Lögberg - 27.10.1949, Blaðsíða 3

Lögberg - 27.10.1949, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 27. OKTÓBER, 1949. 3 íslendingasagnaútgafan h. f. Pósthólf 73 —. Reykjavík Af því að íslendingasagnaútgáfan hefur snúið sér til mín og beðið mig að greiða fyrir því að útbreiða þekkingu á bókum hennar meðal Vesturíslendinga, þá langar mig til að biðja blöðin fyrir þessar upplýsingar. En ástæðan til þessarar orð- sendingar er sú, að útgefendur þessara góðu bóka hafa komið sér spnan um að selja þær Vesturíslendingur, eða mönnum búsettum vestan hafs, á lægra verði til að reyna að jafna þann halla er menn vestan hafs bíða við hið háa íslenzka verðlag. Hafa útgefendur til þess slegið 40—45% af útsöluverði bókanna heima, en lagt á þær kostnað við sendingu vestur. Með þessu lagi verða bækurn- ar seldar vestra sem hér segir: Óbundnar: $25.00 — bundnar: Riddara sögur I—III: Óbundnar: $12.00 — bundnar: þjóðina á hinum örlagaríku tímamótum, víða frábærilega skemmtilegar og samdar af svip- aðri snilli og sögurnar um fyrri aldir. Af þessum sögum er Sturlunga saga, í rauninni safn af sögum frá 12. og 13. öld eftir ýmsa höf- unda, — svo kunn, að minnsta kosti að nafni og meginefni, að ekki þarf að fjölyrða um hana, þótt hún hafi verið lesin miklu minna en skyldi. Hún er svo mik- il fyrirferðar og margbrotin, að mörgum vex í augum að sökkva $35.00 — skrautb. $45.00 $15.00 — skrautb. $20.00 Byskupa sögur I—III 1 Sturlunga saga I—III j 7 bækur Annálar og nafnaskrá I íslendingasögur I—XII og Nafnskrá — 13 bækur: óbundnar: $35.00 — bundnar: $45.00 — skrautbd.: $70.00 Næst munu koma út Sæmund-ser ofan í hana. En flestum. sem ar Edda, Snorra Edda og Karla- magnúsarsaga á vegum útgáf- unnar, og þykir mér líklegt að eftir það snúi þeir sér að því að gefa út fleiri riddara sögur, forn- aldarsögur og lýgisögur. En jafn- vel eins og er, er þetta yfirgrips- mesta útgáfa á íslenzkum forn- ritum við alþýðu hæfi og virðist einsætt fyrir þá Vesturíslend- inga, sem ráð hafa á og unna fornsögunum, að xaupa þessar bækur. Hér fer á eftir lýsing á útgáfu- bókunum, send út af forlaginu sjálfu. Af því ég hef séð bæk- urnar, get ég borið um það að þetta er ekkert skrum, heldur allt sannleikanum samkvæmt. Þeir sem ráð hafa á því að veita sér bækur þessar kaupa því ekki köttinn í sekknum. Pantanir geta menn sent beint til íslendingasagnaútgáfunnar, Pósthólf 73, — Reykjavík, Ice- land, og kæmi útgáfunni vel að fá þær sem fyrst í flugpósti til þess að vita hve upplagið yrði að vera stórt. ☆ Það verður aldrei of vel brýnt fyrir íslendingum, hvílíkan fjár- sjóð þeir eiga í íslendinga sögum (og þáttum), enda njóta þær nú tvímælalaust almennastra vin- sælda hér á landi af öllum forn- ritum vorum, eins og vel sést af viðtökum þeim, sem hin nýja heildarútgáfa þeirra hefir fengið. Þær vinsældar fara vonandi vax- andi, unz því takmarki er náð, að allar þær sögur verði til á hverju íslenzku heimili. En fyrir því mega menn ekki gleyma, að til eru aðrar íslend- inga sögur, ekki frá blómaskeiði þjóðveldisins, söguöldinni, held- ur að mestu leyti frá hinum hörmulegu tímum, er það var að riðlast og líða undir lok og þjóð- in síðan að verjast í vök gegn ofríki konungs og kirkjuvalds. Þessar sögur gerast á 12.—14. öld og eru yfirleitt ritaðar skömmu eftir að atburðirnir gerðust. Þær eru með nokkru öðru móti en sög urnar um fyrri tíma og þó á sinn hátt ekki minni bókmenntaafrek, traustar heimildir, raunsæjar lýsingar, beiskur sannleikur um fara verulega að kynnast henni, mun reynast erfitt að slíta sig frá henni, og til eru menn, sem taka hana fram yfir allar aðrar sögur. Hins vegar eru Biskupa sögur hina fornu svo ókunnar íslenzk- um almenningi, að það verður að teljast bæði skaði og skömm slíkri bókmenntaþjóð, enda hafa þær aldrei verið prentaðar hér á landi né í verulega handhægri út gáfu. Þessar sögur standa þó sumar jafnfætis því, sem bezt er í öðrum fornsögum vorum, eru stórfróðlegar um tímabilið fram að 1262 og ná alla leið fram á 14. öld, þar sem engra annarra slíkra heimilda er kostur. Og þær segja svo margt frá sama tímabili, sem Sturlunga fjallar um, að sagan er ekki nema hálfsögð, ef þær eru ekki lesnar samhliða. Elzta biskupasagan er Jóns saga helga eftir Gunnlaug Leifs- son, rituð um 1200, að vísu helgi- saga, þjóðsagnakennd (m.a. með elztu sögunum af vist Sæmundar fróða í Frakklandi), en auðug að efni, t.d. lýsingum lífsins á Hól- um um daga Jóns biskups. Jar- teiknirnar í henni og sérstaklega Þorláks sögu eru í senn einstakar myndir úr hversdagslífi alþýðu og heillandi fyrir einfeldni sína og fegurðarblæ. Hungurvaka mun jafnan verða talin ein af perlum íslenzkra bókmennta. Hún sígir frá Skáholtsbiskupum fram til Þorláks helga og er rit- uð skömmu síðar en Jóns saga. Þá er Þorláks saga helga, með Oddaverja þætti, sem lýsir Jóni Loftssyni betur en nokkur önnur heimild, og Páls saga, rituð með svipuðu sniði sem Hungurvaka. Prestssaga Guðmundar Araspnar er í Sturlungu, en framhald hennar (eins og upphaf Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar), Guð- mundsr saga biskups, einungis í Biskupa sögunum. Þar er og önn- ur saga af Guðmundi, rituð löngu síðar (um miðja 14. öld), og saga Arons Hjörleifssonar, vinar Guð- mundar og fylgismanns, ein skemmtilegasta hetjusagá frá 13. öld. Ssga Árna biskups Þorláks- sonar er auðug og ómetanleg heimití um síðustu áratugi 13. aldar, deilur leikmanna og TIL KAUPENDA LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU Frá því var nýlega skýrt f báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein- dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn; þetta er að vísu ekki jnikill tekju auki, en þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði. Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka pumlungur. THE COLUMBIA PRESS LIMITED THE VIKING PRESS LIMITED klerka og átök við konungsvald- ið.Að lokum er Lárentíus saga Hólabiskups frá 14. öld, rituð af Einar Hafliðasyni, óvenjulega vel sögð og skemmtileg saga, svo að engan mundi gruna, að með henni væri þessari sagnagrein í rauninni lokið. Það mun hverjum manni sýn- ast, sem les Biskupasögur sam- hliða sögunum í Sturlugu, ekki sízt með sameiginlegri nafnskrá, að margt verður þá ljósara og hvorar fvlla þá eyðurnar í hin- ar. Stórhöfðingjar 12. og 13. ald- ar koma mjög við Biskupasögur og má bæði sjá þá þar í skýrara ljósi og fylgja lengra ferli þeirra en ef Sturlungu einnar væri við kostur. Hinir fornu íslenzku Annálar ná að vísu aftur í forneskju, en verða sérstaklega dýrmætar heimildir um 14. öldina, enda þá stundum svo rækilegir, að þeirra svipar til sagna, t.d. um Grundar- bardaga í annál Flateyjarbókar. Einn þeirra nær allt til 1430, er Jón Gerreksson kom til stóls í Skálholti. Með því að gefa öll þessi rit út í einni heild og með einni nafnaskrá, sem verður hér ekki ^íður dýrmæt en í íslendingasög- um, er þjóðinni gefinn kostur á að kymna sér eftir frumheimild- um og í snilldarfrásögn samtíð- armanna það tímabil, sem hún sízt má vera án að þekkja frá ícrtíð sinni. Það virðist hafa vak- fyrir höfundum þessara sagna, að dæmi þau, er gerðust um þeirra daga væru of lærdómsrík til þess að gleymast og gætu orð- ið niðjum þeirra til nytsemdar. Og ef eitt boðorð ætti að gefa ís- lendingum nú á dögum, er vafa- ■’amt, hvort annað væri öllu meira heilræði en þetta: Munið söguöldina, en gleymið eigi að heldur Sturlungaöldinni. Steíán Einarsson, Johns Hopkins University Sofjanías Thorkelsson Stórgjöf til skógræktar í Svarfaðardal Soffanías Thorkelsson gefur fæðingarsveit sinni 50 þúsund krónur og heitir meiri stuðningi Vestur-íslendingurinn Soffanías Thorkelsson hefir í sumar gef- ið fæðingarsveit sinn — Svarfaðardalshreppi — 50 þúsund krónur, sem verja á til skógræktar. Auk þess hyggst hann að útvega og senda vírnet til þess að girða skógræktarsvæðið — „það á að vera uppbót eða ofanálag frá minni hendi“ skrifar Soffanías í bréfi til Gísla Kristjánssonar ritstjóra FREYS hinn 5. september. Soffanías lifði æskuár sín á Hofá í Svarfaðardal. Við Svarf- aðardal — og sérstaklega við Hofá — á hann margar minn- ingar tengdar, enda þótt hann færi að heiman aðeins 19 ára gamall. Kemur þetta ljóst fram í „Ferðahugleiðingum“ hans, sem hann skrifaði eftir að hafa dvalið hér heima árið 1940. Gaf Vallarkirkju klukku mikla. Um liðin ár hefir Soffanías vottað hinn mikla hlýhug sinn til sveitarinnar á ýmsan hátt, t. d. er hann fyrir tveim árum gaf kirkju þeirri, er hann var fermdur í — Vallakirkju í Svarf aðardal — kirkjuklukku hina mestu, sem til mun vera hér á landi. Þessi gjöf hans nú, 30 þús- und kr. til skógræktar ásamt fyrirheiti um stuðning til þess að hrinda framkvæmdinni áleið- is, er órækur vottur þess, hve góður sonur sveitar sinnar Soffanías er. Til skógræktar í landi Hofsár Soffanías hefir látið fylgja upphæð þessari þá kvöð, að henni sé varið til skógræktar í landi Hofsár, en upphæðin er gjöf til Svarfaðardalshrepps, sem bera skal ábyrgð á fram- kvæmdunum. Fyrir hönd Soff- aníasar mun Eiríkur Hjartarson rafvirki, fylgjast með gangi málsins og aðstoða eftir getu, en Eiríkur hefir, sem ýmsum er kunnugt, haft skógrækt á eign arjörð sinni, Hánefsstöðum í Svarfaðardal. Land það, sem valið hefir ver- ið til skógræktarinnar í Hofsár- landi, hafa þau hjón, Dórothea Gísladóttir og Þorleifur Bergs- son á Hofsá gefið. Framkvæmdir þegar í haust Framkvæmdir eru fyrirhugað ar strax á þessu hausti. Það fyrsta sem gera þarf er að steypa staura, því að Soffanías hefir mælst til, að frágangur allur yrði sem beztur, en hans ósk er einnig að þarna verði ekki að- eins ræktaður skógur, heldur verði þar og uppeldi trjáplantna, svo að þaðan megi afgreiða þær til þeirra Svarfdæla, sem óska að rækta trjágróður hjá sér í framtíðinni. Þegar búið er að girða landið, mun ætlunin að hefja önnur undirbúningsstörf. „Menn liðtækir“ Oddviti Svarfaðardalshrepps Gunnlaugur Gíslason í Sökku, hefir í samtali við Gísla Krist- jánsson ritstjóra látið þau orð falla, að Svarfdælir séu mjög glaðir þessum höfðingsskap Soffaníasar, er beri vott um hina óbifanlegu tryggð hans við æskusveitina. Bvað hann fyrir- hugað að reyna til hins ítrasta að gefa framkvæmdinni góðan byr enda verður árangur starfs- ins vottur um dáðir hreppsbúa, en Soffanías skrifar: „Þeir eru menn liðtækir og treysti ég þeim hið bezta til framkvæmdanna“. TÍMINN, 18. sept. Business and Professional Cards SfLKiRK KETAL PRODUCTS LTD. Keykhafar, öruggasia eidsvörii og Avalt hreinir. Hitaeining, n< uppfynding, sparar eldivif, heldur hiia KELLÍ SVEINSSON Sfmi 64 358. 187 Sutherlaml Ave., Winuipeg. S O BJERRING Canadian Stamp Co. * RUBBER St METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg Phone 924 624 Office Ph, 925 668 Res. 404 819 NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. RaiTisicr. Solicitor. etc. 411 Childa Bldg, WINNIPEG CANADA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrisiers - Solicitors Ben C Parker, K.C. B. Stuart Parker, A F. Kristjansson S00 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 561 JOHN A. HILLSMAN, M.D., Ch. M. 332 Medical Arts. Bldg. OFFICE 929 349 Home 40* *88 Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6 — 652 HOME ST. VlOtalattml 3—6 eftir hflLdegd líirosiiiit JEWELLERS 447 Portage Ave, Aiso 123 TENTH ST. BRAND0N Ph, 926 885 -----------------------------, DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk. Man. Offtce hre. 2.30—6 p.m. Phones: Offlce 26 — Re«. 280 i Phone 21 101 ESTIMATF.S FREE J. M. IN6IMUND50N Asphalt Roofs and Insnlat^d Sfding — Repairs 632 Simcoe St. Winntpeg, Man Office Phone Ftes Phone 924 762 726 lli Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDQ. Offlce Houra: 4 p.m.—6 p.m and by appolntment DR. A. V. JOHNSON Dentiat 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœlcnar 406 TORONTO QEN. TRUST8 BUILDING Cor. Portage Ave. og Smitta 8t. Phone 926 952 WINNIPEQ Talslml 925 826 Heimllls 63 893 DR. K. J. AUSTMANN Sérfræöinyur 4 augna, cyrna, ncf oq tcverka 8júkdómum. 209 Medical Arts Bldg. Stofutími: 2.00 til 6.00 e. b DR. ROBERT BLACK SértrœBingur i augna. egma. nef og hdUsjúkdómum 401 MEDICAL ARTS BLIXJ Qraham and Kennedv St Skrlfstofustml 923 851 Heimasimi 403 794 Cars Bought and Sold SQUARE DEAL MOTOR SALES "The Working Man’s Friend’’ Ph: 26464 297 Princess STRKicr Half Biock N. Logan SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLE SERVICE EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER. N DAK Menzkur lytsali F61k getur pantaO meOul ok annaO meC pósti. Fljdt afgreiOsla. J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDQ WPQ. PaHteignasalai'. Leigja hús. Ot- peningalán og elds&byrgO. hifreiOaabvrgO, o. R. frv. Phone 9*7 618 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREF.T Selur llkklstur og annaet um at- farir. Allur útbönaður sá beztl Ennfremur selur hann allskonai minnisvarSa og legsteina. Skrifstofu talslmi 27 324 Helmilis talslml 26 444 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœGingar iOSH.'.NK OF NOVA SCOTIA BQ Portage og Qarry St. Phone 928 2#1 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Wpg. Phone 926 441 Phone 927 005 H. J. H. Palmason. C.A. H. J. PALMASON * CO. Chartered Accountante 305 Confederatlon Life Bldg. Winnipeg Manltoba GUNDRY PYMORE Limited British (Juaiity Fish Netting 58 VICTORIA ST„ WINNIPEQ i Phone 98 211 j Uanager T. R. THORVALDSON | Your patronage will be appreclated j C A N A D I A N FISH i PRODUCERS, LTD. J H. PAOB, Managing Director Wholesale Distrihutors Of Fraeh and Frozen Flsh. 311 CHAMBER8 STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 j Phone 49 469 Radlo Service Speelaliste ELECTRONIC LABS H. THORKELSON. Prop The most up-to-date Sound Equlpment Syatem. 692 ERIN St. WINNIPEQ Q. F. Jona8aon. Pres. A Man. Dir Keystone Fisheries Limited 404 8COTT BLK, Síml 9*6 **7 , Wholesale Distritnitors of FRESH AND FROZEN FISH

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.