Lögberg - 09.03.1950, Blaðsíða 1

Lögberg - 09.03.1950, Blaðsíða 1
PHONE 21374 Cleaning Inslilution PHONE 21374 ,oti i>"e R«íáSísí>:_ Cleaning Tnstitution 63. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 9. MARZ, 1950 NÚMER 10 Gjaldeyrisástandið batnaði ekki í síðastliðinum janúar í lok janúar nam eign bankanna í erlendum gjaldeyri 38,5 milj. kr., en þar koma til frádráttar ábyrgðarskuldbindingar þeirra, sem námu 17,1 milj. kr. Nettoeign bankanna erlendis var þannig 21,4 milj. kr. í lok janúarmánaðar. Er hér í fyrsta skipið miðað við nýja gengið á dollar og öðrum gjaldeyri, sem hækkaði síðast- liðið haust. 2,8 milj. kr. aukning í janúar Við lok desembermánaðar s.l. áttu bankarnir 18,6 milj. kr. inn- eign erlendis miðað við nýja gengi fyrgreinds gjaldeyris, og hefir gjaldeyriseignin þannig aukist um 2,8 milj. kr. í janúar- mánuði, án þess að gjaldeyris- ástandið í heild batnaði, nema síður væri. Varð tilfinnanleg lækkun á inneigninni í punda- gjaldeyri í mánuðinum. Höfum fengið 56,2 milj. kr. af Marshallfé Framlög Efnahagssamvinnu- stofnunarinnar í Washington eru ekki innifalin í ofangreind- um tölum. I lok janúarmánaðar var búið að nota 64,8 milj. kr. af Marshall-fé, auk Marshall- lánsins, sem fór til sérstakra nota. Frá því að Marshalláætlunin kom til framkvæmda og til miðs árs 1949 hafa íslandi verið út- hlutaðar 56,2 milj. kr. af Mars- hallfé að meðtöldu skilyrðis- bundnu framlagi í sambandi við freðfiskútflutning til Þýzka- lands — auk Marshall-lánsins. Er því nú, auk þessarar upphæð- ar, búið að nota 8,6 milj. kr. af væntanlegu framlagi á árinu 1. júlí til jafnlengdar 1950, sem ekki er vitað fyrir víst, hve hátt verður. Hér er miðað við doll- aragengið, sem skráð hefir verið síðan í september í haust, og er 40% hærra en eldra gengið. Fréttatilkynning frá Landsbankanum. Mbl. 8. febrúar Full starfræksla hafin Forseti þjóðeignajárnbraut- anna, Canadian National Rail- ways, Mr. Donald Gordon, hefir lýst yfir því, að frá því um mið- nætti í gær, komist starfræksla téðra járnbrauta í sitt uppruna- lega og eðlilega horf; eins og vit- að er, var dregið úr starfræksl- unni sem svaraði 25 af hundraði vegna yfirvofandi kolaskorts, er frá linkolaverkfalli í Bandaríkj- unum stafaði; nú hefir sú deila verið leyst eins og sagt er frá á ritstjórnarsiðu þessa blaðs. Innbyrðisáróður Til þess að ná sér niðri á Tito, æðsta valdsmanni Júgóslavíu, er mælt, að Rússar hafi nú lagt svo fyrir, að magna þannig innbyrð- isáróður sinn þar í landi unz þar komi, að stjórn hans verði ekki lengur viðvært; hvort þeim verður kápan úr því klæðinu getur vitaskuld orðið álitamál. Hólmjríður Daníelson To Speak on CBC Nefrwork March 15 Hólmfríður Daníelson will speak on the CBC educational program on Wednesday, March 15. She will be the last speaker in the Coast to Coast series, en- titled “My Own Mother”, and Alþingi samþykkir þátttöku í Evrópuráðinu Sameinað þing samþykkti í gær með 35 atkvæðum gegn 8 að ísland skuli gerast aðili að Evrópuráðinu. Greiddu kom- múnistar atkvæði á móti málinu, en barátta þeirra gegn því fór á furðulegan hátt í mola. Fulltrúi kommúnista fékk mál inu margfrestað í utanríkisnefnd og tvisvar sinnum var búið að fresta afgreiðslu þess í samein- uðu þingi vegna veikinda Finn- boga Rúts Valdimarssonar. Nú var hann enn fjarverandi og eng inn kommúnisti treysti sér til að mæla gegn málinu, enda þótt Einar Olgeirsson hafi fengið beiðni Rúts um að gera það fyr- irfram. Bað Einar enn um frest, en forseti kvaðst ekki geta frest- að málinu öllu lengur en búið var að gera. Stefán Jóhann Stefánsson haf- ði framsögu fyrir meirihluta ut- the program will be broadcast «nríkisnefndar, og rakti hann to the Western network from CBW, (990 Kcs.) at 3:45 p.m. central standard time. Tilkynning N Seint á þessu ári eru liðin 75 ar, síðan fyrsti landnemahópur- inn íslenzki lenti við strendur Winnipegvatns í Manitoba, rétt sunnan við þar sem bærinn Gimli stendur nú, og nam þar land norður og suður með strönd inni. I tilefni af þessum atburði hafa nefndir hinna, árlegu ís- lenzku hátíðahalda, Lýðveldis- hátíð Ný-lslendinga, og Islend- ingadagshátíð, Winnipeg, Sel- hirk og Gimli íslendinga, komið f®r saman um að leggja niður þessi hátíðahöld á komandi sumri, en í þeirra stað vinna sameiginlega að einni hátíð, sem helguð sé minningu hinna fyrstu íslenzku landnema og landnámi þeirra í Nýja-fslandi, í Mani- toba, árið I875. Tólf manna stjórnarnefnd hef ir þegar verið kosin, og er hún alla reiðu tekin til starfa. Nefnd þesa skipa 6 menn úr íslend- ingadagsnefnd Winnipeg íslend- inga og aðrir 6 úr Lýðveldishá- tíðarnefnd Ný-íslendinga. Er það ósk og þrá nefndar- manna allra þriggja, að þeim takist að efna svo til þessa há- tíðahalds, að það verði til sóma íslendingum. og að dagurinn 7. ágúst, á Gimli, þar sem ákveðið hefir verið að mætast, megi verða í senn ánægjulegur og eftirminnilegur öllum, sem há- tíðina sækja. Jón Pálsson, skrifari Brezka þingið seft Þingið á Bretlandi kom sam- an síðastliðinn mánudag, með mikilli viðhöfn eins og venjulegt er. Konungurinn las hásætis- ræðuna, og var hún þannig úr garði gerð af ráðuneytinu, að gefa sem minst tilefni til and- stöðu, því nú styðst Attlee-stjórn in aðeins við sjö þingmanna meirihluta. Samt sem áður skýrði Mr. Attlee frá því á þingi, að stjórnin myndi framfylgja lögunum, sem þegar hefðu ver- ið samþykt á þingi viðvíkjandi því að þjóðnýta járn- og stáliðn- aðinn. Þau lög ganga í gildi 1. okt. næstkomandi. Strachey ásakaður um kommúnisma Rt. Hon. John Strachey, sem skipaður hefir verið ráðherra hernaðardeildarinnar í brezka ráðuneytinu, og sem hefir verið falin rannsókn í málinu um upp lýsingar er Rússar fengu um atomsprengjur, hefir verið á- sakaður í blöðum Conservative- flokksins um það að hann sé kommúnisti og sé því ekki hæf- ur fyrir þá stöðu, sem hann skip- ar. Svar Stracheys er á þá leið, að það hafi verið á almanna vitorði að hann hafi verið hlynt- ur kommúnistakenningunni á árunum fyrir síðustu styrjöld, en hann hafi aldrei tilheyrt flokkn- um og hann hafi opinberlega af- neitað honum og kenningum hans árið 1940. nokkuð sögu þess máls og þýð mgu þess. Við atkvæðagreiðsl- una greiddu kommúnistar at- kvæði á móti og einnig Páll Zóphóníasson, þrír Framsóknar- menn sátu hjá, en sex þingmenn voru fjarverandi. —Alþbl. 8. feb. Jónas Haralz hagfræðingur skilur við kommúnista Hefur sagt sig úr flokki þeirra og samtímis úr bankaráði Landsbankans Gleymdar innstæður Þessa dagana birtir Free Press nöfn fólks, sem á innstæður í bönkum í Winnipeg, er það virð- ist hafa gleymt, því þeirra hefir ekki verið vitjað í mörg ár. Nema þessar innstæður samtals mörgum þúsundum dollara. Tveir bændur í Vopnafirði stórslasast Voru í kaupsiaðarferð á dráltarvél, sem fór út af veginum á svellbunka Um hádegi í fyrradag varð það slys í Vopnafirði, að dráttarvél með þremur mönnum á rann á hálku á veginum skammt innan við þorpið, rétt utan við svo kallaðan Dranga, og meiddust tveir mannanna mjög mikið, og var vitabáturinn Hermóður fenginn til þess að flytja þá til Akureyrar. JÓNAS HARALDZ hagfræðingur hefur sagt sig úr „Sósíalista- flokknum“ og jafnframt lagt niður störf fyrir hann sem fulltrúi flokksins í bankaráði Landsbankans. Skýrði hann frá þessu á fundi bankaráðsins á föstudaginn, en þá var hann mættur þar fyrir flokkinn í síðasta sinn. Þessi frétt kemur þeim, sem til þekkja, ekki á óvart. Það hef- ur um þó nokkurt skeið verið kunnugt, að Jónas Haralz væri ekki talinn vera á hinni réttu „línu“ í „Sósíalistaflokknum“, og sjálfur mun hann ekki hafa dregið neina dul á það, að hann væri flokknum ósammála í ýms- um höfuðstefnumálum, og bein- línis andvígur hinni skilyrðis- lausu þjónkun flokksins við ut- anríkismálastefnu Rússlands. Mun þessi ágreiningur hafa vald ið því meðal annars, að Jónas Haralz, sem var í kjöri fyrir „Sósíalistaflokkinn“ við bæjar- stjórnarkosningarnar í Reykja- vík 1946, og þá kjörinn varamað- ur flokksins í bæjarstjórn, og við alþingiskosningarnar sama ár í Suður-Þingeyjarsýslu, var nú hvergi í kjöri fyrir hann við alþingiskosningarnar í haust eða við bæjarstjórnarkosningarnar í janúar. En varamaður mun hann hafa verið í miðstjórn flokksins þar til hann sagði sig úr honum. Úrsögn Jónasar Haralz úr „Sósíalistaflokknum“ mun vekja athygli um land allt, ekki síður en úrsögn Hermanns Guðmunds sonar fyrrverandi alþingismanns og formanns Verkamannafélags- ins Hlífar í Hafnarfirði, sem sagði sig úr flokknum í haust; enda er hún enn ein sönnun þess, ,að sjálfstætt hugsandi og menntaðir menn geta ekki hald- izt við í þeim flokki til lengdar. Alþb., 12. feb. Vill ekki fara heim Tadensz Wrewiorowski, starfs maður við pólska sendiráðið í Ottawa hefir sagt upp stöðu sinni, til þess að komast hjá að vera sendur heim á ráðstefnu. Hann segir að við sendiráð lepp- ríkjanna sé margt fólk, sem gegni því hlutverki að njósna um starfsfólkið, hvort það haldi fast við sína kommúnista-trú, og finni það einhvern, sem því virð ist vera vafasamur, sé hann þegar sendur heim á „ráð- stefnu“, og sjáist aldrei framar. Síðan 1946 hafa fimm starfs- menn við pólska sendiráðið í Ottawa sagt skilið við það. Mennirnir, sem fyrir slysinu urðu, voru Páll Metúsalemsson, bóndi að Refsstað, og Sæmund- ur Grímsson, bóndi að Egilsstöð- um, bæjum undir fjöllum, aust- an Hofsár, nokkuð innan við fjarðarbotninn. Eru þeir ná- grannar og mágar. Þriðji mað- urinn var Björn Metúsalems- son á Svínabökkum, bróðir Páls. Voru þeir í kaupstaðarferð til V opnafj ar ðarkauptúns. Slyssiaðurinn Er þeir voru á hæð einni skammt innan við þorpið, rann Ferguson-dráttarvél, sem þeir voru á á hálku á veginum og fór út af. Valt hún niður í grýtt- an hvamm, sem er neðan við veginn, og með henni þeir Páll, sem ekið hafði, og Sæmundur, er sat aftan á. Meiddust þeir báð ir mjög mikið. Björn, sem einnig sat aftan á, losnaði hins vegar við vélina um leið og hún valt, og meiddist hann ekkert. Björn hljóp þegar inn í þorp- ið. I yztu húsunum voru aðeins konur, en þær brugðu við og flýttu sér á slysstaðinn til þess að hjúkra mönnunum, eftir því sem föng voru til. Voru þeir síð- ar fluttir í þorpið á bíl, sem Björn náði í. Hællulega slasaðir Læknirinn á Vopnafirði veitti hinum slösuðu mönnum aðbún- að eftir föngum og vakti hann yfir þeim í fyrrinótt. Taldi hann þá báða beinbrotha og tvísýnt um líf þeirra. Er Björn einkum laskaður í baki og brjósti, en mjaðmargrindin í Páli löskuð. Leið þeim mjög illa í fyrradag. Hermóður fenginn iil hjálpar Vopnfirðingar sneru sér til Halldórs Ásgrímssonar alþingis- manns í Reykjavík um útvegun flutningatækis til þess að koma hinum særðu mönnum í sjúkra- hús. Tókst honum fyrir meðal- göngu Pálma Loftssonar, for- stjóra skipaútgerðar ríkisins, að fá vitabátinn Hermóð, sem stadd ur var fyrir Austurlandi til þess að flytja þá til Akureyrar. Náðist fljótlega samband við Hermóð, og kom hann til Vopna fjarðar í gærmorgun. Hélt af stað til Akureyrar um klukkan hálf-tíu í gærmorgun. Leið mönnunum þá ekki verr en áður. TÍMINN, 18. jan. Ganga af fundi einu sinni enn Fulltrúi Rússa í alþjóða barna hjálparnefnd Sameinuðu þjóð- anna, gekk af fundi á mánudag- inn vegna þess að fulltrúi Nationalista-stjórnar Kína var viðstaddur. Eins og vænta mátti gengu einnig af þingi fulltrúar leppríkjanna, Póllands og Czechoslovakiu. Rússar hafa fimtán sinnum áður notað þessa útgönguaðferð til þess að sýna vanþóknun á því, að kommún- istum í Kína hefir ekki verið veitt sæti á þingi Sameinuðu þjóðanna. fsland hefir alls fengið 13.2 millj. dollara af Marshallfé Mrs. V. J. Eylands íslenzkt kynningarkvöld Mrs. V. J. Eylands flytur ræðu á samkomu, sem haldin verður á vegum Manitoba háskólans á mánudagskveldið, 13. marz í School of Music Centre, 200 Memorial Boulevard. Ræðuefnið er „Ársdvöl mín á lslandi“. Enn- fremur verða þar sungin og leik- in á hljóðfæri lög eftir íslenzk. tónskáld. Þessir taka þátt í kynn ingarkvöldinu: Mrs. Pearl John- son, söngkona; Miss Thora Ás- geirsson, píanóleikari og strok- kvartett — Palmi Palmason, William Worbeck, Allan Beck og Harold Jonasson. Forseti háskólans, Dr. A. H. S. Gillson, verður samkomustjóri. Konurnar verða klæddar ís- lenzkum búningum og íslenzkir munir og málverk verða til sýn- is. Leitinm hætt Leitinni að Bandaríkjaflug- vélinni, sem týndist 26. janúar með 44 manns, í Yukon hefir nú verið hætt. Fleiri flugvélar tóku þátt í þessari leit en nokkur dæmi eru til í sögu Canada. Á seinna misseri ársins 1949 hefur efnahagsamvinnustjórnin, ECA, ákveðið að láta íslandi 1 té 4.9 millj. dollara. Er gert ráð fyr- ir að 2.9 milljónir dollara séu framlág án endurgjalds en 2 milljónir lán. Á þriðja ársfjórðungi var ekki farið að nota þessi Marshall- framlög, þar eð þá var ekki full- notað 2.5 milljón dollara fram- lag án endurgjalds, er veitt var í apríl 1949. Nýjar innkaupaheim- ildir voru gefnar út af ECA, að upphæð 2.110.000 dollara, frá júlíbyrjun til septemberloka. Á sama tíma fengu innflytjendur heimilidir til vörukaupa, er sam- tals námu 1.409.389 dollurum eða 9.144.121 krónum miðað við eldra gengi. Samkvæmt farmskírteinum voru flutt inn á þriðja ársfjórð- ungi 5152 tonn af vörum frá Bandaríkjunum, en þar af voru 4050 tonn eða 78.6% greidd af Marshallframlögum. Síðan efnahagssamvinnan, sem kennd er við Marshall, fyrrver- andi utanríkisráðherra, hófst, hefir íslandi verið úthlutað 13.2 millj. dollara. í septemberlok var þó efnahagssamvinnustjórn- in ekki búin að greiða meira en 6.241.424 dollara fyrir vörur til íslands. Af þessari upphæð voru 441.424 dollarar framlag án end- urgjalds, og var samsvarandi upphæð, 2.721.116 krónur, að frá- dregnum 5%, lögð í mótvirðis- sjóð, sem geymdur er á nafni ríkissjóðs hjá Landsbanka ís- lands. (Frá ríkisstjórninni). —Vísir, 5. jan. Fjérsöfnun Um þessar mundir stendur yf- ir fjársöfnun til afnota fyrir Rauða Kross félagsskapinn i Canada, og er ákveðið að safna í heild fimm miljónum dollara; skerfur sá, sem farið er fram á að íbúar Manitobafylkis leggi til, skal nema þrjúhundruð þús- undum dollara, söfnuninni hefir miðað sæmilega áfram, þó sýnt sé að betur megi ef duga skal. Kornið fyllir mælirinn; það, sem mest veltur á, er að sem allra flestir leggi eitthvað af mörkum, því margt smátt gerir eitt stórt Jóhannes Jóhannesson fyrv. bæjarfóget’i látinn Jóhannes Jóhannesson fyrver- andi bæjarfógeti, andaðist að heimili tengdasonar síns, Berg- sveins læknis Ólafssonar, aðfara nótt þriðjudags s.l. Jóhannes heitinn var fæddur 17. jan. 1866 og því 84 ára að aldri. Hann lét af bæjarfógeta- störfum þegar embættinu var skift í árslok 1928, hætti þing- mensku árið 1931. Um langt skeið var hapn í fremstu röð dómara og stjórn- málamanna þjóðarinnar sem kunnugt er, gáfaður mannkosta maður, er lengi verður minst í stjórnmála- og > framfarasögu landsins. Síðustu missiri var hann far- inn að heilsu. Hann andaðist í svefni. Mbl. 8. feb.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.