Lögberg - 23.08.1945, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. ÁGÚST 1945
Sigur — Fiður
Erindi flutt af séra Valdimar J.
Eylands, í Fyrstu lútersku kirkju
19. ágúst 1945.
“Sigurhátíð sæl og blíð
hljómar nú og gleði gefur ...”
Ef menn væru að því spurðir,
hvert sé tilefni hins mikla fagn-
aðar, sem síðast liðna daga hefir
verið efst í hugum þeirra, og
fengið hefir útrás, sumstaðar í
ærslum og ólátum, en sem nú í
kvöld kemur fram hjá oss 1
þakkargjörð við hátíðlega guðs-
þjónustu, þá mundi svarið alls-
staðar verða svipað eða hið sama:
Friður — Sigur.
Þetta eru stutt orð, en á bak
við þau standa bænir og barátta,
vonir og draumar, fórnir og
hjartasorgir, sár og svaðilfarir,
dáðir, djörfung og dauði ótaldra
þúsunda, ekki aðeins meðal her-
manna, heldur einnig meðal al-
mennra borgara út um allan
heim. Með aukinni tækni verð-
ur hvert heimsstríð ógurlegra en
það næsta á undan. Þetta stríð,
sem nú er fyrir Guðs náð far-
sællega til lykta leitt hefir vissu-
lega verið hið ógurlegasta af
öllum styrjöldum, sem hin blóði
drifnu spjöld sögunnar kunna
frá að greina. í næstum sex ár
hefir þessi skelfilega brimalda
gengið yfir lönd og þjóðir, rifið
upp með rótum margt það, sem
fegurst er af því, sem mennirnir
hafa bygt um aldir, og gert frið-
sama borgara ýmsra landa að
blóðugum brennuvörgum. Þegar
nú óveðrið er liðið hjá, og sólin
skín aftur á bak við skýin, er
það sízt að undra að menn hrópi
upp yfir sig af fögnuði: Guði
séu þakkir, friðurinn er kom-
inn, sigurinn er fenginn!
Nú þegar þessari martröð er
létt af heiminum, er ekki ástæðu
laust að menn nemi staðar og
spyrji: Um hvað var nú eigin-
lega barist? Hvað hefir þessi
sigur kostað? Eru nokkur líkindi
til þess að þessi friður haldist
nú fremur en áður?
Fyrstu spurningunni má svara
í stuttu máli: Það var barist um
það hvort menn áttu nú, og
um ófyrirsjáanlega framtíð að
vera frjálsir eða þrælar. Búast
má þó við að einhverjum finn-
ist þetta svar of einfalt, og
krefjist frekari skilgreiningar.
Annars vegar var hin meðfædda
þrá manna til að vera óháðir í
hugsun, orðum og athöfnum, ó-
háðir öllu og öllum nema þeim
lögum og réttarfari, sem þeir
sjálfir koma sér saman um til að
tryggj a velferð heildarinnar. Þó
að þessi frelsisstefna sé enn að
nokkru leyti aðeins hugsjón, þótt
hún sé að því, sem veruleikann
áhrærir ýmsum takmörkunum
háð eins og alt mannlegt skipu-
lag, er hún þó sú eina stefna,
- sem leiðir til heilla, enda hefir
hún öldum saman verið hugar-
stefna hinna norrænu og engil-
saxnesku þjóðflokka. Hinsvegar
var hin æfagamla og myrka mið-
aldastefna einræðis og yfirdrottn
unar. Samkvæmt henni taka ein-
stakir menn alla fjársjóðu al-
mennra mannréttinda í sínar
hendur, skamta svo hverjum úr
hnefa eftir vild sinni, en eyða
allri mótspyrnu með ógnum,
eldi og blóði. Þessi stefna bjó
sér það sem hún taldi vera óvíg-
an her á landi og í lofti. Ný keis-
aradæmi átti að reisa í Róma-
borg, Tokyo og Berlín. Það gat
ekki hjá því farið að þessum
öflum slægi saman, en furðan
mesta var hve lengi það drógst.
Yfirgangsseggirnir héldu uppi
einvalds og landrána starfsemi
sinni óhindraðir árum saman í
Asíu, Afríku og Evrópu. And-
spænis þessu var málamiðlunar-
stefna Chamberlins, hins einlæga
friðarvinar og hugsjónamanns.
En til hvers er að tala um hug-
sjónir við mannýgt naut? Bret-
um skildist það að lokum að ef
flestar þjóðirnar á meginlandi
Evrópu væri sviftar frelsi sínu,
þá væri þeim sjálfum hætt.
Innrás Þjóðverja á Pólland var
svo tilefni þess að Bretar hófust
handa. Orsakirnar til stríðsyfir-
lýsingar þeirra, var ekki svo
mjög umhyggja fyrir Póllandi
eins og sagan hefir síðan sýnt,
heldur fyrst og fremst hin frum-
stæðasta sjálfsvarnarhvöt. Oss er
sagan kunn hvernig sú sjálfs-
vörn tókst á meginlandi Evrópu,
og hversu nærri hurð skall hæl-
um að því er snerti Bretland
sjálft. Ekki þarf þá neinum get-
um að því að leiða hversu farið
hefði, ef Bandaríkin fyrst, og
svo Rússland síðar, hefðu ekki
komið til sögunnar. Með samtök-
um þessara frelsis unnandi stór-
þjóða var svo teningunum kast-
að og sigurinn trygður, þótt eng-
inn vissi lengi vel hvenær hann
myndi koma. En nú er hann kom-
inn. Ofbeldisstefnan er úr sög-
unni, að minsta kosti eins og hún
birtist í Þýzkalandi, Italíu og
Japan. Lýðræðið lifir. Hver get-
ur þá láð mönnum þótt þeir hrópi
frá sér numdir af fögnuði: Frið-
ur, sigur. '"Sigurhátíð sæl og
blíð, hljómar nú og gleði gefur!”
En hvað hefir þessi sigur kost-
að?
Eins og þetta stríð hefir verið
það ógurlegasta, sem sögur fara
af, hefir líka þessi sigur verið
dýrkeyptari en nokkur annar.
Það er gagnslaust að nefna tölur
um tilkostnað í reiðu fé, á frum-
efnum, framleiðslu eða vinnu.
Þær eru hærri en svo að fólk
geti alment áttað sig á þeim.
Ekki er heldur hægt að meta
til fjár skaðann á byggingum,
listaverkum og öðrum mannvirkj
um, sem hafa verið eyðilögð. Það
eina af tilkostnaðinum við þenn-
an sigur, sem við getum skilið
er manntjónið og blóðfórnirnar,
og jafnvel þær skiljum vér ekki
nema að nokkru leyti. Vér vit-
um að miljónir manna hafa lagt
lífið í sölurnar til þess að vér
mættum lifa þennan dag. Vér
vitum að fregnin um fráfall hvers
einasta hermanns, sem hefir fall-
ið, týnst eða verið tekinn til
fanga, hefir bakað ástvinum hans
sár, sorgir, tár og hugarvíl, sem
Guð einn getur séð og skilið. Vér
•getum vissulega ekki gjört oss
grein fyrir öllum þeim miljón-
um ekkna og munaðarleysingja
og annara ástvina, sem við and-
látsfregn hinna föllnu hermanna
hafa verið sviftir sinni einustu
von. Vér þekkjum aðeins vora
eigin sorg, hvert um sig. Margir
vor á meðal eiga um sárt að
binda. Vér minnumst hjóna í
voru eigin litla íslenzka mann-
félagi í Winnipeg, sem voru til
þess kvödd að sjá á bak báðum
sonum sínum í þessu stríði. Þau
gátu ekki lagt meira í sölurnar,
þau gáfu alt, sem þau áttu. Þeir
einir, sem hafa mist sonu sína,
og ástvini í stríðinu, vita hvað
þessi sigur hefir kostað; vér hin-
ir ættum sem minst þar um að
tala.
Bráðum koma hermennirnir
heim frá vígvöllunum, eða úr
fangabúðum, sumir þeirra eru
þegar komnir. Vér bjóðum þá
velkomna og biðjum Guð að
blessa þá, og alla framtíð þeirra.
En þeir koma ekki allir, — sum-
ir þeirra hvíla í erlendri mold,
sumir, Guð veit hvar. “Dánir,
horfnir, harmfregn,” segjum vér
um hvern og einn þeirra. En er
vér gætum betur að sjáum vér
að þessi skáldlegu orð eiga þó
ekki allskostar vel við. Það er
fjarri því að þessir hugprúðu
drengir séu dánir, þeir eru ódauð
legir. Ekki eru þeir heldur horfn-
ir, þeir standa ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum vorum, — ungir
prúðir menn, brynjaðir í þjón-
ustu þeirra hugsjóna, sem feg-
urstar eru í heimi. Þótt ævi
þeirra væri stutt, lifðu þeir leng-
ur og gerðu heiminum meira
gagn en margir vor hinna þótt
vér dveljum hér á jörðunni í átta
tíu ár eða lengur. Er það þá
harmfregn eingöngu, sem stend-
ur í sambandi við hið auða sæti
er þeir skipuðu fyr? Fjarri fer
því! Ef þeir hefðu ekki lagt líf
sitt í sölurnar, hefðum vér ekki
lifað þessa stund, eða getað sagt:
Friður — Sigur. Hinir ungu
menn, sem fórnuðu lífi sínu í
tveim'heimsstyrjöldum þessarar
aldar eru lifandi steinar í must-
erisbyggingu framtíðarinnar. Vér
skoðum þá sem velgjörðarmenn
vora og vottum þeim ævarandi
virðingu og þakkir.
En eru þá líkur til að þessi
sigur, sem svo dýru verði hefir
verið keyptur, sé friðarboði nú
fremur en áður? Það er eftir
því hverskonar hugarfar menn
temja sér upp frá þessu. Ef menn
láta hatur og heiptarhug stríðs-
áranna fylgja sér inn á friðar-
árin, getur að sjálfsögðu ekki
orðið um neinn varanlegan frið
að ræða. Vissulega hljótum vér
að hata kúgunarstefnuna, sem
nú hefir verið barin niður í mið-
veldum Evrópu og í Japan, og
vera á verði gegn henni hvar
og í hvaða mynd, sem hún kem-
ur fram. En allan þorra fólks í
hinum fyrverandi óvinalöndum
megum vér ekki hata, eða sýna
iítilsvirðingu og ekki heldur þá
af þeim þjóðflokkum,- sem dvelja
hér í landi á meðal vor. Það fólk
hefir lagt fram fórnir ekki síð-
ur en vér, en vafalaust með öllu
meiri sársauka ef það er unt. 1
heimalöndum sínum hafa þessar
þjóðir verið blektar og leiddar á
glapstigu. Fyrir það eru þær nú
að taka út sína hegningu. Þær
hafa hver um sig fórnað meira í
blóði og tárum en sigursælu
þjóðirnar. Og uppskeran er upp-
lausn, bjargarleysi, hörmungar
og hugarvíl í stærra stíl en vér
getum með nokkru móti gerc
oss ljóst. Það ætti að vera nógu
þungur dómur fyrir þetta óham-
ingjusama fólk. Þegar búið er að
fullnægja þeim dómi, og réttvís-
in er búin að ákveða örlög for-
sprakkanna, þeirra, sem enn eru
á lífi, verðum vér aftur að taka
þetta fólk í sátt, gefa því tæki-
færi til þjóðernislegrar upprisu
og nýs og betra lífs í fjölskyldu
hinna lýðfrjálsu þjóða.
En hvað sem öllu öðru líður
er eg þess fullviss að þessi kyn-
slóð er sloppin hvað slík stríð
snertir, sem það sem nú er ný-
afstaðið. Eg byggi ekki þá stað-
hæfingu á því að eg telji menn-
ina hafa þroskast að viti eða
mannkostum við þetta stríð.
Hernaður þroskar ekki slíka
hæfileika yfirleitt. Framvegis
verður það óttinn en ekki elskan,
sem aftrar þjóðunum frá því að
hefja slíkan leik að nýju. Að
hefja nú stríð að nýju er sama
og að bjóða heim fullkominni
eyðilegging og tortíming af jörð-
unni. En engin þjóð, hversu hart
leikin sem hún kann að telja sig
og hversu heiptrækin sem hún
kann að vera, óskar sér slíkra
örlaga. “Hver, sem þekkir stríð,
þráir frið,” er haft eftir frægum
hershöfðingja. Þessi kynslóð
þekkir hörmungar stríðsins, þess
vegna mun hún vernda friðinn.
En á meðan óttinn heldur ástríð-
um mannanna í skefjum, þarf
kirkjan að koma með kærleiks-
boðun sína eyða meinsemdinni,
vinna á móti eitrinu í hugum
manna, gjöra þá fúsa til að semja
frið og búa saman sem bræður.
Sannanlega mun kirkjan ekki
bregðast þeirri köllun, og líkur
eru til að hún hafi nú betra
tækifæri en nokkru sinni áður,
því sjaldan hefir heimurinn ver-
ið jafn siðferðislega og andlega
gjaldþrota eins og nú. Guð gefi
oss öllum náð til þess að vér
getum öll gjört nokkuð til þess
að skapa friðinn og vernda hann,
hver á sínu heimili hver í sinni
sál. Það er ávalt fyrsta sporið,
ef þau takast vel munu fleiri á
eftir koma.
“Sælu njótandi,
sverðin brjótandi
faðmist fjarlægir lýðir.
Guðs ríki drotni
dauðans vald þrostni,
komi kærleikans tíðir.”
Engar sakir hafa sannast
á Guðmund Kamban
Skýrsla ríkisstjómarinnar um
rannsókn málsins.
iiiiiiiiniiilllllillll
íslenzku ríkisstjórninni hefir
nú borist skýrsla frá sendiráðinu
í Kaupmannahöfn um réttarrann
sókn þá, sem dönsk yfirvöld
fyrirskipuðu vegna vígs Guð-
mundar Kambans. Niðurstaða
þeirrar rannsóknar var sú, að
ekki varð nein sök fundin hjá
Kamban, og hefir danska utan-
ríkisráðuneytið látið í ljós harm
sinn yfir þessum atburði og boð-
ið dánarbætur. Það kom einnig
í ljós við rannsóknina, að hand-
taka Guðmundar Kambans hafði
ekki verið fyrirskipuð af neinum
ábyrgum aðilja, heldur átti þar
frumkvæðið “einhver maður,
sem ekki hefir tekizt að hafa
uppi á”, eins og komist er að
orði í skýrslu íslenzku ríkis-
stjórnarinnar um málið.
Hér fer á eftir fréttatilkynn-
ing sú, sem utnríkismálaráðu-
neytið íslenzka hefir sent blöð-
unum:
“Er fregnin um víg Guðmund-
ar Kambans bqrst hingað, var
sendiráði Islands í Kaupmanna-
höfn þegar í stað falið að afla
fullrar skýrslu um málið. Smám
saman bárust fregnir af málinu,
einkum þó í símskeyti sendiráðs-
ins 27. f. m.
Ríkisstjórn Dana fyrirskipaði
réttarrannsókn út af víginu;
þótti rétt að birta eigi opinbera
greinargerð fyrr en árangur
þeirrar rannsóknar væri kunnur.
Nú hefir borizt skýrsla frá
sendiráðinu í Kaupmannahöfn,
ásamt fylgiskjqlum, þ. á. m. nótu
frá utanríkisráðuneyti Dana og
skýrslu dómsmálaráðuneytisins
um árangur réttarrannsóknar-
innar.
Þessi gögn sýna, að frum-
kvæðið að handtöku Guðmund-
ar Kambans kom frá einhverj-
um manni, sem ekki hefir tekizt
að hafa upp á. Að fyrirlagi
þessa manns, fór undirforingi úr
liði danskra frelsisvina, ásamt
þrem mönnum öðrum, heim til
Kambans í Hotel-Pension Bar-
toli, Upsalagade 20. Kamban sat
að snæðingi, ásamt dóttur sinni,
er mennirnir komu. Flokksfor-
inginn kvaðst þar kominn til
þess að handtaka Kamban. Það
er ljóst, að hann neitaði mjög
eindregið rétti þessara aðila til
handtökunnar, og fékkst eigi til
að fara með þeim óneyddur, en
að öðru leyti bar vitnisburði eigi
saman um hin næstu atvik.
Náðst hefir til þriggja manna úr
flokknum, sem að handtökunni
stóð, og halda þeir því fram, að
Kamban hafi veitt líkamlega
mótspyrnu, en þrír hlutlausir
sjónarvottar neita því, að svo
hafi verið. Er Kamban neitaði að
hlýðnast handtökunni, miðaði
flokksforinginn á hann skam-
byssu.
Kamban hlýddi ekki að held-
ur, og skaut flokksforinginn
hann þá í gagnaugað, og var
Kamban þegar örendur. Tveir
flokksmannanna, er viðstaddir
voru, voru vopnaðir vélbyssum.
Því fer fjarri, að nokkrar sakir
hafi sannazt á Guðmund Kamb-
an um samvinnu við Þjóðverja
í Danmörku á hernámsárunum.
Hitt er upplýst, að kviksögur
hafa gengið um það, að hann
ætti kunningskap við háttsetta
Þjóðverja og við Dani, er með
þeim unnu. Sýnist þar með að
leita ástæðunnar til þess, að til
greina kom að handtaka hann.
Hitt verður að leggja áherzlu á í
þessu sambandi að augljóst er,
að fyrirskipunin um handtök-
una kom ekki frá neinum ábyrg-
um aðilja, hvorki innan ríkis-
stjórnarinnar né meðal þjóð-
frelsishreyfingarinnar.
í nótu þeirri, sem danska ut-
anríkisráðuineytið sendi sendi-
ráði Islands í Kaupmannahöfn
að rannsökuðu máli, og dagsett
er hinn 22. f. m., er tekið fram,
að öll aðförin að Kamban sé
Dönum hið mesta hryggðarefni.
Danska utanríkisráðuneytið
bætir því við, að það sé. fúst til
viðræðna um dánarbætur til
ekkju Guðmundar Kambans, og
er það mál nú í höndum mála-
færslumanns frúarinnar.”
Af þessari skýrslu virðist aug-
ljóst, að Kamban hafi verið sak-
laus veginn og aðförin ástæðu-
laus. Er það öllum góðum ís-
lendingum ánægjuefni, að stað-
festing hefir nú á þessu fengizt.
þótt sárt væri, að hann skyldi
falla fyrir vopnum manna, sem
sýnilega hafa ekki verið hæfir til
þess að gegna því starfi, sem
þeir höfðu tekizt á hendur eða
verið valdir til. Hitt er þó enn
sárara, að strax á fyrsta degi,
er hingað fréttist um afdrif
Kambans, risu hér upp menn,
sem að órannsökuðu máli og án
nokkurra eftirgrennslana þótt-
ust þess umkomnir að gefa hon-
um að sök hinn vítaverðasta
verknað. Á því stigi málsins var
því til dæmis lýst yfir í feitletr-
aði fregn í Þjóðviljanum, að
“fullsannað” væri, að Kamban
hefði verið sekur um samvinnu
við Þjóðverja. Slík afstaða, sem
kommúnistar tóku í þessu við-
kvæma máli, er fordæmanleg,
hvernig sem á hana er litið, en
hún sýnir líka mennina, sem
hana tóku, í mjög skæru ljósi.
Hún sýnir, að þeir hugsa ekkí
fyrst og fremst um það, hvað er
satt og rétt og hvað sæmd lands
og þjóðar býður. Hér var fyrst og
fremst um hugsað að ausa póli-
tískan andstæðing níði, og þá
gilti einu, þótt hann væri fall-
inn í valinn í öðru landi.
Hitt er svo annað mál, þótt
þeir hafi ef til vill runnið frá
fyrri afstöðu sinni, nú þegar þeir
finna nógu glöggt þau ítök, sem
Kamban á í hugum fólksins og
hafa sannfærst um, hvaða aug-
um hin hvatvísa og illkvittna
afstaða þeirra hefir verið litin
af almenningi.
Fyrsta millilandaflug
íslendinga
Catalinaflugbáturinn flaug i gær
til Skotlands á sex klst.
■iiiiiiiiiiiiiiii
Catalinaflugbátur Flugfélags
Islands fór af stað kl. 7.27 í gær-
morgun áleiðis til Skotlands, og
mun hafa verið kominn þangað
um kl. 1.30 e. h. Er þetta í fyrsta
sinn, sem íslenzkri flugvél er
flogið milli landa af íslenzkum
flugmönnum. Flugbáturinn mun
koma hingað aftur í dag.
Flugfélagið stóð í sambandi
við áhöfn flugbátsins á Mð-
inni út og mun ferðin hafa geng-
ið ágætlega. Lenti flugbáturinn
eins og ráð hafði verið fyrir gert
á sjóflugvélahöfn í Largs.
Flugmennirnir, sem fljúga
Catalinabátnum þessa fyrstu
reynsluför milli landa, eru þeir
Jóhannes Snorrason og Smári
Karlsson, en auk þeirra er loft-
skéytamaður, Jóhann Gíslason
og vélamaður Sigurður Ingólfs-
son. Ennfremur fóru með tveir
brezkir flugmenn, annar loft-
skeytamaður og hinn leiðsögu-
maður, sem brezka flugmála-
ráðuneytið og flugherinn lánuðu
Flugfélaginu góðfúslega til að
fara með þessa fyrstu för.
Alþbl. 12. júlí.
Geðvondur gamall veiðimað-
ur vaknaði af værum blundi
klukkan 3 um nótt við ofsaleg-
ar hringingar á dyrabjöllunni.
Seint og síðar meir staulaðist
hann til dyra og sá þar standa
drukkinn mann, sem spurði: —
Ert þú herra Smith?
— Já, upp á hvað er það?
— Ert þú ekki náunginn, sem
auglýsti eftir aðstoðarmanni við
ljónaveiðar í Afríku?
— Jú, hvað um það?
— Ja, eg ætla bara að láta
þig vita, að það kemur ekki til
nokkurra mála að eg fari með
þér. ,
Kaupendur á íslandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast kaupendur Lögbergs á
Islandi snúi sér til hr. Björns
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavik. Hann er gjald-
keri í Grænmetisverzlun
rikisins.
. Tíminn, 17. júlí.
'bjfir dökkmáluðum þjáningaheimi, svífur
andi hins Ijúfa friðar, og þúsundir hjartna
fyllast ólýsanlegu þakklæti til hans, sem
var sverð vort og skjöldur, þegar jörð lék
á reiðiskjálfi ... en er nú traust undir
fæti.
ybt egi fórn hinna ungu mannslífa, og
sorgin, sem slíkri fórn var samfara, fela
oss honum á vald, er leiddi réttlátt mál-
efni til sigurs, þannig, að hann megi leiða
oss á veg sannrar þróunar og fullkomna
það verk, sem friðurinn krefst af oss í
dag.
<?T. EATON C9mTO
WINNIPEG CANAD.