Lögberg - 30.12.1948, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 30. DESEMBER, 1948
Hoabtrg
Gefl8 út hvern fimtudag af *
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and publiehed by The Columbia Press Ltd.
696 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Autho'rized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
♦
Forsætisráðherrann í Canada Mr. St. Laurent, hef-
ur formlega tilkynt, að sambandsþing verði kvatt til
funda þann 26. janúar næstkomandi; þetta verður
fyrsta þingið undir stjórnarforustu hans, og má víst
telja, að vel takist til um lausn flestra aðkallandi vanda-
mála; að því er fjármálaráðaneytinu segist frá, mun
þjóðarbúskapurinn aldrei hafa staðið í meiri blóma.
Nú þykir sýnt að tekjafgangur verði langt um hærri en
áætlað var í fyrra; jafnt og þétt er verið að grynna á
þjóðskuldinni og hlýtur slíkt að vekja almenna ánægju
manna á meðal.
Um stjórnarboðskapinn verður ekki neitt með vissu
vitað fyrr en um þingsetningu, þó víst sé um það, að
löggjafarákvæðin um upptöku Newfoundlands í fylkja
sambandið muni piga forgangsrétt á þingi. Þetta sögu-
lega atriði mun ekki verða gert að flokksmáli og þar
afleiðandi má ætla að það fái skjóta afgreiðslu og sam-
þykki allra þingflokkanna.
Nokkrar líkur munu á að stjórnin leggi fyrir þing
frumvarp til laga um afnám áfrýunar héðan úr landi til
hæsta réttar Breta. Mr. St. Laurent hefir áður tjáð
sig því hlyntan að slík ákvörðun yrði tekin og þarf
því ekki að efa, að hann fylgi máhnu röggsamlega fram.
Hvað verður um elhstyrks máhð á næsta þingi og
hver verður afstaða stjórnarinnar gagnvart óumflýan-
legri lausn þess? Skynsamleg og mannúðleg úrlausn
þessa viðkvæma máls, þolir ekki lengri boð.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Utanríkisráðherrann í Canada, Mr. Pearson kvaddi
á fund sinn blaðamenn í Ottawa á síðastliðinn aðfanga-
dag jóla, og kunngerði að stjórnin hefði lögum sam-
kvæmt viðurkent hið endurborna ísraelsríki í Palestínu;
ráðherrann komst meðal annars svo að orði: “Nauðsyn-
legum skilyrðum varðandi viðurkenningu ríkisins hefir
verið fullnægt og vissa fengin fyrir því að það hafi
ábyrga stjóm heima fyrir og út á við.”
Þann 28. maí síðastliðinn lýstu Gyðingar í Pales-
tínu því yfir, að fullvalda Israelsríki hefði litið dags-
ljósið. Rússar og Bandaríkjamenn urðu fyrstir til að
viðurkenna hið nýja eða endurborna ísraelsríki. Fleiri
þjóðir bættust svo smátt og smátt í hópinn og nú hefir
Canada að lokum fetað í fótspor þeirra.
♦ ♦ ♦ ♦ 4- ♦
í tvennum aukakosningum tU fylkisþingsins í Mani-
toba, sem nýlega voru haldnar, fóru C.C.F.-sinnar
vægast sagt, aivariega halloka í viðureign sinni við
frambjóðendur samvinnustjórnarinnar. í Minnedosa
kjördæminu vann frambjóöandi samvinnustjómarinn-
ar, Mr. Rungay, frægan og eftirminnilegan sigur, og
núna á messu hins heilaga Þorláks urðu úrslit í Fair-
ford kjördæm á þá leið, að Mr. Anderson lögfræðingur
í Ashern hlaut kosningu með geysilegu atkvæði magni
umfram keppinaut sinn, er bauð sig fram af hálfu C.C.
F.-sinna, sömu útreiðina eða jafnvel enn lakari, hlutu
frambjóðendur C.C.F.-sinna í kosningum til sambands-
þings, sem nýlega eru um garð gengnar í Marquette
í Manitoba og Carleton í Ontario.
♦. ♦ ♦ * ♦ -f
Blaðið Saturday Night, sem gefið er út í Toronto,
lætur þess nýlega getið að snurða muni hafa hlaupið á
hihn pólitíska hjónabands þráð milli Liberala og Con-
servativa, er standa að hinni svo nefndu samvinnu-
stjórn í British Columbia. Æskulýðs fylking Liberala
þar í fylkinu, telur áminstu, pólitísku hjónabandi nú
svo ílla komið, að skilnaður sé eina sómasamlega úr-
lausnin. Aminst blað lætur þess getið að núverandi
forsætisráðherra British Columbia, Mr. Byron Johnson,
haldi því nokkurnveginn í henni sinni hvort samvinnu-
stjórnin verði við lýði í fylkinu deginum lengur eða ekki;
það fylgir sögu að Mr. Johpson sé svo viss í sinni sök,
að hann geti leitt Liberal flokkinn til sigurs í næstu
kosningum af eigin ramleik.
♦ -f ♦ ♦ ♦ ♦
FALLEG LÍTIL BÓK
Sýslumaðurinn í Barðastrandasýslu, herra Jóhann
Skaptason, sýndi ritstjóra Lögbergs þá góðvild, að
senda honum nú um jólin, fallega litla bók, sem gengur
undir nafninu Árbók Barðastrandasýslu, sem hefir mik-
inn og margvíslegan fróðleik til brunns að bera; er þar
skýrt frá atvinnu háttum og félagslegum menningar-
samtökum sýslubúa, auk þess sem bókina prýða nokk-
urar myndir, svo sem af Bíldudalskaupstað; af bókinni
má ráða, hve mikill áhugi og andlegur vorgróður hefir
skotið styrkum rótum vestur þar, og hversu mikilla
menningarlegra átaka má þar vænta í samtíð og fram-
tíð.
Þökk sé Jóhanni sýslumanni fyrir þessa vingjarn-
legu sendingu.
AHUGAHAL
IWCNNA
Rilsljóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
FRÁ SEATTLE, WASHINGTON, 13. DES., 1948
íslenzk siúlka krýnd "Kórónu ljóssins"
Kæri ritstjóri:
DESEMBERFUNDURINN í félaginu “Vestri” var óvenjufjðl-
mennur (tim 100 manns) og eitthvað létt og glatt yfir. — Hann
endað líka eins og sjálfsagt var með kaff veislu og frjálslegum
samræðum. — mér er sönn ánægja í að skrifa þér um tilefnið
samkvæmt beiðni fundarins.
Tilefnið var að samfagna ung-
frú Ásu Guðjohnsen, sem í víð-
tækri samkeppni skaninaviskra
meyja í þjóðbúningum (121
kepptu) hlaut þá mjög áberandi
sæmd að vera valin fyrsta “Lucia
Bride” hér í Seattle borg. Svo
framt sem við vitum hefir þessi
krýnging á “drotning ljóssins”,
samkvæmt sænskri hefð eða
tradition, aldrei fyr farið fram
í Bandaríkjunum. — Ása okkar
verður í dag krýnd ásamt
“Lucia” Svíþjóðar í Stockholm.
Ferðin var farin á vegum Scan-
dinavian Airlines, “Stockholm
Tidningen” og “Seattle Post In-
telligencer”. í för með ungfrú
Ásu er frú Marion Stixrud,
fréttaritari frá Seattle, P.I., og
sendir hingað daglega fréttir frá
hátíðahöldunum. Rétt fyrir jól
koma þær heim hingað, og með
þeim hin Sænska “Lucia”, í
heimsókn.
Á Vestrafundinum voru þær
Ása og móðir hennar heiðurs-
gestir. Vísi-konsúll íslands í
Seattle, Kolbeinn S. Þórðarson
ávarpaði með viðeigandi kveðju
frá félaginu og Islendingum hér.
Hann óskaði til hamingju og
blessunar með vel völdum orð-
um og afhenti Ásu stóran blóm-
vönd. Forseti félagsin, Hallur
E. Magnússon ávarpaði sömu-
leiðis, og mintist sérstaklega föð-
ur Ásu, Baldurs Guðjohnsen (d.
1933), sem var einn af stofnend-
um Vestra, laust fyrir aldamót-
in. Móðir Ásu, frú Salome Ólafs-
Kærkomin rödci að heimari
Að síðustu minnist ég afmælis
Helgu Hannesdóttur frá Deildar-
tugu, konu B. Bjarnasonar á Ská-
ney. Helga var fædd 5. maí 1878
og varð því sjötíu ára 5. maí síð-
astliðið vor. Þann dag fékk hún
heimsókn margra vina og vanda-
manna, þar á meðal kvenfélag
Reykdæla. Var hún þá enn sem
fyr hin glaðasta og glæsilega
kona sem kunni að taka svo vei
á móti vinum sinum að á betra
varð ekki kosið, hún var ung í
anda og var hvorki hærur né
hrukkur eða neitt annað sem
gæfi tilefni að ætla hana sjötuga
að aldri:
Eftir þetta heimsótti hún vini
sína bæði nær og fjser, sat að
veislum og gleðimótum. Sunnu-
daginn fyrsta ágúst hélt Borg-
firðingafélag úr Reykjavík Sum-
arhátíð í Reykholti, sem hófst
þar með messu í kirkjunni, þar
var einnig Helga á Skáney meðal
góðra gesta. En að kveldi annars
dags þar frá, 3. ágúst lést hún
af hjartaslagi. Helga var frá-
bær að fegurðarsmekk listfengi
iðni og og afköstum. Eftir fjöru-
tíu ára búskap þeirra hjóna á
Skáney, má sjá að jörðin hafi
skift um klæðnað í höndum
þeirra; áður var hún í tötrum, nú
stendur hún prúðbúin, reysuleg-
ar byggingar, slétt og víðáttu-
mikið tún, en það sem mest ber
af er skógivaxin hlíð ofan við
túnið. Þar sást engin hrísla fyrir
þrjátíu árum, fremur en á öðrum
stöðum í Reykholtsdal, en Helga
lagði svo mikla ástundun við
skógræktina á þessum stað, að
nú hækka og fjölgar þar birkir-
unnum ár frá ári. Og heima í vel-
girtum blómagarði er marg-
breytta fegurð að líta, blóm og
tré af mörgum tegundum.
blómagarðinum var líkkistu
hennar lokað, þar sem hvert
blóm angaði í vermandi sólar-
ljósi, og þar sem margir af nán-
ustu vinum voru samankomnir.
Þegar Helga á Skáney var látin
minntist hinn dreifði Bræðra-
flokkur þess hvað marga gleði-
stund þeir áttu á heimili þeirra
hjóna, er þeir voru þar að söng-
æfingum. Komu þeir allir sextán
að tölu, til þess að syngja við
útför þessarar mætu konu; dag-
inn fyrir jarðarförina tóku þeir
til þess að æfa lögin, sýnir þar
best hvað mikið þeir vildu á sig
leggja til þess að sýna í verki
hluttöku við þetta tækifæri. Að
jarðarförinni lokinni sat mann-
fjöldinn, er fylgdi Helgu til graf-
ar að veitingum í hinum stóru
borðstofum Reykholtsskóla. Að
því loknu, en áður en gestir
bjuggust til heimferðar, sungu
bræðurnir, undir stjórn Bjarna á
Sikáney nokkur erindi úr feg-
urstu ættjarðarljóðum þessa
lands, var það eftir ósk hinnar
látnu ágætiskonu að svo var gert.
Mátti því segja að ást hennar á
ljóðum og lögum fylgdi henni
útyfir gröf og dauða. Helga á
Skáney var mikil gæfukona, sem
lifði við góðan fjárhag og vin-
sældir alla æfi. Börn þeirra
hjóna eru þrjú og hafa þau öll
tekið sér bólfestu í Skáneyjar-
landi, sem búið er að skifta í
þrjár jarðir, allar líkar að stærð,
Skáney, Birkihlíð og Nes.
Þuríður Sveinbjarnardóttir frá
Sigmundarstöðum í Hálssveit,
lést á Fróðastöðum í Hvítársíðu,
síðastliðið vor, áttræð að aldri,
Hún var ekkja eftir Brand Dan-
íelsson, bjuggu þau á Fróðastöð-
um allan sinn búskap, við næg
efni og ágætan orðstýr. Um
sama leyti lést á Glitstöðum í
Norðurárdal Þórunn Björnsdótt-
ir kona Jóns Einarssonar frá
Hvítárfossi í Ámessýslu. Þórunn
var 93 ára að aldri, dóttir þeirra
hjóna er Katrín kona Eiríks
Þorsteinssonar bónda á Glitstöð-
um, hjá þeim dvelur Jón Einars-
son sjónlaus og aldurhniginn.
Enn fremur lést í vor Nikhildur
Erlingsdóttir á Hallkellsstöðum
í Hvítársíðu, nær hálf tíræð að
aldri, maður henna var Benja-
mín Jónsson, bjuggu þau allan
sinn búskap á Hallkellsstöðum.
Þau voru bræðrabörn Nikhildur
og Hjörtur Þórðarson raffræð-
ingurinn frægi í Vesturheimi.
Nýlátnir eru tveir Hálssveit-
ingar, báðir af völdum krabba-
meins í maga Guðlaugur Jó-
hannesson frá Signýjarstöðum
og Þorsteinn Jónsson á Búrfelli
komnir um áttrætt. Foreldrar
Þorsteins voru hjónin Jón Þor-
valdsson frá Stóra Kroppi og
Helga Jónsdóttir frá Deildar-
tungu, Hálfbróðir Þorsteins var
Páll Reykdal í Vesturheimi, sem
flestir Vestur íslendingar kunna
góð skil á, en af alsystkinum
hans er Guðrún á Húsafelli ein
á lífi. Þorsteinn var greindur og
gætinn, en dulur og fáskiftinn.
Synir Þorsteins eru Freymóður
lögfræðingur í Vesturmanneyj-
um og Sigursteinn bóndi á Búr-
felli í Hálsasveit.
(Framh. á bls. 4)
dóttir Guðjohnsen, er búsett hér.
Börnin voru tvö, sonurinn Bald-
ur glæsilegur maður, féli í styrj-
öldinni við Japan. — Ása stund-
ar nám við University og Wash-
ington — og útskrifast næsta ár.
Hún leggur sérstaklega fyrir sig
blaðamensku. Hún er ekki aðeins
fríð og skemtileg, heldur líka
greind og vel máli farin.
Henni fórst ágætlega þegar
hún þakkaði fundinum fyrir sig
og móður sína og sagði síðan
stuttlega frá heimsókn þeirra
mæðgna til Islands á s.l. sumri-
og sýndi ýmsa fallega minjagripi
sem hún hafði eignast.
— Til skemtunar á fundinum
var einnig solo söngur Tana
Björnssonar og gamansöm ávörp
séra H. Sigmars. sem annast um
skemtiskrá á fundum ‘Vestra”.
Það er árlegur viðburður í Sví-
þjóð að 'krýna “drotning ljóss-
ins,” með kórónu settri 7 kerta-
Ijósum, hinn 13. dag desember
mánaðar. í gömlu tímatali var
sá dagur talinn styztur í árinu —
og á Norðurlöndum var fagnað
yfir “hækkandi sól.” ymsar sagn-
ir eru til um sankti Luciu. (d. 304
A.D.) Hún var yndisfögur ung-
mey suður á Sikiley. Þegar hún
varð 17 ára, var hún heitbundin
ungum manni. — Þá veiktist
móðir hennar hættulega. Lucia
bað fyrir henni af miklum trúar-
hita, og lofaði jafnframt að gefa
allar eignir sínar til styrktar
kristnu fólki ef móðir hennar
fengi heilsu. Móður hennar batn-
aði — en mannsefnið sá eftir
heimanfylgju Luciu. — Hún var
síðan kærð fyrir galdra og brend.
Þegar hún dó, ljómaði skær og
óumræðilega birta alt um kring,
vegna sakleysis hennar og fóm-
fýsi. — Alls þessa og margs ann-
ars í sögnun og siðvenjum er
minst í sambandi við Luciu há-
tíð Svíþjóðar. — í dag heimsækja
þær “drotningamar” t.d. sjúkra-
hús ojs. frv. með gjafir til þurf-
andi fólks.
Eg óttast að þetta bréf verði
of langt og lýsi þessvegna ekki
krýgningar athöfninni hér í
Seattle. En hún var yndisleg —
og Civic Auditorium þéttskipað
— (rúmar 6 þúsund) Eg læt
fylgja baðagreinar, sem segja
glögglega frá því sem fram fór,
svo þú getur notað hvað sem þú
hefir rúm fyrir. Fréttir frá
Stockhólmi í morgun gátu þess
að ræðismaður Islands þar,
Helgi P. Briem var einn af þeim
sem tók á móti ungfrú Ásu þeg-
ar flugvélin lenti. — Hátíðin
stendur sem hæst í dag.
Með góðum óskum um gleði-
legar hátíðir.
Vinsamlegast,
Jakobína Johnson
P.S.
Svo er sagt að sjaldan skrifi kona
bréf að eigi fylgi “Postskrift.” —
Mig langar að bæta við eftir-
fylgjandi úr Seattle Post Intelli-
gencer í morgun. 1 civic Auditor-
ium borgarinnar í gær var hald-
-'ð Christmas Festival of Music
fyrir fullu húsi. — Þar söng Dr.
Edward Pálmason tenor hlut-
verkið í Handels Messiah. Music
critic blaðsins segir: “Dr Edward
Pálmason, tenor, gave a fine per-
formance. He is professionally
skilled.” — Hann nýtur al-
mennra vinsælda hér.
J. J.
The Swan Manufaduring Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
Heimili 912 Jessie Ave.
281 James Sl. Phone 22 641
GUNNAR ERLENDSSON
Umboósmaöur fyrir
ELSTU hljóðfærabúS Vestur-
landsins
J. JyH. McLEAN & Co. Ltd.
Ráöyist við ofannefndann viö-
vikjandi vali hljóöfcera
Pianos: HEINTZMAN —
NORDHEIMER og
SHERLOCK MANNING
MINSHALL Orgel fyrir
kirkjur
RADIOS og SOLOVOX
' Sími 88 753
HEIMILI: 773 SIMCOE STREET
HOUSEHOLDERS
ATTENTION!
We can supply your fuel needs with all the
standard brands of coal and coke such as
Saunders Creek, Foothills, Drumheller, Black
Nugget, Briquettes, Saskatchewan Lignite,
Zenith and Wirmeco Coke.
Stoker Coals in Various Mixtures Our Specialty
MCfURDY CUPPLY fO. LTD.
V/ BUILOERS' U SUPPLIES AND C0AI
BUILDERS'
Erin and Sargent
Phone 37251
KOBRINSKY CLINIC
216 Kennedy Street
WINNIPEG
V SOLOMON KOBRINSKY, M.D. - Matemity and Diseases of Women
LOUIS KOBRINSKY, M.D., F.R.C.S., (Edin.) - General Surgery
SIDNEY KOBRINSKY, M.D. Intemal Medicine
M. TUBBER KOBRINSKY, M.D., Ch. M. - Physician and Surgeon
SAM KOBRINSKY, M.D. Physician and Surgeon
BELLA KOWALSON, M.D. Physician and Surgéon
• Telephone 96 391 <
if no answer, call
Doctors' Directory, 72 152