Lögberg - 22.04.1948, Page 1
PHONE 21 374
^CicatveTS
tíáS*
-*• LttU^^^^ S^'-' A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21374
A \>"U>A
^CUtttv*
A Complele
Cleaning
Inslilulion
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 22. APRÍL, 1948
NÚMER 17
Lögberg árnar ísienzka mannféiaginu beggja vegna hafs góðs og gleðilegs sumars
Hinn kristilegi Demokrataflokkur
vinnur frœgan kosningasigur á italíu
S)ðastliðinn sunnudag f óru
fram kosningar til beggja deilda
ítalska t þjóðþingsins, og lauk
þeim með glæsilegum sigri fyrir
hinn kristilega Demokrataflokk
undir forustu Gasb'eri forsætis-
ráðherra; kosningar þessar, þær
fyrstu eftir að lýðræðisstjórn
var sett á fót á ítalíu, voru sótt-
ar af svo miklu kappi, að um 90
af hundraði kjósenda greiddu at-
kvæði; stjórnarflokkurinn fékk
nálega 70 af hundraði allra
greiddra atkvæða.
Kosningar þessar snerust upp
í tilfinnanlegan ósigur fyrir
Kommúnista, er um eitt skeið
töldu sér sigurinn alveg vísan.
Yfir höfuð verður ekki annað
sagt, en áminstar kosningar færi
friðsamlega fram.
Harður í horn
að taka
General Lucius Clay, umboðs
maður amerískra hernámsvalda
í Þýzkalandi, segist láta sig hót-
anir af hálfu Rússa litlu skipta,
og í þessu sambandi komst hann
svo að orði í Frankfurt þann
14. þ. m.:
“Eg tel víst að Rússar geri alt,
er í valdi þeirra stendur, til þess
að flæma okkur, umboðsmenn
Vesturveldanna, burt úr Berlín;
en ég get fullvissað þá um það,
að þeim verður ekki kápan úr
því klæðinu; við höfum alvarleg
um skyldum að gegna í Berlín
og hverfum eigi þaðan fyr en
þeim hefir verið fullnægt.”
General Clay var spurður um
það, hvort nokkuð væri hæft í
því, að Rússar og bandaþjóðir
þeirra hefðu flutt út úr Þýzka-
landi kynstrin öll af þýzkum
vopnabúrum; þessu svaraði hann
neitandi.
Afnám dauðadóms
Um miðja vikuna, sem leið,
samþykti neðri málstofa brezka
þingsins tillögu um afnám dauða
dóms um fimm ára tímabil til
reynslu; verkamannaflokkurinn,
er nú situr að völdum á Bret-
landi, hefir til margra ára haft
þetta á stefnuskrá sinni; langar
og heitar umræður urðu í þing-
inu um málið, er orsökuðu tals-
verðan klofning innan flokk-
anna. Þeir Attlee forsætisráð-
herra og Winston Churchill for-
ingi stjórnarandstöðunnar,
greiddu báðir atkvæði gegn til-
lögunni.
Flugslys
Síðastliðinn fimtudag fórst
amerísk farþegaflugvél, er hún
var að freista lendingar á
Shannon-flugvellinum á írlandi;
eldur kom upp í flugvélinni og
örann hún á skömmum tíma til
kaldra kola; þrír tugir manna
biðu bana, en einn farþegi komst
lífs af.
Plugvél þessi var á leið frá
London til New York.
Frumvarp talað í hel
Á miðvikudaginn í fyrri viku
kom til umræðu í sambandsþing
inu frumvarp, er Willard Lacr-
oix, Liberal-þingmaður frá
Quebec hafði komið á dagskrá,
og að því laut, að útiloka með
lögum kommúnistaflokkinn í
Canada; var flutningsmaður
næsta orðhvass og kvað lýðfrels
inu í þessu landi hættu búna, ef
kommúnistum lánaðist framveg
is að halda uppi látlausum á-
róðri; það væri synd að segja að
frumvarp þetta hefði verið þag-
að í hel, því það ,var hvorki
meira né minna en talað í hel;
ýmsir þingmenn úr Liberal- og
C.C.F.-flokkunum tóku*til máls
og lýstu andúð sinni á starfsemi
kommúnista, þó þeir á hinn bóg-
inn lýstu því yfir, að þeir sæi
sér ekki fært að greiða atkvæði
með frumvarpinu.
Joseph Bradette, Liberalþing-
maður fyrir Cochrane kjördæm-
ið, komst þannig að orði:
“Ef tilfinningar rpínar hefðu
yfirhöndina, myndi ég mæla með
framgangi frumvarpsins, en
vegna þess að ég er kristinn
Canadaþegn, verð ég fremur að
hlíta rökum en tilfinningunum
einum”.
Angus Maclnnis, C.C.F., Van-
couver East, mælti á þessa leið:
“Eg fyrirlít allt það, sem kom
múnistar halda fram og berjast
fyrir, en ég er mótfallinn frum-
varpinu vegna þess, að það er
grundvallað á heimspeki kom-
múnista sjálfra, að allt, sem
manni fellur ekki skuli kæft og
kveðið niður”.
Sérstæður
stjórnmálaferill
Síðastliðinn þriðjudag hafði
forsætisráðherrann í Canada,
Mr. King, gengt lengur stjórn-
arforustu, en nokkur annar mað
ur í þingsögu brezka stórveldis-
ins, og komist fram úr Sir Ro-
bert Walpole, er uppi var fyrir
200 árum, og gegndi forsætisráð
herraembætti á Bretlandi í meir
en 20 ár.
I tilefni af þessum söguríka
atburði, bárust Mr. King heilla-
óskaskeyti frá fjölda þjóða, auk
þess sem ráðuneyti hans, Liber-
alflokkurinn og forustumenn
hinna annara þingflokka, hyltu
hann með ræðum og ávörpum.
Nokkra í^ndanfarna daga tók
• Mr. King ekki þátt í þingstörf-
um vegna lasleika, en nú er hann
að sögn, kominn til fullrar
heilsu aftur.
Heklugosið á frímerkjum
Póstsstjórnin hefir ákveðið, að
gefa út ný frímerki og eiga þau
að bera mynd af Heklugosinu.
Stefán Jónsson teiknari hefir
verið fenginn til þess að gera
myndirnar, og mun hann gera
mismunandi myndir af eldgos-
inu. Mál þetta er ennþá í undir-
búningi og þess vegna ekki hægt
að segja um, hvenær frímerki
þessi verða gefin út.
Verðgildi frímerkjanna verður
12 aura, 25, 35, 50 og 60 aura. —
Auk þess einnar krónu og tíu
krónu. —
Boðin til Islands
| Rétt þegar blaðið var
| að verða fullbúið til
prentunar, barst rit-
stjóra þess sú góða
frétt, að þeim Dr. Sig-
urði Júlíusi Jóhannes-
syni og frú, væri boðið
í heimsóskn til íslands
í sumar. — Að heim-
boðinu standa ríkis-
stjórn íslands og Stór-
stúka Goodtemplara.
Enn í fararbroddi
Við nýafstaðnar prófkosning-
ar Republicana í Nebraska-rík-
inu vegna næsta forsetaefnis
þeirra, varð Harold E. Stassen
lang hlutskarpastur; næstur
honum kom Thomas Dewney, en
þar næst Robert A. Taft.
Samvinna óhugsanleg
Dr. J. N. Haldeman, leiðtogi
Social Crediflokksins í Saskatc-
hewan, telur það ekki koma til
mála, að veita Liberöllum frem-
uf en C.C.F.-sinnum lið í næstu
fylkiskosningum, því Liberalar
séu grímuklæddir sósíalistar;
telur Dr. Haldeman það fyrstu
skyldu Social Credit-stefnunnar
að berjast á móti sósíalisma
hvar, sem hans verði vart.
Vatnavextir og tjón
Undanfarna daga hefir Ohio-
fljótið flætt yfir bakka sína og
orsakað geisitjón í eftirgreind-
um ríkjum: Kentucky, Penn-
sylvania, West Virginia, Indiana
og Ohio; um þúsundir fjöl-
skyldna standa uppi heimilis-
lausar í áminstum ríkjum.
Tekinn af lífi
Árla morguns síðastliðins
föstudags, var Lawrence Deacon
tekinn af lífi í Headingly fanga-
húsinu, eftir ftrekaðar tilraunir
af hálfu verjenda hans, fjölda
einstaklinga og mannfélagssam-
taka, til að koma í veg fyrir af-
tökuna; voru þá.liðin tvö ár frá
þeim tíma, er Deacon var ákærð
ur um að hafa myrt íslenzka bíl-
stjórann, Jóhann Johnson.
Tvenn réttarhöld voru haldin
yfir Deacon vegna morðkær-
unnar, og var hann í báðum til-
fellum fundinn sekur af kvið-
dómi.
Á laugardagsmorguninn birti
morgunblaðið Winnipeg Citizen
Deacons síðasta bréf , þar sem
hann þakkaði alla aðstoð sér
veitta og lýsti enn á ný yfir sak-
leysi sínu.
Almennar
heilsutryggingar
Nú er talið nokkurn veginn
víst, að sambandsstjórn leggi
fram í yfirstandandi þingi frum-
varp til laga um almennar heilsu
tryggingar í Canada. Mun King
forsætisráðherra beita sér fyrir
um framgang þessarar mikil-
vægu löggjafar.
Þirigrof og nýjar
kosningar
Rétt áður en Ontarioþingið
lauk fundum í fyrri viku, gerði
Drew forsætisráðherra það lýð-
um ljóst, að þing yrði rofið á
næstunni og nýjar kosningar
færi fram þann 7. júní næstkom-
andi. —
Deyr af slysförum
Sá atburður gerðist á miðviku
dagskvöldið í fyrri viku, er þrír
C.C.F.-þingmenn í fylkisþinginu
í Ontorio, voru á leið frá kvöld-
verði til þingfundar í Toronto,
að bíll, sem ekið var, að sögn,
næáta ógætilega, rakst á tvo
þeirra og stórskaddaði báða; —
menn þessir voru þeir William
Robertson þingmaður frá Hamil
ton og Garfield Anderson þing-
maður fyrir Fort William; þeir
vorú þegar fluttir á sjúkrahús
og uppskurður gerður á Mr. Ro-
bertson vegna áverka á höfði;
hann lézt nokkru síðar; talið er
að Mr. Anderson sé á sæmileg-
um batavegi.
Þriðji C.C.F.-þingmaðurinn,
William Docker frá Kenora, vai
spölkorn á undan hinum og slapp
ómeiddur. — Ungur guðfræði-
nemandi ók bílnum, er orsakaði
slysið.
Frægur drengjakór
vill heimsækja Ísland
“Wiener Sangerknaben”, —
drengjakórinn heimsfrægi, hefir
boðist til þess að koma hingað til
lands í sumar.
í júlí í sumar verður kórinn á
ferð um Norðurlönd og hefir
stjórn hans boðið Tónlistarfléag-
inu að hann komi hingað til
Reykjavíkur og syngi á vegum
þess hér. — Drengjakór þessi er
einn frægasti í heimi, var stofn-
aður á dögum tónskáldsins Bachs
Tónlistarfélagið mun gera allt
sem í þess valdi er, til þess að
kórinn geti komið hingað.
Vísir, 12. marz.
Bögglapóstur
flugleiðis frá
Bandaríkjunum
Aðstoðar póstmálastjóri Banda
ríkjanna, Paul Aiken, tilkynnti
fyrir skömmu, að hann hefði
sent skeyti til póststjórna 32
þjóða — þar á meðal til íslands —
og farið fram á að þær að opnuð
yrði bögglapóstþjónusta frá
Bandaríkjunum til viðkomandi
landa.
“Um leið og við höfum fengið
samþykki einhvers þessara landa
um að það vilji taka á móti
bögglapósti flugleiðis sagði
Aiken, “erum við tilbúnir að
hefja slíka þjónustu. Það er mik
il þörf fyrir slíka póstþjónustu
og ég er sannfærður um, að und
ir eins og hún er fyrir hendi
munu Bandaríkjaþegnar not-
færa sér hana og senda böggla
í flugpósti til útlanda”.
Mr. Aiken sagði, að tekið yrði
við bögglum í flugpóst í öllum
pósthúsum Bandaríkjanna.
Mbl., 28. marz.
Kominn til ára sinna
Maður að nafni Jakob Peter-
sen, finskur að uppruna, búsett-
ur að Rocky Mountain House í
Albertafylkinu, varð 103 ára
þann 16. þ. m., og kennir sér
hvergi meins; mestan hluta starfs
æfi sinnar hefir Mr. Petersen
unnið að timburtekju og í nám-
úm, og þakkar það stritvinnu
hve góðrar heilsu hann nýtur
enn.
Sektaðir vegna
lítilsvirðingar
John L. Lewis forseti linkola-
námumanna í Bandaríkjunum,
hefir verið fundinn sekur fyrir
litilsvirðingu gagnvart réttinum,
og dæmdur til að greiða því op-
inbera $20.000 dala sekt; námu-
mannasamtök hans þurfa að
gieiða $1,400,000. Dómi þessum
verður áfrýjað.
Forsendur dómsins eru bygðar
á því, að Mr. Lewis hafi þver-
skallast við að hlíta úrskurði
dómstólanna um að afturkalla
verkfallið samkvæmt fyrirmæl-
um Taft- Hartley-laganna.
0r borg og bygð
Dr. Richard Beck, vara-ræðis-
maður Islands í Norður-Dakota,
flytur ávarp á samkomu íslend-
ingafélagsins í Fargo og Moor-
head, miðvikudagskvöldið 28.
apríl. —
♦
Mr. Pétur Thorsteinsson frá
Waynyard var staddur í borg-
inni í byrjun yfirstandandi viku.
“t-
Gefið til Sunrise Lutheran
Camp
Mr. og Mrs. John Jonasson,
Winnipeg, $25.00; Mr. og Mrs.
Oli Stephanson, Vancouver,
$20.00, gefið í minningu um Dr.
August Blondal. — Með innilegu
þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
•f
Frú Elínborg Lárusdóttir rit-
höfundur, kom til borgarinnar
síðastliðinn mánudag, og er til
heimilis hjá Mr. og Mrs. Ólafur
Pétursson, 123 Home Street. —
Eins og áður var skýrt frá, mun
frú Elínborg dvelja hér um slóð-
ir nálægt sex vikna tíma, og
verður hún Vestur-íslendingum
aufúsu gestur.
♦
Til ritstjóra Lögbergs
Af því að afmælið mitt ber
upp á sumardaginn fyrsta í ár
eftir mánaðardegi 22. apríl, en
eftir vikudegi er ég fæddur
fyrsta sunnudag í sumri, sem
var mikill uppáhaldsdagur hjá
mörgu af gamla fólkinu, setti ég
að gamni mínu saman þessa
vísu:
í Fjósholti ég fæddur var,
fátækleg var stofan þar.
1 Svartárkoti á sunnudag
söng ég mitt hið fyrsta lag.
Gleðilegt sumar!
A. S. Bardal.
A. S. Bardal
Lögþerg óskar afmælisbarninu
gleðilegs sumars og framtíðar-
heilla.
Atvika vísur
Prestur dómfellir
Söng þó hvessi’ um syndug grey,
sjaldan blessast hrokinn:
Dóms-orð þessi endast ei
yfir messu-lokin.
Rím
Stundum vandast heimleið hug —
hundruð grandast vona.
Bundin andans eru flug
undra-landsins sona.
Til Dr. Helga Péturssonar
Veröld börn sín víða ber —
villu-gjörn, að hirta;
þeim er vörnin — ef þá er
aðeins stjörnu-birta.
Um leik-loddara
Lífs þó slíni list þín skamt,
leik þú sýnir glaður.
Yfir vini áttu samt
elda þína maður!
Pálmi.
Sumar
Lát sólstrauma flæða um svell vorra hjartna,
breyt sálnanna auðnum í gróðursæl lönd;
strjúk huluna af augum, sem himin oss felur,
og hylur oss sýn inn á framtíðarströnd.
Brjót hlekkina þungu, er huga vorn fjötra,
lát heimskuna rýma úr öndvegisstól;
gef vegmæddum andanum vængjaþrótt nýjan,
að vorglaður fagni hann morgunsins sól.
Bræð hatursins klaka úr hjörtum og sálum,
glæð himinsins vermandi kærleikans bál.
Kveik sjóndöprum heimsbörnum sýnir í huga,
að sjáandi skilji þau friðarins mál.
Richard Beck.