Lögberg


Lögberg - 10.07.1947, Qupperneq 1

Lögberg - 10.07.1947, Qupperneq 1
Þúsundir gesta sœkja landnámshátíðina að Lundar 3,000 manns sóttu Lundarhátiðina samkvæmt útvarps og blaðafregnum Steikjandi sólskin allan daginn Það fór að vonum, að gest- kvæmt yrði að Lundar á sunnu- daginn var, því svo var það sögulegur atburður, sem þar var minnst, því þá hélt Álfta- vatnsbyggðin svonefnda de- mantsafmæli sitt, en þar lögðu íslenzkir frumhérjar grundvöll að farsælum og vaxandi byggð- arlögum árið 1887; var þá að vísu nokkuð umliðið frá þeim tíma, er íslendingar stofnuðu nýt>yggðir sínar við Winnipeg- vatn, en þaðan breiddi land- námið lim sitt um Manitoba og North Dakota. Bróðurhluti þeirra áræðnu og traustu manna og kvenna, er fyrstir lögðu hönd á plóginn í áminnstsi byggð eða byggðar- lögum, hefir nú safnast til feðra sinna; þó standa enn ofar moldu nokkrir veðurbarðir Birkibeinar með sigg í lófum on sigurbros á vör, sem nú eru að skila drengilega ávöxtuðu pundi niðjum sínum í hendur. Það var óneitanlega glæsileg ur hópur manna og kvenna á öllum aldri, er samankominn var á Lundar áminnstan sunnu- dag; fólkið bar þess glögg merki, að hin ströngu átök frumherj anna höfðu borgað sig, borið til- ætlaðan árangur, leitt til mikils- vægs og varanlegs lífssigurs. Demantshátíðin á Lundar var haldin á bersvæði í steikjandi sólarhita, þar sem hvergi varð í forsælu flúið; skemtiskráin var löng, langt of löng fyrir úti skemmtun þessarar tegundar á þessum tíma árs; framkvæmd binnar formbundnu skemmti- skrár varð óþarflega síðbúin, hófst ekki fyrr en röskum tveimur klukkustundum á eftir áætlun, og verður þar naumast Öðrum umkennt en samkomu stjóranum, séra Halldóri E. Johnson, er sýndist eiga furðu- lega örðugt með að ná tökum á viðfangsefni sínu, þótt hann á hinn bóginn léki þarna ærið kveðjur, Grettir L. Jóhannsson, ræðismaður, flutti prýðilegt ávarp fyrir hönd íslenzku ríkis- stjórnarinnar, en séra Valdimar J. Eylands forseti þjóðræknisfé- lagsins, skilaði drengilegri kveðju af hálfu þess félagsskap- ar. Söngflokkur undir forustu V. J. Guttormssonar, skemmti með mörgum og velæfðum söngvum öllum viðstöddum til óblandinn- ar ánægju; standa byggðarbúar í mikilli þakkarskuld við söng- flokkinn og hinn ágæta söng- stjóra hans; hið sama má segja um stúlknasöngflokkinn, sem frá ýmsum tímabilum, klætt viðeigandi búningum; fjölskylda hjá tjaldi sínu í skóginum; að lokum komu margjr bílar, fyrst Fordbíll og síðast bíll af nýjustu gerð . Sýningin var áhrifamikil og fór vel fram. Mörgum varð reikað inn í frumbyggja bjálkakofa, sem þarna var á staðnum; hafði Skúli Sigfússon, fyrrverandi þingmaður, byggt hann; var Jhann g^rður úr bjálkum m'eð torfþaki; safnað hafði verjð í kofann mörgum munum er ís- lenzkt landnámsfólk hafði flutt með sér frá íslandi; þarna var koffort og kistill frá 1836; strokkur, grútarlampar, kaffi- kvörn, pjáturskattlar; prjóna- stokkur, ristur rúnum; kambar, snældur og margt fleira. — Gam an hafði fólk af að skoða hinar gömlu bækur, er landnámsmönn um voru svo dýrmætar: tvö hundruð ára gamalt handrit; Njálssaga, prentuð í Viðeyjar- klaustri 1844; Vídalíns postilla. Kvæði og kviðlingar Bólu- Hjálmars 1888. Annálar 1848. Eiríkssaga Rauða og fleira. — Á veggjum kofans héngu mynd- ir af merkum, íslenzkum frum- herjum þessarar byggðar. , Gnótt góðra matfanga var á takteinum allan daginn, er seld voru við frámunalegu lágu verði, og afgreiðsla hin besta. Þótt eitt og annað mætti með fullum rétti að einu og öðru finna verður ekki annað sagt en hátíðin í heild sinni væri svip- mikil og byggðarbúum til hinnar ipestu sæmdar. Drekahöfuð Vík- ingaskipsins & Lundar, til hægri að ofan. Hin mikla mann- þyrping á Lund- arhátlC, myndin í miðju. Gamall hestvagn af 1890 gerð, til vinstri að neðan. Sjálkakofi að að Lundar, til hægri’ að neðan. vandasamt hlutverk. Oddviti Coldwellsveitar, Kári Byron, bauð gesti velkomna wieð hlýjum og viðeigandi orð- um; aðalræðumenn voru Paul Reykdal, Skúli Sigfússon fyrr- þingmaður St. George kjör- dæmis, séra Albert E. Kristjáns- son frá Blaine og Dr. Richard Beck prófessor við ríkisháskól- ^nn í North Dakota; ræða Mr. Reykdals var samanþjöppuð af miklum fróðleik, en óhóflega löng fyrir útisamkomu; erindi Skúla Sigfússonar var nokkru styttra, en var um allt hið fróð- legasta; þeir séra Albert og Br. Richard Beck, sem báðir eru nafnkunnir mælskumenn, urðu að búta sundur ræður sínar, eða stytta þær um helming vegna þess hve áliðið var orðið dags; þetta þótti ýmsum viðstöddum miður farið, ekki sízt með hlið- sjón af því, að þessir menn voru langt að komnir og höfðu vita- skuld lagt í það mikið verk, að undirbúa ræður sínar. — Menta naalaráðherra fylkisstjórnarinn- ar> Hon. J. C. Dryden, flutti Byggðarbúum faguryrtar heilla- Mrs. H. E. Johnson hafði æft og stýrði. — Kvæði fluttu Dr. Sig- urður Júlíus Jóhannesson, Ragn ar Stefánsson, B. E. Johnson V. J. Guttormsson og Hallur E. Magnússon frá Seattle. Mikla athyggli vakti söguleg og táknræn skrúðför er sýndi farartæki og ýmsar hliðar í lífi landnámsmanna í þessari álfu frá fyrstu tíð. í broddi fylkingar var víkingaskip með mikilauðug um drekahaus; táknaði það skip fyrsta landnámsmannsins, Þor- finns Karlsefnis, er nam land á austurströnd álfunnar árið 1003. Þorfinnur Karlsefni og kona h a n s Guðríður stóðu í stafni klædd viðeigandi búningum, auk þeirra voru tveir hásetar. Mr. og Mrs. J. S. Sigurdson komu fram sem hin fyrstu landnámshjón en hásetarnir voru þeir Lorne Eyjólfsson og Freddy Hofteig. Skipið var útbúið eftir fyrirsögn Mrs. Sigurðsson og hún hafði málað það og tekist hið besta. Næst kom Indíánahöfðingi á gæðingi sínum; tvíhjólaður flutningavagn, einn af þeim er notaðir voru í Rauðárdalnum á landnámstíð; gripahjarðmenn á hestum sínum; landnámsfjöl- skylda í tjölduðum vagni með uxapar; fólk akandi í kerrum Ávarp flutt fyrir hönd íslenzku ríkisstjórnarinnar 6. júlí að Lundar, Manitoba af Grettir Jóhannssyni raeðismanni Herra forseti! Háttvirtu hátíðargestir' Forsætisráðherra íslands, hr. Stefán Jóhann Stefánsson, hefir með símskeyti falið mér að vera hér viðstaddur í dag og flytja þessum mikla mannfjölda sem hér er saman kominn, hug- 'heilar árnaðaróskir ríkisstjórn- arinnar og hinnar íslenzku þjóð- ar, vegna 60 ára landnámsaf- mælis byggðarlaganna umhverf is Lundarbæ; mér var ljúft að verða við þessari ósk íslenzku rjkisstjórnarinnar, og ég veit að ég mæli fyrir munn hennar, er ég samfagna yður sem hér er- uð staddir og minnist frumherj- anna sem grundvöllinn lögðu að þessum farsælu byggðum, með hjartfólginni þökk fyrir göfugt og nytsamt ævistarf; íslenzka þjóðin finnur til þess með fögnuði, hve landnám íslands hefir stækkað vegna hins mikla brautryðjendastarfs, sem menn og konur af íslenzkum stofni hafa innt af hendi í þessum byggðarlögum eins og svo víða annars staðar í þessari víðáttu miklu álfu; íslenzka þjóðin fagnar yfir hinum miklu lífs- sigrum yðar í strangri baráttu og samkeppnf og blessar hverja þá starfsemi, er að því miðar, að treysta bræðraböndin milli stofnþjóðarinnar og afkomenda hennar í vestri. Að svo mæltu endörtek ég kveðjur ríkisstjórnar íslands og íslenzku þjóðarinnar til yð- ar allra og bið byggðum yðar blessunar guðs. Icelandic Canadian Club Arsfundur Icelandic Canadian club var haldinn í Free Press Board room 23. júní s.l. Forseti Carl A. Hallson stýrði fundi og gaf yfirlit yfir starf félagsins á árinu. Skýrslur voru einnig lesnar frá hinum ýmsu starfsnefndum sem fylgir: Scholarship Fund; Paul Bardal, sem sýndi að nú er í sjóði $190.00. Travelling scholarship hafði verið veitt Miss Snjólaugu Sigurðsson að hæð $1200. Social commiilee: Miss Stein- un Bjarnason, og skýrði hún frá hinum ýmsu skemtifundum sem félagjð hefir haldið á árinu. Save ihe Children Fund: Mrs. Holmfríður Daníelson; Com- muniiy Hall: Paul Bardal; Ice- landic Chair in ihe University of Maniioba: Carl Hallson. Ice- lanndic Can. Evening School: Holmfríður Daníelson, sem sýndi að sex erindi voru flutt á árinu um ísL frumbyggjana í Manitoba, en 30 fróðleg erindi hafa verið flutt á síðastliðnum þremur árum. Hafa 20 af þeim verið prentuð, þrettán í bókinni, Iceland’s Thousand Years en hin í ritinu Icelandic Canadian, og verður haldið áfram að prenta það sem eftir er í ritinu. Um 1400 eintök af bókinni hafa selzt, sumar til Svíþjóðar, Ástra líu og Suður-Ameríku. Einnig hafa ísl. leskaflarnir sem notað- ir eru á kvöldskólanum verið sendir eftir beiðni víða um þetta meginland og til útlanda. — í sjóði eru $400.00. Icelandic Canadian Magazine: skýrslur voru lesnar af Mrs. Grace Thorsteinson, H. F. Dan- ielson, S. Eydal, Mattie Hall- dórson og W. J. Lindal, dómara. Og sýndu þær að útgáfa ritsins gengur ágætlega og um $1500.00 eru í sjóði. Tvö ný mál voru sett á stofn á fundinum. 1. Nefnd var sett til að vinna að því að semja skrá yfir sögustaði í ísl. nýlendunum í Manitoba og víðar ef hægt yrði að koma því við. Hana skipa Mr. J. J. Bildfell, W. Kristjáns- son og Mrs. O. Stephensen. — 2. Nefnd til að safna tónlistar- verkum vestur íslendinga, í henni starfa Mrs. Louise Guð- munds, Mrs. George Palmer og Mrs. L. Richardson. Kosningar fóru fram sem fylgir: Fyrrverandi forseti, Karl Hallson; forseti Axel Vopnfjörð; varaforseti Mrs. G. S. — Ena — Anderson; Skrif., Lilja Guttorm- son; féh. Steinunn Bjarnason; meðráðanefnd, P. Bardal, W. Kristjánsson, H. J. Lindal, Mrs. B. S. Benson og Dr. L. A. Sig- urðsson. Social committee: Ena Ander- son Helga Eggertson, Lena Ric- hardson, Grace Ruppel, Gunnar Thorlákson. Membership: S. Eydal, Steina Johnson og Jonas Jonasson. (Frh. af bls. 5)

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.