Lögberg - 01.08.1946, Síða 4
12
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST, 1946
Trúfesti íra
Eftir Richard E. Cushing
Sánkti Patrik hefir hlotið að
veita Irum þá sjón fegurðarinn-
ar sem nær út yfir takmörk jarð-
lífsins og inn í eilífðina, og þess
vegna eru hjörtu íranna bústað-
ur gleðinnar. Gleðin vakir á
vörum þeirra, en kærleikurinn
í hjarta.
Irar geta líka hryggst. Ef sorg-
in heimsækir hús meðbræðra
þeirra eða systra, þá samhryggj-
ast þeir og láta sér hugar haldið
um þá, heimsækja þá, tala við
þá, syngja fyrir þá, og samúðar-
tárin falla þeim um kinn. En
mótlætið og erfiðleikarnir ná
aldrei yfirhöndinni yfir þeim,
heldur lyfta þeir sér hugglaðir
yfir þá.
írar eru eina þjóðin í heimin-
um, sem hefir hljóðfæri fyrir
skjaldarmerki. Það er vel til
fallið, því þjóðin öll er ímynd
hörpunnar. írska þjóðin gæti
HAMINGJUÓSKIR!
ROBERTS & WHYTE LTD.
Sargení og Sherbrook
Sími 27 057
T H E
DOMINION
BANK
Stofnaður 1871
Vér seljum bankaávísanir og ferðamanna
peningaávísanir.
Vér veitum sérstaka athygli viðskiftareikn-
ingum þeirra viðskiptavina, er búa utan
borgar. Upplvsingar fúslega látnar í té.
Vér bjóðum yður að skifta við oss og leggja
peninga yðar inn í næstu sparisjóðsdeild
vora.
Útibú í Winnipeg:
Main Office—Main Sf. and McDermot Ave.
Main St. and Redwood Ave.
North End Branch—Main St. near C.P.R. Stn.
Notre Daxxie Ave. and Sherbrook St.
Portage Ave. and Kennedy St.
Poriage Ave. and Sherbrook St.
Union Stockyards. Sí. Boniface
Compliments of
Jubilee U
COMPANY, LIMITED
Corydon and Osborne
WINNIPEG
<JÍ. íi. 9'UHSUj,, McUUKýe/L
ekki lifað án sönglistarinnar.
írar eru einlægir þjóðræknis
menn, og einlægir trúmenn. Ef
að Irlendingur er sannfærður
um, að stefna hans og sarmfær-
ing í stjórnmálum sé hin sanna
og rétta, iþá berst hann fyrir
þeirri stefnu fram í rauðan dauð-
ann. Á síðastliðnum 300 árum
voru sjö uppreisnir, gegn kúg-
un hafnar á Irlandi, án 'minstu
vonar um sigur. En þeir settu
það ekki fyrir sig. Pearse, Plun-
ket, Clarke og De Valera von-
uðust aldrei eftir því að vinna
sigur með vopnum, heldur með
sókn andans. Þeir ásettu sér að
vekja hina sofandi þjóðarsál til
umhugsnnar um framtíð sína
og frelsi. Pearse ákvað að ír-
land skyldi vera lýðveldi og
barðist fyrir þeirri hugmynd í
fimm daga, var svo handtekinn
skotinn og jarðsettur í uppleystu
kalki. Hann lét líf sitt sökum
þess, að hann áleit það nauðsyn-
legt til vakningar þjóðarandan-
um. Sérfræðingar í hermálum
hefðu dæmt mann sem slíkt að
hafðist vitskertann, en orðin
þessi, sem hann sagði við móðir
sína rétt áður en að hann hné
fyrir byssukúlunni, verða ávalt
ómótmælanleg réttlæting fyrir
þeirri fóm hans: “Eg er ný-
búinn að meðtaka hið heilaga
kveldmáltíðar sakramenti.” Svo
skrifaði hann á miða: “Ef að eg
hefði átt val á að kjósa mér
dauðdaga, þá hefði eg beðið Guð
að gefa mér slíkan sem nú bíður
mín — að deyja hermanns dauða
fyrir Irland og frelsið.”
Þjóðræknis afstaðan ein, getur
ekki skýrt afstöðu Ira. írland
er írland, og írar eru írar sökum
trúfestu þeirra. Trúarstyrkur
írsku þjóðarinnar er engin láta-
læti — engin látalætis flík sem
þeir kasta yfir sig á sunnudög
um. Trúin þeirra er lífslögmál
þeirra. Þú mætir manni á
förnum vegi á írlandi, sem á-
varpar þig og segir: “Það er
gott veður í dag; Guð veri lof
aður.” Ávarp þetta er viðhaft
■jafnt fyrir því, þó úrhellisrign-
ing sé, og bæði hey og korn liggi
undir skemdum. Slíkt hefir eng-
in áhrif. Regnið er líka Guðs
gjöf.
Þig ber að garði þar sem einka
barn liggur á líkbörunum og
sorgin grúfir yfir litla húsinu.
Móðurin tárfellir, en segir: “Guð
veit bezt hvað hentast er, bless-
aður veri hans heilagi vilji.”
I héruðunum þar sem Gaelic
er aðallega töluð, er mönnum
heilsað með iþessum bænar orð-
um: “Guð blessi þig,” og svar
gestanna er jafn fagurt: “Guð
og María guðsmóðir blessi ykk-
ur.” Trúfestan og trúarhitinn
liggur í loftinu á írlandi og brýzt
fram af vörum fólksins við hina
minstu hj artahræring.
Eg get ekki varist þeirri hugs-
un, að Guð muni stundum brosa,
og bænheyra Ira — gefa þeim
það serruþeir biðja um, þó ekki
væri til annars en að vernda
heiður síns eigin nafns. Árið
1932, þegar “Eucharistic” þingið
var haldið á írlandi, þá spurði
einhver af þinggestunum írska
konu hvort hún héldi að rigna
mundi úr þungum regnskýjum
sem voru að dragast saman í
loftinu. “Við höfum verið að
aiðja Guð um gott veður í sex
mánuði, ef að nú fer að rigna,
óá hefir Guð engum nema sjálf-
um sér um að kenna,” svaraði
konan. Það rigndi ekki.
Þar sem Irar eru samankomn-
ir fleiri, eða færri, þá geta hug-
myndir þeirra og stefnur verið
eins margar og mennirnir eru,
eru oftast. Þeir geta rifist
um stjórnmál, eða um gæði
landa þeirra sem forfeður þeirra
komu frá, en þegar til trúmála
>eirra kemur, þá heyrist ekki
íjáróma rödd, og sem einn mað-
ur verja þeir helgi trúar sinnar
útí ystu æsar. Þegar að Euchar-
istic þingið var haldið þar, voru
ekki sár manna gróin frá síð-
ustu uppreisn þeirra, en á þingi
>ví stóðu leiðtogar hinna ýmsu
'lokka er í uppreisninni tóku
þátt, hlið við hlið í bandi friðar
og einingar.
Villutrúarmenn hafa aldrei
náð fótfestu á írlandi, né heldur
hefir nokkur trúarlegur klofn-
ingur átt sér þar stað frá trúar-
stefnu þeirri er Sánkti Patrik
innleiddi í landið, og nú eftir
1500 ár er sú guðdómlega skykkja
sem sankti Patrik skrýddi þjóð-
ina írsku með, þegar hann dvaldi
meðal manna barna, eins hrein
og dýrðleg og hún í upphafi var.
Atfarir þeirra sem reyndu til að
granda henni ,urðu til þess að
gjöra hana enn dýrðlegri og fága
hana í fórnarblóði píslavottanna.
Þetta er leyndardómurinn sem
stendur á bak við hið ódauðlega
lífsfjör Ira — hreinn og heitur
kærleikur til Guðs, sem gjörir
fátækt þjóðarinnar veglega, eyk-
ur styrk hennar í hættunum,
huggar hana á tímum sorganna,
vekur brosið á vörum hennar og
sameinar hana í húsi Guðs. Þetta
eru hjartaslög þjóðarinnar írsku
— þetta er írland — landið þar
sem blóm trúarinnar gróa —
landið sem endurspeglar návist
Guðs. Hvernig á að gjöra sér
grein fyrir þessu? Þjóðm sjálf
er sannkristin. Landsstjómin og
landslögin eru líka sann kristin.
Eg efast um að nokkur stjórnar-
skrá í heimi jafnist á við Eire-
stjómarskrána. Hver sú sjálf-
ræðis stjómarskrá, sem hefst
með orðunum: “I nafni hins
blessaða þríeina Guðs,” er sprott-
in frá hjartarótum sanntrúaðs
fólks.
Þjóð sem lifir og hrærist í ná-
vist Guðs, getur ekki farið var-
hluta af reynzlu og mótlæti lífs-
ins; og trú írsku þjóðarinnar hef-
ir ekki farið varhluta af þeirri
reynzlu.
Fólkið bar mikla lotning fyrir
kirkjum sínum, og þjónar Guðs
lifðu í endurminningum þess.
Forfeður þeirra gengu hug-
djarfir undir axir böðlanna og
staðfestu þegnhollustu sína til
Guðs síns og lands, með blóði
sínu.
Til þess að efla trú vora verð-
um við að breiða hana út. Synir
og dætur írlends hafa gjört það
til ystu takmarka heimsins.
Hvert sem þeir hafa farið, þá
hefir byTtan fylgt þeim, því þeir
flytja byrtu Guðs kærleika og
dögg náðar hans, með sér. Þeir
komu til Ameríku og gáfu óspart
af trúar auði þeim sem þeir
fluttu með sér, og forfeður þeirra
höfðu keypt með lífi sínu. Þeir
byggðu kirkjur frá hafi til hafs,
í þesu landi. Það em að minsta
kosti 450 kirkjur í Bandaríkjun-
um sem bera nafn Sankti Pat-
riks. ' J. J. B.
Complirnents of . . .
N. A. M/iCHILLAN
Vice-President, Manager
SUNSET MANUFACTURING CO. LIMITED
BAG MANUFACTURERS
Phone 27 583 Winnipeg, Canada
Uíeiller & Uíilliams
•Companq, Limited
UNION STOCK YARDS ST. BONIFACE. MAN.
grípa þetta tœkifœri til að flytja hinum íslenzku
viðskiptamönnum sínum hugheilar hátíðakveðjur.
Við þökkum viðskiptin á undangengnum árum og
væntum þess að geta veitt ykkur greiða og góða
afgreiðslu í framtíð. Hafið hugfast, að vér veit-
um smáum gripasendingum nákvæmleaa sömu
skil og þeim, sem stærri eru.
WILLIAM J. McGOUGAN, Manager
_ #
Innilegar kveðjur
til Islendinga hvarvetna
I
Þér hafið rækilega stutt að viðgangi vorum,
alt frá upphafi vorra vega 1914, er vér höfðum
aðeins tvo menn í þjóhústu vorri, og fram til
þessa dags, 1946, er vér höfum nú tvær prýði-
legar verzlanir og 26 innanbúðar þjóna er
allir eru reiðubúnir og fúsir að veita yður
þjónustu.
Prescription Specialists
fC. Q. o4asunci*i R. Jí. cMaSunan
Sargent Pharmacy Ltd.
SARGENT AVENUE OG TORONTO STREET
Winnipeg, Maniloba
JVith the Compliments of. . .
SOUDACK
FUR AUCTION
SALES LIMITED
• Phone 22894
294 William Ave.
Winnipeg, Man.