Lögberg - 09.08.1945, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. ÁGÚST, 1945
5
ÁHUGAMÁL
LVCNNA
R itstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Kona tekur sæti í brezka ráðuneytinu
Rt. Hon. Ellen Wilkinson
%
Frá því var skýrt hér í blað-
inu í vikunni, sem leið, að 23
konur hefðu hlotið sæti í brezka
þinginu við hinar almennu kosn-
ingar, sem fram fóru á Englandi
í öndverðum júlí mánuði síðast-
liðnum; aldrei áður í sögu brezku
þjóðarinnar hefir jafn fjölmenn
fylking kvenna verið kosin á
þing í Bretlandi; 19 af þessum
konum telast til verkamanna-
flokksins, sem nú er tekinn við
völdum undir forustu Clements
Attlee.
Kona sú, sem hér getur um og
myndin er af, er Miss Ellen
Wilkinson. Hún hefir nú verið
skipuð í hið mikilvæga og
ábyrgðarmikla menntamálaráð-
herraembætti.
Miss Wilkinson gaf sig um
hríð að kennslustörfum en brátt
hneigðist hugur hennar að því
að bæta kjör verkalýðsins; gerð-
ist hún á unga aldri eldheitur
félagi í samtökum verkamanna
og skipulagði félagsskap þeirra
manna og kvenna, sem við mat-
vöruverzlanir störfuðu; kom hún
í framkvæmd margvíslegum um-
bótum varðandi kaupgald og
vinnuskilyrði þessarar stéttar.
Hún fékk brátt orð á sig fyrir
skipulagningar hæfileika, ein-
urð og réttdæmi í málum. Miss
Wilkinson hefir all-langan þing-
feril að baki; hún hefir aldrei
tapað kosningu frá því er hún
fyrst bauð sig fram, fyrir því
nær 20 árum.
Miss Wilkinson var ein af
fulltrúunum, er sæti átti á
öryggisstefnu sameinuðu þjóð-
anna í San Francisco, og er það
út af fyrir sig, ásamt mörgu
fleiru, sönnun þess, hve mikils
trausts hún nýtur hjá þjóð sinni.
Miss Wilkinson er 53 ára að
aldri, rauðhærð og dálítið frekn-
ótt; hún er gædd sjaldgæfu vinnu
þreki og þegar hún flytur þing-
ræðu, hlustar allur þingheimur
án tillits til flokka. Hún er rót-
tæk í skoðunum og trúir því
eins og nýju neti að í áttina til
vinstri verði brezka þjóðin að
skyggnast eftir framtíðar vel-
ferð sinni og lífshamingju.
Þarfnastu matreiðslbókar?
Ef þú þarfnast matreiðslu-
bókar, ættir þú að útvega þér
matreiðslubókina, sem gefin er
út af kvenfélagi Fyrslfa lúterska
safnaðar í Winnipeg.
Mörgum er kunnugt um mat-
reiðslubók þessa og hún er orð-
in talsvert útbreydd, en ekki
þó eins víð|á eins og hún á
skilið. Þær húsmæður, sem nota
þessa bók, vilja ekki án hennar
vera. Allar uppskriftir í bók-
inni eru þaulreyndar. Þær eru
frá kvenfélagskonunum og öðr-
um íslenzkum konum víðsvegar
frá — konum, sem þekktar eru
fyrir kunnáttu sína í matargerð
og framleiðslu. Hver kona hefir
sennilega sent sína uppáhalds
uppskrift.
Ef einhver vinstúlka þín er í
þann veginn að giftast og taka að
sér húsmóðurstörf og þig langar
til þess að gleðja hana. væri til-
valið að gefa henni þessa bók.
Eg var nýlega í “shower” og
ein af gjöfunum, sem hin til-
vonandi brúður fékk var mat-
reiðslubókin. Gefandinn hafði
látið binda hana með fallegum
olíudúk, sem skreyttur var rauð-
um berjamyndum. Allir dáðust
að þessari fallegu og gagnlegu
gjöf.
Eg ætla að leyfa mér að gefa
ykkur eina uppskrift úr bók-
inni, sem sýnishorn af því að
hún hefir margt gott að geyma.
Hafið þið tekið eftir því hvað
margir karlmenn eru sólgnir í
skyr? Ef skyr er einhver stað-
ar til sölu, og þeir komast að
því, þá selst það óðara upp. Þrátt
fyrir þetta, hygg eg að húsfreyj-
ur yfirleitt búi sjaldan til skyr
á heimilum síunm; þó er skyr
talinn hinn hollasti matur. Eg
hélt að ástæðan fyrir þessu væri
sú, að það væri sérstaklega vanda
samt að búa til skyr, að eigin-
lega væri einhver leyndardóm-
ur í sambandi við skyrgerð, sem
aðeins fáar konur skildu. En svo
var það einn dag, þegar eg var
að blaða í matreiðslubókinni að
eg fann fyrirsögn um það hvern-
ig ætti að búa til skyr. Eg ákvað
að leggja út í að reyna þetta og
mér til undrunar heppnaðist
tilraunin ágætlega. Og hér fylgir
uppskriftin, ef ykkur skyldi
langa til að reyna þetta líka.
Skyr.
Sjóðhitið 4 potta af nýmjólk,
kælið þar til mjólkin er volg.
Hrærið saman tvær matskeiðar
af þétta (skyri) og % bolla af
mjólk. Hrærið þessu út í volga
mjólkina. Bætið í 12 dropum af
hleypir (rennet) og hrærið vel.
Geymið á hlýum stað í sólar-
hring. Látið á síu og þegar mys-
an er síin af því er skyrið
hrært vel og borðað með rjóma
út á.
Þétti.
2 egg.
Vi bolli súr rjómi.
1 matskeið sykur.
Þeytið eggin vel; bætið í súra
rjómanum og sykrinum og þeyt-
ið. Þetta er notað fyrir þétta
þegar skyr er ekki við hendina.
Varastu að hafa mjólkina of
heita þegar þú lætur hleyþir-
inn og þéttan í hana, því þá verð-
ur skyrið grófgert.
í bókinni eru uppskriftir af
fleiri fágætum íslenzkum rétt-
um, sem margir hafa mætur á.
Þar er mysuostur, lifrarpylsa,
kæfa og rúllupylsa, pönnukök-
ur o. s. frv.
En meginið af bókinni fjallar
vitaskuld um hérlenda rétti.
Ef ykkur langar til að eignast
þessa ágætu matreiðslubók,
skulið þið senda pantanir ykkar
til Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw
Ave., eða til Mrs. E. S. Feldsted
525 Dominion St., Winnipeg.
Verð bókarinnar er $1.00. Burð-
^rgald 5c.
Flugfargjaldið frá Reykjavík til
New York $90
Viðtal við Thor Solberg, sem fyrstur flaug norðurleiðina,
frá Ameríku til Norðurlanda.
Eftir ÍVAR GUÐMUNDSSON
New York í maí.
Það verður sennilega ekki
langt þangað til að flugfar-
gjaldið milli Reykjavíkur og
New York verður eitthvað í
kringum 585 krónur, eða 90
dollarar (fargjaldið er nú 315
upp í 608 dollarar). — Fram og
til baka verður fargjaldið tvö-
föld sú upphæð, að frádregnum
10%, ef farmiði er keyptur báð-
ar leiðir. Þessar upplýsingar hefi
eg frá Thor Solberg. en hann
er forstajóri eins þeirra amer-
ísku flugfélaga, sem sótt hafa
um leyfi til að fljúga farþegum
og farangri frá Ameríku til
Evrópu, með viðkomu á Islandi.
Thor Solberg er Islendingum
vel kunnur, því hann var fyrsti
flugmaðurinn, sem flaug norður
leiðina, frá Ameríku til Norður-
landa, með viðkomu í Grænlandi
og á íslandi. — Það var sumarið
1935. Síðan hefir Solberg unnið
sleitulaust að því áhugamáli sínu
að koma á föstum flugferðum
til Norðurlanda frá Ameríku til
Norðurlanda og frá Norðurlönd-
um til Ameríku.
Ófriðurinn hefir dregið úr
framkvæmdum einstaklinga i
þessum efnum. En nú er Solberg
forstjóri flugfélagsins U. S.
Midnight Sun Airline Inc., sem
er reiðubúið að hefja farþega og
flutningaflug á áðurgreindri
leið. Fái félag hans leyfi til að
fljúga þessa leið, verður far-
gjaldið eins og fyr segir, en það
svarar til 3 centa (19% eyrir) á
farþega fyrir hverja flogna mílu.
— Þetta er okkar boð, sagði
Thor Solberg, er eg hitti hann
hér í New York á dögunum og
félag vort getur hagnast á því,
að selja farið við þessu verði.
New York—Reykjavík
á 9—10 klukkustundum.
Thor Solberg er norskur mað-
ur að ætt, en er nú bandarískur
þegn. Aðaláhugamál hans hefir
jafnan verið að koma á flug-
ferðum milli Ameríku og Nor-
egs. — En mér hefir ávalt verið
ljóst, síðan eg fyrst fór að hugsa
um þessi mál, segir hann, að
sú leið liggur um ísland. Félag
okkar hefir í hyggju, ef það fær
umbeðið leyfi til farþegaflugs á
þessari leið, að hafa þrjár flug-
ferðir í viku, hvora leið, milli
New York og Oslo, með viðkomu
í Reykjavík. Ferðunum verður
hagað á þá leið, að lagt verður
af stað frá New York klukkan 7
að kvöldi, komið til Reykjavík-
ur klukkan 5—6 næsta morgun
(amerískur tími). Síðan yrði
haldið áfram til Oslo og komið
þangað kl. 2 e. h.
Ekki í vafa um þýðingu
íslands.
Solberg er á sömu skoðun og
aðrir sérfræðingar í Atlantshafs
flugmálum, sem eg hefi rætt við.
Hann er ekki í nokkrum vafa
um, að ísland verður þýðingar-
mikill áfangi á flugleiðinni milli
Evrópu og Ameríku.
— Þið skuluð búa ykur undir
mikinn ferðamannastraum að ó-
friðnum í Kyrrahafinu loknum.
Okkar takmark er að gera flug-
vélina að farartæki almennings,
en ekki farartæki fyrir hina fáu,
sem auðugir eru, sagði Solberg.
Hvenær hægt myndi að hefja
reglubundnar flugferðir um Is-
land fyrir almenning, vissi Sol-
berg ekki frekar en aðrir, en
hann taldi, að það myndi verða
mjög skömmu eftir að ófriðn-
um lyki og jafnvel nú, þegar á
þessu sumri, þar sem Evrópu-
styrjöldinni er þegar lokið.
Thor Solberg hefir í hyggju,
að hefja eins fljótt og hann get-
u|r flugferðiir til Noregs með
sjúkragögn og annað, sem Norð-
menn vanhagar mjög um. Mun
hann þá fljúga um ísland, en
býst ekki við að geta tekið far-
þega að neinu ráði til að byrja
með.
Einn af brautryðjendum.
Eins og getið var í upphafi er
Thor Solberg brautryðjandi á
sviði flugmála um Norður-Alt-
antshaf. — Hann er nú maður
rúmlega fimtugur. Hann var
orðinn rúmlega þrítugur er hann
kyntist Ronald Amundsen og
fékk áhuga fyrir norðurleiðum.
Það var 1925, þegar Amundsen
var að undirbúa Norðurpólsflug
sitt. — Sama ár fór Solberg til
Bandaríkjanna og hóf að læra
flug í þeim tilgangi að geta sjálf
ur flogið norðurleiðina. Hann
tók flugmannspróf í New York
og 1931 gerðist hann amerískur
bargari.
1930 keypti Solberg “Bell-
anca” flugvél af sömu tegund,
sem Clarance Chamberlain
hafði flogið í frá Ameríku til
Þýzkalands 1927. Solberg flaug
þessari flugvél sinni víða um
Ameríku, samtals um 1000 flug-
tíma og altaf var hann að undir-
búa sig undir flugið um orður-
leiðina.
1932 keypti Solberg enn nýja
flugvél, sem hann gerbreytti með
það fyrir augum að fljúga henni
til Noregs^ um Grænland og ís-
land. En hann fór sér að engu
óðslega, því hann er maður gæt-
inn. — Hann ræddi við land-
fræðinga, reynda flugmenn og
pólfara og aflaði sér mikillar
þekkingar á veðráttu og landa-
fræði Grænlands og íslands.
1934 keypti Solberg enn eina
flugvél, “Löning Airyacht”, setti
í hana stóra benzíngeyma til
langflugs. Hann nefndi flugvél
sína Leiv Eiríksson, því hann
ætlaði að fljúga sömu leið og
Leifur Eiríksson, hinn heppni
hafði farið, er hann fann Ame-
ríku. Solberk lagði af stað frá
Floyd Bennet flugvelli 18. júlí
1935. — í fylgd með honum var
loftskeytamaðurinn Paul Oscan
van. Þeir félagar flugu til Can-
ada og komu við í Grænlandi
og þremur stöðum á íslandi,
Bíldudal, Reykjavík og Horna-
firði. — Síðan héldu þeir til
Færeyja og loks þaðan til Berg-
en og Oslo og lentu þar 18.
ágúst, réttum mánuði eftir að
þeir höfðu lagt af stað frá Ame-
ríku.
Ætlaði að hefja flugferðir
1940.
Eftir flug sitt 1935 dvaldi Sol-
berg nokkur ár í Noregi og var
þar umboðsmaður fyrir amerísk
flugfélög. — Enn fremur setti
hann á stofn flugmannaskóla í
Bergen. Árið 1940 hafði hann
ákveðið, að hefja fastar póst-
flugferðir frá Bergen um Reykja
vík, til Bandaríkjanna.
Það sama ár fór hann til Banda
ríkjanna til kaupa á tækjum til
póstflugsins. — Gekk sú ferð að
óskum þar til hann var á heim-
leiðinni aftur til Noregs. Skipið
er hann var með átti skammt
eftir ófarið til hafnar í Noregi,
er Þjóðverjar gerðu innrás í
landið. Skipið sneri við til
Ameríku. Solberg opnaði þá
skrifstofu í Radio City í New
York og hóf verslun með flug-
vélahluta. Hann vann í nánu
sambandi við norska flugherinn
og keypti inn fyrir flugsveitir
Norðmanna, sem bækistöðvar
höfðu í Canada, á íslandi og í
Englandi.
Stofnar flugskóla.
Árið 1941 keypti Thcr Sol-
berg um 400 ekrur lands í Hunt
erdonhéraði New Jersey, skamt
frá New York. Þar kom hann
upp nýtýzku flugvelli og hóf þar
flugskóla. Heitir völlur þessi
Solberg-Hunterdon flugvöllur-
inn. 75 flugvélar höfðu bæki-
stöð á flugvellinum um þetta
leyti.
Solberg hefir kent rúmlega
1000 flugmönnum ameríska flug
hersins að fljúga síðan ófriður-
inn braust út.
Nú hefir Solberg_í huga að af-
henda kunningja sínum og starfs
manni flugskólann, en stjórna
sjálfur flugfélaginu U. S. Mid-
night Sun Airline Inc.
Minnist íslandsferðarinnar
með ánægju.
Thor Solberg minnist íslands-
ferðar sinnar 1935 með ánægju
og spyr um líðan margra manna,
sem hann hitti á ferð sinni. “Eg
(Frh. á bls. 8)
LOOKING TO THE FUTURE . . .
LIFE INSURANCE
_ AND
PENSION PLANS
THE MONARCH LIFE
ASSURANCE CO.
> Manitoba Representatives:
K. N. S. FRIDFINNSON BARNEY EGILSON
Arborg Gimli
Servicinfl a Wide Clientele of Icelandic Canadians
FIRÐSÍMAGJÖLD
ERU LÆGRI FRÁ
Nákvæmlega jafn fljótt og símaverksmiðjunum
verður breytt til friðariðju. — SÍMAUMSÓKN-
IR VERÐA AFGREIDDAR 1 ÞEIRRI RÖÐ,
SEM ÞÆR BERAST.
Eins og til hagar, verða símalagnir mögulegar,
þar sem símanotendur flytja sig, eða hætta við
símann, eða fyrir aðrar sérstakar ástæður (um-
sókn varðandi stríðsiðju, skipar fyrirrúm).
Við vitum að þetta eru kaldar staðreyndir fyrir
þá, sem vilja síma STRAX, en treystum því
að þið auðsýnið biðiund þegar ástæður eru
kunnar.
6 E. H. TIL 4.30 F. H.
*\