Lögberg - 06.03.1947, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGLNN 6. MARZ, 1947
&
fluttar símleidis til Washington,
a þá leið að allir fjórir stjórnar-
flokkarnir á Islandi væru and-
vígur því að herstöðvar fengjust
leigðar til langs tíma. Var einnig
minnst í svarinu á beiðni íslands
um upptö'ku í Sameinuðu þjóð-
irnar, er þá lá fyrir.
Málið var leyndarmá'l, þrátt
fyrir það, að flestir landar töl-
uðu um það frá byrjun, og voru
slíkar umræður bygðar á ýmis-
k°nar misskilningi. Íslendingar
voru að undirbúa sig undir
fvennar kosningar—bæjarstjórn-
urkosningar um alt landið í jan-
Uar, 1946, Alþingiskosningar í
Juní í fyrra. 1 andrúmslofti, sem
skapast í kosningabaráttum er
ekki hægt að ræða jafn eldfimt
naal og það sem kemur nokkurn
Veginn nálægt því að fjalla um
afsái landsréttinda í hendur er-
lends herliðs — hvað vinveitt
sem sú þjóð kann að vera sem
s^ndi herliðið. Lojtsins, í des-
embermánuði, 1945, gat Thor
^kors, sendiherra Islands í Wash-
mgton, fengið utanríkisráðu-
neyti Bandarí'kjanna til þess að
ganga inn á það, að málinu yrði
ekki frekar 'hreyft að sinni.
þvi miður var málið í þeirri
mynd, sem það kom fram í októ-
ker> 1945, ekki úr sögunni, þó
'Þ^tta yrði. Kommúnista-flokk-
^únn á íslandi — Sameininga-
úokkur Alþýðu-Sósíalistaflokk-
^úin, eins og hann hefir kallað
s% síðan 1938 — hélt málinu vak-
ar|di, alveg eins og Bandaríkin
v®ru enn að bíða eftir nýju tæki-
faeri að fara fram á nákvæmlega
sömu beiðnina. Það reyndist alls
ekki vera tilfellið, en ekki var
kaegt að ræða málið alhliða í
rolegheitum. Milllríkjasamning-
ar eru etoki gerðir á útifundum,
°g sérstaklega á undirbúnings-
stigi slíkra mála verður að fara
með ýms atriði þeirra eins og
farið er með önnur trúnaðarmál.
Bandaríkin lærðu ýmislegt af
reynslunni eftir að þeir fengu
^otta hálf-óákveðna svar frá Is-
tandi x nóvember, 1945. Hvað
fvipuð fnál snerti, þó voru samn-
'ugaumleitanir við Portúgal út af
öframhaldandi flugvéla-lending-
arrettindum á Aazor-eyjunum
serstatolega lærdómsríkar. En
það virtist bara ekki vera hægt
Qð koma með nýjar áætlanir í
samningaum<leitunum við Island.
Islenzk yfirvöld sögðust ekki
rætt málið eins og stæði.
Eosningabaráttur voru í aðsigi—
®janstjórnarkosningar í janúar,
Alþingiskosningar í júní. Flokks-
eiðtogar höfðu öðru að sinna.
T^úis, seint d fyrra sumar,
tokst Bandaríkjunum að koma
erði að. Það var rétt um það
eyti að Alþingi Islands var
f^att saman, í júlímánuði, til
þess að ákveða formlega hvort
^land ætti að leita upptöku 1
Sameinuðu þjóðirnar.
Kommúnista-filokkurinn hafði
k0sningamál úr svo-kölluðu
herstöðvamálinu”, þrátt fyrir
Puð, að þegar kom fram á dag-
það sem Bandaríkin vildu,
þa voru það alls ekki herstöðvar
f0111 komu til greina, eins og
.^®1 verið haustið áður — heldur
ramhaldandi lendingar-réttindi
a dslenzkum flugvelli, alveg eins
°g á portúgölskum velli í Azor-
eyjum.
Pað er hægur leikur að spila á
Vl ^væma strengi ættjarðarástar
°g klæðast skykkju föðurlands-
verndara á pólitískum vettvangi.
j “Htið verk og löðurmann-
gt að ausa úr sér skömmum
agsdaglega yfir þjóð, sem hafði
gert samning sem var sannarlega
andi í hag — herverndarsamn-
lngmn frá 1941, sem enn var í
gudi, 0g sem BandaríMn vildu
nema sem fyrst, hefði tækifæri
a^a gefist að ræða það mál skyn-
Sarn e^a við íslenzka aðilja.
Kommúnistar unnu efckert á,
ra t fyrir stóryrði sín. Þar sem
eir náðu auknu fylgi í bæjar-
jornarkosningunum, þá var það
ega vegna þátttöku þeirra í
J^f11 marg-umtöluðu “nýsköp-
l atvinnuvega. I Alþingiskosn-
gunum stóðu þeir alveg í stað
Business and Professional Cards
CHRISTMAS SPECIALS!
AII photos taken on approval with no obligation
— 4 Poses To Choose From —
SPECIAL PRICES Phone or Wriie for Appoiníment
UNIVEUSAL STUDICS
292 KENNEDY ST. (Jusl Norih of Poriage) — Phone 95 653
WEDDING AND BABY PHOTOS — OUR SPECIALTY
— þeir ihöfðu náð tíu sætum eftir
að kj ördæmislaga'brey tingarnar
voru gerðar sumarið 1942, og
þeir héldu þeim tíu sætum; Sjálf-
stæðisflotokurinn átti tuttugu
sæti á þingi, og fengu þeir aftur
tuttugu; Alþýðuflokkurinn, sem
hafði átt sjö sæti, náði níu;
Framsókn tapaði tveimur, náði
þrettán sætum í fyrra sumar.
Það var þetta nýkjörna þing,
sem kom saman í júlí í íyfra,
kvatt til aukafundar, til þess að
ræða upptökubeiðni íslands i
Sameinuðu þjóða félagsskapinn.
Einn nýkjörinn þingmaður Al-
þýðuflókksins, Hannibal Valdi-
marsson skólastióri á Isafirði,
fcom með breytingartillögu þar
sem farið var fram á það, að
heimta að alt herlið Bandaríkj-
anna færi rakleiðis — þá um þús-
und manns — til þess, eins og
ihann komst að orði, að Island
gæti, sem alfrjálst ríki, tekið
sæti sitt á befck með öðrum ríkj-
um heimsins í félagi Sameinuðu
Þjóðanna. Þetta innskot hans
átti ekkert við aðal málið að
gera. Uppsögn á herverndar-
samningnum frá 1941, og endan-
lieg túlkun ýmsra ákvæða þess,
var mál sem kom eingöngu tveim
aðiljum við — Islandi, annars-
vegar, og Bandaríkjunum, hins-
vegar. Breytingartillagan var
feld. Atkvæðin voru greidd, eins
og sjálfsagt var, um það eina mál
sem var á dagskrá: átti Island að
biðja um upptöku í Sameinuðu
þjóðirnar, eða ekki? Og tilaga
þess efnis að þeirri beiðni yrði
fcomið á framfæri var samþykt.
Um leið fcomu tíu Alþingismenn
Kommúnista-flotoksins með til-
ilögu, sem þeir sögðust ætla að
bera fram. Hún var sú að heimta
brottför amerísks herliðs þá þeg-
ar. Ölafur Thors, forsætis- og
utanríkisráðherra, gaf Alþingi
yfilýsingu á þá leið að 'hann væri
að byrja á samninga-tilraunum
við Bandaríkin um uppfyllingu
allra ákvæða herverndarsamn-
ingsins frá 1941, með það fyrir
augum að sá samningur yrði
lagður niður. Þá var aukaþing-
inu slitið.
Stöðugt, frá því í október, 1945,
hélt Kommúnista-flofckurinn á-
fram áróðri sínum gegn Banda-
ríkjunum. Aldrei kom Þjóðvilj-
inn út, nema hann birti svæsnar
skammargreinar um Bandaríkin
— um kúgun atvinnulýðsins, kúg-
un kynflokka, yfirdrotnun auð-
valdsins, ássélni og ágengni í
utanríkismálum. Þannig var
myndin, sem lesendur Kommún-
ista-málgagnsins í Reykjavik
'fengu daginn út og daginn inn í
Þjóðviljaum. Eg sá Kommúnista
blöð annarsstaðar frá um þess-
ar mundir — “línan” var alveg
eins, alla leið frá Moskva til New
York. Það gerði engan rnun
hvort maður las ‘Ny Dag’ frá
Stokkhólmi, ‘Land og Folk’ frá
höfn, ‘Friheten’ frá Oslo, ‘Þjóð-
viljann’ í Reykjavík, þýðingar úr
‘Pravda’ eða ‘Isveztia’ frá
Moskva, eða ‘Daily Worker’ frá
New York. Klærnar á þessu rán-
dýri — Bandarákjimum — voru
altaf jafn gráðugar og ógurlegar.
Og þá sem oftar, gat ‘Daily
Worker’ í New York lagt ‘Þjóð-
viljanum til lesmál —grínteikn-
ing, notaða á framsíðunni, þar
sem heimsveldissinnar í Wall
Street voru myndaðir eins og
vant er, í líkingu velklædds karl-
manns, spifcfeitum, með pípu-
hatt á höfði og stóran vindil í
munni sér, sitjandi ofan á vernd-
ablausa litla náunganum, Islandi,
'kreppandi hnefann, um leið og
hann segir: ‘Við tökum okkur
'bækistöðvar!’
Það var kannske varla von á
góðum árangri þar sem slíkt and-
rúmsloft ríkti. En samt tókust
samningar þegar Alþingi var
kvatt saman til aukafundar á ný
í septembermánuði í fyrra. Hugh
C'umming, yfirmaður Norður-
Evrópu deildar utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna, fcom til
Islands í júlí, og ræddi við ís-
lenzka aðilja í undirbúning samn-
ings-uppkasts. Hann hefir oft
átt við viðtovæm og erfið milli-
ríkjamál áður. Það var hann
sem fór til Stokkhólms síðari
Wiuta vetrar, 1944, og gerði þá
samning við Svía, sem enginn
vissi um fyr en stríðið var búið.
Njósnarar Þjóðverja og Japana
eltu hann um götur Stokkhólms.
En árangurinn sem náðist 1 þessu
starfi hans var sá, að Bandaríkin
fengu hernaðarflugvöll norðar-
lega í Svíþjóð — og þóttust Svíar
enn vera hlutlausir d styrjöldinni.
Frá þeim flugvelli, undir forystu
Bernt Balchens offursta, var
nánu sambandi haldið við mót-
stöðuöflin meðal Norðmanna og
Dana er börðust í leyni á móti
Nazistum, þrátt fyrir það, að
Nazistar réðu yfir löndum þeirra.
Nú var alveg horfið frá þeim
skilmálum er fylgdu samninga-
umleitunum er byrjuðu fyrir
réttu ári áður. Ekki var farið
‘fram á herbækistöðvar. Ekki var
óskin sú, að fá leigða til langs
tíma þrjár herbækistöðvar á Is-
landi. Og breyting sú kom ekki
eingöngu vegna pólitískra erfið-
leika á Islandi, ekki bara vegna
þess að íslenzk yfirvöld sögðu
að þeir gætu ekki gengið inn á
veitingu á réttthdum til þess að
halda uppi herstöðvum á landinu.
Hefði sú neitun komið fram
skýrt og skorinort á sínum tíma,
þá hefðu Bandaríkin kvatt Is-
lland algerlega — etoki er mmsti
vafi um það — og valið sér þá
erfiðari 'kostinn, að nota flugvöll-
inn á Azor-eyjum sem viðkomu-
stað á flugleiðinni til Evrópu.
Sú leið er mi'klu lengri. Stríðs-
árin hafa sannað það að Island
á sér mi'bla framtíð, sem flug-
miðstöð milli heimsálfanna. En
það voru ástæður út í heirnin-
um, sem ihöfðu Mka miki'l áhrif á
það breytta viðhorf, sem kom í
ljós þegar samninga-umleitanir
byrjuðu á ný milli amerískra og
íslenzkra aðilja. Rússar höfðu
kvartað sáran um það að Banda-
ríkin væru að reyna að um-
kringja sig bækistöðvum. Þeir
sögðu þráfaldlega í Moskva út-
vörpum og blaðagreinum, og á
fundum öryggisráðsins, að
Bandaríkin væru áfram með her-
lið á Islandi í leyfisleysi, og að
ameríkanar óskuðu eftir bæki-
stöðvum þar til þess að ögra
Rússlandi. Nú var alls ekki beð-
ið um bækistöðvar á íslandi — í
staðinn var farið fram á það, að
herverndarsamningurinn frá 1941
félli úr gildi, og að herlið, þar af
leiðandi, hyrfi af landinu. Það
eina, sem farið var fram á hvað
viðkom réttindum Bandaríkjun-
um til handa voru lendingarrétt-
indi fyrir herflutningarvélar á
Keflavíkur-vellinum, d sambandi
við hernám Þýzkalands. 9Mkt
leyfi er efcki veitt eingöngu
Bandaríkjunum til þægðar. Her-
nám Þýzkalands er ekki Banda-
rískt fyrirtæki. Það er sikuld-
binding, sem Bandaríkin gengu
inn á með Rússum, Bretum og
Frö'kkum. Það er ein aðal skuld-
bindingin í sambandi við þann
félagsskap, er myndast hefir í
loka-þáttum stríðsins, aukið síð-
an að styrjöldinni lauk — Sam-
einuðu þjóðirnar. Og nú er Is-
land meðlimur Sameinuðu þjóð-
anna.
ísland, með 130,000 íbúum,
hefir hvorki fjármagn né æfðan
mannskap til þess að reka einn
meðal stærstu flugvöllum heims-
ins. Bandaríkin lofuðu þá, í
samningnum, sem samþyfctur var
af Alþingi Islands í október í
fyrra, að hjálpa til með að starf-
rækja flugvöllinn, með borgara-
legu liði, er myndi hlýða íslenzkri
lögsögn, og sem háð yrði öllum
íálenzkum lögum og reglum.
Flugvöllurinn, er bygður var til
til stríðsnota með amerísku fé
og af amerískum mannskap, varð
strax skýlaus eign íslenzka rrkis-
ins. Ráðstöfun sú var nú ekki
nema að efna loforð, sem gefið
hafði verið 1942. Flugvöllurinn
var bygður á íslenzkum klöppum
og hrauni, og ekki var hægt að
vefja honum upp og fara með
hann af landinu. En til þess að
hjálpa með starfrækslu vallarins
í þágu 'þeirra afnota, sem Banda-
ríkin þurftu, þá var 'það loforð
gefið að borgaralegt starfslið
fcæmi þangað í stað flugliðsins,
sem starfað hafði í hernum. Sjó-
herinn er nú algerlega farinn af
landinu; leyfar hersins er nú
verið að flytja burt Snemma í
janúar var American Overseas
Airlines veitt fulltingi sem full-
trúi Bandaríkjastjórnar 1 þeim
Muta af rekstri vallarins, sem
Bandaríkin skuldbinda sig að
annast. Flotastöðin í Hvalfirði
er fyrir löngu lögð niður, og
bensíngeymana, bryggju og
'bragga þar, 'keypti íslenzka ríkis-
stjórnin fyrir rúmum tveimur
vifcum.
Hugmyndir um bækistöðvar í
Hvalfirði og við Fossvoginn eru
löngu horfnar úr sögunni. I stað-
inn fyrir herstöð við Keflavík,
þá er þar ‘civil’-flugstöð, íslenzk
ríkiseign undir umsjá íslenzks
flugvallarstjóra, þar sem Banda-
ríkin halda upþi ‘civil’-starfsliði
í sambandi við þær skuldbind-
ingar, sem hvíla á því landi í
þeim ráðstöfunum er sigurvegar-
arnir í styrjöldinni hafa gert í
þágu friðarins. Samningurinn
gildir í.fimm ár, og ef honum er
sagt upp að því tímabili loknu,
þá er etoki hægt að halda honum
<í gildi lengur en í sex og hálft
ár.
Margt hefir verið erfitt upp að
þessu í framkvæmd þessa samn-
ings, af skiljanlegum ástæðum.
Flotokur, sem sagði sig úr stjórn
vegna samningsins hefir sjálf-
sagt, gert alt í sínu váldi til þess
að torvelda hlutina. En burt séð
frá því, þá Ihafa verið og verða
áfram ýmsir erfiðleikar á braut
íslands. Ekki báðu Islendingar
um það, að stórveldin færu að
skifta sér af ‘einbúanum’ lengst
norður í Atlantshafi. Islending-
ar — frá því þeir 'hættu að myrða
hver annan á söguöldinni — hafa
aldrei viljað annað en það, að
búa í sátt við náungann. Þeir
hafa viljað halda uppi þeirri sér-
stæðu menningu, sem þeir hafa
skapað á þessu eylandi á umliðn-
um öldum. Þeir hafa viljað lesa
fornsögurnar, yrkja kvæðin sín,
fylgjast með straumi nútíma
bókmenta og lista, án þess að
glata arfinum dýrmæta, sem er
undirstaða allrar þróunar í þeirri
merkilegu menningu, sem Islend-
ingar eiga. Þeir hafa samrýmt
tæknilega menningu nútímans og
andlega arfinn, sem þeim hefir
hlotnast, og unnið það hlutverk
mæta vel. Stríðsárin hafa flutt
með sér geysi miklar framfarir
á Islandi, hvað tækni snertir.
Nú getur etokert land í heimi
verið virkilega einangrað héðan
af, og állra sízt Island. Islending-
ar vita þetta og viðurkenna það
í orði og verki að miklu meira
leyti en margar stærri þjóðir
hafa gert. Island var, til dæmis,
fyrsta land í heimi að borga til-
lag sitt til hjálparstarfsemi Sam-
einuðu þjóðanna — UNRRA. Is-
land var talið, síðari stríðsárin,
ekki meðal ‘United Nations’ —
þeir fram'kvæmdu ekki það
hneyksli að segja Jajönum og
Þjóðverjum stríð, á hendur, þar
sem þeir áttu hvorki her né flota,
bara til þess að fá ‘aðgöngumiða’
að San Francisco ráðstefnunni —
heldur var ísland ta'lið með
‘Associated Nations.’ Þau voru
‘vinveittar smáþjóðir er hefðu
veitt bandamönnum hjálp í
stríðinu’. Sem slík þjóð, 'þá var
íslandi <boðin þátttaka í ýmsum
alsherjar samtökum stærri
heimSþjóða. Island tók þátt í
stofnun UNRRA, í stofnun al-
þjóðabankans, í matvæla- og at-
vinntumála-ráðstefnum, í undir-
búningi alþjóða-samþykta í flug-
málum, upprunalega á Chicago
ráðsteöiunni, og seinna meir í
Montreal og Dublin.
Nú á ísland sæti í Sameinuðu
þjóðunum, og það sannarlega
með réttu. Island lagði á sig
tórnir í manntjóni og í stöðugri
hættu, að skaffa Bretum mat-
væli — fisfcmeti — á stríðsárun-
um. Þá var Hjálmar, eldri bróð-
ir minn, alt í einu orðinn þessi
mikli fiskikaupmaður norður á
(Framh. á bls. 7)
H. J. STEFANSSON
TAfe. Accident and Hcalth
Insurance
Representing
TiIE GREAT-WEST LIFE
ASSURANCE COMPANY
Winnipeg, Man.
Phone 96)144
DR. A. V. JOHNSON
Dentiat
506 SOMERSET BUILDINO
Telephone 97 9SZ
Honie Telephone 202 398
Talsími 95 826 Heámilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœðingur í aupna, eyrna, nef w.
og kverka sjúkdóm u m.
215 Medical Arts Bldg.
Stofutími: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
BérfræOingur í augna, eyma,
nef og hdlsafútcdómum.
416 MEDICAL ARTS BLDO
Oraham and Kennedy St.
Skrlfstofusími 93 851
Heimaslmi 42 154
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
Islenxkur lyfsali
Fölk getur pantaC meOul og
annaC meC póstl.
Fljðt afgreiOsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur líkklstur ogr annast um tlt-
farlr. Allur tStbönaOur sfl. beatl.
BJnnfremur selur hann ailskonar
mlnnisvarOa og' log-steina.
Skrifstofu talsiml 27 824
Helmllis talsími 26 444
Phone 97 291 Eve. 26 002
J. DAVIDSON
Real Estate, Financial
and Insurance
ARGUE BROS. LIMITED
Lombard Bldg., Winnipeg
DKINCE//
MESSENGER SERVIOE
ViC flytjum klstur og tðskur,
hösgÆgrn ör smwrrl IbúOum,
og hösmuni af öilu tssi.
58 ALBBRT ST. — WINNIPBSQ
Sfml 25 888
C. A. Johnaon, lí«r.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDINO
WinnlpoK, Canada
Phone 49 469
Radlo Service Spsciallsts
ELECTRONIC LABS.
H. THORKBLBOH, Prop.
Ths most up-to-dat* Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPBQ
Q. F. Jonasson, Prea. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 8COTT BLOCK SlMI 95 22T
Wholetale Distributora of
FRHJ8H AND FROZEN FISH
Manitoba Fisheries
WINNIPEQ, MAN.
T. BercovUch, framkv.st).
Vsrsla 1 heildaðlu meO nýjan oc
frosinn flsk.
808 OWBNA 8TREET
Hkrifst.sfml 21 365 Helma IS 412
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY STREET
(Beint suOur aí Banningr)
Talstini 30 877
VlCtalstfml 3—5 eftlr hidearl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk. Man.
Office hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Offioe 26 — Res. 230
orflce Phone Res Ph-me
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
526 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m.—5 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDiNQ
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEQ
DR. J. A. HILLSMAN
Burgeon
308 MEDICAL ARTS BLDQ
Phone 97 329
Dr. Charles R. Oke
Tannlœknir
For Appointments Phons 84 808
Offlce Hours 8—6
404 TORONTO GEN. TRU8TB
BUILDINQ
283 PORTAQE AVB
Winnlpeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 55&
For Quick ReHalíle Servioe
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
808 AVENUE BLDQ WPQ.
Faateigrnasalar. Leigja hös. Ot-
vega penlngaldn o* eldsftbyrgO.
bifreiOaö.byrg-0, o. s. frv.
PHONE 97 688
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOtngar
209BANK OF NOVA 8COT1A BQ.
Portage ogr Qarry St.
Stml 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
BritUh QuaUty Fish Netttng
60 VICTORIA ST., WINNIPBQ
Phone 18 211
Uanager T. R. THORVALDtOH
Four patronage wlll be appreolated
C A N A D I A N FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Dtmotar
Wholeeale Dtstributors of Fnsh
and Frozen Flsh.
111 CHAMBBRS 8TREJBT
Office Ph. 26 21« Rea. Ph. 78 *tT
HHAGBORG VI
FUEL CO. n
DlAl 21 331 21 331