Lögberg


Lögberg - 24.04.1947, Qupperneq 5

Lögberg - 24.04.1947, Qupperneq 5
5 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. APHÍL, 1947 ÁHUGAMAL UVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON ELISABETH RÍKISERFINGI LÖGALDRA Elizabeth prinsessa Á mánudaginn 21. apríl náði Elizabeth prinsessa lögaldri. Sennilega hefir ekki veri skrif- að eins mikið um nokkra unga stúlku eins og þessa á umliðnu ári, bæði í blöðum og tímaritum; hún er nú komin á giftingaraldur og fólk virðist hafa ósegjanlega mikla ánægju af því að geta upp á því, hvern þessi fallega og tígulega prinsessa muni kjósa sér fyrir eiginrp^nn; kemur flest- um saman u-m það að hinn glæsi- legi Philip Mountbatten, prins frá Grikklandi, muni verða fyrir valinu. Ekki kemur til mála að hún giftist öðrum en þeim, er brezka þjóðin og stjórnarvöldin gera sig ánægð með' hún á engin einkamál eins og aðrar stúlkur, al-t brezka veldið hefir vakandi auga á því, hvern hún lítur hýru auga. ÞJÓÐKUNN FORl Síðastliðinn laugardag lézt að heimili dóttur sinnar í bænum Colbourne í Ontario, ein af víð- kunnustu og ágætustu dætrum Manitobafylkis, Mrs. Edith Rogers. Hún var fædd að Nor- way House hér í fylkinu, dóttir D. C. McTavish, er þar stjórnaði verzlun fyrir Hudson’s Bay, fé- lagið. Langafi hennar var Sir George Simpson, umboðsmaður fyrir Ruperts Land. Faðir henn- ar lagði grundvöll að margri þeirri nýbreytni í verzlun og við- skiftum, sem menning nútímans getur ekki án verið. Að móður sinni látinni fluttist Mrs. Rogers til Austur-Canada til að afla sér þeirrar mentunar, er faðir henn- ar vissi að hún átti ekki kost á í því umhverfi, sem hún fæddist; 'hún var gædd fjölþættum gáf- um og kom það glögglega fram í æfistarfi hennar hve vel og samvizkusamlega hún færði sér námið eystra í nyt; hún var eins og þegar hefir verið sagt, dóttir Manitoba og þar átti það fyrir henni að liggja að verja mestum starfskröftum -langrar og gæfu- samrar æfi. Mrs. Rogers kom til Manitoba á ný árið 1897 og giftist árið eftir R- A. Rogers, miklum dugnaðar °g athafnamanni, er grundvall- aði Crescent Creamery, mjólkur- sölu og smjörgerðarfélagið al- kunna hér í borginni. Eins og kunnugt er, er prinsess- an um þessar mundir á ferðalagi með foreldrum sínum í Suður- Afríku og var stödd í Capetown á afmæli sínu. Eins og vænta mátti var þar mikið um dýrðir um land alt og bárust prinsess- unni afar mikið af dýrmætum gjöfum. Stjórn Suður-Afríku gaf henni 87 demanta, sem eru ta-ldir $100,000 virði I lok hátíðarinnar flutti Eliza- beth prinsessa stutta ræðu, er út- varpað var um alt brezka veldið og sagði meðal annars. “Eg kunngeri það ykkur öllum, að æfi mín, hvort heldur hún verð- ur skam-mvinn eða löng, skal verða helguð þjónustu yk-kur, hvers um sig, og þeirrar voldugu þjóðakeðju, sem við öll teljumst til.” ISTUKONA LÁTIN Mrs. Ediih Rogers Eigi leið á löngu þar til Mrs. Rogers fór að vekja almenna at- hygli á sér fyrir sterkan áhuga á stjórnmálum og almennum vel- ferðarmálum, lagði hún sig brátt í líma um að bæta kjör barna og bágstaddra kvenna, og þeirra annara, -er höl-lum fæti stóðu í lífsbaráttunni. Hún fyl-gdi liberal stefnunni eindregið að málum og með það einkum og sér í lagi fyrir augum að hrinda í fram- kvæmd þeim viðfangsefnum, er hú-n heitast bar fyrir brjósti, mun hún hafa ráðið það af að bjóða sig fra-m til fylkisþings í almennu kosningun-um 1920; hún Féll úr 4,500 metra hæð fallhlífarlaus 1 marz 1944 gerðist atburður, sem er lygilegri en versti eldhús- reyfari. Því að hver fengist til að trúa, að nokkur maður kæmist lífs af eftir 4500 metra hrap — fallhlífarlaust Það var þetta sem gerðist í Ruhr-héraði vorið 1944. Djúpur snjór var enn á jörðu, og það var hann, sem bjargaði Alkemade Sersjant frá bráðum bana, er hann stökk út úr Lancaster-flug- vél sinni, sem var að brenna. Alkemade kaus fremur skjótan dauðdaga én að brenna í hel. En hann vaknaði til lífsins þremur tímum síðar. N. S. Alkemade, sem er garð- yrkjumaður frá Leicestershire, var þá 21 árs og skotliði í brezka flughernum. Þetta var 14. árás- arferð hans og henni var heitið til Berlín. Þar var sprengjunum varpað og síðan haldið heim á leið. Nóttin var heið en ekki tunglsljós. Al-t í einu hófst skot- hríð á flugvélina. Hún hristist og hallaðist á stjórnborða, rétti sig aftur en skothríðin hélt á- fram. — Tvær 20 mm. kúlur hittu skotturninn og Alkemade særðist á læri. Skot kom í bensínleiðslu, svo að eldsneytið spýttist út og kviknaði í því. Milli blossanna í skotturninum eygði hann þýzku árásarvélina. — Hann skaut á hana úr fimmtíu metra færi án þess að skeyta um logana, sem léku um hann. Hitinn varð óþol- andi og flugvélin fékk slagsíðu, en nú sá hann hvar logarnir stóðu út úr vinstri hreyfli þýzku vél- arinnar. Hann opnaði turninn og inn & ganginn til að ná í fall- -hlíf sína, en þá var kominn eldur í hana. — Nú er úti um mig! hugsaði hann. Og svo mintist hann þess, að hann mundi missa af næsta orlofinu sínu, en þá hafði hann ætlað að gifta sig. Jakkinn og brækurnar voru farin að brenna og hann var að kafna í reyk. Án frekari umhugsunar fleygi hann sér út. Hann fann ekki til ótta. Vonaði aðeins að þetta mundi taka fljótt af. Hann var alveg rólegur, eins og hann gerði sér ekki -grein fyr- ir hvað væri að gerast. — Kyn- , legt að dauðinn skuli vera svona, -hugsaði hann með sjálfum sér, — þetta er alls ekkert óttalegt. Svo sortnaði honum fyrir aug- um. Þegar hann opnaði augun aftur sá hann stjörnur uppi yfir sér. Þetta var þremur tímu-m síðar. náði kosningu með miklu afli at- kvæða og var fyrsta konan, sem sæti átti í fylkisþin-ginu í Mani- toba. Hún sat á þin-gi í tólf ár; inti þar af hendi margvísleg nytja- og þjóðþri-fastörf, sem lengi halda minningu hennar á lofti, og með hinni prúðmann- legu en jafnframt einarðlegu framkomu sinni, jók hún mjög á virðuleik þingsins í heild; í heimsstyrjöldunum síðustu vann Mrs. Rogers að því nótt sem nýt- an dag að bæta kjör heimkom- inna hermanna og fjölskyldna þeirra; hún var gædd frábærum skipulagningar hæfileikum, þar sem heili og hjartalag. störfuðu saman í hinu fegursta samræmi. Á dögum fyrri styrjaldarinnar var Mrs. Rogers kosin forseti alsherjar Rauða Kross samtak- anna í Manitoba, auk þess sem hún g-egndi mikilvægum embætt- um í öðrum félögum, er að al- mennings heill unnu. Lík Mrs. Rogers var flutt til Winnipeg og jarðsett í St. John grafreitnum, þar sem rnaður hennar beir beinin. Með Mrs. Rogers er gengin grafarveg mikilhæf og ástúðleg kona, er fórnaði langri og lit- brigðaríkri æfi í þjónustu Mani- tobafy-lkis, þar sem hún fyrst leit dagsljósið., Læknir segir álit sitt um bænir fyrir sjúkum Hvert er þitt álit á'að biðja fyrir sjúkling, sem þjáist af al- gjörlega ólæknandi sjúkdómi? A að biðja fyrir áframhaldandi lífi þess sjúklings, sem alls ekki víll lifa áfram? Læknir svarar: Sem læknir vil ég svara því, að,ég er viss um, að bænin getur hjálpað bæði ætt- ingj-um hins sjúka og einnig þeim, er þjáist. — jafnframt vil ég taka það fram, að ég lít ekki á bænina eingöngu sem lækn- ingameðal. Óteljandi Vísinda- menn læknifræðinnar hafa ver- ið sem verkfæri í hendi Guðs, og vér getu-m nú læknað marga þá sjúkdóma, sem fyrir fáum árum voru taldir ólænandi. Slíkar uppgötvanir sem radium, insulin, o-g sulphoni lamilles og penicill- in, hafa breytt örlögum margra dauðadæmdra sjúklinga. Þar af leiðandi legg ég ríka áherzlu á að bæði lyf- og skurðlækningar séu notaðar til hjálpar út í yztu æsar. Og þegar þessu til viðbót- ar kemur trúin og traustið ,sem ■hver kristinn maður á að eiga, og sem oftast skapast fyrir bæn, þá er ég viss um, að öld krafta- verkanna er ekki liðin hjá. Eigi að síður eru sjúklingar til, sem ekki er hægt að lækna með þeirri þekkingu lænisfræð- innar, sem vér nú höfum yfir að ráða. Hvert er svarið við slí-ku ástandi? Eg trúi, að rétt sé, að biðja samt fvrir bata siúklings- ins. Það eru dæmi, sem sanna, að augsýnilega ólæknandi sjúkdóm- ar hafa læknazt fyrir mátt bæn- arinnar. En það skyldi ávallt haft í huga, að ráð Guðs getur verið æðra en menn gruna)r, enda þótt það feli ekki í sér bata sjúklingsins. Vinir hins sjúka og sjúklingurinn sjálfur eiga að biðja um nálægð Guðs, þannig að jafnvel þjáningin geti leitt Alt var hljótt. — Hvað er þetta? sagði hann upphátt, eg er þá lifandi! Og hann furðaði sig ekki sérlega á því. Hann hafði ekki haft tíma til að skynja hvað gerst hafði. Hann reyndi að hreyfa sig. Settist upp og reyndi svo að standa á fætur. En hægra hnéð vildi ekki bera hann. Hann sett- ist aftur og skimaði kringum sig. Snjórinn kringum hann var rúmur meter á dýpt. Hann skildi það ekki fyr en síðar, að það var snjórinn, sem hafði bjargað honum. Og svo nokkrar sveigjanlegar furugreinar, sem fyrst höfðu tekið af honum fall- ið. Hann hafði fengið sár á höf- uðið, er hann rakst á greinarnar. Buxnaskál-marnar voru brunn- ar af honum. Flugstígvélin horf- in. Og ekki nema slitur eftir af björgunarvestinu og leðurjakk- anum. Hann var brunninn á úln- liðnum og andliti og blæddi úr. Hann mjakaði sér áfram nokkra metra og út úr skógar- jaðrinum. Þar var aðeins 15 cm. snjór. Lengra komst hann ekki. Svo tók hann blístruna sína og blés og blés þangað til hann fanst. Hann var spurður í þaula á spítalanum og vitanlega vildi enginn trúa sögu hans. Þjóðverj- ar heimtuðu að hann segði hvar hann hefði falið fallhlífina sína. En Alkemade hélt fast við skýr- ingu sína og Þjóðverjar héldu að hann hefði grafið hlífina, og gerðu leit að henni en fundu ekkert. Sagan hefir verið stað- fest af Þjóðverjum og er nú við- urkend sönn af brezkum hernað- aryfirvöldum og -hefir verið skráð í annála brezka flughers- ins -meðal margra annara stað- festra atburða, er engir mundu trúa ef þeir mættu ekki til. Og Alkemade lifir í bezta gengi og er nú fyrir löngu búinn að gifta sig og ræktar kálmeti og ávexti í gróðrarstöðinni sinni í Leicester shire. —Fá-lkinn. til blessunar á einhvern hátt. — sett á stofn árið 1687, eða fyrir Þjáningin verður oft til þess að 255 árum. opna manninum nýjan heim, sem ætíð er hulinn þeim er aldrei þurfa veg þjáninganna að ganga. (Kirkjublaðið) — SMÆLKI — Um það bil þrír fjórðu hlutar þeirra óhreininda, sem safnast á gluggarúður, safnast á þær að innanverðu. “Og þér neitið að sverja, að þessi hlutur, sem kærandinn hef- ir verið barinn með, sé hests- skeifa?” “Hvernig ætti eg að geta vitað, hvort það er hestsskeifa eða merarskeifa?” “Herra/dómari, auðvitað stöðv- aði eg ekki, þegar lögregluþjónn- inn veifaði til mín hendinni. Eg vil að þér skiljið, að eg er ekki þess konar stúlka.” -♦■ Elzta verzlunarfyrirtæki í eigu fjölskyldunnar, er stofnaði Bandaríkjunum, sem enn er í það, heitir Perot Malting Com- pany og er í Fíladelfíu. Það var ASHPHALT SHINGLES, INSUL BRIC-SIDING • A Large Selection of Attractive Colours and Designs ESTIMATES GIVEN Chain Link Stucco Netting and Fencing 1 in. mesh and 1% in. mesh 14 and 15% gauge wire Rolls 36 in. to 72 in. by 100 ft. long Inquire for Estimates on Asphalt Tile Flooring. (ANADIAN HOME IMPROVEMENT (0. 347 Notre Dame Ave. Phone 24 403 PLAY SAFE! Store Your Fur and Cloth Coats in Perth’s SCIENTIFIC STORAGE VAULTS • SAFE from MOTHS • SAFE from FIRE • SAFE from THEFT • SAFE from HEAT For Bonded Driver Phone 37261 Perth’s 888 SARGENT AVE. The Swan Manufacturing Company Manufacturers of SWAN WEATHER STRIP Halldor Methusalems Sjwan Eigandi 281 James St. Phone 22 641 CITY HYDRO RAFÞJÓNUSTA • Lágt verð • Ábyggileg Leiðið það inn í yðar nýja heimili, búð eða verksmiðju . .. Símið 848 124 "CITY HYDRO er yðar eign - notið það” Verzlunarmennlun! Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf- ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól- arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn- um og konum fer mjög vaxandi. Það getur orðið ungu fólki til verulegra hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn- lega eða bréflega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. THE COLUMBIA PRESS LTD. COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.