Lögberg - 23.03.1950, Side 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. MARZ, 1950
í réði að hefja byggingu
nýbýla í Kelduhverfi í vor
Byggingar og rœktun hafa aukizt þar síðustu ár
Björn Haraldsson bóndi í Austurgörðum í Kelduhverfi er stadd-
ur hér í bænum um þessar mundir og hafði tíðindamaður blaðsins
tal af honum í gær. Sagði hann ýms tíðindi úr Kelduhverfi og
nágrenni.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylande
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 26. marz —
5. sunnud. í föstu.
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir
S. Ólafsson
☆
— Argyle Presiakall —
Sunnudaginn 26. marz.
5. sunnud. í föstu.
Brú kl. 1:30 e. h.
Grund kl. 3:30 e. h.
Glenboro kl. 7:00 e. h.
Allir boðnir velkomnir.
Séra Eric H. Sigmar
Úr borg og bygð
Herbergi með eða án húsgagna
fæst til leigu nú þegar að 639%
Langside Street hér í borginni.
☆
Landar! Þið sem þurfið að fá
húsmuni yðar endurbygða eða
endurnýjaða veitið athygli aug-
lýsingunni frá Drapery Service
félaginu í þessu blaði. Þeir eru
meistarar í sinni list, hafa öll
nýjustu verkfæri sem til starfs
þeirra þarf, eru ábyggilegir og
áreiðanlegir og í tilbót sann-
gjarnir og beztu drengir. —
Gleymið þeim ekki þegar þið
þurfið að láta gjöra við hús-
muni yðar. Þið þurfið ekki ann-
að en að kalla þá í síma, þá koma
þeir undir eins og tala við ykk-
Harðindin og afleiðingar
þeirra.
Tíðar s.l. vetur og vor var með
eindæmum hart. Sauðburður
allur fór fram í húsum og
lambær varð að hýsa til 10.—15.
júní. Nokkrir bændur urðu hey-
lausir, en nægilegt hey var til í
sveitum og var því jafnað eftir
börfum. Lambadauði var með
meira móti, en þó lítill hjá mörg-
um bændum. Fénaðarhöld að
óðru leyti voru góð. í haust voru
lömbin rýr, en ærnar allfeitar.
Bendir það til þess, að þær hafi
mjólkað illa yfir sumarið.
Kalið var stórfellt.
Tilfmnanlegasta afleiðing vor-
harðindanna var þó túnkalið,
einkum í nýræktartúnum. Stórir
flákar, jafnvel svo dagsláttum
skipti, voru dauðkalnir og hvítir.
Af þessu leiddi, að töðufengur
var óvenjulega rýr, og fengu
bændur varla meira en þriðjung
til tvo þriðju af venjulegum töðu
teng.
Af þessu hefði leitt svo stór-
fellda fækkun á fjárstofni
bænda, að nálgast hefði niður-
skurð, ef það hefði ekki bætt úr,
að útengi spratt mjög vel og
heyskapartíð var allgóð fram
eftir hausti. Tíðin það sem af er
vetri hefir og verið sæmileg,
snjólétt, en dálítið umhleypinga-
söm.
Nýi fjárstofninn reynist vel.
Haustið 1944 voru höfð fjár
skipti í Kelduhverfi. Fóru þau
vel og skipulega fram, þótt nokk
uð greindi menn á um réttmæti
þeirra þá. Fjárskipti þessi virð-
ast hafa tekizt mjög vel, og
Athygli skal hér með leidd að
borðhaldi og dansleik, sem The
Viking Club efnir til á Marl-
borough hótelinu hér í borginni
þann 30. þ. m., kl. 6.30 e. h. Verð-
ur þar venju samkvæmt glatt á
hjalla og margbreyttar skemt-
anir. Vissara að panta aðgöngu-
miða í tæka tíð. Sjá auglýsingu
á öðrum stað hér í blaðinu.
Keldhverfingar hafa fyrir nokk-
ru náð þeirri fjártölu, sem þeir
höfðu áður en mæðiveikin her-
tók gamla stofninn. Nýja féð
reynist ágætlega, er bæði afurða
gott og vel hraust. Eru nú allir
Keldhverfingar á einu máli um
það, að fjárskiptin hafi verið hið
rnesta happaráð fyrir Þingey-
inga og óska þess, að fordæmi
þeirra megi sem fyrst koma að
gagni þeim öðrum sauðfjár-
ræktarhéruðum, sem við fjár-
pestir eiga að búa.
Túnræktin eykst mjög.
Túnrækt í Kelduhverfi hefir
aukizt ár frá ári og á mörgum
bæjum í allstórum stíl. Töðu-
fengurinn hefir þó ekki vaxið að
sama skapi og veldur því hinn
mikli skortur á tilbúnum áburði.
Byggingar aukast á ný.
Á stríðsárunum féllu bygginga
framkvæmdir niður að mestu
leyti í Kelduhverfi og nærsveit-
um, en á síðustu árum hafa þær
aukizt aftur. Nú hafa flestir
Sjöunda bindið af
Sögu íslendinga
komið út
Það nær yfir tímabilið
frá 1770 til 1830 og er
samið af Þorkeli
Jóhannessyni.
Komið er út hjá menningar-
sjóði og þjóðvinafélaginu sjö-
unda bindi af Sögu íslendinga,
samið af Þorkeli Jóhannessyni
prófessor. Fjallar bókin um
„upplýsingaröldina“, tímabilið
1770—1830 og er 575 blaðsíður
að stærð og eru í henni 62 mynd-
ir, m.a. margar myndir, sem ekki
hafa verið prentaðar áður, af
ýmsum þekktum mönnum þessa
tímabils íslendingasögunnar. Af
ritverki þessu voru áður komin
út 3 bindi, hið fjórða, fimmta og
sjötta, og ná þau yfir tímabilið
frá 1500 til 1830.
Tímabilið, sem um er fjallað
í þessu bindi ritsafnsins, er að
ýmsu leyti mjög athyglisvert.
Saga þess skýrir frá miklu um-
róti í lífi þjóðarinnar. Æðsti
valdsmaður landsins, stiftamað-
urinn, er fyrrum átti aðsetur ut-
an lands, fær nú aðsetur innan-
lands; þjóðin fær sín fyrstu vega
lög, póstlög og jarðræktarlög.
Landlæknisembættið er stofnað
og komið á nýrri skipan í heil-
brigðismálum. Hér segir frá lok-
um hinna fornu biskupsstóla í
Hólum og Skálholti og hinum
nýju skólum á Hólavelli og að
Bessastöðum. Sagt er frá lokum
einokunarinnar, nýjungum í
sjávarútvegi útrýming fjársýk-
innar og ýmsum breytingum í
atvinnuefnum þjóðarinnar.
Þáttaskil verða í þessari sögu
upp úr aldamótunum 1800. Á
styrjaldarárunum fram til 1814
verður alger stöðvun á viðleitni
stjórnarvalda til umbóta á hög-
um landsins. Ríkir þá um hríð
mikill glundroði í fjárhags og
atvinnumálum.
Við þessa frásögu koma marg-
ir ágætir menn, svo sem Jón
Eiríksson, Skúli Magnússon, Ól-
afur Stefánsson, Stefán Þórar-
insson, Hannes Finnsson og síð-
ast en ekki sízt Magnús Steph-
ensen.
í yfirliti um menning og
menntir þjóðarinnar á þessu
tímabili er stuttlega greint frá
bóakgerð í landinu og getið
helztu skálda og rithöfunda og
verka þeirra. Má þar til nefna
m. a. Eggert Ólafsson, Jón Þor-
láksson, Sígurð Pétursson,
Benedikt Gröndal, Magnús
Stephensen, Finn Jónsson, Hálf-
dan Einarsson, Magnús Ketils-
son, Jón Eiríksson og Finn Mag-
nússon. —Alþbl. 10. febr.
ur.
RE-UPHOLSTER!
Kostar minna
★ ★
■fe Þú gretur elcki keypt nýja samstæiSu i húsmunum fyrir helm-
ingi hærra verb, en það kostar þig að yfirdekka þá sem þú
átt, og samt rtjóta sömu efnisgæCa.
■fc Persónulegt eftirlit á smáatriöum, sem ábótavant er þegar
um stórkostlega verksmiSjuframleiSslu er aS ræSa, gjörir
lirajx'i v Serviee Co. endurbygSu húsmunina betri, heldur en
þeir voru áSur.
■fe Það eru engar skorSur aS því er val 4 litum snertir, því aS
ótakmörkuSu efnisvali er úr aS velja.
•fc Þaulæfðir sérfræSingar, heimsækja þig, þér til aSstoðar án
endurgjalds, eSa skuldbindingar.
llagnvttn þér okkar 7 atriiia betrunar þjónustu
☆ Grindin, nákvæmlega skoSuS, yfir hana fariS og viS hana
gjört.
öll spring strengd og bundin — þau sem veik eru eSa brotin
endurbætt.
■fc Allar stoppanir endurbættar og 75% endurnýjaSar — 100%
í sessum.
•& Pólering á viSarverki, endurnýjuS, og póleraS á ný.
Plastic, til að varna ryki á endum og armhvílum, ókeypis.
•^f Ekkert kaupsýsluumstang nauSsynlegt. — Sækjum munina
á mánudag og skilum þeim á laugardag.
Tækni og vandvirkni ★ »»0 ,»l /»0 qai
finst hvergi fullkomnari ★ uIIDlO tll OZ Ot/4
bændur ríka þörf að byggja eitt-
hvað, ýmist peningshús, hlöður
eða íbúðarhús. Harðindin s.l. vor
sýndu bændum gerla, hve skað-
vænlegt það er að hafa ekki járn
varin fjárhús, því að húsableyt-
an er hættuleg. Gólfgrindur í
íjárhúsum eru einnig nauðsyn-
legar, en eru mjög óvíða til. Slík
ar grindur hefðu langt til borgað
sig s.l. vor hjá þeim bændum,
sem lömb misstu í stórum stíl.
1 Leirhöfn er fullkomið tré
smíðaverkstæði, sem smíðar
hurðir, gulgga og húsgögn, og
kemur það að ágætum notum.
Uggur í bændum.
Nokkur uggur í bændum er
um það, að þeir fái ekki að gera
þessar bráðnauðsynlegu umbæt-
ur, þótt þá skorti ekki fé til þess.
Fjárfesting og fjárfestingarleyfi
eru nýir og torfengnir hlutir.
Hinir, sem þurfa á lánsfé að
halda, þreifa á köldum veruleik-
anum strax.
Þrjú nýbýli
Þrír efnilegir ungir menn í
hreppnum hafa ákveðið að
stofna sitt nýbýlið hver og hefja
byggingu á næsta vori. Er þess
að vænta, að til þess fái þeir
lögmæt lán og aðra fyrirgreið-
slu, svo að þeir þurfi ekki að
herkjast burtu úr fæðingarsveit
sinn, þar sem þeir vilja helzt lifa
og starfa.
Fólksfjöldi er svipaður og
um aldamót.
1 Keíduhverfi er fólkstala nú
svipuð og um aldamót og hefir
ekki lækkað hin síðari ár, þrátt
fyrir árlegan brottflutning, eink
um ungs fólks. Um þriðjungur
fólksins eru börn innan ferming-
ar og rúmlega tíundi hver maður
kominn yfir sextugt. Þar að auki
er svo vanheilt fólk og ekki full-
vinnandi sökum æsku. Mun full-
vinnandi fólk ekki fleira en fjór-
ir af hverjum tíu og er það lág
hlutfallstala. Hins vegar er ó-
kleift fyrir búskapinn að greiða
taxtakaup, þegar ekki er tekið
tillit til fjárhagslegra hlunninda,
sem sveitavinnan hefir að bjóða
verkafólki fram yfir kaupstaða-
vinnu. Þrátt fyrir þetta má seg-
ja, að fólkinu líði vel. Það gerir
nóísamarkröfur og framfarir eru
Bns. Phone 27 9*9—Res. Phone 38 151
Rovalzos Flower Shop
Onr Speelalties:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mlss K. Chrlstto, Proprietress
Formerly with Robinson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
kaupi
hæzta verSi gramla Islenzka
munl, svo s©m tóbaksdósdr og
pontur. homspæni, útskornar
brikur, einkum af Austurlandi,
3g væri þá æskilegt, ef unt værl,
rerC yrOi grein fyrir aldri mun-
inna og hverjlr hefSu smlCaS þá.
HALiLDÓR M. SWAN,
912 Jessie Avenue,
Wlnnipeg - 8imi 46 958
Dr. A. H. S. Gillson to Attend f/Coffee
Party" in Aid of the Chair in lcelandic
The very first public function in aid of the Chair in Icelandic
literature and language at the University of Manitoba, will be
held under the auspices of the Jón Sigurðson chapter, IODE in
the lower auditorium of the First Lutheran church, Victor Street,
Tuesday evening, March 28th. It will take the form of a “coffee
party” from 8 to 11 p.m. and special guests will be Dr. A. H. S.
Gillson, president of the University and Mrs Gillson together with
members of the Board of Governors with their wives, who would
like, on this occasion, to meet the members of the Icelandic
community.
During the evening an excel-
ient short program will be pre-
sented, which will take the form
of a scenic and musical sketch
carefully built around the
‘Fjallkona’ (which is the symbol
of Iceland) as a central motive
á flestum sviðum, að vísu óvíða
stórfelldar, en „sígandi lukka er
'oezt.“
Vöruskortur tilfinnanlegur
Mjög tilfinnanlegur vöruskort
ur er norður þar á ýmsum nauð-
synjavarningi, sérstaklega á
fatnaði og efni til hans. Skömmt-
unarseðlarnir eru ríkulegir og
safnast fyrir á heímilum, en var-
an ófáanleg, hvar sem leitað er.
Þó hefir upp á síðkastið borizt
nokkuð af fatnaði í verzlanir.
Er hann saumaður í Reykjavík,
rándýr vara og annars flokks.
Heyrzt hefir, að Fjárhagsráð
semji um framleiðslu á sumri
þessari vöru og afhendi einkafyr
irtækjum í Reykjavík forgangs
rétt til þess að gera klæðnað úr
innfluttri vefnaðarvöru, sem áð-
ur var atvinna þjóðarinnar í
heild. Er vafasamt, að þetta
verði talið bjargráð fyrir lands-
byggðina utan Reykjavíkur.
Vélanotkunin vex alltaf, en þó
er skortur á búvélum og heimilis
vélum mikill. Pantanir geysi-
miklar óuppfylltar og horfir
betta til mikilla vandræða á
fólkslitlum heimilium, þar sem
sannarlega er ekki vanþörf á að
létta störfin. Kaupfélag Norður-
Þingeyinga rekur viðgerðarverk
stæði fyrir búvinnuvélar og
heimilisvélar til mikilla hags-
bóta. —Tíminn, 8. febr.
or theme. Taking part as
soprano soloist will be Mrs. Rosa
Vernon, and Mrs. Aida (Her-
mannsson) Hart, violinist. Feat-
ures on the program will be
colorful costume tableaux, with
soft instrumental music as back-
ground and suitable commen-
tary.
Among those doing the
honors, pouring coffee will be
local doctors, lawyers and
M.L.A.’s. Receiving with the
regent, Mrs. B. S. Benson and
vice-regents, Mrs. E A ísfeld and
Mrs. H. A. Bergman will be Dr.
P. H. T. Thorlakson, chairman of
the central committee of the
Founders of the Chair in Ice-
landic, and Mrs. Thorlakson.
Hólmríður Daníelson, secretary
Þjóðverji og Ameríkumaður
ræðast við.
Þjóðverjinn: —í Þýzkalandi
fara hraðlestirnar svo hart, að
símastaurarnir meðfram vegin-
um líta út eins og tennur í hár-
greiðu.
Ameríkumaðurinn\~Þ að er
ekki í frásögur færandi. Fyrir
vestan fara lestirnar svo hratt,
áð skugginn þeirra kemur hálf-
tíma seinna á stöðina.
SEVENTH ANNUAL
VIKING BANQUET
AND BALL
Thursday, March 30, ai 6.30 p.m.
in the
MARLBOROUGH IIOTEL, 8th Floor
Jimmie Gowler’s Orchestra
Dinner and Dance $2.00
Dance only ......................75
Reserve Early
Kaupið
þennan
stóra
25c
PAKKA
vegna
gæða
Hvað er langt* síðan þú varst "heima"?
Farðu nú . . . þegar hagstætt er að ferðast!
Þráir þú að heimsækja fjölskyldu þína „í gamla landinu"...
Að kynna þeim þína eigin fjölskyldu . . . Að gleðjast og
minnast forna funda meðal vina . . . Neitaðu þér ekki um
þessa ánægju af þeirri ástæðu, að þér finnst þú ekki hafa
ráð á því. . . Farðu núna, þegar bæði er hægt að spara og fá
betra farrými! Talaðu við ferðaskrifstofu þína í dag. Hún
mun með ánægju taka að sér að sjá um ferðina fyrir þig.
Represenlalives in America for the
EUROPEÆN TRAVEL COMMiSSiOn
AUSTRIA FRANCE ICELAND LUXEMBOURG NORWAY SWEDEN
BELGIUM GREAT BRITAIN IRELAND MONACO PORTUGAL TURKEY
DENMARK GREECE ITALY NETHERLANDS SWITZERLAND
AUKINN SKILNINGUR
MEÐ FERÐALÖGUM . . . ER LYKILLINN AÐ FRIÐI.