Lögberg - 12.09.1946, Síða 2

Lögberg - 12.09.1946, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. SEPTEMBER, 1946 Dagbók Galeazzo Ciano greifa utanríkisráðherra Mussolini 5. janúar 1939 sagði Mussolini mér að hann hefði sagt konung- inum frá væntanlegu hermála- sambandi við Þjóðverja. Hann virtist ánægður með það. Hann hefir ekkert uppáhald á Þjóð- verjum, en hann hatar Frakka. 9. janúar 1939. Eg hefi leyni- lega tilkynnt Starace um þennan samvinnu sáttmála. Eg tók sér- staklega fram við hann, að láta ekkert á samningnum bera unz að Chamberlain fer frá Róm, en hefja ákveðinn áróður gegn Frökkum þegar að hann væri farinn, svo að æsingin sé komin á hæsta stig þegar sáttmálinn verður undirritaður. Mussolini svaraði bréfi frá Franco vingjarnlega; lagði ríkt á við hann að fara varlega á með- an að stríðið stendur yfir. Það verður auðvelt fyrir Franco að stjórna ef hann vinnur fullan sigur. Vald leiðtoga sem sigur hefir unnið í stríði, er ómótstæði- legt. 11. jan. 1939. Heimsókn Cham- berlains var , af ásettu ráði, ekk- ert básúnuð, þar sem bæði Musso- lini og eg efuðustum um gagn- semi hennar. Chamberlain á hinn bóginn var mjög vel ánægður með viðtökurnar, hefir óefað munað eftir viðtökunum óvin- veittu sem hann átti að mæta fyrir nokkrum mánuðum hj Frökkum sem vinveittir voru taldir. Kl. 6 e. h. Samræður í Pal azzo Venezia voru ekki þýðing- ar miklar, og báðir málsaðilar voru mjög orðvarir. Bilið á milli okkar og þeirra er geysi mikið 12. janúar 1939. Samtalið eftir miðjan daginn var þvingað sök um þess, að Þjóðverjar lágu Bretum svo þungt á huga. Her- útbúnaður þeirra liggur eins og mara á huga Breta og herðum Þeir mundu vilja mikið til vinna að geta séð með vissu hvað fram undan er í þeim efnum. Sú að- staða þeirra hefir sannfært mig æ betur um nauðsyn þriggja þjóða sambandsins. Ef við hefð um það í höndunum, þá er eg sannfærður um, að við gætum fengið því framgengt sem við bæðum um. Bretar vilja ekki fara út í stríð; þeir draga sig í hlé eins mikið og þ’eir geta og vilja ekki út í ófrið fara. Musso- lini hélt taum þjóðverja og varði málstað þeirra og lét fyrirætl anir sínar og Hitlers lítt uppi. Samtali okkar við Breta er lok- ið. Eg símaði til Ribbentrop og sagði honum að það hefði enga þýðingu haft — verið meinlaust og gagnslaust, og þakkaði hon um fyrir afstöðu blaðanna i þýzkalandi. 26. janúar 1939. Eg var að leika golf, þegar fréttin um fall Barce- lona barst mér. Eg tilkynti Mussolini fréttina tafarlaust og ráðstafaði við Starce, hvernig þeirri frétt skyldi fagnað á It- alíu. Allt sem þurfti að gjöra var að ákveða nær fögnuðurinn skyldi fara fram. Sigur sá vakti fögnuð á meðal ítala yfirleitt. Mussolini var stór-'hrifinn af þeim sigri, og hann hafði fulla ástæðu til þess að vera það, vegna þess að sigurvinningar á Spáni þekkjast undir einu nafni aðeins, og það er nafn Musso lini sem stjórnaði því stríði með dyrfsku og festu, og það jafnvel á meðan að fólk sem nú hyllir hann var honum fráhverft. 30. janúar 1939. Mussolini er áhyggjufullur útaf her-skrúð- göngunni sem fram á að fara fyrsta febrúar. Hann lætur sig varða hvert lítilræði í sambandi við hana. Hann stendur tímun- um saman á bak við bláu tjöldin í skrifstofu sinni og gefur gætur að hreifingum hinna ýmsu her- sveita. Hann hefir gefið skipun um að bumbur og básúnur skuli slegnar samtímis. Hann valdi sjálfur einkennismerki leiðtoga hljómsveitanna og sjálfur hefir hann sagt fyrir um allar hreif- ingar hersveitanna. Hann ásakar oft konunginn um að hafa spillt vaxtarprýði hermannanna, til þess að vöxtur og vallprýði her- mannanna gjörðu ekki hans eigin vaxtarlíti enn meira áberandi. 1. febrúar 1939. Hermanna- sýningin heppnaðist vel — var tilkomumikil. Hinar ýmsu deild- ir eru ekki enn full þjálfaðar. Aragrúi af fólki og stáli. Enginn er meiri meðhalds maður með Rómveiska sporinu en eg. Fas- istamir t óku það upp til að líkj- ast “goose” sporinu þýzka. En að láta hljómsveitirnar ekki spila á meðan að á hergöngunni stóð, dróg úr hátíðleik hersýningar- innar. 14. febrúar 1939. Hvað Alba- níu snertir þá segir Mussolini að við verðum að bíða eftir tvennu. Fyrst að stríðið á Spáni verði út- kljáð og hitt, að sáttmálinn við Þjóðverja verði fullgerður. En á meðan verðum við að dreifa út hinum ein'kennilegustu kynja- sögum — grugga vatnið eins mikið og unt er. 15-febrúar 1939. Atriði sem snerti sjálfan mig persónulega: Starace heyrði hr. Martire hall- mæla mér — segja að eg gæfi málum Italíu illt auga. Hann var tekinn fastur og settur í varð- hald. 1 sjálfu sér er þessi at- burður lítilvægur, en af honum má þó ráða, að menn lamaðir siðferðislega hafi náð valdi og virðing í okkar eigin hópi. Það gott sem atburðurinn sýndi mér til handa, var afstaða Mussolini til mín, hve fljótt hann tók minn taum og ákveðnara en menn áttu áður að venjast, eftir því sem Starace sagði. Um kveldið kom ráðið saman. Mussolini mintist á Martire mál- ið við mig, og sagðist sjá eftir að hann hefði ekki getað jafnað bet- ur um Martire, og bætti við, “Seitján ára stjómarforustu reynzla mín hefir varnað mér þeirrar ánægju að heyja mörg einvígi. (Fasista stjórnin hefir afnumið einvígi á Italíu). 19. febrúar 1939. Mussolini er að verða beiskari í garð Frakka með hverjum degi. Italir hata Frakka yfirleitt. En Mussolini hefir ásett sér að efla hatursbál- ið gegn þeim af alefli, í nokkra næstu mánuði, og eftir að hann hefir sagt Frökkum stríð á hend- ur og yfirunnið þá, þá ætlar hann að sýna ítölum hvernig að friður ætti að vera saminn. Hann ætlar ekki að fara framá neinar skaðabætur, en eyðileggja sem mest, og jafna fjölda bæja og borga við jörðu. Þeir sem í sorgarleiknum taka þátt. Til þess að gjöra lesendunum haqgara með að átta sig á mönn- um þeim sem um er talað í dag- óók Ciano greifa, eru nöfn þeirra hér skráð: Badoglio Marshal Pietro, yfir hershöfðingi ítala í Abyssiníu. Clodius Karl, yfirmaður hag- fræðideildar utanríkisráðs Þjóð verja. Bottai Guiseppe, nazista leið togi. Franqois Poncet Andre, sendi- herra Frakka á Þýzkalandi. Graziani Marshal Rodolfo, hers höfðingi ítala í Libíu. Grazzi Emanuele, í utanríkis- deild ítala. Ley, Robert, verkamála ráð- íerra nazista. Lorain, Sir Percy, sendiherra Breta á ítalíu. Lutze. General Vi'ktor, Þýzkur stjórnmálamaður og foringi. Von Mackensen, William Hans, sendiherra þjóðverja á ítalíu. Phillips, William, sendiherra Bandaríkjanna á ítalíu. Starace, ritari fasista flokksins embættismaður og stjórnmála maður. 22. febrúar 1939. Mussolini er mjög ánægður yfir þeirri ákvörð un Franco að standa á móti and Comintern samningnum og með því tekið stefnu sem sýnir að Spánverjar eru vel vakandi, og sem meira er varið í, sýna að þeir eru ákveðnir mótstöðumenn Frakka. Heimskingjarnir sem reyndu svo mjög til að finna að þátttöku okkar á Spáni, munu einhverntíma komast að raun um að við. Ebro, Barcelona og Malaga var grundvöllurinn að Rómversku Miðjarðarhafs veldi lagður. 12. marz 1939. Páfinn krýndur Eg var viðstaddur við þá athöfn sem leiðtogi Itölsku sendinefnd arinnar. Páfinn var mjög alvar legur — það datt hvorki af hon um eða draup. Hann var aðeins kardínáli fyrir mánuði síðan og aðeins maður á meðal manna, dag sýndist hann vera gæddur guðlegri tign, og andagift sem hefir hafið hann upp í æðra veldi 15. marz 1939. Her Þjóðverja er kominn inní Bóhemíu. Það er mjög alvarlegt spor, eftir að Hitler var búinn að gefa öllum loforð um að hann ætlaði ekki að ásælast landeign, eða leggja haft á einn einasta mann. Það er ekki til neins að leyna því, að farir þessar eru lítillækkandi fyrir ítali. Það verður að gefa þeim Albaníu í staðinn. Hitler sendi orð að hann hefði orðið að gjöra þetta, því Tékkar hefðu neitað að uppleysa her sinn, af því að þeir væru í sífeldu makki við Rússa, og af því að þeir hefðu misiþyrmt Þjóðverjum. Slíkur fyrirsláttur getur dugað handa Goebbels til að spinna áróðurs þráð úr. En þjóðverjar ættu ekki að viðhafa hann þegar þeir eru að tala við okkur. 16. marz 1939. Eg fór að hitta Mussolini; hann var órólegur út- af fréttunum. Hann talaði um Albaníu, en hafði þó ekki kom izt að neinni niðurstöðu, því hans huga gat Albaní'a ekki veg ið uppá móti auðugasta héraði veraldarinnar, Bóhemíu, sem Þjóðverjar væru búnir að taka. Þetta eru vandræði. Eg er sann færður um að siðferðisþrek ítala mundi styrkjast og vaxa ef við réðumst inn í Albaníu. 16. marz 1939. Eg fór aftur til samtals við Mussolini. Hann er nú sannfærður um að Prússar hafi náð algjörðu valdi á Evrópu. Eg spurði hann hvort honum findist ekki betra, eins og hlut- irnir stæðu nú, að binda sig ekki neinum böndum, heldur vera frjáls og frí, að hallast þar að sem hagkvæmast væri fyrir okk- ur í framtíðinni. Mussolini sagð- ist vera ákveðinn í að ganga 1 bandalag með þjóðverjum. Eg sagði honum að mér segðist illa hugur um það samband, og minnti 'hann á að það yrði aldr- ei vinsælt á meðal ítala. Eg var líka hræddur um að Þjóðverjar mundu nota það samband til þess að auka vald sitt í Mið-Evrópu. 17. marz 1939. Mussolini var áhyggjufullur og bölsýnn. Eg hafði aldrei áður séð hann í slíku skapi, ekki einu sinni á meðan að atburðirnir í sambandi við Anschlus gerðust. Cróatíu spurs- málið fór honum ekki úr huga. Hann var hræddur um að Mats- chek leiðtogi hins þjóðlega land- búnaðar, eða bændaflokks, sem var ákveðinn í mótstöðu við Servíumenn, mundi krefjast sjálfstæðis og leita verndar Þjóð- verja, og ef slíkt kemur fyrir, sagði hann, þá eru aðeins tveir kostir fyrir hendi: Að segja Þjóðverjum stríð á hendur eða vera svelgdur upp í byltinga- flóði því er nazistamir sjálfir vekja. Enginn maður getur unað því að swastika fáninn blakti yfir löndum Adríahafsins. Eg heimsótti von Mackensen, og átti rólegt en þó ákveðið samtal við hann. Eg minti hann á að Hitler I hefði sagt að ágirnd Þjóðverja næði ekki til Miðjarðarhafsins og það væri á þeim grundvelli að um samtök hefði verið rætt og að ef út frá þeim grundvelli yrði vikið, þá gæti heldur ekki orðið úr samvinnunni. 19. marz 1939. Átti langt sam- tal við Mussolini. Hann hefir hugsað all mikið um samtal okk- ar og er kominn að þeirri niður- stöðu, að úr þessu sé það óhugs- andi að fara framá það við ítali að þeir skrifi undir, eða sam- þykki sambandssáttmála við Þjóðverja. 20. marz 1939. Von Macken- sen færði mér svar uppá fyrir- spurnir mínar frá því á föstu daginn. Þjóðverjar segja að þeim liggi framtíð Cróatíu léttu rúmi, og viðurkenna að samband Italíu sé þar sínu sam bandi rétthærra. Hann endur tók að Miðjarðarhafið ætti ekki og gæti heldur aldrei tilheyrt Þjóðverjum. Eg sagði Mussolini frá þessum ummælum og honum þótti fréttimar góðar. “Ef hægt er að trúa þeim.” 21. marz 1939. Vestrænu veld in 'hafa tapað stóru landsvæði dag, sem Þjóðverjar hafa unnið Fréttin um samtakatilraun meðal lýðveldis þjóðanna hafa hert á Mussolini með að gera samning við Þjóðverja. 27. marz 1939. Mussolini stór reiddist konunginum í dag, þeg ar hann varð þess var að kom ungurinn var mótfallinn stefnu hans í Albaníu málinu. Konung- urinn lét í ljósi þá meiningu sína, að það væri ekki þess virði að leggja útí slíka hættuför til þess að “hremma fjóra berg- dranga.” Mussolini var afar reið- ur út af þessu svari konungsins: “Ef að Hitler hefði átt við kon- ungs hengilmænu að etja, þá hefði hann aldrei getað tekið Austuirríki og Tékkóslóvakíu,” sagði hann, og hélt áfram að tala um að Fasistar ættu ekki uppá háborðið hjá konunginum sökum þess að Fasistarnir héldu vel saman, en konunglega stefnan væri sú að skifta fólkinu í sem flesta og smæsta flokka sem hægt væri að siga hverjum á annan. 28. marz 1939. Madrid er fall in og með höfuðborginni allir bæir og borgir Rauðliða á Spáni. Stníðinu er lokið. Nýr sigur fyr- ir Fasista, máske sá mesti sem unnizt hefir ennþá. 29. marz 1939. Eg átti tvisvar tal við Mussolini, með það fyrir augum að komast að fastri nið- urstöðu í Alibaniu málinu. Land- lerinn, sjó- og loftherinn halda undirbúningi sínum áfram. Ef Zog konungur gefst ekki upp, sendum við sjó'herinn til Albaniu með loka-skilmála; ef hann þver- skallast, þá æsum við flokksfor- ingjana í Albaníu upp gegn hon- um, tilkynnum að við séum í stríði við Albaníu og förum á land. Eftir að við höfum náð Tirana á okkar vald, köllum við foringja þjóðarinnar á þing sem eg stjórna og krefjumst að Al- baníumenn gangi ítalíu á hönd skylyrðalaust. Badoglio fór á fund Mussolini til að tilkynna honum að hann væri samþykkur ráðstöfunum hans í sambandi við Albaníu. Eina bendingin sem hann gaf var að auka herinn. 31. marz 1939. Fréttir frá Tir- ana fullyrða að Zog konungur ætli ekki að gefast upp, og er mér meinilla við þá frétt, því mér finnst það eiga upptökin að stríði við, Aibaníumenn, sem get- ur orðið alvarlegt eins eldfimt og orðið er í Evrópu. 1. apríl 1939. Á morgun verður Nýja sáttmála uppkastið kom- ið í hendur Zog konungs. Ef hann samþykkir sáttmálann, þá fer eg til Tirana til þess að skrifa undir fyrir hönd ítala. Ef hann skyldi neita 'að skrifa undir, þá verður uppreisn um alla Albaníu. Svo hersveitir okkar verða að skerast í lei'kinn. 2. apríl 1939. Mussolini símaði JÓN VALDIMAR JOHNSON Dáinn aj sylsi 9. ágúst. 1946 Það stundum varð, að stundarklukka lífs er stönsuð snökkt, svo skiftir engum togum, og skollin yfir skrugga harma kífs með skelfingu frá Dauðans Elivogum. Og svo varð hér. Hve hljótt um gamlan garð, Og getuleysið sama, að skilja eigi, því hér var höggvið skaðamikið skarð, er sköpin ráða ein, hvert fyllast megi. En kvaddur ert í kærleik, gamli vin, af kunningjum og vinum sem þig geyma, og þekktu stofn af sterkum manndóms hlyn og stöðuglyndi er aldrei munu gleyma. Þvi vorsól sú, er vildi öllu góðs, og vakti hverjum hugans gróðri yfir, og studdi allt til gagns og meiri móðs, skal munast lengi, hvar sem gróður lifir. Það var ljúft og gott að þekkja þig, með þér á stundum innilega að kætast, og svo mun æ, að gullið sýnir sig þar snyrtimenska og göfugleikinn mætast. Er birtir upp úr þeirri skruggu skúr, mun skína bjart hið vinaríka heiðið; svo sofðu vært hinn síðsta langa dúr, þín saga lifir, þó að grói leiðið. T. T. KALMAN. skipun til allra sjóliða að fara tafarlaust um borð í skip sín og tilkynti og að Skipanin um að sigla kæmi síðar um kveldið. Það virðist að konungurinn hafi ekki verið fáanlegur til að láta af meiningu sinni og mótstöðu, hafi krafist að stjórnarráðið á fundi skæri úr. 5. apríl 1939. Eg sá Mussolini nokkrum sinnum. Hann er ró- legur, hræðilega rólegur og sannfærðari en nokkru sinni áð- ur, að afskifti okkar af Albaníu verði látin afskiftalaus með öllu. Hann er ákveðinn í að hefja stríð, og það er ekkert sem getur stoppað hann frá því, jafnvel þótt 'hann vissi að hann ætti við alheim að etja. t 7. apríl 1939. Eg fór á fætur klukkan fjögur. Starace beið eftir mér. Hann hafði mikið af boðum og bréfum meðferðis, á meðal anars símskeyti frá Zog til Mussolini, þar sem konung- urinn staðfesti þá ákvörðun að semja, og ákvað stefnumót þá um morguninn klukkan 6. Eg fór undir eins á stað flugleiðis og við komum til Durazzo kl. 7.45. Við sáum aðeins nokkra menn í Durazzo, og þó enga ó- kyrð væri þar að sjá þá hefir þó hlotið að 'hafa verið einhver mót- spyrna, því hervörður var niður við höfnina. Eg hélt áfram til Tirana. Göt- ur flestar voru mannlausar og varðmannalausar, og þegar inn í borgina kom var fólk á gangi á götunum eins og ekkert sér- stakt væri um að vera. Eg til- xynti Mussolini þetta og lét hann vel yfir — sérstaklega yfir því, að mótmæli frá öðrum þjóðum heyrðust nálega engin. 9. apríl 1939. Eg fór til Róm til viðtals við Mussolini. Margir Albaníumenn kvöddu mig á flugstöðinni með vinskap. Þeir iáðu mig að skifta við sig á fána Albaníu og ítalíu. Fáni ítalíu er reistur hér að hún í dag. Musso- ini er hin ánægðasti. 10. apríl 1939. Utanaðkomandi áhrifin á Albaníu málin fara sí minkandi. Einkum er þetta á- berandi í sambandi við Breta. Þeirra mótmæli hafa auðsjáan- lega verið meira til heimaáhrifa, en nokkurs annars. Fréttir frá Albaníu eru góðar; herinn lendir þar eins og ákveðið var, svo að segja mótstöðulaust. 16. apríl 1939. í dag er kór- óna og konungstign Albaníu af- hent Italíu. Albaníumenn eru utan við sig og ókátir. Konungur Italíu veitir kórónunni móttöku og er mál hans óákveðið og rödd hans óstyrk. Hann er sannar- lega ekki áhrifamikill ræðumað- ur. Eg átti tvö löng samtöl við Göring. Þó 'að hann tali allmikið um hermálin, þá finst mér að hann vilji ekki loka dyrum frið- arins, að minsta kosti ekki nú, sem stendur. Það sem mestan ótta vekur hjá mér er aðstaða hans til Póllands. Það er sama aðstaðan og áður hefir komið fram í sam'bandi við Austurríki og Tékkóslava. En Pólverjar leggja aldrei vopn sín niður að óreyndu. 14. apríl 1939. Göring er kom- inn. Eg mætti honum á vagn- stöðinni og fór með hann til Villa Madama. Á leiðinni tal- aði hann um aðstöðu axa þjóð- anna og finnst hún vera áhrifa og afl mikil. Hann er grimmur í garð Pólverja. 29. apríl 1939. Stjómarráð hef- ir ákveðið að auka herstjórnar- valdið. Mussolini er mjög óá- nægður. Honum finnst að mynd- ugleikar hervaldsins séu mest yfirborðs skrum. Því miður er það satt, að minsta kosti er eg honum sammála. Það hefir ekki verið alllátið af yfirlætis skrumi í sambandi við 'herinn og svo laglega á því haldið að Musso- lini sjálfur hefir látið blindast. 2. maí 1939. Carbone hershöfð- ingi hefir viðurkent í dag að vopnaútbúnaður Itala sé í hinu aumasta ástandi, og eg hefi heyrt þétta víðar að svo ekki er til neins að loka eyrunum fyrir því. En hvað gengur að Mussolini? Það er eins og hann hugsi um ekkert annað en venjur og her- siði; það ætlar allt af göflum að ganga ef hermennirnir setja ekki rétt niður byssur sínar, eða lyfta þeim öðru vísi en hann vill vera láta, að eg ekki tali um ef þeir ruglast í Rómverska sporinu. En stórgallana virðist hann varla sjá þegar þeir ganga fram yfir vist stig. > —(Framh.).

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.