Lögberg - 18.07.1946, Page 1

Lögberg - 18.07.1946, Page 1
PHONH 21374 iot *rs °nd Ci<’on^xGÍ‘ _ pn» tA*+ier* yVW S A Complete Cleaning Institution PHONE 21374 Avw^ V^^F' X,a«Tl<l<fr r Í'C^- A Cob iplete CleaAlng Institution iottV^ —** 59. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 18. JÚLI, 1946 NÚMER 29 Á LEIÐ TIL ÍSLANDS Grettir L. Johannson, konsúll Mrs. G. L. Johannson Einar P. Jónsson, ritstjóri Mrs. E. P. Jónsson Stefán Einarsson, ritstjóri Mrs. S. Einarsson FRETTIR K A N A D A Lengi, lengi hafa Kanadamenn verið að tala um þörfina á því, að Kanada tæki upp sinn eiginn fána. Mál það hefir verið rætt aftur og fram í fleiri ár, en ekk- ert verulegt ákvæði tekið í því máli fyr en á þjóðþinginu, sem nú stendur yfir. Tvær nefndir voru settar í byrjun yfirstandandi þings; önn- ur þeirra til þess, að veita til- lögum fólks um fánann móttöku. Hin til þess að ráða fram úr hvað af tillögum manna um tilhögun fánans skyldi tekin til greina. Það virðist að báðar nefnd- imar hafi haft ærið verkefni til að vinna úr. Um áttatíu uppá- stungur um fánann bárust mót- tökunefndinni sem lagðar voru fyrir aðal þingnefndina og hefir hún verið að moða úr því safni í vetur, vor og sumar, og var bú- in að kasta, eða hafna 73 fána- tillögunum, þegar forsætisráð- herrann, W. L. Mackenzie King kom heim úr Lundúnaferð sinni um daginn, en hnífurinn stóð í hinum sjö. Forsætisráðherranum hefir víst ofboðið seinlætið og staglið út af málinu, því hann skipaði nefndinni að láta fullgera þrjá fána af þessum sjö, sem um var að ræða, svo bæði þing og þjóð gæti frekar áttað sig á málinu. Gjörð 'þessara þriggja fána er sem hér segir: Grunnurinn í öllum tilfellum er ákveðinn rauður. Breytingin liggur aðeins í gjörð fánans, helzt þó í aðal einkenni hans, “The Maple Leaf.” 1 horni fánans, vinstra megin, er Union Jack sett inn í hann, í öjlum þremur sýnishomunum. En sérkennin eru eins og sagt hefir verið “The Maple Leaf” sem sett er í miðjan imtiiiiiu Til Mr. og Mrs. Einar P. Jónsson, og þeirra, er þeim fylgja til íslands. “Hvað er svo glatt sem” flug til blárra fjalla þá fagra vorið lýsir allan geim, og íslands raddir kærar ykkur kalla að koma glöð í móðurskautið heim. Þið heyrið fossa-föll með regin strauma og fuglasöng. og glaðan lækjar nið, það endurbirtir dagsins æsku drauma með dýrð, og gleði, þrótt og helgan frið. En færið kveðjur frá oss öllu heima — í fjarlægð hér sem byggjum vestræn lönd, því mál og sögu, synir íslands geyma, þó særinn skilji kæra feðra strönd. Um láð og flæði, lífsins vemdar kraftur sé ljós og gleði, ykkar traust og skjól, og komið heim til okkar vestur aftur með endurskin frá vorsins nætur sól. M. MARKÚSSON. FRÚ BJÖRG VIOLET ÍSFELD !lllllllllllllllllll!llll!!ll!IIUIIIII!ll!!ll!ll>lllll!l!!l!!!ll!llllllll!!l!ll!!lllllllllll!l!!!llllllll!ll!lll!ll!llll!ll|lll»lll!llll!llllllllll!!!!!lllll»lll!!>l!lllllllllllillll!!l!i!llll!lll!!ll!lll!lllllllllllll!!!llllllllll!!:i!!llll<ll!liU!l!ll«iill! grunninn. í einum af þessum fánum, sem verið er að búa til, ber laufið gyltan lit. í öðrum er laufið gylt, fneð hvítum borða alt í kring og er sá borði settur Frökkum til velþóknunar. 1 þriðja sýnishorni fánans, sem verið er að búa til, ber laufið þrjá liti, þá sömu og Maple lauf- ið að hausti til ber, áður en það fölnar, rauðan, gulan og grænan, og er það tilaga forsætisráðherr- ans sjálfs. • Eftir að þing og þjóð hefir virt fyrir sér þessi þrjú sýnishorn kanadiska fánans, verður eitt þeirra að líkindum valið sem framtíðarfáni Kanada þjóðarinn- ar. Frumvarp hefir dómsmála- ráðherra St. Laurent lagt fyrir þingið í Ottawa sem ákveður að kaup allra æðri dómara og hér- aðsdómara í Kanada skuli hækk- uð um einn þriðja frá 1. janúar 1947. Eru það góð tíðindi, því dómarar í Kanada hafa unað við lægri kauptexta sem þessari kaupuppbót nemur, eða fyllilega það, heldur en dómarar á Eng- landi, í öllum samlendum Breta og í Bandaríkjunum og aldrei æðrast, eða talað um að gjöra verkfall. ♦♦♦ BRETLAND « í vikunni sem leið ritaði H. G. Wells grein í The New Leader, þar sem hann ber óheiðarlegar sakir á konungsfjölskylduna á Englandi, með iþví að gefa í skyn að hún hafi verið meira en í vit orði með fé því, er fasistanum Sir Oswald Mosley áskotnaðist áður en hann var tekinn fastur og settur í varðhald og spyr: “Að hve miklu leyti var konungs fjölskyldan flækt í því neti og ef hún var á annað borð flækt í netinu, segir H. G. Wells, þá hefir hún dæmt sjálfa sig í útlegð og ætti sem fyrst að hafa sig burt úr landinu, svo að England sé frjálst til að hverfa aftur til síns fyrra lýðræðisfyrirkomulágs. “Hversvegna getur þetta siðspilta fólk. ekki ratað á veginn sanna og þjóðlega? . . . Síðar getur burtrekstur þeirra orðið meir á- berandi og óviðfeldnari.” H. G. Wells bendir á, að heppilegt pláss fyrir konungsfólkið til að fara í, gæti verið einhversstaðar í Ameríku, eða annarsstaðar þar sem fólk þyrsti og hungraði eftir einkennisbúningum og titlum. BANDARÍKIN Að síðustu var samþykt í neðri málstofu Bandaríkjanna á laug- ardaginn var, að veita Bretum $3,750,000,000 lán til 55 ára. Það (Framh. á bls. 4) Rétt þegar blaðið er að fara í pressuna, barst hr. Á. P. Jóhannssyni bréf frá Gretti konsúl syni sínum frá New York, þar sem sagt er frá, að burtför flugfars- ins íslenzka, sem heimfar- arnir héðan að norðan fara heim til íslands með, geti dregist um tíma sökum rannsókna, sem standi yfir Bandaríkjunum í sam- bandi við slys þau er nýlega hafa átt sér stað á vissri tegund loftfara þar, og þar af leiðandi geti farþega istinn með íslenzka loftfar- inu sem birtur er hér í blað- inu breytist að einhverju leyti. Kirkjuvígsluathöfn í Piney— Næskomandi sunaudag 21. júlí, fer fram kirkjuvígsluathöfn í Piney, er kirkjan þar, sem söfn- uðirndr í bygðinni í sameiningu hafa reist, verður vígð. Þátt taka í athöfninni séra Philip Péturs- son frá Winnipeg, séra Skúli Sig- urgeirson frá Gimli og prestur United Church félagsins. Gunnar Erlendson frá Winnipeg spilar á orgelið, og gert er ráð fyrir að athöfnin verði sem hátíðlegust. Allir bygðarbúar eru góðfúslega beðnir að láta þessa frétt berast út. I borginni voru staddir í vik- unni þeir feðgar, Mr. G. J. Oleson frá Glenboro og prófessor Tryggvi sonur hans, sem undan- farandi hefir kennt við háskól- ann í British Columbia, en hefir nú tekið stöðu við United College í Winnipeg. Vér bjóðum pró- fessorinn og fjölskyldu hans vel- komin til Winnipeg. Það er íslenzku fólki mikið fagnaðarefni þegar einhverjum úr hópi þeirra hlotnast verð- skuldaður heiður. Nú hefir þess- ari ágætu og velgefnu konu verið sýnt það traust að vera kosin í framkvæmdar-nefnd hins mikla hljómleikafélags, sem ber nafnið: Canadian Federation of Music Teachers’ Associations. Þetta skeði við kosningu embættis- manna þess félags, á þingi sem haldið var í Toronto, Ont.; þrjá fyrstu 'daga þessa mánaðar. Stjórnaði frú ísfeld mörgum fundanna sem haldnir voru þar, og sýndi bæði skilning'og rögg- semi. Sem viðauka við umgetningu þessa viljum vér minnast þess, að Björg hefir verið meðlimur Manitoba Music Teachers’ Asso- ciation, um tuttugu og tvö ár. því timabili hefir hún verið framkvæmdarnefnd þess fé- lags í sex ár, vara-forseti eitt ár, og um tvö undanfarandi ár verið kosin forseti þess, og heldur þeim heiðri nú, þegar þetta er skrifað. Kanada Verdkfall hefir verið hafið í öllum járnverksmiðjum í Kan ada, og sner.tir það um 14,000 manns, sem á þeim vinna. Þrem aif stálverksmiðjunum er lokað, en í einni þeirra, Toronto Jám- verksmiðju eru 2,000 menn enn að vinnu. Krefjast verkamenn kauphækkunar, svo að lægsta kaup, sem borgað verður í þeim sé $33.50 um vikuna, og að vinnu- tíminn sé aðeins 40 klukkustund- ir á viku. Frú ísfeld hefir öðru að sinna skeið. Var hún haft mörgu um margra ára lengi aðstoðar- kennari hins velþekta píanó- kennara, Jónasar Pálssonar, með- an hann dvaldi hér í Winnipeg. Svo hefir hún nú um fjöldamörg ár haft sína eigin kenslustofu, við mikla aðsókn' og lofsvérðan árangur, enda tekið ágætis kenn- arapróf við Toronto Conserva- tory of Music. Þar að auki hefir hún verið organleikari í stórri kirkju hér í Winnipeg, og æft og stjórnað söngflokkúm, bæði enskum og íslenzkum. Síðast en ekki sízt, vildum vér geta þess, að á þingi C. F. of M. T. A., sem haldið' var í Victoria B.C., í júlí-mánuði 1941, flutti frú Isfeld fyrirlestur um íslenzka hljómlist, (Icelandic Music). — Var erindi það vel rómað að verðugu, og Islendingum til sóma. Vér óskum frú Isfeld til ham- ingju með þennan nýfengna heiður. ■nimillli . ..jllt!lll!!l»lllll!l»l!!»!!l!!!l!lll............................................................,,,, U.......... HnniHMnRin^niinniiffliiHiRiiifflnnMÍniHnRRnnniinniMnfflRiinMBBMMHMWiHHinHiinHUHtHitniiutuuitiHuuniiinttuiffiiiiiflioiiinnnHinHiBtiiiBH FRÚ SIGRÚN JÓNÍNA JÚLÍUS Eftir glæst og göfugt æviskeið geymd í þökk og ást er fögur minning. — Ung þú skreyttir landnemanna leið lífsins, trú með helgan sigurvinning. Þú varst líkn á þinni fögru braut þeirra sem að andbyr lífsins grætti, fús að létta lúnum hverja þraut, leggja til þinn hlut af fremsta mætti. Frjáls og glöð í frumherjanna sveit, fús að lyfta dagsins sigurmerki, trygg og föst í lífsins gæfu leit, ljúf og hrein í ráði, hug og verki. Einlæg trú á mildi Guðs og mátt merkti þína leið að hinsta degi, þá er oss í sælli von og sátt svefninn kær að förnum stundavegi. Hann sem telur tímans hröðu ár trú og dygð þér gaf á löngu skeiði; ástvinanna angurblíðu tár • eru blóm á þínu hljóða leiði. Hljóttu kæra þúsundfalda þökk; þú varst hrein og trygg til enda dagsins. Mörgum geymist munarblíð og klökk minning þín til hinsta sólarlagsins. M. MARKÚSSON. .Illlllllllllll!ll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllll!llllllll!!ll!lll>lll>!llllllllllllllllll!lllllllil!!l!!!llll!lllllll!!!llllllll!l!lll>lllllllll!llllllll!l!!'lllll!lllllllllll!!lllllllllllll!llllllllll!!lllllll!!!!!!!lll>!!l .!lllll!lllilllllllll!ll!llllll!llll>lllll!lllllllllllllllllllll!»llllllllllllll!lllllll!!!!lllllllllllllllll!llllllll!l!!lllll!!l!lll!llll!l!lll!lll!!!!llllll!!lllllllllllllllllll!>!l!l!!l!l!ll!!>!l!llll!l!!l!!llll!!lllll!!llllll!l!HIIII>l>lll^

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.