Lögberg - 01.12.1949, Blaðsíða 7

Lögberg - 01.12.1949, Blaðsíða 7
L.ÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. DESEMBER, 1949 7 Framleiðsla á skóm, hönzkum og töskum úr innlendu efni Leðurgerðin h.f. og Skóverk- smiðjan Þór h. f., hafa nýlega flutt í ný, rúmgóð húsakynni í húsinu Lausaveg 105. Framleið- sla verksmiðjanna hefir við hús- næðisbreytinguna færst í nýtt horf og buðu því forstöðumenn þeirra Fjárhagsráði og Viðskipta nefnd, ásamt blaðamönnum að kynnast framleiðsluháttunum, í gærdag. Um fyrirtœkin Upphaf Leðurgerðarinnar h.f. er það, að árið 1937 var hafin framleiðsla á leðurhönzkum af núverandi eigendum fyrirtækis ins. Tveim árum síðar hófst framleiðsla á kventöskum og hef ir starfssvið verksmiðjunnar verið bundið þessum framleiðslu greinum æ síðan. Skóverksmiðjan Þór h.f. komst í sömu hendur og Leður- gerðin h.f. á síðastliðnu ári, en á þessu ári hefir framleiðsla þeirrar verksmiðju allmikið breytzt, eftir að hún flutti í hin nýju húsakynni. — Framleiddir eru kvenskór og kvenstígvél. Forstjóri beggja fyrirtækanna er Arnbjörn Óskarsson. Um framleiðsluvörurnar Megnið af efnivörunni í tösk- urnar og hanzkana er alinnlent efni, sútuð íslenzk skinn. Fram- leiðsla þessara vörutegunda er mjög vandasöm og kostar margra ára þjálfun fyrir starfs- fólkið að ná nauðsynlegu ör- yggi og leikni til þess að varan verði nægilega vönduð. — Bera framleiðsluvörurnar þess óræk- an vott, að svo er, því að mikill mismunur er á því hve þær eru betri nú, en þegar fyrstu tilraun irnar voru gerðar. Margt af starfsfólkinu hefir unnið hjá verksmiðjunni frá byrjun. Stór- um bætt húsakynni, betri áhöld og æfðari starfskraftar hafa kom ið framleiðslunni á það stig, sem raun ber vitni um í dag. Skóverksmiðjan framleiðir eingöngu kvenskó og kvenstíg- vél. Er það nýjung á sviði skó- iðnaðar hér á landi, að kven- stígvél eru gærufóðruð. Eru þau sérlega hlý og henta vel ísl. veðurfari, enda mjög eftirsótt. Annað, sem til nýjunga má teljast, er það, að allir skór frá verksmiðjunni eru sólaðir með hrágúmmíi, sem þykir endinga betra öðrum sólum. Sólarnir eru innflutt vara, en yfirleðrin öll eru úr innlendum skinnum. Nokkuð er breytilegt eftir teg- undum skónna eða stígvélanna, hve mikill hluti af verðmæti efnivörunnar er innlend vara, en segja má, að jafnaði sé 50— 70% af efnisverðmæinu innlent. Gjaldeyrissparnaður Af framangreindu sést, að mikill gjaldeyrissparnaður er í því fólginn, að framleiðsla þessi fái nauðsynleg lífsskilyrði, mið- að við það að ella væru fluttir inn skór erlendis frá. Ef flutt væru inn erlend efni að öllu leyti til skógerðarinnar, myndi það að vísu vera gjaldeyrissparn aður, en þó engan veginn á borð við það, ef notuð eru innlend efni í jafn ríkum mæli og þessi verksmiðja hefir notað. Hins veg ar er sá annmarkinn, að innlend efni eru að jafnaði töluvert dýr- ari, en þó mun það vera hag- kvæmara frá þjóðhagslegu sjón- armiði að nota innlendu efnin, svo langt sem þau hrökkva til. Með því að nota innlendu efn- in og framkvæma sem mest í landinu sjálfu, fæst langtum meira skómagn handa lands- mönnum fyrir sama gjaldeyris- magn. F ramleiðslugeta verksmiðjanna Skóverksmiðjan getur fram- leitt á ári hverju 24000 pör af skófatnaði, miðað við núverandi húsnæði og vélakost. Leðurgerðin mun geta fram- leitt árlega um 14000 pör af hönzkum og 8000 kventöskur. Þrátt fyrir það að verulegur hluti af efnisverðmætinu er inn- lend efni vara, dregur það mjóg úr afköstum verksmiðjanna, að þær hafa ekki fengið gjaldeyris- og innflutningsleyfi nema af mjög skornum skamti. Þess- vegna er langt frá því að ofan nefndri afkastagetu sé náð, eins og nú standa sakir. Magnús Jónsson formaður Fjárhagsráðs, þakkaði boðið fyr ir hönd gesta og gat þess m. a. að fulltrúum Fjárhagsráðs og Viðskiptanefndar væri nauðsyn- legt og skylt að kynnast innlend um iðnaði eftir föngum. Mbl. 6. nóv. Ef þér væruð einvaldur í heiminum og réðuð yfir öllum þjóðum, hvernig munduð þér stjórna? Viljið þér senda Einingu svar við þessari spurningu? En það verður samt ekki birt nema það sé stutt og læsilegt, annað hvort skemmtilegt eða viturlegt, eða hvort tveggja. Væri ég slíkur einvaldur, mundi ég gera þetta: Gefa öllum þjóðum og þjóða- brotum fullt sjálfstæði og frelsi en bjóða þeim þátttöku í alþjóða stjórn og félagi. Eg mundi bjóða þremur æðstu mönnum allra þjóða, sameigin- lega í þriggja daga veizlu á hverju ári. Eg mundi lögbjóða einn gjald- eyri fyrir allar þjóðir og gera allan heiminn að einu viðskipta- svæði. Eitt tungumál yrði kennt í skólum allra þjóða, en hver þjóð fengi þó að nota sitt eigið tungu- mál, alveg ótrufluð. Allir menn fengju frjálsar hendur til að verzla og stunda hvers konar athafnalíf og græða fé eftir getu, en þeir mundu verða að bera þær álögur, er gerðu fært að sjá vel fyrir öllum, sem ekki gætu bjargast sjálfir eða hefðu ekki atvinnu. Lögbundinn vinndagur yrði stuttur, en við allt uppeldi yrði lögð mest áherzla á fegurðar- smekk, listir, ræktun, fegrun, ferðalög og sem nánust kynni þjóða. Ógift fólk yrði að bera all- þunga skatta. Eg mundi verðlauna hvert þar, sem giftist saman, amerískt og rússneskt. Hver þjóð fengi að halda sínu eftirlætis þjóðskipulagi, en þar mundi brátt koma í ljós, hvað gæfist bezt. Markvisst yrði unnið að af- vopnun allra þjóða, hermönnum fengin nytsamleg störf og her- skipum breytt í lystisnekkjur og hernaðarflugvélar teknar til skemmtiferða. En helzta fræðigreinin meðal allra þjóða yrði mannfjölgun og framleiðsla nauðsynja, að í slíku yrði sem bezt jafnvægi og of- fjölgun þjóða haldið í skefjum með menntun og góðum lífskjör- um. Alla tvímælalausa vand- ræða menn og undirmálsmenn, karla og konur, skyldi gera ó- frjóa. Uppeldismálum skyldi hagað þannig, að hver maður, karl og kona, meðal allra þjóða, á aldr- inum 10—70 ára gæti stundað minnsta kosti tveggja stunda nám vikulega, í.klúbbum, félög- um eða skólum. Eg mundi láta reisa volduga alþjóða menningarstöð. Ekki eitt hús, heldur nokkur stórhýsi, af þeirri beztu gerð, sem kunnáttu- menn heimsins gætu afrekað. Þau yrðu að minnsta kosti fjög- ur: helgidómur, háskóli, út- varpsstöð og listaverkasafn. Þaðan yrði útvarpað um heim allan því bezta, sem hver þjóð gæti lagt til. Þá menn mundi ég sæma heiðursmerkjum, sem bezt orð fengju fyrir heiðarleik. Pétur Sigurðsson—Eining Til fróðleiks og skemmtunar í ljóðum og lausu máli um „Borgfirzk ljóð“ hefir þetta borizt til viðbótar, og er þar enn lífalið á „hrossa- sóttinni“. Höfundurinn nefnir sig Reykvíking: Sízt ég vildi segja ljótt, en sögn þá tek og hirði, að helzt til margir hrossosótt hafa í Borgarfirði. Þessu verður varla leynt, það veit nú gervöll þjóðin, sönnun leggja á borðið beint Borgarfjarðarljóðin. Ekki er mein að yrkja um hest er þú kæran hefur, enda máske einna mest yndi í sál þér gefur. Einni sögu um það fer og allt of margir sanna, af öllu köldu að kaldast er kærleiksleysi manna. Ein er sannreynd alveg skýr: öruggt má því treysta, að sá sem elskar eitthvert dýr á þó kærleiksneista. Þessar vísur geta þau ótvírætt bundið í lárviðarsveig sinn, borg firzku skáldin, sem kváðu um hesta sína. „Allt verður þeim til góðs sem guð elska“, og allt snýst þeim til heiðurs, er að Borg- firzkum Ijóðum stóðu. Þeir létu sér sæma að fylgja fordæmi Þingeyinga. Megum við nú ekki fara að vænta þess, að fleiri hér uð feti sömu slóðina? Það er ekki til neins að berja við getuleysi; þau geta það öll saman. Héðan af er eina afsökunin dáðleysi — og hún er leiðinleg. Vísur eftir Pétur biskup Það er alkunnugt að séra Pét- uur Pétursson á Víðivöllum var listaskáld, og um sonardóttur hans, Jarþrúði Jónsdóttur, er svipað að segja. En sonur hans, Pétur biskup, var einnig laglega hagorður. Hann andaðist 15. maí 1891, en á því sama ári, 11. febrú ar og 7. marz, höfðu birzt eftir hann í ísafold þessar vísur, hvor ar tveggja nafnlausar: Þó að vort sé þrekið smátt, þarft má vinna á margan hátt. Huga snúum í þá átt að efla fósturjarðar mátt. Leggjumst þannig öll á eitt — orkan vex sé hennar neytt; þá mun verkið ganga greitt og geta blessun af sér leitt. Fingur stirðna förlar sjón, fellur penninn niður; ellin heyrir engra bón, er það hennar siður. Áður miskunn guðs mér gaf að geta nokkuð unnið; ég í leti sjaldan svaf; svo er líf út runnið. Sýnið bæði dug og dáð, dagsins birtu notið; geti ellin yður náð, allt er færi þrotið. Ein er sú vísa eftir hann, sem margir kunna, en stundum er rangt með hana farið, og afbök- uð; hefur hún nýlega verið prentuð. Hún er þessi: Kaupstaður á Skipaskaga skötnum verður helzt til baga; eftir sér hann dilk mun draga: drykkjurúta og letimaga. Þá var það altítt að menn hímdu við búðarborðið lögum tímum saman til þess að sníkja sér snaps. Pétri Ottesen, alþingismanni bárust margar kveðjur víðs vegar að á sextugsafmæli hans síðastliðið sumar. Þessi er ein þeirra, frá gömlum en burtflutt um Borgfirðingi: Spurn ei þurfti að þér né leit er þingið gekk til dóma: Þú varst fremst í þeirri sveit, er þjóðar gætti sóma. Þú mátt bæta tug á tug, svo tæpt verði á Berurjóður, sem helgaðir ættjörð hug og dug. Heill þér, vinur góður. Eftir Eyjólf Ijóstoll hefir Akranes náð í þessar vís- ur, kveðnar á Kalastöðum, um eða laust eftir aldamðtin, að því er ætlað er. Líklegt er að í fleiri náist síðar: Drottinn sjálfur veiti vörn, vermi huga glöðum, ágæt hjón og blíðust börn blessi á Kalastöðum. Sesselja til sæmda fús sinnir ferðalýði, hirðir bæði börn og hús af beztu manndómsprýði. Höldur skýr með hugvitssjón holla lánið tryggir, kostum búinn kynsæll Jón, Kalastaði byggir. Ekki munu allar vísunrnar ort ar í sama sinn. __*__ Eitt sinn kom Eyjólfur inn í búð í Reykjavík. Auk búðar- mannsins voru einhverjir þar nærstaddir. Einn af þeim kastar þá fram þessum vísuparti: Tollur teigir tána, títt um ísa-grund. Þá svarar Eyjólfur samstund- is: Bölvaðan búðar-slána, ei betri met en hund. Einhverju sinni kom Eyjólfur inn í Edinborgarverzlun hér í Krosshúsi, er Ivar var þar verzl unarstjóri. Er ívar þá að fægja hníf (sjálfskeiðing), er hann fann úti, og var orðinn mjög ryðgaður. Segir Ivar þá: Þessi hnífur úti fannst, allur skældur snúinn. Þá svarar Eyjólfur: Kæmist á hann koppaglans kysi hann antmannsfrúin. 1 sannleika sagt, þykir mér fyrri parturinn lakari en svo, að ívar hafi gert hann svona a .m. k. AKIANES Kærkomin rödd .... (Framhald af bls. 3) frá bæjardyrunum út á hlað, þar sem hún labbaði með mér aftur og fram litla stund. En þar voru dálítil brögð í tafli því kvikmynd var tekin af henni á meðan. Var það Jón Helgason kaupmaður Reykjavík sem myndina tók. Mun það eina myndin hér á landi er getur sýnt konu með yf- ir hundrað ár að baki, ganga léttum fetum eina og óstudda. Þorbjörg var ágætur skrifari, en nú er henni farin að daprast það sýn að síðastliðin tvö ár hefir hún ekki séð til að skrifa sendi- bréf og heyrn er dauf en minnið lítið sljógvað. Það er fyrir hið látlausa kapp við ullariðnaðinn að Þorbjörg unir lífinu vel þrátt fyrir svona háan aldur. Þorbjörg er fædd og uppalin í Hvítársíðu, og þar má segja að hún hafi alið allan sinn aldur. Svo hefir það verið öld eftir öld að fólk sem alist hefir upp í Hvítársíðu unir þar alla ævi og enn er það svo að minni ringulreið er þar á fólk inu en í öðrum sveitum þessa héraðs. Þorbjörg á Bjarnarstöð- um er fædd á Þorvaldsstöðum, næsta bæ við Fljótstungu, þar voru þá foreldrar hennar og þar bjó allan sinn búskap föðurfaðir hennar Jón Auðunnsson, einn af vinsælustu Borgfirðingum. Það sýndist benda til hnignunar í bú skap bænda þegar þessi nota- drjúga farsældarjörð var lögð í eyði, nú á sínustu árum. En ekki gátu þeir er þaðan áttu kyn sitt til að rekja þolað að svo stæði lengi. Sigurður Jóhannesson frá Hallholtsstöðum reisti þar bú síðastliðið vor. Móðurfaðir Sig- urðar Jóhannessonar, Sigurður Sigurðsson frá Efstabæ í Skorra dal bjó allan sinn búskap á Þor- valdsstöðum og þykir nú vel við eigandi að nafni hans og dóttur- sonur skipi sæti afa síns í þessu friðsæla fjallabýli. Nú eru það hinar svokölluðu sauðjarðir, sem Ísfirðingar hafa stofnað tónlistarfélag og tónlistarskóla Samtal við Halldór Halldórsson bankastjóra formann félagsins Haustið 1948 var Tónlistarfélag ísafjarðar stofnað af nokkrum áhugamönnum í bænum. Höfuðtilgangur þess var að efla tón- mennt og tónlistaráhuga á ísafirði, m. a. með því að koma þar á fót tónlistarskóla. Morgunblaðið hitti formann Tónlistarfélags Isa- fjarðar, Halldór Halldórsson bankastjóra, að máli og leitaði hjá honum fregna af starfsemi félagsins. Fyrsta verkefni félagsins var stofnun tónlistarskóla og ráðn- ing skólastjóra við hann, segir Halldór Halldórsson. — Ragnar H. Ragnar söngstjóri var ráðinn til þess starfa. Aðsókn að skól- anum varð þegar allmikil. Voru 25 nemendur í honum síðastlið- inn vetur en í vetur verða þeir 30, 25 í píanóleik og 5 í orgelleik. Áform okkar er að gera kennsl- una fjölbreyttari eftir því, sem félaginu vex fiskur um hrygg. Gengst fyrir tónleikum — Hefir félagið ekki efnt til opinberra hljómleika. — Vegna samkomubannsins í bænum af völdum mænuveik- innar varð lítið úr því í fyrra- vetur. En í sumar héldu þau Er- ling Blöndal Bengtson og Þór- unn Jóhánnsdóttir hljómleika sitt í hvoru lagi á vegum félags- ins. Voru þeir mjög vel sóttir. Nú í haust eigum við von á Árna Kristjánssyni og Birni Ólafssyni til okkar og munu þeir halda hljómleika á vegum félagsins. Fleiri hljómleikar eru í undir- búningi. Vœnta sama stuðnings og önnur tónlistarfélög. — Hefir félagið fjárhagslegt bolmagn til þess að rísa undir starfsemi sinni? — Við væntum að svö verði. í félaginu eru nú 120 styrktarfé- lagar, sem greiða 50 kr. á ári Bæjarstjórn ísafjarðar hefir einnig sýnt félaginu velvild og skilning með því að veita því nokkurn styrk á þessu ári. Ennfremur sótti það um nokk- urn styrk til Alþingis. En sú beiðni bar ekki árangur. — Mun um við sækja um svipaðan styrk til næsta þings og önnur hlið- stæð félög njóta. Ég álít að nauðsyn beri til þess að unglingar eigi kost á fræðslu í tónmennt í stærstu kaupstöð- um landsins. Það verður í reynd inni ókleift að sækja slíka mennt un til höfuðborgarinnar einnar sökum kostnaðarins við það. Auk þess hefir það almennt menningargildi fyrir bæjarfé- lagið að þar sé haldið uppi slíkri fræðslu og kynningu tónlistar fyrir almenning. Vinsœll skólastjóri Við ísfirðingar vorum mjög heppnir að fá ágætan og áhuga- saman skólastjóra og leiðbein- anda þar sem er Ragnar H. Ragn ar. Hann flutti hingað til ísa- fjarðar beint frá Bandaríkjun- um til þess að annast hér söng- stjórn, söngkennslu við skólana og kennslu í tónlistarskóla okk- ar. Er hann þegar orðinn vinsæll í bænum og mun koma hans verða tónlistarlífi okkar ísfirð- inga til mikillar eflingar. Stjórn Tónlistarfélags ísafjarð ar skipa nú Halldór Hálldórsson bankastjóri, formaður, Jón Jóns son frá Hvanná og Kristján Tryggvason klæðskerameistari. Framkvæmdarstjóri félagsins er Páll Jónsson verzlunarmaður. Mbl. 4. nóv. Saga mannsandans Eftir próf. ÁGÚST BJARNASON Falleg útgáfa með mörgum myndum og í allstóru broti „Þetta er lýsing á andlegu lífi og listum kynslóðanna, saga heimsmenningarinnar, trúar, heimspeki og vísinda, frá því fyrstu mannverur rísa úr rökkri aldanna og fram til þessa dags. Þetta er mannkynssaga, rituð frá sjónarhóli andlegrar menningar en ekki styrjalda eða valdastreitu Þetta er hið stærsta sögurit, sem skrifað hefur verið á ís- lenzku, rit er opnar lesendum útsýn yfir viðfangsefni heims- menningarinnar í fortíð og nú- tíð. Það er tímabært rit, rit sem vandlátur lesandi ekki aðeins les einu sinni, heldur mun hverfa til aftur og aftur, — lesbók allra aldurskeiða og handbók sem æ og æ mun reynast þörf á að fletta upp í. — Þetta er mennt- andi rit, sem hvert menntað heimili hefur stöðuga ánægju af. — Ná segja, að próf. Ágúst Bjarnason hafi með ritum þess- um opnað íslenzkri alþýðu út- sýn til heimsmenningarinnar og fært þjóðinni nýjan auð hug- mynda og hugsjóna þeirra manna er leitt hafa mannkynið á vegferð sinni —“ Þessi orð eru útdráttur úr rit- dómi frá íslandi um þetta stór- merkilega verk, prof. Ágústs Bjarnasonar. Eg hefi þegar les- ið tvö fyrstu bindin af þessu verki og vitna fúslega, að ekk- ert er of sagt í því sem að ofan er ritað. Þessar bækur get ég með ánægju lesið oft, og fræðst því meira, því betur sem ég les þær. eru að leggjast í eyði ein eftir aðra. Sumstaðar jafnvel í tuga- tali. Stendur það í sambandi við hina illræmdu mæðiveiki, er sverfur nú svo fast að sauðfénu að þrátt fyrir lambaeldi fækkar fénu ár frá ári. Er nú svo komið að sumir bændur sem byggt hafa afkomu sína á sauðfjáreign sjá þess nú engan kost lengur. Framhald höfðingja. Verkið allt eru sex bindi og er efinu skipt þannig. 1. Forsaga manns og menn- ingar. 2. Austurlönd. 3. Hellas. 4. Róm. 5. Vesturlönd. 6. Nýtjánda öldin. Þrátt fyrir þó nöfn sá þessi séu oss áður kunn af bókum höfundarins, þá eru þar aðeins um parta úr þeim að ræða, því flest er þar aukið og endurbætt, og prýða og skýra lesmálið margar myndir. Aðeins takmark að upplag verður gefið út af þessu verki og fer það eftir því hve margir vilja eiga það. Efast ég ekki um að ýmsir hér Vestan hafs vilji eignast þetta verk og ættu þeir sem fyrst að senda til mín pöntun á því, svo ég géti vitað hve mikið ég má biðja um af því. Tvo bindin — það er fyrsta og annað bindið, eru kom- in á markaðinn en hin koma á næstu tveim árum. Verkið er haft svo ódýrt, sem möguleikar leyfa, og þessi tvö bindi sem út eru komin og eru mikið á sjö- undahundrað blaðsíður, kosta eitthvað um sjö dali, sem er ekki mikið eftir verðgildi bóka nú al- mennt á íslandi. Þeir, sem vilja eignast þessar bækur eru því vinsamlega beðn- ir að láta mig vita það sem fyrst svo ég geti pantað þær og viti hve mikið ég má fá af þeim. Björnssons Book Store, 702 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.