Lögberg - 04.09.1947, Blaðsíða 2

Lögberg - 04.09.1947, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. SEPTEMBER, 1947 Sérstætt og hugðnæmt ritgerðasafn Eftir prðfessor Richard Beck Sigurður Guðmundsson: Heiðnar hugvek j ur og mannaminni. Útgefandi Tónlistarfélag Akureyr- ar, 1946. Það er alkunna, að sumir rit- höfundar minka við það að kom ast í bók, en aðrir stækka. Sig- urður Guðmundsson, skólameist ari, er tvímælalaust í seinni flokknum. Ritgerðir hans, sem birtst hafa undanfama áratugi í blöðum og tímaritum, hafa ver ið þannig vaxnar um frumleik í hugsun og þróttmikinn persónu legan stíl, að eigi gat hjá því garið, að þær drægju að sér at- hygli bókmenntahneigðra les- enda og færðu þeim heim sann- inn um það, að þar væri á ferð snjall og sérkennilegur rithöf- ur. Þetta verður enn augljósara hverjum þeim, sem les með verð- ugri gaumgæfni hið gagnmerka ritgerðasafn Sigurðar skólameist- ara, Heiðnar hugvekjur og mannaminni, sem Tónlistarfélag Akureyrar gaf út síðastliðið haust. Hafi félagið heilt að svo þörfu verki verið, og fagnaðar- efni má það vera unnendum góðra rita og sanngöfgandi, að Tónlistarfélagið mun hafa i hyggju að gefa út framhald af ritgerðum og ræðum skólameist- ara, en þar eru, meðal annars, nær allar hinar efnismiklu og tímabæru hugvekjur, sem hann hefir flutt vi ðskólaslit Mennta- skólans á Akureyri, og eiga sam- merkt um djúpskyggni og víð- áttu í efnismeðferð, samfara kjarnmiklu og auðugu málfari. Ritgerðasafnið, sem út er kom- ið, er mikil bók, nærri því 350 blaðsíður, í stóru broti, og hafa allar ritgerðirnar, nema ein ver- ið prentaðar áður, en þær eru rit aðar á árunum 1911—1945. Bók- inni er skipt í fimm kafla, eftir efni. Fyrst er “Bókmenntabálkur” og eru þar ritgerðir um mörg ís- lenzk öndvegisskáld: Bjarna Thorarensen, Jón Thorarensen, Steingrím Thorsteinsson, Step- han G. Stephansson, Matthías Jochumsson, Þorstein Erlingsson, Einar Benediktsson og Davíð Stefánsson. Ritgerðir þessar eru misjafn- lega ítarlegar, en .',Har bera þær órækt vitni gjörhyggi. höfundar- ins, skilningsríkri túlkun hans á viðfangsefninu, verkum, ævi og lífshorfi skálda þeirra, sem um er að ræða. Sérstöku ástfóstri hefir hann tekið við Bjarna Thor arensen, því að auk hinnar prýði legu ritgerðar í þessu safni, hef- ir hann samið tvær aðrar um- fangsmiklar og djúpúðugar rit- gerðir um þann stórbrotna and- ans mann, þaj sem eru erindi þau “Læknakviður Bjarna Thor- arensens” og “Líðan og ljóðagerð Bjarna Thorarensens á Möðru- völlum”, er höfundur flutti í Há- skóla íslands og birt voru í erinda safninu Samlíð og saga. — Mun það eigi mælt út í bláinn, að nokkur andlegur skyldleiki sé með þeim Sigurði skólameistara og Bjarna Thorarensen, um skap gerð, innsýn og listkennd, og um lífsskoðanir. Bráðskemmtileg og enn í góðu gildi er ritgerðin um Jón Thor- oddsen, og sama máli gegnir um greinina “Matthías áttræður”. — Ritgerðin um Davíð Stefánsson fimmtugan er fyrsta ítarleg grein argerð, sem um skáldið var sam- in, og snjöll að sama skapi, enda mun lengi til hennar vitnað. í bókmenntaritgerðum þessum, sem annarsstaðar í ritinu, bregð- ur víða fyrir björtum leiftrum skáldlegs stíls og mælsku, t. d. í upphafsmálsgreinum hinnar glöggu og samúðarríku ritgerðar “Þorsteinn Erlingsson og Eiður- inn”: “1 ljóðagerð hans má líta tvo strauma, annan grettan sem úfið jökulvatn, hinn blíðan sem blátt og brosandi bergvatn. í skáld- skap hans skiptast á heiftþrung- in andófskvæði og unaðslegustu vorsöngvar og ástaljóð. í andófs- kvæðum sínum spýr hann eftir megni eldi og eitri að guðum og þjóðfélagsskipun vorra tíma'og myndi glaður sprengja í loft upp örkina, eins og Ibsen kveður. — Hann getur varla kallast einham ur í kveðskapnum. Þá er honum rennur reiðin og móðurinn, og hann fer að syngja um vor og ást ir, getur ekki elskulegra og yndis legra ljóðaskáld. Vorið í náttúr- unni og vorið í mannssálinni eru ódáinsefni hans. Þar nær hann sér bezt niðri, þau lögin leikur hann af mestri list og unun. Og svo undarlegt sem það er, yrkir hann ekki um byltingar vorsins, þegar það fer með f ;di og æði um ríki vetrarins og veltir honum úr völdum með hlákum og leysing- um, brauki og bramli, heldur syngur hann um hið glaða vor, vorið um Jónsmessuleytið, þeg- ar öll skepnan nýtur hita þess og gróanda. “Vinur bezti var þar þó vorið þitt í grænum skóg”. Ljóðdís hans á sér ekki betri vin en vorið — nema ef vera skyldi ástir og ástar-ævintýri. En það vill svo til, að vor og ástir eru sem samvaxnir tvíburar í ljóðum hans. Ástarævintýr kvæða hans gerast flest á vorin. Yfir þeim ljómar og blikar heið- ur himinn. Hann er eitt hið bezta vor- og ástaskáld, er ort hefir á íslenzka tungu”. Annar kafli bókarir^.^r nefnist “Mannaminni”, og eru þarlýsing ar á mörgum þjóðkunnum for- ystumönnum á ýmsum sviðum: Benedikt Sveinssyni sýslumanni, dr. Valtý Guðmundssyni, Her- manni Jónassyni skólastjóra, Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka, Gesti Einarssyni á Hæli, Jóni Ófeigssyni yfirkennara, Ólafi Björnssyni ritstjóra og Jóni Jóns syni í Stóradal. Einnig er þar minnst tveggja annara manna, er eigi voru eins víðkunnir, en eigi að síður jafn frásagnarverðir, þeirra Guðjóns Baldvinssonar kennara og Þorsteins Arnljóts- sonar. Að öllum þessum ritgerðum er mikill fengur, svo heilsteyptar eru þær myndir, sem þar er brugðið upp, grafið djúpt til kjarnans í lunderni þeirra manna sem greinarnar fjalla um, örlaga þræðir og skapþættir raktir af mikilli glöggskyggni. Sérstaklega ríkar í huga munu þó mörgum verða hinar ítarlegu, hispurs- lausu en þó hjartahlýju lýsingar höfundar á Hermanni skóla- stjóra, miklum hæfileikamanni, sem er þó átakanlegt dæmi þess, að gæfa og gervileiki eiga hreint ekki ávalt samleið, og á Þorsteini Arnljótssyni — “Ivar beinlausi endurborinn” — öðrum fágætum hæfileikamanni, sem örlögin léku grátt, en hóf sig með miklum hetjuskap og andans orku yfir hinar örðugustu aðstæður, svo bæði er til lærdóms og fyrir- myndar; um það fer höfundur þessum fögru og markvissu orð- um í greinarlok: “Saga Þorsteins Arnljótsson- ar er örlagasaga, einstök í árbók- um þjóðar vorrar. Hún geymir stórmerkilegan fróðleik um mannlegt líf. Því hefi ég sagt eins rækilega frá henni og mér var unnt. Hún sýnir, að lífið á margra kosta völ. Þótt þetta eða hitt bregðist, má í staðinn fá ann- að, er gagna má. Hér veltur mest á sjálfum þér, á “innra manninum”, á elju þinni og fund vísi, að þú veljir þér verkefni'eft ir kröftum og allri aðstöðu. Harð- úð lífsins sviptir þig heilsu og líkamsmætti, bindur þig við rúm- ið langa ævi. Hún hrífur að mestu frá þér bækumar, þótt þær séu sætasta ljós og yndi lífs þíns. Hún bannar þér miskunnar- laust það, sem sárast er alls, að lifa eftir köllun þinni og æðsta eðli. Þótt allt þetta sé harðri hendi frá þér tekið, getur líf þitt orðið sjálfum þér, vandamönn- um, grönnum og þjóðfélagi mik- ils virði, betur lifað en ólifað. — Þótt sitthvað verði Þorsteini Arnljótssyni, sem oss öllum, til foráttu fundið, er það hróður hans, að vanheill flytur hann í raun og verki svo heilsusamlega kenning. Er það mikill ógæfu- maður, sem lifað hefir slíku lífi? Og mörgum er þörf á að kynnast lífssögu hans og fagnaðarboð- skap þeim, er hún, að sumu leyti, flytur hverjum þeim, sem hugsa vill. Þorsteinn Arnljótsson á marga raunabræður, þótt ekki beri eins á böli þeirxa og harmi hans. Við heiðavötn lífsins getur margan svan, er una verður ævi við brotna vængi og bilaða sundfæt- ur”. Góðu heilli, verða konurnar eigi heldur út undan í hinum gjörhugulu og faguryrtu mann- lýsingum höfundar. 1 kaflanum “Manrúnir” minnist hann eftir- farandi merkis- og ágætiskvenna: Frú Önnu Claessen, frú Margrét ar Magnúsdóttur Ólsen, frú Ást- hildar Thorsteinsson og frú Þór- unnar ólafsdóttur. Á állum grein um þessum er handbragð djúp- sæis- og frásagnarsnilldar. Á um- ræddum greinaflokki er einnig erindi það um Rúnu í Barði — frk. Kristrúnu Júlíusdóttur — hina dyggu og hollu ræstinga- konu Menntaskólans á Akureyri, er höfundur flutti við skólaslit vorið 1937 í tilefni af 25 ára starfsafmæli hennar. Er erindið -hugsun hlaðið og eggjandi til umhugsunar. Djúp hlýja og klökkvi svip- merkir ræður þær og greinar sem Sigurður skólameistari helg ar minningu nemenda sinna og birtar eru í kaflanum “Á nem- enda moldum“. Fer honum þar einnig, sem mörgum skáldum og spekimönnum, að honum opnast útsýn og innsýn víða vegu um völundarhús mannlífsins og til- verunnar, er hann svipast um af sjónarhól grafarinnar. “Heiðnar hugvekjur” nefnist lokaþáttur ritsins, og eru þær þessar: / “Falleg nöfn”, “Gömul bréf”, “Skólar í hugsjón og fram- kvæmd” og “Fyrir minni ís- lands”. Sverja þær sig í ætt um frumleik og djarfar hugsanir og um kjarnmikið mál. f fróðlegu lokaspjalli gerir Sigurður skólameistari, meðal annars, nokkura grein fyrir því, hverri aðferð hann hafi beitt í mannlýsingum sínum, og far- ast þannig orð: “Eg hefi farið þar að, eins og ég kveðst hafa farið í grein minni um Ólaf Björnsson, tekið fram eftirtektarverðan þátt og merki- legan í fari þeirra og skaphöfn, eftir því sem ég kom auga á slíkt. Slíkt lag verður og að litlu leyti að hafa í lýsingum á konum eða mönnum, miðmagna frásögn, auðkenning og skýring kringum drottnandi eiginleika söguhetjunnar, sýna ríkasta meg in hennar eða sjálfsmegin, eftir því sem höfundi er framast unnt”. Óneitanlega hefir höfundi orðið þessi aðferð ávaxtadrjúg, því að honum hefir tekist að gera mannlýsingar sínar bæði lifandi og minnisstæðar, og ein- mitt vegna þess, að hann bregð- ur björtu ljósi á andstæðurnar í persónuleika þeirra mann og kvenna, sem hann lýsir, kosti þeirra og galla, þó að hitt leyni sér eigi, að honum er ljúfara að dvelja við kostina. Hefir hann einnig, eins og hann segir sjálf- ur í lokaspjalli sínu, aðeins lýst þeim, sem gæddir voru “verð- mætum megin-eigindum” í rík- um mæli, voru kjarnmenn og konur að manndómi. Og gróði er það að kynnast slíkum mönnum og konum í skilnings- og samúð- Á slóðum Vesíur-Íslendinga II. Ingólfsbærinn á Nýja-íslandi Niðurlag. Það eru nú liðin nær 72 síðan íslendingar reistu fyrstu bjálkakofana á Gimli. Nú búa þar um 1500 manns, og enn er talsverður meiri hluti íbúanna íslenzkur. En fólki af öðrum þjóðum fer þar fjölgandi eins og víðar á Nýja-íslandi, einkum fólki ættuðu úr Austur- og Mið- Evrópu. Kannske fer svo, þegar fram líða stundir, að það taki þann sess, er íslendingar hafa þar skipað fram að þessu. Borgarstjórinn á Gimli er ís- lenzkur, eins og raunar allt bæjarráðið. Hann heitir Bjarni Egilsson, ættaður . úr Ölfusinu, og er faðir hans, Egill Egilsson enn á lífi á Gimli. Móðir hans var Guðveig Jónsdóttir úr Mýr- arsýslu. Eg var svo heppinn að njóta leiðsagnar Bjarna og konu hans, Guðrúnar, dóttur Odds Árnasonar frá Hringdal á Látra strönd, um bæinn og umhverfi hans á fögrum sólskinsdegi. Þó að Gimli sé inn á miðju meginlandi Ameríku, er hann þó fyrst og fremst útgerðarbær. Hann stendur á strönd hins mikla Winnipegsvatns, og það- an leita fiskimenn með bátana sína og veiðarfæri um vertíðir allt norður í vatnsbotn. Fiskur sá, sem einkum veiðist í vatn- inu, er hvítfiskur, pikkur og pækur — fiskitegundir er við þekkjum ekki heima. Áður veidd ist þar líka gullauga, lítill, lit- fagur fiskur, sem nú er að mestu horfinn. , Aðal-hvítfiskvertíðin hefst 9. júní og stendur til 15. ágúst. — Fiskimenn hafast þá við í bæki- stöðvum sínum langt norður frá, en senda fiskinn með flutninga- skipum suður á bóginn. Haust- vertíð hefst 1. sept. og stendur þar til vatnið tekur að leggja. Þá er veiddur pækur og pikkur, en hvítfiskveiði er bönnuð. — Loks kemur svo vetrarvertíðin. Hún hefst, þegar ís er orðinn traustur og endar 15. marz. Þá er veitt í net, sem skotið er und ir ísinn. Bátarnir, sem notaðir eru við arríkiun lýsingum höfundar, en það er höfuðeinkenni hans, að hann brýtur viðfangsefnin til mergjar; jafnvel verða honum mannlýsingarnar tilefni margvís legra athugana um mannlífið og mennina, sem glöggva oss sýn og auka samúð vora með sam- ferðamönnunum á lífsleiðinni. Einhverjum kann að koma heiti bókarinnar kynlega fyrir sjónir, en um það hefir höfund- urinn þetta að segja í lokaspjalli sínu: “ Það er ekki af kala til kristinnar trúar né kenningar kristinnar kirkju, að ég kalla hugvekjur mínar heiðnar, held- ur af hinu, að ég vildi ekki villa á mér mark né einkenni. Eg get hvorki í lífsskoðun minni né líf- erni kallað mig kristinn mann. Eg hefi og fáum kynnzt á lífs- leiðinni, er mér virðast verð- skulda þvílíkt nafn”. Mesta ber hreinskilni höfund- ar og hispursleysi í þessum efn- um. En hvað sem því líður, þá er hin hetjulega og drengilega lífsskoðun, sem ber uppi þessar ritgerðir hans, áreiðanlega góðr ar og göfugrar ættar, af sama stofni sem siðrænn og lífrænn boðskapur sá, er höfundur kristn innar flutti. Manndómi og mann gildi er hér skipað í öndvegi, og samúð. Það er hátt til lofts og vítt til veggja í musteri lífs- speki höfundar, heiðríkja og hreinviðri. Því eru þessar rit- gerðir hans vekjandi lestur og göfgandi. Ytri búningur bókarinnar er góður; prýðir kápuna teikning eftir Örlyg listmálara, son Sig- urðar skólameistara. Fengur er að mannanafnaskránni aftan við bókina, en ljóður á svo merku riti, að efnisyfirlit vantar. ár I veiðarnar, eru vélbátar, 35—40 feta langir.. Alls munu um 60 slíkir bátar gerðir út frá Gimli. Mjög margir þeirra eru eign ís- lendinga, sem vinna þá oft sjálf- ir að veiðinni og langoftast eru skipstjórarnir íslenzkir. Þegar vel fiskast og fiskiverð er þolanlegt, geta fiskveiðarnar gefið góðan arð. En síðustu ver- tíðir á Winnipegvatni hafa ver- ið lélegar. Ekki ber mönnum saman um það, hvort fiskur sé að ganga til þurrðar. Sumir segja, að fiskigangan þverrist og aukist til skiptis. En aðra uggir, að fiskur sé orðinn minni í vatninu en áður. Ýmsar höml- ur eru á veiðiskapnum, og sér- stakt leyfi þarf til þess að gera þar út bát. Áður fyrr var tals- vert klakið út í vatnið, en það féll niður fyrir röskum áratug, og hefir ekki verið tekið upp síðan, hvort sem það kann ein- hverju að valda um léleg afla- brögð síðustu vertíðir. Þótt útgerðin sé höfuð-at- vinnuvegurinn, eru ýmsar at- vinnugreinar aðrar þýðingar- miklar fyrir bæinn. Þar eru t.d. myndarlegar verzlanir, margar þeirra helztu eign íslendinga, og þar er nokkur iðnaður í sam- bandi við fiskinn, er berst þar á land. Þar er einnig stórt og myndarlegt gistihús, er sonur og tveir bræður Stefáns heitins Sigurðssonar Hnausakaupmanns reistu, en seldu nýlega mönnum af Austur-Evrópuættum. Loks má geta þess, að skammt frá Gimli er bezti flugvöllurinn í Manitoba, svo til nýgerður, og hefir fjann sjálfsagt verið eigi lítil fjárhagsleg lyftistöng fyrir grannbyggðirnar, enda hefir fólkið á Gimli fjölgað stórum síðustu ár. Þó að Gimli sé að jafnaði kyrrlátur og friðsamur bær, er þar þó mikið um að vera vissa tíma árs, einkum þegar aðkomu fólk flykkist þangað í sumarbú- staðahverfin, sem þar eru og baðströndin morar af fólki og fiskimennirnir koma heim norð- an úr vatnsbotni að vertíðmni lokinni. Þá lyftir fólk sér upp eins og gengur og gerist, blótar kannske Bakkus eitthvað dáht- ið og varpar frá sér önn og á- hyggjum. Og þá er jafnvel ekki útilokað, að kjarnyrt staka fjúki manna á milli að íslenzkum hætti yfir glasi af góðu öli. — Kannske verður seinna tækifæri til þess að kynna lesendum Tím- anns eitthvert af þessum kjarn- yrtu og hljómmiklu vísum Ný- íslendinga. Þessi grein gefur ókunnugum vissulega litla hugmynd um Gimli, en vera má að í henni séu einhver atriði, er fólk hafi dálitla ánægju af. En áður en ég lýk þessum þætti, verð ég að minnast tveggja stofnana á Gimli. Önnur þeirra er hinn myndarlegi skóli Gimlisbúa, er Jón Laxdal, sonur Gríms Lax- dal faktors frá Vopnafirði og Akureyri, einn af hinum mörgu og glæsilegu Laxárdalssystkin- um í Vesturheimi, hefir stjórn- að síðustu ár og margir íslenzk- ir kennarar starfa við. Hitt er elliheimilið Betel, þar sem svo margt gamalla íslend- inga er á og hefir haft athvarf að loknum starfsdegi sínum. — Betel var upphaflega byggt 1915, en nýlega var reist stór viðbygg ing fyrir gjafir frá Hirti Þórðar- syni í Chicago, hinum víðkunna landa, er var allt í senn iðju- höldur og uppfinningarmaður, bókamaður og aðdáandi fornra mehningarerfða. Forstöðukona heimilisins er Margrét Sveins- son, og á heimilinu eru um 60 aldraðir íslendingar. Úti á flötinni blakti íslenzki fáninn á stöng. Gesturinn kann að halda að þetta sé aðeins ytra tákn. En þegar inn er komið mun hann fljótt finna, að ís- lenzki fáninn blakti líka efst á stöng í huga hvers manns er þarna býr. Það rifjast upp fyrir mér saga er ég hefi einhvern- tíma heyrt. Menn voru að taia um gamla íslenzka konu í á- heyrn Gunnars Björnssonar rit- stjóra í Minneapolis. Einhvern hafði orð á því, að þessi kona hefði aldrei komið til íslands síðan hún hvarf þaðan á æsku- aldri. En þá svaraði Gunnar: “Hún er heima á íslandi á hverri nóttu”. Þetta grunar mig að segja megi um flest aldraða fólkið í Betel. Það er heima á íslandi í öllum sínum draumum, bæði í vöku og svefni. Það yrði of langt mál að geta að þessu sinni allra þeirra, sem ég hefi talað við í Betel. En ég get ekki stillt mig að minnast að síðustu komu minnar í fáein herbergi þar. Eg gleymi því til dæmis aldrei, er ég kom inn til Ásdísar Hinriksson, fyrstu for- stöðukonu elliheimilisins, og vixti fyrir mér myndirnar á veggjunum í herbergi hennar — myndir af föður hennar, Sigur- geir í Svartárkoti í Bárðardal, myndir af bænum hennar og æskuheimili. Eg gleymi ekki heldur komu minni til Víglundar Vigfússonar frú Úthlíð og konu hans, Jónínu Sigríðar Jónsdótt- ur frá Breiðabólsstað í Reyk- holtsdal, — hún var að lesa þjóðsögur Jóns Árnasonar, þeg- ar ég kom. Mér kæmi það ekki á óvart, þótt einhver hefði verið að lesa Vídalínspostillu í því húsi, þótt ég sæi það ekki. Eg gleymi ekki heldur handtaki Júlíusar Davíðssonar frá Jódís- arstöðum og konu hans, Soffíu Jakobsdóttur frá Seyðisfirði. Og mér verður lengi sem ég sjái þau fyrir mér Sigvalda Nordal, spil- andi á harmoniku, og Elínu, þriðju konu hans, Kjartansdótt- ur frá Holti undir Eyjafjöllum. “Hún er svo andskoti ung”, sagði Sigvaldi. “Hún er ekki nema sextug. Hún getur farið heim, þegar ég fell frá”. Og þannig gæti ég þulið nöfn manna, er vekja í huga mér ó- gleymanlegar myndir af lang- ferðafólki, er lifir heima á æsku stöðvum sínum, þótt það sé í fjarlægri heimsálfu — Jóns Sig- urðssonar frá Borg í Hornafirði, er naut þeirrar ánægju að koma heim ’37, Guðna Brynjólfssonar, Grímsnesingsins gráskeggjaða, sem nú er kominn á tíunda tug- inn, Árna Þórðarson, hins hæg- láta og athugula Austfirðings, frænda Eysteins Jónssonar ráð- herra, Kristjönu Bjarnason, dóttur Sigurðar Skagfirðings Jóhannessonar, sem hugljúfast er að minnast veru sinnar í Höfða hjá “séra Gunnari”, Árna Gottskálkssonar úr Kelduhverfi, er kom tíu ára til Ameríku, og Margrétar Árnadóttur frá Brunnastöðum á Vatnnsleysu- strönd. Þannig mætti lengi telja, en það tjáir ekki að þylja þá nafna runu alla. Og því slæ ég botn- inn í þennan þátt, með þeirri ósk að fólkið heima gæti látið sig - óra fyrir því, hvaða andi ríkir meðal gamla fólksins í Betel. Tíminn, 18. júlí. J. H. — Framh. “Eg ætla að láta þig vita”, sagði ungur eyðsluseggur, „að ég hefi eignazt peninga mína með miklu erfiði”. “Og ég, sem hélt að þú hefðir erft þá eftir hann frænda þinn sáluga”. “Það er líka rétt; en ég varð að leggja hart að mér til þess að ná þeim úr höndum lögfræðing- anna”. -f Meðal hinna mörgu orða, sem haldið er fram að orðið “cock- tail” sé dregið af, telja menn “cockale” — „hanaöl“ — líkleg- ast. Það er heiti á blöndu af vín- anda og bitter, sem eitt sinn var gefin hönum, sem verið var að æsa undir hanaat.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.