Lögberg - 17.01.1946, Blaðsíða 8

Lögberg - 17.01.1946, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 17. JANÚAR, 1946 Or borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Avenue, Mrs. F. Thordarson, 996 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. * Ungfrú Þórunn Jakobína Sveinsdóttir, kom hingað til borgar frá íslandi hinn þrettánda í jólum; hún lagði af stað frá Reykjavík áleiðis til Halifax á Þorláksmessukvöld. — Ungfrú Þórunn er fædd á Dallandi í Húsavík í Norður-Múlasýslu; mun hún dveljast hér um nokk- ura hríð; hálfsystir hennar er Stefanía Pálsson, sem búsett er að 532 Beverley Street í þessari borg. * Minningarsjóður kvenfélagsins “Eining” Svo nefnist minningarsjóður, sem íslenzka líknarfélagið “Ein- ing” í Seattle hefir stofnað. Er þetta sérstakur sjóður undir um- sjón félagsins. Hefir það nú ver- ið afráðið, að láta þennan 'sjóð ganga til styrktar hinu fyrirhug- aða íslenzka elliheimili í Blaine, Wash. Minnist vina ykkar með því að styrkja gott fyrirtæki. Féhirðir er Mrs. J. A. Johannson, 2807 W. 63 St., Seattle, Wash. Guðrún Magnússon, skrifari. + Gefið hefir Mrs. Emma Olson, Lundar, $10.00, í Blómsveigasjóð kvenfélagsins “Björk”, Lundar, í minningu um hjartkæran dóttur- son, Pte. Albert H. Nicolson, Pikes Peak, Sask., sem féll í stríðinu árið 1943. Með samúð og þakklæti, (Mrs.) S. Einarson, skrifari. Lundar, Man. * Samkværni fyrir hermenn. Jón Sigurðsson félagið er nú að ljúka við ráðstafanir viðvíkj- andi samsæti því, sem haldið verður 18. febrúar, í Royal Alex- andra hótelinu, til þess að bjóða velkomna heim þá, sem hafa ver- ið í herþjónustu. Boðsbréf verða send út í þessari viku; og er sér- staklega mælst til þess að allir svari þeim eins fljótt og unt er svo hægt sé að gera áætlanir um fólksfjölda, og svo að almenningi gefist tækifæri sem fyrst til þess að kaupa aðgöngumiða. Nánari auglýsingar koma í næstu blöð- um. * Icelandic Canadian Evening School. Gissur Elíasson flytur erindi, “The Development of Art in Ice- land,” á þriðjudagskvöldið 22. janúar, kl. 8, í neðri sal Fyrstu Lútersku kirkju. íslenzku kensl- an byrjar kl. 9. Aðgangur fyrir þá, sem ekki eru innritaðir 25c. * Gefið í byggingarsjóð Bandalags lúterskra kvenna. Víglundur Vigfússon, 528 Mary- land St., Wpg., $5.00, í minningu um systur hans, Margréti Vigfús- son, d. á Betel 7. desember 1945. Meðtekið með samúð og þakk- læti. Hólmfríður Daníelsson. 869 Garfield St., Wpg. Ungmenni, sem hafa í hyggju, að leggja stund á nám við verzlunarskóla í Winnipeg, ættu að leita upplýsinga á skrifstofu Lögbergs; þeim getur orðið að því hreint ekki svo lítill hagur. Það fólk, sem hefir aflað sér verzlunarmentunar, á margfalt hægra með að fá atvinnu, en hitt, sem slíkra hlunninda fer á mis. Spyrj- ist fyrir um kjör á skrif- stofu Lögbergs nú þegar; það getur margborgað sig. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands, prestur. Guðsþjónustur: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 12:15. * Messur þrjá síðustu sunnúdagana í janúar hjá ísl. lút. söfnuðinum í Vancouver: 20. janúar — Guðsþjónusta á ensku helguð minningu prest- anna í kirkjufélagi voru, sem nú eru látnir, séra N. S Thor- lakssons sérstaklega minst þá á afmæli hans. Offur í Minning- arsjóð presta. 27. janúar—Messa í Pt. Roberts kl. 11 f. h. íslenzk messa í Vancouver kl. 7.30 e. h. Allir boðnir og velkomnir. Messurnar fara fram í dönsku kirkjunni, Corner E. 19th Ave. og Burns St. * Sunnudaginn 27. janúar mess- ar séra H. Sigmar í Point Roberts kl. 11 f. h. og í dönsku kirkjunni Corner E. 19th og Burns St. Van- couver, B.C., kl. 3 e. h. Messan í Vancouver fer fram á íslenzku. Veitið því eftirtekt að messan í Vancouver er kl. 3 e. h., en ekki að kveldinu. * Lúterska kirkjan í Selkirk— Sunnudaginn 20. janúar: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Ensk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson. * Séra Skúli Sigurgeirsson mess- ar að Piney, sunnudaginn 20. þ. m., á íslenzku, kl. 10.30 f.h., og á ensku kl. 3.30 e. h. * Gimli prestakall— Sunnudaginn 27. janúar: Messa að Húsavick kl. 2 e. h., bæði málin verða notuð. íslenzk messa að Gimli kl. 7 .e h. og árs- fundur safnaðarins að guðsþjón- ustunni aflokinni. Meðlimir eru beðnir að fjölmenna, því áríðandi málefni er á dagskrá. Skúli Sigurgeirsson. Öldruð, íslenzk hjón æskja eftir góðu herbergi hér í borg- inni við allra fyrstu hentugleika. Konan er fús á að hjálpa til við innnanhússtörf. Upplýsingar á skrifstofu Lögbergs. + Mr. Eiríkur Stefánsson frá Oak Point, frambjóðandi C.C.F. flokksins í St. George kjördæm- inu við síðustu fylkiskosningar, var staddur í borginni á mánu- daginn. GAMAN 0G AiVARA “Suma karlmenn þyrstir í frægð og frama, suma eftir ást og aðra í peninga, en það er eitt, sem alla byrstir í.” “Og hvað er nú það?” “Góðan bjór.” •b Ríkur bankastjóri hafði látið gera af sjer málverk. Málverk- ið sýndi hann í virðulegum, stellingum og með hendur í vös um. Allir hrósuðu myndinni, nema gamall bóndi, sem horfði á hana og hló kuldalega. “Ha! Hún líkist honum ekki neitt,” hreytti hann út úr sjer. “Sjáið þið ekki, að maðurinn er með hendurnar í sínum eig- in vösum.” Lítil og góðleg kona kom á fund geðveikralæknis. Hann spurði hana vingjarnlega, hvern ig á því stæði, að fjölskylda hen- nar vildi koma henni á hæli. “Segið mjer nú alveg eins og er”, sagði hann,” hvað gengur að yður”. “Það er bara það . . bara það, að mjer þykja svo góðar pönnu kökur”. “Er það alt og sumt?—Mjer þykir sjálfum pönnukökur mjög góðar”. “Þjer segið ekki satt, læknir,” skríkti í henni um leið og hún klappaði saman höndunum af ánægju.” Þjer megið til með að heimsækja mig einhvern dag- inn. .. Jeg á margar töskur full ar af þeim”. Auðlegð, sem nemur sextíu miljón dollurum (Framh. af bls. 4) skömmu á undan stríðinu síð- asta. Á undan honum voru margir sem reyndu lukku sína á Cocos. Þjóðverji að nafni Giss- ler, sem um tíma var landstjóri á Costa Rica, bjó á eynni í 16 ár, til þess að leita að fjársjóðn- um. Hann fann ekki féð, en nokkra gullpeninga fann hann, sem höfðu auðsjáanlega týnst þegar aðal fjársjóðurinn var fluttur frá skipinu til stðarins er hann var falinn á, og einu- sinni fór kafteinn úr sjóher Breta með alla sína skipshöfn til eyj- unnar og gróf og sprengdi, en árangurslaust. Árið 1926 fór Sir Malcolm Campbell veðreiðamaðurinn al- kunni, til Cocos vel útbúinn með sprengiefni (dynamite) og önn- ur tæki, en varð að ganga frá vonsvikinn og vegmóður. Árið 1834 var félag með $250,- 000.00 höfuðstól, sem heitir English Recovery Company Lim- ited, myndað í Lundúnaborg, með það augnamið að leita uppi auðinn sem stolið var frá Lima mönnum. Árið 1835, að hausti til lentu umboðsmenn félags þessa á Cocos eynni, en félagið hafði ekki gáð þess, að fá leyfi stjórnarinnar í Costa Rica. Stjór in mótmælti þessari aðferð við utanríkisráðherra Breta, og sendi lögreglulið sitt til Cocos og lét taka alla Englendingana fasta. Út úr þessu varð umtal mikið og áróður í Cost Rica. Menn héldu að hér væri eitthvað meira á ferðinni en á yfirborðinu sæj- ist, og enda vændu Bandaríkja- menn um, að þeir væru í laun- ráðum með Bretum að sölsa Cocos eyjuna undir sig og Breta. En þessi bóla hjaðnaði þegar Bretar fullvissuðu Costa Riva menn um að eignarréttur þeirra á Cocos væri að fullu viðurkend- ur, og Bretar fengu leyfi fyrir félagið að leita á eynni í eitt ár, með þeim skilmálum að Cost Rica stjórnin fengi 1/3 af öllu verð- mætu sem þeir fyndu á eynni, og til þess að sjá um, að samning- unum yrði framfylgt sendi Costa Rica stjórnin lögreglumenn sína til Cocos. Árið 1936, á meðan að Ensk- urinn var að sprengja og grafa á Cocos, gaf stjórnin í Costa Rica út frímerki þar sem Cocos eyjan er sýnd sem partur af lendum Costa Rica og tilkynti að Costa Rica stjórnin hefði ákveðið að stofna sakamanna fangelsi í Cocos eynni, og væri meiningin að láta fangana leita að fénu sem þar sé falið. Ekkert hefir enn orðið úr þessari fyrir- ætlan Costa Rica stjórnarinnar. Þegar að árið sem Bretum var leyft að leita að fénu á Cocos var liðið fóru þeir heim til sín, PERTH’S DRY CLEANING SPECIALS CASH and CARRY Suits 59c Men's 2 or 3 Piece (Whites Extra) Dresses 69c (1 Piece Plain) Pants 21c When Senl with Suit (Whites Extra) Skirts 21c When Sent with Dress (Whites Extra) PERTH’S 888 SARGENT AVE. Bld karlmannaföt lík þessum, skáru úr í Vor- oy Sumar- Vcröskráé EATON’8 1894. EATON’S hafa rekið póstpant- ana.-verzlun síðan 1894. Fyrsta verðskráin var smilr ljósg'ulur bæklingrur, þar sem sýndar voru á tveim síðum nokkrar vöruteg- undir. Nú gefa EATON’S út mikla verðskrá, sem teljast má bezti leiðarvísir við kaupskap í Can- ada. Sextíu og eins árs æfing við innflutning vörutegnnda heims- skautanna á milli til úthlutunar meðal póstpantana viðskiftavina, ?r EATON’S trygging fyrir happa- sælum viðskiptum á eftirstrlðs- tímabilinu. J'T. EATON C<LTeD WINNIPEG CANADA EATONS og þeim misheppnaðist ekki að- eins að því er Lima fésjóðinn snertir, heldur mistókst þeim líka að finna tvo aðra fjársjóði sem þar eru sagðir að vera faldir. Annar þeirra er sagður þar graf- inn af kafteini Edward Davis, eftir að hann rændi borgina Leon í Nicaragua árið 1685. Hinn sjóðinn segja sagnfræðingar að hinn illræmdi sjóræningi Benito hafi grafið þar. Einhverstaðar meðal hinna grænu og grýttu hlíða á þessari eyðilegu eyju eru dýrgripir hinnar auðugu borgar faldir, og einhverntíma finnst sá fjársjóð- ur.. Það er eitt að minsta kosti, sem sýnist ábyggilegt, að ef Bandaríkin einhverntíma eign- ast Cocos, og gjöra Bandaríkja Gibraltar úr henni, þá verða verkfræðingar þeirra, sem fært geta fjöll, ekki lengi að komast að hvar fjársjóðir þessir eru. J. J. B. Utsala Islenzku blaðanna Umboðsmaður okkar á íslandi er Björn Guðmundsson, Reynimel 52, Reykjavík. Hann tekur á móti pöntunum á blöðunum og greiðslum fyrir þau. LÖGBERG og HEIMSKRINGLA THE IDEAL GIFT ICELAND'S THOUSAND YEARS A series of popular lectures on the History and Literature of Iceland. 172 pages — 24 illustrations Price $1.50 Send Orders to: MRS. H. F. DANIELSON, 869 Garfield St., Winnipeg, Canada. All Gift Orders Sent Promptly, With Gift Cards No. 16 — VETERANS' LAND ACT (continued) Those Eligible To Make Application Honorably discharged persons who have been engaged on Active Service in a Naval, Military or Air Force of Canada, or of any of His Majesty’s Forces, who were ordinarily resident in Canada at time of enlistment, and (a) they served in a theatre of actual war; (b) or they served in Canada for a year or more; (c) or no matter where they served they are in receipt of pension for disabilities incurred as a result of such service; (d) British subjects, ordinarily resident in Canada at the beginning of the war, in receipt of pensions for disabilities incurred since the beginning of the war while serving on board ship; (e) Auxiliary Services Supervisors (Canadian Legion War Services, National Council of the Y.M.C.A., K. of C. Canadian Army Huts, Salvation Army (Canadian War Services) and members of the Corps of (Civilian) Canadian Fire Fighters, who served outside of the Western Hemisphere and are in receipt of pensions for disabilities incurred as a result of such service. This space contribuí ed by THE DREWRYS LIMITED MD 139 VERZLUNARMENNTUN % Hin mikla nýsköpun, sem viðreisnarstarfið út- heimtír á vettvangi iðju og framitaks, krefst hinnar fullkomnustu'Sérmenntunar sem völ er á; slíka mennt- un veita verzlunarskólárnir. Það getur orðið ungu fólki til verulegra hags- muna, að spyrjast fyrir hjá oss, munnlega eða bréf- lega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. THE COLUMBIA PRESS LIMITED TORONTO A N D SARGENT, WINNIPEG Saga VESTUR ÍSLENDINGA Þriðja bindið af Sögu íslendinga í Vestur- heimi eftir Þ. Þ. Þorsteinsson, er nú nýlega komið út, mikil bók og merk, 407 blaðsíður að stærð, og í fallegu bandi. Þetta er bók, sem verðskuldar það að komast inn á hvert einasta og eitt íslenzkt heimili í þessari álfu; bókin kostar póstfrítt $5.00. Bókin fæst á skrifstof- um Lögbergs og Heimskringlu, og- einnig í Björnson’s Book Store, 702 Sargent Ave., og hjá J. J. Swanson, 308 Avenue Building, Win- nipeg; svo og hjá útsölumönnum í hinum ýmsu bygðarlögum. The Fuel Situation Owing ío shortage of miners, strikes, etc., certain brands of fuel are in short supply. We may not always be able to give you just the kind you want, but we have excellent brands in stock such as Zenilh Coke, Berwind and Glen Roger Briquettes made from Pocohontas and Anthracite coal. We suggest you order your requirements in advance. McCurdy Supply Co. Ltd. BUILDERS' SUPPLIES AND COAL Phones 23 811 — 23 812 1034 Arlington St.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.