Lögberg - 28.11.1946, Síða 1

Lögberg - 28.11.1946, Síða 1
PHONE 21 374 • . A v&*í£'#&sr' lJa^rt ^ A Complete Cleaning Institution Cleaning Institution 59. ARGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 28. NÓVEMBER 1946 NÚMER 47 ISLAND TEKIfl IFYLKINGU SAMEINUflU ÞJ09ANNA Ræða Thor Thors sendiherra Islands, General Assembly, United Nations, 19. nóvember, 1946 Herra forseti! Fulltrúar á þingi hinna sameinuðu iþjóða! í dag, þegar augu al'heimsins hvíla á þingi hinna sameinuðu þjóða, skiftir það ekki miklu máli, að ein smáþjóð til viðbótar gengur inn ií fylking iþeirra. Þrátt fyrir það er þötta lengi þráð augnablik fyrir íslenzku þjóðina og mikill viðburður í sögu hennar. Fyrir hönd ríkisstjórnar ídlands og íslenzku þjóðarinnar óskar sendinefnd íslands að færa forseta þingsins innilegar þakkir fyrir hans vingjarnilegu og hvetjandi móttöku ræðu í okkar garð. Við viljum ennfremur þaikka öllum löndum þingsins fyrir að hafa greltt umsókn okkar atkvæði og einkum erum við þakklátir öllum íimm stórveldunum fyrir að hafa stutt umsókn dkkar á öllum stigurn hennar og að lokum leitt hana fram til fullnaðar samþyktar. Það vaf ánægjulegt fyrir okkur að heyra svo mörg vingjarnleg orð í okkar garð frá svo mörgum löndum, á hinum mörgu fundum er umsókn okkar var til athugunar. Við þökkum ykkur öllum og við gleðjumst yfir að vera í ykkar hópi. Okkur fins't að ísland hafi í rauninni altaf verið ein hinna sameinuðu þjóða. I allri 9Íðustu styrjöld var ísland samkvæmt írjálsum og vingjarnlegum samningi milli ríkisstjórnar Banda- rfkjanna og Islands, notað sem hernaðarbækistöð í þágu Banda- manna. Land oklkar var mjög þýðingarmikil bækistöð í striðinu um yfirráðin yfir Atlantshafinu. Það var ómissandi til varnar Ame- ríku og til þess að vernda siglingaleiðirnar til Bretlands og Rúss- iands. Við erum stoltir af því að hafa unnið okkar hlutverk. Það héfir kostað imiklar fórnir, því að fyrir árásir óvinanna voru 2 af hverju þúsundi þjóðarinnar drepnir og 20 prósent af fiskiskipum og flutningaskipum okkar var sökkt. ísland tók þátt í öllum alllsherjar ráðstefnum hinna samein- uðu þjóða á stríðsárunum, svo sem matvælaráðstefnunni og við lögðum fram okkaf litla skerf til hjálparstofnunar hinna sameinuðu þjóða (UNRRA). Þrátt fyrir það stóðum við utan hins gullna hliðs í San Francisco. íslenzku þjóðinni finst, að aldrei geti hún né vilji, á neinum tímum og hvernig sem ástatt kann að vera, sagt annari þjóð stríð áhendur, af frjálsum vilja og fyrir eigin ákvörðun. Samkvæmt 4. grein sáttmála hinna sameinuðu þjóða er eitt aðal- skilyrði fyrir inngöngu það, að þjóðirnar séu. friðelskandi. Það er vafasamt hvort nokkur þjóð uppfyllir þetta skilyrði svo algjör- lega sem ísland, sem hefir engan her. íslenzka þjóðin byggir líf sitt og framtíð sína á hugsjónum friðar, lýðræðis og mannréttinda, en einmitt þessar háu hugsjónir eril grundvöllur hinna sameinuðu þjóða. Það er fullkomlega ljóst að nú á dögum, með hinum hrýllilegu, gjöreyðandi og víðtæku morðtækjum, táknar öryggi minstu þjóð- ar heimsins, sama og öryggi stœrstu þjóðanna og raunar alheimsins. Þegar húsið brennur einlhversstaðar á okkar litla hnetti, getur bálið teygt sig um alla okkar litlu veröld og steypt henni í rústir. Okkur er það fullkomlega ljóst, að framilag Islands til starfs hinna sameinuðu þjóða getur aðeins orðið lítilfjörlegt. En við ós'kum að mega af alhuga tjá stuðning vorn við þá göfugu hugsjón að gæta hinna ljúfu loga friðarins. Við skiljum það fyllilega, að friður og farsæld eru aðeins tvö heiti hins sama þráða marks. Undir merkjum hinna sameinuðu þjóða vonar mannkynið að mega nú, loksins sækja fram til sigurs þeirra hugsjóna, sem kynsilóð eftir kynslóð hefir þráð, en aldrei fengið að njóta. ísland gleðst yfir því að mega taka þátt í þessari viðleitni. Sigur hinna sameinuðu þjóða er hjartfólgnasta von mannkynsins. Megi þær vaxa að völdum, vináttu og vitsku. •f -f BRÉFAVIÐSKIFTI VEGNA UPPTÖKU ÍSLANDS í FYLKINGU SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA November 21, 1946. Mr. Grettir Johannsson, Icelandic Consul, 910 Palmers^on Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Dear Grettir: I am enclosing a copy of a mes- sage of goodwill that the Cana- dian Seoretary of State for Ex- ternal Affairs, The Right Honour- able L. S. St. Laurent, recently sent to Ólafur Thors, Prime ♦ -f Minister and Foreign Minister of Iceland. Also a copy of the reply, wlhich I, according to instruc- tions from our Foreign Minister, have forwanded to the Canadian Foreign Minister. I expect that you will have these messages puiblished in Logberg and Heims- kringla. I am also forwarding the speech I delivetred on behalf of the Icelandic Delegation to the United Nations Conference on the occasion of Iceland’s admission as a memiber of the United Nations on Novemlber 19th. The speech was, of course, delivered in English but I am sending you the Icelandic translation, I am also forwarding excenpts from The Journal of the United Nations, giving the speech of the President of the United Nations General Assembly, Mr. P. H. Spaak, the Foreign Minister of Beligium, when he bid Iceland, together with Afghanistan and Sweden, wölcome to the United Nations, which I thought you might like to have translated for the Icelandic papers. It was an impressive ceremony when we were welcomed to the United Nations, as all the dele- gates from other countries warm- ly applauded our entry. After my speech, the Icelandic Delega- tion took their seats in the Gen- eral Assembly, and we are now busily engaged in Committee work. At the same time as we formally entered the Assembly, the Icelandic flag was hoisted outside the meeting place, and, as Iceland now has become the 53rd member of the United Nations, waves among the flags of the other United Nations. We were personally welcomed by many merwbers, including Mr. St. Laurent your Foreign Minister, and Mr. John Bracken, as well as the representatives of Norway and Denmark. Knowing that this information is of interest to you, I trust that you will have it published in the next issue of the Icelandic papers. With kind regards, Sincerely yours, Thor Thors. ♦ His Excellency Olafur Thors, Prime Minister and Minister of Foreign Affairs of Iceland, Care His Excellency Thor Thors, Icelandic Minisfer to the United States, 536 Barclay Hotel, New York. The delegation of Canada to the general Assemibly of the United Nations has asked me as their c'hairman to transmit to you our best wishes on the occasion of your admission as a member of the United Nations. In my capa- city of secretary of State for Ex- ternal Affairs I hope that I may have the privilege of meeting you soon to extend to you personally the warm Greetings of my countrymen. Louis S. St. Laurent, Hotel Biltmore, New York. -f November 21, 1946. Excellency: Mr. Olafur Thors, Prime Min- ister and Minister of Foreign Affairs of Iceland, has instructed me to convey to you his thanks and great appreciation for your friendly message öf congratula- tions to Iceland on its admission as a member of the United Nations. Mr. Olafur Thors also has ex- pressed his desire to have the privilege of soon meeting your Excellency personally to extend to you the warm greetings of the Icelandic nation to the Canadian people, which includes so many citizens of Icelandic descent, of which Iceland is proud. Accept, Sir, the renewed as- surance of my highest consider- ation. DJÚP STAÐFEST Eins og nú horfir við, verður ekki betur séð, en djúp mikið sé staðfest milli hins róttækara fylkingararms verkamanna þing- flokksins brezka og hins hægfara hluta hans, er enn fylgir dyggi- lega þeim Attlee og Bevin að málum; ágreiningurinn lýtur einlkum að stefnu stjórnarinnar varðandi utanríkismálin; telur vinstri fylkingin afstöðu ráðu- neytisins til Rússa stónhættulega, og telur líklegt, að til þriðja sríðsins geti komið nema því að- eins, að Bretum skiljist hve óum- flýjanllegt það sé, að efla og auka bróðurlega- samvinnu við rúss- nesku ráðstjórnamkin. Þeir Attlee og Bevin vilja ekkert hafa við rússneskan kommúnisma saman að sælda, og segja að hann eigi ekkert erindi til Bretlands. •f ♦ ♦ RÚMENÍA Nýafstaðnar þingkosningar í Rúmeníu, hafa gengið kommún- istum mjög í vil; hafa þeir nú langstærsta þingflokkinn og ráða sennilega fyrst um sinn lofum og lögum í landinu; minnihluta flokkarnir telja þetta gefa ranga hugmynd um hinn sanna vilja kjósenda, með því að rússneskir áróðursmenn hafi verið sýknt og heilagt að verki í Rúmeníu meðan á kosningahríðinni stóð. •f f f GJÖRVULEG BRÚÐHJÓN Mr. og Mrs. K. R. Honey Þann 4. október síðastliðinn voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju, af séra Valdimar J. Eylands, þau Bar- bara Leslie Goodman, einkadótt- ir þeirra Mir. og Mrs. G. P. Good- man hér í borginni, og Mr. Kenneth Ronald Honey, einka- sonur Mr. og Mrs. Honey, Cal- gary, Aiberta; við hljóðfærið var Mr. H. J. Lupton, en Kerr Wilson söng einsöng. — Brúður- in er íslendingum að góðu kunn vegna ágætra hljómlistarhæfi- leika og tækni sinnar í píanóleik. Lögberg flytur 'þessum ungu hjónum hugheilar árnaðaróskir. H. E. The Right Honourable L. S. St. Laurent, P.C., M.P., Secretary of State for Externa' Affairs, Ohairman of the Canadian Ddlegation to the United Nations, Hotel Biltmore, New York City. ÍSLAND UNDIRSKRIFAR SÁTTMÁLA SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA —Official United Nations Photograph. Á myndinni sézt sendiherra íslands í Washington, Thor Thors, þar sem hann, fyrir hönd íslenzku ríkisstjórnar- innar undirskrifar sáttmála sameinuðu þjóðanna, að viðstöddu miklu stórmenni. FULLTRÚAR ÍSLANDS Á ÞINGI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA. —Official United Nations Photograph. Frá vinstri til hœgri: Thor Thors sendiherra, Finnur Jónsson, dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, borgarstjóri og Ólafur Jóhannesson lögfrœðingur. TIL KARLAKÓRS REYKJAVÍKUR á söngför hans til Winnipeg, 18. og 19. nóv., 1946 frá Karlakór íslendinga í Winnipeg. Synir fjalla, fjarða og dala, fönnum þaktra jökulsala. Heyrist rödd í tónum tala tákn og kraft hins nýja máls. Nú er drotning fjalla frjáls. Hörpu knýið heiðra tinda. hljómar máttur elds og vinda. Enn í tónum lækja og linda leikur blær um kinn og háls. Glöð er drotning fjalla frjáls. Syngja í höllum synir f jalla. Sækja fram um veröld alla Láta ei merkið frjálsa falla. Finna kraft og sigurmátt. Ljós þeim skína í austurátt. Sigla djarft með seglum þöndum synir fjalla- heim að ströndum. Sterkum tengdir bræðraböndum. Bera sigurmerkið hátt. Geislabjart í austurátt. Máttur býr í móðurarni. Mildir geislar skína á hjarni. Sólskin veitir blíðu barni brjóst sín við og orku máls. ‘ Heiðrík drotning fjalla frjáls. GUÐMUNDUR A. STEFÁNSSON. ♦ ♦♦**♦♦♦♦♦*♦♦♦ Thor Thors.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.