Lögberg - 24.06.1948, Side 7

Lögberg - 24.06.1948, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. JÚNI, 1948 7 Endurminningar Grace Moore Söngkonan Grace Moore, sem fórst í flugslysinu mikla í Kast- rup í hittifyrra, hafði lagt síð- ustu hönd á endurminningabók nokkru áður en hún dó. “Maður lifir aðeins einu sinni”, heitir bókin og hefir dönsk þýðing á henni komið út hjá “Samleren” í Khöfn. Hér eru nokkrir kaflar úr endurminningunum. Neysa McMein sagði einu sinni við mig: “Hvað hugsar þú eigin- iega mest um, annað en söng?” “Ást”, sagði ég. “Og hver hugsar ekki um ást- ir? Lífið er ekki fullkomið án þeirra. Almannarómurinn ýkir oftast um ástamál primadonn- unnar, bæði fjölda þeirra og al- vöru, en það er ekki láandi því að primadonnan gerir þetta sjálf. ímyndunarlífið á leiksviðinu heldur áfram í raunverunni. En ófegraði sannleikurinn um ásta- iíf mitt er sá, að það hefir jafnan verið alveg eðlilegt, hamingju- samt og heppilegt. Allir búast við að lesa heila romsu af ástasögum í endurminn ingum eins og þessum. En ég held nú, að því lengri sögur sem maður spinnur út af ástarævin- týrum sínum því leiðinlegri verði þær. Eitt er víst. Öll mín mvintýri, hversu stutt sem þau voru, hafa gefið ævi minni svip að verulegu leyti. Eftir því sem maður eldist fölnar ástin, sem maður hefir haft á hinum eða þessum í gamla daga, og eftir verður aðeins veikur eftirómur i þroskuðum huga. Eg hefi verið svo heppin að ég held ég hafi aldrei elskað mann sem ég ekki jafnframt hafði samúð með og bar virðingu fyr ir. Þessvegna hefir hjáliðin ást jafnan orðið að vináttu. Gagn- staett því sem gerist um margar konur þá felli ég mig verulega vel við karlmenn. Eg get ekki séð að þeir séu dónar, og ég er ekki sammála ýmsum grátkonum um, að konan sé flón þó hún treysti þeim. En karlmennirnir hafa líka farið vel með mig og verið góðir vinir. Ef til vill er það vegna þess að ég er svo hepp io að þekkja aðeins alúðlegustu menn. Það stafar vafalaust af innri þrá minni til hetjudýrkun- ar. Eg hefi mikinn áhuga fyrir atburðum í lífi annarra og finnst þeir miklu merkilegri en það, sem ber fyrir mig. Þegar ég hlusta verð ég hrifin. Og þegar oinhver hefir áhrif á mig þá fyll ist ég samhijg, og áður en nokk- ur veit er ég orðin bálskotin, því að ég er óbetranlega rómantísk. Töfrandi Frakki sagði einu sinni við mig: “Það erfiðasta í ústum er að geta þagað fallega”. ^að minnir mig á dálítið, sem gerðist við Rivierann. Nokkrar konur á sólsvölunum á Ethel Osborne fóru að tala um ást. — ■^ræg Ijóshærð leikkona, sem ekki var sérlega lagið að halda 1 karlmennina, kvartaði hrein- skilnislega og blátt áfram yfir þessu: “Hvernig getur staðið á því?” spurði hún. “Eg er aðlað- audi, falleg í vexti og glaðvær”. % gat ekki stillt mig um að svara: “Kannske ertu fyndin í ótl'ma, góða mín”. ^að hefir alltaf verið mín ^uikla heppni, að mennirnir sem ég hefi orðið ástfangin af hafa allir verið svo lifandi og auðug- að atburðum og reynslu, að Pað var hrein nautn að hlusta á þá segja frá. Áðurnefndur Frakki Sem stráði um sig spakmælum ^m ást eins og Rochefoucauld, kenndi mér annað boðorð franskrar heimspeki: “Franskar konur”, sagði hann, “eru fúsar að fyrirgefa manni sínum ó- tryggð, meðan þær vita að hann er með hjartað hjá þeim, því að a meðan geta þær verið vissar um að maðurinn kemur alltaf til þeirra aftur”. K°na, sem hefir helgað líf sitt skemmtistarfseminni, veit aldrei hvort hún er elskuð sem kona, eða vegna listarinnar. — Lengi vel var mér ómögulegt að hugsa mér að hjúskapur gæti samrýmst starfi(mínu, því að þeir sem elsk uðu mig vildu að ég drægi mig í hlé undir eins og syngi ekki fyrir aðra en þá sjálfa. I aðeins fáum tilfellum þar sem biðlarn- ir voru ríkir menn — meðal þeirra voru ríkustu menn heims ins — hefðu þetta þótt aðgengi- legir skilmálar. En þó að ég meti mikils að eiga góða daga er ríki- dæmið þó tæplega hyggilegur grundvöllur fyrir hjónabandinu. Skartgripir og gimsteinar hafa aldrei verið mikils virði í mínum augum. Mér hefir jafnan fundist hjú- skapargæfa mín að miklu leyti að þakka þeirri reynslu, sem ég hefi fengið af vinum mínum. Frá einum kom áhuginn fyrir list, frá öðrum skynbragð á bókmennt um, sem ég annars hefði ekki fengið, og frá þeim þriðja nokk- ur þekking á stjórnmálum. Þeg- ar ég giftist Valentin Parera fann ég mann, sem engan veginn var hægt að kalla ríkan, en sem gat notið sömu áhugamálanna og ég hafði og aukið á þau. Alec Woollcott hélt því jafn- an fram að hjónaband gæti ekki orðið farsælt nema báðir aðilar væru glaðlyndir — eða báðir ger sneyddir gamansemi. Val og ég gátum bæði hlegið og grátið að sama hlutnum og við sluppum við þá ógæfu, sem oft hendir leik húsfólk í hjónabandinu, af því að við hittumst ekki fyrr en lífs- starf okkar beggja var komið í fastan farveg. Val var uppruna- lega bankamaður, en yfirgaf þá stöðu til að verða spánskur Valentino, einn af stjörnuleik- urunum hjá UFA og leikstjóri sem skapaði sér nafn. Hann hafði farið til Hollywood til að stjórna og leika _í spönskum filmum. örlögin virðast hafa látið sér annt um Val og mig. Þegar ég sigldi frá New York í maí 1931 var ég svo uppgefin eftir hljóm- leika, óperur og Hollywood, að læknirinn minn hafði skipað mér að fá mér hvíld. En það var ekki eingöngu stritið, sem hafði tæmt mig að þrótti og lífsgleði. Eg var blátt áfram eins og skar, var illa á mig komin og setti allt fyrir mig. Eg gekk upp á efra þilfarið til að setjast þar og hvíla mig. — Constance Hope var hjá mér og við' fórum að leika okkur að barnalegu skemmtispili, sem ég hafði fengið að skilnaðargjöf. — Allt í einu datt þetta leikfang niður á þilfarið og tvístraðist í ail ar áttir. Hár, dökkur og falleg- ur maður, sem hafði staðið og hallað sér út á borðstokkinn, hrökk við og sneri sér að okkur og bauðst til að hjálpa. Constance heyrði undir eins málblæinn og svaraði honum á spönsku. — Eg skildi ekki eitt orð í því máli og glápti bara á hann þegar hann leit á mig. Hann tók sam- an spilið og fór svo frá okkur. Eg sneri mér að Constance og sagði: “Það er þessi maður sem ég gift- ist”. Eg fann að þetta voru for- lög mín, eins og spádómur hjá sigaunakerlingu: “— í ferðalag, yfir stórt vatn, hittir háan, dökk an mann”, — og síðan hefi ég fundið að enginn má sköpum renna. Eg get leyft mér að vera ang- urblíð er ég minnist á þetta eina tilfelli af rómantík í ævi minni. Maður er venjulega boðinn og búinn til að verða angurblíður og kreysta tár úr augunum ef endirinn er sorglegur. En verði fólk hamingjusamt og njóti gæfu daga ár eftir ár segir tískan því að verða kaldhæðið. Hvað sem líður tísku eða ótísku ætla ég að halda áfram að verða bljúg í huga að því er snertir Val og mig, af því að tilfinningar mín- ar eru þannig, og hafa verið það frá því fyrsta. Frá upphafi hefir hann aldrei hugsað um sjálfan sig öðruvísi en þátt í því að gera mig gæfusama. Hefði hann verið ríkur mundi hann hafa ausið yfir mig gjöf um. En af því að hann var vel gefinn andlega og skilningsnæm- ur gaf hann mér aðrar gjafir: — Lífsgleðina, — eigi aðeins sjálf um sér til handa heldur og öðr- um. Möguleikann á að skipta öll um fallega og gera lífið fegurra. Sameiginlegir atburðir í lífi okk ar — þegar við höfum skemmt okkur, horft á fallegt útsýni, verið á ferðalagi saman — hafa orðið stoðir imdir félagsskap, sem um aldur og ævi hefir bund- ið enda á þann leiða vana að vera sjálfum sér nógur. í Osló tók ameríski sendiherr- ann, Anthony Drexel-Biddle í móti okkur. Hann sagði að þús undir manna biðu fyrir utan brautarstöðina og gistihúsið. Við olnboguðum okkur áfram gegn- um þéttan hóp út að vagninum okkar og ókum til gistihússins Eg gekk út á svalirnar og veifaði til fólksins, þangað til lögregl- unni fannst þessi athöfn hefði staðið nógu lengi fyrir báða parta. Hljómleikarnir áttu að verða kvöldið eftir og nú rak hver við burðurinn annan. Mér þótti vænt um hyllingu hins fagnandi fjölda fyrir neðan svalirnar og lófa klapp óperuáheyrendanna, en var þreytt og óvær. Á hljómleik unum tóku blaðaljósmyndarar af mér myndir í hverju einasta lagi og loks hætti ég í miðju lagi eft ir Debussy og bað um að mega syngja ótruflað, en á eftir mættu þeir taka eins mikið af myndum af mér og þeir vildu. Áheyrend- urnir klöppuðu en ég er ekki viss um að ljósmyndararnir hafi ver- ið jafn ánægðir. Mörg hundruð manns hafði verið neitað um aðgöngumiða og varð því úr að nýir hljómleikar voru ákveðnir nokkrum dögum síðar. Því miður varð ég að af- lýsa þeim vegna þreytu. Tony og Margaret Biddle buðu okkur heim til sín í ameríska sendiráð- ið. Tony var ungur í starfinu þá, en hann og hin gáfaða kona hans höfðu eignast marga vini í Nor- egi og voru í miklu afhaldi. Val og mér var líka boðið til kon- ungsins, sem vegna hirðsorgar- innar fyrir bróður drottningar- innar, George V., sem þá var ný- látinn, hafði ekki getað komið á hljómleikana til mín. Daginn eftir hljómleikana fékk ég bréf frá Biddle með skilaboðum um að konungshjónin byðu mér 1 te í sumarbústað þeirra á Bygdö. Þetta var ekki höll nema að nafninu til. Eiginlega var það ekki annað en stórt og þægilegt hús án alls hins ytra skrauts, sem maður býst við að sjá í kon- ungsbústað. Konungurinn, drottn ingin, krónprinsinn og Martha krónprinsessa, Réne Askin — undirleikarinn minn — Val og ég vorum þau einu, sem þarna voru viðstödd. Þarna var allt svo létt og þægilegt. Við töluðum um tón list og stjórnmál og þau spurðu mig um Hollywood og hvað væri að segja um Kristen Flagstad í Ameríku, sem þau virtust draga í efa. Þau viídu vita, hvort hún hefði unnið slíkan sigur, sem blöðin vildu vera láta. I þeirra augum var Flagstad söngkona, sem átti heima í Bohéme og öðr um léttum óperum, og þau gátu ekki skilið að hún skyldi allt einu vera orðin ein mesta Wagn ersöngkona veraldarinnar. Er við höfðum drukkið te geng um við um garðinn, sem drottn- ingin sjálf hirti um. Gangstíg- arnir voru úr þjappaðri mold og mynduðu töfrandi munstur um blómabeðin með rauðu, hvítu og bláu blómunum. Svo báðu þau mig um að syngja af því að þau höfðu ekki verið á hljómleikun- um. Eg söng aríu úr “Madame Butterfly” og tvö—þrjú smálög. Drottningin sagði mér frá því er Melba söng allt hlutverk sitt í “Rigoletto” í ægilegu þrumu- veðri. Loks fór drottningin með mig inn í dyngju sína og sýndi mér ljósmyndir og vatnslita- myndir, sem hún hafði málað sjálf, sér til gamans. Meðan við vorum að tala saman gekk kon- ungurinn gegnum stofuna og inn í herbergi sitt, sem var við hlið- ina, og kom út aftur með dálitla öskju. Hann opnaði hana, tók upp gullnál með konungskórón- unni alsettri demöntum og festi nálina á brjóstið á mér. Eg varð CHARLES DE GAULLE Valdavonir hans eru bundnar við það, að fylgi kommúnisia aukisí. Meðal þeirra manna, sem nú eru einna mest umdeildir, má hiklaust nefna franska hershöfð- ingjann Charles de Gaulle. Hann er ekki sízt umdeildur meðal þjóðar sinnar. Stór hluti henn- ar dýrkar hann sem mikinn og þjóðhollan leiðtoga og bindur við hann megintraust sitt í barátt- unni gegn yfirgangi og einræðis- hyggju kommúnismans. Aðrir telja hann valdasjúkan eiginhags munamann, er dreymi stóra drauma um að verða einræðis- herra þjóðar sinnar í stíl við Napoleon. Margir þeirra, sem hlutlausir eru, telja óþarflega mikið stáss gert að de Gaulle, því að ‘hann hafi ekki sýnt neina óvenjulega forustuhæfileika, heldur sé hann einn þeirra manna, sem atvikin hafi verið hliðholl og lyft til áhrifa, án sér stakra verðleika sjálfs hans. Skj ólslæðingur Peiains og Weygands Charles André Joseph Marie de Gaulle er fæddur í Lille í Norður-Frakklandi haustið 1890. Faðir hans var kennari í heim- speki og félagsfræði. Hann lét hinsvegar son sinn ganga hernað arbrautina. De Gaulle innritað- ist tiltölulega ungur í herforingja skólann í St. Cyr. Hann fékk lága einkunn við inngönguprófið, en háa. einkunn, þegar hann. braut- skráðist. Þau hlunnindi fylgdu hinni góðu einkunn hans, að hann mátti velja um herfylki, til að starfa í, kaus hann að fara í herfylki það, sem Petain stjórn- aði. Allnáin vinátta tókst á milli þeirra Petains, t. d. varð Petain guðfaðir fyrsta barns de Gaulle. hrærð yfir því að taka við þess-1 De Gaulle gat sér gott orð á ari gjöf, sem mér var afhent með svo látlausu móti og svoddan al- úð. Mér fannst það táknrænt fyrir hinn demokratiska, anda sem er bakhjarl norska konung- dæmisins. Lífið hefir verið yndislegt. Eg hefi ekki hingað til haft ástæðu til að kvarta. Eg hefi lifað líf- inu og enn er lífið framundan. Eitt er víst: Það endar aldrei á blaðsíðu 272, þó að bókin endi þar. Þegar ég skrifa þetta er ég enn að syngja, starfa og gera nýjar áætlanir, og þessvegna er erfitt að segja hvenær síðasti punkturinn verður settur. — Ef ég hefði dregið mig í hlé núna, þá gæti ég að vísu sagt söngsögu mína á enda og ég gæti -notað sem undirfyrirsögn á bókina: — Ævi hennar og athafnir. Upphaf og endir. En það get ég ekki gert núna. Þetta er saga mín þangað til í dag. Hvað dagurinn á morgun og hinn dagurinn færir mér — það veit enginn. Fálkinn. Dæmisaga Bankastjóri nokkur í Banda- ríkjunum varð frægur fyrir það hvernig honum tókst að rétta við ýmis fyrirtæki á kreppuárunum. Hann var spurður að því hvernig hann hefði farið að þessu og þá kvaðst hann hafa gert það með dæmisögu. — Þegar forstjóramir komu til mín í öngum sínum og ég sagði þeim hvað þeir yrði að gera, þá var vana viðkvæðið að það væri ekki hægt. Þá sagði ég þeim þessa sögu: Maður var að áegja syni sín- um sögur, og meðal annars sagði hann honum sögu um viðureign krókódíls og skjaldböku. Krókó- díllinn læddist að skjaldbökunni með gapandi gin og ætlaði að gleypa hana. En þegar hann ætl- aði að skella skoltunúm utan um hana, tók skjaldbakan viðbragð og hljóp upp í tré, svo að krókó- díllinn missti af henni. — Pabbi, sagði drengurinn, hvernig gat skjaldbakan hlaupið upp í tré? — Hún varð að gera það til að bjarga sér, svaraði faðirinn. Lögleg afsökun — Konur eru brellnar, sagði prófessorinn. Þarna stend ég á eldhúsgólfinu í morgun og horfi á mjólkurmanninn kyssa kon- una mína. — — Kyssa konuna þína? endur- tók vinur hans. Hvað gerðir þú? Molaðir þú ekki hausinn á hon- um? — — Hvernig átti ég að fara að því? Hann lét mig halda á mj ólkurflöskunum. ♦ Hann: Elskan mín, þú hefir nú haldið í höndina á mér stöðugt í tvær klukkustundir. Er það ást eða vantraust? ■f Faðirinn: — Jæja, Palli minn, hvort viltu heldur eignast lítinn bróðir eða systur? Palli: — Ef þér væri sama, pabbi, þá vildi ég helst fá tindáta. fyrstu árum heimsstyrjaldarinn- ar fyrri. Árið 1916 særðist hann í bardögunum hjá Verdun og tóku Þjóðverjar hann til fanga. Hann var síðan fangi hjá þeim til stríðsloka og gerði fimm til- raunir til að strjúka, en þær mis- tókust allar. Eftir styrjöldina gekk hann strax í þjónustu hers ins aftur. Árið 1920—’21 var hann með Weygand í Póllandi, en hann stjórnaði þá vörn Pól- verja gegn ásókn Rússa og sókst að snúa henni í sókn. — Síðár gegndi de Gaulle ýmsum þýðing armiklum embættum í hernum, bæði heima og erlendis. Hann stjórnaði nokkrum herdeildum í Norður-Frakklandi, þegar Þjóð- verjar hófu vorsóknina 1940 og þótti reynast þar allvel. — Þann 6. júní var hann kallaður til Parísar og gerður aðstoðarher- málaráðherra í stjórn Reynauds. Hann gegndi þeirri stöðu þang- að til Frakkar gáfust upp. Á árunum milli styrjaldanna ritaði de Gaulle nokkrar bækut um hernaðarmál, en hann er mjög vel ritfær. í einni þeirra, sem síðar hefir orðið mjög fræg, deildi hann á byggingu Maginot línunnar og taldi eflingu véla hersveita þýðingarmestu her- væðinguna. Þetta þótti síðar rétt metið hjá honum. Á þessum árum var hann sagður íhalds- samur í stjómmálaskoðunum og nálgast það að vera einræðis- sinni. Foringi frjálsra Frakka Á fundi, sem Churchill sat með frönsku stjórninni í júní 1940, var de Gaulle einn þeirra fáu, sem var andvígur uppgjöf. Það mun hafa verið í samráði við Churchill, að de Gaulle kom sér undan til Bretlands og stofn- aði þar hreyfingu frjálsra Frakka, sem mótmælti uppgjöf Frakka og lýsti yfir áframhald- andi baráttu gegn Þjóðverjum. De Gaulle var þá tiltölulega lítið þekktur í Frakklandi, en ræður hans í brezka útvarpinu unnu honum strax mikið fylgi, enda studdu Brétar hann vel í áróðr- inum. — Þegar fram liðu stundir kóln- aði vinátta de Gaulle og Churc- hills, því að Churchill fannst hann of einráður og ósamvinnu- þýður. Roosevelt geðjaðist einn- ig illa að honum. Minnstu mun- aði líka, aá de Gaulle missti for- ustu frjálsra Frakka, þegar Bandaríkjamenn sömdu við Dar- lan, er þeir gerðu innrásina í Norður-Afríku. Morð Darlans losaði de Gaulle við þann keppi- naut. Þá gerðu Bandaríkjamenn sér dátt við Giraud hershöfð- ingja og hugðust að gera hann að foringja Frakka, en hann ' reyndist vera oflítill stjórnn^ála- maður til þess að vera vandan- um vaxinn. De Gaulle átti líka hauk í horni, þar sem Eden utan- ríkisráðherra Breta var, því að hann taldi Breta skuldbundna til að styðja de ^aulle. Niður- staðan varð því sú að lokum, að de Gaulle varð oddviti frönsku bráðabirgðastjórnarinnar í Algi- er og síðan formaður fyrstu bráðabirgðastjórnarinnar í Frakklandi eftir að hernáminu lauk. Leiðiogi þj óðhreyf ingar innar Fyrst eftir að hernáminu lauk, voru vinsældir de Gaulle svo miklar, að hann þótti sjálfsagð- ur til að veita ríkisstjórninni for- stöðu. Hann gætti þess þá að halda sér utan við flokkadeilur, eins og hann hafði gert á stríðs- árunum. M. a. fór hann til fund- ar við Stalin haustið 1944 og vakti það ánægju kommúnista. Stjórnarskrármálið varð hinsveg ar ágreiningsefni milli hans og vinstri flokkanna, þar sem hann vildi hafa forsetann valdamik- inn. Ágreiningur þessi leiddi til þess, að hann afsalaði sér völd- um veturinn 1946 og dróg sig al- gerlega í hlé. Þó beitti hann sér gegn stjórnarskránni, sem var samþykkt þá um haustið og mun- aði minnstu, að hún félli við þjóð aratkvæðagreiðslu. Þótti það sýna, að de Gaulle hafði mikið fylgi, þar sem þrír stærstu flokk arnir studdu stjórnarskrána. í fyrravor kom de Gaulle svo fram á sjónarsviðið aftur og stofnaði þjóðhreyfingu sína, er hefur baráttu gegn kommúnism- anum fyrir aðaltakmark sitt. — Annars er stefna hennar mjög óljós og sjáanlegt takmark henn ar ekki annað en það að koma de Gaulle til valda. I bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum síð- astliðið haust vann þjóðhreyfing in mikinn kosningasigur. I vetur var talið, að fylgi hennar hefði farið vaxandi, en nú þykir lík- legt að heldur hafi dregið úr henni aftur, þar sem árferði fer batnandi í Frakklandi. í ræðum þeim, sem de Gaulle hefir haldið undanfarið, talar hann mjög óljóst um stefnu sína en það er víst, að hann þráir völdin. Hann er talinn hafa sagt af sér vorið 1946 í trausti þess, að hann reyndist ómissandi og því yrði leitað til hans aftur. Þegar það var ekki gert, stofnaði hann þjóðhreyfinguna. Framtíð hans fer mjög eftir því, hvert gengi kommúnista verður. Tapi þeir, tapar de Gaulle líka. Því aðeins þykir líklegt að Frakkar velji hann til forustu, að þeir telji sig ekki hafa um nema hann eða kommúnigta að velja. De Gaulle er góður rithöfund- ur og ræðumaður. Hann er þurr og kaldur í viðmóti og minnir lít ið á hina blóðheitu Frakka. Hann er sagður einráður og ósamvinnu þýður, en þrautseigur og vilja- fastur. Hann er hinn myndar- legasti að vallarsýn, 6 fet og fjórir þumlungar á hæð og sam- svarar sér vel. Þegar hann er ekki í fundaferðum, dvelur hann oftast í sveitasetri sínu, því að þar segist hann hafa næði til að hugsa málin og taka ákvarðanir sínar. — Tíminn, 7. maí.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.