Lögberg


Lögberg - 18.07.1946, Qupperneq 5

Lögberg - 18.07.1946, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JÚLÍ, 1946 5 / \ ÁH l < AUÁI IWENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON LEYFIR ÞÚ ÖÐRUM AÐ HUGSA FYRIR ÞIG? I lýðræðislöndiim er hver myndugur og ábyrgur þjóðfé- lagsþegn í rauninni fullvalda smáríki út af fyrir sig.” (E.P.J. Lögberg 4. júlí). Lýðræðisfyrir- komulagið grundvallast á þess- ari hugsjón; að hver fullveðja einstaklingur viti hvað hann vill kunni að velja og hafna fyrir sjálfan sig og þjóðfélagið í heild, að hann sé byrgður gerða sinna. En þetta andlega sjálfstæði ein- staklingsins hefir aldrei verið í meiri hættu en nú. Áróðurs tækin hafa margfaldast þessi síðustu -ár, og áróðurstæknin er fullkomnari en nokkru sinni áður. Það er Iþví afar áríðandi að viðnámsþróttur einstaklings- ins gegn áróðursöflunum sé auk- inn að sama skap, annars er hætt við því, að í stað þess að yera “fullvalda ríki út af fyrir sig,” verði hann vesælt lepp-ríki. I fyrsta kafla þessarar greinar °g í öðrum greinum í þessum dálkum hefir verið vikið að því hve auðveldlega auglýsendur geta talið fólki trú um að vam- ingur sá, sem þeir hafa á boð- stólum sé því ómissandi. Það er þjóðfélaginu e. t. v. ekki háska- legt, þótt hægt sé að telja þús- undum kvenna trú um að Nylon sokkar og ýmsar fegrunarvörur séu þeim lífsnauðsynlegar, að ýms lyf, svo sem- hægðalyf, séu 'þeim dagleg nauðsyn. Þessar vörur eru ekki stór hættulegar fyrir þjóðfélagið í heild, þó það geti komið einstaklingum illa að yera of auðtrúa á ágæti þeirra, t- d. ýmissa lyfja, sem auglýs- endur ráðleggja honum að nota. Hitt er hættulegt að fjöldi fólks skuli vera svona leiðitamur. Ef fólk er leiðitamt í þessum efnum, er líklegt að það sé auðtrúa og úsjálfstætt í hugsun varðandi þau mál, sem meira er um vert. Það er hætt við því að það verði leiksoppar í höndum tækifæris- sinna og áróðursmanna, sem nota sér hið andlega ósjálfstæði þess til að komast til valda í þjóðfé- laginu. Kjörseðlinum fylgir mikil iT- úyrgð; sú ábyrgð að einstakling- urinn hugsi fyrir sig sjálfur, að hann leitist við að finna og fylgja 'því, sem er sannast og réttast, og orðið getur þjóðfélaginu til sem mestrar blessunar. Því miður er til fjöldi fólks í landi okkar, sem ekki gerir sér grein fyrir þessari úbyrgð, sem ekki hefir viðnáms- þrótt gegn þeim áróðursöflum, sem að honum veitast. Fyrir þessa ástæðu erum við í háska stödd. Eða erum við vitrari, sjálfstæðari í hugsun en þýzka þjóðin, eða ítalska þjóðin, sem sjálfar kusu og hófu böðla sína til valda? Fámennar klíkur í þessum löndum gátu, með yfir- burða áróðurstækni sinni, blind- að fjöldann þannig, að þær gátu leitt hann sem auðsveipar skepn- ur til niðurskurðar. Hvað er áróður? (propaganda) kalla eg þá viðleitni að vinna fólk til fylgis við ákveðna skoðun með fortölum, vísvitandi ósann- indum og hótunum. Hann ber að greina frá hlutlausum rökræð- um, þar sem hver aðili reynir að Vl'su að sannfæra hinn, en báðir beita aðeins þeim rökum, sem þeir vita sönnust og réttust og forðast alla þvingun.” (Dr. Matthías Jónasson. Stígandi, 1. hefti — IV árg.). Hvernig er þá hægt að verj- ^st þeirri hættu, sem af skefja- i^usum áróðri nútímans stafar? Það er hægt með því að reyna að auka viðnámsþrótt einstaklings- ins, gegn áróðrinum, að ala upp fólk sem er sjálfstætt í hugsun og reynir að gagnrýna það, sem Iþví er sagt — fólk, sem hugsar fyrir sig sjálft. Þetta er hlut- verk foreldranna og skólanna. Foreldrar ættu að kenna börn- um aínum sem fyrst að þau verði sjálf að bera ábyrgð á gjörðum sínum, og einnig því, sem þau láta ógert. Þau verða að læra að ákveða sjálf hvaða afstöðu þau taka gagnvart þeim viðfangsefnum sem þau fást við. Það er vitanlega auðveldara fyrir foreldra í svipinn að skipa börnum fyrir um hvaðeina, sem þau gera, án þess að láta þau hafa fyrir að hugsa um það sjálf og taka sínar eigin ákvarðanir, en slíkt rænir barnið andlegu sjálfstæði. Hinsvegar ættu for- eldrarnir að útskýra málið fyrir þeim og hvetja þau til að afla sér upplýsinga, og þegar allar mögulegar upplýsingar eru fyrir hendi, að ákveða þá sjálf hvað gera skuli. Það er sitt hvað að leita upp- lýsinga og fræðslu um ákveðið málefni, og að leita ráða til ann- ara um, hvaða afstöðu við eigum að taka í málinu. Við erum alt- af að hitta fólk, sem er reiðubúið að ráðleggja öðrum. Þessir sjálf- boða ráðgjafar vita sem er, að þeir eiga ekkert á hættu þótt ráð- leggingar þeirra gefist illa. Það eru þeir, sem ráð þiggja, er verða að sæta afleiðingunum. Þrátt fyrir þessi augljósu sannindi, sætir það mestu furðu hve margt fólk leitar ráða til hvaða loddara sem er, fremur en að leggja sér ráðin sjálft. Það fer, t. d., til spá- kvenna, stjörnufræðinga, lófa- lesara, o. s. frv., til þess að láta segja sér hvemig það eigi að haga fjármálum, ástamálum, eða hjúskaparmálum sínum. Þegar einhvervandræði ber að hönd- um, er ym að gera að leita upp- lýsinga um málið til þeirra sem hafa þekkingu á málefninu, en ákvörðun í málinu verðum við að taka sjálf. Þetta ættu for- eldrar að innprenta börnum sín- um. Börnin munu vitanlega oft taka skakka afstöðu til hlutanna, en þau munu smámsaman læra af reynzlunni og aðeins þannig munu þau ná þeim þroska að verða fullorðin andlega engu síður en líkamlega. Það væri heldur ekki úr vegi að foreldrar fylgdust betur með því hvaða áhrif skólinn hefir á barnið. Er leitast við að þroska dómgreind barnsins, eða er mest áherzlan lögð á það að nemand- inn leggi sem mest á minnið, læri langar klausur úr námsefnunum utan að, til þess að hann sé viss um að komast í gegn um próf- in? Ef að unglingurinn er ekki vaninn á að hugsa um, að gagn- rýna viðfangsefnin mun lærdóm- urinn ekki verða honum að miklu gagni. Meira að segja, eg leyfi mér að halda því fram, að þessi mikla áherzla sem lögð er á það að nemeridur læri langar klausur utan að, geri þeim hið mesta ógagn. Það venur þá á að gleypa umhugsunarlaust við öllu, sem þeim er sagt. Þessi páfagauka lærdómur rænir þá allri sjálfstæðri hugsun. Þannig eru skólarnir að veikja, í stað þess að efla viðnámsþrótt hinn- ar ungu kynslóðar gegn áróðurs hættunni. Foreldrar, kennarar og allir þeir, sem bera heill þjóðarinnar fyrir brjósti, ættu að íhuga þetta mál, því framtíðarheill þjóðar- innar veltur á því að “hver mynd- Kirkjuþingið, 1946 Hvað er að frétta af kirkju- þinginu? Var ekkert rifist í þetta sinn? Þannig spurðu heimamenn kirkjuþingserind- reka sína í gamla daga, er þeir komu heim af þingum, og svarið við síðari spurningunni var þá oft játandi. Spunnust svo út af svarinu langar umræður um menn og málefni sem fram komu á þingum. Var þá fyrri spurn- ingunni einnig svarað. Þá var hiti í dagskrám, og hetjur á jörðu. Svo var það talið og er sumstaðar enn. Nýlega sat á þingi einn af fulltrúum hinnar fyrstu kynslóðar Islendinga hér í landi, og hafði hann setið fleiri kirkjuþing en flestir aðrir sem þar voru staddir. Á þingfundi einum var þessa minst og öld- ungurinn fór þá að rifja upp‘ hina góðu gömlu daga, þegar menn báru nú hag Guðs kristni alvarlega fyrir brjósti. Eitt kirkjuþingið sagði hann að hefði verið kallað “blóðuga þingið.” Ekki man nú sá er þetta ritar af hverju sú nafngifta stafaði. í annan stað var það að sátta- néfnd hafði talað á milli safnað- armanns og prests sem höfðu orðið saupsáttir. Safnaðarmað- urinn, sem seinna varð kirkju- þingsmaður, sagði svo frá þessu á kirkjuþingi, lét þess getið að hann hefði sætzt heilum sáttum við prestgarminn, “en þó,” bætti hann við, “gekk eg lengi fram hjá honum eins og öðrum hundi.” En nú eru menn hættir að spyrja síðari spurningarinnar sem að ofan getur. Nú er gengið að því sem sjálfsögðu að menn séu vaxnir upp úr þeim barna- skap að deila um guðleg efni á kirkjufundum. Ef nokkurstaðar er hægt að búast við sátt og sam- lyndi, þá ætti það vissulega að vera á slíkum mannamótum. Hið 62 kirkjuþing Hins Ev. Iúterska kirkjufélags Islendinga í’ Vesturheimi, sem haldið var í bænum Minneota, í ríkinu Min- nesota, dagana 27. júní til 1. júlí, fór á allan hátt mjög friðsamlega og vel fram. Margt hjálpaðist að til að gera þetta kirkjuþing á- nægulegt: Ágætur undirbún- ingur af hálfu hins vinsæla heimaprests, séra Guttorms Gutt- ormssonar og konu hans, ágæt samvinna og skipulagning heima- fólksins í prestakallinu, frábær veðurblíða, frjósemi og fegurð sveitacinnar^ og þá ekki sízt^. höfðinglegar viðtökur og gest- risni þeirra sem stóðu aðkomu- mönnum fyrir beina. Kirkjuþing var síðast haldið í Minneota 1930. Á þeim sextán ár.um sem liðin eru síðan hafði bygðin auðsýnilega tekið all- miklum breytingum, einkum að því er fólkið snerti sem fyrir málum stóð. En þó var höfðing- skapurinn sá sami, og hin ís- lenzka gestrisni sagði enn til sín. En bygðin er ekki lengur íslenzk á þann hátt sem hún áður var. Frumbyggendurnir eru margir gengnir til moldar; hin unga kyn- slóð, börn þeirra og barnabörn, hafa mjög blandast annara þjóða fólki frá ýmsum löndum. Islenzk tunga virðist ekki lengur vera mál fólksins, jafnvel ekki þeirra af eldri kynslóðinní sem enn standa uppi. Tvent var það einkum sem einkendi þetta kirkj- uþing: Þar var meiri enska töl- uð en á nokkru öðru kirkju- þingi lúterskra Vestur-Islend- inga fram að þessu, og þar áttu fleiri konur þingsæti en áður hefir tíðkast. Um hið síðara er ekkert nema gott að segja, en þó getur engum dulizt að hér er mikil bryting á orðin frá því sem áður var, er engar konur sátu á kirkjuþingum. Þannig mun það enn vera á meðal hinna ugur og ábyrgur þjóðfélagsþegn sé í rauninni fullvalda smáríki út af fyrir sig,” að sérhver full- veðja einstaklingur þjóðfélagsins leyfi ekki öðrum að hugsa fyrir sig. stærri deilda lútersku kirkjunn- ar í Ameríku. Karlmennirnir heimta þann einkarétt að vera húsbændur að því sem að kirkju- málin snertir, eða gera sér að minsta kosti hugmyndir um að þeir séu það. Sjálfsagt færi bezd á því að sem mestur jöfnuður væri á þessu, þannig að hvorugt kynið yfirgnæfði hitt að töl- unni til á slíkum þingum. En þetta er á valdi safnaðanna sem kjósa erindreka sína. Þetta kírkjuþing mun hafa verið að mun fámennara en venjulega gerist. Samtals munu hafa átt sæti á þinginu fjörutíu og tveir erindrekar safnaða, og prestar. Mun það svara einum fulltrúa fyrir hvern söfnuð sem nú er í kirkjufélaginu. Sumir söfnuðumir höfðu þrjá eða fjóra erindreka, en aðrir enga. Ýmsir safnaðanna gátu ekki komið því við að senda erindreka vegna fjarlægðar frá þingstaðnum, og vegna tiltölulega mikils kostnað- ar. Flest kirkjufélög greiða ferðakostnað erindreka sinna á kirkjuþing, en það hefir enn sem komið er ekki tíðkast hjá kirkju- félagi voru. Þó voru þarna staddir menn frá mjög fjarlægum stöðum, Berkeley, California, Seattle, Wn., Vancouver, B.C., Nýja fslandi, Lundar, Winnipeg, Norður Dakota, og Minneapolis. Þingið hófst með guðsþjónustu í kirkjunni í Minneota, og þar fóru allir þingfundir einnig fram, á fimtudagskvöldið 27. júní. Vara forseti félagsins, séra Valdimar J. Eylands frá Winnipeg flutti þingsetningarræðuna, prestar og fulltrúar gengu til altaris, og for- seti félagsins, dr. theol. Harald- ur Sigmar, frá Vancouver, B. C, flutti síðan ársskýrslu sína. Var skýrsla hans mjög ítarlegt yíir- lit yfir starf félagsins á árinu, og kom víða við. Helztu málin sem hann drap á voru: Heimsfrið- urinn, Heiðursverndari félagsins; dr. theol. Sigurgeir Sigurðsson biskup yfir íslandi; Útgáfumál félagsins; Tillög til almenns •kirkjustarfs og til National Luth- eran Council; Minningarsjóður presta; Sumarbúðir Bandalags Lúterskra Kvenna; Trúboð heima og erlendis; Elliheimili; Ungmennastarf( og svo síðast yf- irlit yfir heimsóknir forseta til hinna ýmsu safnaða og önnur störf. Dagskrárnefnd lagði ^fam skýrslu sína næsta dag, og fjall- aði hún að mestu um hin sömu mál og forseti hafði gert grein fyrir í skýrslu sinni, og voru þau öll afgreidd af þinginu. Helztu nýmælin sem komu til athugunar og afgreiðslu voru •hið fyrirhugaða Elliheimili á Mountain, Norður Dakota, sem búist er við að verði bygt í ná- lægri framtíð, og gert er ráð fyrir að muni kosta um $50,000. Stjórnarnefnd Elliheimilisins á Gimh mælti með því að ákveðin fjárupphæð væri veitt úr sjóði stofnunarinnar að láni til þessa nýja fyrirtækis, og var það sam- þykt af þinginu. Einnig var rætt um fyrirhugað Elliheimili í Van- couver, B. C., og ákveðið að veita nokkurn fjárhagslegan styrk til þess fyrirtækis, með tilteknum skilyrðum. Einnig má telja það nýmæli að ákveðið var að “Sam- einingin,” hið élsta mánaðarrit sem nú er gefið út á íslenzkri tungu, skuli í framtíðinni gefið út sem ársfjórðungsrit. Tvær afar fjölmennar kvöld- samkooiur voru haldnar í skóla- sal bæjarins, og var þar fjöl- breytt skemtiskrá borin fram í bæði skiftin. Fyrra kvöldið var Dr. R. R. Belter, frá Burlington, Iowa, forseti Wartburg Synod- unnar svo nefndu, og virðulegur fulltrúi Sameinuðu Lútersku Kjrkjunnar í Ameríku (ULCA), aðalræðumaðurinn. Er hann mikilfenglegur kirkjuhöfðingi og ræðuskörungur. Síðara kvöldið flutti séra Octavíus Thorlaksson frá Berkeley, California aðal- ræðuna, er fjallaði um áfstöðu nútímans til trúboðs erlendis. Var ræða- hans gagnhugsuð og flutt af brennandi krafti vakandi sannfæringar fyrir skyldum og tækifærum kirkjunnar á þessu sviði. Á þessu þingi var 30 ára vígsluafmæli séra Octavíusar', og var honum boðið sérstakiega til þings með tilliti til þess, og hann heiðraður með peningagjöf frá bygðarfólki. En hann er fæddur og uppalinn að nokkru leyti í Minneota, þar sem faðir hans, séra N. Steingrímur Thorláksson var þá prestur. Var þetta því að vissu leyti eins konar “heim- koma” fyrir hann, enda var hon- um tekið með hinni mestu prýði. Á sunnudaginn var guðsþjón- usta haldin í kirkjunni í Minne- ota. Séra Octavius þjónaði fyrir altari, en séra Egill H. Fáfnis, og séra Harold S. Sigmar fluttu ræður. Eftir hádegi á sunnudaginn var samkoma haldin á vellinum fyrir framan kirkjuna, og töluðu þar flestir prestanna og svo Gunnar B. Björnsson, frá Minne- apolis, en hann var einn af full- trúunum frá heimaprestakall- inu á þessu þingi. ÁðkomuprestEU1 á þessu þingi voru þeir, séra Kristinn K. Ól- afsson frá Mt. Carroll, 111., og frú; séra Carl J. Olson og frú frá Stamford, Nebraska, séra Mar- tin Oygard, síðast þjónandi prest- ur á Lundar, síðar herprestur, en nú við nám í Chicago; séra J. David Larsen, norskur prestur í Minneota, og svo Dr. R. R. Belt- er, sem áður var nefndur. Fjórir fulltrúar voru kosnir til að mæta fyrir kirkjufélagsins hönd á næsta alsherjarkirkju- þingi United Lutheran Church, sem hefst í Cleveland, Ohio, í október næstkomandi. Þeir sem kosningu hlutu voru þeir prest- arnir, séra Guttormur Guttorms- son, og séra Rúnólfur Marteins- son, og úr hópi leikmanna þeir Victor Jónasson frá Winnipeg, og Gunnar B. Björnsson frá Minneapolis. Til vara voru kos- in þau Eric H. Sigmar í Blaine, og Mrs. Lauga' Jóhannesson frá Winnipeg. Þinginu lauk um hádegi á þriðjudag, 1. júlí. Skömmu áð- ur höfðu þessir verið kosnir em- bættismenn félagsins fyrir næsta ár: Dr. Haraldur Sigmar, for- seti; séra Valdimar J. Eylands vara-forseti; séra Egill H. Fáfnis, skrifari; séra Bjarni A. Bjarna- son vara skrifari; Mr. S. O. Bjerr- ing féhirðir, og Victor Jónasson vara féhirðir. I framkvæmdarnefnd eiga sæti, auk forseta, skrifara og fé- hirðis, þeir: séra B. A. Bjarna- son, Árborg; séra Skúli Sigur- geirsson, Gimh; Victor Jónas- son, Winnipeg, og Frímann Ein- arsson, Mountain, Norður Dak- ota. I trúboðsnefnd voru kosnir þeir: Séra Valdimar J. Eylands; séra Sigurður Ólafsson; séra ,Bjarni A. Bjarnason; Magnús Gíslason, Árborg, Man., og Wal- ter Breckman, Lundar, Man. Næsta ársþing kirkjufélags- ins verður haldið að Mauntain, N. Dak. V. NÝKOMIÐ! NÝ UPPFINNING ! “GOLDEX” HIAGATÖFLUR Ef þér kvíSié fyrir máltið, vissum mat vegria gass — 6- þæginda, fiiinlð til of mikils hjartsláttar; vonds bragðs, uppþembu eða verkja af völd- um ofáts eða ofdrykkju Þá er óþarft að kveljast FÁIí) YÐUR HINAR • Skjótvirku • Bragðgóðu “GOLDEN” MAGATÖFLUR 360 töflur, $5.00; 120 töfiur, $2.00; 50 töflur, $1.00. Reynsluskerfur, lOc. HÆST 1 ÖLLUM LYFJABÚÐ- UM — LYFJADEILDUNUM AT YOUR SERVICE In 1886 — 60 years ago — the Dominion Experimenlal Farms were founded. Starting with five farms the System has since been extended to 34 farms and stalions and 210 illustration stalions. This System, the largest and most comprehensive of its kind in any country. is mainlained, with ihe olher Services of the Dominion Department of Agriculture. for the promo- tion of agricullure and the nalional economy of Canada. As a result of ihe work carried out in the past by all the Services of the Department in co-operation with the provinces and agricultural colleges, a much grealer measure of siabilily has been given to farming in ihe Dominion. Now that the war has ended all the Services of the Dominion Depart- ment of Agriculiure — Experimental farms. Science. Production and Marketing — visualize a broader and fuller program of usefulness to the people of Canada. The facilities of these Services are varied and extensive. Everybody in Canada is invited to take advantage of them freely. The Department is always ready to assist in any way in the advancement of the basic industry of Canada — Agriculture. Dominion Department of Agriculture Ottawa, Canada HON. JAMES G. GARDINER, DR. G. S. H. BARTON, Minister Deputy Minister

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.