Lögberg - 02.02.1950, Qupperneq 1
PHONE 21 374
A Complete
Cleaning
Institulion
PHONE 21 374 . .
A Compleie
Cleaning
Institution
64. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. FEBRÚAR, 1950.
NÚMER 5
Ársþing stjórnmálasamtaka
í Manitoba á föstudaginn var
Á föstudaginn var héldu
Liberal-Prógressive stjórnmála-
samtökin í Manitoba ársþing
sitt á Fort Garry hótelinu hér
í borginni; aðsókn var góð þrátt
fyrir frosthörkur og torsóttar
samgöngur víðsvegar um fylkið.
Þingið félst á tillögu þess efn-
is, að ráðherrum úr fylkingu
Liberal-Prógressive flokksins
yrði fjölgað í hlutfalli við þing-
styrk hans; þingið var því mót-
fallið, að tilraunir væru gerðar
í þá átt, að rjúfa samstarf nú-
verandi stjórnarflokka; það
mælti með því ennfremur, að
konur yrði skipaðar í opinberar
nefndir þar sem verksvið þeirra
krefðist slíks; að fundur allra
mentamálaráðherra yrði hald-
inn með það fyrir augum að
samræma námsskrár og kenslu-
aðferðir; svo og að kvatt yrði til
fundar, er allir verkamálaráð-
herrar landsins tæki þátt í með
það fyrir augum, að samræma
verkamálalög hinna einstöku
fylkja.
Hon. F. G. Bradley ríkisritari
var einn af aðalræðumönnum
þingsins. C. Irving íeith, K.C.,
var endurkosinn formaður á-
minstra stjórnmálasamtaka.
Ber Rússum þungar
saksr á brýn
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Acheson, hefir alveg
nýverið borið Rússum það
brýn, að þeir hafi með lymsku-
legum hætti sölsað undir sig
fjögur hinna norðlægustu fylkja
í Kína, er búi yfir því nær ó-
tæmandi náttúruauðæfum; tjáð-
ist Mr. Acheson hafa fyrir þessu
ábyggileg sannanagögn, sem
ekki yrðu undir neinum kring-
umstæðum véfengd.
Atvinnuleysið
í landinu
Á laugardaginn tilkynti verka-
málaráðherra ‘ sambandsstjórn-
afinnar, að 14. janúar hefði tala
atvinnulausra manna í landinu
verið 323,000; í austurstrandar-
fylkjunum 46,000; Quebec 99,000;
Ontario 79,000; sléttufylkjunum
45,000; British Columbia 54,000.
Mr. Mitchell kvað aukið at-
vinnuleysi venjulegt á þessari
árstíð og á þessu ári bæri meira
á því en áður vegna hinnar ó-
venjulega ströngu veðráttu. Til
dæmis þyrptust þeir menn, sem
venjulega ynnu við skógarhögg
til borganna til að leita sér at-
vinnp.
Mest ber á atvinnuleysi í
Montreal; þar eru 33,000 manns
skráðir atvinnulausir; 26,649 í
Vancouver; 17,000 í Toronto;
13,000 í Winnipeg og 11,000
Quebec.
Leiðtogar verkamannasam-
takanna, Percy Benough og A.
R. Mosher, halda því fram að
tala atvinnulausra sé um 15 til
20 prósent hærri, en skýrsla Mr.
Mitchells gefi til kynna, að sú
skýrsla taki aðeins til greina þá,
sem skráðir eru í Atvinnuskrif-
stofum landsins, en að þúsundir
manna séu atvinnulausir, sem
hvergi séu skráðir.
Dæmdur í
Hegningarhússvist'
Alger Hiss, er í stjórnartíð
Franklíns D. Roosevelts, gegndi
ábyrgðarstöðu í utanríkisráða
neyti Bandaríkjanna, hefir ver-
ið fundinn sekur um að hafa
veitt Rússum óleyfilegar upp-
lýsingar og verið dæmdur til
fimm ára hegningarhússvistar;
hann hefir einnig verið fundinn
sekur um meinsæri; réttarhald-
ið fór fram í New York. Verj-
andi hins sakfelda lýsti sam-
stundis yfir að sektardómnum
yrði áfrýjað.
Amerískf- flugfar
ókomið fram
Síðastliðinn fimtudag lagði
amerísk risaflugvél upp frá
Alaska áleiðis til Montana með
þrjátíu og sjö farþega og átta
manna áhöfn innanborðs; flug-
vél þessi komst þá um daginn í
radíósamband við flugvöllinn í
Snag í víðflæmum Norðvestur
a Canada, en síðan hefir eigi til
hennar spurst; jafnskjótt og þess
varð vart, að flugvélin kom eigi
fram á ákveðnum stað og tíma,
var leit hafin, ein sú umfangs-
mesta, er sögur fara af á þessu
mikla meginlandi; lögðu þar
saman flugtækni sína hæfustu
fluggarpar úr lofther Canada og
Bandaríkjanna, án þess að til-
ætlaðan árangur bæri; leitinni
er enn haldið áfram þó flestir
séu nú orðnir vondaufir um að
finna hinn týnda ferðamanna-
hóp á lífi.
Eldsvoði veldur
stórtjóni að Lundar
Aðfaranótt þess 25. janúar, s.l.
kom upp eldur í Veterans Cafe
að Lundar, er brendi bygging-
una til kaldra kola og stofnaði
aðliggjandi húsum í hættu; eink-
um byggingunni, sem pósthúsið
og Northern Press hafa bæki-
stöðvár sínar í. Eigendur að
Veterans Cafe voru þeir Einar-
sons-bræður að Lundar, og svaf
annar þeirra, Karl, í bygging-
unni; vaknaði hann við reykjar-
svælu og kom skjótt á vettvang;
hópur harðsnúinna víkinga gekk
röggsamlega fram í því, að varna
útbreiðslu eldsins til næstu húsa.
Tjónið er metið á átta þúsund-
ir dollara, og var hús og innan-
stokksmunir að einhverju leyti í
vátryggingu.
Leitar kosningar í
borgarstjóraembætti
Það hefir orðið að ráði, að
John Blumberg bæjarráðsmaður
fyrir 3. kjördeild, leiti kosningar
í borgarstjóraembættið í Win-
nipeg við kosningar þær til bæj-
arstjórnar, sem fara fram seinni
hluta næstkomandi októbermán-
aðar. Mr. Blumberg hefir setið
þrjátíu ár í bæjarstjórn án þess
að tapa’ kosningu; hann býður
sig fram undir merkjum C.C.F.
flokksins.
Ekki er enn vitað hvort nú-
verandi borgarstjóri, Mr. Garnet
Coulter, leitar endurkosningar,
þó líklegt þyki að svo muni
verða.
Fyrsfri lýðveldis-
íorseti Indlands
Þann 24. þ. m., var Indland
formlega lýst lýðveldi og hinn
fyrsti forseti þess kosinn í sam-
einuðu þingi í New Delhi; fyrir
vali varð Dr. Rafendra Prasad
64 ára að aldri, einn af dyggustu
lærisveinum Mohandas Gandhis;
hinn nýi lýðveldisforseti er lög-
fræðingur að sérmentun, og hef-
ir helgað meirihluta starfsævi
sinnar sjálfstæðismálum Ind-
lands; hann er þjóðkunnur
mannvinur, sem varið hefir
kröftum sínum til að bæta hag
þjóðbræðra sinna; með lýðveld-
istökunni afsalar Indland sér
hollustueið við brezku krúnuna,
þó það á hinn bóginn að sjálfs-
vild verði framvegis í brezka
þjóðabandalaginu.
Forsætisráðherra Indlands,
Neruh, mælti með Dr. Prasad til
forsetatignar, og var kosningu
hans lýst yfir í einu hljóði af
öllum þingheimi.
Úr borg og bygð
Gefin voru saman í hjónaband
í Selkirk, Man., þann 24. janúar,
William Henry Johnston, Ár-
borg, Man. og Sigurrós Sntfeld,
Hnausa, Man. Við giftinguna að-
stoðuðu Mrs. Steve Gíslason,
systir brúðarinnar og M. A.
Johnston, bróðir brúðgumans.
Laetur væntanlega
of embætti
Talið er víst að Rt. Hon.
Ernest Bevin muni láta af starfi
sem utanríkismálaráðherra Bret
^ands, þótt flokkur hans sigri í
kosningunum, sem fara í hönd
1 n®sta mánuði; Mr. Bevin er
67 ára ag alcjrj Qg þjáist af hjarta
sjukdóm. Hann hefir átt sæti í
íaðuneytinu í 10 ár, fyrst sem
verkamálaráðgjafi og síðar sem
utanríkismálaráðgjafi. í sam-
bandi við hið síðarnefnda em-
bætti, hefir hann orðið að ferð-
ast víða og hefir þá oft þurft að
hafa læknir í för með sér.
Ný Ijóðbók
„Gengin spor“ ejtir Guðrúnu
Árnadóttur frá Oddstöðum
í gær kom á bókamarkaðinn
ný ljóðabók eftir skáldkonu, sem
ekki hefir áður sent frá sér bók,
og ekkert hefir birzt eftir opin-
berlega áður nema nokkuð í
Borgfirzkum ljóðum“, en fram-
lag hennar á þeim vettvangi fékk
hina ágætustu dóma.
Skáldkonan er Guðrún Árna-
dóttir frá Oddstöðum, Hofsvalla-
götu 21 hér í Reykjavík. Heitir
bók hennar Gengin spor.
í þessari nýju ljóðabók eru 58
kvæði og lausavísur. Er bókin
hin fegursta að öllum búningi
og ágætlega gefin út. Útgefandi
er Minningarsjóður Hlöðvers
Arnar Bjarnasonar, en Hlöðver,
sonur skáldkonunnar, fórst af
völdum bifreiðarslyss á síðast-
liðnu vori.
Guðrúnu Árnadóttur er mjög
létt um að yrkja, hvort sem hún
kveður undir gömlum íslenzk-
um bragarháttum eða grípur til
nýrra. Það er auðfundið, að
skáldkonunni er á stundum
þungt um hjarta, en ætíð sér
hún fegurð himinsins gegnum
sortann og ómarnir af strengj-
um hennar eru hugljúfir og sef-
andi. — Alþbl. 14. des.
Þörf á bætfum
húsakynnum
Heilbrigðismálaráðunautur Win-
nipegborgar, Dr. Morley Loug-
heed skýrði nýverið frá því, að
ásigkomulag húsnæðismálanna
í borginni hefði verið drjúgum
lakara árið, sem leið, en það var
1945 og þótti þá ekki alt í gæzk-
unni.
Embættisveitingar
Forsætisráðherrann í Canada,
Louis St. Laurent, kunngerði
síðastliðinn mánuð eftirgreind-
ar embættisveitingar: J. J. Bow-
len í Calgary, tekur við fylkis-
stjóraembætti í Alberta; hann er
74 ára að aldri og var um eitt
skeið formaður Liberalflokks-
ins í því fylki. Rt. Hon. J. L.
Ilsley, fyrrum fjármálaráðherra
sambandsstjórnar, hefir verið
skipaður háyfirdómari í Nova
Scotia, en Alexander Bernier í
St. Boniface hefir verið skipaður
dómari í héraðsrétti Manitoba-
fylkis í stað L. P. Roy dómara,
er nýverið lét af embætti.
Aukin kjarnorkuvopn
Truman forseti hefir mælt
svo fyrir, að aukin verði fram-
leiðsla kjarnorkuvopna með það
fyrir augum, að tryggja öryggi
amerísku þjóðarinnar þannig, að
hún verði ósigrandi..
Saltfiskframleiðslan er 7000
smál. meiri í ár en árið áður
Öll framleiðslan hefir þegar verið seld
Saltfiskframleiðslan þessa árs mfæ mfæ bg bgk mf
Saltfiskframleiðsla þessa árs nemur um 7000 smálestum meira en
árið áður, eða samtals um 19000 smálestum, og er öll sú fram-
leiðsla nú seld, og mun síðasti farmurinn fara í lok janúarmánaðar.
Árið 1948 var saltfiskframleiðslan 12000 smálestir.
Þetta kom fram í skýrslu for-
manns sölusambands íslenzkra
fiskframleiðenda á aðalfundi
sambandsins, er haldinn var síð-
astliðinn laugardag. Árið 1948
skiptust þessar 12000 smálestir
af saltfiski þannig eftir útflutn-
ingslöndum:
Til Grikklands 4842 smál., til
ítalíu 4347, Bretlands og írlands
2302, Þýzkalands 310, Danmerk-
ur 200 óg Brasilíu og Cuba 449
smálestir.
Verðlag 1948 var svipað og
árið á undan.
Saltfiskframleiðsla þessa árs
mun verða um 19000 smálestir
eins og áður segir, og er áætlað
að útflutningurinn skiptist sem
hér segir: Til Grikklands 6000
—6500 lestir, til ítalíu 5500, Portú
gal 3600, Bretlands og Irlands
1625, Þýzkalands 300, Danmerk-
ur 160 og til Brasilíu og Cuba
90 smálestir.
Á þessu ári bættist Portúgal
við í tölu viðskiptalandanna, en
viðskipti við það land höfðu leg-
ið niðri í 7 undanfarin ár. Von
er um að viðskipti hefjist einnig
við Spán á næsta ári.
Alþbl. 14. des.
Brefland veitir
Júgóslavíu lón
Frétst hefir frá London að nú
sé búið að undirbúa gegnum
einn stærsta bankann þar
$7,525,000 lán til Júgóslavíu til
þess að gera henni mögulegt að
kaupa vörur frá þeim löndum,
sem skipta með sterlingspund-
um; og meira lán til þessarar
þjóðar er talið væntanlegt.
Ennfremur er það haft eftir
ábyggilegum heimildum að Júgó
slavía muni hætta öllum flug-
vélasamböndum við Sovietlepp-
ríkin innan skamms — en þau
hafa þegar minkað mikið — og
stofna ný flugvélasambönd við
Vestur-Evrópu.
Fyrrum borgarstjóri látinn
Síðastliðinn þriðjudag lézt að
heimili sínu eftir stutta legu hér
í borginni, A. J. Andrews, fyrr-
um borgarstjóri í Winnipeg, mik-
ilhæfur maður og vel látinn 85
ára að aldri.
Séra Sigurður Ólafsson gifti, í
sjúkdómsforföllum sóknarprests
þeirra.
☆
Þann 24. janúar síðastliðinn
lézt að heimili sínu á Gimli, Mrs.
Pétur Tergeson, 78 ára að aldri,
ein af merkustu konum íslenzka
landnámsins við Winnipegvatn,
er á langri ævi kom hvarvetna
fram til góðs; hún kom til þessa
lands fyrir 64 árum og hafði ver-
ið búsett á Gimli í freklega hálfa
öld; auk eiginmanns síns, Pét-
urs kaupmanns, lætur Mrs
Tergesen eftir sig þrjá sonu og
fjórar dætur; útförin fór fram
frá heimilinu og kirkju lúterska
safnaðarins á Gimli undir for-
ustu Dr. Rúnólfs Marteinssonar.
■fr
Látin er nýlega að Lundar
Mrs. Sigríður Hörðdal, kona
Björns Hörðdal þar í bygð, hnig-
in allmjög að aldri; hún lætur
eftir sig, auk eiginmanns, tvo
sonu og fimm dætur. — Séra
Philip M. Pétursson jarðsöng.
☆
Á fimtudaginn þann 26. janúar
síðastliðinn lézt hér í borginni
Miss Sigurbjörg A. Johnson 59
ára að aldri; hún var fædd í
East Selkirk, og voru foreldrar
hennar þau Mr. og Mrs. Snorri
Johnson. Miss Johnson vann 1
mörg ár að kjólasaum hjá Hud-
son Bay félaginu; hún lætur eft-
ir sig þrjá bræður, Hermann að
Shellbrook, Sask., O. G. Johnson
að Gilbert Plains, og C. A. John-
son að Preecewille, Sask.; einnig
tvær systur, Mrs. W. E. McDon-
ald í Swan River, og Mrs. J. C.
Pridman í Winnipeg. Líkið var
sent til Swan River til greftr-
unar.
☆
í umsögn hér í blaðinu um
hið nýja sjúkrahús í Arborg, féll
úr nafn eins hinna ötulu nefndar
manna, er að framgangi málsins
störfuðu, S. Wopnfjords sveitar-
oddvita.
☆
Mr. G. O. Einarsson, Morris
tengdasonur hans, Mr. Oscar
Gíslason og\ Mr. B. J. Lifman,
allir frá Árborg, voru staddir í
borginni seinnipart vikunnar,
sem leið.
☆
Mr. Carl J. Vopni bygginga-
meistari kom sunnan frá Minne-
apolis, Minn., um miðja fyrri
viku, en þar hafði hann dvalið í
gistivináttu dóttur sinnar og
tengdasonar síðan um jólaleytið.
☆
Gjafir í Blómasjóð Vogar,
Hayland og Siglunes:
Kvenfélagið Aldan $25,00. Mrs.
B. H. Johnson í minningu um
Marenu Johnson $3,00. Hayland
Victory Club í minningu um
Kristinn Emilson $14,80. Kven-
félagið Aldan $20,00. Miss Ásta
Johnson $5,00, Lundar, Man.
Með kæru þakklæti
Ingibjörg Eggertson
☆
Hr. T. L. Hallgrímsson útgerð-
arstjóri og fiskkaupmaður, lagði
af stað suður í Bandaríki síðast-
liðið fimtudagskvöld ásamt frú
sinni; ætluðu þau fyrst að dvelja
nokkra daga í Chicago, en halda
svo þaðan til Birmingham, Ala-
bama, en þar á frú Hallgrímsson
móðursystur, sem hún hefir ekki
hitt um langt áraskeið; þau Hall-
Áherzla lögð ó að
treysta brezka
þjóðasambandið
íhaldsflokkurinn brezki undir
forustu Winstons Churchill, legg
ur í kosningastefnuskrá sinni á-
herzlu á það, að treysta svo sem
framast megi verða brezka þjóða
sambandið, og ber verkamanna-
stjórninni það á brýn, að brezka
veldið væri vel á veg komið með
að gliðna í sundur fyrir land-
vörnum hennar og fyrirhyggju-
leysi.
Flokkurinn kveðst, verði hon-
um fengin valdaforusta í hend-
ur, munu halda áfram þeim vel-
ferðarstofnunum, er verka-
mannastjórnin hafi komið á fót,
og koma því jafnframt til leiðar,
að starfreæksla þeirra kosti
langtum minna, en nú gengist
við; enrtfremur heitir flokkur-
lækkun skatta og afnámi
mn
skömtunar á mörgum vöruteg-
undum; þá tjáist hann og þess
albúinn, að hrinda í framkvæmd
nýrri húsnæðislöggjöf, er tryggi
það að hver einasta og ein brezk
fjölskylda njóti viðunanlegs
skýlis yfir höfuðið.
Varaforseti C.N.R.
lótinn
Nýlega er látinn í Montreal
varaforseti þjóðeignabrautanna,
Canadian National Railway, Mr.
Walton, 65 ára að aldri; hann
hóf starf við þetta mikla járn-
brautakerfi sem fimtán ára ung-
lingur, og vann sig upp jafnt og
þétt. Mr. Walton naut frábærra
vinsælda jafnt hjá undirmönn-
um sem yfirboðurum.
Grunnverð eggja
Vegna þess að brezkur mark-
aður fyrir egg héðan úr landi
má teljast lokaður eins og sakir
standa, og vegna þess einnig hve
egg hafa fallið í verði, hefir sam-
bandsstjórn séð þann kost vænst
an, að ákveða lágmarks- eða
grunnverð handa framleiðend-
um, sem mælt er að nemi 32
cents á tylftina.
Kaldast-i janúar í 75 úr
Að því er veðurfræðingar
skýra frá, var hinn nýliðni jan-
úarmánuður hinn kaldasti, sem
um getur í síðastliðin sjötíu og
fiihm ár; hefir veturinn frá því
um jól reynst óvenjulega þung-
ur í vöfum varðandi samgöngur
allar í þessu landi.
verða nálægt mánaðartíma að
heiman.
☆
Síðastliðinn mánudag lézt að
heimili sínu 757 Toronto Street
hér í borginni Albert Johnson,
36 ára að aldri; hann lætur eftir
sig konu og fjögur börn; einnig
aldurhniginn föður, Kristján
Johnson, fyrrum matvörukaup-
mann.
Útför Alberts fer fram frá
Fyrstu lútersku kirkju kl hálf-
þrjú í dag, fimtudag, undir for-
ustu séra Valdimars J. Eylands.
☆
Samkvæmt símskeyti frá ís-
landi til Mr. Lincolns Johnson,
fyrrum forseta Fyrsta lúterska
safnaðar, fæddist þeim hjónum
séra Eiríki Brynjólfssyni og frú
Guðrúnu á Útskálum, meybarn
þann 29. janúar síðastliðinn.
☆
Annual meeting of the Jon
Sigurdson Chapter T O D E will
be held at the home of Mrs. L.
E. Summers 205 Queenston St.,
Tuesday Eve., February 7th at
grímsson-hjón gerðu ráð fyrir að 8 o’clock.