Lögberg - 13.04.1950, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 13. APRÍL, 1950
5
4HU6AMÍL
CVCNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
ÍSLENZK KVENFRELSISHETJA
Erindi flutt á fundi Kvenfélags Sambandssafnaðar í Winnipeg, 11. april 1950
af INGIBJÖRGU JÓNSSON
Kvenréílindabyliingin
Nokkru fyrir síðustu aldamót
hófst stórkostleg bylting í heim-
inum, sem enn heldur stöðugt
afram, en er svo hægfara og
friðsamleg, að almenningur ger-
ir sér ekki ljóst hvað er að ske;
það er hvorki meira eða minna
en það, að fullur helmingur
mannkynsins er smásaman að
hrista af sér kúgunarhlekki alda-
gamalla erfðavenja. Konur um
allan heim eru að krefjast frels-
is og jafnréttis á við karlmenn
og hafa nú í mörgum löndum
náð, að minsta kosti í orði
kveðnu, því takmarki. Fram að
þeim tíma að byltingin hófst,
voru konur, í raun og veru, ekki
taldar til manna. Þær nutu ekki
stjórnarfarslegra, réttarfars-
legra né atvinnulegra réttinda
til jafns við karlmenn; þær
höfðu verið ómyndugar frá ó-
munatíð.
Brautryðjendur
Svo máttugar eru erfðavenj-
nrnar við að svæfa réttlætismeð-
vitund mannanna, að jafnvel
honunum sjálfum fanst kúgun
þeirra og ófrelsi vera sem eðli-
iegur og sjálfsagður hlutur. Ein-
staka konur munu þó jafnan
hafa verið uppi, er hafa séð og
fundið til óréttlætisins í garð
mæðra mannkynsins.
Svo að segja samtímis rísa upp
í mörgum löndum kvenleiðtog-
ar> er leituðust við að vekja kyn-
systur sínar af hinum langa
dvala, og eggja þær fram til að
berjast fyrir auknum réttind-
um kvenna. Nöfn Carrie Chap-
man Catt í Bandaríkjunum,
Pankhurst mæðgnana á Bret-
landi og fleiri slíkra brautryðj-
enda eru ódauðleg í sögunni.
Við þetta tækifæri langaði
mig til að minnast einhverrar
íslenzkrar konu, sem í fylking-
arbrjósti stóð í kvenréttindabar-
áttunni, og stendur þá næst að
minnast vestur-íslenzku kven-
fnelsishetjunnar, frú Margrétar
Benediktsson, ritstjóra kvenna-
blaðsins Freyja, en því miður
hafði ég engin söguleg gögn við
hendina, ekki einu sinni blað
hennar, sem hún gaf út í tólf
ár, frá 1898 til 1910, og þykir
mér það slæmt. Hins vegar barst
mér Minningarrit Kvenrétiinda-
félags íslands, og dróg ég sam-
an úr því og annars staðar frá
efni um hina miklu kvenfrelsis-
betju Islands, Bríeti Bjarnhéð-
insdóttur.
■Æskuár
Hún var fædd 27. september
^56 að Haukagili í Vatnsdal í
Húnavatnssýslu. Systkinin voru
^egur, tveir drengir og tvær
stúlkur og komu foreldrarnir,
Pótt þau væru fremur fátæk,
óðrum syninum til æðri mennta;
ann Var hinn kunni holds-
veikralæknir, Sæmundur Bj arn-
heðinsson.
Bríet var elzt systkinanna og
féll það í hennar hlut, innan
fermingaraldurs, að taka að sér
forstöðu heimilisins. Móðir henn
ar hafði þá misst heilsuna og lá
rúmföst árum saman. Mun það
hafa verið erfiður skóli fyrir
unglinginn, en hún lét ekki bug-
ast; þvert á móti efldi sú reynsla
hana að þreki, og hún lærði
snemma að vera sjálfstæð í
hugsun og gjörðum.
Bríet var gædd skarpri greind
°g óslökkvandi menntaþrá, en
vitanlega kom ekki til mála að
setja hana til mennta fremur en
aðrar alþýðustúlkur þeirra tíma.
En hún var að því leyti ólík kyn-
systrum sínum að hún tók því
ekki þegjandi og með undirgefni
að geta ekki svalað fróðleiks-
Þorsta sínum. Lestrarnáms naut
hún í foreldrahúsum, en það var
henni ekki nóg; hún fann sárt
til þess óréttlætis, er útilokaði
hana og aðrar stúlkur frá æðri
menntastofnunum landsins.
Sextán ára að aldri, situr hún
í gömlu baðstofunni með rúm-
fjöl á hnjánum, og er að berjast
við að skrifa fyrstu greinina
sína, Menntun og réttindi
kvenna. Hún hafði þarna fundið
köllun sína; upp frá því var hún
í engum vafa um hvert hún
skyldi stefna, hlutverk hennar
var það að bæta lífskjör ís-
lenzkra kvenna og afla þeim í
öllu jafnréttis við karlmenn.
Umrót í þjóðfélaginu
Um þessar mundir, 1870, og
áratugina þar á eftir greip út-
fararhugur mikinn hluta þjóð-
arinnar; fólk vildi ekki lengur
sætta sig við það harðrétti af
völdum verzlunarhafta og nátt-
úruafla, er það hafði orðið að
þola í aldaraðir. Hundruð manna
tóku sig upp og fluttu til Vestur-
heims. Útflutningarnir komu
miklu umróti á huga fólksins,
sem eftir varð; það varð mót-
tækilegra fyrir nýjar hugsanir
og stefnur. Árið 1874 var haldin
1000 ára minningarhátíð lands-
ins. Hún varð einnig til að
glæða frelsishugsjónir fólksins
og stæla það í sjálfstæðisbar-
áttu sinni. Nýir straumar hug-
sjóna og áræðis flæddu yfir land
ið til yztu annesja, — þjóðin var
að vakna.
Bríet skilur við átthagana
Hin unga stúlka norður í Húna
vatnssýslu var hrifnæm fyrir
því sem var að gerast. Henni
fanst hún verða að komast í
i'ylkingarbrj óst frelsisbaráttunn-
ar, sem fram undan var; en fyrst
varð hún að brjóta sér veg til
menntunar og það gerði hún á
sinn eigin hátt. Hún gat nú farið
að heiman, því móðir hennar
var komni til nokkurrar heilsu
og systir hennar orðin til léttis
við heimilisstörfin.
Ryður sér veg til mennta
Fyrst réðist hún í vistir og
aflaði sér fjár til eins árs veru
í kvennaskólanum á Laugalandi
í Eyjafirði. Þaðan fór hún aust-
ur 1 Þingeyjarsýslu og vann þar
við heimiliskennslu á vetrin en
heyskap á sumrin. Eins og kunn-
ugt er, var bændamenningunni í
Þingeyjarsýslu viðbrugðið í þá
daga. Margir hinna mikilhæf-
ustu manna þjóðarinnar voru
ættaðir þaðan. Þingeyingar áttu
upptökin að samvinnuhreyfing-
unni og hrundu fyrstir af sér
verzlunarokinu. — Þar var vor
í lofti.
Bríet gerði sér sýsluna að
nokkurskonar skóla. Hún réði
sig á þau heimili, er voru á háu
menningarstigi. Hún sat og jafn-
an um færi að komast í viðræð-
ur við helztu atkvæðamenn
sveitarinnar, skáld rithöfunda,
þingmenn, embættismenn og
menntamenn, og sló þá stund-
um í kappræður, einkum um
kvenréttindamálið; þótti hin
unga stúlka standa vel fyrir máli
sínu og gat hún sér orðstír í
sýslunni fyrir gáfur og mælsku.
Ekki var laust við að sumum
findist hún minna vilja tala við
kvenfólkið, en ástæðan til þess
var vitanlega sú, að til karl-
manna var meiri fræðslu að
sækja um þær mundir en til
kvenna. Hún fylgdist með öllu,
sem var að gerast í þjóðmálum
og þótti mönnum skemtilegt að
tala við hana.
Leggur Reykjavík undir sig
Nú var komið fram að árinu
1884, Bríet orðin 28 ára og undir
búningstímabilinu lokið. Hún
leggur nú leið sína suður til höf-
uðstaðarins; þar hlaut baráttu-
völlurinn að vera. Fólksfjöldi
Reykjavíkur var þá aðeins um
4000 mann. Fram til þessa hafði
engin kona opinberlega haft ein-
urð til að tala eða skrifa um ó-
frelsi kvenna. En um þessar
mundir birtist í Fjallkonunni'
grein, Kvenfrelsi eftir ritstjóra
blaðsins, Valdimar Ásmundsson,
gáfaðan menntamann. Það gaf
Bríetu kjark til þess að fara á
fund hans og biðja hann að
birta grein eftir sig, sem hann
og gerði vorið 1885 og var grein-
in, er hét „Nokkur orð um
frelsi og menntun kvenna" sú
fyrsta blaðagrein, er prentuð var
á íslandi eftir konu.
í árslok 1887 flytur svo Bríet
fyrsta fyrirlestur kvenmanns á
íslandi „Um hagi og réltindi
kvenna". Þótti þetta uppátæki
tíðindum sæta, og undravert að
sjálfmenntaður kvenmaður
skyldi ráðast í slíkt — og það
ung sveitastúlka! En fyrirlestur-
inn þótti takast hið bezta. —
„Fyrsfa „intellektuel" hjóna-
band á íslandi"
Næsta ár, 1888, hlotnaðist
Bríet ómetanleg aðstoð í kven-
réttindabaráttu sinni; þá giftist
hún hinum fluggáfaða og mennt
aða manni, Valdimar, ritstjóra,
Ásmundssyni.
Það var margt líkt með þeim;
þau áttu sameiginlegar hug-
sjónir og áhugamál. Sambúðin
við hann varð henni sem æðri
skóli. Hann hvatti hana til þess
að gefa út Kvennablaðið, og er
óvíst að hún hefði ráðist í það,
ef hún hefði ekki átt hann að.
Hún kunni og að meta aðstoð
hans og frábæra hæfileika, og
segir sjálf svo frá:
„ 1 byrjuninni gat ég borið alt,
sem ég var óviss um, undir hann,
og verið óhrædd um að hans
smekkur og dómur væri á rök-
um byggður. Vegna sambúðar-
innar við hann kynntist ég betur
málum og mönnum en ég ann-
ars átti færi á. Eg lærði að líta
meiri heildaraugum á allt, verða
frjálslyndari og víðsýnni. Ég
hafði meiri aðgang að innlend-
um og útlendum bókum, blöð-
um og tímaritum, lærði betur að
skilja sjálfa mig og aðra og
komst máske fyrir það á mína
réttu hillu. — Meðan hans naut
við, vissi ég, að ég gat óhrædd
borið allt undir hann, enda töl-
uðum við um allt, sem efst var
á baugi, og nutum þess í sam-
einingu. Skýrðist mér þá allt
betur“.
Bríet missti mann sinn eftir
13V2 ára hjónaband og vék hún
þá að því, um leið og hún flutti
lesendum Kvennablaðsins and-
látsfregn hans, að hún ætti hon-
um að þakka það sem hún hefði
komist áleiðis í blaðamenskunni.
— Þau eignuðust tvö börn, sem
bæði urðu landskunn fyrir marg
þætta hæfileika og afrek, hvort
á sínu sviði, Laufeyju og Héðinn.
Kvennablaðið
Bríet hóf útgáfu Kvennablaðs-
ins árið 1895. Henni var strax
ljóst að hún mátti ekki eingöngu
helga blaðið kvenfrelsismálum;
þá myndi það ekki ná til nema
hinna örfáu kvenna, sem höfðu
gert sér grein fyrir þýðingu þess
máls. Hún tók því það ráð að
gera blaðið sem fjölbreyttast að
efni, til skemmtunar og fróð-
leiks. „Á þann hátt náði blaðið
þeim feikna vinsældum og út-
breiðslu er það hlaut, en flutti
jafnframt stöðugt og óaflátan-
lega boðskap sinn um jafnréttis-
mál kvenna, um rétt dætranna
til menntunar, engu síður en
sonanna, um skyldur konunnar
að nota þann rétt, er henni hlotn
aðist. —
Ungu, íslenzku sveitastúlk-
urnar og konurnar biðu margar
hverjar með óþreyju í hvert
skipti eftir næsta tölublaði
Kvennablaðsins, það var þeim
eins og gluggi, sem þær horfðu
út um í fásinninu heima fyrir,
gluggi, sem sneri að umheimin-
um, sýndi þeim hvað var að ger-
ast, en hjálpaði þeim jafnframt
til að skilja betur einhver und-
arleg umbrot og óljósar þrár í
sjálfum þeim. —
Áhrif Kvennablaðsins á hugs-
unarhátt íslenzkra kvenna, ein-
mitt þeirra, sem nú ber ef til
vill hvað mest á í íslenzku þjóð-
lífi, verða aldrei reiknuð út né
tölum talin, það eitt vitum við,
að þau voru mikil“.
Þessa viðurkenningu gefur
hin gáfaða kona, Aðalbjörg Sig-
urðardóttir, Kvennablaði Bríet-
ar Bjarnhéðinsdóttur.
Kvenréttindasamtök kvenna
Skömmu fyrir aldamót fóru
konur víðsvegar í heiminum að
koma á fót kvenfélögum og
kvenfélagasamböndum, s e m
höfðu kvenréttindamálið ein-
göngu á stefnuskrá sinni. Sú
hreyfing hófst í Bandaríkjunum
og barst síðan til Evrópu. Full-
trúar frá kvenréttindafélögum
Bandaríkjanna og Norðurálfunn
ar héldu allsherjar þing í Berlín
1903 og stofnuðu þá hið heims-
kunna kvennasamband, Inter-
national Woman Suffrage Al-
lance.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir hafði
vakandi auga á því, sem var að
gerast í útlöndum, enda fóru
brátt bréf að streyma til henn-
ar, einkum frá forstöðukonu og
fyrsta stofnanda þessa félags-
skapar, Mrs. Carrie Chapman
Catt í New York, um það að
stofna kvenréttindafélag á ís-
landi.
Frú Bríet tók sér nú ferð á
hendur árið 1904 til Noregs, Sví-
þjóðar og Danmerkur til þess
að kynna sér þessa hreyfingu.
Frú Bríet var gædd frábærum
námsgáfum og hafði lagt kapp
á að læra erlend tungumál. Kom
þetta henni nú að miklu gagni
og flutti hún ræður og erindi á
Norðurlöndum og gat sér mik-
inn orðstír. — Fyrir áskoranir
frá konum utanlands, sótti hún
svo Alþjóðakvennaþingið, sem
haldið var í Kaupmannahöfn
sumarið 1906. Þegar heim kom,
ritaði hún um kvennasamtök
þessi og hvatti konur til þess að
stofna kvenréttindafélag á Is-
landi og ganga í Alþjóðasam-
bandið. Ennfremur átti hún tal
af ýmsum konum í Reykjavík
um málið; þær boðuðu til fund-
ar með þeim árangri að Hið ís-
lenzka Kvenréttindafélag var
stofnað 27. janúar 1907, og var
frú Bríet kjörin formaður þess.
Hinn mikli sigur 1908
Ekki leið á löngu þar til á-
hrifa hins nýja félags gætti, og
það á eftirminnilegan hátt. Sam-
kvæmt bæjarkosningalögum,
sem gengu í gildi 1. janúar 1908
fengu konur almennan kosninga
rétt og kjörgengi í bæjarmálum.
Nú ákvað Kvenréttindafélagið
að beita sér fyrir kosningum
kvenna í bæjarstjórn Reykja-
víkur. Fyrst leituðu þær sam-
vinnu við karlmenn, en hún
brást. Þá leituðu þær samvinnu
við önnur kvenfélög í bænum og
hún fékkst og kvennalisti var
settur upp. Þá kusu þær kosn-
inganefnd, skiptu bænum í 30
hverfi, skiptu með sér verkum
og gengu hús úr húsi til að leita
fylgis kjósenda. Ennfremur
héldu þær fjóra stórfundi með
fræðandi fyiárlestrum. — Árang
urinn var sá, að af 15 sætum
náðu konur fjórum og var frú
Bríet ein af þeim.
„Ég var heima hjá mér“, ritar
frú Bríet, „þegar frú Jónassen
símaði kosningaúrslitin til mín,
og ætlaði varla að trúa mínum
eigin eyrum. En mikil var gleðin
yfir úrslitunum. — Auðvitað
gerðum við okkur glaðan dag
eftir þessa bardagaskorpu. —
Var það glaðvær hópur kvenna,
sem kom saman hjá frú M.
Zoega kvöldið eftir í borðsaln-
um á hinu skemmtilega Hótel
Reykjavík, og sátum við þar í
mesta fagnaði og ræðuhöldum
fram yfir háttatíma.“
Kvenréttindafélagið var nú
rétt eins árs gamalt og hafði það
verið vel að verki. —
Hert á sókninni; frú Bríet
leggur land undir fót
Enn höfðu konur ekki fengið
kosningarétt og kjörgengi til al-
þingis. Nú var um að gera að
herða á sókninni. Nú var tíminn
kominn til að víkka verksviðið,
að ná til íslenzkra kvenna til
sjávar og sveita og fá þær til að
bindast samtökum um kvenrétt-
indamálið. Sumarið 1908 ferð-
aðist frú Bríet víða um landið,
þótt samgöngur væru erfiðar;
flutti ellefu fyrirlestra um kven-
iréttindamál og stofnaði sam-
bandsdeildir. „Fyrirlestrarnir
voru víðast hvar vel sóttir.
Marga fýsti að sjá og heyra rit-
stjóra Kvennablaðsins tala. Hún
var búin að undirbúa jarðveg-
inn og vinna traust og álit
margra kvenna. Hún kom, sá og
sigraði. Mörgum fanst að hér
væri á ferð óvenjuleg kona, að-
sópsmikil og mælsk, gáfuð,
menntuð og kjarkmikil, — sem
lét sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. — Allir fundu að frú
Bríet talaði eins og sá, sem vald
hafði. Margar konur snerust til
fylgis við hana. Þær skildu, að
hún var ekki að vinna fyrir sig,
heldur alla kvenþjóðina. — —
öðrum fanst hún „ókvenleg“,
ekki sízt karlmönnum, sem lítið
var um það gefið, að konur
seildust inn í þeirra verkahring,
og jafnvel óttuðust, að þær
myndu taka völdin í sínar hend-
ur. Heima fyrir voru harðar
rimmur háðar út af fyrirlestrum
og skrifum frú Bríetar um jafn-
réttismálin“. (Védís Jónsdóttir).
Um sama tíma var undirbúin
áskorun til alþingis um kven-
réttindamálið og söfnuðust 12000
undirskriftir og þótti það há
tala.
Ólga í sljórnmálunum
Þetta ár, 1908, varð mikil ólga
í stjórnmálum landsins út af
samningsuppkastinu við Dani.
Frelsis- og sjálfstæðisþrá þjóð-
arinnar logaði upp úr, í barátt-
unni við hið erlenda vald. Það
varð til þess að frelsiskröfur
kvenna fengu betri áheyrn og
fleiri fylgjendur, en annars
hefði orðið. Kvenréttindamálið
hafði og jafnan átt sér forvígis-
menn meðal karlmanna; verða
hér aðeins nefndir nokkrir:
Valdimar Ásmundsson, er fyrst-
ur ritaði blaðagrein um málið;
Páll Briem, er flutti fyrstur fyr-
irlestur um það; skáldin Þor-
steinn Erlingsson og Matthías
Jochumsson og Skúli Thorodd-
sen, er flutti á hverju þingi til-
lögur um að konum væri veitt
full borgaraleg réttindi.
Sigur að lokum
Réttindamál kvenna voru nú
komin inn á dagskrá þings og
þjóðar. Árið 1911 flutti Hannes
Hafstein, ráðherra, frumvarp
til laga um að konum væri veitt-
ur réttur til allra skóla, nám-
styrkja og embætta með sömu
skilyrðum og og karlmenn; það
varð að lögum. Og árið> 1915
flutti Einar Arnórsson kven-
réttindamálið fram til sigurs á
Alþingi. 19. júní það ár fengu
íslenzkar konur kosningarétt og
kjörgengi til Alþingis. Varð ís-
land þannig með fyrstu löndum
heimsins til að veita konum póli-
tískt jafnrétti.
Starfinu ekki lokið
Djúp fagnaðaralda hreif nú
hugi allra þeirra, sem fyrir þessu
máli höfðu barist, en starfi Brí-
etar Bjarnhéðinsdóttur og fé-
lagssystra hennar var ekki lokið.
Enn voru konur yfirleitt hlé-
drægar og höfðu sig lítt í frammi
í stjórnmálum“. Frú Bríet þreytt
ist aldrei á að brýna fyrir þeim,
að notfæra sér fengin réttindi.
Jafnframt pólitískri starfsemi
sinni, blaðamensku og fyrir-
lestrarhöldum beitti frú Bríet
sér mjög fyrir skólamálum og
sat í skólanefnd Reykjavíkur 19
ár. Kom hún á ýmsum umbót-
um varðandi heilsuvernd barn-
anna og var jafnan skelleggur
málsvari kven-kennaranna. —
Laufey, dóttir hennar, varð
fyrsta stúlkan, sem tók stúdents-
próf við Menntaskólann í
Reykjavík.
Kvenréttindafélag I s 1 a n d s,
undir forustu frú Bríetar, hélt
áfram starfi sínu, því mörg
voru umbótaverkefnin. Af hin-
um sterka stofni þess spruttu
margar greinar — mörg önnur
félög: Verkakvennafélagið Fram
sókn, Barnaleikvallastarfsemin,
Vinnumiðlunarstöðin, Lestrar-
félag kvenna, Mæðrastyrks-
nefndin, Mæðrafélagið og Minn-
ingar- og Menningarsjóður
kvenna.
Fáir verða spámenn í sínu
föðurlandi
Aldurinn var nú farinn að fær
ast yfir frú Bríeti og ætla mætti
að hún færi nú, persónulega, að
uppskera nokkur laun fyrir það
mikla starf, er hún hafði int af
hendi, en nú skeður hið óskiljan-
lega: hún er svipt því vopni, sem
bezt hafði dugað henni í hinni
löngu baráttu hennar. Vegna
skorts á fjárhagslegum stuðn-
ingi, verður hún að hætta við að
halda úti blaði sínu. Um þetta
segir frú Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir:
„Það er átaxanlegt tákn hinn-
ar hörðu baráttu, er frú Bríet
háði, að hún skyldi verða að
hætta að gefa Kvennablaðið út
eftir 25 ár, strax og íslenzkar
konur höfðu fengið öll pólitísk
réttindi við karlmanninn".
En ekki lét frú Bríet þetta á
sig fá, og í kosningunum 1926
bauð hún sig fram til Alþingis.
Hún var þá sjötug og var ný-
komin af sjúkrahúsi. „En þeir
sem heyrðu til hennar á lands-
málafundum, urðu hvorki varir
við elli né lasleika. — Fjör henn-
ar, kraftur og áhugi, að ó-
gleymdri þekkingunni á þeim
málum, sem hún talaði um, setti
hana altaf í fremstu röð meðal
ræðumanna“. (A. S.).
En konur sameinuðust ekki
um hana eins og hún þó átti von
og heimting á, því engri einni
konu áttu þær meir að þakka
en henni. — Vonbrigði hennar
voru sár, enda segir dóttir henn-
ar: „Var þá móðir mín þreytt
og vonsvikin og lét af formensk-
unni í Kvenréttindafélaginu“. —
Þá tók Laufey dóttir hennar við
forustunni í félaginu, en frú
Bríet var kjörin heiðursformað-
ur þess.
„Sagan mun lengi geyma nafn
hennar"
En það var langt frá því að
frú Bríet settist í helgan stein,
hún var hugsjónum sínum og
áhugamálum trú til æviloka.
Haustið 1932, þá 76 ára, fór hún
hringferð kringum landið í er-
indum Kvenréttindafélagsins.
Var það hin mesta svaðilför, því
hún lenti í verstu veðrum bæði
á sjó og landi, en hún bar sig
að venju eins og hetja.
Eitt af áhugamálum frú Bríet-
ar var, að stofna sjóð til þess að
styrkja fátækar, gáfaðar ungar
stúlkur til mennta. Eftir lát frú
Bríetar var þessi sjóður stofn-
aður til minningar um hana og
nefndur Menningar- og Minn-
ingarsjóður kvenna.
Á skömmum tíma er sjóður-
inn orðinn ótrúlega stór og
byrjað að úthluta úr honum
styrkjum, og tekur þetta af öll
tvímæli um það, að þrátt fyrir
deildar meiningar um ævistarf
frú Bríetar meðan hún enn lifði,
lærði þjóðin innan skamms tíma
að meta að verðleikum hið um-
svifamikla og þjóðnýta æfistarf
þessarar stórbrotnu og sérstæðu
konu, sem verður því frægari í
sögunni sem aldir líða.
Mjög andrík heldri kona átti
eitt sinn tal við nokkra karl-
menn.
—Eg*játa það, sagði hún, —
að kvenmenn eru yfirleitt hé-
gómlegri en karlmenn. Til dæm-
is sé ég að hálsbindið er skakkt
á þeim laglegasta ykkar. Það
gæti aldrei komið fyrir hjá okk-
ur kvenfólkinu.
Fimm karlmenn voru viðstadd
ir og allir gripu þeir til háls-
bindisins.