Lögberg - 28.11.1946, Page 5

Lögberg - 28.11.1946, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. NÓVEMBER, 1946 5 AHUeA/HAL LVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON V I Ð T A L við frú Guðnýju Frederickson níræða Frú Guðný Frederickson Vesturfarar Haustið 1873 eða fyrir 73 árum síðan, safnaðist saman á Akur- eyri margt manna. úr ýmsum sveitum Norðurlands, og beið þar eftir skipsferð. Þetta fólk hafði kvatt frændur öína, vini og æsku- stöðvar og var á leiðinni til þess að freista gæfunnar í Vestur- heimi. Þetta var fyrsti stórhóp- urinn, sem fóx frá íslandi til Ameríku — um 160 manns. # Ungu brúðhjónin Meðal þessa ferðafólks gat að líta ung brúðhjón; þau höfðu giftst 10. júlí, daginn áður en þau lögðu af stað frá fæðingarsveit sinni, Melraklkasléttu, nyrstu sveit íslands. Brúðguminn var prúðmannlegur í framkomu og bar með sér að hann var til for- ystu fallinn, enda var hann kos- inn, þegar til Akureyrar kom, sem einn af þremur leiðtogum hópsins. Brúðurin var kornung, aðeins 17 ára, smá en fallega vaxin, bláeygð með mikið gló- bjart hár; brosmild og þýð. Þessi ungu glæsilegu brúðhjón voru þau Friðjón Friðriksson og Guð- niý Sesselja Sigurðardóttir Steinssonar að Harðbak. 90 ára ung. Það átti fyrir þessum hjónum að liggja að koma víða og vel við sögu Vestur-íslendinga. Sem kunnugt er tók Friðjón Friðriks- son mikinn og góðan þátt í félags- málum þeirra, og var einn mesti atlhafnamaður Islendinga á land- nlámsérunum, í samfélagi við sína ágætu konu. Hann er nú látinn fyrir allmörgum árum en frú Guðný átti 90 ára afmæli þann 29. októiber síðastliðinn. í tilefni af þessum áfanga á langri og merkri æfi bað eg hana um viðtal fyrir kvennasíðu Lögbergs. Frú Guðný er til heimiiis hjá Theodóru Hermann hjúkrunar- konu, að 120 Lenore street hér í borg. Þær tóku mér alúðlega og fanst mér sérstaklega merkilegt að sjá hve þessi aldna landnáms- kona ber aldurinn vel; hún er enniþá ungleg í vexti, kvik í hreyfingum, broshýr og kát. Minnið er ágætt og hugsunin skýr. “Eg hefi ekkert gert, sem er frásöguvert.” “Æfisaga þín er að mörgu leyti saga íslenzka landnámsins í Vesturheimi,” sagði eg við frú Guðnýju, “þú gætir vafalaust sagt mér frá mörgu merkilegu.” “Það er nú hægt að lesa um landnámið í Sögu Vestur-íslend- inga eftir Þorstein Þ. Þorsteins- son. Eg hefi ekki lesið hana alla, en það sem eg hefi lesið, finst mér rétt og skilmerkilegt. Jú, við hjónin vorum í fyrsta hópn- um, sem kom til Nýja íslands, en eg ætla að biðja þig að skrifa ekki mikið um mig, góða mín. Mér finst að eg hafi ekki áorkað neinu miklu né merkilegu um æfina — nokkru, sem í frásögur sé fær- andi. Eg hélt mig mest að heim- ilisstörfunum og gafst ekki mik- ill tími til að sinna störfum utan heimilisins.” Þannig svaraði þessi yfirlætis- lausa og hæverska landnéms- kona; hún, sem hafði í erfið- leikum frumbýlingsáranna, skap- að góð og aðlaðandi heimili; alið upp mannvænleg börn og verið manni sínum stoð og stytta gegn- um Iþrengingar hinna erfiðu landnámsára, og alla tíð. Það mun sannast vera að þeir, sem mestu afreka, láta minst yfir sér. Atvinnuleit. “Hvar stofnuðu þið fyrst heim- ili hér 1 álfu?” spurði eg frú Guð- nýju. “Við eignuðumst ekki strax heimili er við komum vestur, síð- ur en svo,” svaraði hún. “Fyrst var að fá atvinnu. Þegar við vesturfararnir komum til To- ronto, skiftist hópurinn. Við hjónin fórum með þeim hóp, sem hélt til Muskoka í Ontario. Hitt fólkið fór suður til Bandaríkj- anna. Við dvöldum ekki lengi í Muskoka, því þar var lítið um atvinnu. Rétt þegar fé okkar var að ganga til þurðar, fengum við bréf fré vinum okkar, Islend- ingunum, sem fóru til Mil- waukee,, þess efnis, að þar væri meiri atvinnu að vænta en í Ontario. Við lögðum þegar af stað suður og fórum með skipi til Milwaukee. Þar vorum við á gistihúsi um nóttina, en um morguninn, þegar við höfðum goldið næturgreiðann áttum við aðeins 15 cent eftir. Nú var úr vöndu að ráða. Við vissum ekki hvar Islendingarnir bjuggu, en til annara var ekki að leita.” Ullarnœrfötin. “Segðu henni hvernig mann- inum þínum tókst að hafa upp á Íslendingunum,” sagði Miss Her- mann. “Það var nú dálítið skringi- legt,” sagði frú Guðný brosandi. “Hann bað mig bíða á hótelinu; hann ætlaði að ganga um borgina og vita hvort hann yrði þeirra ekki var. Hann gekk um strætin alllengi. Ait í einu tekur hann etftir þvotti, sem er hengdur á snúru hjá húsi einu; honum finst eitthvað kunnuglegt við þennan þvott; hann sér þar heimaunnin ullar-nærföt. Jú, þarna munu Islendingar vera! Hann ber nú að dyrum, og það stóð heima. Þar voru nokkrir landar. Varð nú heldur en ekiki fagnaðarfund- ur. Svo var mál með vexti að á leiðinni suður höfðu þeir lent í járnbrautarslysi, og nokkrir þeirra höfðu orðið fyrir lítils- háttar meiðslum og voru þarna undir læknishendi. Stuttu síðar kom læknirinn; Friðjón var bú- inn að læra ensku og gat því talað við hann og sagt honum af hög- um okkar. Læknirinn bauð okk- ur hjónunum að vera hjá sér um veturinn, en ekki gæti hann gold- ið okkur kaup. Við þáðum samt boðið. Friðjón hafði ýms störf á hendi fyrir læknirinn, en eg hjálpaði frúnni við heimilisstörf- in og háfði gott af veru minni þar, iþví þar komst eg nokkuð niður í málinu og lærði að mat- reiða á þessa lands vísu.” Fyrsta heimilið. “Um vorið f'ékk maðurinn minn vinnu í búð og allgott kaup. Nokkru síðar fengum við bréf frá Áma bróður hans í Toronto þess efnis að við skyldum koma þang- að, því þar stæði Friðjóni til boða ágæt atvinna. Þegar til Toronto kom stofnuðum við okkar fyrsta heimili, og bjó Árni hjá okkur. Ekki dvöldum við þó lengi á þessum stað. Eftir nokkra mán- uði fluttum við til Kinmount; þar tók maðurinn minn við verzlun fyrir öigtrygg Jónasson. Þaðan fórum við haustið 1875 með allstórum hópi íslendinga vestur til Manitoba, í því skyni að nema lönd og stofna íslenzka ný’lendu á bökkum Winnipeg- vatns.” “Þótti þér ekki leiðinlegt að breyta um heimilisstað svona oft?” “Ekki fann eg mikið til þess,” svaraði frú Guðný, “eg var ung og eg var með manninum mín- um; þar sem hann var, þar var mitt heimili.” Þrautir og erfiðleikar. “Þið landnemamir áttuð í miklum erfiðléikum fyrstu árin etftir að þið komuð til Gimli?” “Já, fólkið gekk í gegnum ægi- legar eldraunir, en það vil eg segja, sagði frú Guðný, og lagði áherzlu á orð sín, “að það sýndi aðdáanilega hugprýði í "ollum sínum þrautum og erfiðleikum, og var frábærlega hjálpsamt og tók hlutdeild í kjörum hvers annars. Það var hörmulegt að hafa enga mjólk handa blessuð- um bömunum fyrsta veturinn, enda dóu þá mörg börn. Seinni part vetrar þjáðist fólkið mjög aí skyrtojúg vegna þess að það hafði hvorki nægilegan né nýjan mat.” Var ekki hægt að notfæra sér fis'kinn úr vatninu og hérana úr skógunum?” spurði eg. “Nei, menn kunnu ekki fyrst í stað að fiska upp um ísinn, enda höfðu þeir ekki tæki til þess. Það bauð mörgum við því að leggja sér héra til munns; þeim fanst að það væri eins og að borða ketti. Eg komst einna fyrst upp á að matreiða þessi dýr, og naut þar matreiðslu- tilsagnarinnar, sem eg hafði fengið hjá læknisfrúnni í Mil- waukee. Þetta var í rauninni ágætur matur.” Dufferin lávarður. “Þú munt hafa 'heilsað upp á Duftferin lávarð, þegar hann heimsótti Gimli haustið 1877?” “Nei, því miður gat eg það ekki; fyrsta barnið mitt, Aurora dóttir mín, var þá nýfædd. En eg gat séð úr glugganum á húsi okkar móttökuathöfnina; ræðu- pallurinn var skamt fré húsinu okkar, en það stóð þar sem gatan liggur nú, upp að listigarðinum á Gimli. Hús Mr. Taylors um- boðsmanns var örskamt frá okk- ar heimili.” Heimili þeirra Friðíriksson hjóna var fyrsta húsið, sem reist var í Nýja íslandi; var 'það bæði íveruhús og verzlunarbúð. Við þetta söguríka tækifæri flutti Dufferin 1 ávarður hina frægu ræðu sína, sem enn er vitnað í þegar ritað er um Vestur-íslend- inga. Friðjón Friðriksson þýddi ræðuna á ísilenzku jafnóðum og hún var flutt. Lávarðurinn sagði meðal annars: “Þótt þér gerist brezkir þegnar, þá þurfið þér ekki að gleyma yðar eigin alda- virtu siðum, né hinum myndríku fornsögum forfeðranna. Þvert á móti treysti eg því, að þér um allan aldur unnið bókmentum þjóðar yðar hugástum, og kyn- slóð eftir kynslóð læri böm yðar áfram að lesa í fornsögum yðar um, að iðjusemi, dugnaður, hug- prýði, þrautseigja og ósveigjan- legt þolgæði, hafi ætíð auðkent hið göfuga, áslenzka kyn.” Indíánar. “Var ekki margt af Indiíánum í kringum Gimli fyrst eftir að þið komuð þangað,” spurði eg frú Guðnýju. “Jú, þeir voru margir,” svaraði hún “og þeir fögnuðu alls ekki komu okkar, vegna þess, að þeim fanst að þeir ættu þetta land. Við konurnar vorum otft hrædd- ar við þá, ef menn okkar voru fjarverandi. Eg man að eg varð skelkuð fyrst þegar eg sá þessa hörundsdökku menn. Eg var ein heima og var í búðinni, þá komu inn nokkrir Indíánar. Þeim fanst víst alveg eins einkennilegt útlit mitt eins og mér fanst þeirra. Þeim varð sérstaklega starsýnt á hárið á mér, sem þá var gló- bjart. Mér fór ekki að verða um sel þegar einn þeirra færði sig nær mér og potaði fingrinum í gleraugun mín. Hann hafði víst aldrei séð gleraugu áður. Ekki gerðu þeir mér mein, né öðrum konum í nýlendunni. Brátt vönd- umst við þessu fólki og heim- sóttum það stundum í tjöldum þess. Eg man eftir að einu sinni fór eg að heimsækja Indíánakonu, sem átti von á barni. Þegar eg kom var hún búin að ala barnið. Eg man hvað eg kendi í brjósti um huna. Hún lá þarna ein úti í horni í tjaldinu, án alilra þæg- inda. Hún var sjélf búin að búa um bamið á þeirra Vísu. Hún hatfði búið um það í mjúkum mosa á fjöl og utan um strang- ann var reimað eltiskinn. Móð- urinni og barninu heilsaðist vel og hún tfór óvenjulega fljótt á fætur, að mér fanst. Margir Indíánar komu vel fram við okkur. Eg man sér- staklega eftir einum, sem hét Ramsay. Við kyntumst honum eftir að við fluttum til Islend- ingafljóts. Hann og maðurinn minn urðu vinir. Þar urðum við fyrir iþeirri sorg að missa lítinn dreng. Um sama leyti misti Ramsay ilitla stúlku. Hann kom til mannsins míns og bað hann að lofa sér að jarða litlu stúlk- una við hliðina á drengnum okkar. Okkur fanst það fallegt. Annað Htið barn dó stuttu síðar og var jarðað á sama stað. Þessi þrjú börn hvíla í landareign Sveins Thorvaldssonar. Hann lét girða í kringum þennan litla grafreit; það fanst mér fallega gert.” Mörg heimili. Þið hjónin stofnuðuð heimili á fleiri stöðum en þessum?” “Já, við vorum sex ár á Gimli, og fluttumst þaðan t'il Íslendinga- fljóts, þar sem maðurinn minn kom upp sögunarmylnu í félagi við Sigtrygg Jónasson, Þaðan fluttum við til Selkirk og síðan til Glenboro. Þar rak maðurinn minn verzlun í 20 ár. Eg eigh- aðist þar falilegt og stórt heimili; það kom sér vel að það var stórt, því mörg skólabörn voru oft hjá mér á því tímabili. Árið 1906 fluttum við til Winnipeg og þar hefi eg étt heirna síðan.” Bezta afmælisgjöfin. Þegar hér var komið sögu, bauð Miss Hermann okkur í kaffi. “Það hetfir verið gestkvæmt hjé okkur á afmælisdaginn?” sagði eg, eftir að við vorum seztar að borði. “Ekki var það neitt formlegt,” sagði Miss Hermann, “við létum það berast út meðal vina og vandamanna að vjnkona okikar ætti 90 ára afmælisdag í vænd- um, og myndi verða heima þann dag.” “Jú, margir voru vinirnir, sem komu og óskuðu mér til ham- ingju með daginn. Eg er þeim inn^lega þakklátf fyrir velvild þeirra og vináttu,” sagði frú Guðný. “Segðu Mrs. Jónsson frá beztu atfmæilisgjöfinni,” sagði Miss Hermann brosandi. Nú ljómaði andlitið á afmælis- barninu. “Nokkrum dögum eftir atfmælið símaði Elswood Jöhn- son, dóttursonur minn, og sagði mér þau ánægjulegu táðindi að hann væri orðinn afi — að Vir- FRÉTTIR SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Af þingi sameinuðu þjóðanna í New York, er tiltölulega íátt að frétta annað en það, að utan- ríkisráðherra Rússa, Molotov, bar fram seinni part fyrri viku kröfu um það, að allar þjóðir gæfi umsvifalaust skýrslu um allan sinn heratfla, hvort heldur vœri í hemumdu löndunum eða heirna tfyrir. Sir Alexander Cadogan, einn af erindrekum Breta, kvaðst hlyntur kröfu hins rússneska utanríkisráðherra, en fór samtímis fram á, að Rússar riði á vaðið í þessu efni, ekki ein- ungis í orði, heildur einnig á borði, því enn væri margt á huldu varðandi fyrirætlanir þeirra um hervarnir. Senator Connally kvað Bandaríkin þess ginia dóttir hans væri búin að eignast stúlku. Svo nú er eg orð- in langa-lang amma,” sagði frú Guðný brosandi, “finst þér það ekki góð afmælisgjöf?” Þeim Friðriksson hjónum varð 5 barna auðið; tveir drengir dóu ungir, en þrjú lifa. Elzt þeirra er frú Aurora, ekkja Tómasar H. Johnson, fyrrum dómsmálaráð- herra í Manitoba. búsett í Bandaríkjunum; Kári, búsettur í Toronto og Haraldur hér í borg. Sólskinsblettur í heiði. Séra Friðrik Bergmann skrif- aði grein um Friðjón Friðriksson í Almanakið 1908. Þar minnist 'hann frú Guðnýjar og segir meðal annars: “Heimili þeirra hjóna hefir verið fyrirmyndar heimili að öllu sem lengi mun 1 minnum Vestur- íslendinga, þeirra er þektu. Hafa þau hjón verið samanvalin að 'héttprýði, snyrtimensku og öðr- um mannkostum, svo alt það, er öðru má til gildis telja, er jafn- satt um hitt, og hefir heimili þeirra évalt verið eins og sól- skinsblettur í heiði.” Það er ennþá “sólskinsblettur í heiði” þar sem frú Guðný er. Eg þakka henni fyrir ánægjulegt viðtal og óska henni til hamingju með afmælið. fýsandi, að spilin yrði lögð á borðið í sambandi við fastaher hverrar þjóðar um sig, en taldi ráðlegra eins og ó stæði, að þetta mikilvæga mál yrði falið sér- stakri nefnd, er tæki það til fullrar ytfirvegunar og legði síð- an fram nákvæma skýrslu fyrir aðalþingið; annars verður naum- ast annað með sanni sagt, en þungilega horfist á um lausn þeirra mála, er fyrir þingi sam- einuðu þjóðanna liggja til örlaga- riíkra úrslita. ♦ ♦ ♦ FRJÁLS VIÐSKIFTI I rúman mónuð hefir fundur staðið yfir í London, er það verk- etfni hefir haft með höndum, að athuga skilyrðin fyrir frjálsum viðskiftum þjóða á milli og vinna að framkvæmdum í þá átt. Bandaríkin áttu frumkvæði að boðun fundarins; beittu erindrek- ar þekra sér röggsamlega fyrir því, að leiða fundarmönnum fyr- ir sjónir hve lífsnauðsynlegt það væri iheimsfriðnum til trygging- ar, að rutt yrði úr vegi þeim viðskitftahömlum, sem leitt hefðu, og gætu enn leitt til stríðs; full- trúar Canada tóku 1 sama streng og hétu málinu eindregnu fylgi. ♦ -f ♦ INDLAND Nýjustu fregnir þaðan herma, að Múhameðstrúarmenn hafi nú formilega neitað að taka þátt í þingfundum, sem hefjast eiga þann 9. desember næstkomandi, í því augnamiði, að semja og af- greiða stjórnarskrá fyrir þjóðina; foringi þeirra, Ali Jinnah, kveðst þeirrar skoðunar, að eins og nú horfi við, sé samvinna um stjórnartfarslegan grundvöll milli skoðanabræðra sinna og Hundúa, með öllu óhugsanleg;*sjónarmið- in séu svo gerólík, að ekki sé við'lit að samræma þau nema með atfsali sjálfsagðs trúar- bragðafrelsis, sem ekki komi til méla. Mohandas K. Gandi hefir að sögn fengið ógrynnin öll af nafnlausum hótunarbréfum, þar sem hann er sakaður um, að hafa beinlínis og óbeinlínis, verið valdur að óspektunum, sem ný- lega urðu í East Bengal. Innköllunarmenn LÖG6ERGS Amaranth, Man. B. G. Kjartanson Akra, N. Dak B. S. Thorvarðson Árborg, Man K. N. S. Fridfinnson Árnes, Man M. Einarsson Baldur, Man O. Anderson Bellingham, Wash Arni Símonarson Blaine, Wash Árni Símonarson Boston, Mass Palmi Sigurdson 384 Newbury St. Cavalier, N. Dak. B. S. Thorvarðson Cypress River, Man. . O. Anderson Churchbridge, Sask ... S. S. Christopherson Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson Elfros, Sask. Mrs. J. H. Goodmundson Garðar, N. Dak Páll B. Olafson Gerald, Sask C. Paulson Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson Gimli, Man O. N. Kárdal Glenboro, Man O. Anderson Hallson, N. Dak Páll B. Olafson Hnausa, Man K. N. S. Fridfinnson Husavick, Man O. N. Kárdal Langruth, Man John Valdimarson Leslie, Sask Jón Ólafsson Lundar, Man Dan. Lindal Mountain, N. Dak Páll B. Olafson Point Roberts, Wash. S. J. Mýrdal Riverton, Man. K. N. S. Friðfinnson Seattle, Wash. J. J. Middal 6522 Dibble N.W, Seattle, 7, Wash. Selkirk, Man. Mrs. V. Johnson Tantallon, Sask. J. Kr. Johnson Vancouver, B.C F. O. Lyngdal 5975 Sherbrooke St. , Vancouver, B.C. Víðir, Man K. N. S. Friðfinnson Westbourne, Man. Jón Valdimarson Winnipeg Beach, Man O. N. Kárdal

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.