Lögberg - 05.12.1946, Blaðsíða 7

Lögberg - 05.12.1946, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. DESEMBER. 1946 7 “Þegar Múspellssynir herja” Eftir DYSON CARTER (Lauslegur útdíáttur eftir Jónbjörn Gíslason) “Því næst slyngr Surtur eldi yjir jörðina ok brennir allan heim.” (Gyifaginning). Vér 'höfium öll lesið hina æsandi spádóma um mögulega “atom” sprengju styrjöld. Það er nú viðufkent af visindamönnum, að sú sprengja sé í vaun og veru góðmannlegt áhald, með tiltölulega takmörkuðu dráp- afli, samanborið við svökölluð líffærafræðisleg styrjaldartæki. Þau óitrúlega villiimannlegu vopn, sem þar bíða reiðubúin, hafa litla auglýsingu vakið í opintoerum blöðum og tímaritum, en nægilegar fregnir haJfa sloppið fram hjá ritskoðun til þess að gefa oss ljósa hugmynd um hvaða niðurstöðu vísindamenn hafa fundið í þessu efni. Sé sú niðurstaða flett öllum iðnfræðilegum dularklæðum og málskrúði, gefur hún oss ljósa hugmynd um hvernig oss er fyrir- hugað að deyja, ef hið þriðja veraldarstríð verður að veruleika. Oss toer að rannsaka þessa hluti — ek'ki með skelfingar- blandinni forvitni—heldur vegna hins aðkallandi sannleika um nauðsyn vaxandi átaka fyrir var- anlegum friði. Sú þekking gefur oss yfirburða vopn í friðarbarátt- unn, ef vér getum gjört þjóðun- um þessa hluti skiljanlega að fullu. Hvaða þjóð sem er, getur hafið ófrið af þessari tegund; þessi vopn hafa alla yfirttourði yfir atóm-sprengjuna, vegna þess hve þau eru ódýr og auðveld að fram- leiða'í smáverksmiðjum, með ein- földum áhöldum og fáum sér- fræðinguim. Slík framleiðsla get- ur því farið fram með fullkom- inni leynd. Vopnagerð af þessari tegund verður ekki fyrinbygð með vopnahléssaimningum eins og táðkast hefir um önnur dráp- álhöld hingað til. Ýms þau efni, sem hér um ræðir og sem verið er að smíða úr vopn gegn mannkyninu, eru þess eðlis að þau auka sinn eiginn ey ð i'legg i n g a r'kr af t sjálfkrafa eft- ir að Iþeim er gefinn laus taum- ur, án allrar tilhLutunar árásar- mannsins. Eftir vikur og jafn- vel mánuði frá því árásin fór fram, brjótast afleiðingamar út með voðalegu tortámingarafli, án þess fórnardýrinu sé ljóst hver árásarmaðurinn er. Öllum er ljóst að drepsóttir hafa leikið sinn ákveðna og af- drifaríka þátt í öllum styrjöld- um. í fyrra heimsstríðinu var mannfaMið meira af sjúkdómum en fyrir vopnum. Jafnvel eins snemma og 1870, þegar bákteríufræðin var fálm- andi að leita fyrir sér i áttina til undirstöðu þekkingar á sjúkdóm- um, mælti enski vísindamaðurinn og hermálaráðanauturinn Blox- ham með tilraun Breta í fa'llbyssu kúluní hlöðnum með bólu sótt- kveikjum. í fyrra heimsstríðinu upplýsti Bandaríkja doktorinn Mr. Davis, að athygii hefði leiðst að bak- teríu hernaði, sem hann þó for- dæmdi sem ósamrýmandi sjálfs- virðingu og réttsýni. Þar átti hann við tillraunir þýzkra agenta 1915, að sýkja hesta og nautgripi bandamanna með bráðdrepandi sjúkdómum. Sú tilraun misihepn- aðist. Á fjórtándu öld er sagt að Tartarar hafi í stríði á Krímskag- anum, fleygt líkamspörtum af dauðum drepsóttar sjúklingum inn í fylkingaraðir óvinanna. Hermenn Pizarro herstjóra gáfu Indíánum af ásettu ráði 'klæðnað af bóluveikissjúkling- um, er kom af stað óviðráðanlegu sjúkdómsflóði; þrj'ár miljónir dóu í Mexikó og Mið-Ameríku. Sóttkveikjuhemaður var álit- inft óhæfur af tvennum mótsett- um ástæðum. í fyrsta lagi gætu drepsóttir ofsótt vini og óvini að jafnu, og ií öðru lagi yrði torvelt að útbreiða sóttkveikjuna, þeg- ar menn væru orðnir ómóttæki- iegir fyrir sjúkdóminn. Árið 1941 töldu frægir Banda- ríkja vísindamenn “biological” hernað óframkvæmanlegan, en það sama ár sendi The National Academy heimuglegar upplýs- ingar til hermiálaráðherrans, er bygðust á njósnum Bandamanna gagnvart tilraunum Þjóðverja og Japana á þessu sviði; þegar til kom reyndist þetta atiiði ekkert óttaefni, en sénfræðingar lögðu til að málið skyldi rannsakað á skipulagðan máta. Leyninefnd tók þetta mál skyndilega tiil meðferðar sumarið 1942 og kallaði visindamenn til verka víðsvegar að. Niðurstöð- ur þeirra urðu alveg ákveðnar. Innan tólf mánaða var the Che- mical Service of the Army beðin að skipuleggja framkvæmdir í stórum stíl. Næsta ár voru bygð- ar efnarannsóknarstofur fyrir stórframleiðslu í Maryland, Mis- sissippi, Utah og Indiana. Tiltölulega fáir menn — þar með taldir sérfræðingar — hafa í raun og veru áttað sig á, hve framkvæmdir af þessu tagi eru óhæfilegar, þegar allar hliðar málsins og tilgangurinn er at- hugað. Leyndardómar þessir eru jafnvel enn rækilegar vaktaðir en atom sprengjan sjálf. Canada og Bretland hafa að nokkru lagt lið sitt fram, en 3900 vísindamenn úr Bandaríkj- unum einum, eru þar önnum kafnir með öffjár að baki sér. En þrátt fyrir umfangs víðáttu verksins, eru það smámunir ein- ir samanborið við árangurinn. Vér verðum að átta oss á að “biological” hernaður er marg- falt yifirgripsmeiri og áhrifarík- ari en “germ” hemaður og inni- heldur nú þrjár megintegundir vopna: 1. Lifandi sjúkdóms bakteríur, fungi, viruses og riekettsias. 2. Toxins, sem dreg- ið er út úr íáðurnefndum efnum. 3. Samansettar efnafræðislegar tegundir, banvænar öllu lífi en á annan máta en venjulegt eitur. Það eru ýms afbrigði þessa voða vopns, sem hægt er að nota ýmist gegn mönnum, dýrum eða jarð- argróða. Nokkurt umtal hefir orðið um þetta eitur, sem nefnt er “toxin”. í því samtoandi er þýðingarmikið að bera í minni að þetta er í fyrsta sinn er efnafræðingar hafa einangrað hreint og óblandað það eitur, sem veldur sjúkdóm- um vorum og dauða. Það er “toxin.” Efni þetta er svo ótrúlega mátt- ugt, að blöð og tímarit hafa talið þær lýsingar sem af því ganga svo lýgilegar, að þau hafa lítið um það sagt. Vísindamennirnir Lamanna, McElroy og Eklund, gáfu nýlega sannar upplýsingar um vissa tegund af toxin, í tímaritinu Science. Þeir segja svo: Eitt gamma af toxin drepur hálfa tylft manna. En geta má þess, að 30 miljón gamma eru í einni únzu. Ein únza af hreinu toxin er því meira en nóg til að drepa hvert mannsbarn á þessu megin- landi. Vér vitum að þetta er sann- leikur, meðal annars ivegna þess að sambærileg efni með öfugri verkan, hafa verið notuð til varn- ar gegn ýmsum sjúkdómum, t. d. “vaccine” er vörn gegn fimtíu tegundum lungnasjúk dóma, ein únza tryggir hálfa miljón manna. Til er viss tegund af toxin, svo banvænu, að aðeins ein únza er nægileg til að flytja 100 miljónir manna yfir í annan heim. í maí síðastliðnum sagði Mr. Albert Thomas í Bandaríkja- þinginu, að sjóherinn hefði nú ráð á vopni er væri banvænna en atom-sprengjan. Hann hefir að öllum líkindum átt við hið óvenjulega fyrirtæki er með mestri leynd hefir verið fram- kvæmt og hafði á prjónunum lungnaveikis drepsótt, sem berst í loítinu frá manni til manns án snertingar. Vér getum ímyndað oss enda- lok styrjaldar þar sem sækjand- inn gæti sýkt mótstöðu þjóðina, án alls fyrirvara á þennan máta, en haldið öllum sínum liðsafla sóttfríum. Það er vel mögulegt að vér sé- um eina þjóðin, sem höfum þessa margnefndu atom-sprengju, enn sem komið er; en vér megum vera vissir um að aðrar þjóðir hafa nú þegar hin áðurtöldu “biological” drápsáhöld. Það er því rnjög sennilegt að hverri sprengju frá vorri hendi, yrði svarað með enn djöfullegri og banvænni skeytum, ef “imperial- istum” vorum tekst að hleypa nýju stríði af stokkunum. Meiri hluti þjóðar vorrar mundi farast áður en vísinda- mönnum gæfist tími til vamar- láðsta'fana, að því viðbættu að óvinir vorir mundu að sjálfsögðu breyta sýkingar og eiturskeytum sínum, áður en vér gætum rönd við reist. Vásindin hafa fundið og fært oss að gjöf, nýja sjúkdóma, nýj- ar plágur og nýjar eiturlindir, að hugviti, hlutföllum og framþró- un ekki alveg ósambærilegt við afbrigði af blómum, garðaávöxt- um og hvei-ti. Tvær óvinaþjóðir með þessi vopn til sóknar og varnar, stæðu nokkurnvegin jafnt að vígi, en eyðileggingin yrði svo stórbrot- in, að í stað þess að taka líf ná- unga síns og bróður, yrði viður- eignin allsherjar voðalegt múga sjálfsmorð. ■ Allar þessar rannsóknir gætu vitanlega verið og ættu að vera mannkyninu til ómetanlegrar blessunar, til útrýmingar alvar- legra sjúkdóma, en einmitt þess ir hlutir eru vandlega geymdir innan vélbyssu víggirðinga. Hin einu gagnlegu not þessara efna, sem opintoeruð hafa verið að þessu, eru fyrir alifugla og naut- pening. Margir mundu ætla að allar þessar upptöldu eyðileggingar ráðstafanir gegn mannkyninu, fyltu mœlirinn, en svo er þó ekki. Gaumgæfilegar rannsóknir hafa farið fram til eyðileggingar jarðargróða, með það fytrir aug- um að geta sett heilar þjóðir í sveltu, éf á liggur. Eitt af því er ný og öflug tegund af ryði á hveiti. Aðrar efnistegundir vinna þannig að þær eyðileggja með djöfullegri fundvísi allar góð- jurtir, en leyfa illgresi að gróa og vaxa óhindrað. Yfirvöldin viðurkenna að þau hafi verið reiðubúin að gjöra eina slíka prófraun gegn Japan, til að svelta þá til uppgjafar. Sé þessu efni stráð yfir sáð- lönd og önnur ræktuð héruð á réttum tíma, sjást engin áhrif að sinni, akbarnir halda áfram að vaxa alt til uppskerutíma, en þá skyndilega visnar allur gróður og skrælnar upp til agna, eins og helköld dauðans hönd hafi strok- ið alt llíf út með einu snöggu táki — ekkert grænt strá eða gróðurtoppur. Vísindamenn geta þess í tímariti sínu, Science, að þessar niðunstöður séu aðeins byrjun þess er koma muni. Sem mótsetningu gegn þessu framantalda, má geta 'þess að fundist hafa ýmsar tegundir “hormóna” er valdið geti mjög róttækri breytingu í búskap. Ein tegund hefir þau áhrif á kartöflu- raökt, að grasið visnar rétt fyrir uppskerutímann og sá kraftur, sem eyddist í vöxt og viðhald blaðanna, fellur til ávaxtarins sjálfs og gjörir hann betri og þroskameiri. Látum oss enn líta á allar þess- ar mótsetningar. Eins og áður er sagt hafa vísindin fundið efni, Nóbelsskáldkonan GABRIELA MISTRÁL Þann 15. nóvember s. 1. ár voru fjórir afburðamenn sæmdir Nóbélsverðlaunum. Eðlisfræði- verðlaunin féllu í hlut austur- rísks háskólakennara Wolíang Pauli að nafni. Eðlisfræðisverð- launin hlutu finskur háskóla- kennari, Artturi Virtanen, og þýziki prófessorinn Otto Hahn. En toókmentaverðlaunin fóru ekki til Islands, eins og menn hafa þó fyrir löngu ysenzt, held- ur alla leið suður til Chile, eða réttara sagt til Brasil'íu, og við- takandinn var skáld'kona nokk- ur, Gatoriel Mistral að gervina'fni. Óhætt mun að fullyrða, að næsta fáir íslendingar hafa áður heyrt þessa konu nefnda, en vit- anlega getur hún verið prýðilegt skáld fyrir því, einkum þegar á það er litið, að sérgrein hennar er ljóðagerð, en á því sviði erum við næsta ófróðir utan íslands. Hins vegar var Gunnar Gunnars- son og fleirí íslenzkir höfundar vel kunnir meðal læsra manna allar götur austur til Kóreu fyrir stríð, hyað iþá meðal Norður- landaþjóða, og verður fróðlegt að vita, hvenær Sænska aka^ demían minnist Lslendings í sam- bandi við Nóbelsverðlaunin. Menn skyldu ætla, að það ágæta fólk, sem veitt hefir framliðnum manni (E. A. Karlfeldt) bók- mentaverklaun Nóbels, mundi hafa sæmilegt yfirlit um raðir mestu andans og tækninnar manna í tölu lifandi skálda og rit- höfunda. En þetta var nú að- eins útúrdúr, sem langaði til að komast á prent. Það, sem hér fer á eftir, er að mestu þýtt úr grein um Nóbels- skáldkonuna Gabrielu Mistra. eftir Kirsten Schottlander, er birtist í danska blaðinu Poli- iken 16. nóv. 1945. Gabriela Mistral heitir réttu nafni Luvila Body y Alcayaga Hún er fædd í Vicuna, smábæ í Norður-Ohile, árið 1889. Faðir hennar var skólakennari, einka- systir hennar kenslukona, og sjálf hóf hún barnakenslu þorpsskóla einum 15 vetra göm ul. Uim syipað leyti tók hún að Skrifa greinar, og birtust þær blöðunum þar um slóðir undir réttu nafni. Tæplega tvítug kyntist hún járnbrautarverka sem ein únza af getur drepið 100 miljónir manna. Ein handfylli af öðru efni getur hreinsað alt ill- gresi af þúsund bændabýlum Enn önnur efnategund breytir eðli ba'kteríu, sé efnið útþynnt 400 biljón sinnum. Hvaða þýðingu hafa allar þess ar ótrúlegu staðreyndir? Rann- sóknir eru hafnar til að sann prófa innstu leyndardóma lifsins viðgang þess og endalo'k, æxlun og erfðaskilyirði. Það út af fyrir sig er ágætt. Þegar tilgangsins er gætt, er meiríhluti þessara rannsókna hæsta máta viðbjóðslegur. Hér í Norður-Ameríku eru 17 miljón ir manna veikir af krabba og munu efalaust deyja ef ekki er að gjört. Samtímis því eru vísinda- menn í þjónustu hersins að leita að vaxtaskilyrða mæli fyrir krabba í því augnamiði að finna nýtt efni er sýkt gæti heilar þjóð- ir óviðráðanlegum krabbasjúk- dómi, jafn skjótt og markvist og tiilraunadýr eru sýkt í rannsókn- arstofum efnafræðinga. Eg vil enn endurtaka, að aðrar þjóðir hafa vissulega þessi sömu voðavopn og vér, eða önnur slík. Joliot Curie sagði félagi enskra vísindamanna í febrúar síðast- liðnum, að atóm leyndarmálið í Ameríku þvingaði önnur ríki til að framleiða enn sviksamlegri og voðalegri vopn. Afturhaldið og áróðursmenn þess ættu að faha varlega með eldinn. Vér sjáum hér fyrirmyndina frá Munich endurtekna og aftur- gengna. E N D I R manni, Romelio Ureta að nafni, og feldi til hans ofurást.' Maður >essi sneri brátt baki við telp- unni og stytti sér skömmu seinna aldur. Þessir atburðir vöktu skáldgáfuna í brjósti hinnar ungu kenslukonu. Örvinglun hennar braust út og leitaði sér forms í kvæðaflokki, sem hún í fyrstu rítaði sér til hugarhægð- ar, en hvorki til lofs né frægðar. En verða ekki meiri háttar bók- méntir oft einmitt þannig til? Óstöðvandi tilfinningar krefjast lisræns forms, án þess að nokk- ur tilhugsun um skáldfrægð kom ist þar að. Hins vegar dylst slík l'istsköpun, ef hún er á annað borð einhvers virði, sjaldan mjög lengi. Árið 1914 sendi Lucila Gody sýnishorn þessara kyæða: “Sonetos de la Muerte” í kvæða- samkeppni, er fór fram í Santi- ago, og merkti þau dulnefninu Gatoriela Mistral, sem nú er heimsfrægt orðið. Kvæðin hlutu 1. verðlaun í keppninni. Þannig varð hin unga og óþekta kenslu kona í skjótri svipan fræg um gervalt Chile og svo ástsæl í þokkabót, að ýmsir kölluðu hana jafnvel Sánkti Gabríelu! Gabriela Mistral hélt áfram að yikja, og frægð hennar breidd- ist út meðal allra spænskumæl- andi manna í Suður-Ameríku. Árið 1922 varð hún við eindregn- um tilmælum menningarstofnun- arinnar: Instituto de la Espanas í Bandarfkjunum og leyfði út- gáfu á úrvali af ritum sínum. Árangurinn varð glæsileg bók: “Desolacion”, sem árið eftir kom einnig út í Ohile og var síðan endurprentuð. Birtust þar m. a. kyæði þau, er skáldkonan hafði ort fyrir 13 — 14 árum í ástar- hörmum sínum; Barnaljóð, sem hún hafði ort til nemenda sinna í barnaskólapum, auk óbundins máls. “Guð fyrirgefi mér þessa beizku bó'k,” segir Gabriela Mis- tral í éftirmála, sem hún nefnir “Loforð”, “og það fólk, sem skynjar Mfið sem dásemd, verður einnig að fyrirgefa mér — 1 þess um 100 kvæðum blæðir þjáning- armettaðri fortíð, þar sem kveð skapurinn varð blóðidrifinn til þess að veita mér hugsvölun-.” Hún lofar að snúa sér framvegis að geðþekkari sviðum mann- legrar tilveru og laða fram blíð- ari tóna “mannkyninu til hugg- unar.” Og í mörgum yngri kvæða sinna hefir hún í raun og sannleika leitað annarra yrkis éfna en þeirra, er hún sótti til sinna eigin hjartafylgsna. Þar 'hefir hún ort um Chile, fjall- garða Ameríku, sól hita'beltisins, hina rniklu nytjajurt, maísinn, o. m. fl. Hún er nú vel að þvi komin að bera yirðingareinkunn ina: Skáld'kona Vesturheims. Gábriela Mistral hefir ekki gert skáldskap að aðalefni sínu, síður en svo. Hún er kennari að köll- un, og kenslustarfið hefir hún talið hlutverk sitt í lifinu. Hún hóf það starf á unga aldri sem barnakennari, eins og áður er sagt, gerðist þar næst lýðskóla- kennari og síðan forstöðukona kvennaskóla eins í Chile. Þegar hún leið sem mestar sálarkvalir sakir vonbirigða sinna í ásta- málunum og þeirrar þungbæru tilhugsunar að fá aldrei að eign ast börn méð manni þeim, er hún hafði unnað af alhug, leitaði hún sér huggunar í kenslustarf- inu og fann þar svölun og all- mikla uppbót á því, sem hún taldi sig hafa farið á mis við. Öll þau mörgu börn, sem hún veitti fræðslu, lagði hún, ef svo mætti að orði kveða, að móður brjósti sér og veitti þeim hlut- deild í auðlegð anda síns. Fyrir þau fórnaði hún starfskröftum sínum, og til þeirra onti hún barna- og yögguljóð þau, er hún birti í bókinni “Desolacion” og seinna voru prentuð sem ljóða- safn með heitinu “Ternura”. Brátt fór mikið orð af uppeldis- | hæfileikum Gabrielu Mistral. Því var það, að kennslumálaráðu- neyti Mexico-ríkis kvaddi hana til aðstoðar við skipulagningu skólakerfisins þar í landi og bað hiana jafnframt að flytja erinda- fllokk um fræðslmál. Þetta varð upphaf að ferðalögum um Band- arílki Norður-Ameríku, Mið-Am- eríku, Spán o. fl. lönd. Enn frem- ur hefur skáldkonan starfað við Þjóðabandálagið sæla og dvalizt langdvölum í Frakklandi og á ítalíu lí nefnd, er sá um upptöku fræðslukvikmynda. Hún hefur flutt fjölda fyríriiestra við amer- íska háskóla, stofnað skóla um gervalla Ameríku og verið sæmd doktorsnafnbót í spænsk-Amer- ískum bókmenntum af háskóla eyjarinnar Puerto Rico. Árið 1932 sæmdi Puerto Rico hana “kjördóttur” - yirðingaiheitinu. En árið áður hafði C’hile-stjórn sæmt hana konsúlsnafnbót, og hefir hún Síðan gegnt konsúls- störfum fyrir ættland sitt á Spáni, 1 Portúgal, Frakklandi og Argentínu. Nú er hún búsett í Petropolis í Brazilíu. Gabriela Mistral vekur athygli manna, hvar sem hún fer. Veldur því svipmót hennar og virðuleg framkoma. Hún er þrekvaxin og hægfara, en fas hennar er tigin- mannlegt. Andlitsdrættir henn- ar bera vott um beizka lífs- reynslu og jafnvel sársauka. Láfi sínu hefir hún ávalt fórnað öðr- um, og í kvæðum sínum hefir hún úthelt hjartablóði sínu. Við lestur þeirra opinbenast mönn- um harmleikur mannlegs lífis. Talið er, að ljóð hennar beri minjar áhritfa frá hinu mikla spænsk-ameríska sikáldi Rubén Dario, er orkað höfir á hugi vel- flestra amrískra skálda hinnar yngri kynslóðar. Þó eru kvæði Gabríelu Mistral ekki með jafn- mikluim glæsibrag og tízkusniði, sem ljóð þessa meistara. Kvæði hennar eru útflúrslaus, orðayalið látlaust, en kröftugt og tildurs- laust. Þar er ósvikinn, sterkur tónn, er ratar beina leið að hjarta lesandans. Hún yrkir um ástina og þá skef jalausu örvinglun, sem hún fær valdið, og í kvæðum hennar hrópar hin frumstæða þrá konunnar eftir því að verða móðir. Myndir þær, sem þar er brugðið upp, eru einatt mjög raunhæfar. Skáldkonan talar máli heilagrar ritningar og þjóð- kvæðanna. “Noctumo” hennar hefist á þessa leið: “Faðir vor, þú sem ert á himn- um. Hví hefir þú glevmt mér? Þú mundir ávöxtinn í febrúar, þegar kjöt hans var rautt eins og roðasteinn. Síðu minni blæðir einnig, og þú skeytir því engu.” I ljóðinu “Poema del Hijo” yrkir hún þannig í þýðingu sænska skáldsins Hjalmar Gull- bergs: “En son! En son! En son! Jag bad i vaka och dröm yiú dina famntag om en son, da in i marg och ben du lad mig skaka av helig eld fran hjassan och till tan.” í sjálfslýsingu hefir þessi skáldkona játað aðdáun sína á heilagri ritningu og kenningum hennar. Þar talar hún um ein- stæðingsskap sinn og áhrif þau, er hún hafi orðið fyrir frá þeim Dante, Tagore og rússneékum skáldum. Þar biður hún afsök- unar á skáldverkum sánum, sem hún hefir aldrei talið neitt aðal- ta[kmark sitt að skapa. “Lífsstarf mitt héfÍT verið að kenna og starf^ meðal barnanna minna. I tómstundum mínum kýs eg að dveljaist uppi á sveit við lestur og ritstörf. Eg er af bændafólki komin og finn til skyldl'eika við það. Trúin, jörðin og skáldskap- urinn er það, sem eg ann af al- hug,” segir hún. Gatoriela Mistral er fimta kon- an, sem hlýtur bókmentaverð- laun Nóbels. Hinar eru: Selma Lagerlöf (1909), Grazia Deledda (1927), Sigrid Undset Í1929) og Pearl S. Buck (1939).

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.