Lögberg - 23.08.1945, Blaðsíða 1
PHONE 21374
„»>**** &* S A
a'ld
Complete
Cleaning
Institution
58. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. ÁGÚST 1945
Cieanng
Institution
NÚMER 34
IIII!!IIIIIIIIIIIIIIIIII!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!II!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!!IIIIIIIIIIIIIIUIIIII!I1IIIIIIIIIII1IIIIIIIIIIIIIIIIIIH!IIIIIIUIIII!II!IIIIIIIIIIIIIIUIIIIII!II>IIIIIIIIIIIIUIIIUIII!!!I!!IIIIIIIIIIIIIIIUIIII!I!!!III!IIIIIIIIIII!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
f rá fjallatindum til fiskimida
lll!l!l!!!IIIIIUIIIIIIIinil!l!lllll!IIIIIIIIUIH!lllllllllllll!!llllll!inilll!l!IIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIII!IIIIIIIIIIUIIIIIIII!!IIIIIIIIIIIIUttlllU!ll!ll!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllll!lll!lllllll!!llllll!l!llll!l!!lll!lll
Vopnahlés ráðstafanir
fá byr í segl
Síðastliðinn sunnudag kom
sendinefnd japönsku stjórnar-
valdanna til Manila til þess að
semja við forustumenn Banda-
ríkjahersins um vopnahlé og upp
gjafarskilmála; alls voru í
sendinefndinni 16 Japanir, flest
yfirforingjar í uppgjafarhernum;
Komu þeir til ráðstefnunnar 1
tveimur hernaðarflugvélum og
mátti svo að orði kveða að taf-
arlaust væri tekið til starfa; ráð-
stefnan var haldin í aðalherbúð-
um General McArthurs, en sjálf-
ur fékk hann eigi komið því við
að vera persónulega viðstaddur;
japanska sendisveitin hvarf heim
leiðis á mánudagskvöld; víst
þykir, að fullnaðarráðstafanir
hafi verið teknar um það, hvar
og hvenær ameríska setuliðið
myndi lenda í Japan til þess að
ganga frá hernámi landsins, og
verður sá herafli undir presónu-
legri forustu General McArthurs;
staðhæft er að uppgjafarskilmál-
arnir verði formlega undirskrif-
aðir um borð í ameríska beiti-
skipinu Missouri, en skip það
ber nafn ríkisins, sem Truman
forseti er fæddur í, og fylgir það
sögu, að staðfesting uppgjafar-
innar af hálfu Japana, muni fara
fram í Tokyo-flóanum.
Svo að segja á hverjum ein-
asta og einum orustuvettvangi,
hafa Japanir lagt niður vopn, eða
eru í þann veginn að gera það.
Stríðinu milli Japana og Kín-
verja, sem staðið hefir yfir í
fjórtán ár, er að kalla má lokið,
og frá Moskvu er símað á mánu-
dagsmorguninn, að mótspyrna
Japana í Manchuríu, sé í þann
veginn að fjara út; hafa Rússar
þegar á valdi sínu fjórar stærstu
borgir landsins, og eru komnir
vel á veg með afvopnun 750,000
japanskra hermanna þar um slóð-
ir.
Japanska hervaldið er hrunið
til grunna, og draumar þjóðar-
innar um Asíustórveldið að engu
orðinn.
Orótt innan brjósts
Þegar brezka þingið kom sam-
an í vikunni, sem leið, flutti leið-
togi stjórnarandstæðinga, Mr.
Churchill, all-langa ræðu, þar
sem hann fór ekki dult með það,
að sér væri órótt innanbrjósts
vegna útbreiðslu og áhrifa komm
únismans í ýmsum þjóðlöndum
Norðurálfunnar, og þá einkum á
Balkanskaganum; kvaðst Mr.
Churchill sjá fram á þá hættu,
sem af því stafaði, ef komið yrði
á fót í löndum þessum einræðis-
stjórnum, hvort heldur þær gengi
undir kommúnistamerki, eða
bæri eitthvert annað nafn, því
einræði hefði ávalt eitt og sama
markmið.
Vel fórust Mr. Chucrhill orð
í garð Stalins, að alt sem hann
segði, stæði jafnan eins og stafur
á bók.
Hinn nýi fbrsætisráðherra, Mr.
Clement Attlee, taldi Mr. Churc-
hill óþarflega myrksýnan varð-
andi viðhorf hinna ýmissu Norð-
urálfuþjóða.
Stjórnin borgar brúsann
Fjármálaráðherrann, Mr. Ils-
ley, hefir nýlega tilkynt, að sam-
bandsstjórn greiði að miklu leyti
fyrir þau eignaspjöll, er stöfuðu
af völdum uppþotsins í Halifax
á V-E daginn, sem og vegna
sprengingarinnar miklu í her-
gagnageymslu canadiska flotans
þar í borginni; hin konunglega
ranmsóknlarnefnd, er rannsókn
hafði með höndum í báðum til-
fellum, undir forustu R. L.
Kellocks dómara, komst að þ'eirri
niðurstöðu, að flotamála yfir-
völdin hefðu hvergi nærri gert
fullnægjandi gangskör að því, að
halda sjóliðum um borð í skip-
um áminstan uppþotsdag, og
sýnt í því efni slælegt eftirlit.
Verkamannastjórnin
brezka
Um miðja fyrri viku var brezka
þinginu stefnt til funda, og var
þá verkamannaráðuneytið nýja
formlega búið að koma sér á
laggirnar; í hásætisræðunni, sem
Hans Hátign konungurinn las
upp, var megin áherzla lögð á
bræðralag og alþjóða samvinnu;
hét stjórnin því, að láta einskis
þess ófreistað, er flýta mætti
fyrir viðreisnarstarfseminni í
heiminum bæði inn á við og út
á við; þá lýsti og stjórnarboð-
skapurinn yfir því, að meðal
hinna fyrstu verka nýju stjórn-
arinnar á vettvangi innanlands-
málanna yrði það, að þjóðnýta
enska bankann (Bank of Eng-
land), og kolanámuiðnað þjóð-
arinnar, sem sagður er að vera
alt annað en í glæsilegu ásig-
komulagi; næsta skref stjórnar-
innar í sósíalista átt mun svo
verða það, að þjóðnýta orku-
ver, stáliðnaðinn og samgöngu-
tækin.
Stríð við Rússa
nauðsynlegt
Oswald Pirow, fyrrum hermála
ráðherra Suður-Afríku sambands
ins, og formaður hins svonefnda
nýskipunarflokks, flutti ræðu í
borginni Pretoria þann 20. þ. m.,
þar sem hann lét þess getið, að
til þess að vernda það, sem enn
væri eftir af vestrænni menn-
ingu, yrði það óhjákvæmilegt, að
berjast til fullnaðarsigurs gegn
rússneska kommúnistaveldinu,
sem það hefði að markmiði að
leggja undir sig allan heiminn.
“Það er sárgrætilegt,” sagði Mr.
Pirow, “hversu horfur um skjót-
an framgang þessa mikla nauð-
synjamáls eru daufar, vegna
þeirrar slysni, að verkamanna-
flokkurinn skyldi komast til
valda á Bretlandi.”
n
Sagt upp vinnu
Samkvæmt fregnum frá Ott-
awa, hefir framkvæmdarstjórn
Cordite verksmiðjunnar í Trans-
cona, verið fyrirskipað, að ann-
ast um að verksmiðjan hætti nú
þegar framleiðslu sprengiefna og
annara hergagna; er gizkað á,
að eitthvað um 1,100 manns
missi atvinnu vegna þessara ráð-
stafana, hvað sem seinna tekur
við.
Benzínskomtun afnumin
Jafnskjótt og það varð hljóð-
bært, að Kyrrahafsstríðinu væri
lokið, lét sambandsstjórnin í
Ottawa það verða eitt sitt allra
fyrsta verk, að nema úr gildi
skömtun á benzíni; varð þá þeg-
ar uppi fótur og fit í hinu víð-
lenda ríki bílaeigenda og ferða-
langa; enn er þó nokkur þurð
hjólbarða, sem vafalaust rætist
fram úr smátt og smátt, eftir að
hlutaðeigandi verksmiðjum verð
ur breytt frá stríðsiðnaði til frið-
ariðju.
Quisling fyrir rétti
Réttarhald yfir Vidkun Quisl-
ing, skósveini Adolf Hitlers í
Noregi, hófst í Oslo þann 20. þ.
m. Er hanít sakaður um landráð
og mútuþágur í sambandi við
innrás Nazista í Noreg; gerðu
Nazistar hann að málamynda
forsætisráðherra, og reyndist
hann þeim auðsveipt áhald til
hverskonar ófremdarverka.
Auk þess að hafa greitt fyrir,
og stuðlað að hernámi Noregs,
er Quisling sakaður um að hafa
beint og óbeint, verið valdur að
aftöku yfir sjö hundruð þjóð-
bræðra sinna. Quisling tjáðist
alsaklaus af öllum þessum ákær-
um, og staðhæfði það, að hann
hafi gert allar sínar ráðstafanir
með það fyrir augum, að firra
norsku þjóðina enn meiri vandr-
æðum; trúi því hver, sem vill.
Vitnisburðir þeirra Goerings og
Ribbentrops verða lagðir fram
í réttinum af hálfu þess opin-
bera til sönnunar samstarfi Quis-
lings við Nazista.
Leyst úr ánauð
Fregnir frá London síðastlið-
inn þriðjudag láta þess getið, að
rússneska ríkisútvarpið hafi þá
um morguninn skýrt frá því, að
rússnesk stjórnarvöld séu eip-
huga um það, að Manchuria,
sem nú hefir verið frelsuð úr
Japönskum þrældómsviðjum,
skuli verða viðurkend sem frjálst
og fullvalda ríki. “Við fórum
ekki inn í Manchuriu,” segja
Rússar, “til þess að leggja und-
ir okkur landið, heldur til þess
að leysa það úr ánauð.”
isægli
Láns og leigulögin
numin úr gildi
Truman forseti hefir með ný-
legum úrskurði, numið úr gildi
láns og leigu löggjöf Bandaríkja-
þjóðarinnar, er kom til fram-
kvæmda á hinum fyrstu árum
Norðurálfustyrjaldarinnar; bre-
zka þjóðin kvað una illa þessari
óvæntu ráðstöfun Bandaríkja
forsetans.
Brezki flotinn fer
frá Islandi
Kveðjusamsœti Watsons,
flotaforingja.
Flotaforingi breta hér á landi,
B. C. Watson, C. B., D. S. O.
vara-aðmíráll og foringi í hinum
konunglega brezka flota er á
förum frá íslandi. Flotaforing-
inn og foringjar í flota og land-
gönguliði buðu í gær til síð-
degisdrykkju í brezka- liðsfor-
ingjaklúbbnum til að kveðja
vini og kunningja. Voru þarna
Útdráttur úr fundargerðum síðasta
Þjóðræknisþings
viðstaddir á fimta hundrað
manns.
Watson flotaforingi hélt stutta
ræðu. Þakkaði hann vinsemd þá
og gestrisni, sem hann og lið
hans hefði notið hér á landi.
Ennfremur minntist flotaforing-
inn á þann þátt, sem ísland hefði
átt í að vinna orustuna um Atl-
antshafið. Menn hefðu ávalt ver-
ið reiðubúnir til að aðstoða, þeg-
ar kallað hefði verið og oft hefðu
menn lagt sig í beina lífshættu
við slík störf.
Flotaforinginn mintist þeirra
íslendinga, sem látið hafa lífið
í orustunni um Atlantshafið og
það skipatjón, sem íslendingar
hefðu orðið fyrir.
“Fékk ást á íslandi.”
“Eg fékk ást á íslandi við
fyrstu sýn,” sagði Watson flota-
foringi. Það stóð líka þannig á,
að eg var að koma frá skipi,
sem hafði orðið fyrir tundur-
skeyti á Atlantshafinu og ef til
vill varð mér landtakan hér
kærari þess vegna.”
Að lokum sungu Bretar hið
kunna lag sitt: “He is a jolly
good fellow” og hrópuðu síðan
þrefalt húrra fyrir íslandi og ís-
lendingum.
Forsœtisráðherrann svarar.
Ólafur Thors forsætisráðherra
svaraði * ræðu flotaforingjans
með nökkrum orðum og sagði
m. a. að “með komu sinni hing-
að hefði brezki flotinn bætt
nýjum kafla við sína glæsilegu
sögu. Ef til vill ekki svo þýð-
úngarmikinn fyrir hann, það get
eg ekki dæmt um, en mjög
;þýðingarmikinn fyrir okkur.”
Brezki flotinn hefði komið
fram, eins og við hefði mátt
búast af brezkum heiðursmönn-
um. Vera brezka flotans hér
hefði haft mikla þýðingu fyrir
okkar litla ríki.
Að ræðu forsætisráðherra
lokinni var hrópað ferfalt
húrra fyrir brezka flotanum.
Mbl. 21. júlí.
Mælt af sanngirni
Rétt áður en fundurinn milli
sambandsstjórnarinnar og fylkis-
stjórnanna hófst í Ottawa þann
6. þ. m., virtist uggur nokkur
í hinum og þessum stjórnmála
forkólfum þjóðarinnar vegna
þeirrar afstöðu, sem þeir væntu,
að stjórnarvöldin í Quebec
myndu taka gagnvart þeim
meginmálum, er búist var við
að fundurinn tæki til meðferðar;
nú er það komið á daginn, að
sá uggur var með öllu ástæðu-
laus; fulltrúar Quebec fylkis sem
fundinn sóttu, voru í engu ófús-
ari til samvinnu við sambands-
stjórnina en málsvarar annara
fylkja; jafnvel Duplessis forsætis
ráðherra, sem stundum hefir ver-
ið alt annað en mjúkur í garð
núverandi sambandsstjórnar, var
hinn liprasti í öllum samstarfs-
tilraunum, og kvaðst ekkert sjá
því til fyrirstöðu, eins og nú
hagaði til, að fullkomin sam-
vinna ætti að nást.
ESÍKgÍ
Lætur af embætti
Hermálaráðherra sambands-
stjórnar, General A. G. L. Mc-
Naughton, hefir látið af embætti,
en við af honum tekur Hon. D. C.
Abbott flotamálaráðherra; þykir
líklegt, að hann gegni báðum
embættum, að minsta kosti fyrst
um sinn.
(Af ýmsum ástæðum hefir það
dregist, að fundargerðir síðasta
Þjóðræknisþings kæmu fyrir al-
mennings sjónir, meðal annars
Vegna þess, að stjórnarnefndin
gerði ákveðnar tilraunir til þess
að koma í framkvæmd þeirri
samþykkt þingsins að láta sér-
prenta fundargerðir þess í heild
sinni og geyma stílinn þangað til
tímaritið yrði prentað; en þegar
það reyndist erfiðleikum bund-
ið, var horfið að því ráði að lája
prenta helstu samþykktir þings-
ins í íslenzku vikublöðunum, og
brugðust þau vel við þeirri mála-
leitun.)
Eins og löngu er kunnugt, var
26. ársþing Þjóðræknisfélagsins
haldið í Winnipeg 26., 27. og 28.
febrúar síðastliðinn. Voru þing-
fundir vel sóttir og samkomurn-
ar allar í sambandi við þingið
fjölsóttar mjög. Tveir ágætir
gestir, langt að komnir, þeir dr.
Helgi P. Briem, aðalræðismaður
Islands í New York, og Árni G.
Eylands framkvæmdarstjóri, for-
seti Þjóðræknisfélagsins á ís-
landi, sátu þingið og fluttu ræð-
ur bæði á þinginu sjálfu og hin-
um opinberu samkomum, . er
haldnar voru samhliða því.
Þingsetningarræða forseta,
kveðjuræður heiðursgestanna,
sem og aðrar kveðjur, bréfleg-
ar og í símskeytum, er þinginu
bárust, hafa þegar verið birtar í
vikublöðunum íslenzku. Skýrsl-
ur embættismanna, er lagðar
voru fram á þinginu, og skýrsl-
ur deilda félagsins, er lesnar
voru þar upp, verða venju sam-
kvæmt birtar í heild sinni í næsta
Tímariti félagsins. Um skýrslur
deildanna skal það tekið fram, að
þær báru því vott, að deildirn-
ar höfðu yfirleitt haldið vel í
horfinu á árinu, og sumar verið
ágætlega starfandi; ýmsar þeirra
eiga þó við örðugleika að glíma
vegna fækkunar eldra fólksins
íslenzka og vandkvæða, sem af
heimsstyrjöldinni hafa stafáð.
Skýrslur milliþinganefnda.
Milliþinganefnd í samvinnu-
málum við Island hafði undirbú-
ið ítarlega skýrslu, er formað-
ur hennar, séra Valdimar J. Ey-
lands, lagði fram fyrir hönd
nefndarinnar, og verður þeircar
skýrslu nánar getið í sambandi
við samþykktir þingsins um þau
mál.
Ásmundur P. Jóhannsson, for-
maður milliþinganefndar í Leif
Eiríkssonar málinu, skýrði frá
því, að Leifs-styttan væri geymd
á merku safni í Austur-Banda-
ríkjunum (Marine Museum, New
Port, Rhode Island) og taldi, að
frekari úrlausn um varanlegan
stað fyrir myndastyttuna verði
ekki unnt að fá fyr en að stríð-
inu loknu. Var milliþinganefndin
í þessu máli endurkosin, en hana
skipa, auk Ásmundar P. Jóhanns
sonar, þeir Guðmundur Grímson
dómari og Gunnar B. Björnsson
skattnefndar-formaður.
Séra Sigurður Ólafsson, for-
maður milliþinganefndar, sem
vinnur að söfnun þjóðlegra
fræða, bar fram skýrslu af henn-
ar hálfu. Var nefndin endurkos-
in, en í henni eiga sæti, auk séra
Sigurðar, séra Halldór E. John-
son, G. J. Oleson, Gamalíel Thor-
leifsson og Páll Guðmundsson.
Fyrir hönd milliþinganefndar-
innar í fræðslumálum lagði for-
maður hennar, Mrs. Ingibjörg
Jónsson, fram sundurliðaða
skýrslu um starfið á árinu, er
sýndi, að nýrra kennslubóka
hafði verið aflað og fjárstyrk,
nálega $200.00 að upphæð, verið
varið til stuðnings íslenzkuskól-
um deilda félagsins. Jafnframt
fór nefndin fram á $500.00 fjár-
veitingu til kennslumála fyrir
næsta skólaár (1945—46).
Munnleg skýrsla var gefin af
hálfu milliþinganefndar í minja-
söfnun, og voru þeir Bergþór
E. Johnson og Davíð Björnsson
endurkosnir í þá nefnd. Jafn-
framt mæltist þingið til þess, að
skrá sé samin yfir safnið og því
komið fyrir á hentugum stað, þar
sem fólk hefir aðgang að því.
Milliþinganefnd háfði eigi að
þessu sinni verið starfandi að
rithöfundasjóði, en Ásntundur P.
Jóhannsson gerði skilagrein varð
andi hann og skýrði frá því að
deildin “Esjan” í Árborg hefði
safnað $200.00 í þann sjóð, með
þeim tilmælum, að sú upphæð
gengi til skáldsins J. Magnúsar
Bjarnason, enda er hann hinn
eini höfundur, sem notið hefir
styrks úr sjóðnum. Jafnhliða
fylgdi áeggjan til annara deilda
um fjársöfnun í sama tilgangi,
er stjórnarnefndinni var faiið að
koma á framfæri til þeirra.
Útbreiðslumál.
Þingnefndin í þeim málum
lagði fram nefndarálit í 12 liðum
sem allir voru samþyktir. Auk
þakka til ýmsra aðilja fyrir starf
þeirra og stuðning við þjóðrækn-
ismálin, voru þessar megintil-
lögur nefndarinnar:
Að þingið feli væntanlegri
framkvæmdarnefnd að hefjast
handa um stofnun deilda á Lund
ar, á svæðinu austan við Mani-
toba-vatn, að Langruth, og á
öðrum stöðum þar sem tækifæri
til þess kann að vera fyrir hendi.
Að þingið feli framkvæmda-
nefnd sinni að gera sitt ýtrasta
til að endurreisa þær deildir
félagsins, sem vegna ýmsra erfið-
leika eru nú lítt starfandi. Telur
nefndin, að slíkt viðreisnarstarf
muni best unnið með heimsókn-
um til hlutaðeigandi deilda af
hálfu manna úr framkvæmda-
nefndinni, sem hún kann að velja
til þess.
Að þingið skori alvarlega á alla
fulltrúa deilda, sem nú eru á
þingi staddir, að gera alt, sem
í þeirra valdi stendur, til að
glæða áhuga á málum félagsins
heima fyrir, hver í sinni deild.
I því sambandi vill nefndin
benda á, að hún telur heppilegt,
að fundir verði haldnir í hverri
deild eins fljótt og því verður
viðkomið að afstöðnu þingi, þar
sem fulltrúarnir greini frá þing-
störfum, og viðleitni félagsins í
heild sinni; ennfremur, að deild-
ir skiftist á starfskröftum, þannig
að systurdeild í nærliggjandi bæ
eða byggð sé boðið að standa
fyrir skemmtiskrá á hverjum
stað þar sem deildir eru, þannig
myndi fjölbreytni starfskraft-
anna koma betur í ljós og heil-
brigð samkepni aukast.
Að skrifara framkvæmdar-
nefndar sé falið á ársfjórðungi
hverjum að fjölrita útdrátt úr
f undargj örðum framkvæmdar-
nefndar, til útbýtingar meðal
deilda þeim til fróðleiks og upp-
örvunar.
(Frh. á bls. 5)