lifman. Mrs. Kristín Magnús-
son, Selkirk $10.00. Miss Lilja
Guttormsson, Winnipeg $5.00, í
minningu um John Guttormson,
Minneota, Minn. Mr. og Mrs.
Gunnl. Johannson, Winnipeg
$25.00. Mrs. Anna Magnússon,
Selkirk $10.00. Magnús Hjörleifs-
son, Selkirk $1.00. Mrs. J. Markús
son, Winnipeg $2.00. Mrs. Ingi-
ríður Jónsson $5.00. Mrs. Hansína
Messuboð
Cand theol. Pétur Sigurgeirsson
prédikar í Fyrstu lútersku
kirkju í Winnipeg, 15. og 29.
júlí kl. 7 e. h. í bæði skiftin.
Söngflokkur verður til aðstoð-
ar, og Snjólaug Sigurðsson við
hljóðfærið.
Prestakall Norður Nýja fslands.
8. júlí — Árborg, ferming og
altarisganga. kl. 2 e. h.
Hnausa, messa kl. 8.30 e. h.
15. júlí — Riverton, ferming og
altarisganga kl. 2 e. h.
B. A. Bjarnason.
Guðsþjónustur við Churchbridge
í júlí-mánuði.
1 Winnipegosis þann 1., þann
8. ensk messa í Concordiakirkj u.
Þann 15. í Lögbergssöfnuði kl.
2 e. h. Þann 22. í Þingvallakirkju.
Þann 29. í Concordia kirkju.
S. S. C.
Olson $5.00. Mr. og Mrs. S. O.
Bjerring Winnipeg $25.00, í minn
ingu um P.O. Sigurjón Einarsson
Gimli.
Meðtekið með innilegu þakk-
læti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
Mra
DÁNARMINNING
Thelma Ásdís Sigurðsson,
dóttir Magnúsar Sigurðssonar í
Keewatin, Ontario, andaðist 4.
maí 1945, á Kenora General
Hospital, eftir stutta legu þar;
hún var fædd í Keewatin, Ont.,
3. febrúar 1922 og ólst upp hjá
foreldrum sínum og dvaldi í
föðurhúsum eins lengi og aldur
entist.
Thelma heitin var einstaklega
góð og vel gefin stúlka, naut
góðrar mentunar, bæði á almenn
um skóla og háskóla, en átti við
heilsuleysi að stríða síðustu ár-
in; henni var veitt öll sú læknis-
hjálp er auðið var, en það virt-
ist ekki koma að liði.
Thelma misti móður sína
Margréti Valgerði, árið 1930 og
bróðir sinn Hermann, árið 1937,
en eftirfylgjandi syrgjendur eru
enn á lífi: Mr. Magnús Sigurðs-
son, og fimm systur, Margrét,
Hildur, Sylvía, Guðrún og Ingi-
björg C.W.A.C., og bróðir Tómas,
í canadiska hernum.
Thelma heitin, var jörðuð í
Kenora grafreit, 6. maí 1945.
Rev. Smith, annaðist út-
förina. Það voru margir vinir
og kunningjar viðstaddir, er
lögðu blóm á hennar síðasta
kvílustað.
Blessuð sé minning hennar.
S. S.
Björgvin Guðmundsson
heiðraður
Félag Vestur-íslendinga hélt
Björgvin Guðmundssyni tón-
skáldi og konu hans samsæti í
Oddfellowhúsinu fimtudaginn 3.
maí s. 1.
Formaður félagsins, Hálfdan
Eiríksson kaupm., stjórnaði sam-
sætinu og mælti fyrir minni
heiðursgestsins, Björgvins Guð-
mundssonar. Frú Aðalbjörg
Johnson mælti fyrir minni frú
Fríðu Guðmundsson, en Ragnar
H. Ragnar fyrir minni Margrét-
ar dóttur Björgvins. Var það um
leið minni íslenzkrar æsku, og
heiðursgestur þakkaði með
snjallri ræðu. Aðrir ræðumenn
voru Ásgeir Ingimundarson
veggfóðrari, Ólafur Þorgrímsson
r hæstaréttarmálaflutningsmaður,
séra Jakob Jónsson og Valdimar
BjörnssoA sjóliðsforingi. öllum
Vestur-lslendingum, sem hér
eru í hernum, var boðið, og einn-
ig frú Rannveigu Smidt, sem
nýkomin er að vestan.
Til heiðurs Björgvin Guð-
mundssyni sungu einsöngva og
dúetta úr óratoriu hans “Friður
á jörðu” þau frú Ólafía Jóns-
dóttir, Ingibjörg Steingrímsdótt-
ir, frú Björg Guðmundsdóttir,
Ólafur Magnússon frá Mosfelli
og Pétur Á. Jónsson óperusöngv-
ari.
Að loknum ræðuhöldum og
söng voru borð upp tekin og
skemti fólk sér við dans til kl.
2. Var samsæti þetta mjög á-
nægjulegt.
Mbl. 12. maí.
8
Stórhríð á Vestfjörðum
Norðaustanhvassviðri með
mikilli snjókomu hefir geysað
um norðurhluta Vestfjarða í
nótt og dag. Sex bátar frá Bol-
ungarvík urðu að hleypa hingað
inn vegna veðurs í Bolungavík.
Höfðu þeir allir skemmst meira
og minna við öldubrjótinn þar.
Einn bát rak þar á land. Var það
vélbáturinn Flosi. Mun hann
mikið skemmdur.
Vegna snjókomunnar er búist
við að fé fenni, en því hafði verið
sleppt.
Mbl. 15. maí.
S23SS
V ör uskif taj öf nuðurinn
Vöruskiftajöfnuðurinn í apríl-
mánuði var hagstæður um 1.7
milj. króna. — Nam verðmæti
útfluttrar vöru 23 milj. króna.
Þá er vöruskiftajöfnuðurinn á
tímabilinu jan. til apríl hagstæð-
ur um 10,6 miljónir króna. Verð-
mæti útfluttrar vöru nam á þessu
tímabili um 89,9 milj., en inn-
fluttrar 79,3 milj.
Á tímabilinu jan.—apríl s. 1.
ár var vöruskiftajöfnuðurinn ó-
hagstæður um 300 þús.
Mbl. 15. maí.
Mæðgur hverfa
Sá hörmulegi atburður gerðist
austur í Grímsnesi síðastliðinn
laugardagsmorgun, að húsfreyj-
an að Þóroddsstöðum hvarf að
heiman frá sér og með henni
ársgömul dóttir hennar. Nokkru
síðar fundust þær báðar örendar
í læk skammt frá bænum.
Þetta gerðist snemma morg-
uns. Var bóndinn að sinna skepn-
um í útihúsum, er þær hurfu
og varð ekki vart ferða þeirra
mæðgna. Strax og þeirra var
saknað, var hafin leit að þeim.
Var leitað í þrjár klukkustundir,
áður en þær fundust. Lækur sá,
er þær fundust í, rennur á milli
Þóroddsstaða og Svínavatns, sem
Vart hafði orðið veilu á heilsu
er næsti bær við Þóroddsstaði.
húsfreyjunnar. — Lætur hún
eftir sig mann og 3 börn.
Mbl. 12. maí.
Hitt og þetta
Hún: — Þú ættir að vita hvað
hann pabbi varð feginn, þegar
eg sagði honum, að þú værir
skrifstofumaður.
Hann: — Er það virkilega, af
hverju?
Hún: — Af því, að sá sem
eg var með síðast var boxari.
•
— Segðu mér, Óli, rífst þú
aldrei við konuna þína?
— Nei, þegar við erum ásam-
mála, þá segi eg bara þegiðu,
og svo þegi eg.
Kaupendur á Islandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast kaupendur Lögbergs á
íslandi snúi sér til hr. Björns
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavik. Hann er gjald-
keri í Grœnmetisverzlun
ríkisins.
— Hvað heitirðu, drengur
minn?
— Eg heiti Hans.
— Það er fallegt nafn, þú
heitir kannske í höfuðið á hon-
um afa þínum?
— Nei, eg heiti í höfuðið á
kónginum.
— En ekki heitir hann Hans.
— Jú, Hans hátígn.
Hótelgesturinn: — Það eru nú
ekki margir uxahalar í þessari
uxahalasúpu.
Þjónninn: — O-nei, en það er
heldur enginn Napoleon í
Napoleonsköku.
•
Sonurinn: — Pabbi, er það
satt, að við séum komnir í heim-
inn til að hjálpa öðrum?
Faðirinn: — Já, auðvitað.
Sonurinn: — En til hvers eru
þá allir hinir?
•
Læknir sendi ekkju reikning
svohljóðandi: — Greiðsla fyrir
lækningu manns yðar fram að
dánardægri hans.
SSE5I
Lœtur af störfum
Próf. Dr. Ágúst H. Bjarnason
verður sjötugur í sumar og mun
þá láta af embætti sínu við Há-
skóla Islands, er hann hefir
gegnt frá stofnun Háskólans,
eða í 34 ár. Á mánudaginn var
flutti próf. Ágúst kveðjufyrir-
lestur í Háskólanum, að við-
stöddum flestum kennurum og
allmörgum stúdentum. — Ræddi
hann um friðinn og helstu frið-
flytjendur vorra tíma, sviss-
neska læknirinn Henri Dunant,
stofnanda Rauða krossins, og
sérstaklega Friðþjóf Nansen og
öll hans miklu og farsælu störf
fyrir Þjóðabandalagið.
Að loknum fyrirlestrinum á-
varpaði Jón Hj. Sigurðsson há-
skólarektor próf. Ágúst og þakk-
aði honum störf hans í Háskól-
anum. Þá mælti próf. dr. Alex-
ander Jóhannesson nokkur orð
af hálfu heimspekideildarinnar
og stud. mag. Thor Vilhjálmsson
af hálfu stúdenta.
Mbl. 12. maí.
17. júní
Þjóðræknisdeildin “Aldan”, að
Blaine, Wash., hélt hátíðlegan
þann 17. júní s. 1. í tilefni af Lýð-
Veldi íslands.
Hátíðahaldið fór fram í Blaine
City Hall og var vel sótt. Hátíða-
haldinu stjórnaði séra Guðm. P.
Johnson. Skemtiskrá var hin á-
gætasta. Ræðumenn þeir séra
Albert Kristjánsson og Andrew
Daníelson.
Söngflokkur undir stjórn Sig-
urðar Helgasonar tónskálds,
gerði íslenzku söngvunum hin
bestu skil, einnig tóku þar þátt
fleiri einsöngvarar en nokkru
'sinni hefur átt sér stað við sam-
komu í Blaine. T. d. hin ágæta
söngkona Ninna Stevens, og
Elías Breiðfjörð, bæði sungu
indæla söngva af mestu snild. Þá
má líka telja hinn ágæta sóló-
söngvara, Tana Björnson frá
Seattle, sem söng með lífi og
miklu fjöri bæði á ensku, ís-
lenzku og ítölsku.
Ein yngismær að nafni Miss
Roxie Klock frá Bellingham,
Söng líka marga einsöngva, henn
ar söngur vakti hina mestu að-
dáun hjá áheyrendum, Miss
Klock er aðeins 15 ára gömul, en
hefur aðdáanlega fögur hljóð,
Mrs. Dora Russell frá Ferndale
söng Faðirvorið og gerði því
vandasama hlutverki hin bestu
skil, báðar þessar síðastnefndu
eru námsmeyjar frú Helgasonar
konu Sigurðar Helgasonar, Mrs.
Helgason er alþekt fyrir að vera
ein hin allra færsta kona í að
kenna söng hér á ströndinni,
enda hefur hún stundað þá list
í mörg ár.
Ágætis veitingar voru fram-
bornar af íslenzku konunum í
Blaine, skemtunin reyndist að
vera ein hin besta og ánægju-
legasta samverustund Islendinga
sem um langt skeið hefur haldin
verið.
Islendingar í Blaine og bygð,
lifa í þeirri von að Þjóðræknis-
deildin Aldan verði 1 framtíð-
inni hinn sterki félagsskapur til
allra framkvæihda, í þá átt að
auka og glæða alt félagslíf á
meðal íslendinga hér á strönd-
inni og þá ekki að gleyma hin-
um merka Lýðveldisdegi Islands,
17. júní, sem er í raun og veru
líka fæðingardagur þjóðræknis-
deildarinnar “Aldan”, því það
var hennar fyrsta verk fyrir ári
síðan að halda hátíðlegan 17.
júní.
G. P. J.
HOME CARPET
CLEANERS
603 WALL ST., WINNIPEG
ViS hreinsum gólfteppi yðar
svo þau líta út eins og þegar
þau voru ný. — Ná aftur tétt-
leika sínum og áferöarprýði.
— Við gerum við Austurlanda-
gélfteppi á fullkomnasta hátt.
Vörur viðskiptamanna trygð-
ar að fullu. — Abyggilegt
verk. Greið viðskipU.
PHONE 33 955
“Friður á jörðu”
(Frh. af bls. 3)
hann síðan sjálfur lokakórnum,
sem var endurtekinn, en áheyr-
endur sýndu höfundinum virð-
ingu sína með því að rísa úr
sætum sínum og hlýða standandi
á sönginn undir hans stjórn. Átti
hann þifhn virðingarvott marg-
faldlega skilið.
B. A.
Vísir, 8. maí.
parfnist þér lífsdbyrgöarT
Ef svo er sfdiO þd
F. BJARNASON
Umboðsmaður IMPERIAL LIFE
Phones 92 501, 35 264
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðctr
MOST
SUITS-COATS
DRESSES
“CELLOTONE” CLEANED
72e
CASH AND CARRY
FOR DRIVER PHONE 37 261
PERTH’S
888 SARGENT AVE.
Heimsstyrjöldinni enn eigi lokið
Styðjið Rauða Krossinn og aðrar mannúðarstofnanir
af ráði og dáð. Látið ykkar hlut ekki feitir liggja.
Is a Good Motto for these work filled days.
This space contributed by
DREWRYS
Li/V ITEB
Ný ljóðabók
-f-M-
Nokkur eintök af “Sólheimum”, ljóðabók, sem ísafoldar-
prentsmiðja gaf út eftir Einar P. Jónsson rétt fyrir síðustu
jól er nú komin hingað vestur. — Bókin hefir hlotið góða
blaðadóma á íslandi; hún er prentuð á ágætan pappír og
kostar í bandi $5.00, póstfrítt.
-M-f
Pantanir ásamt andvirði, sendist til
Grettis L. Johannsonar, 910 Palmerston Ave., Winnipeg.