Lögberg - 10.07.1947, Side 2

Lögberg - 10.07.1947, Side 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. JÚLÍ, 1947 Hverjir rjúfa griðin EFTIR CHAS BIESICK Lauslega þýtt úr „Manitoba Commonvealth“, af . Jónbirni Gíslasyni. Höfundur þessarar greinar, sem er svo hjáróma við þann póli- tíska samsöng sem nú er msst iðkaður og hæst móðins, er ætt- aður frá Ukraniu. Hann var um eilt skeið ritstjóri blaðsins Mani- toba Commonvelth, en innritaðist í herinn þegar stríðið skall á, að því loknu var hann í kjöri frá C. C. P. ,sem einn þeirra þriggja viðbótarþingmanna er taka skyldu áhugamál heimkominna her- manna, en tapaði kosningu með fárra atkvæða mismun. Hann er útsrifaður frá háskóla Manitobafylkis. J. G. Engir Canada- eða Bandaríkja borgarar voru rændir eignum, heimili eða lífi af rússnesk- um hermönnum, eftir hina fyrri heimsstyrjöld. Engir Canada- eða Bandaríkja hermenn hafa nokkru sinni lát- ið líf sitt í nokkurri styrjöld, hafinni af Rússlandi gegn áður- nefndum þjóðum, en allmargir Candada- og Bandaríkjaher- menn féllu í hinni árangurs- lausu innrásarstyrjöld er þessi ríki tóku þátt í ásamt öðrum þjóðqm gegn Rússlandi. Stalin gat aldrei hælt sér af því að rússneskir hermenn hefðu skotið Canadamenn, Bandaríkjamenn og Breta fyrir- varalaust, en Winston Churchill — einn forvígismanna þeirrar innrásar — sagði í bók sinni „The World Crisis“: „Þeir — Canadamenn, Bandaríkjamenn, Bretar og aðrir — skutu rúss- neska borgara fyrirvaralaust. Þeir voru árásarmenn á rúss- neskri grund. Þeir vopnuðu fjandmenn Sovét stjórnarinnar. Þeir þráðu og lögðu ráð á um hrun hins nýja þjóðskipulags“. Voru þjóðir Canada og Banda- ríkjanna spurðar ráða, hvort þær óskuðu að senda syni sína til víga gegn Rússlandi, þegar lýðveldisstjórnir vorar ákváðu að hefja hina sorglegu innrásar- styrjöld, Nei, þvert á móti. 1 þessu mikilsvarðandi máli er reið á svo mörgum mannslíf- um, höfðu þjóðirnar sjálfar jafn lítið að segja um málið, og borg arar einvaldsríkis. Var vilja hermannanna, sem börðust, þjáðust og létu lífið, leitað í þessu máli? Voru þeir spurðir, hvort þeir vildu fara og berjast gegn Rússlandi? Buðu þeir sig fram með gleði og góð- um vilja í þessa krossferð gegn kommúnismanum? Þvert á móti. Samkvæmt öllum skýrslum er vér höfum frá því tímabili, munu menn aldrei hafa hafið neina æfitýraför með tregðu og nauðung en einmitt þá. Vér höfðum lokið fjögurra ára blóðugri styrjöld, er kostaði 10 milljónir raannslífa, þar með talin 60.000 frá Canada. Her- menn vorir höfðu fengið sig fullsadda. Auk þess hafði Rúss- land verið bandamaður vor gegn Þýzkalandi og hermennimir gátu ekki áttað sig á þessum snöggu veðrabrygðum og árás á fyrrverandi bandamann. Þeir álitu einnig að það væri einka- og sérmál Rússa sjálfra, hvaða tegund af stjómarfyrirkomulagi þeir kysu. Þeir gátu ekki skilið hvers vegna þeir voru sendir til Síberíu, þegar þeir kusu heldur að vera kyrrir heima hjá vandamönnum og ástvinum. Eins atviks frá þeim tíma er vert að minnast í þessu sam- bandi. Þegar liðsafli sá, er fór frá Victoria B. C. og ætlaður var til sóknar í Síberíu, átti að flytj- ast á skip út síðast á árinu 1918, reyndist mjög torvelt að koma hermönnunum „um borð“. í blaðinu „The Toronto Tele- grama“ birtist á þeim tíma bréf frá einum yfirmanni í hernum, er lýsir glögglega, hve alvarlegar ráðstafanir varð að gera, þegar „sumir hermannanna neituðu þverlega að hlýða og fara út í skipin, þegar merki var gefið“. Hann heldur áfram svofeldum orðum: „Þegar sveitarforinginn tók skammbyssu sína og skaut viðvörunarskoti yfir höfuð þeirra, hlýddu nokkrir skipun- inni, en all-margir og mikið fleiri virtu þetta að vetttugi. — Tveimur herdeildum frá Tor- onto var þá skipað að spretta beltum sínum og hýða „hina djöflana“ inn í fylkingaraðirnar. Þetta gerðist á aðalstræti Vict- oríubocgar“. Hann lýsjr ennfremur nokkru nánar þeim aðferðum er notað- ar voru við þessa svokölluðu „sjálfboðaliða“ og segir að þessi mótþróafulli herflokkur hafi að lokum hlýtt valdi dreginna byssustingja og verið vendilega vaktaðir en nokkur fl. þýzkra herfanga, en hann hafði séð, því vopnaðir verðir stóðu yfir þeim þar til komið var á haf út. Þannig sendi „lýðlæðis“ Cana da hermenn sína til þess að rot- slá „einræðis“ Rússland, fyrir meiri tuttugu og níu árum. Það er nauðsynlegt að endur- taka þennan sauruga kapitula sögunnar í þeim tilgangi að vinna gegn hinum yfirstandandi ofsafulla og djöfullega — diabolical — ófriðar áróðri gegn Rússlandi sem nú fer fram í Bandaríkjunum og einnig í Canada, þó á lægri nótum sé. Þessi sömu afturhaldsöfl æptu 1918, að Rússland væri hættu- legt fyrir alheimsfriðinn, en ein- mitt 'þeir sjálfir voru hinir sönnu og raunverulegu friðrof- ar. Þeir voru ábyrgðarfullir fyr- ir drápi þúsunda rússneskra borgara og bandamanna her- manna, án«•þess að f æra til reiknings allar þær þjáningar og hungursneyð er rússneska þjóðin varð að þola. Nú í dag kosta hin sömu öfl kapps um að láta þessa atburði sögunnar endurtaka sig; þau benda enn á Rússland, enn er oss talið að þaðsé friðnum hættu legt. En enginn rússneskur emb- ættismaður hefir enn mælt með ófriði gegn Canada eða Banda- ríkjunum. Ekkert rússneskt blað eða tímarit hefir nokkru sinni birt nokkurt orð í ófriðar átt gegn oss. En í Canada og Bandaríkjunum líður tæpast nokkur dagur svo til enda að ekki komi embættisleg eða rit- stjórnarleg eggjun til ófriðar gegn Rússlandi. Sumir þessir spiltu féndur — depraved fiends — hika ekki við að mæla með tafarlausu atomspdengjuregni yfir þjóð, er telur 180 miljónir einstaklinga — menn, konur og börn. Þessir stríðseggjunarmenn verðleggja sína eigin hagsmuni hærra en fjöldans. Þeir meta varðveislu síns eigin fjáröflunar fyrirkomulags meira en varð- veislu varanlegs heimsfriðar. — Þeir hrópa hástöfum að Rúss- land sé í þeim efnum hættulegt, en einmitt af þeim sjálfum staf- ar sú mesta hætta sem mann- kynið horfist í'augu við nú í dag. Andstaða vor gegn kommún- ismanum innan og utan Rúss- lands, þarf ekki nauðsynlega að meina samþykki vort með hinni hættulegu stríðseggjunar starf- semi, sem stefnt er gegn Rúss- um og heimsfriðnum í heild. Það er mörgum sinnum sagt að hin eina sigurvænlega aðferð gegn kommúnismanum sé sú, að tefla fram gegn honum, hinni sönnu lýðræðishugsjón, í þess orðs dýpstu, fylstu og bestu merkingu. Vér verðum að uppræta bölvun fátæktarinnar, útrýma öryggisleysinu, atvinnuskortin- um og kreppunum úr þjóðfélags fyrirkomulagi voru. Vér verð- um að innleiða fyrirkomulag er veiti alþýðunni fult frelsi, fulla tryggingu og nægilega kaupgetu. í stuttu máli: vér verðum að stofnsetja lýðræðislegan sósíal- isma, sem keppinaut gegn kom- múnismanum. Þeir, sem eru andstæðir slíkri hugmynd, eru nú í dag og alla daga, allra manna hættulegastir fullum og varanlegum friði. Þakkarávarp og Það var á fimmtugs afmæli kóngsins þann 9. iúní T947, sem verður mér minnisstæður, ekki sem hátíðisdagur, heldur sem skaða- og skapraunadagur, því eins og margir hér í Manitoba muna, var allan daginn afspyrnu norðan-rok og Winniuegvatn braut jafnt og stöðugt af vestur- bökkum þess. — Þar stóð mitt hús og heimili undan farinn fimm ár hefir vatnið altaf verið að nálgast það, svo ekki voru eftir nema fá tfet sem fóru, að- faranótt 10. júní ásamt skúr sem var við húsið. Reyndist þá ei til setu boðið, því ekki þykir rétt að fljóta sof- andi að feigðar-ósi, en útlitið var ekki gott, þar sem nálega allir verkfæramenn voru komn- ir norður á vatn og ég sjálfur þoldi nálega ekkert að taka nærri mér, og var það sérstök tilviljun að ég gat fengið Gunn- ar Johnsson á Gimli til að koma hingað norður ti lað lyfta hús- rabb inu og búa það undir flutning og mátti það hepni heita, þar sem hann er eini maðurinn sem hefir útbúnað til þess, auk útsjónar og óeigingirni sem hann er alþekktur fyrir. Og leysti hann þetta verk vel af hendi ásamt þeim mönn- um sem hér voru, og allir gerðu sitt*besta til að bjarga öllu á þurrt land þó þeir færu frá eigin störfum. — Þessir menn voru Guðmundur Magn- ússon með tvo sína verkamenn og Joe Danielsson. — öllum þessum mönnum þakka ég kæríega þeirra fljótu og óeig- ingjörnu hjálp. Þó er ótalinn sá maður sem mesta þakklætið ber, sem er Steini Sigmundsson, sem altaf er sterkasti hlekkurinn í hverri þeirri viðburðarkeðju, sem hann er viðriðinn og ekki væri að furða þó honum væri farið að leiðast þettað flutningafargan, því síðastliðið haust færði hann fyrir mig geymsluhús og það á þeim tíma, sem hann sjálfur var önnum kafinn. — 'Þetta, auk margs annars greiða hefir hann gert án als endurgjalds, nema h'tilfjörlegs og gáskafulls þakk- lætis, sem hann metur lítils, því Steini er enginn loftunga. — Og ef hann einhvern tíma sér þess- ar línur, á ég von á að hann segi að þetta rugl líkist mest æfi- minningu eða jafnvel sé nálykt af því, en mér finnst ekki mega minna vera en þess sé getið sem gert er vel, svo- aðrir fái hug mynd um, að hér á Hnausum er eins hjálpfúst fólk og best gerist þó ég nefni ekki fleiri nöfn. Þó þessar h'nur séu aðallega helgaðar karlmönnum, verð ég þó í sambandi við ofanskráðan atburð að geta þeirra göfugu og gjafmildu systra, Mrs. S. S. Magnússon og Mrs. E. K. Magn- ússon, sem báðar gerðu sitt besta svo hægt væri að taka á móti þeim mönnum sem áður eru nefndir. Kærar þakkir frá Daníeli og Sigríði. Á fornum slóðum Niðurlag. Eg man eftir mörgu frá Nýja íslandi, en ekki man ég eftir neinu betur en uppþotinu sem varð um trúarafstöðu séra Magnúsar J. Skaftasonar, eftir ræðuna frægu, sem hann flutti, sem orsakaði klofninginn sem varð í kirkjumálunum út af því. Það stendur fyrir sjónum mér sem klettur úr minninganna djúpi. Eg var í kirkjunni við Willow-ána þegar hann flutti þessa sérstæðu ræðu, og ég man all-vel eftir deginum og veðrinu, en ræðan fór langt fyrir ofan höfuðið á mér. Eg var þá ekki farinn að skilja — og í rauninni hefi ég aldrei skilið til hlítar — hina flóknu trúarlærdóma, en mér er svo í fersku minni stæl- urnar og umræðurnar sem fólk- ið háði um þessa afstöðu séra Magnúsar. í heimahúsum, á gatnamótum og hvar sem var, ræddu menn um þetta og eilífð- armálin frá öllum mögulegum hliðum af alvöru og sannfæring- ar hita. Það var eins og eldur í sinu um alla bygðina og ekki var laust við það að fjandskapur ýrði milli vina og nágranna í stöku tilfelli, en þó held ég í flestum tilfellum að menn hafi látið skynsemi ráða og stilt öllu í hóf. En ekki mun það fjarri sanni að þessi deila muni hafa átt sinn þátt í því að nokkru leyti, að fjöldi fólks flutti burt úr Viðinesbyggðinni um þessar mundir, hún eyddist á árunum 1891—92, nær því að hálfu leyti. Burtu fluttu Friðfinnur í Skóg- um, Gottskálk Pálsson á Sval- barði. Foreldrar mínir og Guð- mundur, bróðir minn, Magnús Jónsson frá Hjarðarholti og Þorbergur bróðir hans, og það fólk alt. Jakob Jónsson, er síð- ar flutti í Big Point byggðina, alt Abrahamssons-fólkið og voru það margar fjölskyldur, og margt fleira. Það var stór blóð- taka fyrir ekki stærri byggð, og hefir hún sem íslenzk byggð, vart beðið þess bætur. Ekki felli ég neinn dóm um það, sem hér gjörðist í kirkjumálunum. Séra Magnús var vinsæll og alþýð- legur, mildur í kröfum við fólk- ið og átti marga formælendur. Hefði ég nú á seinni árum haft gaman af að sjá ræðuna sem skapaði svo mikið öldurót. Hefi ég spurt eftir henni, og hefir mér verið sagt að hún væri enn til, en aldrei hefi ég getað feng- ið að sjá hana. En hvað sem því líður þá klofnuðu íslendingar þarna í tvo flokka, og hafa síð- an staðið í andvígum fylking- um o gtvískipt kröftunum. Óef- að hefir það verið klaufaskapur leiðtoganna að svona fór, og svo oft hefir farið illa í félagsstarf- semi Vestur-íslendinga. Menn eiga svo bágt með að sjá í gegn- um fingur, og valdafýknin og hégóminn á og hefir altaf átt svo sterk ítök í hjörtum manna. En í sambandi við þessa deilu og svo margt úr frumherjalífinu er eitt sem brent hefir sig inn í huga minn. Það var áhuginn og eldhitinn sem menn sýndu á svo marga vegu fyrir trúmálum og öðrum andlegum menningar- málum, er stingur mjög í stúf við deyfð og áhugaleysi, já, og kæruleysi sem nú virðist all- mikið ráða ríkjum í félags- og kirkjustarfsemi víða meðal ís- lenzks almennings, og eru þó ástæður fólks als ekki samber- andi við það, sem var fyrir 40— 50 árum síðan. Eg man all-vel eftir fleiri heimilum þarna í Viðinesbyggð- inni, en ég hefi getð hér að framan, en fjær æskustöðvum mx'num. Eg kom stundum að Framnesi. Sá bær var á flæðun- um niður undir vatninu fyrir norðan Kjalvík. Þar bjó Sveinn Kristjánsson, kona hans er hét Veronika, Sveinn var eftirtekt- arverður maður, mun hafa verið greindur, tíminn var búinn að rista rúnir á andlit hans, var hann þá nokkuð við aldur. Son- ur hans, Helgi, var vélfræðing- ur og fór hann snemma á árum vítt um heim í þjónustu Ameri- can Adance Þreskivélafélags- ins, þar á meðal til Spánar og S.-Ameríku. Sveinn átti mörg börn. Man ég eftir Rögnvaldi, Óttari og Sólveigu, er mér voru samtíða í litla skólanum við Willow-ána. Sveinn flutti síðar burtu frá N.-íslandi, og mun ættleggur hans dreyfður vítt um þetta land. Þá var Melstaður. — Þar bjó Josep Sigurðsson og Arnbjörg Jónsdóttir, mestu myndar- og ágætis hjón og vel metin. Þekti ég Jón son þeirra einna best. Hann var jafnaldri minn, og var mér samtíða á skóla. Hann býr nú á Gimli. Á Bólstað bjó Jó- hann seem var einn af fyrstu frumherjunum, þekti ég það fólk vel. Jóhann og Sigríður kona hans voru valin hjón. Þau lifðu við Þjóðbraut og þar var gestrisni. Skálabrekka var fyrir vestan Bólstað. Sigurgeir hét bóndinn þar. Guðmundur bróðir minn var þar eitthvað fyrst eftir að hann giftist. Á Skálabreekku sá ég Nýársnóttina leikna. Man ég vel eftir álfunum. Það þótti mér aðdáanlega skemtilegt, •— ég held það hafi verið fyrsti leikurinn sem ég sá. Þá man ég eftir Grænmörk, bóndinn þar hét Jónas. Man ég lítið eftir honum, en ég man eft- ir dóttur hans, Guðrúnu, hún var stundum hjá okkur. Við kölluð- um hana ætíð Gunnu á Græn- mörk. Hún giftist síðar séra Jóhanni P. Sólmundssyni. Hygg ég hún sé enn á h'fi. Hún var góð og greind kona og ávalt glaðvær. Þó ekki væri lífsþægindi mikil hjá fólki í þá tíð þar um slóðir, þá var lífsgleðin eins mikil þá eins og nú, ef ekki meiri, og er það eftirtektarvert. — Fólkið barðist fyrir sinni tilveru með drengskap og hugrekki, og naut lífsins á heilbrigðann hátt, eftir því sem kostur var á. Ekki man ég eftir því að áfengisnautn ætti sér stað, og víst er það, að ekki var það að neinu ráði. Að vísu voru ekki efni til þeess, en yfir- leitt fanst mér andi fólksins andvígur vínnautn og taldi það skaðlegt, og aldrei var vín um hönd haft hjá okkur, og ekki lærði ég að drekka heima, þó heimurinn gæti kent mér það seinna. I þeirri grein var ég ekki svo tornæmur. Einna hugljúfastar endur- minningar frá Nýja íslandi eru vetrarpartarnir sem ég gekk á skólann við Willow-ána, þó ég gleymdi aftur flestu sem ég lærði þar, þá hefir samt altaf ofurlítið lifað í þeim kolum sem þar -voru brend. Sigurður gamli Thorarinson var merkilegur karl og góður kennari. Mér féll vel við hann, og ég held hann hafi staðið vel í stöðu sinni. Mrs. Þórdís Eldon var frábær, öllum þótti vænt um hana, og hún hafði aga sem best getur. Hún var vel gefin, sjálfsagt all-vel mentuð. Söngelsk og skáldmælt. Það gat ekki farið hjá því að hún hefði góð áhrif á þá sem hún umgekkst. Viðinesbyggðin í Nýja íslandi er ein af frumbyggðum íslend- inga hér 'vestra og ein hin allra elsta, og hún á merkilega sögu Þar var baráttan háð upp á líf og dauða, og þar sannast máske eins vel og nokkurs staðar orð skáldsins: „Þar sem hel og líf barðist — harðast í landi. Hæstur, mestur reis ‘norrænn andi.“ Þarf að vísu ekki skáld eða speking til að segja manni þenn- an sannleika, þar sem baráttan er hörðust fyrir tilverunni nær maðurinn hæsta marki, hvort sem hann er af noxrrænu bergi brotinn eða hvaða þjóðar eða kynflokks sem hann er, reynsla og heilbrigð skynsemi sannar það. Margir okkar ágæstustu frumherjar annara byggða áttu fyrst heima í Viðinesbyggðinni, svo sem Skafti Arason, Sigurð- ur Christophersson, Kristján Jónsson frá Héðinshöfða, Hall- dór og Skúli Ámasyni, Árni Sveinsson, Jón Jónsson frá Gilsárstekk, Magnús frá Fjalli, og ótal margir fleiri. Þar lærðu þeir undirstöðuatriði lífsbarátt- unnar á Vestrænni Storð. Vítt um byggðir íslendinga hér vestan hafs, eru margir nyt- ir menn og konur sem eiga rót sína að rekja til Viðinessbyggð- ar í Nýja íslandi. Eg hefi lesið all-nákvæmlega Landnámssögu Þjóðræknisfé- lagsins um Nýja ísland — Þ.Þ.Þ. III bindi — Þar eru gjörð all- góð skil sumra frumherjanna, en aðrir eru ekki nefndir á nafn. Finst mér þar meir af handahófi gengið að verki, en góðri dómgreind, þrátt fyrir hrós og fagurgala Dr. Sigurðar Júlíusar. Mér finst það galli á bókinni,,að öllu Nýja íslandi er hrært saman í einn graut, hvað landnemana snertir. Mikið bet- ur hefði farið, ef hvert byggðar- lag hefði átt sinn sérstæða kafla, sérstaklega hvað land- nema-tal snertir. Þó sameigin- lega hefði verið sagt frá menn- ingarmálum, en það eru nú að- eins mínar hugmyndir. Eg veit ekki, hve nákvæm sagan er með frumbyggjana í öðrum byggð- um Nýja íslands, en er ég lít yf- ir Viðinesbyggðina eins og hún var til forna, þá sakna ég í sög- unni nafna landnámsmanna sem átt hefði að vera minst. Eins og til dæmis Magnús frá Fjalli og þeirra bræðra Elías í Laufási, Gottskálk á Svalbarði, Frið- finns í Skógum og máske fleiri, því aðrir eru nefndir sem ekkert meira tilkall áttu til að vera þar. Og þó hægt sé máske að segja, að. engin sérstök afreksverk liggi eftir þessa menn, en það má um marga fleiri segja, en þá, samt sem áður, háðu þeir sína baráttu og áttu sinn þátt í að leggja grundvöllinn að íslenzku menningarlífi hér vestra. Eg hefi miklar mætur á Þ. Þ. Þ. sem söguritara, og sérstaklega er hann stálsleginn og óþreytandi með ættfræðina, og hefir það mikið gildi, ef nákvæmt er, sem ég tel sjálfsagt, — hann hefir unnið þarft verk og á óefað mik ið eftir enn. Af ritum hans hefir einna mest hrifið mig „Æfintýr- ið frá Islandi til Brazilíu“. Viðinesbyggðin, þar sem ég eyddi æskuárunum, snertir enn viðkvæman streeng í brjósti mér, og byggðin og fólkið, óhefl að en drenglundað, hreinskilið og ákveðið í baráttunni, stendur mér fyrir hugskotssjónum eins og það var, skírt og greinilega, og ég er þakklátur fyrir minn- ingarnar. Byggðina kveð ég með bless- unaróskum, hvern bæ, því sér- hver bær á sína sögu. Sigurljóð og raunabögu. „Tíminn langa dregur drögu, dauða og lífs sem enginn veit“. — Söguna, menn- inguna, og megi hún lengi enn þróast sem íslenzk byggð, og verða síðasta vígi íslenzkrar menningar vestan hafs, eins og hún var frumstæðum og fátæk- um Vestur-förum fyrsta skjól og skjöldur hér í Vestur-Canada, besta og fatsælasta landsins í veröldinni og höfuð-griðastaður þeirra, sem að frelsi og farsæld leita en þann dag í dag. G. J• Oleson. Frú Violette N. Anderson frá Chicago, sem hafði embættispróf í lögfræði, var eina negrakonan, sem fékk leyfi til að flytja mál fyrir hæstarétti Bandaríkjanna. Hún fékk rétt til inngöngu í lög- fræðingafélagið þar árið 1926. Söfnun í hið fræga Roosevelt frímerkjasafn, sem að líkindum mun verða selt, hóf Sara Delano Roosevelt, móðir F r a n k li n D- Roosevelts heitins forspta. Síðan var safnið stöðugt aukið alla ævi forsetans.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.