Lögberg - 01.08.1946, Blaðsíða 7

Lögberg - 01.08.1946, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST, 1946 15 ÞRJÚ NÝ SÖNGLAGAHEFTI Hallgrímur Helgason tón- skáld hefir nýlega sent frá sér þrjú sönglagahefti, sem öll eru prentuð í Ameríku. Heftir þessi eru: “20 íslenzikt þjóðlög”, “Syngjandi æska”, 55 lög, og loks “Átta lög fyrir karlakór.” I þjrðlagaheftið eru tekin upp lög, sem íslenzk alþýða í bygð og borg hefir kveðið á þessari öld, og stinga þau allmjög í stúf við önnur lög í þjóðlagaútgáfu Hallgríms. 1 formála segir hann, að þau séu byggð eftir öðru lög- • máli en hinir forngrónu miðalda- söngvar kirkjutóntegundanna. Hann segir ennfremur: “Tíðar- stíll 20. aldarinnar hefir markað þau greinilegum svip sínum og oftast léð þeim landvist í höf- ugu ríki “mollsins.” Laghreyfing- in er örari og umsvifameiri, og leiðsögutónspennan er snar þátt- ur í myndun lagalínunnar. Þessi lög verða í ríkum mæli til með íslenzkri þjóð nútímans og eiga það sammerkt með öllum þjóð- lögum, gömlum og nýjum, að einrödduð eru þau í sinni upp- haflegu og eiginlegu mynd fyrst samsungin vinsælu ljóði. Þjóð- runninn söngþrá leikmannsins er aflgjafi þessara einrödduðu og óhjúpuðu laga, og hún þræðir engar krókaleiðir, heldur birtist í yfirlætislausum og eðlilegum sönglínum þjóðlagsins. í þessari söngþrá alþýðunnar er falið fjör- egg íslenzkrar tónlistar um ár og aldir. Þessvegna er það mikil- vægasta meginregla alls tónlist- aruppeldis að huga að lagi þjóð- arinnar á hvaða tíma sem er og frá hvaða tíma sem það er. Það er fráleitur misskilningur, að á- líta að þjóðlagið heyri aðeins til gránri forneskju og gleyma iþar með lífshræringum þess með nú- tíðinni. Þjóðlagið er enginn safn- gripur liðins lífs, það er sífellt verðandi og vaxandi eins og öll menning þjóða.” Þessi 20 þjóðlög eru skrifuð eftir fólki víðsvegar af öllu land- inu. Til gamans má geta þess, að nokkur lög úr safninu munu inn- an skamms birtast hjá argen- tínsku forlagi, sem gefur út safn þjóðlaga frá Norðurlöndum. Karlakórslögin hefir Hallgrím- ur samið á undanförnum árum; það elsta er frá 1934 og það yngsta frá 1943. Eitt þeirra, “Höggin í smiðjunni’-, söng Karlakór Reykjávíkur í fyrsta sinn um daginn. Annað lag úr safninu, “Amma raular í rökkr- inu”, mun María Markan syngja inn á grammófónplötur nú á næstunni. Þriðja heftið, “Syngjandi æska”, á í fynsta lagi að vera söngbók fyrir 'byrjendur, svo og fyrir þá, sem byrjendur eru að spila á píanó eða orgel, og í öðru lagi ætlast til að heftið verði not- að í æfingaskyni við nótnalestur og tallestur. Tilgangurinn með útgáfu heftisins er fyrst og fremst það, að glæða áhuga á 'hispurslausum og frísklegum lögum í skólum og heimahúsum. Heftin eru öll prýðilega prent- uð og vönduð að frágangi. —(Vísir, 16. maí). REYKVÍKINGAR GREIDDU 65 MILJ. KR. í BEINA SKATTA Á árinu 1945 hafa Reykvíking- ar greitt í útsvör og beina skatta nærri 65 miljónir króna, og er þó hvorki talinn með veltuskatt- ur né kirkju- eða kirkjugarðs- gjöld. Lætur nærri að hver skatt- greiðandi í Reykjavík greiði að meðaltali rúmlega 3,100 krónur í útsvör og skatta. Árið 1944 námu heildarskattar Reykvíkinga um 57 milj. króna og komu þá um 2,800 krónur á hvern gjaldanda. Útsvörin námu 1944 nærri 30 milj. kr., en í fyrra rúm'l. 32 milj. kr. Tekjuskatturinn nam í fyrra kr. 16,575,533 en árið áður rúml. 15 milj. kr. Halldór Sigfússon skattstjóri hef- ir látið Vísi í té ofangreindar upplýsingar. Hann hefir enn- fremur skýrt blaðinu frá því að skattgreiðendur í Reykjavík hafi á s.l. árið verið samt^ls 20,727, þar af 20,236 einstaklingar og 491 félög. Hefir skattgreiðendum fjölgað töluvert frá næsta ári áð- ur, því þá voru þeir samtals 19,867. Suldlaus eign allra skatt- skyldra Reykvíkinga var sam- kvæmt framtali þeirra á s.l. ári 268.1 milj. kr., þar af 189 milj. kr. eign hjá einstaklingum og 79.5 milj. kr. eign hjá félögum. Nettó-tekjur skattgreiðenda námu alls 371.6 milj. kr., þar af eru tekjur einstaklinga 339.5 milj. kr. og félaga 31.1 milj. Árið 1944 námu nettó tekjur skattgreiðenda 336.3 milj. kr. og skuldlaus eign 222.5 milj. kr. Eignir reykvískra skattgreið- enda hafa því á einu ári aukist um 46 milj. kr. og lætur nærri að meðaleign hvers þeirra sé um 13,000 krónur. Nánara sundurliðað greiða 19,- 890 einstaklingar og 459 félög tekjuskatt. Eignarskatt greiða 5,353 einstaklingar og 381 félög, tekjuskattsviðauka, 2,745 ein- staklingar og 332 félög og stríðs- gróðaskatt, 456 einstaklingar og 113 félög. Tekjuskattur einstaklinga nam árið sem leið 12.3 milj. kr. og fé- laga 4.3 milj. 'kr. eignarskattur einstaklinga 801 þús. kr. og félaga 858 þús. kr., tekjuskattsviðauki einstaklinga 2.3 milj. kr. og félaga 1.4 milj. kr. Stríðsgróðaskattur einstaklinga 1.2 milj. kr. og fé- laga 5.9 milj. kr. Þá greiða 16 vátryggingafélög samtals 197,558 í skatta. Lífeyrissjóðsgjöldin námu al’ls kr. 3,198,672. Megi þjóðminningardagur íslendinga á Gimli 1946 verða farsæll, bjartur og glaður! DOUG GORDON Bílaviðgerða- og olíustöð TELEPHONE 149 SELKIRK - - - MANITOBA BEZTU ÁRNAÐARÓSKIR FRÁ BROS BEODING & BPHOISTERINC VERKSTÆÐINU ♦ Við erum sérfræðingar í að yfirdekkja legubekki og endur- nýja undir og yfirsængur. Nýir húsmunir og nýjar undir og yfirsængur búnar til samkvæmt ákvæðum eigenda. • Fljót afgreiðsla - Ábyggilegt verk - Sanngjamt verð . PHONE 53 368 921 Main Slreei Winnipeg, Maniioba Hugheilar árnaðaróskir til (slendinga á þjóðminningardag þeirra á Gimli, 5. ágúst, með þökk fyrir vinsamleg viðskifti. DOHINION BRIDGE C0MPANY, LIMITED ' I WlNNIPEG MANITOBA Á FERÐALAGI UM SPÁN (Framh. af bls. 11) ar, fjallatindar, rústir, rauð jörðin, uppþornaðir árfarvegir, — þetta var stórfenglegt og fjöl- breytt landslag. Oft var eg al- gerlega heilluð af því. Stundum varð hrifning min nærri sjúkleg. Flest sem eg sá, var annaðhvort mjög fagurt eða þægilegt á ann- an hátt. En maður verður þarna líka var við farsóttirnar, sem gjósa upp öðru hvoru og ekkert fær veitt viðnám, svo að heitið geti. Eg minnist þess, að lík voru flutt í ólokuðum kistum um götur bæja og borga. Dauð múldýr rotnuðu við vegkantana, þar sem þau höfðu fallið niður. Sjá mátti hræ af ungum nautgripum, sem drengir úr þorpunum höfðu grýtt eða stungið til bana í leikjum sínum. Og þarna mátti sjá fátækt meiri en víðast hvar annarsstað- ar. Fjölskyldur lifðu eins og villidýr við lélegustu kjör mann- félagsins í úthverfum borganna. Beiningamenn af öllum tegvmd- um voru hvarvetna. Gamlar konur leituðu í ruslahaugum að brauðmolum og skemmdum á- vöxtum. Og börnin boru rauð- eygð og skinhoruð eins og beina- grindur. En sömuleiðis man eg eftir fjölmörgu, sem kom mér til að líða vel. Landslagið umhverfis Tóledó með bláum olíuviðar- trjám og svörtum cýprusvið; — nautgripina og sauðahjarðirnar í hlíðum fallanna um mánaskins nætur; — nakinn dreng, sem baðaði sig í Tagusánni um dögun einn morguninn; — eg man hvar hann stóð í vatninu, kátur og fagurvaxinn og vakti mig með söng sinum. Eg man eftir öllum góðu móttökunum, — einnig fá- fræði og leti sumra. Eg man eftir héraði, sem var sem glötuð eyja, fátæk og smáð, og mörgum öld- um á eftir tímanum. Og vorið 1936 sá eg nýja öld renna upp í lífi þessa fólks. Eg sá bændurna, sem 80% voru ólæsir, vinna að því að gera bókasafn handa sveit sinni og fara að ganga í skóla. En það sem eg engan veginn vissi iþá, var þetta, — að eng- inn mun framar sjá hinn sanna Spán; — að eg var að eyða þarna síðustu friðardögunum á þeim stað, sem átti eftir að verða vett- vangur fyrstu átakanna í nýrri heimsstyrjöld. —Alþbl. 16. apríl. MÆTUMST HEILIR Á GIMLI 5. ÁGÚST CANADIAN STAMP 324 SMITH STREET co. S. O. BJERRING, framkvæmdarstj. <■ i Arnaðaróskir til Islendinga á Þjóðminningardegi þeirra að Gimli 5. ágúst 1946, frá FÉLAGINU, SEM BÝR TIL KINGFISHER NETIN KUNNU OG AGÆTU, OG HEFIR FULLNÆGT KVÖÐUM OG LEYST VANDAMÁL FISKIMANNA AÐ ÞVI ER FISKINET SNERTIR UM ALLAN HEIM í NÁLEGA 300 ÁR. Gundry Pymore LIMITED 60 VICTORIA STREET WINNIPEG- MAN. SÍMI 98 211 THORVALDUR R. THORVALDSSON, ráðsmaður. ; j.j 1 i Pyrene Fire Extinguishers and Refills Bluenose Fishing Nets and Twines Kop - R - Seal Net Prese rvative Ice Chisels and Needle Bars Marine Hardware Leads and Floats Rubber Clothing Netting Needles Lead Openers Float Varnish Ice Jiggers Rope etc. Largest DiSlributors of Commercial Fishing Equipment in Midwestern Canada Park-Hannesson Ltd. 55 ARTHUR STREET WINNIPEG, MANf. Phone 21 844

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.