Lögberg - 30.12.1948, Page 4

Lögberg - 30.12.1948, Page 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 30. DESEMBER, 1948 Or borg og bygð Dr. S. J. Johannesson er flutt- ur frá 594 Agnes St. (ste. 7 Vin- borg). Hann á nú heima að 652 Home Ste., (Jóns Bjarnasonar (Frh. af bls. 3) I september lést Jón Björns- son, lengi bóndi á ölvaldsstöðum í Borgarhreppi og í fremstu röð bænda í Mýrarsýslu, níræður að aldri. Sextíu og þrjú ár eru liðin síðan við Jón Björnsson voru þóftu bræður og framanímenn á stóru eimskipi með Sæmundi út- vegsbónda á Vatnsleysu. Fanst mér mikið um hreysti Jóns og geðró, valt þó á um veðurfar og vinnubrögð. Þetta háaldraða fólk, sem hér er talið lagðist allt til hinstu hvíldar á þessu sumri. Sé það allt í Guðsfriði. I.iðatrifít ? Allskonar gigt? Gigtar- verkir? SArir gangiimir, heríar og axlir? Vi5 þessu takið hinar nýju “Goldcn HP2 TABLETS”, og fáið var- andi bata við gigt og liðagigt. — 40— 11.00, 100—12.50. Maga ðþægindi? Óttast að borða? Súrt meltingarleysi ? Vind-uppþemb- ingi? Brjðstsviða? óhollum eúrum maga. Takið hinar nýju ðviðjafnan- legu "GOLÐEN STOMACH TAB- LETS” og fáið varanlega hjálp við þessum maga kvillum. — 55—$1.00, 120—$2.00, 360—$5.00. MENN! Skortir eðlilegt fjör? Þyk- ist gömul? Taugaveikluð? Þröttlaus? Öttauguð? Njótið lífsins til fulls! — Takið “GOLDEN WHEAT GERM OIL CAPSULES”. Styrkir og endur- nærir alt liftaugakerfið fyrir fðlki, sem afsegir að eldaet fyrir tímann. 100— $2.00, 300—$5.00. Þossi l,vf fást í ölluin lyfjabúðiiin eða með pósti beint frá GOLDEN DRUGS St. Mary’s at Hargrave WINNIPEG, MAN. (one block south from Bus Depot) Minnist BETEL í erfðaskrám yðar | skóla Ste. 6) Talsími er hinn sami og áður 87 493. ♦ Jóns Sigurðsonar-félagið held- ur sinn næsta fund að heimili Mrs. H. F. Danielsson 869 Gar- field Street á fimtudagskvöldið þann 6. janúar, n.k. 8. Heilsufar æskulýðsins er yfir- leitt svo gott að á betra verður ekki kosið. Berklaveiki sem herjaði hór víða um þetta hérað fyrir nokkrum áratugum lætur ekki mikið á sér bera og sulla- veiki er með öllu horfin, batn langabólga e'r nú orðin mjög tíð á síðustu árum en læknast fljótt með uppskurði; verður því fáum að fjörtjóni. Ymsir halda því fram, að íslenzk æska hafi aldrei verið jafnvel mennt sem nú á dögurn, og víst er það að stærð og líkamsþroski hefir aukist á síðustu áratugum. Þá er fræðsl- an ekki skorin við neglur, einn skólinn tekur við af öðrum, sem aldrei getur fullnægt eftirspurn. Auk allrar barnakenslu, eru þrír skólar starfræktir í sveitum Borgarfjarðar. Héraðsskólinn í Reykholti er svo eftirsóttur, að ekki er hægt að sinna nema nokkrum hluta þeirra umsókna, er honum berast á hverju ári. Þar eru nú yfir eitt hundrað nemendur. Búnaðarskólinn á Hvamseyri þykir ekki eins eftir- sóknarverður og Reykholts- skóli; námið máske þyngra og færri dansmeyjar. Þriðji og yngsti skóli héraðsins er kvenna- skólinn á Varmalandi. Þar hefir verið byggt skólahús með öllum hugsanlegum þægindum og ekk- ert til þess sparað. Þar eru nú fjörtutíu og þrjár ungar stúlkur við nám, margar þeirra úr Borg- arfjarðarhéraði, þar er lögð mest áhersla á þau fræði bæði til munns og handa, sem að gagni mega verða í lífinu. Vigdís Jóns- dóttir frá Deildartungu stjórnar þessum kvennaskóla og þykir hún í fyllstalagi starfi sínu vax- in. Allir þeir, mörgu er heim- sækja þennan skóla hrósa bæði skipulagi hússins og þeim vinnu- brögðum sem þar eru leyst af hendi. — Framhald MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands. Heimili 776 Victor Street. Sími 29017. — Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. — Sunnu- dagaskóli kl. 12:15 e. h. — Allir æfinlega velkomnir. ♦ HÁTÍÐAMESSUR í íslenzka lúierska söfnuðinum í Vancouver 2. janúar, Áramóta guðsþjón- usta á ensku. 9. janúar, Áramóta guðsþjón- usta á íslenzku. Allar guðsþjónusturnar haldn- ar í Dönsku kirkjunni á horninu á East 19th. Avenue, og Frince Albert Street. Takið eftir nafninu á strætinu við hlið Dönsku kirkjunnar hefir verið breytt, — var áður Burns Street, er nú Prince Albert St. Gleðileg jól. Gott blessað nýár. Sækið hátíðaguðsþjónustur Is- lenzka lúterska safnaðarins í Vancouver, og allar guðsþjónust- ur hans. Allir velkomnir. H. Sigmar, Presiur 4- Lúierska kirkjan í Selkirk: Aðfangadagskvöld jóla kl. 7:30. Jólahátíð sunnudagaskólans, jóla tré. Jóladagsmorgun kl. 11:00 ár- degis íslenzk hátíðamesa. Allir boðnir og velkomnir. S. Ólafsson Guðsþjónusia í Lútersku kirkjunni á Lundar, kl. 2:30 e.h. næsta sunnudag, 2. janúar. Heilsum nýja árinu í sameiningu. R. Marteinsson ♦ Lúlerska kirkjan í Selkirk: Sunnudaginn 2. janúar. Ensk messa kl. 11:00 árd. Ensk messa kl. 7:00 síðd. Enginn Sunnudagaskóli. Ársfundur Selkirk safnaðar mánudagskv. 10. janúar kl. 8:00 síðd. í samkomuhúsi safnaðarins. Áríðandi að fólk fjölmenni. Allir boðnir og velkomnir. S. Ólafsson FREE STORAGE FOR YOUR SUMMER GARMENTS IN CANADA’S FINEST STORAGE VAULTS • “Celletone” Dry Cleaned • Free Minor Repairs • Fully Insured • Nothing to Pay Till Spring ALL FOR THE COST OF Regular Dry Cleaning Use Perih’s Carry & Save or Phone 37 261 PERTH’S LATUM OSS SKJOTA M 5 's Strútinn / Pvingunaraðferðir við sölu korns hefir kostað bændur Sléttufylkanna miljðnir dollara Lát- um oss litast um og kynna oss gildi hins opna markaðar sem mötsetning við þvíngunarað- ferðirnar THE WINNIPEG GRAIN EXCHANGE Býður $3,000.00 PENINGAVERÐLAUN LjúkiO viO e/tirfarandi yfirlýsingu í ekki yfir 300 orOum. ’Ég trúi á ÓRJÚFANDI VALFRELSI GAGNVART VeQma þess SÖLU KORNS Samkepnisgreinar verða eign Grain Exchange. I WINNIPEG GRAIN EXCHANGE WINNIPEG, MANITOBA Gerið svo vel að senda mér ðkeypis sintak af bæklingi yðar "DEAR DAD” til ekýringa á samkepni þessari og kornsölu aðferðum. Nafn ............................. Heimilisfang ..................... (Utanáskrift sé greinileg) ALT, SEM ÞÉR BAKiÐ I HEIMAHUSUM ER SVO BRAGÐGOTT OG FALLEGT ef það er úr . . . Það er malað úr besta Canada hveiti. Kærkomin rödd að heiman Œttmaðurinn Eftir THOMAS DIXON, Jr. “Þakka þér fyrir. Eg hélt að þú ættir spegil. Eg skal senda þér einn,” svar- aði hann og tók undir handlegginn á henni og fór með hana inn í danssalinn. Hendin á Marion skalf ofurlítið er hún lágði hana á öxlina á honum, og hún var rjóð í framan og úr djúpi augna hennar skein draumkend þrá. Eftir að Ben hafði dansað við Marion um stund fór liann aftur til Elsie og þau gengu út í garðinn fyrir utan húsið, en allt í einu stóð yfirforingi herdeildarnin- ar í Piedmont fyrir framan þau, með flokk hermanna með sér. Hann ávarpaði Ben Cameron og sagði: “Eg verð að biðja þig um hnappana og axlarborðana af þessum búningi þín- um.” Það var eins og eldur brynni í aug- um Elsie. Ben stóð kyrr og brosti. “Hvað meinarðu?” Spurði Elsie.” “Eg meina það að ég ætla ekki að láta neinn misbjóða mér, með því að vera í þessum búning í dag.” “Eg ögra þér til þess að snerta hann bleyöan þin!” Sagði Elsie og steig fram. Ben lagði hendina á handlegg henn- ar og dróg hana hægt til baka. “Hann hefir vald til að gjöra þetta. Það má kallast brot á lögum að vera í þessum búningi. Eg beygi mig, ég er heiðvirður borgari og ég hefi verið her- maður. Hann getur fengið sinni kröfu fullnægt. Eg hefi lofað honum föður mínum að vekja ekki ófrið, eða mótþróa á móti hervaldi ríkisins.” Hann sté fram nokkur spor, her- maður einn skar hnappana af treyju hans og svifti borðunum af öxlonum. Á meðan þessari athöfn fór fram, sagði Ben hægt og rólega: “Við Appom- atox þá sýndi hinn mikli hershöfðingi Grant veglyndi sitt með því að gefa okk- ar mönnum hestana sem hann mátti missa og með því að ákveða að ailir for- ingjar sunnanmanna skyldu halda sverðum sínum. Grant hershöfðingi hefir auðsjáanlega ekki átt neitt sam- eiginlegt með ykkur.” “Nei: Eg er yfirforingi í þessu hér- aði.” Sagði Kafteinninn. “Það sýnir sig.” Þegar að hermennirnir voru farnir gengu þau Elsie og Cameron að stóru tré sem stóð í garöinum og staðnæmd- ust þar, og hlustuðu á músikina að inn- an frá húsinu, og utanfrá á nið fossanna í ánni. “Hvernig stendur á því mín kæra, að stúlkur skuii altaf halda áfram að dá kopar hnappa?” spuröi Ben þýölega. “Elsie leit upp kysti hann og sagði. “Vegna þess að það er köllun hermanna að deyja fyrir land sitt og þjóð.” Þegar að þau komu inn í danssalinn og Elsie hafði dansað litla stund við kunningja Bens, dundu fyrstu skotin, sem gáfu til kynna sigur afríku þræl- anna yfir hinum hvítu húsbændum sín- um. Ben gekk út í hægðum sínum, til þess að fá fréttirnar. Stjórnarskráin hafði verið samþykt með yfirgnæfandi meirihluta og þing- menn kosnir, 101 negri og 23 hvítir menn. Silas Lynch hafði verið kosinn ríkisstjóri, negri var kosinn ríkisritari og annar ríkisféhirðír og negri hafði verið kosin hæstaréttardómari ríkisins. Þegar að Bizzel, með kinnsogna andlit- ið, umboðsmaður frjálsramanna félags- ins kunngerð þessi kosningaúrslit frá tröppum dómshússins gall við háreysti mikil. Dynjandi skotríð heyrðist frá rifflum hermanna og byssu kúlurnar þutu yfir bænum í allar áttir. En eftir hálfa klukkustund voru allir horfnir af torginu og einkennileg þögn hvíldi yfir öllu í bænum, efitr hávaðann. Aleck gamli kom slagandi fram hjá gestgjafahúsinu og var all drukkinn. “Hér má sjá einkennilega sjón herr- ar mínir,” Sagði Ben við hóp ungra mannajsem komið höfðu út til hans af danslemum. Kjósandi kemur hér til okk- ar, hann er í sannleika meira, hann er kjósendurnir, konungurinn, þingmaður- inn nýkosni hinn heiðvirði Alexander Lenoir, fyrir Ulster kjördæmið.” “Herrar mínir, Guð hefir verið mér góður,” sagði Aleck grátandi. “Þeir segja að rottu seðlarnir hafi veriö í meirihluta á kjörstaðnum hérna — er það ekki rétt?” “Þú segir satt — það segja háðfugl- arnir — þeir sem sitja í sætum spottar- anna, en lávaður lýðanna auðmýkir þá. Hr. Bizzel umboðmaður frjálsramanna félagsins taldi öll þessi rottu miða at- kvæöi rétt — þeir gátu ekki vilt honum sjónar — hann vissi hvað þau meintu — þau voru öll talin mér og stjórnar- skránni.” “Það var snjallræði!” sagði Ben. “Ef að ekki er hægt að samþykkja með rott- um, þá þætti mér gaman að vita hvers vegna?” “Það er það sem ég segji þeim.” ‘ En ef satt skal segja,” sagði Ben kímnislega, rödd fólksins er rödd Guðs — hvað sem rottunum líður — ef að þú gætir talið.” Þegar Aleck hélt ferð sinni áfram heyröist byssu skothríð dynja við í fjarska. “Hvað meinar þetta?” Spurði Ben og hlustaði. Skothríð þessa gat enginn hermaður misskiliö hún kom frá byssum æfðra hermanna sem allir hieyptu af byssum sínum samtímis, undir þessa skothríð var tekið með skotum frá hæð einni í nokkurri fjar- lægð og enn annari lengra í burtu. Ben gekk út í húsgarðinn og hlustaði. Hljóðfæraslátturinn inni í gestgjafa- húsinu hætti, og fótatak heyrðist í gangi og fordyri hússins, og innan úr því var hrópað “Eldur! Eldur!” Nálega á sama augnablikinu sáust eld tungur læsa sig upp úr þaki hlöð- unnar á landi Cameron Læknis. “Guð minn góðir!” Stundi Ben “Jake er í fangelsinu og þeir haf akveikt í hlöð- unni. Hún er meira virði enn núsið.” Dansfólkið allt flýtti sér ofan hæð- ina og til hlöðunnar sem var að brenna og fór Marion fyrst í danskjólnum hvíta, því hún var allra manna fráust á fæti. Þegar dansfólkið færðist nær hlöð- unni heyrði það orgið í kúnum og hnegg- ið í hestunum upp yfir brestina og brak- íð í eldinum. Áður en Ben komst til hlööunnar var Marion kornin þar og var búin að opna alla bása, og tvær kýr komnar út, en engin hestur herifði sig, en eldurinn elfdist óðum og varð hneggið í hestun- um og öskrið í kúnum sem enn voru inni átakanlegra með hverri líðandi mínútu. Marion kom hlaupandi til Ben náföl í framan. “Ó, Ben, Queen vill ekki koma út! Hvað á ég að gjöra?” “Þú getur ekkert gjört barn. Hest- ar fara ekki út úr eldi nema það sé bund- ið fyrir augun á þeim. Þeir verða allir að brenna inni.” “Nei! Nei!” Stundi Marion upp full ótta og angistar. “Þeir mundu troða hvern þann er reyndi að ná þeim út undir fótunum. Við þessu verður ekki gjört. Það er of seint.” Á meðan Ben leit í kring um sig greip Marion hesta hlíf sem var hendi nær og hljóp eins og fætur hennar tog- uðu með hann til vatnsbólsins sem var dálítill pollur, henti sér í hann, með hlíf- ina og rennbleytti sig og hana. Spratt* upp aftur og hljóp eins hart og hún gat að opnum dyrunum þar sem Queen var inni og hneggaði hærra en allir hinir hestarnir. Fólkið varð ekki vart við þetta til- tæki Marion, fyrri en það sá hana hlaupa frá vatnsbólinu með hlífina og hverja spjör á henni sjálfri rennandi vota og þar sem hún fór í kjólnum hvíta sem lagðist þétt að líkama hennar, leit hún út eins og myndastytta úr marmara sem meistarinn hafði fullkomnað, og Guð blásið lífi í. Þegar fólkinu var fyrirætlan henna ljós hrópaði það í angistar fullum ótta til hennar og tók rödd móðir hennar yfir. Ben stökk og ætlaði að ná í hana og kallaði: “Marion! Marion! Hún treður þig undir.” En hann var of seinn. Marion stökk inn í eldinn til Queen. Fólkið hélt niðri í sér andanum, og leið önn í eitt augnabilk; en svo kom ) Queen stökkvandi út úr eldinum og Mar- ion sem hélt sér í faxið á henni og hélt ábreiðunni yfir höfðinu á sér og henni. Fagnaðar vottur fólksins dundi við þegar Marion og Queen komu út úr eld- inum, og Marion sleppti ekki taki sínu á faxinu á Queen, þar til þær voru úr allri hættu, en þá kom móðir hennar, Margrét og Elsie og föðmuðu hana að sér.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.