Lögberg - 04.09.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
t0,A
A Complele
Cleaning
Inslilulion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 4. SEPTEMBER, 1947
NÚMER 35
Stórkostlegasta járnbrautarslys
í samgöngusögu Vestur-Canada
Á myndinni hér að ofan sést álitlegur hópur stúdenta frá
íslandi, er nám stunduðu við ríkisháskólann í Wisconsin og
luku þar fullnaðarprófi. Roskni maðurinn á myndinni er
Sigurður C. Emerson, hinn mesti öðlingur, er gerði sér allt
far um að greiða götu hinna íslenzku stúdenta; hann hefir
lengi verið búsettur í Madison, Wis. — Efri röð: Dr. Gissur
Brynjólfsson, Dr. Guðmundur Björnsson, Sigurður Jónsson,
Unnsteinn Stefánsson, Ásgeir Bjarnason, frá Reykjum í
Mosfellssveit. — Neðri röð: Jón Ragnar Guðjónsson, Mrs.
Jón Ragnar Guðjónsson, Sigurður C. Emerson, Mrs. Þóra
Halldórsson, Þórhallur Halldórsson.
Aðfaranótt síðastliðins mánu-
dags vildi það hörmulega slys til
að skemtiferðalest Þjóðeigna-
brautanna, er var á leið frá Min-
aki, að loknum hátíðahöldum
verkamannadagsins, rakst á
transcontinental farþegalest, er
stóð á teinum við smáþorpið
Dugald um 14 mílur austan við
Winnipeg, og hlautst af þessu
hið stórfenglegasta slys, sem
um getur í samgöngusögu Vest-
ur-Canada; í skjótri svipan
Meiri háttar rán
Á fimmtudaginn í vikunni,
sem leið, veittust bófar að Mr.
Kingston, forstjóra Winnipeghó-
telsins í þessari borg, er hann
var að koma frá bankaútibúi
með því nær þrjátíu þúsund
dollara í peningum, gáfu hon-
um rösólega utan undir og náðu
af honum öllum peningunum,
sem hann ætlaði að nota til þess
að skipta ávísunum fyrir ýmissa
starfsmenn Canadian National
járnbrautanna, er vitjuðu hótels
ins; hafði Mr. Kingston gert
þetta árum saman. — Bófarnir
komust undan í bíl, og hefir það
enn eigi lánast, að hafa hendur
í hári þeirra.
Námuverkfall
Eitthvað um 16 þúsundir
brezkra kolanámumanna hafa
gert verkfall til að mótmæla
þeirri ráðstöfun Attlee-stjórnar
innar, að lengja vinnutíma
þeirra með stjórnarráðssam-
þykkt.
Vara-framsögumaður íhalds-
flokksins, Anthony Eden, hefir
skorað á stjórnina að leggja nið
ur völd með að nú sé að fullu
sýnt, hve öldungis óstarfhæf
stjórnin sé og úrræðalaus.
Hörmulegt flugslys
Um miðja viku vildi það
hörmulega slys til, að norsk far-
þegaflugvél fórst í fjöllunum
við Lofoten; áhöfn og farþegar
voru þrjátíu og fimm að tölu, er
allir týndu lífi; flugvélin brann
til kaldra kola; flest voru það
Norðmenn, er fórust með flug-
vélinni, en þess getiá að einn
danskur maður og tveir Hollend
ingar hafi verið innanborðs;
rannsóknir í málinu hafa enn
eigi leitt í ljós þær orsakir, er
til slyssins leiddu; veður var
sæmilegt, þótt nokkurs þoku-
slæðings yrði vart öðru hvoru.
Friðarsamningar afgreiddir
Þær fréttir bárust um heim
frá Moskvu um síðustu helgi, að
rússnesk stjórnarvöld hefðu
undirskrifað friðarsamninga við
ítalíu, Rúmeníu, Búlgaríu, Ung-
verjaland og Finnland; áður
höfðu Bretar, Bandaríkjamenn
og Frakkar, undirskrifað á-
minsta friðarsamninga; — allar
tapa áminstar fimm þjóðir tals-
verðum landspildum, auk þess
þær verða að greiða háar stríðs-
skaðabætur.
kviknaði í fremstu vögnum
skemmtiferðalestarinnar, eitt-
hvað um fjörutíu mann brunnu
til dauðs, átján sættu mismun-
andi meiðslum, en um fjórtán
er enn eigi vitað; flest voru þau
lík, sem fundist hafa, óþekkjan-
leg með öllu; flest var fólk þetta
frá Winnipeg, og hefir djúp sorg
“lagst eins og leiði” á borgina;
síðasta skemmtiferðin til sumar
bústaðanna, hafði snúist upp í
ógleymanlegan harmleik.
Hvalurinn verður
skorinn á þaki
bræðsluhússins
Það verður tilbúið að vori.
1 Hvalfirði stendur nú yfir
bygging hvalveiðistöðvar og á
hún að verða tilbúin til notkun-
ar að vori.
Eins og kunnugt er og skýrt
hefir verið frá í Vísi, var í vet-
ur stofnað hér hvalveiðifélag,
sem heitir Hvalur h.f. — Félag-
ið hefir fest kaup á skipi, sem
nú liggur í Noregi, en mun
væntanlega hefja hvalveiðar,
þegar bræðslustöðin í Hvalfirði
er tilbúin.
Sama fyrirkomulag og
í hvalveiðiskipum
Bræðslustöð sú sem verið er
að reisa í Hvalfirði er útbúin á
sama hátt og hvalveiðimóður-
skip eins og þau gerast fullkomn
ust. Hvalurinn er dreginn upp á
þak hússins, skorinn þar, og
hvalspikið látið í sérstakar renn
ur, sem flytur það beint í
bræðslupottana. Byggð hefir ver
ið sárstök renna fyrir þeim gafli
hússins sem veit að sjó og verð-
ur hvalurinn dreginn upp eftir
henni. Sérstaklega öflugri vindu
verður komið fyrir í sambandi
við rennuna og mun hún draga
hvalinn upp.
4 geymar fyrir lýsi
Hvalur h.f. hefir keypt fjóra
af olíugeymum þeim, sem í
Hvalfirði eru frá tímum setuliðs
ins og verða þeir notaðir til lýsis
geymslu. Ef nauðsyn krefur og
þessir fjórir geymar reynast
ekki nógir fyrir stöðjna, mun
hún festa kaup á fleiri geym-
um, sem eru í Hvalfirði og falir.
Fullkomnar vélar
Vélarnar, sem notaðar verða
við bræðsluna eru af fullkomn-
ustu gerð. Segja má, að þær
vinni úr öllum hvalnum, þannig
að ekkert verður eftir, ef þess
er óskað. Fullgerð getur stöðin
brætt 5 til 6 hvali á hverjum 12
klukkustundum.
Vísir, 24 júlí.
Skipting Palestínu
Nefnd sú af hálfu sameinuðu
þjóðanna, sem setið hefir all-
lengi á rökstólum með það fyr-
ir augum, að reyna að leysa
Palestínudeiluna, hefir nú lagt
fram álitsskjal sitt, og mælir
með því, að stofnuð verði í land
inu helga tvö sjálfstæð ríki, ann
að fyrir Araba, en hitt fyrir
Gyðinga; enn er eigi vitað,
hvernig þessari uppástungu
verði tekið, að öðru leyti en því,
að Arabar mótmæla stranglega
skiptingu landsins.
Gjaldeyrisvandræði íslend
inga að verða dönskum
verzlunarfyrirtækjum
að falli?
Kaupmannahafnarblaðið “In-
formation” skýrir svo frá í dag,
þriðjudag, að gjaldeyriserfið-
leikar Islands hafi sett mörg
dönsk verzlunarfyrirtæki í hinn
mesta vanda.
Blaðið segir að mörg verzlun-
arfyrirtæki, sem stofnuð voru
eftir stríðið, hafi selt mestan
hluta af vörum sínum, þar á
meðal ýmsan munaðarvarning,
til Islands. Hins vegar hafi ýms
íslenzk verzlunarfyrirtæki flutt
vörurnar inn frá Danmörku án
þess að hafa innflutningsleyfi;
og afleiðingin sé sú, að vörurn-
ar liggi nú, á kostnað hinna
dönsku fyrirtækja, við Reykja-
víkurhöfn.
Blaðið fullyrðir, að mörg
dönsk fyrirtæki hafi þegar orð-
ið fyrir svo miklu tjóni af þessu
og markaðstapinu á íslandi, að
þau muni ekki standast það.
Hjuler.
Alþbl., 23. júlí.
Merkur íslendingur
Um síðustu helgi kom hingað
til borgarinnar merkur, íslenzk-
ur mentamaður, Dr. Jónas Aðal-
steinn Jónasson, prófessor í
sagnfræði við Linfield College,
Oregon. Dr. Jónas er fæddur í
Svoldarbyggðinni 1 North Da-
kota; hann er sonur Jóns Ed-
walds Jónassonar frá Torfu-
mýri í Skagafirði og Guðrúnar
Thorsteinsdóttur frá Bakka í
Öxnadal; þau eru nú búsett í
Burlington í Washingtonríki.
Dr. Jónas lauk meistaraprófi
við ríkisháskólann í Washing-
ton; en hlaut doktorsnafnbót í
heimspeki við Stanfield háskól-
ann í Californíu; hann er sagn-
fræðingur að sérmenntun; hann
var fimm ár í þjónustu ameríska
flughersins og öðlaðist þar
majórs-tign; hann er gæddur á-
gætum rithöfundarhæfileikum
og hefir um undanfarin ár, að
tilhlutan Bandaríkjastjórnar,
verið að skrásetja sögu ameríska
flughersins.
Dr. Jónas er þjóðrækinn mað-
ur sem þá, er bezt gerist; hann
hefir langvistum dvalið fjarri
íslenzka mannfélaginu, er fróð-
ur um íslenzk menningarmál og
mælir ágætlega á íslenzka tungu.
Svona eiga sýslumenn að vera!
Það eru slíkir menn, sem gera
garðinn frægan.
Guðrún, móðir Dr. Jónasar og
Friðrik Kristjánsson fésýslumað
ur í þessari borg, eru systkina-
börn, en þau frú Anna, kona
Tryggva Thorsteinssonar vél-
setjara hjá Columbia Press Ltd.,
og Dr. Jónas, eru systkinabörn.
Danir krefjast algerrar
brottfarar Bandaríkjahers
frá Grænlandi
Talið að málið verði lagi fyrir
S Þ ef Bandaríkjasljórn
þverskallast
Danska blaðið “Köbenhavn”,
málgagn dönsku stjórnarinnar,
segir í grein um Grænlandsmál-
in, að Danir haldi fast við þá
kröfu sína, að samningurinn,
sem heimilar Bandaríkjaher
dvöl á Grænlandi verði þegar
felldur úr gildi.
Þýðir það algera neitun á til-
mælum Marshalls utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna um að
Bandaríkin og Danmörk geri
nýjan samning um sameiginleg-
ar varnir Grænlands.
“Köbenhavn” segir, að eini
aðilinn, sem til mála komi að
Danir heimili herstöðvar á
Grænlandi, séu SÞ.
Fréttaritari Ríkisútvarpsins í
Kaupmannahöfn skýrði nýlega
frá því, að talið sé að danska
stjórnin muni kæra það fyrir
SÞ, ef Bandaríkjamenn fari
ekki á brott með allan herafla
sinn frá Grænlandi, nú er Dan-
ir hafa sagt upp hervarnarsamn
ingnum.
Danir útbúa nú mikinn rann-
sóknarleiðangur til Pearylands.
sem er ókortlagt svæði á norð
vestur Grænlandi. Mun hann
kosta 2—3 millj. kr. og standa
í 2 ár. Fá leiðangursmenn til um-
ráða sex flugvélar til rannsókn-
anna. Er leiðangur þessi m. a.
farinn til að sanna umheiminum,
að Danir hafi bæði vilja og getu
til að fara með stjórn Grænlands
svo vel sé.
Þjóðviljin, 29. júlí
Maður drukknar
í fyrradag vildi það slys til,
að maður féll fyrir borð á vb.
“Valþór” frá Seyðisfirði og
sökk þegar í stað. Maður, sem
kastaði sér til sunds, náði taki
á honum, en missti þess, og
ítrekaðar tilraunir hans til að
finna hann aftur, reyndust á-
rangurslausar.
Maðurinn, se mdrukknaði,
hafði verið að vinna í nóta-
báti vélbátsins, en féll aftur yf-
ir sig og útbyrðis. Annar mað-
ur, sem var að vinnu í bátnum
gerði þegar tilraun til björg-
unar, en tókst ekki.
Blíðskaparveður var og gott í
sjó, þegar slys þetta skeði.
15 þús. smálesta skip flyt-
ur olíu til íslands
Nýlega kom 15 þús. smálesta
olíuskip til Olíufélagsins, sem
hefir bækistöð sína í Hvalfirði.
Skip þetta flytur hingað
14.800 smálestir af olíu og er hið
stáersta, sem hingað hefir kom-
ið með olíu fyrir Islendinga. Af
farmi skipsins munu Síldarverk
smiðjur ríkisins fá 4000 smá-
lestir.
Horfur eru á, að olían verði
ódýrari þegar hún er flutt hing
að í eins stórum stíl og hér er
um að ræða.
Vísir, 29. júlí.
Snjolaug Sigurdson
Hljómleika kvöld
Miss Snjólaug Sigurðson held
ur hljómleika miðvikudags-
kvöldið, 10. september, í Fyrstu
Lútersku kirkju.
Miss Sigurdson hefir verið tvö
undanfarin ár í New York að
fullkomna list sina og hefir vak-
ið eftirtekt meðal þeirra sem
dómbærir eru á sviði tónlistar-
innar. Hún hefir margoft leik-
ið í útvarpið og nú í sumar var
hún ráðin til að miðla af list
sinni ellefu sinnum yfir hið víð-
tæka kerfi er nefnist Canadian
Broadcasting Corporation, í
hinu svonefnda Canadian Art-
ists series. sex sinnum í samspili
með Pearl Palmason, hinum
góðkunna fiðlusnillingi og fimm
sinnum sem soloisti. Auk þess
hefir hún nokkrum sinnum ver-
ið meðleikari söngmanna fyrir
CBC. Það mun áreiðanlega eins-
dæmi að nokkur píanóleikari
hér hafi náð slíku hámarki og er
því óhætt að fullyrða að Snjó-
laug er með þeim allra fremstu
í sinni list.
Það mun því verða almenn-
ingi gleðiefni að hafa tækifæri
til þess að hlýða á þessa ungu
listakonu áður en hún á ný legg
ur leið sína til New York. Sam-
koman er undir umsjón Ice-
landic Canadian Club og er til
arðs fyrir Scholarship sjóð fé-
lagsins. F. D.
Tvö ljóð
Eftir Kristján Einarsson frá Djúpalæk
í ÞAGNARSKÓG
Eg þekki djúpan, dimman skóg,
svo dimman skóg ég þekki,
í svörtu gljúfri svartan skóg,
að sólar nýtur ekki.
Eg þekki myrkan þagnarskóg,
og þar má enginn tala.
Eg þrái svo hinn þétta skóg,
hinn þögla skóg og svala.
Já, húm hans seiðir huga minn
hans hljóða nótt og dökkva.
Eg hvarf í dulardjúp hans inn,
hans djúpu þögn og rökkva.
VIN
Fátækur flóttamaður
fór ég um eyðimörk,
forsælu megin fjalla
fann ég þig græna björk.
Höfðingjar eiga hallir,
hirðingjar reisa tjöld;
í þínu laufga limi
leið ég í svefn það kvöld.
Sæng þín og svæfill voru
sárfættum manni góð.
Regnskúrir rak yfir himin
rauðar sem mannablóð. \
Og er ég vaknaði aftur
í þínu limi, björk,
varstu orðin skrúðgrænn skógur,
skógur í eyðimörk.
/
Stígandi.