Lögberg - 03.07.1947, Blaðsíða 8
3
LÖGBERG, FDViTUDAGINN 3. JÚLÍ, 1947
/
Or borg og bygð
íslenzkir sjúklingar, sem liggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra, eru
vinsamlega beðnir að síma Mrs.
George Jóhannesson, 89 208, ef
æskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birt'að tilstuðlan Djákna-
nefndar Fyrsta lút. safn.
4
ÞAKKARORÐ
Innilega þakka eg öllum ís-
lenzkum vinum mínum h é r n a
m e g i n hafsins, er sendu mér
hlýjar kveðjur í tillefni af
fimmtugsafmæli mínu; eiga þar
hlut að máli fjöldi einstaklinga,
mörg félög og vestur-íslenzku
vikublöðin.
Stjórn þjóðræknisfélagsins er
eg mjög þakklátur fyrir fagurvrt,
skrautritað afmælis-ávarp. Þ á
þakka eg vinum mínum og sveit-
ungum í Norður-Dakota sérstak-
lega góðhug þeirra og rausnar-
lega afmælisgiöf.
Verð eg langminnugur alls
streymt frá íslenzku samferða-
þess hlýhuga. sem til mín hefir
sveitinni á þessum tímamótum
æfi minnar, og bið hinum mörgu
vinum mínum blessunar og vel-
farnaðar.
Grand Forks, N. Dakota, þ. 27,
júní 1947. .
Richard Beck.
Mrs. E. Haralds, frá Van-
couver B. C., lagði af stað aftur
heimleiðis s. 1. viku, eftir að
hafa dvalið hér um þriggja
vikna tíma í heimsókn til kunn
ingjanna.
♦
Mr. og Mrs. Valdi Jóhannes-
son frá Árborg voru í borginni
seinnipart fyrri viku. ,
Samskot í útvarpssjóð Fyrstu
lútersku kirkju:
H. B. Grímsson, Mountain, N.
D., 1.00, Björn Stefánsson, Akra,
N. D., 1.00. — Kærar þakkir.
V. J. E.
-f
Mr. George Jóhannesson
frá Edmonton, er nýlega
komin hingað til borgar ásamt
frú sinni og ungum syni. — Mr.
George Jóhannesson er flug-
kapteinn í þjónustu Canadian
Pacific Airlines, er nú hafa ný-
lega stofnað til reglubundinna
flugferða miili Winnipeg, The
Pas og Flin Flon; hann er sonur
frú Laugu Jóhannesson, 737
Alverstone Street hér í borg-
inni.
-♦
,Þeir blaðamennirnir Jón Helga
son og Árni Bjarnarson, sem
fyrir skömmu eru hingað komn-
ir frá íslandi, hafa dvalið norð-
ur í Nýja Íslandí frá því í lok
fyrri viku.
-♦■
Þær frú Ingibjörg Jónsson og
ungfrú Margrét Indriðadóttir úr
Reykjavík, brugðu sér norður að
Gimli á þriðjudaginn og dvöldu
þar fram á miðvikudagskvöld.
•♦■
ÞAKKARÁVARP
Hjartanlegar þakkir viljum
við færa öllum þeim, er sýndu
okkur hlýhug og heiður á 70 ára
giftingarafmæl.i okkar.
Við þökkum börnum okkar og
tengdabörnum fyrir alt, sem
þau lögðu á sig til að gera okkur
daginn sem ánægjuríkastan. Við
Þökkum Þjóðræknisdeildinni
„Báran!‘ fyrir þann heiður og
velvild, er hún sýndi okkur og
einnig gjafirnar og kveðjurnar
frá ,*Austra“ og kvenfélögunum.
Og síðast en ekki síst viljum
við þakka öllum þeim fjær og
nær, sem á einhvern hátt sýndu
okkur vinarþel, með heimsókn-
um, kveðjum og skeytum.
Þið veittuð okkur varanlega
gleði og gerðuð minningu dags-
ins ógleymanlega.
Guð blessi ykkur öll.
Svanfríður
og Kristján Kristjánsson
MESSUBOÐ
Fyrsta Luterska Kirkja
Guðsþjónustur hefjast að
loknu sumarfríi, súnnudags-
kvöldið 10. ágúst kl. 7.
-♦
Sunnudaginn 20. júlí verður
messað í Guðbrandssöfnuði við
Morden, fer þá fram ferming
ungmenna og altarisganga. —
Messa hefst kl. 2 síðdegis —
Standard Time. — ,
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson,
Arborg-Riverton prestakall
6. júlí: Geysir, messa kl. 2 e.h.
Arborg, íslenzk messa kl. 8 e.h.
— 13. júlí: Víðir, messa kl. 2. e.h.
Hnausa, messa kl. 8.30 e.h.
B. A. Bjarnason
Gefið í minningarsjóð Banda-
lags Lúterskra Kvenna:
Gunnlaugur Freeman $10.00,
í minningu um Elínu Jónsdóttir
frá Dagverðareyri, Eyjafirði og
Jóhönnu Jóhannsson, Selkirk;
Kvennfélagið Undína Hecla,
10.00, í minningu um Pétur
Hallgrímsson. Mr. og Mrs. G.
Thorleifsson, Langruth, 5.00.
Gefið til Sunrice Lutheran
Camp young Pioples organiza-
tion of First Luth Church, —
Winnipeg, $25.00. — Með inni-
legu þakklæti. ;
Anna Magnússon
Box 296 Selkirk, Man.
GIFTING
Þau Raymond Andert og
Donna Hope voru gefin saman í
hjónaband, í Lútersku kirkjunni
að Arnesi, 28. júní s. 1. Brúð-
guminn ar ef þýzkum ættum og
á heima í Winnipeg, en brúður-
in er dóttir Mr. og Mrs. Hope
að Arnesi. Donna er vel þekt
söngkona, hún söng um skeið
yfir „CKRC“. — Svaramenn
voru Harry Guðbjartsson,
Riverton og Emily Thorláksson,
Arnes. — Við hljóðfærið var
Mrs. L. Peterson. Mrs. Sigríður
Sigurgeirsson söng „ITl walk
beside you“. Séra Skúli Sigur-
geirsson gifti. /
Að giftingunni afstaðinni var
setið fjölment samsæti í skemti
húsi bygðarinnar. Fyrir minni
brúðarinnar mælti Metta Thor-
kelsson og Jónas Einarson fyrir
minni brúðgumans; einnig var
skemt með söng. Mrs. Th. Kar-
dal hafði veislustjórn með
höndum og afhenti ungu hjón-
unum peningagjöf frá bygðar-
búum. — Heimili þeirra mun
fyrst um sinn verða í Winnipeg.
Gefið í Minningarsjóð íslenzkra
Landnema í Norður Nýja ís-
landi:
Sigurður Victor Sigurðsson
$200.00, í minningu um ástríkan
föður, Stefán Sigurðsson, kaup-
manns að Hnausum í Nýja Is
landi, og í þakklætisskuld til
elskaðrar móðir, frú Valgerðar
Sigurðsson, sem nú er komin
yfir nírætt, ber ellina vel og
sver sig í ætt til íslenzku vík
inganna.
Frá Kvennfélaginu „Freyja“
í Geysir bygð $10.00, í minningu
um ÓÍínu Erlendson og Maríu
Sigurðson, látnar félagssystur.
Með innilegu þakklæti.
Guðrún A. Erlendson.
Arborg, Man.
-♦
Inlerlake Bus Line
fer sérstaka ferð til Lundar á
laugardaginn kemur vegna há-
tíðahaldanna, sem þar fara
fram á sunnudaginn. Langferða
bíll staðnæmist að Sargent og
Victor kl. 2 e. h. Standard
Time á laugardaginn, og tveim-
ur mínútum seinna að Sargent
og Banning. — Fargjald fram og
til baka $2.45 fyrir manninn;
komið verður til Winnipeg á
sunnudagskvöld.
Semjið um far við-B. E. John-
son, H. Danielsson og Heimir
Thorgrímsson. — Símanúmer
þeirra eru birt á öðrum stað hér
í blaðinu.
-♦
Á sunnudaginn kemur verður
séra Eric H. Sigmar settur inn í
embætti í Grundarkirkju í
Argyle, kl. 3 e. h. í athöfninni
taka þátt forseti kirkjufélagsins,
séræ E. H. Fáfnis, Dr. Haraldur
Sigmar, fyrrveranadi forseti, og
séra Eiríkur Brynjólfsson frá
Útskálum.
-♦
Þann 30. júní s. 1., áttu hin
mætu og vinsælu prestshjón í
Selkirk, þau séra Sigurður Ól-
afsson og frú Ingibjörg, 25 ára
giftingarafmæli; var mann-
margt á heimili þeirra, og þau
að makleikum hylt af hinum
mikla mannfjölda; voru þau í til
efni af þessum merka áfanga í
lífi þeirra, sæmd mörgum verð-
mætum minjagjöfum.
Lögberg flytur þeim séra
Sigurði og frú innilegar árnaðar
óskir og þakkar þeim gott og
giftudrjúgt samstarf.
♦
Nefndin, sem annast um und-
irbúning landnámshátíðarinnar
að Lundar á sunnudaginn kem-
ur, biður þess getið,, að aðgang-
ur að hátíðinni sé ókeypis.
Ameríski utanríkisráðherrann
Marshall fer oft í smá göngu-
ferðir á milli þess, sem hann
vinnur að skyldustörfum sínum.
Það er engin smáathygli sem
það vekur í Moskva, þegar hann
kemur þrammandi með fylgdar-
lið sitt á hælunum. Næst hon-
um gengur rússneskur vörður,
sem fylgir honum hvert sem
hann fer á meðan hann dvelur
á ráðstefnunni. Næst koma
nokkrir Ameríkanar, þá enn
nokkrir Rússar, og þar á eftir
stór hópur rússneskra barna.
-♦
— Ef þú ert í vafa um, hvað
þú átt að segja, segðu þá bara
sannleikann. — Mark Tvain.
-♦
Varðveitir
kj arnorkuleyndarmál.
Jean Marley O'Leary er engin
venjuleg kona, þ. e. a. s. hún
hafði alvegsérstakt tækifæri til
þess að fylgjast vei með kjarn-
orkurannsóknum Bandaríkja-
manna, sem kostuðu þá tvo
milljarða dollara. Hún var einka
ritari vísindamannsins, sem
stjórnaði rannssóknunum frá
því í september 1942 til ágúst-
mánaðar 1945. O’Leary er vel
kunnug þessari vísindagrein og
vitneskja hennar í kjarnorku-
fræðum orðin mjög mikil, en
hún varðveitir leyndarmálið.
4-
— Þér megið ekki fara með
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar
hundinn í bíóið, sagði dyra-
vörðurinn byrstur.
— O, hvað haldið þér að það
geti verið skaðlegt, þótt hann
sjái myndina hún er ekki einu
sinni bönnuð fyrir börn.
4-
Engisprettuplága.
Um þessar mundir er hin
mesta engisprettaplága í Algier.
Eru vágestir þessir þegar komn-
ir norður að Miðjarðarhafi. —
Álitið er eð faraldur þessi eigi
PLAY SAFE!
Store Your Fur and
Cloth Coats in Perth's
SCIENTIFIC
STORAGE VAULTS
• SAFE from MOTHS
• SAFE from FIRE
• SAFE from THEFT
• SAFE from HEAT
For Bonded Driver
Phone 37261
Perth’s
888 SARGENT AVE.
Hafið þér \
skrásetts í I
Alþjóðar
Byggkepni
Auka-
framlengin
frá 15. júní til
wwwvwwwyvwyyyww
MMMMAAMWA aamaam
Fáið eyðublað hjá korn-
hlöðustjóra eða búnaðar-
fulltrúa.
BREGÐIST VIÐ'
Sponsored by the'
Brewing & Malting
Industries of Canada
SPECIAL BIJS TO LIJNDAR
Lundar Diutnand Subilec July 6
A chartered bus will leave the Bus Depot at 9 o’clock Sunday
morning and leave Lundar about 10 o’clock in the evening.
The return fare is $2.00 and can be paid to the driver.
Phone the following for reservations:
H. F. Danielson Phone 38 528
B. E. Johnson Phone 87 987
H. Thorgrimson Phone 29 649
rót sína að rekja til óvenjulega
mikilla hita í Norður-Afríku.
4-
Hún hefir sama áhuga á karl-
mönnum og skattstjórinn. Það
eru fyrst og fremst tekjur
þeirra, sem hún hefir áhuga á
að krækja í.
-♦
Minning um Narvík.
Bretakonungur hefir ákveðið
r
að gefa Hákoni Noregskonungi
stýrishjólið af breska herskip-
inu „Warspite", sem átti giftu-
ríkan þátt í sigri bandamanna
yfir Þjóðverjum í sjóorustunni
við Narvík 13. apríl 1940.
Borgið Lögberg
• 4
-♦4-444-4-4.4-4-4-44-4-4
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á
þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
444444444444444
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyTst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaLdið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, enu vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNDSSON
HOLTSGATA 9, REYKJAVÍK
SEXTÍU ÁRA
LANDNAMSHATÍÐ
Haldin að Lundar, Man. 6. júlí, 1947
SKEMTISKRÁ
Fyrsli partur — Fyrir hádegi
10.30 Skrúðför — söguleg
11.15 Heiðursgestirnir taka sæti
11.30 Hátíðifi sett
1. O. Canada
2. Ávarp forsetans
3. Kveðjur og ávörp
4. Karlakórinn syngur
5. Kvæði Bergthor Emil Johnson
6. Álftavatnsbygð, ræða á ensku Paul Reykdal
7. Einsöngur Miss Ingibjörg Biarnason
8. Junior Choir syngur
9. Austurbygðin, ræða á íslénzku Skúli Sigfússon
10. Kvæði V. J. Guttormsson
11. Karlakórinn syngur
Annar partur — Eftir hádegi
Frá kl. 1—3 — Matarhlé. Á meðan verða íslenzkar glímur
og þjóðdansar sýndir.
Kl. 3 verður aftur tekið til við dagskrána.
1. Minni landnemanna, ræða Séra A. E. Kristjánsson
2. Einsöngur Miss Ingibjörg Bjarnason
3. Kvæði Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
4. Karlakórinn syngur
5. Einsöngur ......... O. Hjartarson
6. Kvæði Ragnar Stefánsson
7. Islenzkar menningarerfðir, ræða Dr. R. Beck
8. Junior Choir syngur ’
9. Ávarp gesta
10. Junior Choir syngur
11. Þakkarávarp forsetans
12. Karlakórinn syngur
Hornleikaraflokkur frá Morden verður allan daginn á staðn-
um og leikur við og við.
Heiðursgestir, sem heima eiga á Lundar verða sóilir heim
til sín, hinir beðnir að gefa sig fram við einhvern úr nefnd-
inni, en áríðandi að allir séu til að taka sitt sæti á iil-
settum tíma.
Þar sem ekki var hægt að vita um alla sem aðstoða við
sönginn, hefir nöfnum þeirra verið slept úr prógraminu,
en n úer hægt að geta þeirra. — Karlakórinn er undir stjórn
V. J. Guitormssonéir, en Miss Guilormsson aðstoðar vjð
hljóðfærið. — Unglingasöngflokkurinn er undir stjórn Mrs.
H. E. Johnson en Mrs. VictOr Boulanger aðstoðar við hljóð-
færið. — Gunnar Erlendsson leikur undir fyrir báða ein-
söngvarana.